Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 20. ágúst, var haldinn 5832. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson, Theódór Kjartansson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram að nýju bréf borgarstjóra, dags. 11. ágúst 2026, þar sem fyrsta útgáfa stjórnskipunaráætlunar aðgerðarstjórnar á höfuðborgarsvæðinu er lögð fram til kynningar ásamt fylgiskjölum, sbr. 13. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. ágúst 2026.
- Kl. 9:06 tekur borgarstjóri sæti á fundinum.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins þakka góða kynningu á stjórnskipulagsáætlun aðgerðarstjórnar á höfuðborgarsvæðinu. Gott er að sjá að öll umgjörð aðgerðarstjórnar er í föstum skorðum en sætir þó reglubundinni rýni.
Ásgeir Þór Ásgeirsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26060048
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 12. ágúst 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 12. ágúst 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna lóðarinnar nr. 2 við Sundabakka, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Samfylkingin fagnar þessari breytingu á deiliskipulagi í Vatnagörðum vegna nýrrar dreifistöðvar Veitna, sem er mikilvægt skref í átt að grænum orkuskiptum. Þó svo að ekki hafi farið mikið fyrir loftslagsmálum hjá nýjum meirihluta þá eru þau enn sem áður stærsta viðfangsefni okkar. Ef Reykjavík á að vera í fararbroddi í loftslagsmálum verða innviðirnir að fylgja. Styrking raforkukerfisins er forsenda þess að ná fram orkuskiptum við höfnina, draga úr brennslu jarðefnaeldsneytis og flýta fyrir grænum samgöngum. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að málið hljóti vandaða kynningu í ferlinu og að hlustað verði á ábendingar hagsmunaaðila á svæðinu. Öflugt íbúalýðræði, gagnsæi og grænir framtíðarinnviðir verða alltaf að haldast í hendur.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26020277
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. ágúst 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 19. ágúst 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráð samþykkir einróma breytingu á deiliskipulagi við Hofteig og Kirkjuteig. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar því að tryggja eigi öryggi gangandi vegfarenda í kringum Laugarnesskóla og skólaþorpið og bendir á að mikilvægt sé að þessar breytingar komist til framkvæmdar sem fyrst þar sem að ítrekað hafa orðið árekstrar og slys á Reykjavegi þegar nemendur í Laugarnesskóla eru að ganga eða hjóla til og frá skóla. Nýlega fluttist stór hluti nemenda skólans í skólaþorpið og fleiri nemendur munu flytja þangað á næstu mánuðum og það er gott að sjá að með þessum breytingum er verið að tengja skólaþorpið betur við Teigana. Ánægjulegt er að sjá hvernig tekið hefur verið tillit til hjólandi, en mjög margir hjólandi vegfarendur nýta þessi tvö gatnamót sem um ræðir.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Öryggi gangandi vegfarenda, og ekki síst skólabarna við Laugarnesskóla, á alltaf að vera í forgangi og mikilvægt er að tryggja greitt og öruggt aðgengi gangandi og hjólandi. Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að tillagan hafi verið samþykkt.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26040131
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að afsala ríkissjóði Íslands 30% eignarhlut sveitarfélagsins í fasteigninni Suðurlandsbraut 66, Reykjavík, F2298369, ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Um er að ræða yfirfærslu eigna frá borg til ríkis sem nemur hátt í milljarði króna og er liður í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga vegna kjarasamninga við kennara frá árinu 2025. Annar liður í því samkomulagi var yfirfærsla á þjónustu við börn með fjölþættan vanda frá sveitarfélögum til ríkis, en ríkið hefur nú tekið þá einhliða ákvörðun að taka málaflokkinn ekki yfir að fullu heldur skilja sveitarfélögin eftir með mikinn kostnað, en sá kostnaður sem fellur til hjá Reykjavíkurborg nemur um milljarði. Telur meirihlutinn vont að fyrrum borgarstjóri hafi undirritað fyrirliggjandi afsal vegna yfirfærslu hjúkrunarheimila án samþykkis borgarráðs, enda felur yfirfærslan í sér gríðarleg verðmæti sem borgin afsalar sér til ríkisins – án þess að ríkið standi við sinn hluta samkomulagsins sem snýr að börnum með fjölþættan vanda. Mikilvægt er í öllum samningum við ríkið að borgaryfirvöld gæti hagsmuna Reykvíkinga í hvívetna.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að núverandi ríkisstjórn hefur á undanförnum misserum stigið stór skref og tryggt umtalsvert nýtt fjármagn inn í þjónustu við börn með fjölþættan vanda – kostnað sem áður var alfarið á herðum sveitarfélaganna. Sögulegt samkomulag náðist í mars 2025 um að ríkið tæki yfir fjármögnun málaflokks barna með fjölþættan vanda. Hins vegar er ljóst að væntingum sveitarfélaganna hefur ekki verið mætt að fullu. Það þarf að leiða í jörð hið fyrsta.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080149
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að afsala ríkissjóði Íslands 15% eignarhlut sveitarfélagsins í fasteigninni Sléttuvegi 25, Reykjavík, F2328041, ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Um er að ræða yfirfærslu eigna frá borg til ríkis sem nemur hátt í milljarði króna og er liður í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga vegna kjarasamninga við kennara frá árinu 2025. Annar liður í því samkomulagi var yfirfærsla á þjónustu við börn með fjölþættan vanda frá sveitarfélögum til ríkis, en ríkið hefur nú tekið þá einhliða ákvörðun að taka málaflokkinn ekki yfir að fullu heldur skilja sveitarfélögin eftir með mikinn kostnað, en sá kostnaður sem fellur til hjá Reykjavíkurborg nemur um milljarði. Telur meirihlutinn vont að fyrrum borgarstjóri hafi undirritað fyrirliggjandi afsal vegna yfirfærslu hjúkrunarheimila án samþykkis borgarráðs, enda felur yfirfærslan í sér gríðarleg verðmæti sem borgin afsalar sér til ríkisins – án þess að ríkið standi við sinn hluta samkomulagsins sem snýr að börnum með fjölþættan vanda. Mikilvægt er í öllum samningum við ríkið að borgaryfirvöld gæti hagsmuna Reykvíkinga í hvívetna.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að núverandi ríkisstjórn hefur á undanförnum misserum stigið stór skref og tryggt umtalsvert nýtt fjármagn inn í þjónustu við börn með fjölþættan vanda – kostnað sem áður var alfarið á herðum sveitarfélaganna. Sögulegt samkomulag náðist í mars 2025 um að ríkið tæki yfir fjármögnun málaflokks barna með fjölþættan vanda. Hins vegar er ljóst að væntingum sveitarfélaganna hefur ekki verið mætt að fullu. Það þarf að leiða í jörð hið fyrsta.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080153
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á hugmyndum varðandi Hafnarstrætisreit.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26070174
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. ágúst 2026, varðandi minnisblað um samning Brúar lífeyrissjóðs og íslenska ríkisins um uppgjör á svokölluðum LV-skuldabréfum, ásamt fylgiskjölum.
Halldóra Káradóttir, Gerður Guðjónsdóttir og Gunnar Viðar taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS25120034
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 17. ágúst 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 13. ágúst 2026, á tillögu um breytingar á gjaldskrá veitinga og fæðis, ásamt fylgiskjölum.
Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga borgarráðs- og áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fresta afgreiðslu á samþykkt velferðarráðs um breytingar á gjaldskrá veitinga og fæðis dags. 17. ágúst 2026 og vísa málinu til umfjöllunar stýrihóps um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu áður en það kemur til endanlegrar afgreiðslu. Jafnframt er lagt til að samhliða verði leitað umsagnar öldungaráðs Reykjavíkur og skal umsögn ráðsins lögð fram í borgarráði.
Greinargerð fylgir málsmeðferðartillögunni.
Samþykkt að vísa málsmeðferðartillögu borgarráðs- og áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Miðflokksins.
Samþykkt velferðarráðs frá 13. ágúst 2026, á tillögu um breytingar á gjaldskrá veitinga og fæðis er samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Miðflokksins. Jafnframt er samþykkt að fela velferðarsviði að sameina afgreiðslur borgarráðs varðandi breytingar á gjaldskránni við frágang og birtingu hennar.
Málið er fullnaðarafgreitt á vettvangi borgarráðs með vísan til ákvæða 3. mgr. 48 gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Síðasti meirihluti skildi matarþjónustu velferðarsviðs eftir í algjöru uppnámi með því að vanfjármagna samning um matarþjónustu í fjárhagsáætlun. Samningurinn við Krydd og kavíar kostar um 560 milljónir króna á ári en aðeins um 260 milljónir voru settar í verkefnið. Fjármagnið kláraðist í mars. Frekar en að tryggja þá fulla fjármögnun hækkaði fyrri meirihluti gjaldskrána lítillega, þótt ljóst væri að sú hækkun myndi ekki duga út árið. Forsagan er alvarleg. Heilbrigðiseftirlitið gerði athugasemdir við eldhúsið á Vitatorgi árið 2023, ástandið var enn óviðunandi árið 2025 og í febrúar 2026 greindist listería og loka þurfti eldhúsinu. Í kjölfarið þurfti að færa framleiðsluna til sérhæfðs aðila sem uppfyllir ýtrustu kröfur um matvælaöryggi, með tilheyrandi kostnaðarauka. Til að tryggja eldra fólki áfram góða og örugga matarþjónustu verðum við nú að koma henni á traustan fjárhagslegan grunn. Samanlagt er þjónusta velferðarsviðs þegar komin á annan milljarð króna fram úr fjárhagsáætlun fyrri meirihluta. Við þessar aðstæður er hækkun gjaldskrár óhjákvæmileg. Þrátt fyrir hækkunina verður heimsend máltíð í Reykjavík áfram ódýrari en í Kópavogi og Garðabæ. Jafnframt verður sérstaklega gætt að þeim sem minnst hafa milli handanna. Því verður lagt til að tekjulágir notendur greiði 1.500 kr. í stað 1.900 kr. Markmiðið er að fjárhagsstaða fólks verði ekki hindrun í að nýta þessa mikilvægu þjónustu.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillagan boðar gríðarlega hækkun á matarverði til skjólstæðinga velferðarþjónustunnar í borginni. Hækkanirnar eru fram úr hófi með allt að 73% hækkun á hádegismat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum fyrir lífeyrisþega. Ný tillaga borgarstjóra dregur úr hækkuninni fyrir tekjulága sem er vel, en hækkunin á þann hóp er samt óhófleg eða rúmlega 36% sem er nær sjöföld hækkun umfram verðbólgu. Hún leysir því ekki úr viðkvæmu máli sem kallar á mun betri greiningar eins og kemur fram í breytingatillögu Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokksins. Gjaldskrárhækkanir af þessari stærðargráðu eru líka alvarlegt innlegg í viðkvæma stöðu vaxtahækkana og kjarasamninga á vinnumarkaði, þar sem borgaryfirvöld hétu því á sínum tíma að halda gjaldskrárhækkunum innan hóflegra marka á fjögurra ára samningstíma gildandi kjarasamninga sem eru í gildi til 2028. Hádegismaturinn í félagsmiðstöðvum eldra fólks er mikilvæg samverustund sem eflir bæði lýðheilsu og félagslega virkni. Þessi ákvörðun undirstrikar hugmyndafræði hægrimeirihlutans undir stjórn Sjálfstæðisflokksins sem hikar ekki við að velta stórauknum byrðum á eldra fólk og viðkvæma notendur velferðarþjónustunnar. Samfylkingin hafnar þeirri hörðu hægri pólitík enda nauðsynlegt að standa dyggan vörð um hagsmuni heimilanna, ekki síst viðkvæmra hópa, sem þurfa að treysta á velferðarþjónustu borgarinnar.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Ljóst er að vinna þarf þetta betur. Fyrst samþykkti meirihlutinn í velferðarráði verulega hækkun, allt að 800 krónur á máltíð. Nú leggur meirihlutinn til að aðilar undir ákveðnu tekjuviðmiði greiði 1.500 kr. fyrir máltíð í stað 1.900 kr. Ekki liggur fyrir hversu stór hluti myndi falla þar undir þar sem eftir á að útfæra tekjuviðmið, fyrirkomulag staðfestingar tekna og framkvæmd niðurgreiðslunnar. Ólíklegt er að það klárist innan þess tímaramma sem er gefinn upp þar sem nú er miðað við að ný gjaldskrá taki gildi 1. september. Ljóst er að kostnaður vegna máltíðaþjónustu hefur hækkað og nauðsynlegt er að finna leiðir til að mæta þeim kostnaði. Fulltrúi Vinstrisins hefði vilja fara aðrar leiðir til að leitast við að fjármagna kostnað máltíðaþjónustunnar og lögðu fulltrúar minnihlutans í borgarráði til að vísa málinu til hagræðingarhóps borgarinnar með það að leiðarljósi að rýna hvort nýta megi fjárhagslegt svigrúm vegna hagræðingaraðgerða til þess að mæta kostnaði velferðarsviðs vegna þeirra útgjalda sem eru utan fjárheimilda. Jafnframt var lagt til að samhliða yrði leitað umsagnar öldungaráðs Reykjavíkur en því var hafnað. Góð næring er ein af grunnforsendum heilsu og vellíðunar og tryggja þarf að allir Reykvíkingar hafi aðgang að næringarríkum máltíðum alla daga.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands mótmælir harðlega fyrirhuguðum gjaldskrárhækkunum máltíða sem verður sú seinni á árinu. Ef miðað er við verð máltíða í upphafi árs er um að ræða 88% hækkun á verði fyrir lífeyrisþega og 36% fyrir aðra. Jafnframt er gagnrýnd hærri hækkun bæði hlutfallslega og í krónutölum á lífeyrisþega miðað við aðra. Þessar gífurlegu hækkanir eru brot á markmiðum kjarasamninga um að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf til að stuðla að lækkun verðbólgu, en sérstaklega var kveðið á um hóf í gjaldskrám sem varðar fólk í viðkvæmri stöðu rétt eins og lífeyrisþega sem geta ekki matreitt sjálfir eru. Bent er á að eini rökstuðningurinn fyrir hækkun gjaldskrárinnar er aukinn kostnaður við kaup á máltíðum frá þriðja aðila. Furðulegt er því að seinni tillögur hvetja til aukinnar útvistunar þar sem bersýnilegt er að slíkt er ekki hagkvæmara. Vissulega þarf aukin fjárútlát til að koma Vitatorgi aftur í ásættanlega stöðu en sú fjárfesting mun borga sig til baka í ljósi þess að sögulega hefur verð á þjónustu sem hefur verið útvistað hækkað gífurlega til að mæta rekstrarkostnaði og arðsemiskröfu einkafyrirtækja. Að lokum er bent á þá hræsni sem felst í því að verðleggja máltíðir lífeyrisþega helmingi hærra en máltíðir starfsfólks Reykjavíkurborgar.
Berglind Magnúsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26080004
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra, dags. 19. ágúst 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að notendur matarþjónustu Reykjavíkurborgar sem hafa tekjur undir nánar skilgreindu tekjuviðmiði greiði 1.500 kr. fyrir máltíð í stað 1.900 kr. Lægra gjaldið gildi óháð því hvort máltíðar er neytt í félagsmiðstöð eða þjónustuíbúðum eða hún heimsend. Velferðarsviði verði falið að útfæra tekjuviðmið, fyrirkomulag staðfestingar tekna og framkvæmd niðurgreiðslunnar. Endanlegt kostnaðarmat og tillaga að fjármögnun verði lögð fyrir borgarráð þegar útfærslan liggur fyrir. Lægra gjaldið taki gildi eins fljótt og kostur er að lokinni nauðsynlegri kerfis- og stjórnsýsluútfærslu.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Borgarráð felur velferðarsviði að sameina afgreiðslur borgarráðs varðandi breytingar á gjaldskránni við frágang og birtingu hennar. VEL26080004Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 17. ágúst 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 13. ágúst 2026, á tillögu um breytingu áforma um endurbætur á framleiðslueldhúsi, ásamt fylgiskjölum.
Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga borgarráðs- og áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fresta afgreiðslu á samþykkt velferðarráðs um breytingu áforma um endurbætur á framleiðslueldhúsi dags. 17. ágúst 2026 og vísi málinu til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs og velferðarsviðs sem skulu vinna greiningu á áhrifum útvistunar á þjónustustig, verðlag og kostnað fyrir borgina til lengri tíma. Greiningin skal liggja fyrir áður en málið kemur til endanlegrar afgreiðslu.
Samþykkt að vísa málsmeðferðartillögu borgarráðs- og áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Miðflokksins.
Samþykkt velferðarráðs frá 13. ágúst 2026 á tillögu um breytingar á gjaldskrá veitinga og fæðis er samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Miðflokksins.
Málið er fullnaðarafgreitt á vettvangi borgarráðs með vísan til ákvæða 3. mgr. 48 gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn telur ekki forsvaranlegt að Reykjavíkurborg verji að lágmarki 500 milljónum króna í endurbætur á framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi þegar fyrir liggur að rekstur þess hefur verið bæði erfiður og óhagkvæmur um árabil. Eldhúsið fór 117 m.kr. fram úr fjárheimild árið 2023, 42 m.kr. árið 2024 og 69 m.kr. árið 2025. Þá liggur fyrir það mat velferðarsviðs, að undangenginni yfirferð á matvælaöryggi, mönnun, rekstri, þjónustugæðum og fjárhag, að framleiðsla máltíða sé betur komin hjá sérhæfðu fyrirtæki á matvælamarkaði sem uppfyllir kröfur HACCP III matvælaöryggiskerfisins. Það væri því óskynsamlegt að ráðast nú í tæplega hálfs milljarðs króna fjárfestingu í nýju framleiðslueldhúsi, ekki síst þegar framkvæmdum yrði í fyrsta lagi lokið um mitt ár 2028. Hlutverk borgarinnar er fyrst og fremst að tryggja eldra fólki örugga og góða matarþjónustu, ekki að reka framleiðslueldhús. Með þessari ákvörðun er komið í veg fyrir veruleg fjárútlát og áherslan lögð á að því að tryggja gæði þjónustunnar og koma matarþjónustunni á traustan og sjálfbæran fjárhagslegan grunn.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja ríka áherslu á að gæði matar og þjónustu, næringargildi og velferð skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi í matarþjónustu við lífeyrisþega og fatlað fólk. Reykjavíkurborg hefur mótað vandaða matarstefnu sem mikilvægt er að fylgja óháð rekstrarformi og skipulagi matarþjónustunnar. Hér er horfið frá áður samþykktum áformum um uppbyggingu á Vitatorgi án þess að fyrir liggi heildstæð, samanburðarhæf greining á kostum og göllum ólíkra rekstrarforma til lengri tíma litið. Fyrirliggjandi gögn sýna að kaupverð máltíða hækkar umtalsvert við að færast til einkaaðila – sem nú er komið fram að eigi því miður að velta að mestu yfir á notendur með tilheyrandi kjaraskerðingu. Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af því að þeir tekjulægri neiti sér um þjónustuna með tilheyrandi næringarskorti og aukinni félagslegri einangrun. Samfylkingin vill stíga varlega til jarðar varðandi útvistun á kjarnaþjónustu í velferðar-, heilbrigðis- og skólakerfum borgarinnar. Einkaaðilar eiga ekki að hagnast á grunnþjónustu við viðkvæma hópa nema sýnt sé fram á ótvíræðan ávinning fyrir notendur og borgarsjóð. Samfylkingin telur að farið hafi verið of geyst í þessa stefnubreytingu án nægilegs samráðs við talsmenn notenda, svo sem öldungaráð, og án þess að tryggt sé að hagkvæmasta og besta leiðin fyrir borgarbúa hafi orðið fyrir valinu.
Borgarráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Tekið er fram að fulltrúinn er ekki ósammála tillögunni efnislega, heldur telur að hún tengist tveimur öðrum tillögum sem ég tel rétt að fresta að svo stöddu til frekari rýni.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Hér er um mikla stefnubreytingu að ræða. Farsælla væri að halda sig við fyrri áform um uppbyggingu framleiðslueldhússins á Vitatorgi, þannig að starfsemin og þekkingin á því að framleiða mat samkvæmt ákveðnum stöðlum haldist innan borgarinnar. Mikilvægt er að boðið sé upp á næringarríkan sem og bragðgóðan mat. Kostnaðarsamara er að reiða sig á kaup á máltíðum af utanaðkomandi aðila og þá felst einnig áhætta í því að reiða sig með ríkum hætti á utanaðkomandi aðila. Minnihlutinn í borgarráði lagði til að málinu yrði frestað og vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs og velferðarsviðs til þess að vinna greiningu á áhrifum útvistunar á þjónustustig, verðlag og kostnað fyrir borgina til lengri tíma og að greiningin skyldi liggja fyrir áður en málið kæmi til endanlegrar afgreiðslu. Þeirri tillögu var hafnað af meirihlutanum. Fulltrúi Vinstrisins telur mikilvægt að slík greining liggi fyrir áður en svo viðamikil ákvörðun er tekin.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Helstu rökin fyrir útvistun matvælaframleiðslunnar er sá kostnaður sem þarf til að mæta kröfum um mengunarvarnir, geta því flokkar sem sátu í meirihluta árið 2023 þegar viðhaldsþörf Vitatorgs varð ljós, ekki firrt sig ábyrgð á þeirri stöðu sem er í dag því nauðsynlegar úrbætur áttu sér ekki stað. Samningurinn við þriðja aðila til tveggja ára er upp á 1,5 milljarð sem er þrefalt hærra en sá kostnaður sem er áætlaður í framkvæmdir á Vitatorgi. Nauðsynlegt er að horfa á upphæðirnar í samhengi því kostnaðurinn við framkvæmdir eru einu rökin fyrir útvistun. Í greinargerðinni var sérstaklega tekið fram að það sé kostnaðarsamara að kaupa máltíðir frá þriðja aðila en kaupverð á Vitatorgi árið 2026 var 2.140 kr. máltíðin samanborið við 2.846 kr. hjá þriðja aðila. Furðulegt þykir að tekin er fram möguleg rekstrarleg áhætta ef máltíðum fækki sem rök fyrir útvistun þar sem öllum er ljóst að lífeyrisþegum fer ört fjölgandi. Eins þykir skrítið að umsýslukostnaður Reykjavíkurborgar vegna Vitatorgs sé nefndur sem rök fyrir útvistun. Samlegðaráhrif umsýslu Reykjavíkurborgar mun ávallt vera hagkvæmari en útvistun þar sem kostnaður við sambærilega vinnu þriðja aðila verður án efa hærri og því dýrari fyrir borgina. Vegna ófullnægjandi raka er fyrirhugaðri útvistun mótmælt.
Berglind Magnúsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26080026
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 17. ágúst 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 13. ágúst 2026, á tillögu um útboð á dreifingu máltíða, ásamt fylgiskjölum.
Lögð fram svohljóðandi málsmeðferðartillaga borgarráðs- og áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fresta afgreiðslu á samþykkt velferðarráðs um útboð á dreifingu máltíða í matarþjónustu velferðarsviðs dags. 17. ágúst 2026 og vísi málinu til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs og velferðarsviðs sem skulu vinna greiningu á áhrif útvistunar á þjónustustig, verðlag og kostnað fyrir borgina til lengri tíma. Greiningin skal liggja fyrir áður en málið kemur til endanlegrar afgreiðslu.
Samþykkt að vísa málsmeðferðartillögu borgarráðs- og áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar, Miðflokksins, Vinstrisins og Sósíalistaflokks Íslands frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Miðflokksins.
Samþykkt velferðarráðs frá 13. ágúst 2026 á tillögu um breytingar á gjaldskrá veitinga og fæðis er samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Miðflokksins.
Málið er fullnaðarafgreitt á vettvangi borgarráðs með vísan til ákvæða 3. mgr. 48 gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti velferðarráðs styður að dreifing máltíða verði boðin út. Markmiðið er að tryggja áfram örugga og góða þjónustu en jafnframt leita hagkvæmustu leiða við framkvæmd hennar. Árið 2025 voru að jafnaði 326 máltíðir sendar heim á dag, alla daga ársins. Dreifingunni er í dag sinnt af 6,6 stöðugildum hjá Reykjavíkurborg og heildarkostnaður hennar er áætlaður um 88,9 m.kr. á ári. Samkvæmt kostnaðarmati er áætlað að sambærileg þjónusta eftir útboð kosti um 78 m.kr. á ári, eða um 11 m.kr. minna. Það er ábyrg fjármálastjórn að kanna hvort hægt sé að veita sömu þjónustu með hagkvæmari hætti. Hlutverk borgarinnar er fyrst og fremst að tryggja að eldra fólk og aðrir notendur fái máltíðir sínar með öruggum, áreiðanlegum og góðum hætti, ekki að borgin þurfi sjálf að sinna öllum þáttum þjónustunnar. Með útboði skapast jafnframt tækifæri til að nýta sérhæfingu á markaði, ná fram hagræðingu og beina fjármunum velferðarsviðs þangað sem þeirra er mest þörf.
Borgarráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Tekið er fram að fulltrúinn er ekki ósammála tillögunni efnislega, heldur telur að hún tengist tveimur öðrum tillögum sem ég tel rétt að fresta að svo stöddu til frekari rýni.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Minnihlutinn í borgarráði lagði til að málinu yrði frestað og vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs og velferðarsviðs til þess að vinna greiningu á áhrifum útvistunar á þjónustustig, verðlag og kostnað fyrir borgina til lengri tíma og að greiningin skyldi liggja fyrir áður en málið kæmi til endanlegrar afgreiðslu. Þeirri tillögu var hafnað af meirihlutanum.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Líkt og í fyrri tillögu um útvistun á matvælaframleiðslu er útvistun aksturs mótmælt, þar sem röksemdarfærsla á útvistun aksturs sé sú að samlegðaráhrif hverfa og utanumhalds sé flókið vegna skorts á matvælaframleiðslu í Vitatorgi. Tekið var fram að kostnaður aksturs í dag er 88,9 m.kr. og áætlaður kostnaður útvistunnar sé 72-84 m.kr. Áætluð hagræðing er því aðeins u.þ.b 5-17 m.kr. sem er varla umtalsvert og mun eflaust bitna helst á akstursaðilum. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands bendir þó á, þar sem vitað er að vilji meirihlutans sé aukin útvistun, mikilvægi þess að þegar samið verður við þau fyrirtæki sem munu sinna matvælaframleiðslu og akstri að tryggja að starfsfólk sé á mannsæmandi launum og sé með aðild að stéttarfélagi til að gæta réttinda þeirra. Ef samið verður við fyrirtæki sem býður starfsfólki sínu upp á slök kjör mun ekki fást nein hagræðing þar sem kerfið mun borga fyrir það einhvers staðar annars staðar.
Berglind Magnúsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26080024
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka á dagskrá svohljóðandi tillögu borgarstjóra dags. 20. ágúst 2026:
Lagt er til að borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar greiði 1900 kr. fyrir máltíðir í stjórnsýsluhúsum borgarinnar.
Samþykkt.
Borgarráð og áheyrnarfulltrúar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráð og áheyrnarfulltrúar leggja áherslu á að horfa líka í eigin barm og leggja þess vegna til hækkun á gjaldi á hádegismat borgarfulltrúa upp í 1900 krónur frá 974 krónum. Við erum ekki undanskilin rýningu á öllum kostnaðarliðum Reykjavíkurborgar.
Berglind Magnúsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Afgreiðsla og bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók VEL26080033
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026:
Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Hildi Björnsdóttur borgarstjóra ásamt Einari Þorsteinssyni og Pétri Hafliða Marteinssyni í stjórn Vestnorræna höfuðborgarsjóðsins Nuuk – Reykjavík – Tórshavn til loka kjörtímabilsins 2026-2030. Reglur sjóðsins kveða á um að stjórn sé skipuð borgarstjórum höfuðborganna þriggja ásamt tveimur kjörnum fulltrúum frá hverri borg. Stjórnin fundar einu sinni á ári, til skiptis í höfuðborgunum þremur, og úthlutar styrkjum ársins.
Samþykkt. MSS26070021
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 18. ágúst 2026, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Félagsbústaða hf. en lagt er til að tilnefna Róbert Ragnarsson (formaður), Stein Olav Romslo, Albert Guðmundsson, Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur og Björt Ólafsdóttur sem aðalmenn í stjórn Félagsbústaða og Björgu Magnúsdóttur, Heiðu Björgu Hilmisdóttur, Friðjón R. Friðjónsson, Hildi Gunnlaugsdóttur og Kolbrúnu Garðarsdóttur til vara.
Samþykkt. MSS26080035
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 18. ágúst 2026, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Faxaflóahafna hf. Lagt er til að tilnefna Brynjar Níelsson (formaður), Regínu Ásvaldsdóttur, Önnu Björk Bjarnadóttur og Ragnheiði H. Magnúsdóttur í stjórn Faxaflóahafna og Bjarna Guðjónsson, Bjarnveigu Birtu Bjarnadóttur, Helenu Westhöfer Ólafsdóttur og Sigurbjörgu Ástu Jónsdóttur til vara.
Samþykkt. MSS26080031
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 18. ágúst 2026, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða. Lagt er til að tilnefna Helga Þór Ingason (formaður), Kristínu Völu Matthíasdóttur (varaformaður), Kristrúnu Tinnu Gunnarsdóttur, Bjarna Guðjónsson og Bjarnveigu Birtu Bjarnadóttur í stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða.
Samþykkt. MSS26080030
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 18. ágúst 2026, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í kjaranefnd Reykjavíkurborgar. Lagt er til að skipa Ólaf Darra Andrason (formaður), Ernu Guðmundsdóttur (varaformaður) og Önnu Maríu Frímannsdóttur í kjaranefnd Reykjavíkurborgar og Runólf Leifsson, Drífu Sigurðardóttur og Angantý Einarsson til vara.
Samþykkt. MSS26080027
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar um skipan eftirfarandi fulltrúa í endurskoðunarnefnd: Aðalmenn: Einar Hálfdánarson, Kristín Baldursdóttir og Björn Snær Atlason. Kjöri varamanna er frestað.
Samþykkt. MSS26080028
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 18. ágúst 2026, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Lagt er til að skipa Ara Edwald (formaður), Einar Þorsteinsson (varaformaður), Skúla Helgason, Ástu Dís Óladóttur, og Ragnheiði Björk Halldórsdóttur í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og Magneu Gná Jóhannsdóttur, Brynjar Níelsson, Heiðu Björgu Hilmisdóttur, Auði Hermannsdóttur og Maríu Sigríði Guðjónsdóttur til vara.
Samþykkt. MSS26080032
Fylgigögn
-
Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26080049
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. ágúst 2026, varðandi breytingar á skipan varafulltrúa Reykjavíkurborgar á landsþingum Sambands sveitarfélaga 2026-2030, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. MSS26050036
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um stofnun öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks í Reykjavík, sbr. 47. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. júlí 2026. Jafnframt lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. ágúst 2026.
Vísað til forsætisnefndar. MSS26070005Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar taka undir með áheyrnarfulltrúa Vinstrisins og undirstrika mikilvægi þess að vandað sé til verka við mótun nýs öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks. Sú staða sem nú er komin upp ber merki um skammsýni eftir að nýr meirihluti lagði niður mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð án þess að fyrir lægi skýr umgjörð um lögbundið samráð og önnur lögbundin verkefni á þeim vettvangi. Þegar dregið er úr faglegum bakhjörlum er enn brýnna að haft sé raunverulegt samráð við notendur og hagsmunasamtök í anda meginreglunnar „ekkert um okkur án okkar“. Það er áhyggjuefni ef naumur tími fram í september skerðir svigrúm samtaka á borð við ÖBÍ, Þroskahjálp, Geðhjálp og NPA-miðstöðina til að veita umsagnir. Samfylkingin hvetur forsætisnefnd til að tryggja hagsmunasamtökum greiðan aðgang og nægan tíma til að koma sínum ábendingum að, svo sértækar þarfir og réttindi hvors hóps um sig verði ekki undir.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 13. ágúst 2026. MSS26010008
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 19. ágúst 2026.
6. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð velferðarráðs frá 13. ágúst 2026. MSS26010021
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls ellefu mál (MSS26080047, MSS26080053, MSS26070075, MSS26080059, MSS26060067, MSS25080069, MSS26080054, MSS26080061, MSS24100050, VEL26070073, USK26040189). MSS26080014
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26060130
Fylgigögn
-
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Á verkefnalista BCD (Framsóknar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks) á netinu kemur fram að samtal sé hafið við ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um endurskoðun samgöngusáttmálans, fjármögnun hans og framkvæmdahraða. Í því ljósi er óskað eftir upplýsingum um eftirfarandi: 1) Hvenær hafa fundir verið haldnir og hverjir hafa setið þá? Óskað er eftir fundargerðum fundanna hafi þeir verið haldnir. 2) Hefur farið fram vinna við að meta forsendur og kröfur Reykjavíkurborgar í þessu samtali og liggur fyrir mat á hvaða grundvelli borgaryfirvöld vilja taka upp samkomulagið og þeim breytingum á samgöngusáttmálanum sem meirihlutinn sér fyrir sér? Á til dæmis að taka samgöngusáttmálann upp í heild sinni eða einvörðungu einstaka framkvæmdir í landi Reykjavíkur? Ef svo er er óskað eftir öllum gögnum þeirrar vinnu. 3) Er búið að meta áhrif á upptöku samgöngusáttmálans í heild sinni m.t.t. framkvæmdahraða, fjármögnunar, tekjumissis og tafa samgönguúrbóta? Óskað er eftir þeim gögnum séu þau til staðar og ef ekki er óskað eftir hlutlausu mati á þessum þáttum í formi minnisblaðs.
Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
-
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Beðið er um upptalningu á rekstrarstöðum borgarinnar sem hafa fengið athugasemdir frá Heilbrigðiseftirliti. Nauðsynlegt er að kjörnir fulltrúar séu upplýstir til að fylgja eftir nauðsynlegum inngripum ef þörf er á.
Vísað til umsagnar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Fundi slitið kl. 12:01
Einar Þorsteinsson Ari Edwald
Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 20.8.26 prentvæn útgáfa