Borgarráð
Ár 2025, fimmtudaginn 8. maí, var haldinn 5781. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru Líf Magneudóttir, Alexandra Briem, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagðar fram skýrslur Veðurstofu Íslands um náttúruvá á höfuðborgarsvæðinu, dags. mars 2025, og jarðskjálftavá á höfuðborgarsvæðinu, dags. mars 2025.
- Kl. 9:08 tekur borgarstjóri sæti á fundinum ásamt Katrínu M. Guðjónsdóttur, Ólöfu Örvarsdóttur og Ebbu Schram.
Jón Viðar Matthíasson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. Borgarfulltrúarnir Andrea Helgadóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Björn Gíslason, Friðjón Friðjónsson, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdóttir og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns taka einnig sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25050021
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. apríl 2025, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 9. apríl 2025 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu vegna lóðarinnar nr. 1 við Birkimel, ásamt fylgiskjölum.
Frestað. USK24110341Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. apríl 2025, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 9. apríl 2025 á breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrekkna-Hallsvegar suður vegna lóðarinnar nr. 14 við Lambhagaveg vegna nýrrar endurvinnslustöðvar SORPU bs., ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. USK23070113Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. apríl 2025, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 9. apríl 2025 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðarinnar nr. 21 við Skipholt, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK25010262Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. maí 2025, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 2. apríl 2025 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Efstalands 26-28 vegna lóðarinnar nr. 26 við Efstaland, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.- Kl. 9:45 víkur Ólöf Örvarsdóttir af fundinum. USK25030188
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 5. maí 2025, varðandi þátttöku borgarstjóra í pólitískri nefnd Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO European Healthy Cities Network, ásamt fylgiskjölum. MSS25040032
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 5. maí 2025, varðandi ferð formanns umhverfis- og skipulagsráðs sem staðgengill borgarstjóra til Vilníus, Litháen, á ráðstefnuna EU Climate-Neutral and Smart Cities Mission Conference 2025, ásamt fylgiskjölum. MSS25050015
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. maí 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki, og vísi til staðfestingar borgarstjórnar, hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórna fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 5. maí 2025, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Minjaverndar.
Samþykkt.
Vísað til borgarstjórnar. MSS25050018Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. maí 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki, og vísi til staðfestingar borgarstjórnar, hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórna fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 5. maí sl., um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Svanna – lánatryggingasjóðs kvenna.
Samþykkt.
Vísað til borgarstjórnar. MSS25050005Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. maí 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki, og vísi til staðfestingar borgarstjórnar, hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórna fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 5. maí 2025, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Íþrótta- og sýningahallarinnar hf.
Samþykkt.
Vísað til borgarstjórnar. MSS25050019Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 5. maí 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki, og vísi til staðfestingar borgarstjórnar, hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórna fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 5. maí 2025, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Faxaflóahafna.
Samþykkt.
Vísað til borgarstjórnar. MSS22090053Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. maí 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki, og vísi til staðfestingar borgarstjórnar, hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórna fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 5. maí 2025, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Strætó bs.
Samþykkt.
Vísað til borgarstjórnar. MSS22060153Fylgigögn
-
Lagt er til að Líf Magneudóttir, Skúli Helgason og Friðjón R. Friðjónsson taki sæti í styrkjahópi borgarráðs. ÞON24080006
Samþykkt. -
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 30. apríl 2025, varðandi úthlutun úr hverfissjóði Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til meðferðar styrkjahóps borgarráðs. MSS25020096Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 5. maí 2025, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 30. apríl 2025 á tillögu um samþykkt samkomulags við Sjúkratryggingar Íslands um framlengingu samnings um fjármögnun á rekstri neyslurýmis og samnings við Rauða krossinn á höfuðborgarsvæðinu um rekstur neyslurýmis, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt. VEL25030048Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 3. apríl 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu, fyrir hönd mannauðs- og starfsumhverfissviðs, að hefja fyrsta fasa verkefnisins „nýtt mannauðs- og launakerfi“, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24120004
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 1. apríl 2025, þar sem óskað er eftr að borgarráð heimili sviðinu að hefja verkefni sem felur í sér tæknilega uppfærslu á þróunarumhverfi reykjavik.is og tengdra kynningarvefja, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON25040002
Fylgigögn
-
Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-6732/2023. MSS23110015
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi trúnaðarmerkt tillaga borgarstjóra, dags. 10. apríl 2025, ásamt fylgiskjölum sem var samþykkt og færð í trúnaðarbók á bundi borgarráðs þann 11. apríl 2025:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs að gera viðauka við þjónustusamninga við sjálfstætt starfandi grunnskóla í Reykjavík til samræmis við upplýsingar í hjálögðu bréfi sviðsstjóra til borgarráðs dags. 9. apríl 2025. Málið er trúnaðarmál fram yfir aukafund borgarráðs þann 2. maí 2025.
Einnig var lagt fram bréf Samtaka sjálfstæðra skóla, dags. 10. apríl 2025, varðandi viðauka við samning Reykjavíkurborgar og sjálfstæðra skóla.
Steinn Jóhannsson, Birgir Björn Sigurjónsson og Guðrún Sigtryggsdóttir tóku sæti á fundinum undir þessum lið.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Borgarráð samþykkir að gera viðauka við þjónustusamninga við sjálfstætt starfandi grunnskóla svo framlag til reykvískra nemenda hækki úr ýmist 70% eða 75% í 80%. Byggt er á samningsmarkmiðum borgarinnar þar sem tekið er mið af stefnumótun Reykjavíkurborgar, þ.m.t. mennta- og mannrétttindastefnu, að innleitt verði samræmt umsóknar- og innritunarkerfi fyrir grunnskóla borgarinnar og sjálfstætt starfandi grunnskóla og síðast en ekki síst að börn með lögheimili í Reykjavík njóti forgangs. Þá er grundvallarforsenda samninganna að jafnræðis sé gætt milli sjálfstætt starfandi skóla og að framlög borgarinnar dragi úr þörf fyrir hækkun skólagjalda þeirra. Gert er ráð fyrir að fjárveitingar borgarinnar til sjálfstætt starfandi grunnskóla hækki um 134 m.kr. á ári. Lagt er til að samninganefndir skóla- og frístundasviðs og Samtaka sjálfstæðra skóla skoði sameiginlega áhrif nýrra kjarasamninga kennara á útreikning Hagstofu á viðmiðunarfjárhæð rekstrarframlaga til sjálfstætt starfandi grunnskóla. Leiði skoðunin í ljós verulegt frávik kemur til álita að greiða eins skiptis viðbótarrekstrarframlag.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna viðauka við þjónustusamninga borgarinnar við sjálfstætt starfandi skóla, sem leiða til hækkunar á menntunarframlögum með börnum sem sækja nám í skólunum. Fulltrúarnir ítreka þó fyrri afstöðu sína, að hækka beri framlögin enn frekar svo sjálfstætt starfandi skólum gefist kostur á því að fella niður skólagjöld og tryggja jöfn tækifæri barna til að sækja nám í sjálfstæðum skólum óháð efnahag foreldra. Þá taka fulltrúarnir undir sjónarmið Sjálfstæðra skóla – SSK, en í kjölfar þess að sveitarfélögin sömdu við kennara um afturvirkar kjarabætur, hækkaði heildarrekstrarkostnaður grunnskóla í landinu afturvirkt. Í ljósi þess að þjónustusamningar borgarinnar hafa kveðið á um framlag með nemendum í sjálfstætt starfandi grunnskólum, sem nemur 75% af heildarrekstrarkostnaði allra grunnskóla í landinu (reknum af sveitarfélögum), er eðlilegt að aðilar komi sér saman um viðeigandi afturvirka leiðréttingu á þegar greiddum framlögum.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknar lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Ein mikilvægasta fjárfesting hvers sveitarfélags er menntun barna. Framsókn fagnar því að gengið sé til samninga við sjálfstætt starfandi skóla og að borgin styðji þannig við rekstrargrundvöll þeirra. Sjálfstætt starfandi skólar bjóða börnum og foreldrum upp á aukið val til menntunar og tryggja fjölbreytta menntaflóru í Reykjavík.
Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Fulltrúi Viðreisnar fagnar því að gengið sé til samninga við sjálfstætt starfandi skóla. Ánægjulegt er að sjá hversu vel sjónarmiðum skólanna er mætt. Skólarnir bjóða upp á mikilvægan fjölbreytileika í menntun í borginni. Vonast fulltrúinn eftir að á komandi árum verði framlag til skólanna jafnt framlagi til borgarrekinna grunnskóla. Fulltrúinn veltir fyrir sér hversu mikilvægar fjöldatakmarkanir nemenda eru í samningum sem þessum og hvort þar mætti horfa til opnari marka. MSS22100084
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi trúnaðarmerkt tillaga borgarstjóra, dags. 10. apríl 2025, ásamt fylgiskjölum sem var samþykkt og færð í trúnaðarbók á fundi borgarráðs þann 11. apríl 2025:
Lagt er til að borgarráð samþykki að tekið verði upp sérstakt framlag til alþjóðadeildar Landakotsskóla vegna þess sérstaka tilkostnaðar sem fylgir því að koma á fót og í rekstur alþjóðadeild með alþjóðlega vottun frá New England Associaton of Schools and Colleges (Cambridge International School). Framlagið verður greitt fyrir árin 2024, 2025 og 2026 kr. 20.000.000 á ári eða samtals kr. 60.000.000 að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem eru eftirfarandi: Fyrir liggi aðgerðaáætlun Landakotsskóla með sundurliðun næstu ára á rekstrartekjum, rekstrargjöldum og fjármagnslið og sjóðstreymi fyrir deildir skólans sem hefur verið samþykkt af skóla- og frístundasviði. Aðgerðaáætlun verði tímasett niður á mánuði og hver og ein aðgerð, s.s launasparnaður, verði kostnaðarmetin fyrir sig. Aðgerðaáætlunin verði tilbúin fyrir 15. maí 2025. Bókhald verði gert aðgreinanlegt fyrir deildir skólans fyrir 15. maí 2025. Skóla- og frístundasviði verði gerð grein fyrir framgangi aðgerðaáætlunar mánaðarlega 2025 og 2026. Miðað er við að framlag vegna 2024 og 2025 komi til útborgunar 15. maí 2025 og framlag vegna 2026 hinn 15. maí 2026. Fjárhagsleg áhrif tillögunnar fela í sér eins skiptis kostnaðarauka upp á 40 m.kr. á þessu ári og 20 m.kr. á árinu 2026 eða samtals 60 m.kr. Kostnaðarauki verði fjármagnaður af liðnum ófyrirséð, kostn.st. 09205. Fjármála- og áhættustýringarsviði verði falið að leggja fram viðauka vegna þessa. Málið er trúnaðarmál fram yfir aukafund borgarráðs þann 2. maí 2025.
Steinn Jóhannsson, Birgir Björn Sigurjónsson og Guðrún Sigtryggsdóttir tóku sæti á fundinum undir þessum lið.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Tillagan felur í sér að borgin leggi fram sérstakt framlag til reksturs alþjóðadeildar Landakotsskóla sem nemur 20 milljónum króna á ári fyrir tímabilið 2024-2026. Framlagið sækir fyrirmynd í sambærilegan samning ríkisins við Menntaskólann við Hamrahlíð. Framlagið er mikilvægt til að tryggja áframhaldandi rekstur alþjóðadeildar þar sem nemendum hefur fjölgað um 20% á undanförnum fjórum árum. Starfsemi alþjóðadeildarinnar er mikilvæg til að mæta þörfum erlendra ríkisborgara sem velja að búa á Íslandi tímabundið til náms og/eða starfa.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að styðja eigi sérstaklega við alþjóðadeild Landakotsskóla, enda mikilvægt fyrir samkeppnishæfni borgarinnar að til staðar sé alþjóðadeild rekin á grunnskólastigi. Betur þarf að skoða samvinnu við skólann um kostnaðarþátttöku vegna alþjóðlegrar vottunar til framtíðar.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknar lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Mikilvægt er að hér starfi öflugur alþjóðlegur skóli til að tryggja samkeppnishæfi borgarinnar m.a. gagnvart erlendum ríkisborgurum sem velja að búa á Íslandi tímabundið vegna starfa og/eða náms. Framsókn fagnar því að borgin styðji sérstaklega við alþjóðadeild Landakotsskóla og stuðli þannig að því að skólinn fái vottun á alþjóðlegri námskrá. Vottunin tryggir að skólinn geti boðið upp á nám sem er alþjóðlega viðurkennt sem auðveldar hreyfanleika nema á milli landa og samfellu í námi barna. Aukinheldur getur vottunin auðveldað skólanum að fá starfsfólk til starfa erlendis frá.
Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Í nútíma samfélagi með aukinni alþjóðavæðingu er Reykjavík á tímamótum. Vottaður alþjóðlegur skóli er lykilatriði þegar það kemur að því að Reykjavík sé samkeppnishæf á alþjóðagrundvelli. Fulltrúi Viðreisnar fagnar því að stutt sé við alþjóðadeild Landakotsskóla í vottunarferli sínu til að gera öllum íbúum okkar sem ferðast milli menntasvæða fært að sækja viðeigandi menntun hér. MSS25040071
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. desember 2024, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 3. desember 2024 á að vísa breytingatillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins við fjárhagsáætlun um stjórnkerfissúttekt, D4, til meðferðar borgarráðs, ásamt fylgiskjölum.
Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. FAS24010022Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillaga Sjálfstæðisflokksins gengur út á viðamikla úttekt á stjórnkerfi borgarinnar með það að markmiði að ná fram hagræðingu. Þegar hefur verið gripið til umfangsmikillla hagræðinga á kjörtímabilinu og stendur yfir vinna við að safna hugmyndum starfsfólks og borgarbúa um frekari hagræðingar. Úr þeim hugmyndum verður unnið á næstu vikum og lögð fram áætlun um aðgerðir. Ekki er talin ástæða til að ráðast í frekari vinnu af þessum toga á þeim skamma tíma sem eftir lifir af kjörtímabilinu.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn harmar ákvörðun nýs meirihluta varðandi þessa tillögu. Tillagan er góð og tímabær og það að nýr meirihluti skuli vísa henni frá sýnir einbeittan vilja hans til þess að gera engar breytingar á borginni.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. október 2024, sbr. samþykkt borgarstjórnar frá 30. september 2024 á að vísa tillögu borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um samvinnuvettvang til höfuðs misnotkunar vinnuafls til meðferðar borgarráðs, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 25. nóvember 2025.
Vísað til umsagnar innkaupa- og framkvæmdaráðs. MSS24090173Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. apríl 2025, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólkins um Better City for Children-verkefnið, sbr. 38. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. nóvember 2025. MSS24110044
Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. apríl 2025, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um ferð starfsfólks þjónustu- og nýsköpunarsviðs á fræðslunámskeið til Seoul, sbr. 39. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. nóvember 2024. MSS24110045
Fylgigögn
-
Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. apríl 2025, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um skjalareglur og rafræn skil gagna frá Reykjavíkurborg til Þjóðskjalasafns, sbr. 36. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. nóvember 2024. MSS24110041
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 10. apríl 2025. MSS25010007
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 10. apríl 2025. MSS25010008
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 21. mars 2025. MSS25010025
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 28. febrúar, 14. mars og 11. apríl 2025. MSS25010029
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 30. apríl og 7. maí 2025.
2. liður fundargerðarinnar frá 30. apríl og 6. liður fundargerðarinnar frá 7. maí eru samþykktir. MSS25010030Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 21 mál (MSS25010021, MSS25010023, MSS25010023, MSS25010023, MSS25040183, MSS25040064, MSS25010042, MSS24100050, MSS25040078, MSS25040074, MSS25010045, MSS25040101, MSS25040102, MSS25010045, MSS25020099, MSS25050016, MSS24120047, MSS25040008, ÞON24090075, MSS25040068, VEL25040043). MSS25040069
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS25050020
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að borgarráð samþykki að láta fjarlægja þau steypuklumpaskilti sem hafa löngum staðið í bílastæðum Austurstrætis frá Pósthússtræti að Kvosinni og að bílastæðin verði gerð aðgengileg á ný fyrir íbúa, rekstraraðila og gesti svæðisins.
Frestað. MSS25050041
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarráð samþykkir að óska eftir því við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu að viðvera lögreglu sé aukin í miðbæ Reykjavíkur á föstudögum og laugardögum með það að markmiði að bæta þjónustu við íbúa, starfsfólk og gesti svæðisins og stuðla að bættu öryggi þeirra. Óskað er eftir því að viðvera verði aukin með þeim hætti að tveir lögregluþjónar að lágmarki gangi milli Frakkastígs og Lækjargötu og tveir gangi milli Lækjargötu og Ingólfstorgs. Mikilvægt er að lögregluþjónarnir verði ekki í sérsveitarklæðnaði þó ætlunin sé að auka sýnileika þeirra.
Frestað. MSS25050042
-
Fram fer trúnaðarmerkt kynning á fjármögnun og verðmætasköpun Carbfix.
- Kl. 11:20 víkur borgarstjóri af fundi ásamt Katrínu M. Guðjónsdóttur.
Elín Smáradóttir, Edda Sif Pind Aradóttir og Sævar Freyr Þráinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22020093
Fundi slitið kl. 12:07
Líf Magneudóttir Alexandra Briem
Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 08.05.2025 - Prentvæn útgáfa