Borgarráð - Fundur nr. 5734

Borgarráð

Ár 2024, fimmtudaginn 8. febrúar, var haldinn 5734. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson, Alexandra Briem, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Björg Magnúsdóttir, Ebba Schram, Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Bjarni Þóroddsson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt til að Árelía Eydís Guðmundsdóttir verði varaformaður borgarráðs í stað Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur.
    Samþykkt. MSS22060043

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 1. febrúar 2024, sbr. synjun umhverfis- og skipulagsráðs frá 31. janúar 2024 á tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.140.5 vegna lóðarinnar nr. 13-15 við Pósthússtræti, ásamt fylgiskjölum.
    Synjun umhverfis- og skipulagsráðs er staðfest.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23100149

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. janúar 2024, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 17. janúar 2023 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vallár á Kjalarnesi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23010259

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks undirstrika mikilvægi þess að tillit verði tekið til sjónarmiða íbúa á svæðinu sem hafa áhyggjur af neikvæðum umhverfisáhrifum og mögulegum heilsuspillandi áhrifum starfseminnar á íbúa. Tryggja þarf örugga vöktun með hugsanlegri lyktarmengun af völdum stækkunarinnar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að stækka eigi svæðið fyrir hænsnin svo betur fari um þau. Hætta á notkun búra en á sama tíma. Nokkrar áhyggjur eru þó af því að tvöfalda á fjölda fugla. Þetta hlýtur að vera allt í samræmi við dýraverndunarlög og -sjónarmið. Eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins sér í gögnum eru helstu athugasemdir um lyktarmengun vegna stækkunar Stjörnueggja. Í ljósi þess að óvissa er um áhrif stækkunarinnar á lyktarmengun telur Umhverfisstofnun rétt að tekið verði tillit til þess við gerð skilmála deiliskipulagsins. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir það og einnig að gerð verði skoðun á umhverfisáhrifum þegar fram líða stundir sbr. bókun íbúaráðs Kjalarness.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2024, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðan samning við mennta- og barnamálaráðuneytið um starfsemi PMTO miðstöðvar, dags. 18. janúar 2024. Samningurinn gildir til 31. desember 2025. Framlag mennta- og barnamálaráðuneytisins til verkefnisins er fjárframlag að upphæð kr. 53.000.000. Framlag Reykjavíkurborgar er framkvæmd og utanumhald verkefnisins samkvæmt samningnum og vinnuframlag starfsmanna. Reykjavíkurborg ábyrgist að framlaginu verði einungis varið til verkefnis samnings þessa. Framlag borgarinnar að öðru leyti felst í vinnuframlagi velferðarsviðs sem rúmast innan fjárheimilda sviðsins.

    Samþykkt.

    Helgi Grímsson, Eiríkur Björn Björgvinsson og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24010141

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja tillöguna í trausti þess að hún feli ekki í sér aukin útgjöld fyrir Reykjavíkurborg.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessum samstarfssamningi mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um starfsemi PMTO miðstöðvar. Flokkur fólksins lagði til 5. desember 2023 að borgarstjórn samþykkti að auka framboð námskeiða í PMTO foreldrafærni (Parent Management Training) og fjölmargra annarra námskeiða sem staðfest hefur verið að eru að gagnast börnum og foreldrum með ómetanlegum hætti. Lagt var til að lagðar yrðu 14 m.kr. til verkefnisins. Tillagan var felld af meirihluta borgarstjórnar. Biðlistar eftir að komast á námskeið eins og þetta eru í sögulegu hámarki sem er miður því að PMTO foreldrafærninámskeiðin eru talin sérlega hjálpleg. Á þessum námskeiðum er farið í gegnum nauðsynlegar grunnreglur, t.d. reglur um skjátíma og hvíld og svefntíma barna. Það þarf að styðja betur við foreldra í uppeldishlutverkinu og hefur verið lengi brýnt að víkka út úrræðið PMTO sem hefur gefið góða raun. Það hefur verið erfitt að horfa upp á hve biðlistar á námskeiðið eru langir þegar fyrir liggur hversu gagnleg þau eru foreldrum og börnum.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2024, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðan samning við mennta- og barnamálaráðuneytið um skipulagt ungmennastarf í Breiðholti, dags. 18. janúar 2024. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2024. Framlag mennta- og barnamálaráðuneytisins til verkefnisins samkvæmt samningnum er fjárframlag að upphæð kr. 8.500.000 kr. Framlag Reykjavíkurborgar til verkefnisins samkvæmt samningnum er framkvæmd og utanumhald verkefnis samnings þessa og vinnuframlag starfsmanna. Reykjavíkurborg ábyrgist að framlaginu verði einungis varið til verkefnis samnings þessa. Verkefnið er á ábyrgð skóla- og frístundasviðs í samstarfi við menningar- og íþróttasvið og Hitt húsið. Framlag borgarinnar að öðru leyti felur í sér vinnuframlag skóla- og frístundasviðs, menningar- og íþróttasviðs og Hins Hússins, sem rúmast innan fjárheimilda.

    Samþykkt.

    Helgi Grímsson, Eiríkur Björn Björgvinsson og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24010142

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja tillöguna í trausti þess að hún feli ekki í sér aukin útgjöld fyrir Reykjavíkurborg.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessum samningi mennta- og barnamálaráðuneytis borgarinnar um skipulagt ungmennastarf í Breiðholti. Meginmarkmið samningsins er að auka aðgengi barna og ungmenna á aldrinum 16-25 ára að skipulögðu frístunda- og félagsstarfi í Breiðholti m.a. til að stemma stigu við ofbeldi og áhættuhegðun ungmenna. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað reynt að vekja athygli meirihlutans á auknu ofbeldi meðal ungmenna og ekki síst þar sem hnífaburður kemur við sögu. Minnt er á tillögu Flokks fólksins frá 2023 um að Reykjavíkurborg sendi bréf til foreldra og forráðamanna vegna aukins hnífaburðar barna og ungmenna líkt og það sem menntasvið Kópavogsbæjar sendi foreldrum grunnskólabarna í upphafi skólaárs. Tillagan var felld af meirihlutanum. Dæmi um hnífaburð barna í skólum eru til í Reykjavík og því full ástæða til að upplýsa foreldra og forráðamenn um þær reglur sem eru í gildi um að bera hníf á sér í skóla- og félagsmiðstöðvastarfi borgarinnar. Í bréfinu myndu foreldrar vera hvattir til að eiga samtal við börnin um að það sé stranglega bannað að bera hníf á sér í skóla- og félagsmiðstöðvastarfi og öðrum stofnunum.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2024, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðan samning við mennta- og barnamálaráðuneytið um stuðning við unga innflytjendur, dags. 18. janúar 2024. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2024. Framlag mennta- og barnamálaráðuneytisins til verkefnisins samkvæmt samningnum er fjárframlag að upphæð kr. 4.737.000. Framlag Reykjavíkurborgar er framkvæmd og utanumhald verkefnisins og vinnuframlag starfsmanna. Reykjavíkurborg ábyrgist að framlaginu verði einungis varið til verkefnis samningsins. Verkefnið er á ábyrgð velferðarsviðs í samstarfi við menningar- og íþróttasvið og Hitt húsið. Framlag borgarinnar að öðru leyti felur í sér vinnuframlag velferðarsviðs, menningar- og íþróttasviðs og Hins hússins, sem rúmast innan fjárheimilda.

    Samþykkt.

    Helgi Grímsson, Eiríkur Björn Björgvinsson og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24010143

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja tillöguna í trausti þess að hún feli ekki í sér aukin útgjöld fyrir Reykjavíkurborg.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2024, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðan samning við mennta- og barnamálaráðuneytið um vettvangsstarf Flotans, dags. 18. janúar 2024. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2024. Framlag ráðuneytisins til verkefnisins samkvæmt samningi þessum er fjárframlag að upphæð kr. 10.000.000. Framlag Reykjavíkurborgar til verkefnisins samkvæmt samningnum er framkvæmd og utanumhald verkefnisins og vinnuframlag starfsmanna. Reykjavíkurborg ábyrgist að framlaginu verði einungis varið til verkefnis samningsins. Framlag borgarinnar að öðru leyti felur í sér vinnuframlag skóla- og frístundasviðs sem rúmast innan fjárheimilda sviðsins.

    Samþykkt.

    Helgi Grímsson, Eiríkur Björn Björgvinsson og Rannveig Einarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24010144

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja tillöguna í trausti þess að hún feli ekki í sér aukin útgjöld fyrir Reykjavíkurborg.

    Fylgigögn

  8. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-4081/2023. MSS22080086

  9. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-1208/2023. MSS23020069

  10. Fram fer kynning á borgarstefnu í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036.

    Ingvar Sverrisson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
    Ólöf Örvarsdóttir og Óli Örn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24020025

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarstefna setur fram og stuðlar að framtíðarsýn, þróun og eflingu tveggja borgarsvæða á Íslandi, Reykjavíkur og Akureyrar. Íbúafjöldi svæðanna beggja er um 90 prósent landsmanna og því brýnt að styðja áfram við sjálfbæra framþróun svæðanna í efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu samhengi. Meirihluti borgarstjórnar styður þá vinnu heilshugar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þetta er þörf umræða og tengist á vissan hátt lið nr. 11, sameiginlegri þróunaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurnes, Suðurland og Vesturland.Þarft væri að sameina byggðir á svæðinu Hvalfjörður til Hellisheiðar og að sama skapi ætti að sameina byggðir við Eyjafjörð, byggðir við Skagafjörð og Húnaflóa, alla Vestfirði, vestur-, suður- og austurland. Miða þarf við að atvinna sé sameiginleg og þá er hægt að mynda öfluga byggðarkjarna sem geta verið eins sjálfstæðir og höfuðborgarsvæðið. Mælanleg markmið er það sem skiptir mestu og svo auðvitað að ákveða hvaða aðgerðir skuli fara í og hvernig skuli forgangsraða þeim.

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2024:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að beina því til Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að þau beiti sér fyrir samstarfi um að unnin verði þróunaráætlun fyrir suðvesturhorn Íslands, frá Hvítá til Hvítár, til ársins 2050.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS22040012

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að samfélagsleg framtíðarsýn verði ráðandi í þessari áætlun og þar þarf t.a.m. að leita eftir sjónarmiðum íbúa.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér er í undirbúningi enn ein byggðasamlagsstofnunin. Um er að ræða þróunaráætlun fyrir suðvesturhorn Íslands, frá Hvítá til Hvítár, til ársins 2050. Fulltrúi Flokks fólksins hugsar hvort ekki komi til mála að vinna að sameiningu þeirra sveitarfélaga sem eru á suðvesturhorninu og stefna að því að verða sameiginlegt vinnu- og menningarsvæði. Rétt er þó að benda á að Hellisheiði er eðlilegri sem mörk sveitarfélaga frekar en Ölfusá sem er kölluð Hvítá í gögnum og Hvalfjörður er eðlilegri markalína en Hvítá í Borgarfirði. Nú á dögum eru ár ekki farartálmi eins og á fyrri öldum. Af fenginni reynslu af byggðasamlögum má búast við því að vægi Reykvíkinga verði lítið og í engu samræmi við fólksfjölda. Málið er vissulega þarft en langeinfaldast væri að sameina sveitarfélögin. Þá væru allir jafnir.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2024:

    Lagt er til að skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verði falið að hefja viðræður við Ísold fasteignafélag um lóðarvilyrði vegna þróunar á atvinnuhúsnæði við lóðina Krókháls 20-22. Auglýst var eftir samstarfsaðila um þróun lóðarinnar og reyndist tilboð Ísoldar hagstæðast. Niðurstöður viðræðnanna verði lagðar fyrir borgarráð til samþykktar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Óli Örn Eiríksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22090183

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2024:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Einar Þorsteinsson borgarstjóra í stjórn Vestnorræna höfuðborgarsjóðsins Nuuk-Reykjavík-Tórshavn til loka kjörtímabilsins.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS22030131

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 2. febrúar 2024, varðandi áætlaðar tímasetningar vegna mánaðar- og árshlutauppgjöra 2024, ásamt fylgiskjölum. FAS23120033

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 2. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki kaupsamning um sölu á eigninni Hallgerðargata 1, íbúð 209, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
    Þórdís Lóa Þórhallsdóttir víkur af fundinum undir þessum lið. FAS23080004

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 5. febrúar 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðauka I við húsaleigusamning um leigu á leikskólahúsnæði að Barónsstíg 34, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23030058

    Fylgigögn

  17. Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 1. febrúar 2024. MSS24010035

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 7., 8. og 9. lið fundargerðarinnar:

    Fulltrúi Flokks fólksins er glaður að sjá fyrirspurnir aðgengis- og samráðsnefndar um hvort Reykjavíkurborg hafi einhver viðmið á hönnun stólpa á milli gangstétta og gatna í borgarlandinu, með tilliti til sýnileika þeirra. Þessir lágu stólpar geta valdið sjónskertu og blindu fólki verulegum vandræðum og jafnvel meiðslum. Jafnframt er spurt um hvort útbúnar hafi verið leiðbeiningar fyrir blinda og sjónskerta varðandi notkun á nýju snertilausu skápakerfi, því sem búið er að setja upp í Dalslaug og verið er að setja upp í Sundhöll Reykjavíkur. Loks hvort Reykjavík sé með leiðbeiningar um rit- og táknmálstúlkun á opnum viðburðum á vegum borgarinnar og ef svo er, hverjar þær eru. Þetta eru góðar fyrirspurnir og til fyrirmyndar að aðgengis- og samráðsnefnd skuli leggja fram þessar fyrirspurnir.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 30. janúar 2024. MSS24010005

    Fylgigögn

  19. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 16. og 22. janúar 2024. MSS24010029

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. febrúar 2024.
    5. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS24010031

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 7. lið fundargerðarinnar:

    Í ársskýrslunni er það staðfest að ekki nóg hafi verið byggt síðustu ár. Mest var byggt 2018 þegar bygging hófst á 1.417 nýjum íbúðum. Verulegur samdráttur er í útgáfu byggingarleyfa síðustu ár. Fæst voru byggingarleyfin árið 2023 og hafa þau ekki verið færri síðan 2013. Þetta staðfestir að ekki hefur verið nægjanlega vel haldið á spilunum þegar kemur að byggingu nýrra íbúða. Þetta staðfestir einnig að mikill íbúðaskortur er fyrirsjáanlegur á næstunni. Fjölbýlishús eru ríkjandi og sýnt er að aðferðin, að fólk geti byggi sjálft yfir sig, er hverfandi. Þar með hverfur einn þáttur úr kerfinu sem gat haldið niðri fasteignaverði. Nú ráða verktakafyrirtæki verði á húsum. Mikilvægt er að lóðarhafar undirgangist skilyrði um að byggja á lóðum innan ákveðins tíma ella skili þeim. Því miður hafa einhverjir lóðaeigendur litið á lóðirnar sem fjárfestingu og eina takmark þeirra er að bíða þar til þeir fá hærra verð fyrir lóðina. Slíkt atferli gengur ekki nú þegar svo illa árar á húsnæðismarkaði auk þess að ekki gengur að líta á lóðir sem einhvers konar fjárfestingavöru því það fer beint út í verðlag íbúða og veldur miklum kostnaði í samfélaginu. Uppbyggingu húsnæðis verður að taka alvarlega í þessum mikla húsnæðisskorti sem nú ríkir í borginni.

    Fylgigögn

  21. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls fjögur mál. MSS24010231

    Fylgigögn

  22. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS24010230

    Fylgigögn

  23. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 26. janúar 2024, sbr. samþykkt forsætisnefndar frá 19. janúar 2024 á verklagsreglum um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum. MSS23090170

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins var með athugasemdir við tillöguna sem sneru að 3. gr. þar sem fram kom að ekki mætti lengur hafa formála að fyrirspurnum. Flokki fólksins finnst það ómögulegt enda er stundum nauðsynlegt að hafa nokkur orð um af hverju verið sé að leggja fram ákveðna fyrirspurn. Mikilvægt er að hafa sveigjanleika en ekki njörva niður hvert einasta atriði. Með því að loka fyrir möguleika á stuttum útskýringum með fyrirspurnum eða tillögum er ekki verið að einfalda neitt. Rök meirihlutans eru veikburða og er vísað til skýrleika. Stuttur formáli er einmitt liður í að gera fyrirspurn skýra og kallar varla á miklar tafir á afgreiðslu málsins eins og meirihlutinn fullyrðir. Ef horft er sérstaklega til umhverfis- og skipulagsráðs eru reglur um verklag mála ekki alltaf í samræmi við sambærilegar reglur í öðrum málum. Í umhverfis- og skipulagsráði er meiri ferköntun ef svo má að orði komast. Bókanir eru frekar ritskoðaðar og jafnvel er minnihlutafulltrúum meinað að bóka þar sem það er leyft í öðrum ráðum. Dæmi um þetta er að minnihlutafulltrúum er bannað að bóka við mál sem er framvísað en slíkt bann á ekki við í öðrum ráðum.

    Fylgigögn

  24. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að óska eftir því við stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og/eða stjórnir dótturfélaga Orkuveitu Reykjavíkur, eftir því sem við á, að öllum trúnaði um nýlega skýrslu innri endurskoðunar og ráðgjafar varðandi úttekt á stjórnarháttum og miðlun upplýsinga og samstæðu verði aflétt og að borgarstjórn verði í kjölfarið veittur aðgangur að henni. MSS24020040

    Frestað.

Fundi slitið kl. 10:47

Dagur B. Eggertsson Alexandra Briem

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Hildur Björnsdóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 08.02.2024 - Prentvæn útgáfa