Borgarráð - Fundur nr. 5839

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 1. október, var haldinn 5839. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:04. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Björg Magnúsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Skúli Helgason og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Helga Lára Haarde, Eiríkur Búi Halldórsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 30. september 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 2.150 m.kr. í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 44 1 á ávöxtunarkröfunni 3,78% en það eru um 2.225 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 30. september 2026

    Samþykkt.

    Hörður Hilmarsson, Jónas Skúlason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir og Bjarki Rafn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010004

    Fylgigögn

  2. Lagt fram trúnaðarmerkt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-júlí 2026, dags. 1. október 2026.

    -    Kl. 9:08 tekur Ebba Schram sæti á fundinum.

    Hörður Hilmarsson, Jónas Skúlason og Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26050026

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. september 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag, á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laufásvegar 19 og 21-23 og Þingholtsstrætis 34, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Brynjar Þór Jónasson og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25120032

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við meðferð deiliskipulagsbreytingarinnar við Laufásveg og Þingholtsstræti bárust athugasemdir frá íbúum, meðal annars um byggingarmagn, skuggavarp, innsýn og áhrif nýbygginga á götumynd og nærumhverfi. Mikilvægt er að slíkt samráð sé raunverulegur hluti af skipulagsferlinu og að athugasemdir íbúa geti leitt til breytinga þegar tilefni er til. Eftir auglýsingu hefur tillagan verið endurskoðuð með hliðsjón af athugasemdum íbúa. Nýbygging við Þingholtsstræti verður færð frá lóðamörkum og innar á lóð, í línu við Þingholtsstræti 30, og núverandi viðbygging við Þingholtsstræti 34 verður fjarlægð. Þá verður fyrirhuguð viðbygging við Laufásveg 23 minnkuð að umfangi, færð innar á lóð og efri hæðir dregnar frá lóðamörkum að Laufásvegi 25. Breytingarnar bregðast þannig sérstaklega við áhyggjum um þrengsli, skuggavarp og áhrif á nærliggjandi hús. Þessi meirihluti hefur lagt áherslu á að bæta meðferð skipulagsmála og efla samtal við íbúa. Samráð á ekki aðeins að felast í því að gefa fólki kost á að senda inn athugasemdir. Það þarf líka að hlusta á þær og vera tilbúin að breyta tillögum þegar málefnaleg sjónarmið kalla á það. Þannig fá íbúar raunverulega rödd í þróun síns nærumhverfis.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. september 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 23. september, á tillögu að breytingu á deiliskipulag Sunda vegna lóðarinnar nr. 18 við Dyngjuveg, leikskólinn Sunnuás, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Brynjar Þór Jónasson og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26040107

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar lýsa ánægju með að þetta verkefni er loksins komið á þann stað að hægt er að hefja uppbyggingu á nýjum tíu deildum leikskólans Sunnuáss fyrir 180 börn í stað eldra húsnæðis sem komið er á tíma og ekki borgar sig að gera við. Verkefnið hefur verið hluti af aðgerðaáætlun Brúum bilið undanfarin misseri og því fylgir fjölgun plássa um 50 miðað við þann barnafjölda sem rúmaðist í gamla húsinu. Hins vegar verður hægt að bjóða 80 börnum til viðbótar ný leikskólapláss miðað við núverandi starfsemi leikskólans sem hefur verið í bráðabirgðahúsnæði á lóð leikskólans. Verkefnið mun því hafa mikla og jákvæða þýðingu fyrir barnafjölskyldur í Laugardal.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. september 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs sama dag, á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna nýrrar innviðalóðar fyrir farsímastaur, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Brynjar Þór Jónasson og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26070011

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. september 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð afturkalli úthlutun og rifti lóðarleigusamningum vegna lóðarinnar við Gefjunarbrunnur 8, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Brynjar Þór Jónasson og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080071

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. september 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð afturkalli úthlutun lóðarinnar Urðarbrunns 98, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Brynjar Þór Jónasson og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080270

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. september 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi húsaleigusamning við North Tech Drilling ehf., vegna fasteignarinnar að Víðinesvegi 30, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Brynjar Þór Jónasson og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26090411

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. september 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs þann 23. september, á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar - Fenjanna vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Brynjar Þór Jónasson og Ragnheiður Sigvaldadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26070028

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 25. september 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að framkvæma þarfagreiningu á bakendakerfi afnotaleyfa á borgarlandi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Þröstur Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26090037

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Markmiðið með þessari vinnu er að einfalda umsóknarferli afnotaleyfa, stytta vinnslutíma og bæta þjónustu við þau sem þurfa að sækja um leyfi hjá borginni. Greining sem gerð var í sumar sýnir að notendur upplifa ferlið í dag flókið og brotakennt, upplýsingagjöf og leiðbeiningar eru ekki nægilega skýrar og umsóknir kalla í sumum tilvikum á óþarfa samskipti fram og til baka. Þarfagreiningin á að leggja grunn að betri lausn. Þar verður meðal annars skoðað hvernig einfalda megi umsóknar- og afgreiðsluferlið, draga úr handavinnu, bæta yfirsýn og tengja þjónustuna betur við stafrænar lausnir borgarinnar, svo sem Mínar síður og LUKR. Það skiptir máli að stafræn þróun skili sér í raunverulegum ávinningi fyrir borgarbúa. Markmiðið á að vera að umsækjandi fái skýrar upplýsingar um hvað þarf að leggja fram, geti fylgst betur með máli sínu og þurfi síður að senda viðbótargögn eða leita upplýsinga um stöðu þess. Samhliða á einfaldara ferli að losa tíma starfsfólks til hraðari afgreiðslu og betri þjónustu. Ábatamatið gerir raunar ráð fyrir allt að 500 klukkustunda tímasparnaði árlega, bæði fyrir starfsfólk og borgarbúa.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 25. september 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að greina notkun á stafrænu pósthólfi og vinna að úrbótum vegna útsendra erinda til borgarbúa og annarra aðila í gegnum stafrænt pósthólf, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Þröstur Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON23020003

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Stafrænt pósthólf getur orðið einföld og mikilvæg þjónustubót fyrir borgarbúa. Reykjavíkurborg sendir árlega fjölmörg erindi, gögn og tilkynningar, en í dag er notkun stafræna pósthólfsins ósamræmd milli sviða og hluti samskipta fer enn fram með hefðbundnum bréfpósti. Markmið verkefnisins er að samræma þessa þjónustu og greina hvaða samskipti við borgarbúa er hægt að færa með öruggum og markvissum hætti í stafrænan farveg. Fyrir íbúa felst ávinningurinn fyrst og fremst í einfaldari og skýrari samskiptum við borgina. Í stað þess að erindi berist eftir mismunandi leiðum eftir því hvaða svið borgarinnar á í hlut er stefnt að því að íbúar geti nálgast erindi sín með samræmdari hætti á einum stafrænum stað. Það bætir yfirsýn, eykur fyrirsjáanleika og getur flýtt fyrir því að mikilvægar upplýsingar berist til viðtakenda. Verkefnið snýst jafnframt um að hlusta á notendur. Gert er ráð fyrir sérstöku notendasamráði áður en sameiginleg viðmið og reglur verða mótuð Þetta er gott dæmi um þjónustuvæðingu borgarkerfisins: að nýta stafrænar lausnir til að gera samskipti við Reykjavíkurborg einfaldari, aðgengilegri og skilvirkari fyrir íbúa, um leið og dregið er úr handavinnu, pappírsnotkun og óþarfa kostnaði.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 28. september2026, varðandi fundargerðir verkefnaráðs fyrir september 2026.

    Þröstur Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON20060042

    Fylgigögn

  13. Fram fer kynning á trúnaðarmerktu minnisblaði þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 27. september, varðandi sýninguna Smart City Expo World Congress þar sem fjallað er um borgarþróun og nýsköpun sveitarfélaga, ásamt fylgiskjölum.

    Þröstur Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26090141

    Bókun undir þessum lið er færð í trúnaðarbók.

  14. Fram fer kynning þjónustu- og nýsköpunarsviðs á verkefninu Búa, „Hvernig styður Búi við farsæld barna?“.

    Þröstur Sigurðsson, Arna Ýr Jónsdóttir, Brynhildur Arna Jónsdóttir og Sara Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Tindi Óla Jenssyni sem tekur sæti með rafrænum hætti. ÞON26090145

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks þakkar fyrir góða kynningu á Búa og þeirri mikilvægu stafrænu þróun sem þar hefur átt sér stað. Verkefnið snýst í grunninn um að barnið fái rétta aðstoð á réttum tíma og að fjölskyldur þurfi ekki sjálfar að halda utan um samskipti milli ólíkra hluta kerfisins . Greining frá 2022 sýndi að starfsfólk átti erfitt með að deila upplýsingum, tvíverknaður var til staðar og ábyrgð gat verið óljós. Foreldra skorti jafnframt yfirsýn yfir stöðu mála og upplýsingar um næstu skref. Búi svarar þessum áskorunum með því að varðveita eina samfellda sögu barnsins og skapa sameiginlegan vettvang fyrir þau sem koma að þjónustunni. Sérstaklega mikilvægt er að upplýsingar um hvað hefur verið reynt og hvað hefur virkað glatist ekki þegar barn færist milli skóla eða nýir fagaðilar koma að málinu. Þannig skapast betri forsendur til að grípa fyrr inn í og draga úr tvíverknaði. Framundan eru rafrænar tilvísanir milli þjónustustiga, tenging við barna- og fjölskylduþjónustu og að foreldrar geti séð stöðu máls á Mínum síðum. Þetta er mikilvægt skref í átt að samfelldari og aðgengilegri þjónustu við börn og fjölskyldur.

  15. Lagt fram minnisblað borgarritara, dags. 29. september 2026, varðandi friðarviku, afmæli leiðtogafundarins og Höfða friðarsetur.

    Guðbrandur Benediktsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26090112

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 29. september 2026, varðandi fyrirhugaða ferð borgarstjóra til London til að taka þátt í leiðtogaþjálfun Bloomberg LSE European City Leadership Initative. MSS26090127

  17. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. september 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann ehf./Skólastræti ehf. um uppbyggingu nýs tækniskóla í Reykjavík. Viðræðuhópinn skipi Ebba Schram borgarlögmaður sem verði formaður, Haraldur Sigurðsson deildarstjóri aðalskipulags á umhverfis- og skipulagssviði og Hörður Hilmarsson skrifstofustjóri á fjármála- og áhættustýringarsviði. Starfsmaður viðræðuhópsins verði Edda Björk Ragnarsdóttir verkefnastjóri á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Viðræðuhópurinn upplýsi borgarráð reglulega um framvindu verkefnisins.

    Samþykkt. MSS26090126

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks vinnur hörðum höndum að því að stuðla að fjölbreyttu úrvali menntunar- og atvinnutækifæra fyrir borgarbúa. Eftirspurn eftir iðn- og verknámi hefur aukist verulega og það skiptir máli fyrir Reykjavík að hér sé öflug menntastofnun sem getur verið flaggskip iðn- og tæknimenntunar, boðið upp á fyrsta flokks námsaðstöðu og menntað fólk til fjölbreyttra starfa sem atvinnulífið þarfnast. Með skipan viðræðuhóps er nú stigið mikilvægt skref í þá átt. Hópurinn fær skýrt umboð til að ganga til viðræðna við Tækniskólann og Skólastræti um uppbyggingu nýs Tækniskóla í Reykjavík og mun halda borgarráði reglulega upplýstu um framvindu verkefnisins. Í hópnum sitja fulltrúar borgarinnar með sérþekkingu á lögfræði, skipulagsmálum og fjármálum, enda þarf að skoða forsendur slíkrar uppbyggingar frá mörgum hliðum. Uppbygging af þessari stærðargráðu getur orðið mikil lyftistöng fyrir þann borgarhluta sem verður fyrir valinu og skapað þar öflugt umhverfi menntunar, atvinnulífs og nýsköpunar. Reykjavík á að vera borg þar sem fólk getur menntað sig, skapað sér framtíð og fundið fjölbreytt störf.

    Fylgigögn

  18. Lagður fram úrskurður Héraðsdóms frá 23. september 2026 í máli nr. E-2938/2026. MSS26060040

  19. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 23. september 2026 í máli nr. E-3000/2026. MSS25050086

  20. Lögð fram trúnaðarmerkt umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs og borgarlögmanns, dags. 28. september 2026, vegna fyrirhugaðra breytinga á félagaformi Orkuveitu Reykjavíkur. MSS26020113

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Herði Hilmarssyni sem tekur sæti með rafrænum hætti. 

  21. Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 29. september 2026, um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, ásamt fylgiskjölum. MSS26090078

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  22. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um áætlaðan kostnað vegna nágrannavörsluskilta, sbr. 34. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. september 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 28. september 2026. MSS26090069

    Fylgigögn

  23. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um samninga við Hjólabúa og Farfugla og kostnað þeim tengdum, sbr. 28. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. september 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 28. september 2026. MSS26080046

    Fylgigögn

  24. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um fyrirkomulag á starfsemi sölukofa sem hafa verið við Austurstræti, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. júní 2026. Einnig lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. september 2026. MSS26060172

    Fylgigögn

  25. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins, dags. 1. október:

    Óskað er eftir upplýsingum hvort Reykjavíkurborg hafi sent fulltrúa á landsþing jafnréttismála sem haldið var á Akureyri þ. 17. september og hversu margir hafi farið og hverjir.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26090087

    Fylgigögn

  26. Samþykkt að taka á dagskrá bréf borgarritara dags. 30. september sl. þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að Einar S. Hálfdánarson verði formaður endurskoðunarnefndar og vísi því til afgreiðslu borgarstjórnar. 
    Vísað til borgarstjórnar. MSS26080028

    Fylgigögn

  27. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 30. september sl.
    12. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  28. Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 21. september 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  29. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 24. september 2026 MSS26010008

    Fylgigögn

  30. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 16. september 2026. MSS26010012

    Fylgigögn

  31. Lögð fram fundargerð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 21. ágúst 2026. MSS26010015

    Fylgigögn

  32. Lögð fram fundargerð stjórnar Félagsbústaða frá 1. september 2026. MSS26090104

    Fylgigögn

  33. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 23. mars, 27. apríl og 1. og 29. júní 2026. MSS26010018

    Fylgigögn

  34. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 20 mál (MSS26010013, MSS26010013, MSS26010006, MSS26010011, MSS26070020, MSS26090064, MSS26010029, MSS26090063, MSS26090073, VEL26090049, MSS26060067, MSS26090090, MSS22110052, MSS26090102, MSS26090131, MSS26090096, MSS24100050, USK26090353, VEL26090081, MSS26090062). MSS26090084

    Fylgigögn

  35. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26090120

    Fylgigögn

  36. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir upplýsingum um niðurlagningu stöðugilda teymisstjóra í íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk í Reykjavík. Um er að ræða eftirfarandi íbúðakjarna: Stjörnugróf 11, Árland 10, Barðastaðir 35, Þorláksgeisli og Brekknaás 6. Hversu mörg stöðugildi voru lögð niður? Munu einhverjir af þessum starfsmönnum fá boð um önnur störf? Af hverju var þessi ákvörðun tekin? Var haft samráð við forstöðumenn íbúðakjarnana um þessa ákvörðun? Hvers vegna hefur þessi ákvörðun ekki verið lögð fram til umræðu og afgreiðslu í borgarráði eða velferðarráði? MSS26100001

  37. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Lagt er til að samgöngumat verði unnið vegna uppbyggingu nýs Tækniskóla.

    Frestað. MSS26090126

  38. Lögð fram svohljóðandi framhaldsfyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Heldur Reykjavíkurborg utan um útleigu sölubása við Austurstræti og Lækjartorg eða er það utanaðkomandi aðili? Ef svo er, hvenær voru þær breytingar þá gerðar? MSS26060172

Fundi slitið kl. 11:10

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Skúli Helgason

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 1. október 2026 - prentvæn útgáfa