Borgarráð - Fundur nr. 5834

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 27. ágúst, var haldinn 5834 fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Róbert Ragnarsson. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. ágúst 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 19. ágúst 2026 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna skilgreiningar nýrra lóða við Nauthólsveg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. Breytingin felur meðal annars í sér að skilgreindar eru lóðir fyrir starfsemi og búnað sem tengjast áframhaldandi rekstri flugvallarins. Ljóst er að Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð, þar sem enn hefur ekki verið fundin viðeigandi staðsetning á nýjum flugvelli. Því er mikilvægt að skipulag svæðisins taki mið af þessari staðreynd og skapi nauðsynlegar forsendur fyrir öruggum og hagkvæmum rekstri flugvallarins á meðan svo er. Jafnframt er mikilvægt að nauðsynleg uppbygging og viðhald innviða geti átt sér stað með eðlilegum hætti.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar árétta að deiliskipulagsbreytingar og afmörkun nýrra tæknilóða við Nauthólsveg eru bráðabirgðaráðstafanir sem lúta eingöngu að öryggi og rekstri flugvallarins á meðan hann starfar í Vatnsmýri. Lögð er áhersla á að afmörkun lóðanna skerði á engan hátt fyrirhugaða uppbyggingu Borgarlínu, göngu- og hjólastíga né þá samfélagsþjónustu og lífsgæðakjarna sem áformað er að rísi við Nauthólsveg 50-52. Minnt er á skýr ákvæði um að lóðarréttindi og heimildir undir búnaðinn falla niður þegar hann verður fjarlægður.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25090065

    Fylgigögn

  2. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 26. ágúst 2026, að útgáfuáætlun skuldabréfa á seinni hluta árs 2026, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    -    Kl. 9:20 tekur Heiða Björg Hilmisdóttir sæti á fundinum.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þótt framlögð tillaga varði einungis samþykki á dagsetningum fyrir skuldabréfaútboð seinni hluta ársins 2026, minna meðfylgjandi gögn um lántökuplan borgarsjóðs á þá þungbæru vaxtabyrði sem borgin ber í ríkjandi hávaxta- og verðbólguumhverfi íslensku krónunnar. Greinargerðin og umræður fundarins draga skýrt fram þann sértæka kostnað sem hlýst af því að starfa í krónuumhverfi: Þegar borgin sækir afar hagkvæma evruvexti til Þróunarbanka Evrópuráðsins (CEB) vegna viðhalds í skólum og frístundahúsnæði, neyðist hún til að breyta lánunum aftur í krónur með rándýrum vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningum. Í þeim afleiðusamningum étur hávaxtaumhverfið upp hagkvæmni erlendu lánanna. Sögulegur vaxtamunur milli Íslands og evrusvæðisins kostar A-hluta borgarsjóðs marga milljarða króna árlega í töpuðum tækifærum – fjármuni sem nýtast ættu í grunnþjónustu, skóla og velferð eða jafnvel til að borga niður lánin. Samfylkingin undirstrikar mikilvægi þess að gætt sé ýtrasta gagnsæis og varfærni um heildarkostnað afleiðusamninga þegar frekari ádrættir á CEB-láninu fara fram. Það er því ljóst að samningaviðræður við ESB um hugsanlega inngöngu geta haft bein áhrif á rekstur borgarinnar. Í þessu samhengi vill Samfylkingin minna á að tillaga okkar í borgarstjórn um að láta kanna sérstaklega áhrif og mögulegan ábata af evruumhverfi á fjármagnskostnað og hagsmuni Reykjavíkurborgar var því miður felld af meirihlutanum.

    Halldóra Káradóttir og Bjarki Rafn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010004

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 19. ágúst 2026, sbr. samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs frá 17. ágúst 2026 á tillögu um tímabundna lokun Hagaborgar og flutning barna og starfsfólks úr Hagaborg yfir í Grandaborg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn fagnar því að starfsfólk og nemendur Hagaborgar séu komin í nýuppgert húsnæði Grandaborgar. Besta mögulega niðurstaða þegar kemur að því að leysa húsnæðisvandamál leikskóla er að hægt sé að halda áfram starfsemi innan hverfis og í þessu tilfelli hefur það tekist.

    Steinn Jóhansson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26080009

    Fylgigögn

  4. Lagt fram að nýju bréf velferðarsviðs, dags. 4. mars 2026, um útboð á framleiðleiðslu máltíða sem samþykkt var á fundi borgarráðs 5. mars 2026 og fært var í trúnaðarbók. VEL26020039

    Fylgigögn

  5. Lagt fram að nýju bréf velferðarsviðs, dags. 18. mars 2026, um rekstur Droplaugarstaða og dagdvalar sem samþykkt var á fundi borgarráðs 20. ágúst 2026 og fært var í trúnaðarbók. VEL26080033

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Eðlilegt er að taka upp viðræður við ríkið um breytt rekstrarfyrirkomulag Droplaugarstaða og það hefur oft komið til umræðu. Mikilvægt er í því sambandi að tryggja samfellda góða þjónustu fyrir íbúa samhliða því að eiga gott samráð við starfsfólk og standa vörð um réttindi þess.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins lagði fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Eðlilegt er að fara í viðræður við ríkið um þessi mál en fulltrúi Vinstrisins telur mikilvægt að leitast við að senda út skýr skilaboð um að einkaaðili með hagnaðarkröfu komi ekki að rekstrinum. Mikilvægt er að lokaniðurstaða komi til staðfestingar velferðarráðs.

    Fylgigögn

  6. Fram fer umræða um húsnæðismál kaffistofu Samhjálpar. USK26080100

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna brýnni og góðri umræðu í borgarráði um framtíð Kaffistofu Samhjálpar. Í ljósi þess hversu staðan er alvarleg og hve viðkvæmur hópur á í hlut, er óviðunandi að nokkurt þjónusturof verði. Skjólstæðingar Kaffistofunnar treysta á þessa nauðsynlegu grunnþjónustu á hverjum einasta degi. Reykjavíkurborg verður að sýna samfélagslega ábyrgð í verki og tryggja tafarlausar tímabundnar lausnir á meðan unnið er að varanlegu húsnæði. Velferð, mannúð og öryggisnet þeirra sem höllum fæti standa verða alltaf að vera í fyrsta sæti.

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 25. ágúst 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar um skipan eftirfarandi varamanna í stjórn endurskoðunarnefndar. Á fundi borgarráðs 20. ágúst sl. voru aðalmenn tilnefndir en kjöri varamanna frestað. Lagt er til að eftirfarandi verði skipaðir varamenn: Brynjólfur Magnússon, Danielle Pamela Neben og Ingi K. Magnússon

    Samþykkt. MSS26080028

    Fylgigögn

  8. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um hávaða við leik- og grunnskóla, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. júlí 2026. Jafnframt lagt fram svar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 21. ágúst 2026. MSS26070048

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Framlagðar upplýsingar og aðgerðaáætlun gegn hávaða í Reykjavík, sem lögð var fram og samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði þann 24. júní síðastliðinn (mál USK24090025), sýna svo ekki verður um villst að hljóðvist og loftgæði eru á meðal stærstu lýðheilsumála í nútímalegri mannlífsborg. Það er sérstaklega alvarlegt þegar hávaðamengun frá umferð fer yfir viðmiðunarmörk (55-60 dB) á svæðum við leik- og grunnskóla þar sem börn eyða stórum hluta dagsins. Stöðugur hávaði í leik- og námsumhverfi getur skert heilsu og lífsgæði barna. Einkabíllinn, hraði og nagladekk eru fílarnir í herberginu þegar kemur að hávaðamengun. Það er óásættanlegt að hunsa ákall um betri hljóðvist og vísa á lausnir eftir áratug. Aðgerðaáætlun borgarinnar staðfestir að tafarlausar aðgerðir eins og hraðalækkanir um 10-20 km/klst., fækkun nagladekkja, uppsetning hljóðveggja og bættar hljóðvarnir skila árangri. Samfylkingin ítrekar að setja verður heilsu, öryggi og velferð skólabarna sem og allra borgarbúa í fyrsta sæti og fylgja samþykktri aðgerðaáætlun eftir af festu með því að grípa þegar í stað til þeirra tóla og aðgerða sem við höfum til að bæta hljóðvist í borginni.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 20. ágúst 2026. MSS26010007

    Fylgigögn

  10. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 21. ágúst 2026. MSS26010008

    Fylgigögn

  11. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 26. ágúst 2026.
    6. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  12. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls níu mál (MSS26010013, MSS26010013, USK26080272, MSS26080086, MSS22010225, MSS24100050, USK26080273, MSS26080094, USK26080273). MSS26080014

    Fylgigögn

  13. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26060130

    Fylgigögn

  14. Lögð fram jafnréttisskimun Reykjavíkurborgar, dags. 25. ágúst 2026, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á breyttu stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að jafnréttisskimun hafi verið látin fylgja fundargerð síðasta fundar þegar öllum sem sátu þann fund var ljóst að ekki var búið að jafnréttismeta þessar stórfelldu breytingar. Einnig eru gerðar athugasemdir við jafnréttisskimun við breytingar á velferðarsviði þar sem öllum er ljóst að þessar breytingar koma niður á þjónustu við viðkvæma hópa. Breytingar á skóla- og frístundasviði eru einnig umfangsmiklar og munu fyrst og fremst bitna á börnum sem þurfa stuðning í skóla, eru félagslega einangruð, ásamt því að frístunda- og félagsstarf er nú í lausu lofti. Farið er fram á að jafnréttismat verði gert og þar sem greind verði áhrif þessar breytinga á þjónustu við einstaka hópa, þjónustuáætlun um hvernig eigi að tryggja að ekki verði rof í þjónustu ásamt áhættumati. Það er forkastanlegt að farið sé í svo viðamiklar breytingar án þess að áhrif séu greind áður og að slík gögn liggi fyrir.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Á aukafundi borgarráðs 25. ágúst lá jafnréttisskimun ekki fyrir og spurði fulltrúi Vinstrisins út í það hvort að jafnréttisskimun þyrfti ekki að fylgja með tillögu meirihlutans um breytt stjórnskipulag velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Slíkt mótaði umræðuna um tillöguna og taka bókanir mið af því. Eftir fundinn kom fram að jafnréttisskimunin myndi fylgja með fundargerð borgarráðs til upplýsingar en ekki vera formlega lögð fram. Í jafnréttisskimun stendur að um sé að ræða víðtækar skipulagsbreytingar í skóla- og frístundaþjónustu og velferðarþjónustu sem snúi ekki að einstökum markhópum. Fulltrúi Vinstrisins áréttar að ljóst er að tillagan snýr að fjölbreyttum markhópum og eðlilegt hefði verið að greina tillöguna út frá stöðu þeirra fjölbreyttu hópa sem hér eru undir. Ekki gafst færi á því að spyrja út í niðurstöður jafnréttisskimunarinnar áður en umfangsmikla tillagan var afgreidd. Ljóst er að gagnið hefði átt að liggja fyrir áður en ákvörðun var tekin þar sem jafnréttisskimun á að taka saman mat á áhrifum tillögunnar á jafnrétti kynjanna og/eða jaðarsetta hópa. Skimunin fjallar ekki um áhrif á íbúa sem stóla á þjónustuna sem mun taka miklum breytingum. Ljóst er að tillagan hefur víðtækar afleiðingar á jaðarsetta hópa og hefði skimunin átt að fylgja með áður en málið var afgreitt.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands gagnrýnir harðlega að jafnréttisskimun um stjórnskipulagsbreytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði fylgdi ekki með þegar breytingarnar voru til afgreiðslu. Jafnframt er gagnrýnt að jafnréttisskimun var látin fylgja síðustu fundargerð sem fylgiskjal þar sem hún lá ekki fyrir þeim fundi. Þrátt fyrir að skimunin væri ekki í formlegri fundargerð verður að teljast misvísandi að láta hana fylgja með á rafrænu fundargerðargáttinni. Auk þess er jafnréttisskimunin ófullnægjandi þar sem tekið er fram að tillagan eigi ekki að hafa áhrif á sérstaka markhópa sem stenst ekki skoðun. Breytt staðsetning á þjónustunni mun án efa hafa áhrif á ákveðna markhópa sem hafa sótt þjónustu á hverfismiðstöðum. Til dæmis mun aðgengi heimilislausra sem dveljast miðsvæðis skerðast við það að þjónustan sé veitt í Bíldshöfða. Þetta gagn hefði átt að fylgja með tillögunni en borgarfulltrúar fengu ekki tækifæri til að spyrja um innihald hennar fyrr en nú, tveimur dögum eftir samþykkt og án aðkomu sviðsstjóra velferðarsviðs sem hefði getað svarað spurningum um jafnréttisskimunina.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:

    Borgarráð samþykkir að fela velferðarsviði og umhverfis- og skipulagssviði, í samstarfi við Samhjálp, að tryggja að ekkert þjónusturof verði á starfsemi Kaffistofu Samhjálpar vegna stöðunnar sem upp er komin. Verði endanleg eða hentug tímabundin lausn á almennum húsnæðismarkaði ekki tilbúin áður en starfsemi á Grensásvegi þarf að hætta, verði Samhjálp boðin tímabundin aðstaða í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir neyðar- og kaffistofuþjónustu sína þar til varanlegt húsnæði er tilbúið til notkunar. USK26080100

    Frestað.

  16. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:

    Samfylkingin leggur til að utanaðkomandi aðili verði fenginn til að gera jafnréttis- og mannréttindamat á þeim viðamiklu breytingum sem meirihluti borgarráðs samþykkti á starfsemi velferðar- og skóla- og frístundasviðs. Sérstaklega verði metin áhrif á viðkvæma hópa til að mynda fólk í félagslegri einangrun, fólk í úrræðum virknihúss, sértæk úrræði fyrir unglinga í vanda, fatlað fólk, börn sem þurfa stuðning inn í skóla, fjölskyldur með fjölþættan stuðning, eldra fólk, fólk með erlendan bakgrunn, flóttafólk og svo framvegis. Ljóst er að aðgerðirnar ná til um 400 starfsfólks og þúsunda íbúa Reykjavíkur sem þurfa á þjónustunni að halda. Jafnréttismat er því mikilvægt og umfangsmikið. MSS26080087

    Frestað. 

  17. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:

    Samfylkingin leggur til að gert verði áhættumat á þeim breytingum sem meirihluti borgarráðs samþykkti á starfsemi velferðar- og skóla- og frístundasviðs. Meta þarf áhættu á þjónustufalli í þjónustu frístunda- og félagsstarfs, þjónustu við viðkvæma hópa, til að mynda fólk í félagslegri einangrun, fólk í úrræðum virknihúss, sértæk úrræði fyrir unglinga í vanda, fatlað fólk, börn sem þurfa stuðning inn í skóla, fjölskyldur með fjölþættan stuðning, eldra fólk og svo aðra slíka hópa. MSS26080087

    Frestað. 

  18. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:

    Samfylkingin leggur til að álag á starfsfólk verði metið og tryggt verði að starfsfólki verði tryggður fullnægjandi stuðningur til að takast á við þær óvæntu og skyndilegu breytingar sem meirihlutinn dembdi yfir starfsemina með ákvörðunum sínum í borgarráði. 86 stöðugildi voru lögð niður og augljóst að slíkt felur í sér gríðarlegt álag á starfsfólk og starfsemi alla. MSS26080087

    Frestað. 

  19. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:

    Í jafnréttisskimun um tillögu meirihlutans um breytt stjórnskipulag velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs sem barst að fundi loknum, eftir að málið hafði verið afgreitt, kemur fram að um sé að ræða víðtækar skipulagsbreytingar í skóla- og frístundaþjónustu og velferðarþjónustu sem snúi ekki að einstökum markhópum. Ljóst er að þessar breytingar snerta fjölmarga ólíka hópa með fjölbreytta félagslega stöðu. Hvernig varð niðurstaðan sú að þessar umfangsmiklu breytingar snúi ekki að einstaka markhópum? Hvernig fór skimunin fram með tilliti til ólíkra þarfa borgarbúa? MSS26080087

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

Fundi slitið kl. 10:30

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Heiða Björg Hilmisdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Róbert Ragnarsson

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 27.8.26 prentvæn útgáfa