Borgarráð - Fundur nr. 5835

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 3. september, var haldinn 5835. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:01. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Björg Magnúsdóttir, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Pétur Hafliði Marteinsson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. ágúst 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 26. ágúst 2026 á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla, ásamt fylgiskjölum.

    -    Kl. 9.03 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.

    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn lýsir yfir ánægju með nýtt deiliskipulag og að nýr unglingaskóli í Ármúla muni vonandi komast hratt og örugglega í notkun í nálægð við það hverfi þar sem nemendur búa. Mikilvægt er að huga sérstaklega að öruggum samgöngum að skólanum, enda eru börn á þessum aldri að jafnaði sjálfstæð í ferðum sínum til og frá skóla og fara oftast gangandi eða hjólandi. Í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar um öruggar og greiðar gönguleiðir fyrir skólabörn leggur meirihlutinn áherslu á að tryggð verði örugg leið yfir götur og nauðsynlegar umferðaraðgerðir, svo sem góð lýsing og hraðahamlandi lausnir. Öryggi barna í nærumhverfi skólans er lykilatriði og mikilvæg forsenda þess að efla sjálfbærar samgöngur og heilbrigt líferni.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna metnaðarfullri og faglegri deiliskipulagstillögu fyrir Ármúla 28-30, sem er stórt skref í að breyta Ármúla í líflega og fjölbreytta borgargötu. Tillagan eflir skólaframboð og nærþjónustu í Múlunum og Skeifunni til muna, auk þess sem sérstaklega ber að róma framsækna hönnun á leik- og útivistarsvæðum á pöllum og þökum hússins. Þótt skipulagstillagan sjálf sé fagnaðarefni er óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við ferlið. Hér er verið að móta nýjan safnskóla fyrir unglingastig hverfisins án þess að málið hafi fengið efnislega umfjöllun eða stefnumótun í skóla- og frístundaráði. Þá hefur skort mikið á raunverulegt og virkt samráð við fagaðila, kennara, foreldra og íbúa um þær stóru breytingar sem í vændum eru. Að lokum ítreka fulltrúar Samfylkingarinnar að það er algjört skilyrði fyrir opnun skólans að umferðaröryggi barna sé að fullu tryggt. Ráðast þarf í afgerandi hraðadempandi aðgerðir, spyrna við þungri vöruflutningaumferð í nærumhverfinu, tryggja samfellda hjólainnviði, örugga göngustíga, hækka innkeyrslur og uppfylla öll skilyrði Heilbrigðiseftirlitsins um hljóðvist og loftgæði áður en starfsemi hefst.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að verið sé að bregðast við þörfum stækkandi hóps ungmenna í hverfinu. Hins vegar er hér einnig verið að stíga skref í átt að óæskilegu fyrirkomulagi þar sem langtímaleigusamningur er gerður við einkafyrirtæki sem heldur eignarrétti yfir sjálfri skólabyggingunni. Áður hefur verið gripið til leiguúrræða fyrir grunnskóla til skemmri tíma en með þessum langtímasamningi er verið að festa í sessi þá hættulegu þróun sem við höfum þegar séð varðandi eignarhald á leikskólahúsnæði borgarinnar. Ennfremur er hér um að ræða 60 ára gamalt fyrrum iðnaðarhúsnæði og því er ekki að undra að húsnæðið, lóðin og umferðartengingar séu sannarlega ekki sérsniðnar að þörfum grunnskóla. Því þarf að tryggja að fyrirætlaðar úrbætur af hálfu leigusala eigi sér stað með tilskyldum hætti svo að húsnæðið standist ýtrustu kröfur varðandi öryggi nemanda, sérstaklega varðandi brunavarnir og rýmingu – atriði sem stærð og eðli lóðarinnar auðveldar ekki. Úrbætur borgarinnar á stígum, götuþverunum og lýsingu verða einnig að raungerast áður en skólahald hefst til að tryggja öryggi skólabarna á leið í skólann. Einnig hafa ábendingar borist um að áætlaður fjöldi bílastæða sé verulega knappur, en gert er ráð fyrir því að fyrir 45 starfsmönnum nægi einungis 17 bílastæði.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25120362

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. ágúst 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 26. ágúst 2026 á tillögu að reglum um úthlutun nágrannavörsluskilta, ásamt fylgiskjölum.

    -    Kl. 9:08 tekur Heiða Björg Hilmisdóttir sæti á fundinum.

    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn fagnar því að nú séu settar skýrar reglur um úthlutun nágrannavörsluskilta og það auðveldað fyrir íbúa að koma á virkri nágrannavörslu í sinni götu eða hverfi. Með einföldu og aðgengilegu umsóknarferli og skýrri verkaskiptingu er stigið mikilvægt skref í þá átt að gera fleiri íbúum kleift að taka höndum saman um öryggi og góðan nágrannaanda í sínu nærumhverfi.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja reglur um nágrannavörsluskilti, enda er um gott og reynt forvarnarverkefni að ræða sem borgin hefur unnið í samstarfi við lögreglu og íbúa frá árinu 2006. Það er gott að einfalda leið fólks til að nálgast skiltin og mikilvægt að upplýsingar til íbúa fylgi með um hvað felst í nágrannavörslu. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að umræða um öryggismál í borginni byggist á staðreyndum og yfirvegun en ekki óttastjórnun. Í umræðu um afbrot skortir oft upplýsta tölfræði og samhengi, en lögreglan hefur staðfest að innbrot séu oft unnin af fáum einstaklingum í sárri félagslegri neyð – vanda sem dýpkar þegar skortur er á úrræðum, plássleysi ríkir í fangelsum og nærþjónusta við viðkvæma hópa (eins og Kaffistofa Samhjálpar) er skert. Nágrannavarsla má aldrei verða að einkavakt sem elur á ótta eða tortryggni gagnvart viðkvæmum hópum og fólki af erlendum uppruna. Félagslegum vanda verður að mæta með félagslegum lausnum, skaðaminnkun og raunverulegum forvörnum. Örugg borg er borg sem greinir vandann rétt, tryggir jöfnuð og félagslegan stuðning og passar upp á alla sína íbúa.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í kjölfar innbrota hefur Reykjavíkurborg lagt aukna áherslu á nágrannavörslu. Það er jákvætt að efla samstöðu í hverfum og hvetja íbúa til að vera vakandi gagnvart nærumhverfi sínu. Slíkt getur komið í veg fyrir innbrot en eftirlit eitt og sér dugar ekki til að draga úr afbrotum til lengri tíma. Afbrot verða ekki til í tómarúmi heldur geta þau í mörgum tilvikum tengst félagslegum og efnahagslegum aðstæðum, svo sem húsnæðisvanda og fíkn. Til að draga úr afbrotum þarf að tækla rót vandans. Ef áhersla er eingöngu lögð á einkenni í stað orsaka, verður árangurinn takmarkaður. Öruggt samfélag byggist á sterkum félagslegum stoðum og samfélagi þar sem fólk getur lifað mannsæmandi lífi. Því er mikilvægt að samhliða umræðu um nágrannavörslu til að fækka innbrotum sé lögð áhersla á að styrkja félagsþjónustu, geðheilbrigðisúrræði, húsnæðisöryggi og forvarnir. Langtímaárangur í baráttunni gegn afbrotum næst með því að bregðast við undirliggjandi orsökum þeirra en ekki aðeins einkennunum.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ef markmið verkefnisins er að efla forvarnir gegn afbrotum, auka öryggi í hverfum og stuðla að aukinni samvinnu og samfélagsvitund íbúa er mikilvægt að þeim sem taka að sér nágrannavörslu standi til boða viðeigandi fræðsla og þjálfun. Jafnframt þarf að tryggja að framkvæmd nágrannavörslu stuðli ekki að fordómum eða tortryggni í garð fólks af erlendum uppruna eða einstaklinga í félagslega viðkvæmri stöðu. Mikilvægt er að skilgreint sé skýrar hvert umfang og virkni nágrannavörslu sé. Ekki telst fullnægjandi að merkja við að samráð hafi átt sér stað, en slíkt gefur ekki raunhæfa mynd af því hversu margir standa að baki hverrar nágrannavörslu. Ef ganga á í samfélagslegt átaksverkefni sem þetta þarf upplýsingar um hve margir eru að baki hverrar nágrannavörslu og fylgjast þarf með hvort staðið sé rétt að málum. Í umræðu um nýlega innbrotahrinu benti lögreglan á að það séu oft sömu einstaklingar að baki innbrota. Þannig skapast vítahringur þar sem einstaklingur fremur afbrot, lýkur afplánun, snýr aftur í samfélagið án nægilegs stuðnings og brýtur aftur lög. Að lokum er mikilvægt að hafa í huga að árangursríkar forvarnir gegn afbrotum felst ekki í auknu eftirliti heldur í félagslegum úrræðum, skaðaminnkandi nálgun og markvissum stuðningi við einstaklinga sem hafa lokið afplánun.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080286

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir borgarráð samþykki að afturkalla úthlutun lóðar við Norðurgrafarveg 3, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þegar lóðarhafar kjósa að afsala sér úthlutun verðum við að vera vakandi hvort það gefi vísbendingu um að aðstæður í efnahagslífinu séu farnar að bíta af alvöru á áform fyrirtækja. Verðbólga, hátt vaxtastig og varfærni í fjármögnun virðast vera að hægja á uppbyggingu og draga úr eftirspurn eftir atvinnulóðum í Reykjavík. Tilefni er til að fylgjast vel með því hvort þetta sé einstakt tilvik eða merki um víðtækari samdrátt í fjárfestingum atvinnulífsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080413

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki útboð á byggingarrétti íbúðarhúsalóðar við Suðurhóla 27, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við vinnu hverfisskipulags Breiðholts, sem unnið var í miklu samráði við íbúa, var reiturinn við Suðurhóla skilgreindur sem þróunarreitur þar sem uppbygging yrði útfærð síðar. Hér er lagt til að byggja 40 íbúðir í raðhúsum og sérhæðum við Suðurhóla með áherslu á vandaðan arkitektúr, grænt yfirbragð og gæði íbúða. 49 bílastæði fylgja reitnum. Unnið er vel með landslagið og form þess. Byggðin verður aðlögunarhæf þar sem íbúar geta mótað íbúðirnar og stækkað eftir þörfum. Vistgata liðast um svæðið sem skilur eftir grænt og barnvænt umhverfi á meginþorra svæðisins. Skapa á góð græn almenningsrými á borgarlandi að norðan og vestan og nýta á áfram leiktækin sem staðsett eru á svæðinu en þau verða flutt til á tvö ný leiksvæði á hinu nýja uppbyggingarsvæði. Lögð er rík áhersla á að verkefnið sé skilmerkilega kynnt íbúum í Hólahverfi, að hlustað sé af fullri virðingu á sjónarmið þeirra, að vandað verði til allrar hönnunar og að borgin efli önnur opin svæði í nærumhverfinu til að vega upp á móti þessari uppbyggingu.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080410

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. september 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 2. september 2026 á tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að gjaldskyldutími bílastæða í miðborg verði styttur í samráði við hagaðila og íbúa.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks samþykkir að gjaldskyldutími á P1- og P2-svæðum verði styttur um eina klukkustund á kvöldin frá 1. október 2026. Gjaldskyldu ljúki því kl. 20 í stað kl. 21 alla daga. Gert er ráð fyrir að þetta fyrirkomulagi gildi út árið 2026. Breytingin er í samræmi við verkefnalista meirihlutans, þar sem kveðið er á um að gjaldskyldutími bílastæða í miðborginni verði styttur í samvinnu við íbúa og fyrirtæki. Undanfarið hefur átt sér stað óformlegt samráð við íbúa og hagaðila um bílastæðamál og aðgengi að miðborginni. Þessi afmarkaða breyting er fyrsta skrefið í því ferli. Fram undan er heildarendurskoðun gjaldskyldukerfis borgarinnar með það að markmiði að einfalda og samræma kerfið og laga það betur að þörfum íbúa, rekstraraðila og gesta miðborgarinnar. Sú vinna verður unnin í formlegu samráði við íbúa og rekstraraðila, meðal annars með könnun á reynslu þeirra og viðhorfum til gjaldskyldu og bílastæðamála. Áhrif breytingarinnar verði metin inn í breytingar og heildarendurskoðun.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja faglega endurskoðun á bílastæðamálum – enda var sú vinna þegar hafin á síðasta kjörtímabili – en hafna því að kalla þessa fljótfærnislegu aðgerð meirihlutans viðeigandi „fyrsta skref“. Greining Bílastæðasjóðs sýnir að stytting mun draga úr nýtingu bílastæðahúsa (sem eru stórlega vannýtt í dag) og gera íbúum miðborgarinnar enn erfiðara fyrir að finna stæði við heimili sín eftir vinnu og á kvöldin með tilheyrandi hætti á ólöglegum leggingum sem ógna öryggi gangandi vegfarenda. Umhugsunarvert er að kasta yfir 40 milljónum króna í tímabundnar skiltabreytingar og tapaðar tekjur á einungis þremur mánuðum – áður en fyrirhuguð greining og íbúakönnun hafa yfirhöfuð farið fram. Þessi dýra skammtímalausn er sérstaklega furðuleg á sama tíma og starfsfólki borgarinnar er sagt upp í stórfelldum niðurskurði í nafni hagræðingar, mötuneytismatur lífeyrisþega hækkaður um rúmlega 70% og fleira í þeim dúr. Borgarsýn Samfylkingarinnar er skýr: Við viljum líflega, öfluga og gönguvæna miðborg. Greiða á fyrir aðgengi akandi gesta með því að beina bílum í vannýtt bílastæðahús borgarinnar og nýta göturýmið í þágu mannlífs og íbúa – en ekki með því að fylla íbúagötur af bílum í ókeypis stæðum á kvöldin.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands bendir á þá sýndarmennsku sem felst í nafni tillögunnar þar sem ekkert formlegt samráðsferli var hafið við hagaðila og íbúa. Þótt fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands sé hlynntur styttingu gjaldskyldutíma vaknar þó upp spurning um rétta forgangsröðun. Meirihlutinn hefur ítrekað bent á að tekið var við erfiðu búi og hafa skorið niður verulega í velferðar- og skólakerfinu en á sama tíma bjóða aðgerðir sem skerðir tekjuöflun borgarinnar fyrst með 90% afslætti gatnagerðargjalda í bílakjöllurunum og nú með styttingu gjaldskyldu bílastæða í miðborg.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26090014

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. september 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 2. september 2026, á tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um breytingar á reglum um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.

    Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Lagt er til að reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar breytist á þann hátt að í þeim þremur ákvæðum þar sem fram kemur setningin: „Frávik frá viðmiðunargildi skulu rökstudd eftir því sem við á“ verði svohljóðandi: „Frávik frá viðmiðunargildi skulu rökstudd“.

    Samþykkt. 
    Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsráðs er samþykkt svo breytt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar. 
    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar samþykkir framlagðar breytingar á reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík. Með breytingunum falla almenn bindandi hámarksgildi um fjölda bílastæða við nýbyggingar og endurnýjun byggðar niður. Endurskoðuð viðmiðunargildi verða áfram lögð til grundvallar við mat á bílastæðaþörf, en heimilt verður að víkja frá þeim til fjölgunar eða fækkunar þegar staðsetning, landnotkun, aðstæður og þarfir viðkomandi uppbyggingar gefa tilefni til. Frávik skulu rökstudd og samgöngumat áfram nýtt. Markmiðið er að tryggja að fjöldi bílastæða ráðist af gagnsæju, málefnalegu og staðbundnu mati í stað ósveigjanlegra hámarksgilda. Afnám hámarksgilda felur ekki sjálfkrafa í sér fjölgun bílastæða en gefur húsbyggjendum færi á að mæta þörfum og kröfum markaðarins. Eftir því sem kostur er verði kaup eða leiga bílastæðis aðskilin frá kaupum eða leigu íbúðar, þannig að kostnaður við stæðin falli á notendur þeirra. Breytingarnar eru í samræmi við samþykkt borgarstjórnar frá 16. júní 2026 og fela ekki í sér að fallið sé frá markmiðum borgarinnar um breyttar ferðavenjur, skilvirka landnýtingu og vandað borgarumhverfi.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Afnám á hámarksfjölda bílastæða, sérstaklega í ljósi nýsamþykkts 90% afsláttar af gatnagerðargjöldum neðanjarðar, er varhugaverð skipulagsstefna sem gengur gegn svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Sérfræðirýni EFLU staðfestir að mikið framboð bílastæða eykur bílaeign, eykur akstur og hækkar húsnæðiskostnað. EFLA lagði til hækkun hámarksgilda fremur en afnám þeirra, en meirihlutinn kýs að líta fram hjá þeirri faglegu ráðgjöf. Með því að gefa fjölda bílastæða frjálsan og niðurgreiða bílakjallara samtímis með afslætti af gatnagerðargjöldum er búinn til hættulegur hvati. Í stað þess að einfalda skipulagsgerð eykst óvissa og hætta er á að bílakjallarar og bílaumferð stýri hönnun hverfa í stað lífsgæða íbúa. Sveigjanleiki var þegar innleiddur í regluverkið í apríl 2026 – lausnin var ekki að fella niður alla ramma. Ef farið er í þessar breytingar verður fortakslaust að krefjast skýrra mótvægisaðgerða, sérstaklega fulls aðskilnaðar á kostnaði bílastæða frá íbúðarverði. Íbúðakaupendur sem eiga ekki bíl eiga ekki að vera knúnir til að niðurgreiða fimm milljóna króna bílastæði fyrir aðra.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26090012

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 31. ágúst 2026, varðandi fundargerð verkefnaráðs fyrir ágúst 2026.

    -    Kl. 9:55 tekur Einar Þorsteinsson sæti á fundinum með rafrænum hætti og Magnea Gná Jóhannsdóttir víkur af fundi.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON20060042

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 31. ágúst 2026, varðandi ársskýrslu þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025, ásamt fylgiskjölum.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON26080020

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 31. ágúst 2026, þar sem starfsáætlun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2027 og áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins 2027-2030 eru send borgarráði til kynningar, ásamt fylgiskjölum.

    Inga Hlín Pálsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26080095

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 1. september 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Eddu Björk Ragnarsdóttur sem fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Brúar lífeyrissjóðs. Samkvæmt samþykktum Brúar lífeyrissjóðs skipa Samband íslenskra sveitarfélaga, BHM og BSRB stjórn sjóðsins. Samband íslenskra sveitarfélaga skipar þrjá stjórnarmenn af sex og hefur óskað eftir því að einn fulltrúi Sambandsins komi frá Reykjavíkurborg. Skipunartími stjórnarmanna er fjögur ár.

    Samþykkt. MSS26060046

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 1. september 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Þorvald Davíð Kristjánsson sem fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

    Samþykkt. MSS26080026

    Fylgigögn

  12. Fram fer umræða um vinaborgarsamstarf Reykjavíkurborgar. MSS26080080

  13. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, 1. september 2026, varðandi yfirlit yfir fækkun stöðugilda á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði. MSS26080087

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakkar fyrir greinargott yfirlit. Fram kemur að breytingarnar sem hér eru til umfjöllunar snúa fyrst og fremst að stjórnunar- og umsýslustörfum en ekki að störfum í beinni þjónustu við börn og fjölskyldur. Alls voru 62 stöðugildi lögð niður við breytingarnar. Uppsagnir náðu til 86 starfsmanna, ekki voru allir í fullu starfi og 32 þeirra fengu boð um ný störf. Breytingarnar eru hluti af umfangsmeiri endurskipulagningu velferðar- og skólaþjónustu borgarinnar. Markmiðið er að einfalda stjórnskipulag og skapa sterkari faglegar einingar í þágu þess að styrkja þjónustuna sjálfa. Þetta á ekki síst við um þjónustu við börn og fjölskyldur, þar sem stefnt er að samræmdara skipulagi og aukinni samfellu milli þjónustuþátta. Markmiðið er að þarfir barna og fjölskyldna séu í forgrunni og að skipulag borgarinnar styðji sem best við snemmtæka, samræmda og faglega þjónustu.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Framlagt yfirlit yfir fækkun stöðugilda á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði staðfestir alvarlegt bakslag í velferðar- og forvarnamódeli Reykjavíkur. Með því að leggja niður þjónustu- og hverfismiðstöðvar er horfið frá nærþjónustu yfir í þyngri kerfislega miðstýringu. Uppsagnir 86 starfsmanna – þar sem aðeins 32 fá boð um ný störf – þýða óbætanlegt tap á sérfræðireynslu, staðbundinni þekkingu og trausti. Samtímis er vegið að farsæld barna og því forvarnasamstarfi skóla, frístunda og íþróttafélaga sem gert hefur reykvísk börn meðal þeirra ánægðustu. Þessi niðurskurður hittir viðkvæmustu hópana af fullri þyngd og eykur ójöfnuð. Öllum 18 sérfræðingum í samræmdri móttöku flóttafólks var sagt upp, sem skaðar inngildingu verulega. Þá var öllum sérfræðingum Virknihúss sagt upp. Í fyrra hjálpaði Virknihús 88 einstaklingum á fjárhagsaðstoð inn á vinnumarkaðinn – sem skilar borgarsjóði um 350 m.kr. árlegum ávinningi og fólkinu betri framtíð. Það eru alvarleg mistök að fórna þessum mannauði og mun þessi skammsýni niðurskurður enda með miklu hærri samfélagslegum, félagslegum og fjárhagslegum reikningi fyrir Reykjavík.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Gífurlega mikil óvissa ríkir í skóla- og frístundasamfélaginu eftir uppsagnir deildarstjóra og fjármálastjóra. Greinilegt er að þjónustuskerðing hefur strax myndast, sérstaklega í frístundastarfi. Í samtölum fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands við forstöðumenn hefur komið fram að erfiðleikar séu við ráðningar, verkefnaálag á forstöðumenn hefur aukist sem tekur þá frá gólfinu og margir vita ekki hvert þeir eiga að leita með spurningar. Jafnframt eru miklar áhyggjur af öryggi starfsmanna ef rekja má barnaverndartilkynningar til þeirra og um að ekki verði gripið til aðgerða nægilega snemma þegar erfið mál koma upp. Gífurlegur kostnaður verður fyrir samfélagið ef forstöðumenn hverfa af gólfinu og geta ekki sinnt faglega starfinu né veitt starfsfólki sínu handleiðslu. Fulltrúi Sósíalistaflokksins vonar að innleiðing breytinganna verði farsæl en lýsir verulegum áhyggjum yfir mögulegu hruni í þjónustu við börn og fjölskyldur í Reykjavík.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs 20. ágúst 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:

    Boðað hefur verið til aðalfundur Þjóðarleikvangs ehf. í samræmi við 14 gr. samþykkta félagsins, föstudaginn 28. ágúst kl. 11:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram til afgreiðslu á aðalfundi Þjóðarleikvangs ehf.: Dagskrárliður a. Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári. Dagskrárliður b. Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda eða skoðunarmanna félagsins til samþykktar. Dagskrárliður c. Stjórn félagsins skal kjörin og endurskoðendur eða skoðunarmenn. Dagskrárliður d. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skal með hagnað eða tap. Dagskrárliður e. Ákvörðun skal tekin um greiðslur til stjórnar- og skoðunarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu. Dagskrárliður f. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Lagt er til að dagskrárliðir a. og b. verði samþykktir. Lagt er til varðandi dagskrárlið c. að fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn Þjóðarleikvangs verði Helga Friðriksdóttir (formaður) og Hörður Hilmarsson (meðstjórnandi). Þá verði Halldóra Káradóttir varamaður í stjórn. Þá er lagt til varðandi dagskrárlið c. að tillaga stjórnar um að Grant Thornton endurskoðunarþjónusta ehf. verði endurskoðendur félagsins verði samþykkt. Lagt er til varðandi dagskrárlið d. að tillaga stjórnar um hvernig fara skal með hagnað eða tap, þ.e. að tap ársins 2025 færist til lækkunar á eigin fé félagsins og að ekki verði greiddur út arður til hluthafa, verði samþykkt. Varðandi dagskrárlið e. er lagt til að tillaga stjórnar um að stjórnarlaun verði óbreytt, verði samþykkt. Varðandi dagskrárlið f. þá liggur fyrir tillaga um að ræða næstu verkefni og hlutverk félagsins. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Þjóðarleikvangs ehf. sem haldinn verður 28. ágúst 2026. MSS26080049

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um framkvæmdir á Sævarhöfða 31, sbr. 16. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. ágúst 2026. Einnig lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. ágúst 2026. MSS26080046

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samfylkingin þakkar Sósíalistaflokki Íslands fyrirspurnina en svörin staðfesta að engar lausnir eru í boði gagnvart stöðu hjólabúa í Reykjavík. Fólk og húsnæðisvandi þess hverfa ekki þótt afnotum af svæðum sé hætt. Fyrst var nýgerðum skammtímasamningi í Gufunesi rift og nú er staðfest að engin önnur lóð verður fundin. Þessar ákvarðanir endurspegla varhugaverða pólitíska U-beygju í velferðarmálum borgarinnar og áhyggjuefni er að sú þróun sé rétt að byrja. Á sama tíma og dregið er úr nærþjónustu í velferðar-, skóla- og frístundamálum og kostnaður hækkaður á lífeyrisþega, er viðkvæmum hópunum mætt með uppsögnum og lokunum í stað úrræða. Borginni ber skylda til að sýna samfélagslega ábyrgð og vinna að raunhæfum lausnum. Félagslegur vandi fólks leysist ekki með því að lýsa yfir lokun afnota, minnka þjónustu og vísa fólki á braut.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ekki hefur bólað á framkvæmdum í Bryggjuhverfi vestur frá 2023 þangað til í sumar. Töluvert uppnám er meðal íbúa Sævarhöfða 31 þar sem mikill hávaði og rykmengun skapar óheilnæmt umhverfi. Íbúar voru ekki upplýstir að hefja ætti framkvæmdir á svæðinu á ný og framkvæmdirnar voru ekki sýnilegar á framkvæmdarsjá. Ekki liggur skýrt fyrir hvernig málsmeðferð á uppsögn á samningi við leigutaka á Sævarhöfða var framkvæmd. Gagnrýnt er harðlega að ekki standi til að finna að aðra lóð fyrir hjólabúa þar sem sveitarstjórn ber ábyrgð á að leysa húsnæðisþörf fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Borgin hefur jafnframt ekki haft frumkvæði að því að hefja samtal við hjólabúa um næstu skref og ekki hefur verið sýnt frumkvæði að því að finna annað úrræði en nú er ljóst að fjöldi fólks verður ekki með öruggt húsnæði seinna í haust. Hvernig meirihlutinn hefur mætt hjólabúum hefur einkennst af mikilli vanvirðingu og ómannúðlegri nálgun.

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um hagræðinga- og breytingatillögur á stjórnskipulagi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, sbr. 29. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. júlí 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 31. ágúst 2026. MSS26070006

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka svörin en vekja athygli á að lykilspurningum um raunverulegan sparnað og fjárhagsleg áhrif er enn ósvarað. Gefið var út að breytingarnar ættu að spara um 300 milljónir króna árlega. Ekki er komin fram skýr mynd af því hvernig sá sparnaður náist þegar 18 starfsmönnum er sagt upp, 6 til 7 nýir ráðnir í staðinn, verkefni færð á önnur svið og samskiptamálum útvistað til einkaaðila – án þess að áætlaður verktakakostnaður liggi fyrir. Þá eru það umhugsunarverð vinnubrögð að leggja niður starf hjá rannsóknarþjónustunni, sem var verulega tekjuberandi, að hluta fjármagnað með Evrópustyrkjum og hefur sótt hundruð milljóna í styrki fyrir borgina. Áhyggjur eru af því að borgin verði af umtalsverðum tekjum úr alþjóðlegum styrkjasjóðum í framtíðinni eða standi frammi fyrir endurgreiðslukröfum. Varhugavert er að ráðast í svo víðtækar skipulagsbreytingar og útvistun áður en heildstætt mat á fjárhagslegum afleiðingum og mögulegu tekjutapi borgarinnar liggur fyrir.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Greinilegt er að ekki liggja fyrir haldbær gögn til að styðja staðhæfinguna um 280-320 m.kr. árlegan sparnað í kjölfar uppsagna á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Ekki er búið að greina raunkostnað vegna uppsagnarfrests, ekki er búið að áætla kostnað við útvistun og ekki liggur fyrir rökstuðningur um hvernig spara eigi 280-320 m.kr. miðað við raunfækkun starfsmanna, þar sem 18 var sagt upp, einn nú þegar ráðinn tímabundið og fyrirhugað er að ráða í 6-7 ný störf. Upphrópanir um talsverðan sparnað eru því ekki rökstuddar. 

    Fylgigögn

  17. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um niðurlagningu samskiptaskrifstofu, sbr. 15. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. ágúst 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 31. ágúst 2026. MSS26080045

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ljóst er að breytingar meirihlutans sem hafa verið gerðar sem og framhaldið er mjög óljóst líkt og sést á stöðu málsins. Ekki er fjallað um það með skýrum hætti hvernig staðið var að greiningum og rýni á uppsögnum upplýsingafulltrúa og verkefnastjóra á skrifstofu borgarstjóra og áhrifum þeirra. Þá eru engar upplýsingar lagðar fram um það hver sinni því verkefni sem hefur verið útvistað.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Augljóst er að um frændhygli sé að ræða í tímabundinni ráðningu inn á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Skapað var nýtt hlutverk og var staðan hvergi auglýst heldur var fyrrverandi varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ráðinn. Því er klárlega um hagsmunatengsl að ræða. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands gagnrýnir að starfið sé skilgreint sem tímabundin ráðning þar sem ráðningin spannar ár. Spurning vaknar hvort sú ákvörðun sé til þess komin að fegra bókhaldið þar sem ekki verður tilgreint stöðugildi. Í svari borgarritara kemur fram að einu verkefni hafi verið útvistað en ekki liggur fyrir hvaða verkefni það er, hvernig málsmeðferð á útboðinu var né kostnaður útboðsins. Hvað varðar niðurlagningu starfa upplýsingafulltrúa er strax orðið ljóst hve skammsýn sú ákvörðun var með tilliti til töluverðrar óvissu og skorts á upplýsingum í kjölfar stjórnkerfisbreytinganna.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 25. ágúst 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  19. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 27. ágúst 2026. MSS26010008

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 19. ágúst 2026. MSS26010012

    Fylgigögn

  21. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 2. september 2026.
    9. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  22. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls níu mál (MSS26080108, MSS24100050, MSS26010029, MSS26010029, MSS25090050, USK26080100, MSS26080087, MSS26080087, MSS26080087, MSS26010028, MSS26080096, VEL26080110). MSS26080116

    Fylgigögn

  23. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26080117

    Fylgigögn

  24. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Borgarráð samþykkir að halda opinn upplýsingafund í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem farið er yfir þær skipulags- og stjórnkerfisbreytingar sem nýverið voru samþykktar. Á þessum fundi verði fólki einnig gefinn lýðræðislegur vettvangur til að tala um breytingarnar og hvernig þær snerta það og æskilegt er að nokkrir hagsmunaaðilar hafi stutta framsögu um breytingarnar og hvernig þeir sjái framtíðina fyrir sér. Fyrirkomulag og skipulag fundarins verður í höndum þess starfsfólks sem áður hefur skipulagt samskonar borgarafundi og skrifstofu borgarstjóra og borgarritara er falið að halda utan um þennan lýðræðislega borgarafund.

    Frestað. MSS26090012

  25. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Í svari við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um niðurlagningu samskiptaskrifstofu kemur fram að einu verkefni hafi verið útvistað. Hvaða verkefni er það? Hvaða fyrirtæki sér um það verkefni?

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26080045

  26. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Óskað er eftir upplýsingum um starfslýsingar þeirra starfa sem eru upplistuð í yfirliti um fækkun stöðugilda á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði dagsett 1. september 2026.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26080087

  27. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagsráði að láta vinna viðmið um þau atriði sem þurfi að koma fram í rökstuðningi fyrir fjölda bílastæða ef hann er hærri en viðmiðunargildi. Þessi viðmið skulu vera hluti af nýjum reglum um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.

    Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. USK26090012

  28. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir upplýsingum um eftirfarandi: A. Stöðu á leigusamningi Hjólabúa um svæðið að Sævarhöfða 31. Hefur Reykjavíkurborg sagt samningnum upp? Ef uppsögn hefur farið fram er óskað upplýsinga og gagna um uppsögnina, hver sagði samningnum upp og á hvaða grundvelli? Jafnframt er óskað upplýsinga um það hvort heimildar hafi aflað fyrir uppsögninni hjá umhverfis- og skipulagsráði eða borgarráði? B. Gögnum um kostnaðarmatið sem umhverfis- og skipulagssvið gerði við að koma upp svæði fyrir hjólabúa í Gufunesi. Hvenær var kostnaðarmatið unnið og hvaða forsendur voru gefnar fyrir upphæðinni 50-100 milljónir? Tekur það kostnaðarmat til greina að kostnaður við rekstur og viðhald myndi ekki falla á borgina samkvæmt afnotasamningnum? C. Gögnum um rekstarsamning við Farfugla um tjaldsvæðið í Laugardalnum. Hvenær var hann undirritaður og til hve langs tíma? Jafnframt er beðið um upplýsingar hvernig staðið var að auglýsingu á rekstrinum þegar síðasti samningur rann út. D. Gögnum um útlagðan kostnað borgarinnar varðandi hjólabúa. Annars vegar hve mikið var greitt fyrir leigusamning í Laugardalnum og hve háu hlutfalli af þeirri upphæð var mætt með leigu hjólabúa. Hins vegar hve mikið var greitt fyrir rafmagnskostnað á Sævarhöfða og hve háu hlutfalli af þeirri upphæð var mætt með leigu hjólabúa. Jafnframt er beðið um upplýsingar ef leiga mætti ekki kostnaði hvernig samskipti voru við hjólabúa um að hækka leigu til að mæta kostnaði. MSS26080046

  29. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Á fundi borgarráðs 3 september var lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um niðurlagningu samskiptaskrifstofu. Í framhaldi af þeim upplýsingum sem fram koma í svarinu er óskað eftir eftirfarandi upplýsingum. A. Hvaða verkefni í upplýsingagjöf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara var útvistað, hvernig var staðið að útboðinu og hver eða hvaða fyrirtæki sinnir verkefninu? Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um kostnað útboðsins. B. Hve lengi stendur tímabundna ráðningin á þeim starfsmanni sem ráðinn hefur verið nýr inn á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara? Óskað er eftir starfslýsingu starfsmannsins og upplýsingum um launakostnað.

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26080045

  30. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Á fundi borgarráðs 3. september var lagt fram yfirlit yfir fækkun stöðugilda á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði. Í framhaldi af því svari er óskað eftir eftirfarandi upplýsingum: A. Hversu margir af þeim 23 sem voru boðin ný störf þáðu boðið? B. Hafa einhverjir sagt upp störfum á velferðarsviði, skóla- og frístundasviði eða í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum eða félagsmiðstöðvum í kjölfar stjórnkerfisbreytinganna? Ef svo er hversu margir og hvaða starfstitla báru þau? C. Hefur einhver umfram þau 23 sem tilgreind voru í tillögunni fengið boð um starf, eða verið beðinn um að vinna tímabundið? D. Hversu mörgum var boðið upp á að vinna upp uppsagnarfrestinn, að undanskildum þeim sem starfa í alþjóðateymi?

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26080087

  31. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir stöðumati á þeim 10 verkefnum sem eru á ábyrgð Reykjavíkurborgar og þeim 3 verkefnum sem eru á ábyrgð Skógræktarfélags Reykjavíkur samkvæmt áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins 2027-2030. MSS26080095

  32. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir yfirliti yfir skólahúsnæði borgarinnar eftir eignarhaldi, þ.e. hvaða húsnæði er í eigu borgarinnar og hvaða húsnæði borgin leigir af eiganda. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hver kostnaður er fyrir leigu eða rekstur hvers húsnæðis var annars vegar árið 2024 og hins vegar 2025. MSS26090013

Fundi slitið kl. 11:13

Björg Magnúsdóttir Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Einar Þorsteinsson

Heiða Björg Hilmisdóttir Pétur Hafliði Marteinsson

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 3. september 2026 - Prentvæn útgáfa