Borgarráð - Fundur nr. 5836

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 10. september, var haldinn 5836. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:01. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Björg Magnúsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. september 2026, þar sem óskað er eftir því að borgarráð afturkalli lóðavilyrði til Hávarðsstaða ehf. á athafnasvæðinu á Hólmsheiði, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að Reykjavíkurborg sé ávallt lipur, fyrirsjáanlegur og traustur samstarfsaðili gagnvart atvinnulífinu. Öflugt atvinnulíf er forsenda sterkrar velferðar og að sama skapi er velferðin forsenda öflugs atvinnulífs. Þetta helst í hendur. Á síðustu sextán árum hefur Reykjavík upplifað gríðarlegt vaxtarskeið þar sem íbúum fjölgaði um 25%, störfum um 40% og fyrirtækjum um tæp 50%. Þessi vöxtur sýnir það mikla aðdráttarafl og trú sem ríkt hefur á framtíð borgarinnar. Þegar stór fyrirtæki ákveða að skila dýrmætum atvinnulóðum í fullri sátt og vísa til þess að tímalína skipulagsferla borgarinnar henti áformum þeirra ekki þá þurfum við að vera vakandi. Truflanir og hægagangur í ferlum mega ekki verða til þess að dregið sé úr krafti í fjárfestingum eða að trú á tækifærin í Reykjavík minnki. Þegar lóðarvilyrði er afturkallað verður borgin að sýna metnað, rýna ferla og tryggja að lóðinni verði komið strax aftur í virka og hraða úthlutun í þágu áframhaldandi verðmætasköpunar. Samfylkingin styður að vilyrðið verði fellt úr gildi svo hægt sé að bjóða lóðina öðrum til uppbyggingar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26090085

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. september 2026, þar sem óskað er eftir því að borgarráð afturkalli lóðavilyrði til APT Holdings ehf. á athafnasvæðinu á Hólmsheiði, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að þegar efnahagslegar aðstæður þyngjast, vaxtastig er hátt og fjármögnun í íslensku krónuumhverfi dýr, verði Reykjavíkurborg að bjóða atvinnulífinu upp á algjöran skýrleika og fyrirsjáanleika. Á síðustu sextán árum upplifði borgin gríðarlegt blómaskeið þar sem störfum fjölgaði um 40% og fyrirtækjum um 50%, sem sýndi ómælda trú á framtíð Reykjavíkur. Þegar þrjú fyrirtæki skila atvinnulóðum á stuttum tíma þarf að skoða það í stærra samhengi. Neikvæð umræða um borgina, ásamt óvissu um lykilinnviði á borð við Borgarlínuna og hægagang í stórum úthlutunarverkefnum íbúðarlóða, getur haft alvarleg keðjuverkandi áhrif á fjárfestingavilja. Fyrirtæki og fjárfestar halda að sér höndum ef þau skynja óvissu í brúnni í miðjum efnahagsstormi. Það er ákall um að fylgjast vel með þessari þróun. Borgin á ekki að auka á óvissuna heldur vinna í virku samtali við atvinnulífið til að viðhalda þeirri sterku trú og uppbyggingu sem verið hefur undirstaða velferðar í Reykjavík. Samfylkingin styður að vilyrðið verði fellt úr gildi svo lóðinni verði komið hraðar í nýja nýtingu.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26090087

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. september 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna lóðaframkvæmda við nýjan leikskóla á Fossvogsbletti, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun lóðaframkvæmda er 240 m.kr.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Uppbygging leikskóla á Fossvogsbletti er stór framkvæmd í grónu hverfi og eðlilegt að íbúar hafi viljað koma sjónarmiðum sínum á framfæri um umfang hennar og áhrif á nærumhverfið. Meirihlutinn hefur lagt áherslu á að hlusta á þær ábendingar og taka mið af þeim við framvindu verkefnisins. Upphaflega var gert ráð fyrir allt að 200 börnum í leikskólanum en ákveðið hefur verið að starfsemin hefjist miðað við 120 börn. Ef tilefni verður til að fjölga börnum síðar verður horft til þróunar og þarfar fyrir leikskólapláss í hverfinu og slíkt metið í nánu samráði við íbúa. Íbúasamsetning og eftirspurn eftir leikskólaþjónustu getur breyst með tímanum og mikilvægt er að borgin hafi svigrúm til að bregðast við þeirri þróun, án þess að ganga lengra en tilefni er til hverju sinni. Áhyggjur íbúa hafa ekki síst snúið að umferð. Því skiptir máli að samgöngumat hefur verið unnið og að áfram verði sérstaklega hugað að umferðaröryggi, aðkomu og áhrifum starfseminnar á nærliggjandi götur. Við hönnun lóðarinnar er jafnframt lögð áhersla á að varðveita stór tré og gróið náttúrulegt yfirbragð svæðisins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að uppbygging nýs leikskóla á Fossvogsbletti sé að færast nær framkvæmdastigi og að falleg og fagleg hönnun lóðarinnar leggi áherslu á náttúrulegt yfirbragð og skógartengingu. Ítrekaðar eru þó ríkar áherslur Samfylkingarinnar frá fyrri stigum málsins um að öryggi, heilsa og lífsgæði barnanna, starfsfólks og ekki síst íbúa í nágrenninu verði sett í algjöran forgang. Eins og bókanir staðfesta var einingin stækkuð úr 150 plássum í 10 deilda skóla fyrir 200 börn. Sú stækkun eykur álagið á innviði svæðisins verulega og áhyggjur nágranna af stóraukinni bílaumferð í grónu íbúðahverfi eiga fullt erindi. Við upphaf innkaupaferlis á lóðaframkvæmdum verður að tryggja að farið verði yfir loftgæði og hljóðvist áður en starfsemi hefst. Jafnframt verður að tryggja að áform um hraðahindranir, einstefnu, stúta bílastæða og bann við lagningu í götukanti verði útfærð af festu svo umferðaröryggi gangandi barna sé óskorað og að bílastæðavandi flytjist ekki inn í nálægar íbúðagötur. Samfylkingin styður útboðið en mun fylgjast grannt með því að þessum mikilvægu varnöglum í þágu barnanna og nærsamfélagsins verði fylgt eftir á framkvæmdatíma.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25030168

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á þjónustu, rekstri og stafrænu umhverfi Reykjavíkurborgar.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka kærlega fyrir faglega og mikilvæga kynningu á starfsemi þjónustu- og nýsköpunarsviðs er snýr að þjónustu við íbúa borgarinnar. Hún sýnir vel hvernig nýsköpun getur bæði bætt þjónustu og sparað tíma og fjármuni. Sameiginleg framlína, mínar síður og betri tenging kerfa einfalda fólki að sækja þjónustu, draga úr tvíverknaði og létta á starfsfólki. Reykjavík stækkar og verður sífellt fjölbreyttari. Sú þróun skapar tækifæri en kallar líka á aðgengilega þjónustu sem mætir ólíkum þörfum. Vísbendingar um vaxandi ójöfnuð eru áhyggjuefni. Þegar búið er að leggja niður þjónustumiðstöðvar, alþjóðateymi, mannréttindaskrifstofu og virknihús er brýnt að standa vörð um aðgengi að þjónustu og efla samtal við fólk sem stendur höllum fæti. Við áframhaldandi þróun þjónustunnar þarf sérstaklega að huga að fólki sem býr við tungumálahindranir, hefur takmarkað stafrænt aðgengi eða á af öðrum ástæðum erfiðara með að sækja þjónustu og réttindi.

    Arna Ýr Sævarsdóttir, Ólafur Sólimann Helgason og Óskar Sandholt taka sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26080023

  5. Lagður fram árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir janúar-júní 2026 ásamt skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 10. september 2026, greinargerð fagsviða og sjóða A-hluta, dags. 10. september 2026, greinargerð B-hluta fyrirtækja, dags. 10. september 2026, verkstöðuskýrslu nýframkvæmda fyrir janúar-júní 2026 og bréfi Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 7. september 2026.

    Einar Hálfdánarson, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Halldóra Káradóttir, Jónas Skúlason og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Ingunni Ólafsdóttur sem tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti. FAS26080015

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Nýr meirihluti tekur við erfiðu búi. Of bjartsýnar fjárhagsáætlanir, veruleg rekstrarfrávik og þung skuldabyrði takmarka svigrúm borgarinnar. Áætlaður afgangur A-hluta var 399 m.kr. en niðurstaðan varð 3,2 ma.kr. halli eftir sex mánuði, þrátt fyrir að skatttekjur væru 1,2 ma.kr. yfir áætlun. Áætlanir fyrri meirihluta drógu þannig upp fegri mynd en reksturinn gaf tilefni til. Fjárheimildir og raunverulegur kostnaður þjónustunnar fóru ekki saman. Velferðarsvið var 1.527 m.kr. yfir fjárheimildum án bundinna liða og skóla- og frístundasvið 852 m.kr. án niðurfærðra verkefna. Tíu grunnskólar og 21 leikskóli voru að minnsta kosti 4% yfir fjárheimildum. Umfang frávikanna undirstrikar þörf fyrir vandaðri áætlanagerð og virkari eftirfylgni. Langtímalán A-hluta án leiguskulda námu 140,2 ma.kr. um síðustu áramót. Vaxtagjöld og verðbætur námu 7,6 ma.kr. á hálfu ári, tæpum 2 ma.kr. yfir áætlun. Hóflaus skuldasöfnun síðasta áratuginn hefur gert fjárhag borgarinnar afar viðkvæman fyrir verðbólgu og þrengt að þjónustunni við borgarbúa. Þótt afgangur fyrir fjármagnsliði og afskriftir hafi verið yfir áætlun og viðbótarafskriftir skýri hluta hallans, kalla rekstrarfrávikin á aðgerðir. Nýr meirihluti mun leggja áherslu á heiðarlega og raunhæfa áætlanagerð, markvissa hagræðingu og bætt skipulag. Þjónusta við borgarbúa verður að hvíla á traustum fjárhagslegum grunni.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Árshlutareikningurinn sýnir að grunnreksturinn er traustur og í jafnvægi. Grunnrekstur samstæðunnar skilar 34,7 milljörðum í afgang, sem er 1,4 milljarði umfram áætlun. EBITDA A-hluta er 7,9 milljarðar, eða 268 milljónum yfir áætlun. Launahlutfallið er 75% og lausafjárstaðan sterk með 11,3 milljarða í handbæru fé. Framsettur lokahalli stafar ekki af rekstrarlegum lausatökum, heldur af óstýranlegum ytri efnahagsþáttum og einsskiptis reikningsskilaaðgerðum. Í fyrsta lagi hækkuðu fjármagnsliðir um 5,6 milljarða umfram áætlun vegna verðbóta í verðbólgu. Í öðru lagi krefjast reikningsskilareglur þess að bókfært sé 2,3 milljarða virðistap vegna tímabundinna sveiflna á fasteignamarkaði sem hefur engin áhrif á sjóðstreymi Félagsbústaða. Í þriðja lagi er um að ræða 2,1 milljarð í einsskiptis afskriftir vegna yfirfærslu hjúkrunarheimila og þróunarverkefna sem hætt var við. Þessi frávik fela því ekki í sér raunverulegt útstreymi fjármuna. Stærsta samstarfsverkefnið er áframhaldandi samtal ríkis og borgar um fjármögnun málaflokks fatlaðs fólks, þar sem milljarða uppsafnaður halli er frá 2011. Bókhald segir ekki alla söguna. Þar sést ekki árangur forvarna, né stórkostlegur árangur virknihúss við að koma fólki af fjárhagsaðstoð í vinnu, eða alþjóðlegir styrkir upp á hundruð milljóna króna. Þetta eru verkefni sem búið er að skera niður í nafni hagræðingar sökum misskilnings á fjárhag borgarinnar.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 2. september 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 31. ágúst 2026 á tillögu um breytingar á reglum um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.

    Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands ásamt greinargerð:

    Lagt er til að 1. gr. reglna um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar verði svohljóðandi: Kynningar til barna, unglinga og foreldra á æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfi eru heimilar í skipulögðu skóla- og frístundastarfi í samráði við stjórnendur og starfsfólk. Stærri og skipulagðar kynningar til barna og foreldra á úrvali æskulýðs-, íþrótta- og tómstundatilboða fyrir börn og unglinga, geta farið fram innan skóla eða frístundastarfs á starfstíma þeirra. Foreldraráð leikskóla og skólaráð grunnskóla taka þátt í að móta stefnu skóla um fyrirkomulag kynninga og tengsl skóla við grenndarsamfélagið í samstarfi við foreldrafélög, nemendafélög og hagsmunaaðila í nærsamfélaginu, t.d. hverfisráð, hverfisíþróttafélög og félagasamtök.

    Samþykkt.
    Reglur um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar eru samþykktar svo breyttar. SFS26060089

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar meirihlutans telja mikilvægt að börn og ungmenni hafi jafnan aðgang að upplýsingum um það fjölbreytta íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf sem í boði er. Upplýsingar um slík tækifæri skila sér ekki alltaf til allra barna og því getur samstarf skóla og þeirra sem halda úti frístundastarfi gegnt mikilvægu hlutverki við að vekja áhuga og auka þátttöku. Breytingarnar fela í sér skýrari heimild til að kynna uppbyggilegt starf í þágu barna og ungmenna, á forsendum skólastjórnenda og með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi getur haft veruleg jákvæð áhrif á líðan, félagsfærni og sjálfstraust barna, auk þess að efla tengsl þeirra við jafnaldra og samfélagið. Mikilvægt er því að öll börn fái raunverulegt tækifæri til þátttöku, óháð bakgrunni eða aðstæðum.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við fögnum því að börn hafi gott aðgengi að íþróttum og tómstundum, sem efla líðan, félagsfærni og sjálfstraust. Gildi skipulagðs frístundastarfs er óumdeilt. Þessi reglubreyting felur þó fyrst og fremst í sér minniháttar textatilfærslur, enda voru reglurnar rýmkaðar fyrir áratug til að heimila íþróttafélögum og öðrum þeim sem bjóða tómstundatilboð að kynna sína starfsemi á skólatíma eða starfstíma frístundastarfs í samráði við stjórnendur og starfsfólk. Fulltrúi Samfylkingarinnar tryggði á fundi skóla- og frístundaráðs að upplýsingum um kostnað sé áfram beint til foreldra en ekki barnanna, sem veitir fjölskyldum nauðsynlega yfirsýn. Hins vegar er vandamálið í dag ekki skortur á upplýsingum eða auglýsingum á skólatíma. Vandamálið er ójöfnuður. Raunveruleg hindrun margra barna er fjárhagsleg staða og geta fjölskyldna til að fjármagna tómstundirnar. Við stöndum með jöfnuði, jafnrétti og velferð allra barna, óháð bakgrunni. Við teljum að besta forvörnin felist í því að létta fjárhagslegar byrðar af foreldrum og verja innviði hverfanna. 

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs, dags. 9. september 2026, sbr. samþykkt íþrótta- og útilífsráðs frá 9. september 2026 á drögum að reglum um frístundakort fyrir 67 ára og eldri ásamt fylgiskjölum. Jafnframt lögð fram skýrsla starfshóps um frístundakort fyrir eldri borgara, dags. ágúst 2026.
    Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027.

    Steinþór Einarsson og Jóhanna Garðarsdóttir tóku sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR26060016

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar samþykkir með stolti reglur um nýtt frístundakort fyrir tekjulægri Reykvíkinga 67 ára og eldri. Markmiðið er að skipulega ryðja úr vegi fjárhagslegum hindrunum fyrir þátttöku í íþrótta-, heilsu-, tómstunda-, menningar- og félagsstarfi og styðja þannig við heilsu, virkni, sjálfstæði og félagslega þátttöku. Hámarksstyrkur getur numið allt að 60.000 krónum á ári. Með frístundakortinu er stigið mikilvægt skref í þá átt að fjárhagur standi síður í vegi fyrir virkni og þátttöku á efri árum. Markmiðið er að þau sem helst þurfa á stuðningi að halda hafi raunverulegt val um þátttöku í samfélags- og frístundastarfi sem eykur lífsgæði. Frístundakortið var eitt verkefna á 100 daga verkefnalista meirihlutans. Í dag eru 100 dagar liðnir frá því nýr meirihluti tók við og öll loforð listans hafa verið efnd. Síðustu ár hefur traust til borgarstjórnar verið í sögulegri lægð en traust byggist meðal annars á því að orð og efndir fari saman. Með verkefnalistanum var horfið frá óljósum viljayfirlýsingum og í staðinn sett fram skýr, tímasett og mælanleg verkefni sem borgarbúar gætu gengið á eftir. Að 100 dögum liðnum hefur meirihlutinn staðið við þá skuldbindingu.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi gagnbókun:

    Rétt er að taka fram að frístundastyrkurinn tekur hvorki gildi í dag né á þessu ári, þar sem gert er ráð fyrir því að vísa samþykkt tillögunnar til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027. Það er því villandi að tala um að loforðið hafi verið efnt innan 100 daga samkvæmt verkefnalista Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja tillöguna og fagna því mikilvæga skrefi að draga úr fjárhagslegum hindrunum eldra fólks til þátttöku í heilsueflingu og félagsstarfi. Slík þátttaka eykur lífsgæði, vinnur gegn einmanaleika og getur dregið úr þörf fyrir kostnaðarsama þjónustu síðar. Tekjuviðmiðin eru hins vegar lág. Samkvæmt skýrslu starfshópsins er áætlað að aðeins um 20% Reykvíkinga 67 ára og eldri eigi rétt á kortinu. Því þarf fylgjast vel með framkvæmdinni og nýtingu kortsins til að meta hvort úrræðið nái til nægilega stórs hóps. Jafnframt þarf að tryggja fullnægjandi fjármögnun og samræma tekjuviðmið öðrum stuðningsúrræðum borgarinnar svo lítil tekjuhækkun leiði ekki til þess að mörg réttindi falli niður samtímis. Frístundakortið þarf að vera hluti af heildstæðri og réttlátri stefnu í þjónustu við eldra fólk, þar sem gjaldskrárhækkanir í grunnþjónustu, svo sem máltíðaþjónustu, vinna ekki gegn markmiðum þess.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er mikilvægt að eyða fjárhagslegum hindrunum í lífi fólks þannig að aðgengi að leiðum til þess að efla heilsu og virkni sé tryggt. Það er þó furðulegt að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar, sem talar um að ekkert fjárhagslegt svigrúm sé til staðar í rekstri borgarinnar, geri ráð fyrir nýjum útgjaldalið sem áætlað er að geti numið allt að 244,7 milljónum króna árlega. Ef kostnaðurinn nemur um 245 milljónum árlega þá er um að ræða tæpan 1 milljarð yfir fjögurra ára tímabil. Fulltrúi Vinstrisins telur mikilvægt að skoða leiðir til að tryggja að hægt sé að bjóða upp á fjölbreytt gjaldfrjáls námskeið í skipulagðri íþrótta-, heilsu-, tómstunda-, menningar-, fræðslu- og félagsstarfi. Slíkt má til að mynda gera með því að skoða hvort hægt sé styrkja þá starfsemi sem er til staðar og með því að nýta samfélagshús borgarinnar undir fjölbreytt námskeið.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ekki er hægt að taka afstöðu til frístundakortsins þegar tekjutengingin hefur ekki verið útfærð. Slík útfærsla hefði átt að fylgja á þessum tímapunkti og er því spurning hvort að tímapressa verkefnalista meirihlutans sé að ráða för.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. september 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar um að tilnefna Lóu Birnu Birgisdóttur og Önnu Kristinsdóttur sem fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Jafnlaunastofu sf., ásamt því að tilnefna Hörð Hilmarsson sem varamann í stjórn til eins árs. Er það gert til samræmis við 7. gr. sameignarfélagssamnings Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar um Jafnlaunastofu þar sem Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna hvort um sig tvo fulltrúa og einn til vara í stjórn.

    Samþykkt. MSS26080029

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. september 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Rúnar Frey Gíslason sem fulltrúa Reykjavíkurborgar í stefnuráð Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26080067

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 7. september 2026, þar sem lagt er fram yfirlit yfir stöðu starfs- og stýrihópa og annarra vinnuhópa sem stofnaðir voru á kjörtímabilinu 2022-2026, ásamt fylgiskjölum. MSS26060047

    Fylgigögn

  11. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um framtíðarskipulag heilbrigðiseftirlits á höfuðborgarsvæðinu, sbr. 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. júlí. Jafnframt lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. september 2026.
    Samþykkt að vísa tillögunnni frá. MSS26070035

    Fylgigögn

  12. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls átta mál (MSS26010011, MIR26060017, MSS26090013, MSS26080095, MSS26080095, MSS26010029, MSS26090033, MSS24100050). MSS26080116

    Fylgigögn

  13. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26080117

    Fylgigögn

  14. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um afdrif fyrirspurna Vinstrisins sem hafa verið lagðar fram í borgarráði 25. júní (vegna sölubása við Austurstræti og Lækjartorg, málsnúmer MSS26060172), 2. júlí (kostnaðaráhrif vegna lækkunar gjalda vegna viðburðahalds í borgarlandi, málsnúmer MSS26070006), 20. ágúst (um endurskoðun samgöngusáttmálans) og 27. ágúst (um jafnréttisskimun á skipulagsbreytingar, málsnúmer MSS26080087. Hvenær er von á svörum við þessum fyrirspurnum?

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar. MSS26090044

  15. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Starfshópur um innleiðingu húsnæðissáttmála á að skila af sér árið 2032. Er hópurinn lagður niður þar sem verkefnum er lokið? Af hverju er hópurinn lagður niður svona snemma miðað við lokadagsetninguna 2032? Vegna starfshóps um leigumarkað, af hverju er hann lagður niður og hvar eru niðurstöður þess hóps? Þá er einnig spurt út í niðurstöður þeirra hópa sem hafa lokið störfum og skilað niðurstöðum. Óskað er eftir niðurstöðum hópanna og þeim gögnum sem liggja fyrir. MSS26090046

  16. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hver var launa og launatengdur kostnaður fyrir borgar- og varaborgarfulltrúa annars vegar í apríl 2026 og hins vegar í ágúst 2026?

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar. MSS26090041

  17. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Miðað við það að 100 daga frestur verkefnalistans er liðinn er óskað eftir svörum um eftirfarandi sem samkvæmt listanum er lokið eða hafið: a. Hver eru mælanlegu markmiðinn um aukinn árangur í skólastarfi? b. Hvaða grunnmælingar er verið að miða við til að mæla árangur símafrís? c. Hver er staðan á viðræðum við vinnustaði um leikskóla eða daggæslu fyrir börn starfsmanna? d. Hvenær var sniðin umgjörð um dagheimili, nýtt daggæslustig fyrir 12-30 mánaða börn í Reykjavík og hver er umgjörðin? Málið hefur ekki ratað inn til leikskóla- og daggæsluráðs. e. Við hvaða einkaaðila eru hafnar samningaviðræður um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili í Reykjavík? f. Hver er staðan á samtali við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða? g. Hvaða vinnu er lokið við að greiða úr gjaldskyldufrumskógi bílastæða í miðborginni? h. Hvaða aðskotahlutir hafa verið fjarlægðir úr bílastæðum í miðborg? i. Hver var afrakstur endurskoðunar fyrirhugaðs deiliskipulags við Suðurlandsbraut, fyrst þeirri vinnu er lokið? j. Það er búið að treysta markaðnum til að byggja húsnæði sem eftirspurn er eftir samkvæmt verkefnalistanum, hvernig er eftirfylgnin með því? k. Hvaða ný tækifæri er búið að skoða í samráði við íbúa í stað þéttingar í Grafarvogi? l. Hvernig er búið að tryggja að bílastæði fylgi nýjum íbúðum sem byggðar eru fyrir eldra fólk? m.Hvar er tilkynningavefurinn vegna ofbeldis gagnvart eldra fólki, þar sem þeirri vinnu er greinilega lokið? Óskað er eftir að svar við fyrirspurninni verði lagt fram á næsta fundi borgarráðs, þar sem gögnin liggja greinilega fyrir enda er búið að haka við að verkefnunum er lokið.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, MSS26090042

  18. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir gögnum um eftirfarandi starfshópa, skýrslur, tillögur og annað sem greinir frá afrakstri hópanna: a. Samhæfingarhópur um móttöku flóttafólks, b. Starfshópur um leigumarkað í Reykjavík, c. Starfshópur um húsnæðisátak í Reykjavík, d. Starfshópur um félagslegt landslag í Reykjavík, e. Fyrirkomulag sumarstarfa fyrir 17 ára til framtíðar, f. Starfshópur um innra eftirlit á velferðarsviði, g. Starfshópur um tillögur til úrbóta í skólaþjónustu, h. Starfshópur um mat á fyrirkomulagi rekstrar á frístundastarfsemi skóla- og frístundasviðs.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26090043

Fundi slitið kl. 11:30

Einar Þorsteinsson Bjarni Guðjónsson

Björg Magnúsdóttir Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 10.9.26 prentvæn útgáfa