Borgarráð - Fundur nr. 5705

Borgarráð

Ár 2023, fimmtudaginn 25. maí, var haldinn 5705. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem, Heiða Björg Hilmisdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Baldursdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Diljá Ragnarsdóttir, Hulda Hólmkelsdóttir, Theódór Kjartansson og Þorsteinn Gunnarsson. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 23. maí 2023, þar sem yfirlit innleiðingar húsnæðisáætlunar Græna plansins á fjórða ársfjórðungi ársins 2022 og ársins í heild er lagt fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum.

    Óli Örn Eiríksson og Hilmar Hildar Magnúsarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Kl. 9:25 tekur Marta Guðjónsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti. MSS22020087

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er algjört lykilatriði að halda áfram húsnæðisuppbyggingu á landinu. Reykjavíkurborg er með metnaðarfulla húsnæðisáætlun sem miðar að því að vera áfram leiðandi í þeirri uppbyggingu sem er nauðsynleg. Með samkomulagi ríkis og borgar frá 5. janúar 2023, skuldbatt Reykjavíkurborg sig til þess að vera með lóðir fyrir 1500-3000 íbúðir tilbúnar til uppbyggingar á hverjum tíma. Í árslok 2022 voru 2478 íbúðir í byggingu og byggingarhæfar lóðir fyrir 2219 íbúðir til viðbótar. Þess ber að geta að nú eru stór svæði að verða tilbúin til uppbyggingar, svo sem á Ártúnshöfða í kringum Krossamýrartorg. Það er gífurlega mikilvægt að tryggja að ytri skilyrði styðji við að mögulegt sé að byggja á þeim lóðum sem eru uppbyggingarhæfar hratt og vel. Hátt vaxtastig er þar áhyggjuefni og því ber að halda til haga að án uppbyggingar mun vandi aukast á húsnæðismarkaði vegna hraðrar fjölgunar borgarbúa. Þannig er mikilvægt að tilraunir til að stemma stigu við verðbólgu vinni ekki gegn því að hægt sé að fjármagna nauðsynlega húsnæðisuppbyggingu.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Yfir 1.000 manneskjur bíða eftir húsnæði hjá borginni. 797 bíða eftir almennu félagslegu leiguhúsnæði, þar af 197 barnafjölskyldur þar sem meðalbiðtíminn á síðasta ári var næstum eitt og hálft ár eða 16 mánuðir. Staðan á leigumarkaði er gríðarlega erfið og margar fjölskyldur og margt fólk kemst ekki einu sinni á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði þrátt fyrir að búa við erfiðar fjárhagslegar og félagslegar aðstæður. Laga verður leigumarkaðinn að þörfum þeirra sem þurfa á öruggu húsnæði á að halda og uppbygging þarf að fara fram á félagslegum forsendum. Samkomulag Reykjavíkurborgar, innviðaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um aukið framboð íbúðarhúsnæðis 2023-2032 (samþykkt 5. janúar sl.) felur í sér að hafist verði handa við að byggja 2.000 íbúðir á ári á næstu fimm árum. Árið 2022 var lokið við byggingu 1.034 íbúða. Ljóst er að miðað við stöðuna í fyrra þarf að bæta verulega í uppbyggingu. Fulltrúi sósíalista ítrekar mikilvægi þess að ekki er nóg að byggja, heldur þarf áherslan að vera á félagslega uppbyggingu. Reykjavíkurborg áætlar að úthluta lóðum undir 1.131 íbúð árið 2023, lóðir undir 586 íbúðir verða seldar í útboði, þar sem sú regla er ráðandi að lóðin fer til hæstbjóðenda, sem hefur síðan áhrif á húsnæðisframboð og verð.
     
    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Meirihlutinn leggur fram til kynningar yfirlit innleiðingar húsnæðisáætlunar á fjórða ársfjórðungi ársins 2022 og ársins í heild. Farið er yfir hve margar íbúðir hafa verið byggðar. Ekkert er talað um hversu mikið þarf að byggja til að að hægt sé að bjóða upp á húsnæðisöryggi í Reykjavík. Sárlega vantar lóðir fyrir félög eins og Bjarg og Blæ sem eru tilbúin að byggja hagkvæmt leiguhúsnæði. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta hálfgerð montskýrsla því eins og allir vita sem vilja vita þá ríkir neyðarástand í Reykjavík. Þær tölur sem varpað er fram í þessari skýrslu hafa því frekar litla þýðingu eins og er. Það vantar húsnæði! Þétting byggðar í kringum borgarlínu er í forgangi hjá þessum meirihluta á meðan stór hópur fólks nýtur ekki húsnæðisöryggis og enginn sér sem stendur að borgarlína sé að hefja akstur í nánustu framtíð. Í raun er fulltrúi Flokks fólksins orðinn þreyttur á svona skýrslum. Fólk hrópar á hjálp eftir öruggu húsaskjóli og að komast ferðar sinnar án stórkostlegra tafa. Það er eins og meirihlutinn sé í afneitun fyrir ástandinu og notar fagurgala til að viðhalda afneituninni.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. maí 2023, þar sem áfangaskýrsla Græna plansins fyrir júlí-desember 2022 er lögð fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum.

    Óli Örn Eiríksson og Hilmar Hildar Magnúsarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22030045

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Lögð er fram til kynningar áfangaskýrsla Græna plansins fyrir júlí-desember 2022. Ef horft er á skýrsluna sem slíka er varla hægt að kalla þetta áfangaskýrslu. Þarna eru framtíðaráætlanir tíundaðar sem allar hafa komið fram áður. Skýrslan er endurtekning fyrri áfangaskýrslna. Það sem hefur verið gert að undanförnu og telst markvert er óljóst.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. maí 2023, þar sem drög að erindisbréfi starfshóps um hringrásarhagkerfið á höfuðborgarsvæðinu eru lögð fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum.

    Óli Örn Eiríksson og Hilmar Hildar Magnúsarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS23050115

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Lagt er fram erindisbréf starfshóps um hringrásarhagkerfi á höfuðborgarsvæðinu og hvað sá hópur á að gera. Ýmsar tillögur eru á borðinu sem tengjast hringrásarhagkerfinu sem vænst er að fái afgreiðslu og meðferð. Sumar eru sjálfsagt mál og ættu að vera löngu komnar í virkni s.s. aðgerð um endurnýtingu  malbiks sem skafið hefur verið af götum sem og steypubrot sem fellur til við niðurrif húsa svo eitthvað sé nefnt. Þetta hafa nágrannaþjóðir þegar gert, þekking er fyrir hendi sem ætti að vera sérfræðingum Reykjavíkurborgar vel kunn. Fulltrúi Flokks fólksins verður að nefna hér liðinn í erindisbréfinu sem hefur titilinn: „Til ráðgjafar og samstarfs“ þar sem hópurinn er nánast hvattur til að leita sér ráðgjafar utan borgarkerfisins. Látið er eins og allir þeir sem skipa hópinn viti lítið og þurfi ráðgjöf. Ráðgjafakaup eru löngu ofnotuð hjá borginni og tugir milljóna streyma til slíkra fyrirtækja ár hvert. Ráðgjafarfyrirtæki eiga ekki að stjórna borginni. Flokkur fólksins hvetur hópinn til að nýta eigin dómgreind og muna að verið er að sýsla með fjármuni borgarbúa. 

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. maí 2023, þar sem drög að erindisbréfi starfshóps um hröð orkuskipti í Reykjavík eru lögð fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum.

    Óli Örn Eiríksson og Hilmar Hildar Magnúsarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS23050106

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Erindisbréf starfshóps um hröð orkuskipti í Reykjavík er hér lagt fram. Hér er um sjálfsagt mál að ræða, en aftur, sporin hræða. Hér þarf að gæta hófs og hleypa ekki ráðgjafarfyrirtækjum að taumlaust. Borgarstarfsmenn eiga að ráða við svona verkefni óstuddir. Í hverju einasta erindisbréfi sem gefið er út af borgarstjóra er nánast eins og að leita ráðgjafar hjá rándýru ráðgjafarfyrirtæki sé skylda.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. maí 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð staðfesti stafræna húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar til næstu 10 ára. Áætlunin er nú lögð fram í annað sinn en hún er sem fyrr unnin að frumkvæði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) með það að markmiði að staðla og koma húsnæðisáætlunum allra sveitarfélaga á Íslandi á stafrænt form og auðvelda þannig samanburð og aðgengi allra aðila á húsnæðismarkaði.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Hermann Jónasson, Elmar Elmarsson og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. Guðmundur Arngrímsson, Óli Örn Eiríksson og Hilmar Hildar Magnúsarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22110233

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Áætlað er að það þurfi 35.000 nýjar íbúðir næsta áratug til að mæta húsnæðisþörfinni. Ef umsamin hlutdeild borgarinnar á að vera 36% í áætlunum um árlega fjölgun er borgin enn eitt árið komin í skuld eftir árið 2022. Stafræn skýrsla HMS lyftir grettistaki í að greiða úr upplýsingaóreiðunni sem einkennt hefur uppbyggingartölur frá Reykjavíkurborg. Það sem gildir er fjöldi nýrra íbúða á markaði í Reykjavík, sem eru einungis 322 á þessu ári, sem er langt undir markmiðum ársins og ólíklegt að þau náist upp úr þessu. Að öllu óbreyttu mun uppsöfnuð þörf halda áfram að vaxa. Mælingar HMS sýna einnig að uppsöfnuð grunnþjónustuþörf er gríðarleg. Það þyrfti að fara tafarlaust í sérstakt átak til að fjölga grunnskólum og leikskólum til að bregðast við þörfinni en slíkt er ekki á döfinni. Seinast en ekki síst er í húsnæðisáætlun borgarinnar sérstaklega meðtalinn sá íbúðafjöldi sem meirihlutinn sér fyrir sér að byggja upp við Reykjavíkurflugvöll og á landfyllingu. Þetta er gott dæmi um óskhyggjuna í áætlunargerð borgarinnar því þau áform eru gríðarlega umdeild og alls óvíst að af þeim verði. Á þessum forsendum geta borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki samþykkt húsnæðisáætlunina enda ótækt að samþykkja aðgerðir sem vega að flugöryggi og valda óafturkræfum náttúruskaða.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljoðandi bókun: 

    Gott er að hafa upplýsingar um íbúðarhúsnæði á stafrænu formi en til þess að leysa húsnæðiskreppuna þarf að byggja á félagslegum forsendum í stað þess að vinna áfram innan markaðsforsenda þar sem miðað er við óbreytt prósentuhlutfall félagslegs leiguhúsnæðis og viðmið um húsnæði sem telst á viðráðanlegu verði er hækkað lítillega hjá borginni. Fulltrúi sósíalista styður að tölulegar upplýsingar um fjölda íbúða verði settar á starfrænt form en mikilvægast af öllu er að húsnæðisáætlanir miði við að byggja á félagslegum forsendum. Á síðustu árum hafa áætlanir borgarinnar miðað við að stefnt verði að því að um 25% íbúða verði á vegum húsnæðisfélaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni. Með samkomulagi Reykjavíkurborgar, innviðaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um aukið framboð íbúðarhúsnæðis 2023-2032 (samþykkt 5. janúar sl.) er miðað við að 30% íbúðanna verði hagkvæmar á viðráðanlegu verði og 5% félagslegar í eigu sveitarfélagsins. Hlutfallið um félagslegt íbúðarhæðsnæði hækkar því ekki neitt og hlutfallið um íbúðir á viðráðanlegu hækkar lítillega. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn leggur til að borgarráð staðfesti stafræna húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar til næstu 10 ára en áætlunin er unnin að frumkvæði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Fulltrúi Flokks fólksins telur að HMS eigi að sjá um þessa áætlun ein og sér að mestu með Reykjavík á hliðarlínu að sjálfsögðu enda hefur HMS sýnt að það sem kemur frá henni er nákvæmt og vel skilgreint. Óþarfi er að borgin sé að gera þetta líka enda um tvíverknað að ræða. HMS er með þetta vel í hendi sér. Markmiðið er að staðla og koma húsnæðisáætlunum allra sveitarfélaga á Íslandi á stafrænt form og auðvelda þannig samanburð og aðgengi allra aðila á húsnæðismarkaði.

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á stöðunni á leigumarkaði og á skýrslu Samtaka leigjenda á Íslandi um íslenskan leigumarkað, dags. apríl 2023.

    Hermann Jónasson, Elmar Elmarsson og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. Guðmundur Arngrímsson, Óli Örn Eiríksson og Hilmar Hildar Magnúsarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Kl. 10:50 tekur Hildur Björnsdóttir sæti á fundinum og Marta Guðjónsdóttir víkur af fundi.
    Kl. 10:54 víkur Þórdís Lóa Þórhallsdóttir af fundinum og Pawel Bartoszek tekur þar sæti. MSS23050124

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þegar staðan á leigumarkaði er rædd er mikilvægt að hafa gögnin til staðar sem varpa ljósi á afleita stöðu leigjenda. Þannig er mikilvægt að skoða nýútgefna skýrslu leigjendasamtakanna sem kom út í apríl 2023 og heitir: Staðreyndir um íslenskan leigumarkað. Þá er einnig mikilvægt að líta til skýrslu Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins um stöðu launafólks á Íslandi í þessu samhengi, þar sem dregin er upp mynd af stöðu launafólks á leigumarkaði út frá efnahagslegri stöðu og fjölskylduformi. Þakkað er fyrir kynningu Samtaka leigjenda á stöðunni, mikilvægt er að áreiðanleg gögn liggi fyrir um húsnæðismarkaðinn og leigumarkaðinn, líkt og farið er yfir í skýrslu leigjendasamtakanna.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ljóst er að leigumarkaðurinn á Íslandi er afleitur. Á leigumarkaði eru 45 þúsund heimili. Húsaleiga hækkaði meira en allt annað á síðasta ári. Leigjendur eru margir hverjir þeir sem hvað minnst hafa á milli handanna og hækkanir bitna því gjarnan á þeim sem verst standa. Æ fleiri sækja í að leigja hjá Félagsbústöðum þegar leiga á almennum markaði þyngist. Hlutverk og skyldur Félagsbústaða er því mikil á tímum sem þessum. Leiga hefur einnig hækkað hjá Félagsbústöðum og eru margir leigjendur að sligast enda eru leigjendur Félagsbústaða flestir efnalitlir. Kjarninn er sá að leiga hefur hækkað meira en góðu hófi gegnir fyrir þennan viðkvæma hóp. Flokkur fólksins hefur talað fyrir leigustýringu að erlendri fyrirmynd, þ.e. leigubremsu eða leiguþaki. Leigubremsa er það kallað þegar gefið er út viðmið um hversu mikið húsaleiga má hækka yfir tiltekið tímabil. Leiguþak er það kallað þegar gefið er út hámarks leiguverð á leiguhúsnæði miðað við stærð, gæði og staðsetningu. Markmiðið með þessum aðgerðum er að tryggja að húsnæði sé á viðráðanlegu verði og að fólk búi við húsnæðisöryggi. Flokkur fólksins hvetur borgarstjórn til að ráðast í leigustýringar eins og gert er í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra, dags. 22. maí 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki samkomulagsdrög við lóðarhafa að lóðinni Þverholt 18, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS23010088

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er gengið út frá hefðbundum viðmiðum um að í samræmi við samningsmarkmið Reykjavíkurborgar er samið um að á reitnum verði 20% íbúða skilgreindar sem leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða hf., búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Félagsbústaðir hafa kauprétt á allt að 5% íbúða á umsömdu föstu verði, sbr. 4. gr. miðað við fyrirliggjandi tillögu verða um 5 íbúðir skilgreindar sem leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða og eiga Félagsbústaðir kauprétt að einni þessara íbúða á umsömdu kaupverði. Fulltrúi sósíalista leggur áherslu á að hlutfall þessara íbúða þarf að vera mun hærra, þar sem mikilvægt er að uppbygging fari fram á félagslegum forsendum. Slíkt ætti að gilda um alla borgina.
     

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 22. maí 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki drög að samningi um greiðslu vegna lóðarstækkunar á lóðinni Kalkslétta 1, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS23050032

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. maí 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki eftirfarandi tilnefningar á nýjum fulltrúum fyrir hönd Reykjavíkurborgar í fulltrúaráði hjúkrunarheimilisins Skjóls en næsti fundur fulltrúaráðs verður þann 25. maí nk.: Aðalmenn: Rannveig Einarsdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir og Unnur Þöll Benediktsdóttir. Varamenn: Alexandra Briem og Þórhildur Egilsdóttir.

    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS23050116

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. maí 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagt erindisbréf stýrihóps um mótun heildstæðrar stefnu og aðgerðaáætlunar um umhverfi og aðstæður barna á aldrinum 0-6 ára í Reykjavík. Óskað er eftir því að borgarráð samþykki þá þrjá fulltrúa sem koma fram í erindisbréfi auk þess að tilnefna einn fulltrúa frá meirihluta og tvo frá minnihluta í hópinn. Hlutverk stýrihóps er gerð þverfaglegrar stefnumótunar og aðgerðaáætlunar Reykjavíkurborgar um velferð barna og fjölskyldna þeirra sem skal taka heildstætt mið af umhverfi og aðstæðum barna á aldrinum 0-6 ára. Undir stýrihópnum starfi aðgerðahópur en hlutverk hans er gerð samþættrar aðgerðaáætlunar.

    Samþykkt.
    Jafnframt er samþykkt að skipa Magneu Gná Jóhannsdóttur, sem jafnframt verður formaður stýrihópsins, Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur, Sabine Leskopf, Dóru Björt Guðjónsdóttur, Helga Áss Grétarsson og Kolbrúnu Baldursdóttur í stýrihópinn. 
    MSS23050103

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Stýrihópur um mótun heildstæðrar stefnu og aðgerðaáætlunar um umhverfi og aðstæður barna á aldrinum 0-6 ára í Reykjavík hefur það hlutverk að gera þverfaglega stefnumótun og aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar um velferð barna og fjölskyldna þeirra sem taka á heildstætt mið af umhverfi og aðstæðum barna á aldrinum 0-6 ára. Fulltrúi sósíalista ítrekar mikilvægi þess að litið verið til húsnæðisstöðu og afleitrar stöðu á húsnæðismarkaði við gerð þessarar stefnu, þar sem vitað er að fjöldi barna býr við ótryggar aðstæður á leigumarkaði. Í maí 2023 eru 197 barnafjölskyldur að bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá borginni. Einnig þarf að líta til efnahagslegs skorts barna og fátæktar á meðal barnafjölskyldna og taka mið af því í vinnu stýrihóps sem á að leggja til aðgerðir um velferð barna og fjölskyldna þeirra.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér er lagt til að borgarráð samþykki hjálagt erindisbréf stýrihóps um mótun heildstæðrar stefnu og aðgerðaáætlunar um umhverfi og aðstæður barna á aldrinum 0-6 ára í Reykjavík. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lýst áhuga sínum á að koma í þennan hóp enda málaflokkur sem Flokkur fólksins hefur beitt sér í bæði lengi og mikið. Helstu verkefni hans er gerð stefnu um umhverfi og aðstæður barna á aldrinum 0-6 ára byggt á fyrirliggjandi stefnumótun til þess að bæta þjónustu við börn á þessum aldri og foreldra/forsjáraðila þeirra. Horft verði m.a. til fyrirkomulags og samspils leikskólakerfisins sem fyrsta skólastigsins, dagforeldrakerfisins og fæðingarorlofs og hugsanlega lengingar þess. Þetta er yfirgripsmikið en þarna er færi á að skoða hvort ekki sé hægt að bæta þjónustu við börn í skólakerfinu sem þurfa sérstaka aðhlynningu vegna sálfélagslegra vandamála og þar með stytta biðlistann.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. maí 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki endurskipun samstarfshóps um málefni miðborgar til ársloka 2025 sbr. hjálagt erindisbréf. Þá er árskýrsla samstarfshópsins fyrir árið 2022 lögð fram til kynningar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS21120163

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi sósíalista leggur áherslu á að í hópnum sé líka fulltrúi þess starfsfólks sem vinnur í borginni, líkt og fulltrúi verkalýðsfélaga.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hlutverk samstarfshóps um málefni miðborgar er fjölþætt. Markverðast er að helstu verkefni er að efla samráð og samtal milli ólíkra aðila sem koma að málefnum miðborgar bæði innan stjórnkerfis og utan með stefnu í málefnum miðborgar til hliðsjónar. Fleiri liðir lúta að samstarfi og samvinnu milli Reykjavíkurborgar og hagaðila um miðborgina. Þetta er auðvitað aðalatriðið. Enginn okkar vill upplifa aftur þá ólgu og reiði sem braust fram þegar valtað var yfir hagaðila vegna göngugötumálsins, Laugavegur/Skólavörðustígur. Í kjölfarið flúðu verslunareigendur í unnvörpum og verður Laugavegurinn kannski aldrei samur aftur. Kannski má greina í þessu erindisbréfi breyttan vilja borgarmeirihlutans í þá átt að vilja hlusta betur á fólkið i borginni. Enn og aftur vekur það furðu að borgaryfirvöld þurfi einatt að ráða utanaðkomandi aðila til að ekki aðeins veita hina ýmsu ráðgjöf jafnvel þótt færustu sérfræðingar vinni hjá borginni heldur einnig til að annast talningu. Verkfræðistofa fengin til að telja bíla með negld dekk og rannsóknarsetur er ráðið til að telja verslanir, skemmtistaði og matsölustaði. Hér er greinilega ekki verið að horfa mikið í þann óheyrilega kostnað sem ráðgjöf af þessu tagi kostar sem ekki er einu sinni sérstaklega sérhæfð.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. maí 2023, um fyrirhugaða ferð borgarstjóra á aðalfund OECD og allsherjarþing Eurocities 12.-16. júní. MSS23050126

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Góða ferð.

    Fylgigögn

  13. Lögð fram tillaga formanns borgarráðs, dags. 23. maí 2023, þar sem lagt er til að borgarráð samþykki undirritun yfirlýsingar um ábyrga framleiðsluhætti tengdri tísku, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS23050133

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 17. maí 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Álmgerðis 1 – Grensásdeildar vegna lóðarinnar nr. 1 við Álmgerði, ásamt fylgigögnum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23030387

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 10. maí 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23040111

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er mikilvægt að bjóða upp á möguleika til hraðhleðslu á lykilstöðum í borginni. Það auðveldar fólki sem þarf að nýta einkabíl að vera á rafbíl og auðveldar rekstur leigubíla að geta hlaðið á aðgengilegum stöðum. Þá skiptir máli að þarna er gott aðgengi að spennulínu sem dugir fyrir hraðhleðslu en gæta þarf þess að ef hleðslustæðin eru of mörg er hætt við að þau standi ekki lengur undir því nafni að vera hraðhleðsla.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja mikilvægt að borgin styðji við orkuskipti í samgöngum með skipulagi. Fyrirliggjandi tillaga er samþykkt á þeim forsendum að hér er hleðslustöðvum fjölgað, en þó ekki fyrirhugað að fletta upp þeim bílastæðum sem þegar eru í notkun af starfsfólki á svæðinu, líkt og upprunalegur skilningur á málinu gaf til kynna.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 10. maí 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis, ásamt fylgigögnum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23040113

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 10. maí 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags Kvosarinnar, Landsímareits, með síðari breytingum, ásamt fylgigögnum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. SN220435

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 17. maí 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, Halla, vegna vegna lóðarinnar nr. 33 við Lambhagaveg, ásamt fylgigögnum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23030121

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 17. maí 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Landakotsreits, reita U og L, ásamt fylgigögnum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23020126

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Lengi hefur verið unnið að undirbúningi þessa svæðis. Það er mikilvægt að byggja upp útivistarsvæði og góða aðstöðu fyrir börn í öllum hverfum og skortur hefur verið á slíkri aðstöðu í Vesturbænum. Þó ekki sé svigrúm til að hefja þessar framkvæmdir akkúrat núna, þá tekur skipulagsvinna tíma og mikilvægt að þegar aðstæður breytast séu verkefni tilbúin sem hægt er að setja fljótt af stað án þess að þá þurfi að hefjast handa við skipulagsferli.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að tillaga þeirra um sparkvöll á Landakotstúni, sem lögð hefur verið fram ítrekað síðustu ár, sé nú loks samþykkt. Fulltrúarnir vekja þó athygli á því að málið er ekki á fjárfestingaáætlun.

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 10. maí 2023 að breytingu á deiliskipulagi fyrir svæði 3 í Vogabyggð, ásamt fylgigögnum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. SN220729

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Allmargar athugasemdir komu frá fólki vegna deiliskipulags Vogabyggðar og flestar lutu að bílastæðum sem verður nánast útrýmt á svæðinu. Kvartað er yfir samráðsleysi, að ekki sé hlustað og kynningar séu ófullnægjandi. Í einni athugasemd er því mótmælt að verið sé að fjarlægja bílastæði sem tilheyra lóðarhöfum. Ýmist er verið að banna stæði eða fækka þeim verulega. Einnig er verið að breikka stétt svo bílar komast ekki með aðföng að húsum. Þetta mun takmarka margs konar  starfsemi. Þetta er jú atvinnusvæði hverfisins eins og segir í gögnum skv. deiliskipulagshugmyndunum. Fulltrúi Flokks fólksins telur þetta ekki ganga. Hér er um að ræða hverfi sem gæti hafa orðið skemmtilegt með blöndu af íbúðabyggð og atvinnustarfsemi ef ekki hefði verið þétt svona mikið. Öfgar í þéttingu byggðar og bann við bílum er með öllu óraunhæft. Viðskiptavinir munu ekki sækja þjónustu á svæðið ef þeim er meinaður aðgangur á bíl. Þetta er galli að mati Flokks fólksins og munu margir þeir sem glíma við einhverja hreyfiskerðingu ekki geta búið þarna. Hvernig á fólk að komast frá stæði og að útidyrum sínum? Mörg þessara nýju hverfa eru aðeins fyrir ákveðna hópa samfélagsins, þ.e. þá sem geta lifað bíllausum lífsstíl.

    Fylgigögn

  21. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 17. maí 2023 á trúnaðarmerktum tillögum að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði árið 2023.
    Samþykkt.
    Trúnaður er um efni tillagnanna fram að úthlutun styrkjanna.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23010048

  22. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. maí 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við gerð nýrrar grenndarstöðvar við Hrannarstíg/Öldugötu, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 35 m.kr.
    Samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23050134

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks harma að tillögu þeirra í umhverfis- og skipulagsráði, um að fyrirhugaðar breytingar yrðu sérstaklega kynntar fyrir íbúum Öldugötu og aðliggjandi gatna, starfsfólki og foreldrafélagi leikskólans Öldukots, og öðrum þeim sem hagsmuna eiga að gæta, hafi verið hafnað af meirihlutanum. Eðlilegra hefði verið að gefa þeim aðilum sem hagsmuna eiga að gæta í málinu tækifæri til að kynna sér breytingarnar og gera athugasemdir við þær.

    Fylgigögn

  23. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. maí 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna viðgerða utanhúss á Lindargötu 51, Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Kostnaðaráætlun 2 er 90 m.kr.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23050203

    Fylgigögn

  24. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 9. maí 2023, þar sem lögð er fram til kynningar útgáfuáætlun vegna skuldabréfaútboða á tímabilinu júlí-desember 2023.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22120008

    Fylgigögn

  25. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 22. maí 2023, þar sem óskað er eftir samþykki borgarráðs fyrir því að semja við hæstbjóðanda um rekstur að Gufunesvegi 17, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
    Kl. 11:49 víkur borgarstjóri af fundinum. FAS22110043

    Fylgigögn

  26. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. maí 2023, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samkomulag um kjarasamningsumboð. Í samkomulaginu felst að Reykjavíkurborg felur Sambandi íslenskra sveitarfélaga kjarasamningsumboð fyrir sína hönd við Félag grunnskólakennara, Félag leikskólakennara, Skólastjórafélag Íslands, Félag stjórnenda leikskóla, Félag kennara og stjórnenda tónlistarskóla og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Lóa Birna Birgisdóttir og Rakel Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS23050122

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar sósíalista og Vinstri grænna telja mikilvægt að borgin sé með ábyrgð gagnvart starfsfólki sínu og sjái sjálf um kjarasamninga í stað þess að fela Sambandi ísenskra sveitarfélaga að sjá um slíkt. Á sama tíma er eðlilegt að sveitarfélögin séu í samtali í kringum kjarasamningsgerð um þær kjarabætur sem þarf að ná fram fyrir starfsfólk sveitarfélaga.

    Fylgigögn

  27. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 9. maí 2023, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 8. maí 2023, á viðmiði um hámarksfjölda nemenda með lögheimili í Reykjavík sem heimilt er að greiða framlag vegna til sjálfstætt starfandi grunnskóla utan Reykjavíkur 2023-2024, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Ólafur Brynjar Bjarkason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS22040100

    Fylgigögn

  28. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 24. apríl 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aukið framlag til LFA ehf. vegna opnunar leikskóla á Bakka, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Ólafur Brynjar Bjarkason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23030160

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins styður allar tillögur sem lúta að því að fjölga leikskólaplássum og samhliða leysa biðlistavandamál leikskólanna. Erfitt er að átta sig á af hverju meirihlutinn sá eldri og sá nýi hélt áfram að lofa upp í ermina á sér. 911 börn eru á biðlista samkvæmt talningu í vikunni en á sama tíma í fyrra biðu 800 börn. Núna er meðalaldur 23 mánuðir hjá þeim börnum sem bíða eftir plássi í borgarreknu skólana en var lengi 20 mánuðir. Flokkur fólksins hefur lagt fram tillögur sem gætu verið liður í að stytta biðlista. Nefna má heimgreiðslur eða styrki til foreldra sem hafa tök á og vilja vera lengur heima eftir fæðingarorlof. Flokkur fólksins nefndi fyrir um þremur árum að borgarmeirihlutinn væri að ganga að dagforeldrakerfinu dauðu. Þá hélt meirihlutinn að dagar dagforeldra væru liðnir og að Brúum bilið væri handan við hornið. Það var ekki. Dagforeldrum hefur fækkað úr 204 niður í 86 á tæpum áratug. Árið 2014 voru 700 börn hjá dagforeldrum en þau voru 371 í fyrra. Tillögum Flokks fólksins um að veita dagforeldrum frekari styrki t.d. til að bæta aðstöðu sína, að ósk þeirra, til að fleiri en einn gætu unnið saman, var hafnað. 

    Fylgigögn

  29. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 24. apríl 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki breytt rekstrarleyfi LFA ehf. vegna sameinaða leikskólans Fossakots/Korpukots, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Ólafur Brynjar Bjarkason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23030160

    Fylgigögn

  30. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. maí 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð staðfesti hjálagða umsögn Reykjavíkurborgar um drög að reglugerð um málsmeðferð við setningu skipulagsreglna fyrir flugvelli, dags. 23. maí 2023.

    Frestað. MSS23030053

  31. Lagt til að Stefán Pálsson taki sæti sem varamaður í skólanefnd Kvennaskólans í Reykjavík í stað Elínar Oddnýjar Sigurðardóttur.
    Samþykkt. MSS22060079

  32. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 11. maí 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ferð borgarstjóra til Parísar og Strassborgar, sbr. 52. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. mars 2023. MSS23020145

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Ef litið er yfir ferðamál borgarstjóra erlendis og hans aðstoðarmanns er eins og ekkert hafi lærst af COVID. Nú er allt komið á fullt aftur og flogið erlendis eins og enginn sé morgundagurinn. Þessi þriggja daga ferð sem hér um ræðir kostaði yfir 600 þúsund. Mörgum þeim sem nú berjast í bökkum í hratt versnandi ástandi ef horft er til verðbólgu og hækkana þykja án efa 600 þúsund há fjárhæð sem hægt væri að gera mikið fyrir. Fulltrúi Flokks fólksins skorar á borgarstjóra að vera nískur þegar kemur að því að eyða peningum borgarsjóðs í svona skyndiupplifanir. Vissulega eru sumar ferðir mikilvægar til að viðhalda alþjóðasamskiptum en forgangsraða þarf af grimmd hér. Ekki þarf að minna á að flugsamgöngur losa mest af gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni af einstökum atvinnugreinum í íslenska hagkerfinu. Á sama tíma og ekki er séð að forgangsraðað sé mikið í þessum efnum er einnig minnt á vaxandi fátækt í Reykjavík og aukinn ójöfnuð. Vega og meta þarf hvar kröftum borgarstjóra og hans aðstoðarmanns er best komið þegar horft er til heilla og velferðar borgarbúa. 

    Fylgigögn

  33. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 11. maí 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks um ferð borgarstjóra til Cork, sbr. 47. lið fundar borgarráðs frá 30. mars 2023. MSS23030202

    Fylgigögn

  34. Lögð fram svör fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 15. maí 2023, og skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. apríl 2022, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað vegna kynningarmála, sbr. 46. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. mars 2022. MSS22030279

    Fylgigögn

  35. Lagt fram trúnaðarmerkt svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 14. maí 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks um stöðu á lánalínum Reykjavíkurborgar, sbr. 33. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. apríl 2023. FAS23020020

    Fylgigögn

  36. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 11. maí 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrua Flokks fólksins um ferðakostnað borgarstjóra og föruneytis frá því að COVID létti, sbr. 51. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. mars 2023. MSS23030223

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins óskaði upplýsinga um heildarkostnað við ferðir borgarstjóra erlendis og hans föruneytis frá því að COVID létti. Óskað er sundurliðunar eftir fargjöldum og dagpeningum. Borist hefur svar þar sem fram kemur kostnaður við hvern þann borgarfulltrúa sem ferðast hefur á vegum borgarinnar. Það kemur ekki á óvart að hæsta upphæðin er vegna ferða borgarstjóra og aðstoðarmanns hans. Fulltrúi Flokks fólksins hafði vonast til þess að eftir reynsluna af COVID myndi meirihlutinn hafa tileinkað sér fjarfundi sem við öll þurftum að gera og sem var okkur ómetanlegur lærdómur. En um leið og COVID létti virðist sem borgarmeirihlutinn hafi strax dottið í ferðalög í erindagjörðum fyrir borgina, sannarlega mismikilvægum. Hér væri e.t.v. ekki verið að amast út í þetta nema vegna þess að borgin stendur verulega illa fjárhagslega og auk þess ber okkur skylda að reyna að draga úr losun koltvísýrings eins mikið og frekast er unnt. Ekki þarf að minna á að flugsamgöngur losa mest af gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni af einstökum atvinnugreinum í íslenska hagkerfinu.

    Fylgigögn

  37. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 15. maí 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnað vegna kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar, sbr. 52. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. mars 2023. MSS23030224

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins spurði um kostnað við kynjaða fjárhags- og starfsáætlunargerð frá upphafi en um er að ræða tæki sem notað er til þess að stuðla að jafnrétti. Lögð er fram umsögn fjármálaskrifstofu. Flokki fólksins er annt um jafnræði og jafnréttindi en krefst þess einnig að skynsemi og hagsýni ríki í meðhöndlun á opinberu fjármagni. Sýna þarf fram á að það sem kostar mikla peninga skili tilætluðum árangri. Ekki verður séð að sveitarfélög utan Reykjavíkur hafi tekið upp þessa aðferðafræði við gerð fjárhagsáætlanagerðar. Stundum finnst fulltrúa Flokks fólksins að þessari áherslu um kynjaða fjárhagsáætlanagerð sé flaggað þegar stjórnvald vill reyna að sýna fram á „víðsýni“ sína. Í umsögn fjármálastjóra segir orðrétt: „Ávinningur kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar hefur ekki verið mældur í krónutölu og ekki hafa verið settir fram beinir og mælanlegir mælikvarðar varðandi innleiðinguna.“ Það hlýtur að vera grundvallaratriði þegar er verið að innleiða eitthvað nýtt vinnulag, að upphafleg markmið séu skýr og sérstakir mælikvarðar séu skilgreindir til að hægt sé að meta hvort markmiðið hafi náðst. Hér er ljóst að engin stöðugreining hefur farið fram í upphafi. 

    Fylgigögn

  38. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 11. maí 2023. MSS23010005

    Fylgigögn

  39. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 9. maí 2023. MSS23010027

    Fylgigögn

  40. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 15. maí 2023. MSS23010029

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar: 

    Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bókað um öryggismál í Úlfarsárdal og lagt fram tillögur, þ.m.t. um að bæta götulýsingu. Hægt hefur gengið að betrumbæta. Nú liggur á borðinu tillaga íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals um að gerð verði gangskör í að bæta götulýsingu í Úlfarsárdal enda þolir málið enga bið. Fulltrúi Flokks fólksins hvetur skipulagsyfirvöld að ganga í þessar framkvæmdir hið fyrsta.

    Fylgigögn

  41. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarvogs frá 8. maí 2023. MSS23010030

    Fylgigögn

  42. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Kjalarness frá 11. maí 2023. MSS23010032

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:

    Í umsögn íbúaráðs Kjalarness, dags. 2. maí 2023, um kynningu verklýsingar/drög að tillögu á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur – skotæfingarsvæði á Álfsnesi er á það bent að tekið sé fram í drögunum að breytingin sé fyrirhuguð tímabundið þar til önnur lausn á málinu finnist. Engu að síður hefur svæðið verið opið til skotæfinga með hléum til margra ára eða frá árinu 2008. Íbúum hefur allan þennan tíma verið haldið í óvissu og vita ekki hvort svæðinu verði lokað varanlega. Þessi rússíbani hefur tekið sinn toll og kostað þá sem hafa verið í forystu fyrir að búa án mengunar af skotvopnum ómældan tíma og þrek. Þeir sem stunda skotíþrótt eiga greinilega marga góða hauka í horni því þeir eru ávallt teknir fram yfir þarfir fólks til þess að búa á heimilum sínum í friði. Sama gildir um útivistarhópa sem nota Esjuna og svæðið þar í kring til íþróttaiðkunar sinnar svo sem hestamenn og göngufólk. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ekkert á móti skotfimi og sér að það er fyrir suma eflaust mikil ástríða. Fulltrúi Flokks fólksins hefur einfaldlega kennt í brjósti um íbúa Kjalarness vegna þessa máls og telur það liggja skýrt fyrir að á þeim hefur verið brotið. 

    Fylgigögn

  43. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 8. maí 2023. MSS23010033

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar: 

    Tekið er undir umsögn íbúaráðs Laugardals, dags. 8. maí 2023, um tillögu að breyttu deiliskipulagi Laugardals – Þjóðarhallar þar sem íbúaráðið ítrekar þær áhyggjur sem fram hafa komið vegna aðstöðuleysis til íþróttaiðkunar barna og ungmenna í dalnum, bæði í skóla og íþróttafélögum hverfisins. Harmað er jafnframt samráðsleysi við íbúa hverfisins. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bent á þetta í bókunum sínum, þ.m.t. áhyggjur skóla og íþróttafélaga hverfisins um tryggt aðgengi barnanna í hverfinu að höllinni og Þjóðarhöllinni þegar fram líða stundir. Afkastageta hallarinnar hefur ekki verið lögð fram og því ekki vitað hversu mikill tími verði fyrir íþróttafélögin eða skólana í húsnæðinu. Kallað verði eftir því að fulltrúar hverfisins fái aðkomu að þarfagreiningu og frekari vinnu og þróun. Segir jafnframt í ályktuninni að „hverfið fái að upplifa að í boði verði eðlileg þjónusta fyrir öll í Laugardalnum, í annað hvort þjóðarhöllinni eða Laugardalshöll. Fer ráðið fram á að íþróttaiðkun barna og kennsla skv. aðalnámskrá verði ekki víkjandi breyta í skipulagi og uppbyggingu innviða hverfisins.“

    Fylgigögn

  44. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Vesturbæjar frá 15. maí 2023. MSS23010036

    Fylgigögn

  45. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 24. apríl 2023. MSS23010018

    Fylgigögn

  46. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 14. mars og 11. apríl 2023. MSS23010016

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 6. lið fundargerðarinnar frá 11. apríl:

    Niðurstaða forathugunar á nýrri staðsetningu fyrir endurvinnslustöð. Stýrihópur á vegum SORPU bs., sem Kópavogsbær átti fulltrúa í, skilaði á dögunum tillögum um hvar koma ætti nýrri endurvinnslustöð fyrirtækisins fyrir. Þar var lagt til að það yrði gert við Arnarnesveg á jaðri kirkjugarðsins. Flokkur fólksins tekur undir þá skoðun og upplifun starfsmanna hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma að þessi hugmynd sé ekki aðlaðandi. Það er skrýtin og óþægileg tilfinning fyrir þá sem eiga ástvini í þessum kirkjugarði að hafa endurvinnslustöð í bakgarðinum. Það hlýtur að vera hægt að finna annan stað fyrir þessa endurvinnslustöð. Það ætti að vera forgangsmál að sýna virðingu bæði syrgjendum og þeim sem hafa kvatt þessa jarðvist.

    Fylgigögn

  47. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21. apríl 2023. MSS23010021

    Fylgigögn

  48. Lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 17. og 24. maí 2023. 5. liður fundargerðarinnar frá 17. maí og 10. liður fundargerðarinnar frá 24. maí eru samþykktir.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Hildur Björnsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu 5. liðar fundargerðarinnar frá 17. maí. MSS23010011

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar: 

    Hér er um erfitt mál pólitískt að ræða að mati fulltrúa Flokks fólksins. Rífa á gömul hús í stað þess að varðveita þau. Mál af þessu tagi eru ávallt umdeild enda tilfinningamál fyrir marga. Um er að ræða gróinn reit í Vesturbænum. Markmiðið er vissulega að fjölga íbúðum sem verða 15 talsins en hér finnst sumum að gengið sé of langt í þéttingaráformum. Fulltrúa Flokks fólksins þykir miður að ekki eigi að gera ráð fyrir bílastæðum sem mun án efa hafa áhrif á eftirspurn eftir þessum íbúðum. Niðurrif húsa er vissulega endanleg aðgerð. Sum gömul hús eru orðin það skemmd að ekkert vit er í öðru en að rífa þau. Þetta er eitthvað sem meta þarf hverju sinni. Í þessu tilfelli má vísa í álit Borgarsögusafns á þessum reit en þar er nefnd Holtsgata 10 og segir að húsið sé metið hátt út frá menningarsögulegu gildi og varðveislugildi.

    Fylgigögn

  49. Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 10. maí 2023. MSS23010025

    Fylgigögn

  50. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 26 mál. MSS23050045

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 24. lið yfirlitsins: 

    Bókun fulltrúa Flokks fólksins um umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 9. maí 2023, um frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustustofu. Fulltrúi Flokks fólksins telur að flestir séu sammála um að Menntamálastofnun hafði runnið sitt skeið og með þessari breytingu megi laga ákveðna hnökra með því að færa ákveðin verkefni inn til ráðuneytisins. Greiningarverkefni, ytra mat og ýmis stjórnsýsluverkefni, sem hafa verið veigamikil verkefni stofnunarinnar, flytjast til mennta- og barnamálaráðuneytis. Það sem fulltrúa Flokks fólksins finnst að hafi skort er að gerðar séu árangursmælingar á gagnreyndum aðferðum. Það á að sjálfsögðu einungis að notast við slíkar aðferðir. Árangur verður að vera hluti af kjarnamarkmiðum. Ef ekki eru árangursmælingar þá er ekki vitað hvort fjármagn sé að nýtast til að ná því takmarki sem sett hefur verið. Fulltrúa Flokks fólksins finnst sem þetta hefði mátt koma skýrar fram í umsögn Reykjavíkur um frumvarpið.

    Fylgigögn

  51. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS23050046

    Fylgigögn

  52. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. maí 2023:

    Lagt er til að starfshópur um innleiðingu húsnæðissáttmála fái það verkefni að greina upplýsingar um íbúðir þar sem enginn er skráður með lögheimili en talið er að þetta séu um 8.000 íbúðir af alls 57 þúsund íbúðum í Reykjavík. Verkefnið verði unnið í samstarfi við innviðaráðuneytið og/eða Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS23050119

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fara á í að greina upplýsingar um íbúðir þar sem enginn er skráður með lögheimili en talið er að þetta séu um 8.000 íbúðir af 57 þúsund íbúðum í Reykjavík. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta með ólíkindum og útilokað er að einhver einhlít skýring sé á þessu. Er hér einnig átt við íbúðir Félagsbústaða? Hjá Félagsbústöðum standa einnig tómar íbúðir og er sagt að verið sé að standsetja þær. Það sem er sérstakt í svörum frá Félagsbústöðum er að mun fleiri íbúðum var skilað 2020 en 2019. Ástæður eru margar og eru þær svipaðar milli ára utan einnar, „flutningur á hjúkrunarheimili“, sem var 20% 2019 en 11% 2020. Ekki eru frekari skýringar birtar. Í janúar er 61 íbúð laus og þar af er 41 í standsetningu. Segir í svari að stefnan sé að ekki meira en einn mánuður líði frá standsetningu og þar til íbúðin verði leigð út. Fulltrúi Flokks fólksins vill að það komi fram að þetta svar samræmist ekki því sem hefur verið tekið eftir sem er að íbúðir standa stundum lausar í ár. Eins eru Félagsbústaðir með íbúðir þar sem ekki er hægt að skrá lögheimili. Fulltrúi Flokks fólksins hefur spurt um þetta en ekki fengið svar.

    Fylgigögn

  53. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. maí 2023:

    Lagt er til að starfshópur um innleiðingu húsnæðissáttmála fái það verkefni að greina umfang gistingar ferðamanna í íbúðarhúsnæði í Reykjavík, með og án leyfa, eftir því sem næst verður komist. Verkefnið verði unnið í samvinnu við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu, innviðaráðuneytið og/eða Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS23050120

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Lagt er til að starfshópur um innleiðingu húsnæðissáttmála fái það verkefni að greina umfang gistingar ferðamanna í íbúðarhúsnæði í Reykjavík, með og án leyfa. Verkefnið verði unnið í samvinnu við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu, innviðaráðuneytið og/eða Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta afar mikilvægt sér í lagi í ljósi erfiðs leigumarkaðar. Airbnb á sinn þátt í þeirri stöðu sem þar ríkir. Airbnb-væðingu og autt húsnæði verður að ræða í tengslum við leigumarkaðinn. Skoða þarf upp á nýtt hversu langt á að ganga í takmörkun Airbnb þar sem staðan hefur farið versnandi síðasta ár. Erlendis eru fordæmi fyrir því að hreinlega banna slíka starfsemi á svæðum þar sem er skortur á húsnæði fyrir almenna borgara. Nú liggur fyrir að í um 8000 íbúðum af 57 þúsund íbúðum í Reykjavík er enginn skráður íbúi. Þetta er auðvitað mjög skrýtið og þarfnast gaumgæfilegrar athugunar.

    Fylgigögn

  54. Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, leggur fram svohljóðandi tillögu: 

    Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að borgarráð samþykki að óska eftir aukafundi með stjórn Orkuveitunnar til að skýra hver vilji eigenda sé um þau markmið sem eigi að vera til grundvallar við val á aðferðarfræði við hlutafjárútgáfu Ljósleiðarans.

    Greinargerð fylgir tillögunni. 
    Frestað. MSS23050161

    Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, leggur fram svohljóðandi bókun:

    Val á aðferðafræði tekur mið af þeim markmiðum sem eigendur vilja ná fram með hlutafjárútboðinu og því er nauðsynlegt að upplýsingar um þau markmið liggi fyrir. Greinargerð og tillaga borgarstjóra eru mjög óljósar um hvaða markmið hlutafjárútboðið eigi að uppfylla önnur en að greiða niður skuldir Ljósleiðarans og styrkja stöðu félagsins á samskiptamarkaði. Aftur á móti er það almennt vinnulag við val á aðferðafræði að fyrir liggi hvert markmið hlutafjárútgáfunnar er. Til dæmis kann það að vera sérstakt markmið að hafa gagnsæi og jafnræði í öndvegi við val á aðferðafræði eða að hámarka líkur á hagstæðu markaðsverði. Almennt byggir hvert markmið á rökstuðningi út frá starfsemi og stefnu þess fyrirtækis sem á í hlut og þar með vilja eigenda þess fyrirtækis. Þessar upplýsingar skortir frá eigendum Orkuveitunnar og hefur borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins reynt að fá eigendur til að eiga samtal um þetta við stjórn Orkuveitunnar til skýra vilja sinn til að gæta þess að undirbúningur við val á aðferðafræði fari fram á réttum forsendum. Það skýtur skökku við að meirihluti borgarráðs hafi ekki tekið undir að nauðsyn þess að taka tillöguna til afgreiðslu til að eiga þetta samtal.

    Fylgigögn

  55. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Hver er árlegur kostnaður Reykjavíkurborgar vegna kaupa, uppsetningar og reksturs eftirlitsmyndavéla í borginni? Óskað er eftir kostnaði frá árinu 2012, skipt eftir árum. Einnig er óskað eftir kostnaði sem fellur á Reykjavíkurborg vegna samkomulags, dags. 6. mars 2023, um verklag og forgangsröðun við kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í miðborg Reykjavíkur. Það samkomulag er á milli Reykjavíkurborgar, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar ohf. og fjallar um kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í miðborg Reykjavíkur. Þar kemur fram að hlutverk Reykjavíkurborgar sé að kaupa öryggismyndavélar til uppsetningar í Reykjavík í samræmi við fjárhagsáætlun hvers árs, hvort sem um er að ræða nýjar myndavélar eða endurnýjun á eldri vélum, og að hún teljist eigandi öryggismyndavélanna. Reykjavíkurborg greiðir jafnframt fyrir nauðsynlegan hugbúnað á löggæslumyndavélum og greiðir fyrir uppfærslur á honum. Hver er kostnaðurinn við það?

    MSS23050151

  56. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Fyrirspurn um eignarhald þeirra lóða sem voru með samþykkt deiliskipulag við árslok 2022. Spurt er út í fjölda byggingarheimilda sem voru tilbúnar og með samþykkt deiliskipulag við árslok 2022. Óskað er eftir upplýsingum um eignarhald á þeim lóðum, þ.e.a.s hversu margar íbúðir voru samþykktar á lóðum í eigu einkaaðila sem hugðust byggja fyrir almennan markað. Hversu margar íbúðir voru samþykktar á lóðum í eigu Reykjavíkurborgar fyrir almennan markað? Hversu margar íbúðir voru samþykktar á lóðum í eigu húsnæðisfélaga? Hversu margar íbúðir voru samþykktar á lóðum í eigu Reykjavíkurborgar fyrir húsnæðisfélög? Hvernig skiptist hlutfallið á milli þessara fjögurra skiptinga? Til skýringar er óskað eftir svörum út frá þeirri uppsetningu sem finna má í fyrsta ársfjórðungsyfirliti árið 2022 með húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar á bls. 16 sem ber heitið „Samþykktar byggingarheimildir“. 

    MSS23050152

  57. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Láglaunafólk með börn á leigumarkaði er í mjög erfiðri stöðu. Skýrsla Vörðu fjallar um stöðu foreldra og einstæðra foreldra sem og kjarafréttir Eflingar sem hafa tekið út stöðu barnafólks. Þrátt fyrir að margir foreldrar séu í viðkvæmri stöðu fjárhagslega, þá fá ekki öll að sækja um félagslegt leiguhúsnæði þar sem þau uppfylla ekki skilyrðin. Óskað er eftir þeim upplýsingum sem Reykjavíkurborg hefur um fjölda þeirra barna sem bíða eftir því að komast í öruggt leiguhúsnæði (eins og í félagslegt leiguhúsnæði eða leiguhúsnæði hjá óhagnaðardrifnu félagi) og einnig er óskað eftir aldursdreifingu barnanna og skiptingu eftir því hvort þau séu hjá einstæðu foreldri eða foreldrum í sambúð. Í maí 2023 eru 197 barnafjölskyldur að bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá borginni, þar af 146 einstæðir foreldrar. Hver er fjöldi þeirra barna sem bíða með foreldrum sínum á biðlistanum og hver er aldursdreifing þeirra? Einnig er óskað eftir upplýsingum um stöðu barna sem bíða eftir húsnæði með foreldrum sínum í öðrum kerfum í borginni, ef Reykjavíkurborg býr yfir þeim upplýsingum, hér er t.a.m um að ræða íbúðir fyrir stúdenta og íbúðir sem eru byggðar af verkalýðshreyfingunni. 

    MSS23050153

  58. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um matarsóun í mötuneytum Ráðhússins og Borgartúni. Hvernig er skipulagi og skilvirkni háttað í innkaupum og hvernig tekst til að nýta afganga en á sama tíma að bjóða upp á hollan og girnilegan mat? Hversu miklu er hent, t.d. birgðum sem hafa verið keyptar en ekki hefur náðst að nýta?

    MSS23050147

  59. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um flutning barna milli skóla. Hversu tíðir eru slíkir flutningar og hverjar eru ástæður þess að foreldrar ákveða að taka barn úr skóla og setja í annan skóla? Spurt er um tölur síðustu 5 ára. Hér er verið að leita eftir svari sem varpar ljósi á ástæður þess að barn flyst á milli skóla, jafnvel ítrekað. Um gæti verið að ræða flutninga fjölskyldu vegna húsnæðisvanda eða flutning barns í annan skóla vegna eineltismála svo eitthvað sé nefnt. Fulltrúi Flokks fólksins spyr um þessi mál ekki síst í ljósi mikilla erfiðleika á húsnæðismarkaði um þessar mundir. Stór hópur barnafjölskyldna býr við húsnæðisóöryggi og þarf því sífellt að vera að færa sig um set. Foreldrar sem eru á leigumarkaði þvælast úr einu húsnæði í annað með börn sín. Dæmi eru um að börn frá efnaminni heimilum hafi gengið í allt að fimm grunnskóla áður en þau brautskrást. Vart þarf að fjölyrða um hin neikvæðu áhrif sem tíðir flutningar hafa á andlega og félagslega líðan barnanna sem um ræðir. Hér er spurt um hvað þetta eru mörg börn á ári og er óskað eftir upplýsingum um síðustu 5 ár.

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.
    MSS23050148

  60. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá upplýsingar um stöðu lóðaúthlutana hjá Reykjavíkurborg. Getur verið að óhagnaðardrifin leigufélög séu stopp í sínum áætlunum vegna þess að lóðir í Reykjavík eru ýmist ekki tilbúnar eða hreinlega fást ekki? Jafnframt er óskað upplýsinga um hvort einstaklingar geti fengi lóð í Reykjavík, hvort sem það sé lóð fyrir eigið hús eða fjöleignarhús í samvinnu við aðra. Fulltrúi Flokks fólksins er eins og aðrir orðinn langþreyttur á hversu illa gengur að byggja nóg til að allir geti búið við húsnæðisöryggi. Í fyrra þurfti Bjarg íbúðafélag að skila inn stofnframlögum vegna þess að lóðir þar sem byggja átti eru ekki tilbúnar. Bjarg íbúðafélag er óhagnaðardrifið leigufélag að danskri fyrirmynd sem byggir íbúðir sem seldar eru á viðráðanlegu verði. Þá sagði formaður VR lóðaskort standa í vegi fyrir uppbyggingu nýrra íbúða og kallað var eftir aðgerðum í húsnæðismálum. Spurt er hvort þessi sama staða sé uppi nú.

    MSS23050149

  61. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Borgarfulltrúa Flokks fólksins barst afrit af bréfi mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna kæru foreldra vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar um að veita þeim ekki systkinaafslátt á gjöldum vegna skólamáltíða á þeim grundvelli að börn þeirra eiga ekki sama lögheimili. Í bréfinu eru skóla- og frístundayfirvöld tekin í bakaríið og þeim gert að senda inn afrit af öllum gögnum. Í framhaldi óskar Flokkur fólksins eftir upplýsingum um hvernig borgaryfirvöld hyggjast bregðast við þessum úrskurði. Alvarlegir meinbugir komu fram í ferli þessa máls sem lýtur að stjórnsýslu. Svör bárust seint og illa. Í stað þess að svara strax og bjóðast til að endurskoða málið og greiða mismun varð vart við hroka og skilningsleysi af hálfu borgarinnar. Hyggst Reykjavíkurborg skoða þá meinbugi sérstaklega og ef svo er, stendur til að gera betrumbætur?

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.
    MSS23050150

  62. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Flokkur fólksins spyr hvort verðþak sé sett á hvað starfshópar geta keypt sér mikla ráðgjöf frá ráðgjafarfyrirtækjum og sé svo, hver sé sú upphæð. Í öllum erindisbréfum sem gefin eru út af borgarstjóra er kafli sem ber titilinn „Til ráðgjafar og samstarfs“ og segir í honum að „stýrihópurinn leiti ráðgjafar innan og utan borgarkerfisins hjá lykilaðilum sem hafa sérþekkingu á viðfangsefninu“. Nú má ætla að í starfshóp sé gjarnan valið fólk sem er með þekkingu og jafnvel sérþekkingu á viðfangsefni því sem hópurinn á að fjalla um. Í gegnum árin hafa tugir milljóna ár hvert streymt til ráðgjafafyrirtækja vegna ýmissa verkefna og skýrslna. Þar sem ekki eru til peningar um þessar mundir í borgarsjóði telur fulltrúi Flokks fólksins að setja þurfi bremsu á utanaðkomandi ráðgjafarkaup. Í borgarkerfinu er mikill mannauður og vanti starfshóp sérfræðiupplýsingar má án efa leita til starfsmanna borgarinnar sem eru einmitt ráðnir til starfa vegna sinnar þekkingar og sérþekkingar. Stafsmenn eru einmitt fólk sem gæti tekið að sér megnið af þeim verkefnum sem ráðgjafarfyrirtæki hafa fengið inn á sín borð fram til þessa og rukkað fyrir háar upphæðir. Hér þarf að gæta hófs og hleypa ekki ráðgjafarfyrirtækjum að taumlaust. 

    MSS23050154

Fundi slitið kl. 12:54

Einar Þorsteinsson Alexandra Briem

Heiða Björg Hilmisdóttir Hildur Björnsdóttir

Pawel Bartoszek Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs frá 25. maí 2023 - prentvæn útgáfa