Borgarráð - Fundur nr. 5737

Borgarráð

Ár 2024, fimmtudaginn 7. mars, var haldinn 5737. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:04. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson, Alexandra Briem, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Kjartan Magnússon, Pawel Bartoszek og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Hildur Björnsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. mars 2024:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 120 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 4,06%, í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 32 1, sem eru 100 m.kr. að markaðsvirði og samþykki tilboð að nafnvirði 450 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 8,50%, í óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 35 1, sem eru 250 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 6. mars 2024.

    Trúnaðarmerkt greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Hörður Hilmarsson, Bjarki Rafn Eiríksson og Stefanía Scheving Thorsteinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS24010012

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 4. mars 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að auglýsa stofnframlög vegna almennra íbúða til umsóknar.
    Samþykkt.

    Hörður Hilmarsson, Bjarki Rafn Eiríksson og Stefanía Scheving Thorsteinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS24030001

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. mars 2024, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að áhættunefnd Reykjavíkurborgar verði skipuð í samræmi við hjálagt erindisbréf. Gert er ráð fyrir að nefndin verði skipuð borgarstjóra, formanni borgarráðs, borgarritara og sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs. Starfsmaður nefndarinnar verði áhættustjóri sem fer fyrir áhættustýringu A-hluta Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á innleiðingu áhættustefnu og framkvæmd áhættustýringar þvert á svið og skrifstofur.

    Greinargerð fylgir tillögunni.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að minnihluta borgarstjórnar verði gefinn kostur á að skipa fulltrúa í áhættunefnd Reykjavíkurborgar. Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að erindisbréfi nefndarinnar er gert ráð fyrir að auk tveggja embættismanna sitji í nefndinni tveir fulltrúar meirihluta en enginn frá minnihluta. Ljóst er að nefndin mun hafa mikilvæg verkefni með höndum og að á fundum hennar verða lagðar fram ýmsar mikilvægar upplýsingar til rýni og umfjöllunar.

    Breytingatillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands. 

    Tillaga borgarstjóra er samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Samþykkt.

    Hörður Hilmarsson, Bjarki Rafn Eiríksson og Stefanía Scheving Thorsteinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS24030007

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Áhættunefnd Reykjavíkurborgar mun hafa mikilvægu hlutverki að gegna, ekki síst við núverandi aðstæður í fjármálum, sem eru erfiðar og fara versnandi. Rekstur Reykjavíkurborgar hefur verið ósjálfbær um langt skeið og borgin hlaðið upp skuldum í áður óþekktum mæli. Aðstæður kalla því á að aukin áhersla sé lögð á að greina og rýna fjármál borgarinnar með heildstæðum hætti, ekki síst þá áhættu sem felst í langvarandi hallarekstri, skuldasöfnun og versnandi lánskjörum. Verkefni áhættunefndar verða því ærin. Þýðingarmikil gögn verða lögð fram á fundum hennar og þar gefast kjörnum fulltrúum dýrmæt tækifæri til fræðslu, kynningar og umfjöllunar. Hafa ber í huga að Borgarstjórn Reykjavíkur er fjölskipað stjórnvald og því er eðlilegt að þegar undirnefndir eru skipaðar á hennar vegum sé þess gætt að þar séu fulltrúar frá meiri- og minnihluta. Á þetta einkum við um nefndir með mikilvægt eftirlitshlutverk þar sem viðamikil gögn í þýðingarmiklum málum verða lögð fram. Það skýtur því skökku við að borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar kjósi að tveir fulltrúar meirihluta séu í áhættunefnd en enginn fulltrúi minnihluta. Slík afstaða brýtur gegn leikreglum um lýðræði og eðlilegan aðgang kjörinna fulltrúa að upplýsingum. Sú ákvörðun, að skipa aðeins fulltrúa meirihluta í áhættunefnd, er hluti af viðleitni meirihlutans að takmarka upplýsingagjöf um fjármál borgarinnar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúa Flokks fólksins finnst sjálfsagt að minnihluta borgarstjórnar verði gefinn kostur á að skipa fulltrúa í áhættunefnd Reykjavíkurborgar. Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að erindisbréfi nefndarinnar er gert ráð fyrir að auk tveggja embættismanna sitji í nefndinni tveir fulltrúar meirihluta en enginn frá minnihluta. Í alltof mörgum tilfellum er minnihlutafulltrúum ekki hleypt að borðinu þegar um mikilvæg verkefni er að ræða.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. febrúar 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 28. febrúar 2024 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laugardals, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23020087

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að hefja útboðsferli vegna kaupa á tveimur sorphirðubílum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24020231

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítreka fyrri tillögur sínar um að rekstur sorphirðu Reykjavíkurborgar verði boðinn út. Telja fulltrúarnir reynslu nágrannasveitarfélaga sýna að betur fari á því að rekstur sorphirðu og eignarhald sorphirðubíla sé í höndum einkaaðila.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 4. mars 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út áframhaldandi framkvæmdir á Hlemmtorgi og nágrenni, ásamt fylgiskjölum. Kostnaráætlun 2 er 240 m.kr.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK24030005

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja betur fara á því að forgangsraða fjármunum í þágu grunnþjónustu, miðað við núverandi aðstæður í rekstri borgarinnar.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. febrúar 2024, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgaráð staðfesti hjálagða viljayfirlýsingu milli Reykjavíkurborgar, heilbrigðisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, innviðaráðuneytis, Landspítala, Landhelgisgæslu og stýrihóps um skipulag Landspítala um deiliskipulag annars áfanga uppbyggingar Landspítalans og samstarf um lendingarstað fyrir björgunarþyrlur í Nauthólsvík.

    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24010082

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 5. mars 2024, þar sem óskað er eftir borgarráð samþykki aðilaskipti að uppbyggingarsamkomulagi og lóðarréttindum vegna lóðarinnar Egilsgata 5, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22060198

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 4. mars 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki uppbyggingarsamkomulag vegna lóðarinnar Síðumúli 6, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24030012

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 5. mars 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki ráðningarsamning borgarstjóra, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfullrúa Sósíalistaflokks Íslands.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Lóa Birna Birgisdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24030017

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að brugðist hafi verið við ábendingum þeirra þess efnis að gera þurfi skriflegan ráðningarsamning við borgarstjóra, þar sem starfskjör eru ákveðin, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga. Jafnframt bentu fulltrúarnir á að réttast væri að framkvæmdastjórn borgarinnar fengi samninginn til staðfestingar. Fyrirliggjandi samningur er viðbragð við athugasemdum fulltrúanna. Þá gagnrýna fulltrúar Sjálfstæðisflokks þá ámælisverðu stjórnsýslu að aldrei hafi verið gerður ráðningarsamningur við fyrrverandi borgarstjóra þegar nýtt kjörtímabil hófst.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Nú er ráðningarsamningur borgarstjóra til afgreiðslu. Áður hafði verið lagt fram ráðningarbréf þar sem fram komu laun og hlunnindi. Flokkur fólksins bókaði um málið þá að sér fyndist borgarstjóri hafa vegleg laun, helmingi hærri en laun borgarfulltrúa, þeirra sem eru með hæstu álagsgreiðslurnar. Borgarstjóri hefur afnot af embættisbifreið og sennilega einnig einkabílstjóra eins og fyrrverandi borgarstjóri. Ekki kemur fram hvort borgarstjóri greiðir skatt af afnotum af embættisbifreið, s.s. vegna einkanota. Hvað sem þessu líður er þess óskað að borgarstjóri leggi sig fram um að hlusta á orð, tillögur og hugmyndir minnihlutafulltrúa til að tryggja góða samvinnu á kjörtímabilinu.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 4. mars 2024, varðandi fyrirhugaða ferð staðgengils borgarstjóra til Parísar á loftslagsráðstefnuna ChangeNOW 2024 dagana 25.-27. mars nk., ásamt fylgiskjölum. MSS24030013

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 4. mars 2024, varðandi fyrirhugaða ferð borgarstjóra til Parísar og Strassborgar dagana 25.-27. mars nk., ásamt fylgiskjölum. MSS24030018

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 5. mars 2024, þar sem erindisbréf starfshóps um Hringrásargarð á Álfsnesi er sent borgarráði til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS24020145

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Lagt er fram erindisbréf starfshóps um Hringrásargarð á Álfsnesi. Helsta hlutverk hans er að taka afstöðu til og útfæra tillögur um hringrásargarð á Álfsnesi enn frekar. Að gera Hringrásargarð á Álfsnesi hefur sína veikleika, t.d. þegar horft er til viðskiptatækifæra. Þá er fyrst að nefna óvissu um tímasetningu Sundabrautar. Einnig að fjármögnunarstaða Reykjavíkurborgar er veik til skemmri tíma. Svæðið er óaðlaðandi og svartasti bletturinn er skotæfingasvæðið sem er á ætluðu iðnaðarsvæði. Tekið er undir að það er knýjandi að sett verði af stað vinna við að finna nýjan stað undir skotæfingasvæði á höfuðborgarsvæðinu svo hægt verði að rýma svæðið fyrir Hringrásargarð. Talað er um í gögnum að höfn verði gerð. Það er áhyggjuefni að mati Flokks fólksins því að höfn fylgir landfylling sem gengur á fjörur sem eru lífauðugustu svæðin í borgarlandinu.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 5. mars 2024, þar sem uppfært erindisbréf starfshóps um almenningsmarkað í miðborg er sent borgarráði til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS22040218

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Til afgreiðslu er erindisbréf starfshóps almenningsmarkaðar í miðborg. Hlutverk hópsins er að gera þarfagreiningu á húsnæði undir flóamarkað, kortleggja möguleika og bestu staðsetningar í miðborginni, þ.m.t með því að framkvæma markaðskönnun þar sem auglýst er eftir mögulegum valkostum. Allt miðast þetta við markað í miðborginni. Það má svo sem skilja að sú staðsetning sé talin fýsileg enda hefur Kolaportið verið þar árum saman. Gallinn við markað í miðborginni er að þangað skreppa menn ekki til að kaupa í matinn. Aðgengi að markaði í miðborginni er einnig erfitt nema fyrir ferðamenn og íbúa miðborgar. Ferskt er í minni slæmt aðgengi að Kolaportinu fyrir þá sem komu akandi. Umferð í miðbæinn er gríðarleg og ekki um annað valkost að ræða fyrir marga. Nú er komin gjaldskylda á sunnudögum líka og bílastæðagjöld hafa verið hækkuð mikið. Skoða mætti að setja upp tvo markaði, minni í sniðum en þar sem seld væri t.d. ferskvara, s.s. óunninn fiskur en slík vara er enn eftirsótt af sumum en ekki lengur til í fiskbúðum. Ekkert er minnst á þennan þátt sem hluta af hlutverki starfshópsins.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. febrúar 2024, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 29. febrúar 2024 og færð í trúnaðarbók:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að Grindavíkurbær verði heiðursgestur Menningarnætur í Reykjavík 2024 í tilefni af vinatengslum bæjarfélaganna og 50 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar í ár. Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar, hátíðin er alltaf haldin fyrsta laugardag eftir 18. ágúst en þann dag 1786 fékk Reykjavíkurborg kaupstaðarréttindi. Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni. Um árabil hefur tíðkast að bjóða völdum sveitarfélögum að vera heiðursgestur á Menningarnótt og er sannur heiður að bjóða Grindavíkurbæ sem heiðursgesti 2024. MSS24020113

    Fylgigögn

  16. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 4. mars 2024, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki forvarnaáætlun barna og ungmenna 2024-2026 sem unnin er út frá einni af aðgerðum lýðheilsustefnu Reykjavíkurborgar, Heilsuborgin Reykjavík: „Borgin sem ég vil búa í“ og var samþykkt í Borgarstjórn Reykjavíkur 5. október 2021. Forvarna- og aðgerðaáætlunin hefur verið unnin þverfaglega og kynnt í velferðarráði, skóla- og frístundaráði og menningar-, íþrótta- og tómstundaráði. Forvarnaáætlunin er fjármögnuð að stærstum hluta úr fjárhagsramma. Einnig er hægt að sækja um styrki fyrir einstökum verkefnum. Fjármögnun á einstökum verkefnum tekur mið af fjárhagsáætlun hverju sinni. Miðstöðvar borgarhlutanna gegna lykilhlutverki við að tryggja samhæfingu og samstarf þeirra aðila sem styðja börn, ungmenni og foreldra þeirra í hverfum borgarinnar.  Miðstöðvarnar útvega jafnframt sérfræðiþekkingu sem til þarf við staðbundnar áskoranir í forvörnum.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Harpa Þorsteinsdóttir og Óskar Dýrmundur Ólafsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24010139

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Helstu áherslur áætlunarinnar eru fjölbreytileiki, verndandi þættir og jákvæð samskipti, góð líðan og forvarnir gegn ofbeldi. Fulltrúi Sósíalista minnir í því samhengi á mikilvægi þess að klára að setja fram aðgerðaáætlun gegn rasisma í skóla- og frístundastarfi en tillaga Sósíalista þess efnis var lögð fram í desember 2021 og síðar samþykkt. Aðgerðaáætlunin er enn ekki fullmótuð. Forvarnaáætlunin fjallar einnig um góða líðan barna og ungmenna m.a. í gegnum þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og hollt mataræði. Í stefnunni kemur t.a.m. fram að „góður og reglulegur svefn, regluleg hreyfing og hollt mataræði er grundvöllur að góðri líðan.“ Tekið er undir það en minnt á að til að ná þessum þáttum fyllilega þarf að vera laus við fátækt og því þarf einnig að vinna gegn ójöfnuði sem er staðreynd og bitnar á börnum. Má þar nefna að samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni fara 16% barna í 4. bekk svöng að sofa því það er ekki til matur heima. Ein aðgerð áætlunarinnar fjallar um að kynna betur menningarstofnanir borgarinnar. Hér má auglýsa mun betur að öryrkjar geta fengið menningarkort án þess að greiða fyrir það. Tillaga Sósíalista þess efnis var samþykkt og felur í sér gjaldfrjálst árskort sem veitir aðgang að öllum söfnum Reykjavíkurborgar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Kynnt eru drög að forvarna- og aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar 2024-27. Markmið áætlunarinnar er að bregðast við helstu verkefnum sem tengjast forvarnamálum barna og ungmenna í Reykjavík. Mörg eru verkefnin því rannsóknir sýna fram á að andlegri líðan barna og unglinga hrakar, svefntími þeirra hefur minnkað og neikvæð áhrif vegna mikillar skjánotkunar hafa aukist. Ofbeldi er að aukast og hatursorðræða að verða meira áberandi í samfélaginu. Fulltrúi Flokks fólksins hefur haft áhyggjur af þessari þessari þróun og hefur ítrekað viðrað þær áhyggjur og mikilvægi þess að bregðast við þessum vanda. Með forvörnum og samstilltu átaki hefur tekist að draga úr áfengis- og tóbaksneyslu hjá ungmennum. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að setja aukinn kraft í forvarnastarf og heilsueflingu barna og ungmenna með markvissum aðgerðum. Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á þessa aðgerðaáætlun og vonar að þetta verði ekki bara falleg orð á blaði heldur verði ráðist í raunverulegar forvarnaaðgerðir.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja verkefnið umsýsla myndefnis og stafrænnar miðlunar.
    Samþykkt.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON23090019

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þjónustu- og nýsköpunarsvið óskar heimildar til að hefja verkefnið umsýsla myndefnis og stafrænnar miðlunar. Umsýsla um myndefni. Gott er að fara í vegferð til að samræma hluti, ef þeir eru nú þegar í notkun. Þetta er einmitt það sem Flokkur fólksins hefur verið að tala um. Þetta verkefni er svona grunnverkefni að stafrænni umbreytingu á þessu sviði og spyrja má af hverju ekki var farið fyrr í þá vinnu. Núna loksins er farið að huga að umsýslu myndefnis og miðlunar, 20 milljörðum síðar er loksins verið að fara í að ganga frá grunnatriðunum.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja verkefnið frumathugun á Völu vinnuskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24020007

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja verkefni sem snýr að innkaupum og innleiðingu á miðlægum könnunarhugbúnaði fyrir sérfræðinga á fag- og stoðsviðum borgarinnar, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24010044

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þjónustu- og nýsköpunarsvið óskar heimildar til að hefja verkefnið um innkaup og innleiðingu á miðlægum könnunarhugbúnaði. Þetta er ekki nauðsynleg lausn en kannski ágæt hugmynd. Vissulega er alltaf gott að einfalda verklag. Það er einmitt markmið stafrænnar umbreytingar. Hér sýnist Flokki fólksins einnig sem það eigi að kaupa inn lausn sem er skynsamlegt.

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja frumathugun fyrir verkefnið MÍR-kortið, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON23120025

    Fylgigögn

  21. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja vinnu við safn gagnaþróunarverkefna, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON22100022

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þjónustu- og nýsköpunarsvið sækir um heimild til að hefja verkefnið gagnaverkefni framtíðar, sem hefur þá skilgreiningu að með því eigi að styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku. Það er mjög óskýrt í gögnum hvað nákvæmlega er verið að gera og er þetta fáránlegur peningur sem ætlað er í verkefnið. Þetta er verkefni sem hægt væri að vinna í samstarfi með öðrum, og líklegast eru núna til þjónustur sem sinna þessum hlutum sem hægt væri að kaupa. Verkefnið samanstendur af mörgum smærri verkefnum sem bíða úrlausnar gagnaþjónustunnar á yfirstandandi ári. Kostnaður er 285,6 m.kr. Hér er eitt af mörgum dæmum um hvernig fjármagni er varið í óþarfa og ekki forgangsraðað. Flokkur fólksins spyr hvað sé að frétta af stafrænum lausnum hjá skóla- og frístundasviði. Ætlar þjónustu- og nýsköpunarsvið ekki að axla ábyrgð á að koma því sviði á kort stafrænnar umbreytingar? Í gögnum frá skóla- og frístundasviði segir m.a. að ekki verði hjá því litið að þjónustu- og nýsköpunarsvið beri ábyrgð á upplýsingatækni og gagnastjórnun Reykjavíkurborgar og þjónustu á þeim sviðum. Það er upplifun Flokks fólksins að sviðið sé orðið langþreytt á biðinni en þori lítið að segja.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar árétta að í fundargögnum og kynningu sem fram fór á fundinum var tilgangur tillögunnar vel útskýrður. Þessum verkefnum er ætlað að bæta yfirsýn, auðvelda vinnslu gagna og upplýsingagjöf til íbúa. Þarna má til að nefna upplýsingasíðu vegna forsetakosninga, kort yfir uppbyggingu atvinnuhúsnæðis, skýrari framsetningu á opnum fjármálum og margt fleira.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 29. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja þróunarferli í tengslum við næsta skref í uppbyggingu gagnalandslags Reykjavíkurborgar vegna fjármála- og áhættustýringarsviðs og mannauðs- og starfsumhverfissviðs, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24020017

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þjónustu- og nýsköpunarsvið sækir um heimild til að  hefja verkefnið uppbygging gagnalandslags fjármála- og áhættustýringarsviðs og mannauðs- og starfsumhverfissviðs sem skilgreint er að sé þróunarferli í tengslum við næsta skref í uppbyggingu gagnalandslags Reykjavíkurborgar. Hér er um gæluverkefni að ræða sem kosta á 137 m.kr. Þrátt fyrir allar gagnadeildir sem þjónustu- og nýsköpunarsvið hefur verið með undanfarin ár og fjármagnið sem farið hefur í stafræna umbreytingu, er gagnavinnsla enn óáreiðanleg og óörugg eins og segir í gögnum. Það skorti yfirsýn og fer gagnavinnsla enn að mestu fram í Excel. Í einhverri kynningunni var gagnavinnslu borgarinnar hrósað í hástert. Kallað er hér eftir skynsemi og forgangsröðun. Flokkur fólksins spyr hvað sé að frétta af stafrænum lausnum hjá skóla- og frístundasviði. Ætlar þjónustu- og nýsköpunarsvið ekki að axla ábyrgð á að koma því sviði á kort stafrænnar umbreytingar? Enn í dag vantar mikið af grunnlausnum t.d. á skóla- og frístundasviði en þar hefði stafræn vegferð átt að byrja og í samvinnu við önnur sveitarfélög.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar árétta að í fundargögnum og kynningu sem fram fór á fundinum var tilgangur tillögunnar vel útskýrður. Þessi tillaga snýst um utanumhald og framsetningu gagna, en með núverandi verklagi er mikil handavinna í hreinsun, framsetningu og hagnýtingu gagna. Aðgengi að gögnum er almennt ekki viðunandi og þessu verkefni er ætlað að bæta úr því og auðvelda það utanumhald til framtíðar með því auka sjálfvirkni í vinnslu á tölfræðigögnum, auka öryggi gagnanna og auka möguleika á greiningu og miðlun gagna til annarra sviða borgarinnar sem og út á við. Það er mikilvægt að við alla ákvarðanatöku og stefnumótum sé notast við áreiðanleg og aðgengileg gögn.

    Fylgigögn

  23. Lagður fram dómur Landsréttar í máli nr. 786/2022. MSS22110252

  24. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. mars 2024, vegna forsetakosninga sem fara fram þann 1. júní nk. með tillögu að umboði til borgarráðs.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS23050177

    Fylgigögn

  25. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. mars 2024, vegna forsetakosninga sem fara fram þann 1. júní nk. með tillögu að þóknunum til kjörstjórna.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS23050177

    Fylgigögn

  26. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. mars 2024, með tillögu að kjörstöðum vegna forsetakosninga sem fara fram þann 1. júní nk. ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS23050177

    Fylgigögn

  27. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um innleiðingu smáforritsins Bara tala hjá Reykjavíkurborg, sbr. 48. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. júní 2023. Einnig lögð fram umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 4. mars 2024. MSS23060218
    Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. 
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að borgarráð samþykkti að kaupa aðgang fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar að smáforritinu Bara tala sem er stafrænn íslenskukennari. Þar sem ekkert svar barst svo mánuðum skiptir lagði Flokkur fólksins fram fyrirspurn um hvað væri að frétta af málinu. Nú loks hefur borist svar og í ljós kemur að farið var að skoða málið og fá þennan aðgang. Fræðslusjóðir stéttarfélaga styrkja verkefnið. Bara tala er góð viðbótarleið til að efla íslenskukunnáttu meðal starfsfólks af erlendum uppruna. Flokkur fólksins hefði viljað að borgin keypti þennan aðgang án tillits til hvort stéttarfélögin styrktu það. Það er gríðarlega mikilvægt að beita öllum brögðum til að viðhalda notkun íslenskunnar og því vel þess virði að setja í það fjármagn. Boðið er upp á grunnnámskeið og vinnusértækt efni í forritinu þannig að námsefnið er miðað að þörfum starfsfólks. Það þýðir að starfsmaður á leikskóla fær ekki sama námskeið og starfsmaður í sundlaug. Íslenskukunnátta fólks af erlendum uppruna er lykillinn að farsæld, hamingju og framgangi þeirra í okkar þjóðfélagi.

    Fylgigögn

  28. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um aðgang Reykjavíkurborgar að forritinu Bara tala, sbr. 35. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. febrúar 2024. MSS23060218

    Lagt fram svohljóðandi svar: 

    Tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um innleiðingu smáforritsins Bara tala hjá Reykjavíkurborg, sbr. 48. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. júní 2023 ásamt umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 4. mars 2024 var lögð fram á fundi borgarráðs 7. mars 2024. Tillögunni var vísað frá á fundinum. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirspurnin var lögð fram á fundi borgarráðs 29. júní 2023 og var á þá leið hvort borgin hafi keypt aðgang að forritinu og ef svo er, hvort það væri komið í framkvæmd. Í framhaldi hafa hjólin greinilega farið að snúast en samt hefur ekki borist svar fyrr. Nú liggur fyrir að farið var að skoða aðgang að þessu ágæta forriti.

    Fylgigögn

  29. Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 29. febrúar 2024. MSS24010035

    Fylgigögn

  30. Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 27. febrúar 2024. MSS24010003

    Fylgigögn

  31. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 28. febrúar 2024. MSS24010005

    Fylgigögn

  32. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Háaleitis og Bústaða frá 27. febrúar 2024. MSS24010013

    Fylgigögn

  33. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 28. febrúar 2024. MSS24010015

    Fylgigögn

  34. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Vesturbæjar frá 26. febrúar 2024. MSS24010017

    Fylgigögn

  35. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19. janúar og 7. febrúar 2024. MSS24010026

    Fylgigögn

  36. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 6. mars 2024.
    3. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS24010031

    Fylgigögn

  37. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 10 mál. MSS24030019

    Fylgigögn

  38. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS24030011

    Fylgigögn

  39. Fram fer kynning á langtímahættumati Reykjanesskaga vestan Kleifarvatns og höfuðborgarsvæðisins.

    -    Kl. 11:40 víkur Líf Magneudóttir af fundinum. 

    Bergrún Arna Óladóttir, Jón Viðar Matthíasson og Haraldur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. Borgarfulltrúarnir Andrea Helgadóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Þórðardóttir, Hjálmar Sveinsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Þorvaldur Daníelsson taka einnig sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24020152

  40. Samþykkt að taka svohljóðandi ályktunartillögu borgarráðs á dagskrá: 

    Borgarráð ályktar að Reykjavíkurborg vilji greiða fyrir gerð kjarasamninga til fjögurra ára sem miða að því að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Reykjavíkurborg telur að hófsamir kjarasamningar með þessu markmiði feli í sér miklar kjarabætur fyrir alla íbúa. Reykjavíkurborg er því tilbúin að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga sem felur í sér að Reykjavíkurborg haldi aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum, taki þátt í því með stjórnvöldum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla og tryggi að auki að skólamáltíðir í grunnskólum verði gjaldfrjálsar með 75% greiðsluþátttöku ríkisins út samningstímabilið.

    Samþykkt. MOS23040009
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja rétt að Reykjavíkurborg greiði fyrir gerð kjarasamninga til fjögurra ára með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Hófsamir kjarasamningar með þessu markmiði munu fela í sér miklar kjarabætur fyrir alla íbúa. Telja fulltrúar Sjálfstæðisflokks rétt að Reykjavíkurborg taki þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga sem felur í sér að Reykjavíkurborg haldi aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum og taki þátt í því með stjórnvöldum að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Fulltrúarnir telja þó rétt að leita annarra leiða til að tryggja barnafjölskyldum kjarabætur og velferð, en í gegnum gjaldfrjálsar skólamáltíðir grunnskólabarna.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins tekur undir þessa ályktun og vonar innilega að skrifað verði undir kjarasamninga sem fyrst. Hins vegar hefði fulltrúi Flokks fólksins vilja sjá í þessari yfirlýsingu hversu mikið á halda aftur af gjaldskrárhækkunum. Hvaða prósentu er er verið að tala um hér? Flokkur fólksins hefur mótmælt harðlega gjaldskrárhækkunum síðustu ára sem verst hafa komið niður á bágstöddum. Gjaldskrárhækkanir hafa auk þess farið beint út í verðlagið.

  41. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Óskað er yfirlits yfir allar utanferðir kjörinna fulltrúa á yfirstandandi kjörtímabili og upplýsinga um þann heildarkostnað sem hlýst af hverri ferð fyrir borgarsjóð.

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. MSS24030050

  42. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir samantekt á fyrirspurnum sem enn er ósvarað og tillögum sem enn eru óafgreiddar sem lagðar hafa verið fram af Flokki fólksins á þessu og/eða síðasta kjörtímabili sem vísað hefur verið til meðferðar stafræns ráð.

    Vísað til meðferðar stafræns ráðs. MSS24030045

  43. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvaða tekjur hefur Reykjavíkurborg haft af Bragganum síðastliðin 3-5 ár og hver hefur kostnaðurinn verið á sama tíma? Hvaða framkvæmdir eru yfirstandandi á húsinu?

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. MSS24030046
    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. 

    Fylgigögn

  44. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir sundurliðuðum upplýsingum um nám, námskeið og námsferðir á kostnað Reykjavíkurborgar, á vegum þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem og forvera þess á skrifstofu þjónustu og reksturs. Óskað er upplýsinga um kostnað per námskeið, nám, ferðir sem og annan afleiddan kostnað eins og dagpeninga þegar við á. Einnig er óskað eftir upplýsingum um kostnað þjónustu- og nýsköpunarsviðs og skrifstofu þjónustu og reksturs við stjórnendaráðgjöf frá upphafi. Óskað er upplýsinga um hvaða stjórnendur hafa fengið slíka ráðgjöf og hversu mikið hún kostaði hjá hverjum og einum.

    Vísað til meðferðar stafræns ráðs. MSS24030047

  45. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Á bls. 5 í skýrslunni Gagnastefna og fyrirkomulag gagnamála, stöðuskýrsla, frá 2018 koma fram helstu markmið sem átti að ná fyrir 2022. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um af hverju er ekki enn búið að vinna þá forvinnu sem átti að vera lokið 2020 og 2022 s.s.: Að búið sé að kortleggja allar tengingar á milli kerfa í borginni, að búið sé að fækka vistunarstöðum um 50%, að samræmd vinnubrögð verði innleidd og að öll gögn verði birt sem opin gögn, nema ríkar ástæður s.s. lög um persónuvernd hamli slíku. Þessu er ekki lokið og nú er árið 2024. Hver eru rekstrarmarkmið, þróunarmarkmið og þjónustumarkmið fyrir árið 2024 og hvaða tímamörk eiga við þau?

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. MSS24030049
    Vísað til meðferðar stafræns ráðs.

    Fylgigögn

  46. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hver verður sparnaður af niðurlagningu Borgarskjalasafns og flutnings gagna þess á Þjóðskjalasafn þegar búið verður að samþykkja lög (drög að frumvarpi til laga liggur nú fyrir), sem kveða á um að þegar skjöl sveitarfélags eru afhent Þjóðskjalasafni Íslands skal greiða fyrir móttöku þeirra, vörslu, ráðgjöf um skjalahald og eftirlit samkvæmt gjaldskrá?

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. MSS24030048

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:30

Dagur B. Eggertsson Alexandra Briem

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Hildur Björnsdóttir

Kjartan Magnússon Pawel Bartoszek

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 07.03.2024 - Prentvæn útgáfa