Borgarráð - Fundur nr. 5744

Borgarráð

Ár 2024, fimmtudaginn 23. maí, var haldinn 5744. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:10. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson, Andrea Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Björg Magnúsdóttir, Ebba Schram, Hulda Hólmkelsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. maí 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 8. maí 2024 á breytingu á aðalskipulagi 2040 fyrir skotæfingasvæði Álfsnesi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með sex atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2.  mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23030130

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Til að mæta sjónarmiðum íbúa er búið að ákveða að finna skotæfingasvæðinu nýjan stað og unnið er að því í sameiginlegri vinnu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ljóst má vera að það mun taka nokkurn tíma að klára endanlegt staðarval, undirbúa nýtt svæði, semja við landeigendur, vinna skipulag og umhverfismat og hanna og undirbúa framkvæmdir. Á meðan sú vinna stendur yfir er aðstaða til skotfimi tryggð á núverandi stað fram til 2028. Vegna fjölmargra athugasemda umsagnar- og hagsmunaaðila sem bárust á vinnslustigi tillögunnar var skerpt á ákvæðum um takmörkun á umhverfisáhrifum og settir fram bindandi skipulagsskilmálar um mótvægisaðgerðir í endanlega tillögu.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítreka mikilvægi þess að hér sé um tímabundna ráðstöfun að ræða og leggja ríka áherslu á að skotæfingasvæðinu verði fundinn nýr staður innan tímamarka.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Sósíalistar taka undir mikilvægi þess að fundin verði viðeigandi framtíðarstaðsetning fyrir skotsvæðið. Ekki er hægt að samþykkja að slík starfsemi verði í Álfsnesi til allt að ársloka 2028 þar sem slíkt hefur valdið mikilli hávaðamengun. Ef leyfi er gefið á það að vera algjört skilyrði að hávaðavörnum hafi verið komið upp áður en starfsemin fær að halda áfram. Sósíalistar minna á að mikið ónæði hefur verið af starfseminni fyrir fjölda íbúa í nágrenninu. Það á að vera sjálfsagður réttur fólks að geta notið friðs á sínu heimili, þeim stað sem fólk hefur til þess að hvílast. Koma þarf sem best í veg fyrir ónæði nágranna, manna og dýra af starfseminni og mengun sem af henni hlýst fyrir lífríki í umhverfi hennar. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framlengja á starfsleyfi fyrir skotæfingasvæði á Álfsnesi til 2028 fyrir Skotfélag Reykjavíkur og Skotveiðifélag Reykjavíkur. Flokkur fólksins hefur því miður litla trú á að skotvellirnir fari 2028. Þær breytingar sem hér á að gera til að hýsa áfram skotvellina eru kostnaðarsamar og er reikningurinn sendur á skattgreiðendur. Íbúar á Kjalarnesi hafa staðið í stappi við borgaryfirvöld í tæpa tvo áratugi. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bókað um málið enda ofbýður honum yfirgangur meirihlutans gagnvart íbúum Kjalarness í þessu máli. Íbúar mega sín lítils. Auðvelt er að setja sig í spor íbúanna sem mega þola ýmiss konar mengun. Í gögnum kemur skýrt fram að talsvert magn er af  gömlum og nýjum höglum í jarðvegi. Staðfest er að högl berast niður í fjöru og enda í maga fugla. Niðurstöður greiningar benda til þess að hlutfall blýhagla sé hærra en ætlað var frá upplýsingum sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur haft fram að þessu. Niðurstöður mælinga á hávaðamengun koma heldur ekki vel út. Stytta þarf kvöldopnunartíma til að takmarka ónæði vegna skothljóða. Þetta segir allt sem segja þarf. Tekið er undir athugasemd þar sem segir „HER hefur ekkert gert annað en að matreiða niðurstöður svo skotfélögin geta haldið starfseminni áfram á Álfsnesi.“

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. maí 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 8. maí 2024, á auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi fyrir Breiðholt hverfi 6.1, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24050012

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:  

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að setja málið í lögbundið samráðsferli, með fyrirvara um endanlega afstöðu. Fulltrúarnir vekja athygli á því að hér er gengið á grænt svæði og hér er um töluvert byggingarmagn að ræða.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. maí 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 8. maí 2024 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I vegna lóðanna nr. 2-6, 8 og 10 við Arnarbakka, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24030341

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að setja málið í lögbundið samráðsferli, með fyrirvara um endanlega afstöðu. Fulltrúarnir vekja athygli á því að hér er gengið á grænt svæði og hér er um töluvert byggingarmagn að ræða.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Arnarbakka 2-10. Breytingar felast í fjölgun íbúða, færslu á byggingarreitum og heimild fyrir leikskóla á svæðinu. Markmiðið er að fækka bílastæðum til muna á fyrirhuguðum uppbyggingarreitum, stærri reitum sem smærri og einnig á blönduðum sem og þeim sem eru í nágrenni við góðar almenningssamgöngur. Vandamálið er að nú eru engar góðar almenningssamgöngur og bið í borgarlínu jafnvel um einhver ár. Samnýta á stæði eins og hægt er sem er ágætis mál ef þess er nokkur kostur. Flokkur fólksins tekur undir að bílastæði séu ekki merkt neinum nema auðvitað stæði fyrir hreyfihamlaða og fatlað fólk. Stæði eiga ekki að vera frátekin fyrir ákveðin fyrirtæki. Mikið er talað um almenningssamgöngur og nálægð við þær en aftur er minnst á hvað við búum við slakar almenningssamgöngur sem þjóna aðeins mjög þröngum hópi. Enn er með öllu óljóst hvernig borgarlína á eftir að virka í úthverfum Reykjavíkur. Flokkur fólksins getur ekki samþykkt að bílastæðum sé fækkað svo mikið sem til stendur fyrr en hægt er að segja að við höfum fullnægjandi almenningssamgöngur. Bílum fjölgar og áfram þarf að gera ráð fyrir bílum á götum og í bílastæðum bæði ofan jarðar og neðan. 
     

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. maí 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. maí 2024 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna reits I við Haukahlíð, lóð nr. 6, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23010208

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Þetta mál gengur út á breyting á deiliskipulagi – Haukahlíð 6. Lögð fram umsókn Bjargs íbúðafélags sem felst í fjölgun íbúða úr 70 íbúðum í 85 leiguíbúðir ásamt mörgu fleiru þessu tengt. Fram kemur í gögnum að „hafa ber þó í huga að þrátt fyrir að viðmið um fjölda bílastæða séu uppfyllt þá verða 31 íbúðir án bílastæða og því er mikilvægt að huga að því að gera aðgengi að vistvænum samgöngum eins hátt undir höfði og mögulegt er til að auðvelda íbúum að lifa bíllausum lífsstíl.“ Hér staldrar fulltrúi Flokks fólksins við því við vitum öll að við búum ekki við þann lúxus að hafa nógu góðar almenningssamgöngur. Það er ekki hægt að ætlast til að allir fari um á hjóli. Ekki eru aðstæður til að hægt sé að ætlast til að allir lifi bíllausum lífsstíl. Stungið er upp á ýmsu, s.s. að samnýta bílastæði eða veita aðstöðu til hjólaviðgerða nú eða tryggja íbúum aðgengi að deilibíl. Þetta er eins gott og það nær. Staðreyndir tala máli sínu. Bílum fjölgar og ekki að ástæðulausu. Fulltrúa Flokks fólksins finnst sem verið sé að þvinga borgarbúa allt of mikið til að leggja bílnum. 

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 17. maí 2024, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 15. maí 2024, á tillögu um gerð þjónustusamnings við Bataskóla Íslands, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Rannveig Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL24050015

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 17. maí 2024, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 15. maí 2024 á tillögu um samþykkt samnings um neyslurými vegna skaðaminnkandi þjónustu milli Reykjavíkurborgar og Sjúkratrygginga Íslands, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Anna Sigrún Baldursdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL24040021

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Loks er verið að koma á varanlegu neyslurými í Reykjavík, fyrstu allra sveitarfélaga á Íslandi. Reykjavík tók af skarið eftir samþykkt laga um neyslurými árið 2020 og kom á fót færanlega neyslurýminu Ylju í samstarfi við Rauða krossinn. Nú fær neyslurýmið sinn fasta sess eins og sérfræðingar hafa lagt áherslu á að skipti máli. Neyslurýmið er öruggt rými fyrir vímuefnaneytendur þar sem þeir geta fengið velferðarþjónustu og unað við viðeigandi aðbúnað og öryggi. Það er hluti af skaðaminnkandi stefnu Reykjavíkur sem snýst um að mæta fólki á þeirra forsendum og minnka skaða fyrir einstaklinga og samfélag. Skaðaminnkandi aðgerðir geta skipt sköpum fyrir velferð, líf og heilsu jaðarsettra einstaklinga og verið mikilvægt skref á leið þeirra til betra lífs.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins hefur ávallt stutt hugmyndina um neyslurými enda slíkt úrræði búið að sanna gildi sitt í öðrum löndum. Markmiðið er að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og auka lífsgæði þeirra sem nota vímuefni í æð. Því miður hefur ekki tekist að halda samfellu í Reykjavík í þessu úrræði og hafa margir liðið fyrir það. Hér er um að ræða mannréttindamiðaða nálgun sem byggir á að draga úr skaða og aðstoða einstaklinga á þeirra eigin forsendum. Nú er þetta erfiða mál loksins komið á skrið og er það þakkarvert. Rauði kross Íslands hefur fengið heimild eiganda lóðar við Borgartún 5 (ríkiseign) til að setja niður gáma, sem félagið telur henta starfseminni best og er miðað við að starfsemi geti hafist í byrjun júní nk. Samningurinn gildir í eitt ár frá því að móttaka notenda hefst. Um leið og dregið er úr skaðlegum afleiðingum sem fylgja neyslu ávana- og fíkniefna er ekki aðeins verið að hjálpa einstaklingunum sjálfum heldur einnig aðstandendum og nærsamfélaginu. Í þeim löndum sem neyslurými eru til hefur dauðsföllum sem rekja má til notkunar vímuefna í æð fækkað.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram greining mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. febrúar 2024, á kynbundnum launamun í október 2023.

    Harpa Hrund Berndsen og Lóa Birna Birgisdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MOS22020006

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Konur voru með 0,1% lægri laun en karlar í október 2023 að teknu tilliti til aldurs, reynslu, menntunar, starfaflokks, yfirvinnu, hæfnisflokka, annarra launa og vaktaálags. Konur eru með hærri grunnlaun en karlar og hærri uppreiknuð grunnlaun en karlar að meðaltali með 0,4% hærri uppreiknuð heildarlaun þegar aðeins hefur verið tekið tillit til starfshlutfalls. Einnig eru karlar með 0,1% hærri uppreiknuð heildarlaun en konur að teknu tilliti til kyns, aldurs, starfaflokks, menntunar, reynslu, hæfnisflokka, mældra og fastra yfirvinnutíma, vaktaeininga og annarra launa. Karlar fá frekar greidda mælda yfirvinnu heldur en konur, þ.e. 35,6% kvenna á móti 44,6% karla. Karlar fá einnig frekar greitt vaktaálag en konur en 37,3% karla fær greitt vaktaálag en 25,0% kvenna. Karlar fá að meðaltali hærri mælda yfirvinnu, þeir fá einnig hærri önnur laun en konur auk þess að fá hærra vaktaálag. Segja má að þessi barátta þurfi að halda áfram, henni er hvergi nærri lokið.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 21. maí 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita vilyrði fyrir lóðinni Krókháls 20, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson og Óli Örn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24050067

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 21. maí 2024, þar sem óskað er eftir því að borgarráð samþykki aðilaskipti að uppbyggingarsamkomulagi vegna lóðarinnar Stálhöfða 2, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson og Óli Örn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22030127

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 21. maí 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki drög að samkomulagi sem felur í sér tímabundin afnot af Miðbakka í þeim tilgangi að setja þar upp og reka parísarhjól, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson og Óli Örn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24040232

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Skoða á að staðsetja parísarhjól yfir sumartímann, við Miðbakka við gömlu höfnina í Reykjavík. Um er að ræða 32 m hátt parísarhjól. Hugmyndin um parísarhjól á Miðbakka hefur áður komið fyrir borgarráð, síðast fyrir tæpu ári. Nú er verið að skoða Miðbakkann. Þá koma upp áhyggjur með aðgengi en aðgengi að Miðbakka og miðbænum öllum er afar erfitt fyrir aðra en þá sem búa nálægt og ferðamenn. Aðrar áhyggjur varða m.a. hávaðavandamál en mikið er búið að leggja á íbúa svæðisins í þeim efnum. Líklegt má telja að það verði ónæði af starfseminni. Sjálfsagt er að miða við lokun kl. 22:00. Vegna aðgengisvanda og bílastæðaskort er líklegt að gestir leggi við íbúðarhús. Íbúar hafa oft kvartað yfir bílastæðamálum í sínu nærumhverfi og hvorki fengið áheyrn né stuðning frá borginni vegna bíla sem leggja þarna í leyfisleysi. Þessi  starfsemi hefur auðvitað ekkert að gera með „haftengda upplifun.“ Aftur er minnt á samráð sem er ekkert enn sem komið er í þessu máli.
     

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 21. maí 2024, varðandi þátttöku borgarfulltrúa á ársþingi Eurocities 2024, ásamt fylgiskjölum. MSS24050087

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins minnir á fjárhagsstöðu borgarinnar og að hver króna skiptir máli. Það var von fulltrúans að með nýjum borgarstjóra og hans fólki yrði dregið úr ferðakostnaði og annarri óþarfa eyðslu. Hafa skal í huga að fæstar þessara heimsókna eru að skila nokkru og alls ekki neinu til borgarbúa. Flokkur fólksins skilur að í einstaka tilfellum er nauðsynlegt að æðstu stjórnendur borgarinnar láti sjá sig á erlendri grund á mikilvæga fundi/þing/ráðstefnur en það eru í raun undantekningartilfelli.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 21. maí 2024, varðandi fyrirhugaða ferð borgarstjóra og borgarfulltrúa á stjórnarfund Vestnorræna höfuðborgarsjóðsins 2024. MSS24050088

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins minnir á fjárhagsstöðu borgarinnar og að hver króna skiptir máli. Það var von fulltrúans að með nýjum borgarstjóra og hans fólki yrði dregið úr ferðakostnaði og annarri óþarfa eyðslu. Hafa skal í huga að fæstar þessara heimsókna eru að skila nokkru og alls ekki neinu til borgarbúa. Flokkur fólksins skilur að í einstaka tilfellum er nauðsynlegt að æðstu stjórnendur borgarinnar láti sjá sig á erlendri grund á mikilvæga fundi/þing/ráðstefnur en það eru í raun undantekningartilfelli.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 21. maí 2024, varðandi fyrirhugaða ferð formanns borgarráðs til Bratislava, ásamt fylgiskjölum. MSS24050089

    Fylgigögn

  14. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-4843/2023. MSS23070071

  15. Lagður fram úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3264/2023. MSS23050104

  16. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 8. maí 2024, sbr. samþykkt öldungaráðs  frá 8. maí 2024 á tillögu um samræmda upplýsingagjöf til eldra fólks um heilsueflingu og afþreyingu á vegum Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Vísað til meðferðar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. MSS24030074

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi tillaga ætti varla að vefjast fyrir ráðamönnum enda sambærileg tillaga víða að finna annars staðar. Grunnur er til staðar sem hægt er að byggja á fristund.is sem birtir ýmsar mikilvægar upplýsingar. Um er að ræða tillögu öldungaráðs um samræmda upplýsingagjöf til eldra fólks um heilsueflingu og afþreyingu á vegum Reykjavíkurborgar þvert á svið þar sem finna má allar upplýsingar um  ólíka þjónustu fyrir eldra fólk innan allra borgarhluta í rauntíma. Við lestur umsagnar finnst fulltrúa Flokks fólksins verið að gera einfaldan hlut of flókinn og óttast að nú eigi að fara af stað eina ferðina enn með þróunar-, uppgötvunar- og tilraunafasa á lausn sem víða er farin að virka annars staðar. Flokkur fólksins vonar innilega að nú eigi ekki að fara að finna upp hjólið heldur skuli samnýta það sem til er og leita til þeirra sem eru komnir með sambærilegt. Þarfirnar eru þær sömu hvort sem um er að ræða Reykjavík eða Akranes ef því er að skipta. Ekki er trúverðugt að það sem stendur í umsögninni eigi að vera tilbúið eftir 2 mánuði, alla vega ekki ef marka má fyrri reynslu af þessum málum.
     

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. apríl 2024, sbr. vísun borgarstjórnar frá 9. apríl 2024 á tillögu borgarfulltrúa Flokks fólksins um óháða úttekt á þjónustu- og nýsköpunarsviði varðandi hagræðingu og framtíðarskipulag sviðsins, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað. MSS24040055

    Fylgigögn

  18. Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 2. maí 2024. MSS24010035

    Fylgigögn

  19. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 23. apríl og 29. apríl 2024. MSS24010003

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 30. apríl 2024. MSS24010005

    Fylgigögn

  21. Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 16. maí 2024. MSS24010007

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. og 3. líð fundargerðarinnar:

    Fulltrúi Flokks fólksins varð fyrir miklum vonbrigðum með umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um skotsvæðið á Álfsnesi. Í umsögninni skín þekkingarleysi á áhrifum skotæfingasvæði og lífríkis í gegn. Blý er þungmálmur og sem mengunarvaldur berst ekki sérlega hratt um umhverfið. Ekki er þörf á samanburði við hvernig landið var áður. Blýhögl berast hratt þegar þeim er skotið úr byssu. Þá eru blýhögl aðgengilegur kostur fyrir fuglana sem ekki gera greinarmun á sandkorni og blýhagli og mengast þar með af blýi. Fáránlegt er að ætla að jarðvegsmengun eigi þar hlut að máli. Í þessari umsögn er mest verið að elta ólar við hver beri ábyrgðina og hver eigi að gera hvað. Að heilbrigðiseftirlitið varpi fram svo mikilli óvissu um ábyrgð er ótraustvekjandi. Liður 2: Heilbrigðiseftirlitið er eins og aftur úr fornöld hvað varðar stafrænar lausnir á meðan önnur sveitarfélög skarta metnaðarfullu tölvukerfi á þessu sviði. Þetta er afleiðing þrákelkni þjónustu- og nýsköpunarsviðs að vilja ekki vera í samvinnu við aðra á sömu vegferð nema takmarkað. Gopro kerfið er löngu úrelt og Hlaðan nýtist ekki Heilbrigðiseftirlitinu. Hin slæma staða í stafrænum málum hamlar starfseminni. Ekki er séð hvernig heilbrigðiseftirlitið á að halda utan um lögbundin verkefni með eldgamalt og úrelt tölvukerfi

    Fylgigögn

  22. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 29. apríl, 8. maí og 16. maí 2024. MSS24010008

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. og 2. lið fundargerðarinnar frá 16. maí:

    Flokki fólksins finnst margt á dagskrá þessa fundar óljóst og vafasamt. Fyrir minnihlutafulltrúa þá má segja að þeim er haldið utan við þessi mál og aldrei upplýst hvað fer almennilega fram í innkaupa og framkvæmdarráði. Fulltrúi Flokks fólksins telur nauðsynlegt að fá einhverja kynningu á þessum málum t.d. lið 1 þar sem verið er að bjóða út verkefni við Hlemm og nágrenni. Einnig í lið 2 er verið að bjóða út verk í Grófarhúsi. Stóð ekki til að hægja á þessum verkefnum í ljósi slakrar fjárhagsafkomu borgarinnar? Hvað með lið 3 þar sem lagt er til rammasamningsútboð um tölvu og netbúnað? Þetta eru öll mál sem minnihlutinn þarf að vita um og vera inn í ef borgarkerfið á að virka trúverðugt í augum almennings.

    Fylgigögn

  23. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 14. maí 2024. MSS24010009

    Fylgigögn

  24. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Breiðholts frá 2. maí 2024. MSS24010010

    Fylgigögn

  25. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 15. maí 2024. MSS24010011

    Fylgigögn

  26. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarvogs frá 6. maí 2024. MSS24010012

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar: 

    Ef litið er yfir fundargerðir íbúaráða þá er talsvert bókað um sorphirðumál. Þótt margt hafi gengið vel í þeim efnum er mörgu ábótavant og vill Flokkur fólksins að ábendingar frá borgarbúum og íbúaráðum séu teknar alvarlega. Í þessari fundargerð sem hér um ræðir er verið að benda á brýna nauðsyn þess að losunartíðni verði endurskoðuð og aftur verði gámar undir pappa og plast sett á stöðvarnar. Segir í umræddri bókun „Æ ofan í æ eru allir gámar fullir og fólk skilur eftir flokkað sorp við gámana, það er því augljóst að það verður að skipta þeim oftar út. Einnig viljum við að gámum undir plast og pappír verði aftur komið upp á öllum grenndarstöðvum hér í Grafarvogi. Í ljósi þess að í könnun á vegum Gallup fyrir SORPU kom fram að yfir 90% íbúa taka þátt í að flokka og fólk vill flokka en þá verður að gera það eins aðgengilegt og kostur er.“

    Fylgigögn

  27. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Kjalarness frá 8. maí 2024. MSS24010014

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins minnir á að hafa samráð við íbúa og borgarbúa eftir atvikum ávallt í heiðri í sbr. bókun ráðsins í lið 1 um Esjuferðir undir liðnum: Umræða um svifferju upp Esjuhlíðar. „Íbúaráð Kjalarness  vill koma á framfæri við Framkvæmdasýsluna ríkiseignir vilja íbúa til þess að koma að samtali um Esjuferju á sem flestum stigum málsins.“ Flokki fólksins finnst þetta sjálfsagt mál og leggur áherslu á að ekki verði valtað yfir íbúa hvorki í þessu máli né öðrum.

    Fylgigögn

  28. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 13. maí 2024. MSS24010015

    Fylgigögn

  29. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 24. apríl 2024. MSS24010016

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 5. lið fundargerðarinnar: 

    Fram fer umræða um Airbnb á fundi íbúaráðs Miðborgar. Flokki fólksins finnst vert að minnast og í því sambandi bókun íbúaráðsins um Airbnb. Málið er að það er mjög hátt hlutfall af Airbnb íbúðum sem eru í eigu hagnaðardrifinna leigufélaga í miðborg Reykjavíkur. Flokkur fólksins hefur látið sig þessi mál varða og bent á neyðarástandið sem er á leigumarkaði í þessu sambandi. Skoða þyrfti að setja leiguþak. Eins og fram kemur í bókun ráðsins þá tala íbúar á leigumarkaði  um að það sé skýr fylgni milli slakrar réttarstöðu leigjenda og óhóflegra hækkana á húsaleigu vegna Airbnb íbúða. Flokki fólksins finnst gott að vita að íbúaráðið láti sig varða líðan fólksins og sérstaklega barnanna. Fjöldi Airbnb íbúða hefur sannarlega neikvæð áhrif á fasteignamarkaðinn.

    Fylgigögn

  30. Lögð fram fundargerð Orkuveitu Reykjavíkur frá 22. apríl 2024. MSS24010029

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar:

    Fulltrúi Flokks fólksins getur ekki orða bundist yfir launum fyrir stjórnarsetu. Greiddar eru 217 þúsund krónur fyrir að sækja einn fund á mánuði. Þetta er varið með því að segja að „Þar sem stjórnarstörf eru aukastörf þykir eðlilegt að stjórnarlaun hækki um 3,25%. Samkvæmt því nemi stjórnarlaun aðalmanna 217.493 (voru 210.647, 2023) íslenskum krónum mánuði en varamanna helming þeirrar fjárhæðar fyrir hvern fund.“ Er það eðlilegt fyrir aukastarf? Hér er verið að sýna slæmt fordæmi nú einmitt þegar verið er að hvetja alla til að sýna aðhald.

    Fylgigögn

  31. Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19. apríl 2024. MSS24010026

    Fylgigögn

  32. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 2., 5. og 29. apríl 2024. MSS24010030

    Fylgigögn

  33. Lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 8. og 15. maí 2024.

    4. liður fundargerðarinnar frá 8. maí og 1. liður fundargerðarinnar frá 15. maí eru samþykktir. MSS24010031

    Fylgigögn

  34. Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 8. maí 2024. MSS24010033

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar: 

    Kynning á biðstöðvum Strætó út frá aðgengi. Á árunum 2020 til 2023 hafa verið endurgerðar 69 strætóstöðvar en 114 strætóstöðvar þarfnast endurgerðar. Hér þarf að spýta í lófana ef verkefnið á ekki að taka mörg ár. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem setja þarf í forgang. Árið 2020 var aðgengi tekið út. Skoðað var yfirborð. Þá voru yfir 500 biðstöðvar metnar ófullnægjandi. Til stóð að lagfæra 12 sem voru allra verst farnar, bæði aðgengi og yfirborð. Við þá tölu hefur nokkrum verið bætt við á þeim tveimur árum sem liðin eru. Í úttektinni kom fram að aðeins á 11 biðstöðvum af 556 var aðgengi viðundandi. Flokkur fólksins lagði fram tillögu 2019 um endurbætur á öllum biðstöðvum strætó sem voru þá víða í lamasessi. Tillagan kom til afgreiðslu þremur árum síðar og var þá felld. Aðgengi og lélegt yfirborð stétta við strætóbiðstöðvar hefur auðvitað komið verst niður á fötluðu fólki og fólki með skerta sjón og hreyfigetu. Staðfest var í umsögn með málinu að endurbætur bíða vegna væntanlegrar borgarlínu sem búið er að upplýsa um að tefjist um 3-5 ár. Því er enn ríkari ástæða til að endurbæta biðstöðvar.

    Fylgigögn

  35. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 15 mál. MSS24040176

    Fylgigögn

  36. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS24040228

    Fylgigögn

  37. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska sundurliðaðra upplýsinga um allar lóðaúthlutanir í Gufunesi á timabilinu 2010 til 2024. Óskað er yfirlits yfir allar lóðir á svæðinu, hvenær þeim var úthlutað, til hvaða lóðarhafa og fyrir hvaða verð. Þá er óskað upplýsinga um það hvernig verðmat var framkvæmt og hvort lóðaverð hafi endurspeglað verðmat. Að auki er óskað yfirlits yfir öll lóðarvilyrði sem hafa verið veitt á tímabilinu fyrir svæðið sem hafa verið afturkölluð, og ástæður afturköllunar. Jafnframt er óskað sundurliðaðra upplýsinga yfir heimilt byggingarmagn á sérhverri lóð, með hvaða hætti það hefur tekið breytingum eftir atvikum, ásamt þeim gjöldum sem lögð hafa verið á lóðarhafa vegna uppbyggingar (þ.m.t. en ekki takmarkað við, gatnagerðargjöld, byggingarréttargjöld og innviðagjöld). Að auki er óskað sundurliðaðra upplýsinga um gjalddaga ofanritaðra gjalda, veitta greiðslufresti og hvenær greiðslur bárust. Loks er óskað upplýsinga um þær lóðir/byggingarheimildir sem hafa skipt um hendur frá úthlutun, hvenær borgarráð heimilaði slíkt framsal og hvaða verð fékkst fyrir (séu slíkar upplýsingar aðgengilegar). MSS24050117

  38. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarráð samþykki að endurskoða ákvörðun um að breyta laugarbökkunum Sundhallarinnar með þeim hætti sem til stendur. Fram hefur komið að verið sé að endurgera sundlaugina í samræmi við nútímakröfur. Álitamál er hvort hægt sé að fara aðrar leiðir án þess að eyðileggja laugarbakkana sem eru órjúfanlegur hluti af heildinni. MSS24050112

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað.

    Fylgigögn

  39. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fela velferðarsviði að bjóða eldra fólki í Reykjavík upp samtalsþjónustu í ljósi vaxandi ofbeldis af öllu tagi gegn eldra fólki eins og fram kom á nýlegum fundi Landssambands eldri borgara. Þetta er lagt til sökum þess að besta forvörnin gegn ofbeldi í garð eldra fólks er samtalið. MSS24050113

    Greinargerð fylgir tillögunni. 
    Frestað.

    Fylgigögn

  40. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fyrirspurn vegna liðs 3;Kynning á kjarnavörum Búi og Bjargey frá fundi stafræns ráðs þann 8. maí. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort þjónustu og nýsköpunarsvið sé í einhverskonar samstarfi í innleiðingu stafrænna lausna varðandi nemendaskráningar ofl. í grunnskólum. MSS24050114

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. 

    Fylgigögn

  41. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í ljósi þess að Reykjavíkurborg hefur undirritað viljayfirlýsingu um þátttöku í sameiginlegu verkefni um stafræn byggingarleyfi með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sambandi Íslenskra sveitarfélaga og Stafrænu Íslandi, vill fulltrúi Flokks fólksins fá upplýsingar um hvað gert verði við lausnina BYGG2 sem Reykjavíkurborg lagði tíma og fjármagn í og innleiddi að hluta til árið 2022? Spurt er hvort ekki sé hægt að hætta með BYGG2 og nota alfarið lausn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar  sem allir virðast vera að nota. Einnig er óskað upplýsinga um hver var heildarkostnaður við innleiðingu BYGG2 og rafrænar mannvirkjaskrár sem Reykjavíkurborg innleiddi á svipuðum tíma og yfirgripsmikil og ítarleg mannvirkjaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar var innleidd. MSS24050115

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. 

    Fylgigögn

  42. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um það hvernig verklag með innkaupabeiðnum er háttað hjá Reykjavíkurborg. Einnig er óskað eftir því að vita af hverju rafrænar innkaupabeiðnir og kort hafi ekki enn verið innleidd hjá Reykjavíkurborg. MSS24050116

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 10:45

Dagur B. Eggertsson Andrea Helgadóttir

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Dóra Björt Guðjónsdóttir

Hildur Björnsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 23.05.2024 - prentvæn útgáfa