Borgarráð - Fundur nr. 5815

Borgarráð - Fundur nr. 5815

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 26. febrúar, var haldinn 5815. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:07. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Alexandra Briem, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtalinn áheyrnarfulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson, Róbert Marshall, Theodór Kjartansson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Dís Sigurgeirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. febrúar 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 2.149 m.kr. í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 44 1 á ávöxtunarkröfunni 3,56% en það eru um 2.210 m.kr. að markaðsvirði og samþykki tilboð að nafnverði 3.975 m.kr. í óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 35 1 á ávöxtunarkröfunni 7,85% en það eru um 1.877 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 25. febrúar 2026.

    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Bjarki Rafn Eiríksson og Hörður Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010004

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 26. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að heimila sviðinu að leita tilboða og samþykkja tilboð í umsjón með útgáfu á nýjum óverðtryggðum skuldabréfaflokki með breytilegum eða föstum vöxtum, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Bjarki Rafn Eiríksson og Hörður Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010004

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki skilmála um fyrirhugaðar úthlutanir og sölu byggingarréttar á athafnasvæði á Hólmsheiði, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Vilhjálmi Bergs sem tekur sæti með rafrænum hætti. USK25110109

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við Hlemmtorg og Borgarlínu um Hlemm, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 1.190 m.kr., þar af er áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar 500 m.kr.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Guðna Guðmundssyni og Rúnari Gísla Valdimarssyni sem taka sæti með rafrænum hætti. USK26020362

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa áhyggjum af áframhaldandi raski á svæðinu með tilheyrandi áhrifum á rekstur á svæðinu. Undirstrika fulltrúarnir mikilvægi þess að samráð verði gott á framkvæmdatíma. Þá minna fulltrúarnir á tillögur sínar við gerð fjárhagsáætlunar um frestun fjárfestinga við Hlemm enda mikilvæg vanfjármögnuð grunnþjónustuverkefni sem bíða.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við fornleifauppgröft við Tjarnargötu milli Kirkjustrætis og Vonarstrætis, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 215 m.kr., þar af er áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar 100 m.kr.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Guðna Guðmundssyni og Rúnari Gísla Valdimarssyni sem taka sæti með rafrænum hætti. USK26020360

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 11. febrúar 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs á tillögu að nýju götuheiti nýrrar vistgötu á Kringlureit sem nú er í uppbyggingu, ásamt fylgiskjölum. Götunafnanefnd leggur til að heiti götunnar verði Mjóamýri.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120304

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir heimild borgarráðs til að selja íbúð nr. 114 við Hallgerðargötu 11A, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. FAS25060027

  8. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki leigusamning um leigu á hluta húsnæðisins við Þönglabakka 4, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020007

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að falla frá þeirri ákvörðun að byggja nýtt húsnæði fyrir unglingasafnskóla í Laugardal (8.-10. bekk) á svokölluðum þríhyrning. Á grunni skýrslu starfshóps um undirbúning framkvæmda frá nóvember 2023 verði unnin ný sviðsmyndagreining fyrir mögulegar aðrar staðsetningar fyrir unglingasafnskóla. Borgarstjóri leggi fram tillögu að nýrri staðsetningu á grunni sviðsmyndagreiningar, eftir samráð við fulltrúa helstu hagaðila í Laugardal.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26020048

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Með þessari samþykkt er fallið frá fyrri ákvörðun borgarráðs um að nýr unglingaskóli í Laugardal verði byggður á svokölluðum þríhyrningi. Eftir ítarlega rýni borgarlögmanns er fallist á þau sjónarmið íþróttafélagsins Þróttar að félagið hafi skýran endurgjaldslausan rétt á þríhyrningnum skv. sérstökum samningi borgarinnar við félagið sem gerður var 1996 og er enn í gildi. Næsta skref er að vinna nýja valkostagreiningu varðandi staðsetningu fyrir nýja skólann og eiga gott samráð við fulltrúa hagaðila í Laugardal áður en ákvörðun verður tekin.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn fagnar því að nú sé loks fram komin niðurstaða í þá athugun borgarlögmanns sem fyrrverandi borgarstjóri Framsóknar óskaði eftir vegna óvissu um réttarstöðu Þróttar varðandi þríhyrninginn svokallaða. Nú hefur fyrri afstöðu borgarinnar verið snúið við og það var að frumkvæði Framsóknar að þessi athugun var gerð. Afar brýnt er að hafa Þrótt og aðra hagaðila við borðið þegar framtíðarstaðsetning safnskóla verður ákveðin.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að Alexandra Briem verði fulltrúi í tilnefninganefnd í stað Dóru Bjartar Guðjónsdóttur.

    Samþykkt. MSS22060144

  11. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2026, þar sem umsögn mannréttindaráðs um skýrslu um vöggustofu Thorvaldsenfélagsins í Reykjavík 1974-1979 er lögð fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS26010078

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2026, þar sem umsögn velferðarráðs um skýrslu um vöggustofu Thorvaldsenfélagsins í Reykjavík 19741979 er lögð fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS26010078

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð staðfesti hjálagða viljayfirlýsingu um bann við útbreiðslu jarðefnaeldsneytis. Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty (FFNPT) er alþjóðlegt framtak sem stefnir að réttlátum, skipulögðum og fjármögnuðum hnattrænum umskiptum frá jarðefnaeldsneyti (kolum, olíu og gasi) yfir í hreina og endurnýjanlega orku. Viljayfirlýsingin er í takt við loftlagsáætlanir Reykjavíkurborgar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26020100

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í þessari yfirlýsingu er lagst gegn „new fossil fuel expansion“ sem er áhugavert því ekki eru uppi áform innan borgarmarkanna um olíuleit. Framsókn telur það ekki verkefni Reykjavíkurborgar að taka afstöðu gegn olíuleit kjósi íslensk stjórnvöld að taka ákvörðun um slík verkefni. Framsókn bendir á að Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Samfylkingar hefur sagst jákvæður gagnvart olíuleit. Framsókn situr því hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagt erindisbréf stýrihóps um málefni NEET-hópsins. Hlutverk stýrihópsins er að greina stöðu NEET-hópsins og leggja fram tillögur að aðgerðum til að tryggja að sá hópur stækki ekki og hvernig er betur hægt að mæta þeim sem eru í þessum hópi. Hópurinn skal vinna að samþættingu og eflingu þeirra úrræða sem þegar eru í boði, meta hvernig borgin getur best komið í veg fyrir að ungt fólk detti út úr námi eða vinnu, og tryggja samfellu milli menntunar, félagslegrar þjónustu og atvinnumála.

    -    Kl. 10:37 tekur Kristinn Jón Ólafsson sæti á fundinum.

    Samþykkt. MSS26020091

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um fjölgun og eflingu ungmennahúsa í borginni, sbr. 4. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 17. febrúar 2026.
    Vísað til stýrihóps um málefni NEET-hópsins. MSS26020077

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 24. febrúar 2026, varðandi skýrslu stýrihóps um framtíðarsýn og stefnu vegna Hins hússins, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til stýrihóps um málefni NEET-hópsins. MSS26020108

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2026, þar sem lögð er fram til kynningar umsögn Reykjavíkurborgar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum nr. S-3/2026, ásamt fylgiskjölum. USK26020189

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 23. febrúar 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 23. febrúar 2026, á tillögu um lokun leikskólans Vinagerðis og forgang fyrir börn úr leikskólanum yfir í aðra leikskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26020057

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 23. febrúar 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 18. febrúar 2026, á tillögu um samstarfssamnings sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Rannveig Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL26020064

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. febrúar 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 11. febrúar 2026, á heimildarbeiðni um að hefja annan fasa verkefnisins „Mannauðs- og launakerfi,“ ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24120004

    Fylgigögn

  21. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. febrúar 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 11. febrúar 2026, á heimildarbeiðni um að hefja innleiðingu á stafrænni kortalausn fyrir þjónustur menningar- og íþróttasviðs, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24100032

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn fagnar því að loksins sé komið að innleiðingu þessa verkefnis sem hefur verið afar lengi í vinnslu. Framsókn telur mörg sóknarfæri í því að einfalda og bæta þjónustu við íbúa með stafrænum lausnum sem þessum. Framundan er að færa enn fleiri þjónustustaði borgarinnar inn í þessa stafrænu veskislausn. Framsókn hvetur til þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinni saman að nýtingu þessarar lausnar enda er höfuðborgarsvæðið eitt þjónustusvæði.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. febrúar 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 11. febrúar 2026, á heimildarbeiðni um að hefja innleiðingu á reglugátt, miðlægum rafrænum reglugrunni fyrir Reykjavíkurborg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON26010013

    Fylgigögn

  23. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 24. febrúar 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 11. febrúar 2026, á reglum um upplýsinga- og skjalastjórn, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON23110040

  24. Lagt fram bréf Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 19. febrúar 2026, varðandi samþykkt endurskoðunarnefndar frá 16. febrúar 2026 á innri endurskoðunaráætlun Innri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar fyrir A-hluta borgarsjóðs 2026-2028. IER26020012

    Fylgigögn

  25. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 19. febrúar 2026 í máli nr. E-782/2025. MSS25020011

  26. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, frá kl. 01:00 til kl. 03:00 til Irishman Pub aðfaranótt þriðjudagsins 18. mars nk. í tilefni dags heilags Patreks. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
    Samþykkt. MSS26020093

    Fylgigögn

  27. Lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. febrúar 2026, um tækifærisleyfi til lengri opnunartíma eða til kl. 01:30, aðfaranótt föstudagsins 27. febrúar nk. í tilefni af skóladansleik Framtíðarinnar, málfundafélags Menntaskólans í Reykjavík í Víkinni, Traðarlandi 1.
    Samþykkt. MSS26020020

    Fylgigögn

  28. Lagt fram svar Félagsbústaða, dags. 17. febrúar 2026, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kaup Félagsbústaða á eignum á grundvelli samningsmarkmiða Reykjavíkurborgar á uppbyggingarsvæðum, sbr. 22. lið fundargerðar borgarráðs frá 5. febrúar 2026. MSS26020027

    Fylgigögn

  29. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 10., 16. og 17. febrúar 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  30. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 12. febrúar 2026. MSS26010008

    Fylgigögn

  31. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18. febrúar 2026. MSS26010012

    Fylgigögn

  32. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. febrúar 2025.
    5. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  33. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 21 mál (MSS26010013, MSS26010013, MSS2601001, MSS26020067, MSS26020074, MSS26020029, MSS24100050, MSS22020143, MSS26020070, MSS26010031, MSS26010029, MSS26020104, MSS26020065, MSS26020084, MSS26020025, MSS26020026, MSS23080011, MSS26010135, VEL25090079, MSS2600160, MSS26010159). MSS26020001

    Fylgigögn

  34. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26020002

    Fylgigögn

  35. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að Reykjavíkurborg fjárfesti í ryksugubíl sem er sérstaklega hannaður til að hreinsa upp fínasta rykið á götum borgarinnar. Áætlaður kostnaður vegna kaupanna er 50-70 milljónir. MSS26020116

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað.

    Fylgigögn

  36. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska upplýsinga um heildarfjárhæð a) gatnagerðargjalda, b) byggingarréttargjalda og c) innviðagjalda sem innheimt voru fyrir annars vegar uppbyggingu í Vogabyggð og hins vegar uppbyggingu á Ártúnshöfða. Er jafnframt óskað upplýsinga um heildarfjárfestingu borgarinnar í innviðum á hvoru svæði fyrir sig. MSS26020112

  37. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er upplýsinga um hvers vegna dregið hefur verið úr fjármagni til sérdeildar Hamraskóla. Sú deild er sérstaklega starfrækt fyrir einhverf börn en á fimmta tug barna er á biðlista. Áður var fjármagn aukið til að fjölga plássum en nú hefur verið dregið úr fjármagni til deildarinnar með þeim afleiðingum að ekki er hægt að nýta öll þau pláss sem deildin hefur. Ljóst er að gríðarleg þörf er á fjölgun úrræða fyrir börn með sérþarfir og því er spurt hvers vegna dregið hefur verið úr fjármagni til sérdeildar Harmaskóla, hefur fjármagn verið skorið niður í fleiri slíkum úrræðum og hvers vegna? Hversu mörg börn eru á biðlista í borginni eftir slíkum úrræðum? Hvað þyrfti að gera til að fullfjármagna úrræði í þessum málaflokk? MSS26020117

  38. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um stöðuna á samkomulagi stjórnvalda og Sambands íslenskra sveitarfélaga um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 19. mars 2025. Borgarfulltrúi Framsóknar vill vita hvort ríkið hafi efnt samkomulagið og óskar því eftir upplýsingum um hversu há fjárhæð rann til Reykjavíkurborgar á grundvelli samkomulagsins á árinu 2025. Þá er einnig óskað eftir upplýsingum um hvernig framkvæmd þjónustu við börn sem þiggja 3. stigs þjónustu hefur tekið breytingum frá 1. janúar 2026 og hvernig greiðslum fyrir þessa þjónustu er háttað. MSS26020115

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:15

Alexandra Briem Einar Þorsteinsson

Hildur Björnsdóttir Kristinn Jón Ólafsson

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 26.02.2025 - Prentvæn útgáfa