Borgarráð
Ár 2025, föstudaginn 2. maí, var haldinn 5780. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:06. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Líf Magneudóttir, Alexandra Briem, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Hulda Hólmkelsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram að nýju trúnaðarmerkt bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 10. apríl 2025, varðandi ársreikning A-hluta og samantekinn ársreikning A- og B-hluta Reykjavíkurborgar 2024 ásamt trúnaðarmerktum ársreikningi A-hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar 2024, ódags. Einnig er lögð fram skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 10. apríl 2025, greinargerð fagsviða og sjóða A-hluta, dags. 10. apríl 2025, greinargerð B-hluta fyrirtækja, dags. 10. apríl 2025, greinargerð um innleiðingu kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar, ódags., verkstöðuskýrsla nýframkvæmda, ódags., skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 7. apríl 2025, um framkvæmd styrkjareglna, skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 10. apríl 2025, um samantekt yfir breytingar á fjárhagsáætlun 2024, ábyrgða- og skuldbindingayfirlit, dags. 11. apríl 2024, yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar, ódags., og umsögn endurskoðunarnefndar, dags. 28. apríl 2025. Jafnframt er lögð fram umsögn Grant Thornton, dags. 2. maí 2025.
Ársreikningur A-hluta og samstæðureikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 hefur verið undirbúinn af fjármálaskrifstofu í samræmi við ákvæði 61. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Vísað til borgarstjórnar.
Halldóra Káradóttir, Sigurrós Ásta Sigurðardóttir, Jónas Skúlason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Sturla Jónsson, Davíð Arnar Einarsson, Bjarni Már Jóhannesson, Lárus Finnbogason og Ingunn Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS25010016
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um 10,7 milljarða króna á síðasta ári sem er 14,1 milljarði betri niðurstaða en árið 2023. Þá var rekstur A-hluta jákvæður um 4,7 milljarða sem er viðsnúningur upp á 9,7 milljarða frá árinu áður. Þá lækkar skuldahlutfall. Rekstur Reykjavikurborgar er traustur og mikill árangur náðist á síðasta ári bæði í rekstri borgarinnar og með tímamótakjarasamningum sem höfðu áhrif á að vinda ofan af háum vöxtum og verðbólgu. Þá skiptir verulegu máli að mikilvægir áfangar náðust varðandi leiðréttingu á vanfjármögnuðum málaflokkum sem laga stöðuna í fjárhagslegum samskiptum við ríkið. Fjármagni verður forgangsraðað í grunnþjónustu fyrir borgarbúa í samræmi við þörf og sterkur rekstrargrundvöllur gerir okkur kleift að halda áfram með húsnæðisuppbyggingu til að tryggja örugg heimili fólks, leikskólauppbyggingu samhliða bættum starfsaðstæðum og umbótum í velferðarþjónustu, vinna gegn fátækt og ójöfnuði, efla skólaþjónustu, bæta þjónustu við strætófarþega og bæta göngu- og hjólaleiðir svo nokkur dæmi séu tekin. Við munum áfram standa vörð um reksturinn og sýna ábyrgt viðbragð við ytri áskorunum. Reykjavík snýst um lífsgæði fyrir öll og er því jákvætt að sjá þennan gríðarlega jákvæða viðsnúning í rekstri.
Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Ekkert bendir til þess að rekstur borgarinnar sé á réttri leið. Þó sannarlega sýni ársreikningur jákvæða rekstrarniðurstöðu er ljóst að viðsnúningurinn skýrist ekki af aukinni ráðdeild, heldur aukinni skattheimtu og óreglulegum liðum. Hér voru óþarfa verkefni ekki aflögð, ónauðsynlegum stöðugildum var ekki fækkað og engar vísbendingar eru uppi um hagræðingar í rekstri sem leiða til betri rekstrarniðurstöðu. Þvert á móti hefur útsvarsprósentan tekið hækkunum á kjörtímabilinu sem leiðir til fjögurra milljarða króna tekjuauka 2024 auk þess sem hækkun fasteignamats á kjörtímabilinu hefur leitt til 8,2 milljarða króna hækkunar fasteignaskatta og lóðarleigu árlega frá upphafi kjörtímabils. Þá skila óreglulegir liðir á borð við eignasölu, arðgreiðslur og leiðréttar lífeyrisskuldbindingar tekjum sem nema um 12,3 milljörðum króna. Að frátöldum þessum óreglulegu liðum reynist rekstrarniðurstaðan neikvæð sem nemur um átta milljörðum króna. Það liggur í augum uppi að grunnþjónustu borgarinnar verður að vera unnt að reka á grundvelli reglulegra tekna, ekki tekjum af eignasölu eða öðrum óreglulegum liðum.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarstjórnarflokkur Framsóknar fagnar innilega þeim frábæra árangri sem náðist í rekstri borgarinnar á síðasta ári undir stjórn Framsóknar. Niðurstaða A-hluta sýnir tæplega 10 milljarða viðsnúning, rekstrarniðurstaða fer úr tæplega fimm milljarða tapi yfir í fimm milljarða afgang. Þessi niðurstaða sýnir að undir styrkri stjórn er hægt að ná miklum árangri í rekstri borgarinnar en rétt er að benda á að Framsókn stýrði borginni úr embætti borgarstjóra á árinu 2024 sem ársreikningurinn tekur til. Samstæða borgarinnar skilar einnig afgangi sem nemur tæpum 11 milljörðum. Afar mikilvægt er að núverandi meirihluti haldi áfram þéttu aðhaldi í rekstri borgarinnar.
Fylgigögn
- Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2024
- Ársreikningur A-hluta 2024
- Ársreikningur B-hluta 2024
- Skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs með ársreikningi 2024
- Greinargerð fagsviða með ársreikningi 2024
- Greinargerð B-hluta félaga með ársreikningi 2024
- Greinargerð um innleiðingu kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar
- Framvinduskýrsla ársins 2024
- Skýrsla til borgarráðs um framkvæmd styrkjareglna 2024
- Samantekt viðauka við fjárhagsáætlun 2024
- Yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar
- Ábyrgða- og skuldbindingayfirlit 31.12.2024
- Endurskoðunarskýrsla 2024
- Umsögn endurskoðunarnefndar
-
Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. apríl 2025, ásamt fylgiskjölum sem var samþykkt og færð í trúnaðarbók á fundi borgarráðs þann 10. apríl 2025:
Lagt er til að borgarráð samþykki, og vísi til staðfestingar borgarstjórnar, hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar að skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur verði óbreytt. Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur verður haldinn 11. apríl nk. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Orkuveitu Reykjavíkur sem haldinn verður 11. apríl 2025. MSS22060144
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 7. apríl 2025, ásamt fylgiskjölum, sem var samþykkt og færð í trúnaðarbók á fundi borgarráðs þann 10. apríl 2025:
Boðað hefur verið til aðalfundar í Orkuveitu Reykjavíkur föstudaginn 11. apríl 2025 í samræmi við 5. gr. sameignarsamnings félagsins sem gerður er á grundvelli 5. gr. laga um Orkuveitu Reykjavíkur nr. 136/2013. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram til afgreiðslu á aðalfundi OR: 3. Ákvörðun um arðgreiðslur til eigenda OR og um aðra meðferð hagnaðar eða taps Orkuveitu Reykjavíkur á reikningsárinu. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið starfsár. 5. Lýsing á kjöri stjórnar. 6. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. Lagt er til að tillaga nr. 3 verði samþykkt. Arðgreiðsla verði því allt að fjárhæð 6.500 milljónir króna eða rúmlega 2,4% af eigin fé í árslok 2024 og 70% af hagnaði ársins. Lagt er til að tillaga nr. 4 verði felld hvað varðar hækkun á stjórnarlaunum. Ekki eru gerðar athugasemdir við greiðslu fyrir aukafundi. Lögð er fram ný tillaga, að hækkun á stjórnarlaunum verði 3% í stað 6,4%. Varðandi tillögu 5 þá leggur tilnefningarnefnd Reykjavíkurborgar fram tilnefningar í kjör stjórnar og varastjórnar Orkuveitu Reykjavíkur fyrir borgarráð. Þá er lagt til að tillaga 6 verði samþykkt. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Orkuveitu Reykjavíkur sem haldinn verður 11. apríl 2025.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja rétt að draga úr arðgreiðslukröfu á Orkuveitu Reykjavíkur enda mikilvægar innviðafjárfestingar framundan hjá samstæðunni.
Skúli Helgason og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir viku af fundinum undir þessum lið. MSS25030144
Fylgigögn
Fundi slitið 10:05
Líf Magneudóttir Alexandra Briem
Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir
Sanna Magdalena Mörtudottir Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 02.05.2025 - prentvæn útgáfa