Borgarráð - Fundur nr. 5817

Borgarráð - Fundur nr. 5817

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 12. mars, var haldinn 5817. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi Árbæjar, hverfi 7.3 Selás, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    -    Kl. 9:12 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK24060174

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. mars 2026 á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluti 6.3 og skilmálaeining 6.3.3., vegna lóðar við Krummahóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK25040244

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2 við Grjótháls, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25120098

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna Skarfagarða 6-8, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum liðmeð rafrænum hætti. USK25110089

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við gatnagerð við Gjúka- og Beimabryggju, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 101 m.kr.
    Samþykkt.

    Glóey Helgudóttir Finnsdóttir og Guðni Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26010149

    Fylgigögn

  6. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS25090039

  7. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 9. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag á tillögu um breytingar á reglum um skólahverfi, umsókn og innritun í grunnskóla Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26030038

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 9. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag á tillögu um breytingu á fjölda barna á leikskólanum Klömbrum, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26030033

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 9. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag á tillögu um breytingu á fjölda barna í leikskólanum Klettaborg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26030034

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 9. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs sama dag á tillögu um breytingu á fjölda barna á leikskólanum Jörfa, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26030035

    Fylgigögn

  11. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030029

  12. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030030

  13. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030032

  14. Lagður fram dómur Landsréttar í máli nr. 98/2025. MSS22050086

  15. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki breytingu á kjörstöðum í Reykjavík við borgarstjórnarkosningarnar 16. maí. Breytingin felur í sér að kosið verði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í stað íþróttamiðstöðvarinnar Austurbergi. Jafnframt að kosið verði í Seljaskóla í stað Ölduselsskóla.
    Samþykkt. MSS25050113

    Fylgigögn

  16. Fram fer umræða um undirbúning Reykjavíkurborgar fyrir sveitastjórnarkosningar 16. maí 2026.
    Ebba Schram víkur af fundinum undir þessum lið.

    -     Kl. 10:05 tekur borgarstjóri sæti á fundinum með rafrænum hætti. MSS25050113

  17. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð staðfesti leiðréttingu á fundadagatali borgarráðs fyrir árið 2026, ásamt fylgiskjölum. Breytingin felur í sér aukafund borgarráðs 22. apríl 2026.
    Samþykkt. MSS22060038

    Fylgigögn

  18. Lögð fram umsögn Félagsbústaða, dags. 5. mars 2026, um skýrslu vinnuhóps um Félagsbústaði frá október 2025. MSS25110099

    Fylgigögn

  19. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar um stofnun innviðasjóðs Reykjavíkur, sbr. 3. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 3. mars 2026.
    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. MSS26020010

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 2. mars 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  21. Lögð fram fundargerð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 20. febrúar 2026. MSS26010015

    Fylgigögn

  22. Lögð fram fundargerð Strætó bs. frá 13. febrúar 2026. MSS26010019

    Fylgigögn

  23. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 11. mars 2026.
    4. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  24. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls sjö mál (MSS26010006, MSS26010011, MSS26010013, MSS24100050, MSS26030016, MSS26030018, MSS26030019). MSS26030003

    Fylgigögn

  25. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26030006

    Fylgigögn

  26. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030052

  27. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030052

Fundi slitið kl. 10:18

Alexandra Briem Andrea Helgadóttir

Dóra Björt Guðjónsdóttir Einar Þorsteinsson

Hildur Björnsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 12. mars 2026 - Prentvæn útgáfa