Borgarráð - Fundur nr. 5848

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 26. nóvember, var haldinn 5848. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru: Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Theodór Kjartansson, Heimir Snær Guðmundsson, Helga Lára Haarde og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Eiríkur Búi Halldórsson.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um netárás á tölvukerfi Reykjavíkurborgar.

    -    Kl. 09:03 tekur borgarstjóri sæti á fundinum

    Óskar Sandholt, Ólafur Sólimann Helgason og Anton Egilsson taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Magna Reyni Sigurðsson sem tekur sæti með rafrænum hætti. Borgar- og varaborgarfulltrúarnir Albert Guðmundsson, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Skúli Helgason, Stefán Pálsson og Stein Olav Romslo taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26110099

  2. Lagt fram trúnaðarmerkt bréf Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 23. nóvember 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum. MSS26110091

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki söluferli fasteignarinnar að Gufunesvegi 40 á grundvelli uppfærðra forsendna, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26110311

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Í Gufunesi hefur á undanförnum árum orðið til áhugavert samfélag skapandi greina þar sem gömul iðnaðarhús hafa öðlast nýtt hlutverk. Þar búa mikil tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar, nýsköpunar og fjölbreyttrar atvinnustarfsemi í takt við vaxandi íbúabyggð á svæðinu. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur áherslu á að við sölu húsnæðisins að Gufunesvegi 40 verði ekki eingöngu horft til kaupverðs heldur einnig til framtíðarsýnar kaupenda fyrir húsið og umhverfi þess. Þannig er leitað eftir aðilum sem hafa metnað, þekkingu og fjárhagslega burði til að gera húsið upp og skapa þar áfram umgjörð fyrir skapandi starfsemi. Það er ósk meirihlutans að sá sköpunarkraftur sem hefur einkennt Gufunes undanfarin ár fái áfram að njóta sín og að nýir eigendur sjái verðmæti í því að rækta það samfélag sem þar hefur orðið til. Með fyrirhuguðu söluferli er leitast við að gæta fjárhagslegra hagsmuna borgarbúa um leið og stuðlað er að því að húsið öðlist nýtt líf og verði áfram vettvangur hugmynda, sköpunar og fjölbreyttra atvinnutækifæra.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Frá upphafi hefur framtíðarsýn Gufuness verið að þar byggðist upp lifandi hverfi og miðstöð lista, menningar og skapandi greina samhliða íbúðabyggð. Í ljósi ástands húsnæðisins leggjast fulltrúar Samfylkingarinnar ekki gegn sölu þess sem slíkri. Það vekur hins vegar áhyggjur hversu lítið vægi tenging við skapandi greinar hefur í fyrirliggjandi matslíkani, eða 15 stig af 100 á meðan kaupverð vegur 35 stig. Hætta er á að með þessu sé vikið frá þeirri framtíðarsýn sem lá til grundvallar uppbyggingu Gufuness. Mikilvægt er að matslíkan og bindandi söluskilmálar endurspegli þá sýn og tryggi að húsnæðið nýtist skapandi starfsemi til framtíðar. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja því hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki afnotasamning um 4500 m² hluta lóða að Brautarholtsvegi 13 og Brautarholtsvegi 15, 116 Reykjavík (Kjalarnes/þéttbýli), ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26110248

    Fylgigögn

  5. Lagðar fram breytingartillögur Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, dags. 26. nóvember 2026, við frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010019

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Breytingartillögur meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks við fjárhagsáætlun ársins 2027 endurspegla þá forgangsröðun að draga úr kostnaði við yfirbyggingu borgarkerfisins og beina fjármunum í auknum mæli til grunnþjónustu við borgarbúa. Árangur af skipulagsbreytingum og hagræðingaraðgerðum í miðlægri stjórnsýslu kemur nú fram í lækkun útgjalda um tæplega 600 milljónir króna. Samhliða er komið til móts við aukna þjónustuþörf á sviði velferðar- og skólamála. 375 milljónum króna verður varið til reksturs nýs búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Jöklasel og 70 milljónum króna til fjölgunar NPA-samninga um tvo. Þá verður eins milljarðs króna fjárheimild áfram innan velferðarsviðs til að mæta kostnaði vegna þjónustu við börn og ungmenni. Fjárheimildir grunnskóla hækka um rúmar 90 milljónir króna til að mæta breyttum nemendafjölda og aukinni þörf fyrir stuðning við börn með íslensku sem annað tungumál. Jafnframt verður 250 milljónum króna til viðbótar varið til reglubundins viðhalds á eignum borgarinnar. Meirihlutinn kýs jafnframt að gæta varfærni við endurmat tekju- og verðbólguforsendna fjárhagsáætlunarinnar og taka þannig mið af aukinni óvissu í efnahagsumhverfinu. Þessi forgangsröðun endurspeglar metnað meirihlutans til að bæta þjónustu við borgarbúa með ábyrgri fjármálastjórn, minni yfirbyggingu og markvissari nýtingu fjármuna.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er margt sérkennilegt í þessum breytingartillögum meirihlutans Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar og fulltrúi Vinstrisins hvetur meirihlutann til þess að prófarkarlesa tillögur sínar og greinargerðir áður en þær eru sendar út til formlegrar afgreiðslu. Tillögurnar eru merktar sem breytingartillögur vegna fjárhagsáætlunar ársins 2027 en þarna má finna tillögur sem snúa að gjaldskrárhækkunum sem eiga að taka gildi í desember á þessu ári. Búið er að afgreiða gjaldskrárbreytingar vegna ársins 2027 og var það gert í fyrri umræðu fjárhagsáætlunar sem fór fram í borgarstjórn í nóvember. Þá vekur það furðu að í upphaflegum texta er tillögunum vísað til borgarstjórnar og þá átti væntanlega að óska eftir samþykki borgarstjórnar en í nokkrum tillögum hafði verið gert ráð fyrir því að menningar- og íþróttaráði yrði falið að samþykkja gjaldskrárhækkanir sem eiga að taka gildi 8. desember á þessu ári. Í greinargerð er vísað í vinnu stýrihóps á vegum menningar- og íþróttasviðs sem vann á síðasta kjörtímabili en samkvæmt bestu vitneskju fulltrúa Vinstrisins hefur niðurstaða stýrihópsins ekki verið lögð fram opinberlega.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram minnisblað fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 23. nóvember 2026, varðandi breytingar á forsendum fjárhagsáætlunar 2027.

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010019

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB), dags. 23. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki starfs- og fjárhagsáætlun ASHB fyrir árið 2027, ásamt áætlun fyrir árin 2028–2031, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 23. nóvember 2026.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26070075

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 16. nóvember 2026, varðandi starfs- og fjárhagsáætlun Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2027, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 23. nóvember 2026.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26110061

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 24. nóvember 2026, varðandi fjárhags- og verkefnaáætlun stafræns samstarfs sveitarfélaga fyrir árið 2027, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 22. nóvember 2026
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26110038

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. nóvember 2026, varðandi fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2027, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 23. nóvember 2026
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26110013

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 24. nóvember 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar reglur um ráðningar hjá Reykjavíkurborg sem taka eiga gildi þann 1. janúar 2027. Reglurnar leysa af hólmi tímabundnar reglur um ráðningar sem gilda til ársloka 2026. Þann 2. júlí sl. var samþykkt í borgarráði að fela starfshópi um ráðningarýni að endurskoða ráðningarreglurnar. Með ráðningarreglunum verður fyrirkomulagið varanlegt með þeim breytingum sem starfshópurinn leggur til og byggja á reynslu undanfarinna ára, umsögnum fagsviða og könnun meðal stjórnenda.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur til að afgreiðslu málsins verði frestað. 
    Málsmeðferðartillagan er felld.

    Tillagan er samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Lóa Birna Birgisdóttir og Halldóra Káradóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26060185

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Nýjar ráðningarreglur Reykjavíkurborgar endurspegla breyttar áherslur í fjármálastjórn borgarinnar þar sem ríkari kröfur eru gerðar um að rekstur og mönnun séu í samræmi við samþykktar fjárheimildir. Reglurnar, sem áður voru tímabundnar, verða nú varanlegar og skerpt er verulega á framkvæmd þeirra og eftirfylgni. Þegar starf losnar innan borgarkerfisins á ekki að ganga út frá því sem vísu að ráða þurfi í það að nýju. Stjórnendum ber að leggja mat á þörfina fyrir starfið, hvort leysa megi verkefnin með öðrum hætti og hvort ráðningin rúmist innan samþykktra fjárheimilda og áætlunar um stöðugildi. Í könnun meðal stjórnenda kom fram að 34% svarenda höfðu ráðið í starf án þess að afla tilskilinnar heimildar. Með breytingum á ráðningarkerfi borgarinnar verður komið í veg fyrir að slíkt geti viðgengist áfram. Jafnframt verður eftirlit með þróun stöðugilda og rekstri markvissara með aðgengilegum mælaborðum, ársfjórðungslegri upplýsingagjöf til yfirstjórnar og skýrari kröfum um viðbrögð við frávikum. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur áherslu á að samþykktar fjárheimildir séu virtar og að stjórnendur beri ábyrgð á þeim fjármunum sem þeim er treyst fyrir. Með því að festa ráðningarýni í sessi er stuðlað að auknum rekstraraga og því að fjármunir borgarbúa nýtist þar sem þjónustuþörfin er mest.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar gera athugasemd við þá grunnhugsun reglnanna að stjórnendur skuli við hverja ráðningu skoða sérstaklega hvort hægt sé að hætta við ráðninguna eða fresta henni. Jafnframt er gerð krafa um að þörfin fyrir ráðningu sé brýn, jafnvel þegar hún rúmast innan samþykktra fjárheimilda. Þessi nálgun er skiljanleg í tímabundnum aðhaldsaðgerðum en óheppileg þegar settar eru reglur til frambúðar. Góðir stjórnendur þurfa að geta horft fram á veginn, séð fyrir þörfina á starfsfólki og brugðist við áður en upp kemur vandi í starfseminni. Fulltrúar Samfylkingarinnar taka undir mikilvægi þess að stjórnendur gæti ábyrgðar í rekstri borgarinnar en telja að í varanlegum ráðningarreglum þurfi að gæta meira jafnvægis milli sjónarmiða um aðhald í rekstri og metnaðar fyrir starfsemi og þjónustu borgarinnar.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Eðlilegt er að hafa viðmið um ráðningar og mikilvægt er að reglurnar séu skýrar sem á ekki við í öllum þáttum þessara ráðningarreglna og meðfylgjandi upplýsingum. Könnun um notagildi og viðhorf stjórnenda til gildandi reglna var send öllum 488 stjórnendum borgarinnar dagana 24. til 31. ágúst og 190 þeirra svöruðu könnunni (39%). Þar kom fram afstaða til þess að hafa reglur um ráðningar áfram og athygli vekur að 37% mæltu ekki með því að hafa reglurnar áfram í einhverri mynd og 25% voru óviss. Það hringir viðvörunarbjöllum að leggja fram reglurnar í ljósi þeirrar stöðu.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands lýsir yfir áhyggjum yfir hertum ráðningarreglum Reykjavíkurborgar. 37% stjórnenda lögðust gegn því að haldið yrði áfram með ráðningarreglur. Helsta gagnrýni stjórnenda var töf á afgreiðslu, tvíverknaður og vantraust til stjórnenda. Ekki sést að þeirri gagnrýni hafi verið mætt í fyrirliggjandi reglum.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 24. nóvember 2026, varðandi fyrirhugaða ferð staðgengils borgarstjóra, Rúnars Freys Gíslasonar, til Þórshafnar í Færeyjum dagana 27. nóvember til 30. nóvember nk., til að færa Þórshafnarbúum jólatré frá Reykjavíkurborg og taka þátt í hátíðardagskrá. MSS26110094

    Fylgigögn

  13. Lagt fram að nýju bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 12. nóvember 2020, sbr. 27. liður fundargerðar borgarráðs frá 19. nóvember 2020, þar sem óskað var eftir að borgarráð heimilaði sviðinu, fyrir hönd umhverfis- og skipulagssviðs, að hefja útboðsferli sem var á áætlun nýrra upplýsingakerfa um kaup á nýju eignaumsjónarkerfi fyrir Reykjavíkurborg, ásamt fylgiskjölum. ÞON20080026

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um áhættumat á tekjuforsendum fjárhagsáætlunar 2027, sbr. 27. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember 2026. Jafnframt lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 23. nóvember 2026. MSS26110045

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks þakkar fyrir greinargóð svör sem endurspegla breyttar áherslur í fjármálastjórn Reykjavíkurborgar. Ábyrg fjármálastjórn felst ekki eingöngu í því að skila jákvæðri rekstrarniðurstöðu heldur einnig að byggja upp fjárhagslegt viðnámsþol gagnvart breyttum efnahagsforsendum og ófyrirséðum áföllum. Í fjárhagsáætlun ársins 2027 er í fyrsta sinn gert ráð fyrir sérstökum tveggja milljarða króna varasjóði í rekstri til að mæta breytingum á ytri forsendum, svo sem vegna verðbólgu, tekjufrávika eða ófyrirséðra útgjalda. Til viðbótar er fyrirhugað að koma á fót bundnum varúðarsjóði sem eingöngu verður heimilt að nýta komi til áfalla. Stærð hans mun taka mið af niðurstöðum áhættugreininga. Jafnframt verður fjárhagsáætluninni fylgt eftir með reglubundnum útkomuspám, sviðsmyndagreiningum og álagsprófum þar sem áhrif breyttra forsenda á rekstur, sjóðstreymi og efnahag borgarinnar verða metin. Þannig skapast betri forsendur til að greina frávik snemma og grípa tímanlega til viðeigandi ráðstafana. Með þessu er verið að hverfa frá því að bregðast fyrst við fjárhagslegum áföllum þegar þau eru orðin að veruleika og þess í stað byggja markvisst upp viðnámsþol til að mæta þeim. Slík vinnubrögð eru til þess fallin að auka fyrirsjáanleika í rekstri, draga úr þörf fyrir skyndilegar ráðstafanir og verja grunnþjónustu við borgarbúa þegar efnahagslegar aðstæður versna. Það er einmitt við slíkar aðstæður sem mikilvægi ábyrgrar fjármálastjórnar kemur hvað skýrast í ljós.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um fjárfestingaáætlun 2027, sbr. 27. liður fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember 2026. Jafnframt lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 23. nóvember 2026. MSS26110046

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um mögulegt söluferli Ljósleiðarans, sbr. 25. liður fundargerðar borgarráðs frá 19. nóvember 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 25. nóvember 2026. MSS26110069

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um viðbrögð við auglýsingu um rekstur leikskóla og daggæslu sbr. 22. liður fundargerðar borgarráðs frá 29. október 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 23. nóvember 2026. MSS26100116

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar vekja athygli á því að þrátt fyrir hávær fyrirheit meirihlutaflokkanna um samstarf við atvinnulífið um rekstur leikskóla hefur auglýsing borgarinnar aðeins skilað einni fyrirspurn frá fyrirtæki og tveimur frá dagforeldrum. Fyrirtækjaleikskólar virðast því ekki ætla að verða sú töfralausn sem látið var í veðri vaka í kosningabaráttunni. Á síðustu tveimur kjörtímabilum hefur 1.280 leikskólaplássum verið bætt við í Reykjavík undir forystu Samfylkingarinnar og sú uppbygging er nú farin að skila verulegum árangri í styttingu biðlista. Samfylkingin telur mikilvægt að halda áfram á þeirri braut, fjölga leikskólaplássum og bæta starfsaðstæður starfsfólks, svo tryggja megi öllum börnum leikskólavist óháð því hvar foreldrar þeirra starfa.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um opinbera umræðu um brunavarnir á Sævarhöfða, sbr. 26. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. nóvember 2026. Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 24. nóvember 2026. MSS26110070

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um afskipti slökkviliðs á Sævarhöfða 31, sbr. 27. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. nóvember 2026. Jafnframt lagt fram svar Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðisins, dags. 23. nóvember 2026. MSS26110066

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. nóvember 2026.
    3. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  21. Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 19. nóvember 2026. MSS26010007

    Fylgigögn

  22. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 22. október og 19. nóvember 2026. MSS26010008

    Fylgigögn

  23. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18. nóvember 2026. MSS26010012

    Fylgigögn

  24. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 28. september 2026. MSS26010018

    Fylgigögn

  25. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 19. nóvember 2026. MSS26010019

    Fylgigögn

  26. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 17 mál (MSS26010013, MSS26010011, MSS26010013, MSS26010013, USK26080206, MSS25090023, MSS26110077, MSS22100214, MSS26110068, MSS26110067, MSS26110090, IER26040004, MSS26090096, MSS24100050, VEL26110151, VEL26110138, MSS26110092). MSS26110001

    Fylgigögn

  27. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26110002

    Fylgigögn

  28. Lagt fram að nýju bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. nóvember 2026, sbr. 5. liður fundargerðar borgarráðs frá 19. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi tilmæli um notkun undirritana í starfsemi Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. ÞON26080022

    Fylgigögn

  29. Lagðar fram breytingartillögur Sósíalistaflokks Íslands, dags. 25. nóvember 2026, við frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027.
    Vísað til borgarstjórnar. FAS26010019

    -    Kl. 11:25 víkur borgarstjóri af fundinum.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:31

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 26.11.2026