Borgarstjórn - 15.2.2001

Borgarstjórn

2

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2001, fimmtudaginn 15. febrúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 17.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Helgi Hjörvar, Kristín Blöndal, Sigrún Magnúsdóttir, Helgi Pétursson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Anna Geirsdóttir, Helga Jóhannsdóttir, Kristján Guðmundsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Bryndís Þórðardóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur F. Magnússon. Fundarritun önnuðust Gunnar Eydal og Kristbjörg Stephensen.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 6. febrúar.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 13. febrúar.

- Kl. 17.02 tók Árni Þór Sigurðsson sæti á fundinum. - Kl. 17.05 tók Jóna Gróa Sigurðardóttir sæti á fundinum. Forseti ákvað að liðir 34.-39. yrðu ræddir sem sérstakur dagskrárliður.

- Kl. 18.00 tók Ólafur Kr. Hjörleifsson við fundarritun af Kristbjörgu Stephensen. - Kl. 19.01 vék Kristján Guðmundsson af fundi og Eyþór Arnalds tók þar sæti.

30. liður fundargerðarinnar samþykktur með 8 atkv. gegn 7.

- Kl. 19.23 var gert fundarhlé. - Kl. 19.55 var fundi fram haldið og vék þá Anna Geirsdóttir af fundi og Guðrún Jónsdóttir tók þar sæti. Jafnframt vék Helga Jóhannsdóttir af fundi og Kjartan Magnússon tók þar sæti. Þá tók Kristbjörg Stephensen við fundarritun af Gunnari Eydal.

3. Lagðir fram 34.-39. liðir fundargerðar borgarráðs frá 13. febrúar.

- Kl. 20.17 vék EyþórArnalds af fundi og Helga Jóhannsdóttir tók þar sæti. - Kl. 20.56 tók Gunnar Eydal við fundarritun af Kristbjörgu Stephensen. - Kl. 21.33 vék Kristín Blöndal af fundi og Pétur Jónsson tók þar sæti. Jafnframt vék Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson af fundi og Guðrún Pétursdóttir tók þar sæti. - Kl. 21.48 vék Kjartan Magnússon af fundi og Margrét Theódórsdóttir tók þar sæti. - Kl. 22.41 vék Bryndís Þórðardóttir af fundi og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tók þar sæti.

4. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 31. janúar.

5. Lögð fram fundargerð félagsmálaráðs frá 7. febrúar.

6. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 12. febrúar.

7. Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 29. janúar. Samþykkt með 15 samhlj. atkv.

8. Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 12. febrúar. Samþykkt með 15 samhlj. atkv.

9. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 31. janúar. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhlj. atkv.

10. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 7. febrúar. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhlj. atkv.

11. Lögð fram reglugerð fyrir Hitaveitu Þorlákshafnar; síðari umræða. Samþykkt með 15 samhlj. atkv.

12. Lögð fram gjaldskrá fyrir Hitaveitu Þorlákshafnar; síðari umræða. Samþykkt með 15 samhlj. atkv.

Fundi slitið kl. 23.00.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Helgi Hjörvar

Ólafur F. Magnússon Steinunn V. Óskarsdóttir