Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 8. október, var haldinn 5840. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 08:32. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Róbert Ragnarsson og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Stefán Pálsson og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Helga Lára Haarde, Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. október 2026, þar sem tilkynnt er að á fundi borgarstjórnar þann 6. október 2026 hafi verið samþykkt að Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir taki sæti í borgarráði í stað Heiðu Bjargar Hilmisdóttur og að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Steinunnar. MSS26060007
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. október 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki drög að svarbréfi Reykjavíkurborgar, dags. 6. október 2026, til framkominna athugasemda/andmæla Félags múslima á Íslandi, sbr. bréf, dags. 25. september 2026, og því til samræmis samþykki að afturkalla ákvörðun um úthlutun lóðarinnar Suðurlandsbraut 76, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080221
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks telur mikilvægt að framkvæmdafrestum og skilmálum lóðaúthlutana sé fylgt eftir með samræmdum og málefnalegum hætti. Lóðinni að Suðurlandsbraut 76 var úthlutað árið 2013 en fyrirhugaðar framkvæmdir hafa ekki hafist þrátt fyrir þann tíma sem liðinn er frá úthlutuninni. Framkvæmdafrestir eru liðnir og hafa forsendur úthlutunarinnar því ekki gengið eftir. Afturköllun lóðaúthlutunarinnar byggir á því að tryggja eðlilega eftirfylgni með úthlutunarskilmálum og að lóðir Reykjavíkurborgar séu nýttar innan þeirra tímamarka sem um þær gilda. Hér er um almennar aðgerðir er að ræða sem varða fleiri lóðir en þá sem er til umfjöllunar hér. Við slíkar ákvarðanir ber að gæta jafnræðis, meðalhófs og vandaðrar stjórnsýslu.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að málefnaleg sjónarmið liggi að baki því að afturkalla lóðarúthlutunina, enda hafa framkvæmdir ekki hafist þrátt fyrir að langt sé liðið frá úthlutun lóðarinnar. Afturköllunin er jafnframt hluti af stærra verkefni sem snýr að því að endurheimta lóðir sem ekki hafa verið nýttar. Um leið þykir okkur miður að Félagi múslima á Íslandi hafi ekki tekist að koma sér upp þeirri aðstöðu sem félagið hefur lengi unnið að. Trúfélög gegna mikilvægu hlutverki fyrir fjölbreytta hópa borgarbúa og það skiptir máli að þau hafi raunhæf tækifæri til að skapa sér viðeigandi aðstöðu í borginni. Við hvetjum því til þess að borgin sé í áframhaldandi samtali við félagið um aðrar mögulegar leiðir.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins telur rétt að stíga varlega til jarðar varðandi innköllun á lóðum sem ætlaðar hafa verið trúfélögum, að minnsta kosti þegar ekki er unnt að gera slíkt í sátt. Sjálfsagt er að halda í heiðri þeirri meginreglu í byggingarmálum í borginni að framkvæmdir við hús hefjist hratt og örugglega að lóðarúthlutun lokinni. Ef horft er til sögunnar, þá hafa hins vegar byggingar á vegum trúfélaga oft tekið langan tíma. Skýringin er sú að starfsemin er eðli málsins samkvæmt ekki í hagnaðarskyni og bankastofnanir hafa verið mjög tregar til að veita lán til slíkra framkvæmda.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. október 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki drög að svarbréfi Reykjavíkurborgar, dags. 6. október 2026, til framkominna athugasemda/andmæla safnaðar Moskvu-Patríarkatsins, sbr. bréf dags. 25. og 29. september 2026, og því til samræmis samþykki að afturkalla ákvörðun um úthlutun lóðanna Bræðraborgarstíg 2 og Bakkastíg 8 (nú lóðin Mýrargata 21-23) og riftun lóðarleigusamninga vegna fyrrnefndra lóða, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080206
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks telur að fyrir liggi málefnalegar forsendur til að afturkalla lóðaúthlutun að Mýrargötu 21–23 og rifta tilheyrandi lóðarleigusamningum. Lóðunum var úthlutað árið 2008 og lóðarleigusamningar undirritaðir árið 2011. Þrátt fyrir framlengingu framkvæmdafresta árin 2019 og 2021 hafa fyrirhugaðar framkvæmdir ekki hafist. Við meðferð málsins hefur lóðarhafa verið veitt færi á að koma að sjónarmiðum sínum og farið hefur verið yfir framkomin andmæli. Að teknu tilliti til málavaxta, liðinna framkvæmdafresta og fyrri framlenginga er fallist á niðurstöðu umhverfis- og skipulagssviðs um að skilyrði afturköllunar og riftunar séu uppfyllt. Hér er um almennar aðgerðir að ræða sem varða fleiri lóðir en þá sem er til umfjöllunar hér. Mikilvægt er að Reykjavíkurborg gæti jafnræðis við úthlutun lóða og fylgi eftir þeim framkvæmdaskilmálum sem gilda um nýtingu þeirra.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að málefnaleg sjónarmið liggi að baki því að afturkalla lóðarúthlutunina, enda hafa framkvæmdir ekki hafist þrátt fyrir að langt sé liðið frá úthlutun lóðarinnar. Afturköllunin er jafnframt hluti af stærra verkefni sem snýr að því að endurheimta lóðir sem ekki hafa verið nýttar. Um leið þykir okkur miður að söfnuður Moskvu-Patríarkatsins hafi ekki tekist að koma sér upp þeirri aðstöðu sem félagið hefur lengi unnið að. Trúfélög gegna mikilvægu hlutverki fyrir fjölbreytta hópa borgarbúa og það skiptir máli að þau hafi raunhæf tækifæri til að skapa sér viðeigandi aðstöðu í borginni. Við hvetjum því til þess að borgin sé í áframhaldandi samtali við félagið um aðrar mögulegar leiðir.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins telur rétt að stíga varlega til jarðar varðandi innköllun á lóðum sem ætlaðar hafa verið trúfélögum, aðminnsta kosti þegar ekki er unnt að gera slíkt í sátt. Sjálfsagt er að halda í heiðri þeirri meginreglu í byggingarmálum í borginni að framkvæmdir við hús hefjist hratt og örugglega að lóðarúthlutun lokinni. Ef horft er til sögunnar, þá hafa hins vegar byggingar á vegum trúfélaga oft tekið langan tíma. Skýringin er sú að starfsemin er eðli málsins samkvæmt ekki í hagnaðarskyni og bankastofnanir hafa verið mjög tregar til að veita lán til slíkra framkvæmda.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 2. október 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi viðauka við Rafklett ehf. um leigu á leikskólahúsnæði við Rafstöðvarveg 7 og 9, Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólöf Örvarsdóttir og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26100048
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar um frumvarp til fjárlaga 2027, dags. 6. október 2026.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Halldóra Káradóttir tekur sæti á á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26090070
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Samfylkingin leggur sérstaka áherslu á að fyrirhugaðar breytingar á ríkisframlögum til Betri samgangna leiði ekki til tafa á framkvæmdum ársins 2027. Mikilvægt er að greina skýrt á milli tímabundinnar tilfærslu fjárheimilda og eiginlegs niðurskurðar, en jafnframt verður að tryggja að bæði ríki og sveitarfélög standi við skuldbindingar sínar samkvæmt samgöngusáttmálanum. Við tökum undir mikilvægi stöðugra ríkisfjármála, lægri verðbólgu og vaxta. Um leið þarf að tryggja að lögbundin verkefni sveitarfélaga séu fjármögnuð með fullnægjandi og fyrirsjáanlegum hætti.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 30. september 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs á tillögu um fjölda barna í leikskólanum Hulduheimum, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Ólafur Brynjar Bjarkason tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26080131
Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju bréf borgarstjóra, dags. 29. september 2026, um ferð borgarstjóra til London 3.-7. október nk., til að taka þátt í leiðtogaþjálfun Bloomberg LSE European City Leadership Initative, ásamt fylgiskjölum. MSS26090127
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um skráningu á landsfund um jafnréttismál, sbr. 25. liður fundargerðar borgarráðs frá 1. október 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 5. október 2026. MSS26090087
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um útvistun verkefnis vegna niðurlagningu samskiptaskrifstofu, sbr. 25. liður fundargerðar borgarráðs frá 3. september 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 5. október 2026. MSS26080045
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fjölda gististaða í nágrenni Ægisgötu 7, sbr. 26. liður fundargerðar borgarráðs frá 16. júlí 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 5. október 2026. MSS26070049
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um útvistun verkefnis vegna niðurlagningar samskiptaskrifstofu og tímabundna ráðningu, sbr. 29. liður fundargerðar borgarráðs frá 3. september 2026. MSS26080045
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um stuðning við starfsfólk vegna breytinga á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, sbr. 18. liður fundargerðar borgarráðs frá 27. ágúst 2026. Jafnframt lögð fram umsögn velferðarsviðs, dags. 5. október 2026.
Samþykkt að vísa tillögunni frá með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar. MSS26080087Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. frá 18. september 2026. MSS26010015
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. október 2026.
8. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 30. september 2026. MSS26070008
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 13 mál (MSS26100011, MSS26010029, MSS26100026, MSS24100050, MSS26100025, MSS26100010, MSS26090126, MSS26090117, MSS26090119, MSS26100001, MSS26060172, MSS26100004, MSS26090081). MSS26090084
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26090120
Fylgigögn
-
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fulltrúi Vinstrisins óskar eftir því að skrifstofa borgarstjóra gefi hið fyrsta skýrslu um hvernig undirbúningsvinnu við yfirfærslu heilbrigðiseftirlits frá borginni til ríkisins miðar og hvort hætta sé á þjónusturofi í þessum mikilvæga málaflokki. MSS26100034
Fundi slitið kl. 09.00
Einar Þorsteinsson Ari Edwald
Bjarni Guðjónsson Pétur Hafliði Marteinsson
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Róbert Ragnarsson
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 08.10.26 prentvæn útgáfa