Borgarráð - Fundur nr. 5846

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 12. nóvember, var haldinn 5846. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Eiríkur Búi Halldórsson, Helga Lára Haarde, og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 4. nóvember 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag, varðandi tillögu að endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum.

    -     Kl. 9.04 tekur Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir sæti á fundinum.
    -     Kl. 9.06 tekur Ebba Schram sæti á fundinum.

    Vísað til borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir og Haraldur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26100475

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Aðalskipulag Reykjavíkur er ein mikilvægasta stefnumótandi áætlun borgarinnar enda leggur það grunninn að því hvernig Reykjavík þróast og byggist upp til framtíðar. Þar er mörkuð stefna um húsnæðisuppbyggingu, atvinnusvæði, samgöngur, græn svæði og lífsgæði borgarbúa. Mikilvægt er að sú framtíðarsýn taki mið af breyttum þörfum samfélagsins og þeim tækifærum og áskorunum sem borgin stendur frammi fyrir. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að undirbúningur endurskoðunar aðalskipulagsins verði unninn af fagmennsku, með vönduðum greiningum, skýrri markmiðasetningu og víðtæku samráði við íbúa, hagaðila og nágrannasveitarfélög. Sérstaklega þarf að horfa til framtíðarþarfa í húsnæðismálum, þróunar byggðar og samgangna og þess hvernig tryggja megi fjölbreytta og aðlaðandi borg fyrir komandi kynslóðir. Sjálfbærni og loftslagsmál verða jafnframt mikilvægir þættir í vinnunni. Við endurskoðunina þarf að horfa til þess hvernig skipulag borgarinnar getur stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda, aukinni nýtingu vistvænna samgöngumáta og ábyrgri nýtingu lands. Jafnframt þarf að huga að aðlögun að loftslagsbreytingum, verndun grænna svæða og líffræðilegrar fjölbreytni og því hvernig skipulag getur stuðlað að heilnæmu og öruggu borgarumhverfi. Endurskoðun aðalskipulags er umfangsmikið og mikilvægt verkefni sem þarf að gefa nauðsynlegan tíma og vinna þverpólitískt og í sátt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Aðalskipulag Reykjavíkur leggur fram með hvað skýrustum hætti hver framtíðarsýn borgarinnar er hverju sinni. Núgildandi aðalskipulag Reykjavíkur markaði á sínum tíma vatnaskil um þróun borgarinnar þar sem áratugaútþensla var loks stöðvuð. Í staðinn var sett fram stefna um að efla borgina inn á við og  gera fjölbreyttum ferðamátum hátt undir höfði. Voru þar markmið um betri og mannvænni borg, aukna þjónustu og bætt loft- og hljóðgæði í eldri hverfum borgarinnar höfð að leiðarljósi, auk áherslna í stóra samhenginu um kolefnishlutleysi borgarinnar. Nú liggja fyrir stór verkefni sem borgin þarf að taka til skoðunar og skilgreina hvernig þau styðja sem best við vöxt borgarinnar. Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja að undirbúningur á endurskoðun aðalskipulags borgarinnar hefjist en leggja áherslu á að hún styrki þá stefnu sem mörkuð var um vöxt innan núverandi vaxtarmarka, uppbyggingu Borgarlínu, fjölbreytt húsnæði fyrir alla tekjuhópa, auknar kröfur um gróðursvæði og sólrík dvalarsvæði, Miklubrautargöng, Sæbrautarstokk og mat á kolefnisspori nýrra uppbyggingarsvæða. Endurskoðunin má ekki leiða aftur til ótakmarkaðrar útþenslu byggðar sem kostar borgarbúa meira í innviðum, tíma, losun og það sem verst er, vonds borgarumhverfis.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að vilji sé til að vinna að endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur í þverpólitískri sátt. Forsenda slíkrar sáttar er víðtækt samráð við borgarbúa. Borgarhönnunarstefnan var langþráð skref fyrir íbúa og nú þarf að skerpa ákvæði hennar og festa bindandi kröfur um gæði byggðar og almenningsrýma í aðalskipulagi. Borgin þarf að mæta húsnæðisþörfum almennings en tekjulágir einstaklingar, aldraðir, og ungt fólk hafa orðið útundan. Það húsnæði sem byggt hefur verið er í litlu samræmi við þarfir þeirra sem þurfa mest á því að halda og húsnæðishringrásin hefur þannig stíflast. Því er ánægjulegt að áhersla verði lögð á ítarlegar kannanir á búsetuóskum og þörfum Reykvíkinga. Þeim þarf að fylgja raunverulegur pólitískur vilji til framkvæmda á fjölbreyttum búsetuúrræðum, þar með talið styrkingu óhagnaðardrifins húsnæðis. En byggja þarf áform um nýjar íbúðarbyggðir líkt og á Örfirisey og Geldinganesi á staðbundnu áhættumati vegna hækkun sjávar ásamt kostnaði við mögulegar varnir. Stórar samgönguframkvæmdir á borð við Sundabraut, Borgarlínu og Miklubrautargöng kalla jafnframt á skýra sýn borgaryfirvalda á tengingu allra borgarhluta. Útvíkkun vaxtarmarka áður en tekist hefur að byggja upp þessa samgönguinnviði mun einungis setja enn frekara álag á samgöngukerfið og grafa undan samtengdri byggð.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. nóvember 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag, á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Sóltún, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25090066

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. nóvember 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag, á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 27 við Klettagarða, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26090426

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráði samþykki meðfylgjandi viðauka við húsaleigusamning um húsnæði að Kirkjuteig 24, við Laugarnesskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26110101

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráði samþykki meðfylgjandi leigusamning við Karlar í skúrum um leigu á hluta húsnæðis í Gerðubergi 1, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26110100

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráði samþykki meðfylgjandi kaupsamning og afsal á tveimur fasteignum á lóðinni Austurbakka í eigu Situs ehf.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26110061

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 9. nóvember 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi tillögu um breytingar á stjórnskipulagi á fjármála- og áhættustýringarsviði í kjölfar hagræðingar sviðsins. Nýtt skipulag skal taka gildi þann 1. janúar 2027.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir og Hörður Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26110008

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur ríka áherslu á að svið borgarinnar leiti markvisst leiða til að bæta rekstur og einfalda stjórnsýslu. Mikilvægt er að umfang yfirbyggingar og fjöldi stöðugilda sé í samræmi við verkefni og raunverulegar þarfir starfseminnar. Miklar breytingar hafa orðið á fjármála- og áhættustýringarsviði á undanförnum þremur árum. Árið 2024 voru þar sjö skrifstofur auk skrifstofu sviðsstjóra og upplýsinga- og gagnadeildar. Síðan þá hefur skipulagið verið einfaldað í áföngum, verkefni færð til og starfsemi sviðsins orðið afmarkaðri. Nú er stigið enn eitt skrefið í þeirri þróun með því að skerpa frekar á kjarnahlutverki sviðsins og sníða af þá agnúa sem komið hafa í ljós við fyrri skipulagsbreytingar. Breytingarnar fela meðal annars í sér að skrifstofum sviðsins fækkar úr fimm í fjórar, skrifstofa sviðsstjóra er lögð niður og verkefni hennar færð til annarra eininga. Jafnframt fækkar skrifstofustjórum um einn og deildarstjórum um einn. Verkefni sem áður voru dreifð á fleiri einingar verða sameinuð til að einfalda stjórnun, skýra ábyrgð og stytta boðleiðir. Samhliða verður áhættustýring efld með tilfærslu tveggja sérfræðinga innan sviðsins og aukin áhersla lögð á samræmda fjármálastjórn, eftirlit og skilvirka þjónustu við önnur svið borgarinnar. Með breytingunum er stefnt að því að stærri hluti mannauðs og fjármuna nýtist í kjarnaverkefni sviðsins og að grunnþjónusta þess verði áfram tryggð og efld.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við kynningu málsins kom fram að verið er að leggja niður grænt bókhald Reykjavíkurborgar. Starfsmanni sem hafði umsjón með verkefninu hefur verið sagt upp auk þess sem dregið er úr öðrum sjálfbærniverkefnum borgarinnar. Áður hafði stýring Græna plansins verið lögð niður í júní í tengslum við uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lýsa verulegum áhyggjum af þessari þróun og forgangsröðun nýs meirihluta. Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun mannkyns og það er á ábyrgð okkar allra að leggja okkar af mörkum og taka verkefnið alvarlega. Reykjavíkurborg á að sýna metnað í loftslagsmálum og byggja ákvarðanir sínar á traustum gögnum og markvissri eftirfylgni. Grænt bókhald hefur þar mikilvægu hlutverki að gegna og getur jafnframt nýst til hagræðingar með því að greina sóun og tækifæri til sparnaðar s.s. með mælingum á orkunotkun og úrgangslosun. Þessar breytingar vekja því alvarlegar spurningar um hvernig meirihlutinn hyggst standa við loftslagsmarkmið borgarinnar.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 9. nóvember 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagt erindisbréf samninganefndar til að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða. Nefndin hefur frest til 30.apríl 2027 til að skila tillögum að samningum.

    Samþykkt. MSS25100071

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 9. nóvember 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 4. nóvember 2026 á tillögu um framlengingu samnings um samræmda móttöku flóttafólks, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Miðflokksins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Rannveig Einarsdóttir og Bjarki Hermannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26100011

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samræmd móttaka flóttafólks er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga sem tryggir einstaklingum sem fengið hafa alþjóðlega vernd samfellda þjónustu og stuðning við að fóta sig í íslensku samfélagi. Þjónustan felur meðal annars í sér félagslega ráðgjöf, aðstoð við húsnæðisleit, aðgengi að nauðsynlegri þjónustu og stuðning við virkni og samfélagsþátttöku. Frá árinu 2021 hefur Reykjavíkurborg veitt 5.510 einstaklingum þjónustu samkvæmt þessu fyrirkomulagi. Rétt er að árétta að samræmd móttaka var ekki hluti af hagræðingaraðgerðum meirihlutans enda fellur kostnaður vegna stöðugilda að baki þjónustunni ekki á borgina. Samningar við ríkið eru aðeins gerðir til eins árs í senn og því er starfsfólk sem sinnir verkefninu ráðið tímabundið á grundvelli þeirra. Vegna óvissu sem uppi var um framtíð samningsins reyndist Reykjavíkurborg nauðsynlegt að segja upp starfsfólki sem starfaði á grundvelli samningsins, en nú þegar ríkið hefur óskað eftir framlengingu samkomulagsins reynist unnt að endurráða hluta þeirra starfsmanna sem sagt var upp störfum. Kostnaður vegna þessa fellur á ríkissjóð en ekki borgarsjóð enda um að ræða sérstakt verkefni sem Reykjavíkurborg sinnir samkvæmt samningi við ríkið. Með framlengingu samningsins út árið 2027 er tryggður grundvöllur fyrir áframhaldandi þjónustu við allt að 1.500 einstaklinga. Eftir því sem umfang þjónustunnar tekur breytingum og einstaklingum í samræmdri móttöku fækkar, munu útgjöld borgarinnar lækka og tekjur frá ríkissjóði samhliða.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að samningur um samræmda móttöku flóttafólks verði framlengdur og að Reykjavíkurborg muni áfram sinna þessu mikilvæga verkefni. Samræmd móttaka er gríðarlega mikilvægt inngildingarverkefni þar sem fólk sem hefur leitað hér skjóls fær stuðning við að fóta sig í nýju samfélagi, meðal annars við að finna húsnæði, koma börnum í skóla og fá aðgang að þeirri þjónustu sem það þarf. Markmiðið er að fólk geti búið sér gott líf og orðið virkir þátttakendur í samfélaginu. Þá er sérstaklega ánægjulegt að flest starfsfólk alþjóðateymis borgarinnar sem áður hafði fengið uppsögn fái nú tækifæri til að halda áfram störfum við verkefnið. Þar býr mikilvæg þekking og reynsla sem skiptir máli fyrir gæði þjónustunnar og samfellu í stuðningi við flóttafólk.

    Borgarráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Miðflokkurinn leggst gegn framlengingu þjónustusamnings Reykjavíkurborgar og félags- og húsnæðismálaráðuneytis um samræmda móttöku flóttafólks. Móttaka flóttamanna þarf að miðast við þann fjölda sem hægt er að sinna sómasamlega. Ríkisstjórnin getur ekki haldið áfram að taka ákvarðanir sem skapa varanlegan kostnað í félagsþjónustu sveitarfélaga og ríkið axlar ekki ábyrgð á. Reykjavíkurborg er nú þegar komin vel yfir sín þolmörk. Kerfi borgarinnar ráða ekki við þann fjölda flóttamanna sem tekið er á móti. Við þurfum að ná tökum á málaflokknum innan borgarinnar áður en gerður er jafn viðamikill nýr samningur við ríkið. Fyrir liggur að mikil vinna er framundan við að reyna að ná vel utan um þann hóp sem við höfum þegar tekið á móti og hjálpa honum að aðlagast Íslandi. Rýna þarf betur og kynna fjárhagsleg áhrif núgildandi samnings á félagsþjónustu, húsnæðismál, skóla- og leikskólaþjónustu, mannafla og stjórnsýslu.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Jákvætt er að verið sé að framlengja samninginn. Mikilvægt er að hlutirnir verði unnir með meiri fyrirvara og fyrirsjáanleika í framtíðinni þar sem upplýsingar um áætlanir ríkisins í þessum efnum hafa komið seint inn á borð borgarinnar.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að samkomulag um framlengingu samnings um samræmda móttöku flóttafólks hafi náðst milli Reykjavíkur og ríkis. Ánægjulegt er að starfsfólki í Alþjóðateyminu sem var sagt upp fyrr í sumar fái tækifæri til að halda áfram að sinna þessari mikilvægu þjónustu og að Reykjavík haldi í starfsfólk með mikla sérþekkingu og reynslu í málaflokknum. Samræmd móttaka flóttafólks stuðlar að aukinni inngildingu í samfélaginu og tryggir samfellu í þjónustu við flóttafólk. Þjónustan hjálpar flóttafólki að fóta sig í íslensku samfélagi meðal annars með félagslegri ráðgjöf, aðstoð við að koma börnum í leik- og grunnskóla og aðstoð við húsnæðisleit. Móttakan stuðlar einnig að virkni þar sem boðið er upp á íslenskunám, samfélagsfræðslu og starfsþjálfun til undirbúnings þátttöku á vinnumarkaði. Það að taka vel utan um flóttafólk fyrstu árin og styðja þau í að verða virkir þátttakendur í samfélaginu er öllum til hagsbóta.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar, dags. 4. nóvember 2026, varðandi niðurstöður eftirfylgni innri endurskoðunar og ráðgjafar á Innkaup og samningsstjórnun, ásamt fylgiskjölum.

    Ingunn Ólafsdóttir, Skúli Magnússon, Halldóra Káradóttir, Guðrún Pálína Ólafsdóttir, Ólafur Steingrímsson og Frans Páll Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER26020019

    Fylgigögn

  11. Lagður fram úrskurður Landsréttar frá 3. nóvember 2026 í máli nr. 780/2026. MSS26060040

  12. Lagður fram dómur Landsréttar frá 5. nóvember 2026 í máli nr. 524/2026. MSS23110173

  13. Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um niðurlagningu stöðugilda teymisstjóra í íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk í Reykjavík, sbr. 36. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. október 2026. Einnig lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 9. nóvember 2026. MSS26100001

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir greinargóð svör við fyrirspurninni. Miklar áhyggjur vöknuðu hjá fólki sem þekkir til á viðkomandi íbúðakjörnum þegar uppsagnir teymisstjóra voru kynntar og því er gott að heyra af því að hætt hafi verið við þær. Þessir tilteknu íbúðakjarnar eru fyrir fatlað fólk sem þarfnast mikillar aðstoðar og stöðugrar nærveru starfsfólks. Þeir standa nú eftir sem áður frammi fyrir hagræðingu upp á 64 milljónir sem forstöðumenn ætla að útfæra með öðrum hætti en að segja upp lykilaðilum í lífi íbúa. Hagræðing gengur alltaf best þegar þau sem vinna störfin hafa tækifæri til að benda á tækifærin og taka þátt í útfærslu. Það er þó áhyggjuefni hve mikill niðurskurðurinn er í velferðarmálum borgarinnar og þá þarf að passa upp á að það bitni ekki á því fólki sem er í viðkvæmustu stöðunni.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn hefur lagt ríka áherslu á að vinna þær breytingar sem nú standa yfir á velferðarsviði í nánu samstarfi við starfsfólk. Það felur meðal annars í sér að hlusta á sjónarmið þeirra sem best þekkja starfsemina og endurskoða útfærslur þegar bent er á betri leiðir að sama marki. Það er því sérstakt að minnihlutinn skuli gagnrýna að tekið hafi verið tillit til ábendinga starfsfólks. Í þessu tilviki lýstu forstöðumenn áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun teymisstjóra og lögðu til aðra útfærslu sem nær fram sambærilegri hagræðingu. Á þær ábendingar var hlustað og upphafleg ákvörðun afturkölluð. Meirihlutinn telur það til marks um vönduð vinnubrögð að geta breytt um leið þegar betri kostur kemur fram, fremur en að halda fast í ákvörðun eingöngu vegna þess að hún hefur verið tekin. Rétt er jafnframt að árétta að fulltrúar minnihlutans hafa fengið ítarlegar upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar og hagræðingaraðgerðir, eins og fundargerðir bera með sér. Sú staðreynd að ábendingar starfsfólks leiddu til breytinga snemma í innleiðingarferlinu sýnir einmitt mikilvægi þess samráðs sem lagt hefur verið upp með.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokkks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Svar velferðarsvið endurspeglar fljótfærnina sem hefur verið viðloðandi í kerfinu frá komu nýs meirihluta. Framkvæmd hagræðingaraðgerða hefur einkennst af því að vaðið er áfram í þekkingar- og ábyrgðarleysi. Þar sem ákvarðanir eru teknar án aðkomu fagráða. Það er fullkomlega óásættanleg stjórnsýsla að reglulega koma upp fregnir af uppsögnum og hagræðingaraðgerðum frá starfsfólki í tölvupósti eða jafnvel í fréttum. Það á ekki að þurfa að fá ábendingar starfsmanna eftir ákvörðunartöku þar til aðgerðir eru skoðaðar til fulls. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands lýsir ánægju með að hagræðingaraðgerðin um fækkun teymisstjóra í íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk var endurskoðuð og útfærslan afturkölluð. Teymisstjórar bera ríka ábyrgð á að tryggja örugga og faglega þjónustu við þennan viðkvæma hóp. Tekið var fram í svari velferðarráðs að önnur útfærsla var valin til að ná fram lækkun á fjárhagsramma íbúðarkjarnanna. Mikilvægt er að fylgjast vel með hvernig niðurskurðurinn hefur áhrif á öryggi íbúa og starfsfólk ásamt gæðum þjónustunnar.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um stöðu verkefna samkvæmt áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins 2027-2030, sbr. 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. september 2026. Einnig lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2026. MSS26080095

    Fylgigögn

  15. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði að opna á ný fyrir aðgang að rafmagni og vatni fyrir hjólhýsabyggðina á Sævarhöfða 31 frá 16.nóvember 2026 þannig að aðgangur verði tryggður til til 1.apríl 2027. Menningar- og íþróttaráði yrði falið að útfæra fyrirkomulag kostnaðar í samráði við íbúa.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt að vísa tillögunni frá.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26110031

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands gagnrýnir harðlega ákvörðun meirihlutans að vísa tillögunni frá. Íbúar í hjólhýsabyggðinni hafa lengi barist fyrir því að lifa í færanlegum búsetueiningum og nú liggur fyrir þingsályktunartillaga um að búa til lagagrundvöll fyrir slíkt búsetuform. Sú ákvörðun að taka rafmagnið af ógnar öryggi íbúanna, sérstaklega yfir vetrartímann. Hægt væri að mæta kröfum um brunavarnir í samráði við íbúa ef það er í raun eina forsendan sem meirihlutinn gefur sér fyrir þessa ákvörðun. Fulltrúi Sósíalistaflokks lýsir yfir verulegum áhyggjum yfir hvað koma skal fyrir þennan hóp á komandi mánuðum þegar hitastig fer undir frostmark og íbúar hafa ekki aðgengi að rafmagni til að hita upp sín híbýli.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Leigutökum á Sævarhöfða var í júlí gert viðvart um að til stæði að segja upp leigusamningi á Sævarhöfða vegna óviðunandi ástands brunavarna. Hjólabúum sem hafa haft aðstöðu á lóð leigutaka var einnig gert viðvart á sama tíma um þessa ákvörðun. Leigutökum var gert að yfirgefa húsnæðið og Hjólabúum var gert að fjarlægja hjólhýsi og allan búnað af lóðinni fyrir 1. nóvember. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins krefst umfangsmikilla aðgerða til þess að bæta úr ástandi brunvarna á svæðinu og afstaða borgarinnar er sú að slík fjárfesting sé óforsvaranleg í ljósi þess að svæðið er að fara í umbreytingu og uppbygging fyrirhuguð. Tillögunni er því vísað frá í ljósi þess að svæðinu hefur verið lokað.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Eftir að hjólabúar höfðu lengi búið við óviðunandi aðstæður á Sævarhöfða var gerður samningur um afnot á svæði í Gufunesi. Í samningnum var skýrt kveðið á um leigugjald og að leigutaki myndi bera allan kostnað vegna nýtingar, reksturs og viðhalds hins leigða, þ.m.t. allan kostnað sem kynni að falla til vegna starfsemi og aðstöðu leigutaka á svæðinu. Neikvætt er að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar hafi rift þeim samningi. Ekki nóg með það þá hefur verið gengið fram með harkalegum hætti bæði í málflutningi um stöðu hjólabúa sem og í viðbrögðum líkt og með því að loka fyrir rafmagn og aðgang að vatni. Riftun samnings hefur skapað mjög mikla óvissu fyrir hjólabúa.

    Fylgigögn

  16. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 28. október 2026. MSS26010012

    Fylgigögn

  17. Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 16. október 2026. MSS26010015

    Fylgigögn

  18. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 5. nóvember 2026. MSS26010019

    Fylgigögn

  19. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 11. nóvember 2026.
    7. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  20. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls sex mál (MSS26010013, MSS26010011, MSS26110011, MSS26110013, MSS26090131, MSS26110030). MSS26110001

    Fylgigögn

  21. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26110002

    Fylgigögn

  22. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvernig er skipulagi háttað varðandi myndbirtingar Reykjavíkurborgar á samfélagsmiðlum og öðrum miðlum? Er stuðst við ljósmyndir sem eru teknar af ljósmyndara á vegum Reykjavíkurborgar eða er myndefni keypt úr myndabönkum? Eru myndabankarnir innlendir eða erlendir ef stuðst er við þá? Ef það er ljósmyndari á vegum Reykjavíkurborgar sem útvegar myndefni, er hann þá fastráðinn hjá borginni eða er um annað fyrirkomulag að ræða? Hafa nýlegar skipulagsbreytingar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar haft áhrif á þetta fyrirkomulag til breytingar? MSS26110041

  23. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hversu margar innheimtukröfur hafa verið sendar út á þessu ári vegna skulda borgarbúa? Óskað er eftir sundurliðun út frá milliinnheimtu og löginnheimtu. Hvaða kröfur er helst um að ræða, skipt eftir þjónustuþáttum? Hefur orðið fjölgun á innheimtukröfum samanborið við síðustu ár eða er um sambærilegan fjölda að ræða?

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. MSS26110042

  24. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hverjar hafa heildargreiðslur Reykjavíkurborgar verið vegna leigu á skólahúsnæði við Kirkjuteig 2 frá ársbyrjun 2020 til dagsins í dag, sundurliðað eftir árum? Liggur fyrir áætlaður kostnaður eða samanburðargreining á því hver kostnaður borgarinnar hefði orðið ef hún hefði byggt eða keypt eigið húsnæði undir þessa starfsemi í stað leigu?

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs. MSS26110039

  25. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um úthlutun lóðarinnar Sóltún 4 á Ármannsreit til Fjallasólar ehf. Hvenær fór lóðaúthlutun fram og hvert var fyrirkomulag úthlutunarinnar.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs. MSS26110040

  26. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027 er fjárfestingaráætlun Eignasjóðs sett fram með mun minni sundurliðun en undanfarin ár. Þar sem áður voru tilgreindar fjárheimildir til einstakra framkvæmda eru nú víða birtar heildarfjárhæðir undir almennum heitum. Óskað er eftir sundurliðun allra samantekinna fjárfestingarliða niður á einstök verkefni ásamt áætlaðri fjárhæð hvers verkefnis árið 2027. MSS26110046

  27. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fyrirspurn um áhættumat á tekjuforsendum fjárhagsáætlunar 2027 1. Hvaða áhættumat og næmni- eða sviðsmyndagreiningar hafa verið unnar vegna tekjuforsendna fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027?  2. Hvaða tölulegu forsendur og áætlanir liggja til grundvallar áætluðum útsvarstekjum, fasteignasköttum, gatnagerðargjöldum og tekjum af sölu byggingarréttar? Hvernig hefur óvissa og möguleg frávik frá þessum forsendum verið metin?  3. Hafa áhrif mögulegra tekjufrávika á rekstrarniðurstöðu, handbært fé og lántökuþörf borgarinnar verið metin? Ef svo er, með hvaða hætti og hverjar eru niðurstöðurnar? 4. Hafi sérstakt áhættumat ekki verið unnið, hvernig var þá tekið tillit til óvissu í tekjuáætlun við gerð fjárhagsáætlunarinnar? 5. Hefur nýtt erindisbréf verið gefið út fyrir áhættunefnd Reykjavíkurborgar og nefndin endurskipuð? Kom nefndin að áhættumati vegna fjárhagsáætlunar 2027? Óskað er eftir að fyrirliggjandi greiningar og minnisblöð sem tengjast framangreindu verði lögð fram með svörunum. MSS26110045

Fundi slitið kl. 11:25

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 12. nóvember 2026 - prentvæn útgáfa