Borgarráð - Fundur nr. 5842

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 22. október, var haldinn 5842. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:02. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson og Helga Lára Haarde.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. október 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 500 m.kr. í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK44 1 á ávöxtunarkröfunni 3,78% en það eru um 520 m.kr. að markaðsvirði. Tillagan var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 21. október 2026.

    -    Kl. 9:04 taka Björg Magnúsdóttir og Ebba Schram sæti á fundinum.

    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Bjarka Rafni Eiríkssyni sem tekur sæti með rafrænum hætti. FAS26010004

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. október 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að þróa virkni fyrir akstursþjónustu í sameinaðri Veitu, sameiginlegu stafrænu afgreiðslukerfi sem Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga vinna að innleiðingu á í samstarfi við önnur sveitarfélög, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt, Sara Sigurðardóttir og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON24060037

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 14. október 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að hefja verkefnið Notendamiðuð gervigreindaraðstoð á vef, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt, Sara Sigurðardóttir og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26100015

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja áframhaldandi þróun gervigreindarlausna hjá Reykjavíkurborg. Hér eru mikil tækifæri til að bæta þjónustu, einfalda ferla og nýta tíma starfsfólks betur. Eftir því sem gervigreind verður stærri hluti af starfsemi borgarinnar þarf jafnframt að meta áhættu af því að verða háð erlendum tæknifyrirtækjum. Sérstaklega þarf að huga að samningsskilmálum, mögulegum verðhækkunum, rekstraröryggi og hvað gerist ef þjónustuaðilar hætta að veita þjónustu. Einnig þarf að skoða kolefnisspor tækninnar í stærra samhengi.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tæknin býður upp á fjölmörg tækifæri á hinum ýmsu sviðum og mikilvægt er að Reykjavíkurborg bjóði upp á góða rafræna þjónustu. Það er þó mikilvægt að staldra við í ljósi alls þess sem hefur átt sér stað í þróun gervigreindar eða réttara sagt mállíkana. Mikilvægt er að hið opinbera noti ekki lausnir og tækni sem kunna að hafa skaðleg áhrif á samfélög, fólk og umhverfi. Fyrst og fremst á ný tækni að nýtast til góðra verka og að bæta tilveru fólks og fara vel með umhverfið.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, dags. 20. október 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að falla frá haustúthlutun úr Hverfissjóði Reykjavíkurborgar árið 2026. Einnig er lagt til að óráðstafaðar eftirstöðvar ársins 2026, samtals 3.055.000 kr., færist til styrkjaliðar borgarráðs og verði nýttar til verkefna sem berast utan umsóknartíma í samræmi við ákvæði 4. gr. reglna um styrkveitingar borgarráðs og samræmast tilgangi Hverfissjóðsins samkvæmt mati styrkjahóps borgarráðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt, Sunna Sigurðardóttir og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26030012

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, dags. 22. október 2026, ásamt fylgiskjölum.

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fela þjónustu- og nýsköpunarsviði að forgangsraða þeim snjallborgartækifærum sem fram koma í minnisblaði sviðsins, dags. 28. september 2026, út frá kostnaði, ávinningi og tæknilegum forsendum. Sviðinu verði jafnframt falið að upplýsa borgarráð um niðurstöður forgangsröðunar og framgang verkefnanna.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt, Sunna Sigurðardóttir og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26090054

    Borgarráðsfulltrúar Samfykingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að unnið sé að heildstæðri forgangsröðun snjallborgarverkefna Reykjavíkurborgar. Tækifærin eru mikil til að bæta þjónustu, nýta innviði betur, draga úr kostnaði og auka skilvirkni í rekstri borgarinnar. Við teljum þó mikilvægt að forgangsröðunin byggist ekki eingöngu á fjárhagslegum og tæknilegum forsendum, heldur einnig á framtíðarsýn um græna og mannvæna borg. Þar eiga minni kolefnislosun, betri loftgæði, aukið umferðaröryggi og bættar aðstæður fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur að vega þungt.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram að nýju minnisblað þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. september, varðandi World Smart City Awards 2026, ásamt fylgiskjölum, sem lagt var fram fram á fundi borgarráðs 1. október 2026 og fært var í trúnaðarbók.

    Þröstur Sigurðsson tók sæti á fundinum undir liðnum.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna þessari viðurkenningu sem er enn ein rós í hnappagat þeirrar stafrænu umbreytingar sem Reykjavíkurborg og fyrri meirihlutar Samfylkingarinnar og samstarfsflokka hennar hafa staðið fyrir undanfarin ár, lengst af undir forystu Pírata. Reykjavíkurborg hefur nú fengið staðfestingu frá matsnefnd verðlaunanna um að tillaga borgarinnar hafi verið valin í hóp úrslitatillagna í City Award. Tillaga Reykjavíkurborgar, „Better City for People“, fjallar um þá stafrænu umbreytingu sem Reykjavíkurborg hefur unnið að á undanförnum árum til að gera þjónustu borgarinnar einfaldari, aðgengilegri og til að mæta betur þörfum notenda. ÞON26090141

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 19. október 2026, varðandi fyrirhugaða ferð formanns borgarráðs til Barcelona dagana 3.-5. nóvember nk. til að taka þátt í alþjóðlegu ráðstefnunni Smart City Expo World Congress. ÞON26090141

    Fylgigögn

  8. Lagt fram trúnaðarmerkt bréf Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 19. október 2026. Afgreiðsla og bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók borgarráðs. MSS26100053

  9. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. október 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. október 2026 á breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26030120

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar eru jákvæðir gagnvart því að Valhöll við Háaleitisbraut fái nýtt hlutverk. Það er skynsamlegt að nýta betur húsnæði og lóðir sem þegar eru til staðar og þróa byggðina áfram. Fyrirhuguð hótelstarfsemi samræmist Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 og við gerum ekki athugasemdir við eina inndregna hæð, enda verði byggingarlistarlegt gildi hússins varðveitt. Sérstaklega fögnum við því að jarðhæðin verði opin almenningi með verslun eða þjónustu sem glæðir götuna lífi. Bílastæðamál ættu ekki ein og sér að stöðva verkefnið. Á Valhallarreitnum er gert ráð fyrir 74 íbúðum, 66 stæðum í bílakjöllurum og 49 stæðum á yfirborði. Samkvæmt samgöngumati er mesta samtímaþörf á yfirborði áætluð um 35 stæði. Mikilvægt er þó að skýra hvernig samnýtingu bílastæða verður háttað, tryggja réttindi samlóðarhafa samkvæmt fyrirliggjandi samningum og útfæra örugga aðkomu hópbifreiða og vöruflutninga. Við teljum að hægt eigi að vera að finna lausnir á þessum atriðum án þess að stöðva jákvæða uppbyggingu og betri nýtingu svæðisins.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. október 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðauka við leigusamning við Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur (TBR) um hluta af húsnæði við Gnoðarvog 1, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram trúnaðarmerkt bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. október 2026, um kortlagningu óbyggðra lóða í Reykjavík.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26100051

  12. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 14. október 2026, sbr. samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs frá 12. október 2026 á tillögu um breytingu á reglum um leikskólaþjónustu, ásamt reglum um leikskólaþjónustu með merktum breytingum og núgildandi reglum um leikskólaþjónustu, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26020037

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér er um hefðbundna uppfærslu á reglum að ræða en í ljósi skipulagsbreytinga er ekki lengur tekið fram að hægt sé að leita úrlausna hjá miðstöðvum og að leita þurfi úrlausna hjá velferðarsviði. Mikilvægt er að það sé skýrt hvert sé hægt að leita.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 13. október 2026, sbr. samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs frá 12. október 2026 um breytingu á fjölda barna í leikskólanum Seljaborg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26080132

    Borgarráðsfulltrúar Samfykingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að 20 ný leikskólapláss bætist nú við í Seljaborg. Stækkunin er hluti af þeirri markvissu uppbyggingu leikskólakerfisins sem ráðist var í á síðustu tveimur kjörtímabilum undir forystu Samfylkingar. Frá árinu 2018 hafa 1280 leikskólapláss bæst við í Reykjavík og áfram er verið að opna ný pláss í verkefnum sem ákveðin voru og fjármögnuð á síðustu kjörtímabilum. Nýja einingin við Seljaborg er eitt þeirra verkefna. Mikilvægt er að halda áfram uppbyggingu leikskólakerfisins og tryggja um leið góða mönnun og starfsaðstæður svo hægt sé að taka ný pláss í notkun með farsælum hætti.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 20. október 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að rekstrarsamningi milli menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og Listahátíðar í Reykjavík um rekstur og fjárframlag til Listahátíðar í Reykjavík 2027-2029. Fjárheimild vegna samningsins rúmast innan ramma menningar- og íþróttasviðs.

    Samþykkt. MSS26100090

    Fylgigögn

  15. Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 20. október 2026, um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. MSS26100045

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands tekur undir umsögn Reykjavíkurborgar. Forsenda þess að sveitarfélög geti veitt íbúum viðeigandi og bætta þjónustu er að fjármagn fylgi. Það er réttmætt markmið að minnka kostnað notendanna sjálfra en þá þarf ríkið að tryggja nægilega og varanlega fjármögnun til að mæta nýjum verkefnum og kröfum. Varast þarf lögfestingu SIS-mats sem forsendu fyrir fjárúthlutunum þar sem matið er ekki algilt mælitæki sem nær yfir fjölbreyttar stuðningsþarfir. Matið var upprunalega hannað fyrir þröngan hóp og nær því takmarkað yfir þarfir m.a. blindra, sjónskertra, einhverfra, fólks með geðrænan vanda og fólks með vímuefnavanda. Jafnframt skal varast lögbundinn forgang einstaklinga sem hafa sætt öryggisráðstöfun á biðlistum eftir húsnæði. Þar sem slíkur algildur forgangur getur bæði leitt til þess að annað fatlað fólk sem hefur beðið lengi eftir lögbundinni þjónustu færist enn aftar og til þess að einstaklingur fái ekki endilega húsnæði og stuðning við hæfi. Úthlutun húsnæðis þarf alltaf að byggjast á faglegum og réttmætum forsendum.

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um að bæta almenningssamgöngur á Kjalarnesi, sbr. 6. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 29. september 2026. Einnig lögð fram umsögn Almenningssamgangna höfðuborgarsvæðisins ohf., ódags.
    Tillögunni er vísað frá.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26090119

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Miður er að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar vísi þessari tillögu frá þar sem ljóst er að efla þarf almenningssamgöngur á Kjalarnesi. Vitneskja er uppi um slíkt og því ekki þörf á því að bíða eftir niðurstöðum talningakerfis til þess að bæta almenningssamgöngur.

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um kynningu og stöðumat á verkefnum sem hafa farið hægar af stað í fjárfestingaáætlun, sbr. 37. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. september 2026.
    Tillögunni er vísað frá. MSS26090071

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um kostnaðaráhrif vegna lækkunar gjalda vegna viðburðahalds í borgarlandi, sbr. 48. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. júlí 2026. Einnig lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 13. október 2026. MSS26070010

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um yfirlit yfir rekstrarstaði borgarinnar sem hafa fengið athugasemdir frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. ágúst 2026. Einnig lagt fram svar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 5. október 2026. MSS26080073

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands þakkar Heilbrigðiseftirliti fyrir svarið og sýnir fullan skilning á því að ekki var hægt að svara fyrirspurninni fyllilega. Undirbúningur flutnings verkefna heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis hefur greinilega valdið miklu uppnámi og raski á starfseminni. Mikið álag er á starfsfólkinu og enn er margt óljóst um hvernig fyrirkomulagið mun verða. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands vill því ítreka þakklæti til starfsfólks Heilbrigðiseftirlitsins sem hefur unnið frábært starf og vonar að ríkið axli sína ábyrgð með því tryggja farsælan flutning verkefna, leysa úr óvissunni sem nú ríkir og hugi að mikilvægi þess að varðveita þekkinguna sem hefur skapast í borginni með því að tryggja starfsöryggi starfsmannanna sem nú hefur verið sagt upp.

    Fylgigögn

  20. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um útvistun ræstinga í skólum, sbr. 17. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. ágúst 2026. Einnig lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 15. október 2026. MSS26080047

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Skólaliðar sinna ekki aðeins almennum þrifum og ræstingu heldur sinna þeir mikilvægu hlutverk í skólasamfélaginu. Skólaliðar taka þátt í uppeldisstarfi skólanna, þeir aðstoða nemendur, sinna gæslu í frímínútum og í matartíma ásamt því að bera ábyrgð á vellíðan barnanna. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands harmar þá ákvörðun að útvista ræstingum og segja upp þessum mikilvæga starfskrafti. Ánægjulegt er þó að tveir skólar eru nú þegar að meta stöðuna út frá mannaflaþörf eftir breytingarnar. Fulltrúi Sósíalistaflokks lýsir verulegum áhyggjum af því að ekki hafi verið farið í óháða uppmælingu við samningsgerð en nýverið uppfærði ríkið eigin viðmið um ræstingaútboð þar sem gerð er krafa um að fá óháða úttekt sem gefur viðmið um tímafjölda ef verkið er stærra en 1000 fermetrar. Ræstingaútboðið sem borgin samþykkti í júlí síðastliðnum var fyrir 46.000 fermetra svæði. Því hefur ekki verið gengið úr skugga um það að tilboðin endurspegli raunverulegan tímafjölda og er því hætta á að starfsfólkið sem nú sinnir ræstingum sé látið vinna of hratt og fái of fáa tíma greidda.

    Fylgigögn

  21. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fjölda barna sem sækja þjónustu Móðurmáls, sbr. 27. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. júlí 2026. Einnig lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 19. október 2026. MSS26070050

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir svarið. Það er ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt starfið er hjá Móðurmáli. Um er að ræða gífurlega mikilvægt framtak þar sem yfir 800 börn sækja þjónustuna og boðið er upp á fjölbreytta tungumálakennslu. Ekki er skráð þátttaka barna eftir skóla sem vekur upp spurninguna hvort sniðugt væri að hefja skráningu svo hægt sé að greina hvort einhver kerfisbundin skekkja er til staðar.

    Fylgigögn

  22. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Miðflokksins:

    Á fundi borgarráðs 16. apríl sl. óskaði borgarfulltrúi Miðflokksins eftir sundurliðuðum upplýsingum um heildarkostnað vegna leikskólans Brákarborgar við Kleppsveg 150-152. Óskað var eftir því að gerð yrði grein fyrir kostnaði við kaup á mannvirkjum og endurbyggingu þeirra, húsa jafnt sem lóða. Gerð yrði grein fyrir öllum kostnaði við verkefnið, þ.m.t. skýrslur ráðgjafa, hönnun, umsjón, eftirlit, sem og kostnaði við flutning leikskólans og leigu á öðru húsnæði á viðgerðartímanum. Óskað var eftir því að allar upplýsingar um kostnað yrðu gefnar upp á gildandi verðlagi. Ekki hefur enn borist svar við fyrirspurninni þrátt fyrir að sex mánuðir séu liðnir frá framlagningu hennar. Óskað er eftir skýringum á þessum drætti og upplýsingum um það hvenær fyrirspurninni verður svarað.

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. MSS26100087

    Fylgigögn

  23. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Hversu mörgum einstaklingum sem var sagt upp í aðgerðum í júní og ágúst hefur verið boðið aftur starf? Hversu margar ráðningar eru tímabundnar og hversu margar eru ótímabundnar? Til hversu langs tíma gilda tímabundnu ráðningarnar? Er um breytingar á launum og starfslýsingu að ræða við þessar endurráðningar? Og ef svo er, hvaða breytingar eru það? Er um lægri laun og lakari kjör að ræða? Stendur til að ráða fleiri til baka sem hafði áður verið sagt upp? Hefur rökstuðningi vegna uppsagna verið skilað?

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26100077

    Fylgigögn

  24. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Óskað er eftir minnisblaði um hvernig borgarstjóri og formaður borgarráðs hyggjast standa að samtali og samráði við atvinnurekendur og lóðarhafa á Ártúnshöfða og mögulegar bætur og úrbætur sem þeim hefur verið lofað af þeim. Eins er óskað eftir upplýsingum um hvort vinna sé farin af stað við að finna fyrirtækjunum framtíðarstaðsetningu í Reykjavík, raungerist brotthvarf þeirra af Ártúnshöfða eins og gert er ráð fyrir í skipulagi. MSS26100078

  25. Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 13. október 2026.

    Fylgigögn

  26. Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 15. október 2026.

    Fylgigögn

  27. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17. september 2026.

    Fylgigögn

  28. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. október 2026.
    10. liður fundargerðarinnar er samþykktur.

    Fylgigögn

  29. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls sex mál (MSS26010011, MSS26100010, MSS24100050, MSS26100086, MSS26010031, USK26100259).

    Fylgigögn

  30. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019.

    Fylgigögn

  31. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Í borgarráði 7. maí 2026 var eftirfarandi tillaga samþykkt: „Lagt er til að borgarráð samþykki að hefja endurskoðun á fyrirkomulagi ræstinga í stjórnsýsluhúsum Reykjavíkurborgar, þ.e. Borgartúni 12-14, Tjarnargötu 12 og í Ráðhúsi. Fyrsta skrefið í því verði að útbúa þarfagreiningu þar sem kerfisbundið skal farið yfir allar verklýsingar þrifa, ræstingaþörf og áætla réttan vinnutímafjölda við ræstingar. Jafnframt verður metinn heildarkostnaður á grundvelli raunhæfra forsenda, þar á meðal með hliðsjón af kröfum við sanngjarnar og félagslega ábyrgar vinnuaðstæður. Greiningin skal vera unnin í samræmi við innkaupareglur og innkaupastefnu borgarinnar. Þegar niðurstöður úttektaraðila liggja fyrir verði gögnin lögð fyrir borgarráð ásamt upplýsingum um núverandi fyrirkomulag til samanburðar, í þeim tilgangi að meta hvort haldið verði áfram með útboðsferli fyrir ræstingu stjórnsýsluhúsanna eða að Reykjavíkurborg ráði sjálf inn starfsfólk til þess að annast ræstinguna.“ Hver er staða á vinnslu samþykktarinnar og hvenær má vænta þess að niðurstöður verði lagðar fyrir borgarráð? MSS26050010

  32. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Á fundi borgarstjórnar 16. júní var samþykkt tillaga Vinstrisins um skólamötuneyti þar sem samþykkt var að fela umhverfis- og skipulagssviði, skóla- og frístundasviði og fjármála- og áhættustýringarsviði að vinna kostnaðaráætlun um uppfærslu, breytingar eða stækkun skólamötuneyta og hvernig megi lagfæra aðstöðu þeirra svo unnt sé að elda skólamáltíðir á staðnum. Hver er staðan á þeirri vinnu og hvenær má vænta þess að greiningin verði lögð fyrir borgarráð? MSS26060102

  33. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Hefur Reykjavíkurborg formlega sagt sig frá rekstri Jafnlaunastofu?

  34. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Í ágúst bárust fregnir af því að búið væri að ræða við Samhjálp um hugmyndir að tveimur staðsetningum fyrir kaffistofu Samhjálpar. Hver er staðan á því? USK26080100

  35. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir yfirliti á þeim gervigreindarhugbúnaði sem Reykjavíkurborg notar í sínum kerfum. Jafnframt er óskað eftir greiningu á því í hvaða tilgangi hver hugbúnaður er notaður og hvers kyns gögn fara í gegnum hugbúnaðinn.

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. MSS26100096

  36. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir yfirliti yfir þau verkefni sem vorúthlutun Hverfissjóðs 2026 fór í, sundurgreint eftir kostnaði og hverfum.

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. ÞON26030012

  37. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Hver fylgir tillögum Innri endurskoðunar eftir sem Innri endurskoðun leggur fram í eftirlitsskýrslum? MSS26100099

    Vísað til umsagnar Innri endurskoðunar og ráðgjafar.

Fundi slitið kl. 11:04

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 22.10.2026