Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 5. febrúar, var haldinn 5812. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:06. Viðstödd voru Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Líf Magneudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson, Róbert Marshall og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Dís Sigurgeirsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 2. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti á lóðinni Hakabryggja 12, ásamt fylgiskjölum.
Frestað. -
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 2. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við endurgerð götu- og veitukerfa í Naustunum milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 150 m.kr., þar af er áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar 114 m.kr.
- Kl. 09:10 tekur borgarstjóri sæti á fundinum.
- Kl. 09:19 tekur Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja eðlilegt að farið verði í lagnaframkvæmdir á svæðinu enda löngu tímabært. Undirstrika fulltrúarnir mikilvægi þess að haldið verði vel um kostnaðaráætlun. Fulltrúarnir lýsa þó áhyggjum af áhrifum á framkvæmdatíma á atvinnurekendur á svæðinu og benda á að einhverjir þeirra lýsa áhyggjum af fækkun bílastæða. Undirstrika fulltrúarnir mikilvægi þess að samráð verði haft við fasteignaeigendur og atvinnurekendur á framkvæmdastað og tryggt verði gott upplýsingaflæði á framkvæmdatíma.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25050420
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga borgarstjóra um systkinaforgang, dags. 3. febrúar 2026, ásamt greinargerð.
Frestað. MSS26020016 -
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 3. febrúar 2026, varðandi ferð borgarstjóra til München dagana 11.-13. febrúar nk., ásamt fylgiskjölum, til að taka þátt í fundinum The City-Industry Caucus on Energy and Materials Security. MSS26010146
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins um að málefni Félagsbústaða verði sett á dagskrá borgarráðs, sbr. 23. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. janúar 2026.
Samþykkt. MSS25110099Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju bréf borgarstjóra, dags. 6. janúar 2026, varðandi trúnaðarmerkta skýrslu vinnuhóps um Félagsbústaði, ásamt trúnaðarmerkum fylgiskjölum, sem færð voru í trúnaðarbók ásamt bókunum á fundi borgarráðs þann 8. janúar 2026. MSS25110099
Halldóra Káradóttir og Stefanía Scheving Thorsteinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Framsóknar telur meirihlutann á alrangri leið við endurskipulagningu rekstrarlíkans Félagsbústaða. Félagsbústaðir eru með stórt eignasafn og eiga að geta rekið sig án aukinna framlaga frá borginni en tillagan gengur út á að setja á annan milljarð í félagið á næstu árum. Þá styður Framsókn ekki að sú skylda sé sett á uppbyggingaraðila að þurfa að selja Félagsbústöðum fleiri íbúðir á undirverði en lagt er til að hækka hlutfall keyptra íbúða úr 5% í 7,5-10% allra íbúða í nýbyggingum. Þetta mun hækka húsnæðisverð í borginni. Þá er óeðlilegt að leggja til að leigja áfram íbúðir til þeirra sem ekki uppfylla tekjuviðmið, þ.e. eru með of háar tekjur, á meðan enn er biðlisti eftir félagslegum íbúðum. Hlutverk Félagsbústaða er að forgangsraða og tryggja þeim íbúum sem verst standa húsnæðisöryggi. Framsókn gagnrýnir harðlega stjórnsýslu meirihlutans í málinu.
Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar lagði fram svohljóðandi bókun:
Viðreisn hefur kallað eftir greiningum og mögulegum aðgerðum til að tryggja sjálfbæran rekstur Félagsbústaða og því fögnum við skýrslunni. Borgarfulltrúi Viðreisnar mótmælir hins vegar afdráttarlaust að í skjóli þessarar vinnu séu lagðar til kerfisbreytingar á húsnæðisstefnu borgarinnar sem engin pólitísk umræða hefur verið um. Þar er vísað sérstaklega til tillagna um að hækka hlutfall félagslegra íbúða í nýbyggingum í allt að 7,5-10% og um að borgin stofni eigið byggingarfélag. Hér er ekki um tæknilega útfærslu að ræða heldur grundvallarbreytingar á því hvernig húsnæðismarkaður borgarinnar er skipulagður. Slíkar ákvarðanir hafa víðtæk áhrif á framboð, kostnað, áhættu og hlutverk borgarinnar gagnvart einkamarkaði. Sjálfbærni Félagsbústaða má og á að ná, en án þess að breyta hlutföllum í húsnæðisáætlun og að stofna byggingarfélag í eigu borgarinnar, slíkt væri mikið afturhvarf til tíma bæjarútgerða og óhóflegs opinbers reksturs. Hér er verið að breyta húsnæðisstefnu og áherslum borgarinnar í gegnum bakdyrnar og það telur Viðreisn alls ekki ásættanlegt. Tillögur um stofnun byggingarfélags borgarinnar og hækkun hlutfalls félagslegra íbúða felur í sér kerfisbreytingu á húsnæðisstefnu borgarinnar. Borgarfulltrúi Viðreisnar óskar eftir lagalegri rýni á skýrslunni.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn borgarlögmanns, dags. 3. febrúar 2026, um tillögur verkefnahóps í skýrslu um Félagsbústaði frá október 2025. MSS25110099
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Við þökkum fyrir vandað starf vinnuhóps embættismanna sem hér hefur verið unnið en leggjum áherslu á að þessi vinna var sett af stað í tíð fyrrverandi borgarstjóra. Þær aðgerðir sem við samstarfsflokkarnir höfum nýlega samþykkt í borgarstjórn hafa það markmið að bæta eiginfjárstöðu og sjóðstreymi Félagsbústaða, til þess að tryggja fjárhagslega sjálfbærni félagsins til framtíðar. Þar er gengið lengra en í tillögum vinnuhópsins með því að hækka eiginfjárframlag borgarinnar til Félagsbústaða um 2,5 milljarða yfir fimm ára tímabil. Það er gert til þess að gera Félagsbústöðum kleift að fjölga félagslegum íbúðum á hagstæðari kjörum en annars hefði verið mögulegt og með þeim hætti að íbúðir séu fjármagnaðar í auknum mæli með eigin fé í stað lántöku þannig að þær skili jákvæðu sjóðstreymi. Hins vegar eru líka í skýrslu vinnuhópsins fleiri tillögur sem ekki stendur til að hrinda í framkvæmd af hálfu samstarfsflokkanna.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka starfsfólki fyrir vandaðar fjárhagslegar greiningar á stöðu Félagsbústaða. Tillögurnar endurspegla þó fyrst og fremst þann þrönga ramma sem stefna borgarstjórnarmeirihlutans setur, þar sem áframhaldandi stækkun félagslegs leigukerfis er sett í forgang fram yfir raunverulegar lausnir sem styrkja eignamyndun lágtekjuhópa og draga úr kerfisvanda. Í stað þess að ráðast í nauðsynlegar umbætur er lagt til að auka enn framlög skattgreiðenda, herða kvaðir á uppbyggingaraðila og færa kostnað yfir á almenna kaupendur. Jafnframt er boðuð stofnun húsnæðisfélags á vegum borgarinnar, með tilheyrandi yfirbyggingu og verulegri fjárhagslegri og lagalegri áhættu, í beinni samkeppni við einkaaðila um lóðir, fjármagn og mannafla. Í lagalegri rýni borgarlögmanns er bent á óvissu varðandi samkeppni, jafnræði og reglur um ríkisaðstoð, sem ekki hefur verið leyst með fullnægjandi hætti. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að tillögurnar feli í sér áframhaldandi útþenslu kerfis sem hefur ekki skilað árangri og getur ekki stutt þær í fyrirliggjandi mynd.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Framsóknar telur afar brýnt að ráðast í aðgerðir til þess að tryggja sjálfbærni reksturs Félagsbústaða. Greiningin sýnir að ráðast þarf í fjölþættar aðgerðir eins og skýrt er dregið fram í skýrslunni. Því skýtur það skökku við að meirihlutinn skuli ekkert gera með tillögurnar í skýrslunni heldur samþykkja eigin tillögur án allrar rýni frá fjármála- og áhættustýringarsviði. Þá bendir borgarfulltrúi Framsóknar á að í umsögn borgarlögmanns kemur skýrt fram að sveitarfélagi er óheimilt að stofna byggingarfélag með þeim hætti sem meirihlutinn vill gera. Borgarlögmaður bendir á að ef Reykjavíkurborg byggir íbúðir og selur hluta þeirra á markaðsverði þá telst það ólögmætur opinber stuðningur á samkeppnismarkaði. Borgarfulltrúi Framsóknar hvetur meirihlutann til að ráðast í raunverulegar aðgerðir til þess að tryggja fjárhagslega sjálfbærni Félagsbústaða með öguðum vinnubrögðum sem byggja á gögnum og greiningum frekar en tilviljanakenndum fjárframlögum sem ekki munu stuðla að sjálfbærni til lengri tíma.
Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Viðreisnar styður markmið um að tryggja fjárhagslega sjálfbærni Félagsbústaða og fagnar því að fyrir liggi fyrir heildstæð greining á rekstri félagsins, það er góð byrjun. Áhættumatið sýnir hins vegar með skýrum hætti að stærstu áskoranirnar liggja ekki í skorti á eftirspurn eða nýjum uppbyggingarleiðum, heldur í innleiðingu innri umbóta, breytingastjórnun og framkvæmdagetu. Þar liggur raunveruleg áhætta þessa verkefnis. Af þeim sökum mótmælir undirrituð alfarið hugmyndum um að Reykjavíkurborg stofni sérstakt byggingarfélag til uppbyggingar og sölu íbúða á almennum markaði. Slík leið felur í sér verulega lagalega, fjárhagslega og pólitíska áhættu, eins og borgarlögmaður bendir skýrt á, meðal annars vegna samkeppnisreksturs og mögulegrar ríkisaðstoðar. Að bæta nýju félagi, nýrri stjórnsýslu og nýrri áhættu ofan á þegar viðkvæma innleiðingu er ekki ábyrg nálgun. Áhættumatið varar sérstaklega við samverkandi áhættu sem getur leitt til þess að Félagsbústaðir neyðist aftur til að grípa til leiguhækkana eða aukinna framlaga borgarinnar. Áður en borgin tekur slíkar langtímaskuldbindingar verður að liggja fyrir að innri umbætur hafi tekist í reynd, ekki aðeins á blaði. Sjálfbærni næst með aga, forgangsröðun og ábyrgð, ekki með stofnun nýrra borgarfélaga.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra um flöggun á fána Grænlands við Ráðhús Reykjavíkur, ásamt trúnaðarmerktu fylgiskjali, sbr. 5. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. janúar 2026. MSS26010133
Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða í 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Sannarlega er hugur borgarfulltrúanna hjá vinum okkar á Grænlandi. Það hefur hins vegar verið afstaða fulltrúa Sjálfstæðisflokks á þessu kjörtímabili, í ljósi þess að sveitarfélög fara ekki með utanríkismál, að erlenda þjóðfána skuli ekki draga að húni við Ráðhús Reykjavíkur nema við opinberar heimsóknir. Nú stendur til að draga þriðja erlenda þjóðfánann að húni við Ráðhús Reykjavíkur en fulltrúarnir telja það lítið annað en dyggðaskreytingu. Þá minna fulltrúarnir á tillögu sína frá 5. júní 2025 um að íslenski þjóðfáninn verði dreginn að húni við Ráðhúsið alla daga ársins, en sú tillaga hefur ekki enn fengið afgreiðslu. Telja fulltrúarnir umhugsunarvert hversu hratt má afgreiða tillögur um flöggun erlendra þjóðfána, en hve langan tíma tekur að rýna tillögu sem snýr að okkar eigin þjóðfána.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúa Framsóknar finnst tilvalið að sýna vinum okkar á Grænlandi stuðning og samhug vegna þeirrar umræðu sem verið hefur að undanförnu um Grænland. Það væri tilvalið að gera það með ályktun borgarráðs eða borgarstjórnar. Framsókn situr hinsvegar hjá við atkvæðagreiðsluna vegna þess að Framsókn telur ekki skynsamlegt að flagga sífellt fleiri fánum erlendra þjóðríkja við Ráðhús Reykjavíkur án þess að um það gildi reglur og ennfremur að um slíka ákvörðun ríki samstaða í borgarstjórn. Nýr meirihluti hefur brotið þá hefð sem áður ríkti að fánum annarra landa en Íslands sé flaggað ef borgarstjórn sameinast um þá ákvörðun eins og var þegar úkraínska fánanum var flaggað. Víða um heim eru átök sem borgarfulltrúar geta haft skoðun á. Það er hinsvegar enginn bragur á því að meirihlutinn í borginni hverju sinni nýti flaggstangir borgarinnar til þess að sýna afstöðu sína í alþjóðamálum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs, dags. 29. janúar 2026, sbr. samþykkt menningar- og íþróttaráðs frá 23. janúar 2026 á samningsdrögum við Farfugla ses. um rekstur tjaldsvæðis í Laugardal, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Steinþór Einarsson og Elín Hrefna Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR25120006
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 30. janúar 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 28. janúar 2026 á heimildarbeiðni um að hefja vinnu við að tengja landupplýsingakerfi Reykjavíkurborgar við umsóknarsmiðinn á Mínum síðum, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON25120010
Fylgigögn
-
Lögð fram skýrsla regluvarðar Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. febrúar 2025 til 31. janúar 2026.
- Kl. 11:45 víkur borgarstjóri af fundi.
Ólöf Marín Úlfarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22020050
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisveitingaleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 04:00 til Bad Mickey Bar aðfaranótt mánudagsins 9. febrúar nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS26020017Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisveitingaleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 04:30 til Exit aðfaranótt mánudagsins 9. febrúar nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS26020017Fylgigögn
-
Fram fer umræða um málaferli sem Reykjavíkurborg á aðild að. MSS26010143
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lóðarleigusamninga á Ártúnshöfða, sbr. 22. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. janúar 2026.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26010158Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins um að gerð verði umsögn um tillögu um uppbyggingu félagslegs húsnæðis, sbr. 24. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. janúar 2026.
Samþykkt að vísa tillögunni frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26010116Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Framsóknar gagnrýnir harðlega að meirihlutinn skuli ekki samþykkja tillögu Framsóknar um fjármála- og áhættustýringarsvið meti með formlegum hætti ákvörðun meirihlutans um tæplega 2,4 milljarða framlag til Félagsbústaða. Fyrir liggur skýrsla starfshóps um sjálfbærni Félagsbústaða og nýtt viðskiptalíkan sem meirihlutinn hefur ákveðið að líta framhjá en samþykkja í staðinn eigin tillögur án aðkomu sérfræðinga borgarinnar. Borgarfulltrúi Framsóknar bendir á að með þessu verklagi er verið að brjóta áralanga hefð um að allar ákvarðanir um mikilvæga fjárhagslega hagsmuni fái faglega meðferð innan borgarkerfisins. Þetta verklag brýtur gegn markmiðum fjármálastefnu borgarinnar og markmiðum áhættustýringar borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 9. janúar 2026. MSS26010015
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. febrúar 2026.
2. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð Strætó bs. frá 23. janúar 2026. MSS26010019
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls fjögur mál (MSS26010011, MSS24100050, MSS26020003, MSS23080011). MSS26020001
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26020002
Fylgigögn
-
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Samkvæmt samningsmarkmiðum Reykjavíkurborgar á uppbyggingarsvæðum hafa Félagsbústaðir kauprétt fyrir allt að 5% íbúða fyrir félagslegt leiguhúsnæði á föstu verði bundnu byggingarvísitölu, sem er langt undir markaðsvirði. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska upplýsinga um allar þær eignir sem Félagsbústaðir hafa keypt á grundvelli þessa ákvæðis, hvenær gengið var frá kaupsamningi og fyrir hvaða verð þær voru keyptar. Jafnframt er óskað upplýsinga um það hvort einhverjar þessara eigna hafi verið seldar, hvenær þær voru seldar og fyrir hvaða verð. MSS26020027
-
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn :
Spurt er um þróun P-merktra stæða hjá fjölförnum stöðum miðsvæðis og í miðborginni. Er haldið utan um fjölda P-merktra stæða? Hvernig hefur fjöldi P-merkta stæða þróast á þessum svæðum? Hver er stefnan þar að baki og hvernig er hún með tilliti til fjölgunar göngugatna eða vistgatna eða bílastæðastefnu borgarinnar almennt? MSS26020028
-
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Spurt er um þróun á leikskólahúsnæðis borgarinnar á kjörtímabilinu og leikskólaplássa í því samhengi. Hversu mörgum leikskólum hefur verið lokað vegna viðhalds eða endurnýjunar á kjörtímabilinu, hversu margir nýir leikskólar hafa opnað á móti? Hversu margar byggingar er vitað að þarf að loka á næstu árum vegna viðhalds? Hvernig hefur þróun leikskólaplássa verið, þá er átt við pláss sem eru nýtt en ekki pláss sem möguleiki væri á að nýta ef mönnun og annað væri fyrir hendi. MSS26020029
- Kl. 12:25 víkur Hildur Björnsdóttir af fundi.
-
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Borgarfulltrúi Framsóknar óskar eftir því að umsókn Samhjálpar um styrk frá Reykjavíkurborg verði lögð fram á næsta fundi borgarráðs.
Frestað. MSS26020026
-
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Borgarfulltrúi Framsóknar leggur til að Reykjavíkurborg hefji samtal við Samhjálp um staðsetningu kaffistofu Samhjálpar sem miði að því að aðstoða Samhjálp við að finna annað húsnæði fyrir kaffistofuna á hentugri stað. Jafnframt er lagt til að borgin skoði sérstaklega eignasafn sitt og meti hvaða fasteignir í eigu borgarinnar geti hentað undir starfsemina, auk þess að eiga samtal við ríkið um mögulegar eignir í borgarlandinu sem nýta mætti í sama tilgangi. Mikilvægt er að niðurstaða um staðsetningu kaffistofunnar verði unnin í samráði við Samhjálp, íbúa og borgaryfirvöld með það að leiðarljósi að tryggja áfram þá mikilvægu þjónustu sem Samhjálp veitir.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað. MSS26020025Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:26
Alexandra Briem Andrea Helgadóttir
Dóra Björt Guðjónsdóttir Einar Þorsteinsson
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 05.02.2025 - Prentvæn útgáfa