Borgarstjórn - 15.1.2004

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2004, fimmtudaginn 15. janúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Árni Þór Sigurðsson, Björk Vilhelmsdóttir, Alfreð Þorsteinsson, Stefán Jóhann Stefánsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Helgi Hjörvar, Margrét Sverrisdóttir, Kjartan Magnússon, Jórunn Frímannsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Björn Bjarnason, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. Fundarritun önnuðust Gunnar Eydal og Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 6. janúar.

- Kl. 14.47 tók Hanna Birna Kristjánsdóttir sæti á fundinum og Jórunn Frímannsdóttir vék af fundi. - Kl. 16.17 vék Steinunn Valdís Óskarsdóttir af fundi og Þorlákur Björnsson tók þar sæti.

11. liður fundargerðar borgarráðs, breytingar á samþykktum Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum. 16. liður fundargerð borgarráðs, kosning fulltrúa í hverfisráð Háaleitis, samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum, með þeim viðauka að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson taki sæti Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur í stjórn samstarfssjóðs Nuuk, Reykjavíkurog Þórshafnar.

2. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 13. janúar.

3. Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 22. desember. Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

4. Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 12. janúar. Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

5. Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 17. desember.

6. Lögð fram fundargerð leikskólaráðs frá 9. janúar.

7. Lögð fram fundargerð samgöngunefndar frá 6. janúar.

8. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 17. desember. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

9. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 22. desember. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum.

Fundi slitið kl. 17.25

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Árni Þór Sigurðsson
Björk Vilhelmsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson