Borgarráð - Fundur nr. 5700

Borgarráð

Ár 2023, fimmtudaginn 30. mars, var haldinn 5700. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:08. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem, Heiða Björg Hilmisdóttir, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Diljá Ragnarsdóttir, Ebba Schram og Ívar Vincent Smárason.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. mars 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. mars 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. SN220797

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. mars 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. mars 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laugardals, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23020087

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Breytingin felur í sér umtalsverðar breytingar á nærumhverfinu. Mestu áhyggjurnar eru af samnýtingu hallarinnar og óvissunni í því sambandi. Munu Ármann og Þróttur fá þarna trygga aðstöðu? Munu nemendur og félög Laugardalsins fá þarna trygga íþrótta- og æfingaaðstöðu? Ekki hefur lengi verið rætt við skólayfirvöld eða foreldra barna í Laugardal um þessi mál og þau hvorki spurð né boðið að borðinu þegar rætt er um samnýtingu. Fyrir liggur yfirlýsing frá aðalstjórn Þróttar og Glímufélagsins Ármanns þar sem fram kemur að mannvirkið eins og það er kynnt muni ekki leysa aðstöðuvanda íþróttafélaganna í dalnum. Það mun ekki anna þörf hverfisfélaganna fyrir æfingatíma fyrir börn, unglinga og meistaraflokka né æfingar félagsfólks og barna. Þessi félög sem hér eru nefnd munu mæta afgangi ef fram fer sem horfir. Tryggja þarf aðstöðu hverfafélaganna í Laugardal enda um bráðamál að ræða. Flokkur fólksins hefur lagt fram eftirfarandi fyrirspurnir: Munu nemendur og félög Laugardalsins fá trygga íþrótta- og æfingaaðstöðu í Þjóðarhöllinni? Munu Ármann og Þróttur fá trygga aðstöðu í Þjóðarhöllinni?

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. mars 2023, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. mars 2023 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 29 við Vagnhöfða, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. SN220544

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. mars 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út malbikunarframkvæmdir fyrir árið 2023, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 1.200 m.kr.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23030143

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. mars 2023, varðandi viðauka við samkomulag um uppbyggingu innviða til hleðslu á rafbílum í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23010052

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. mars 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við gatnagerð á Ártúnshöfða, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK23030168

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 27. mars 2023, varðandi ferð borgarstjóra til Cork á stjórnarfund hjá Healthy Cities Network Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar föstudaginn 21. apríl nk., ásamt fylgiskjölum. MSS23030202

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 27. mars 2023, þar sem uppfærð drög að erindisbréfi samhæfingarhóps vegna móttöku flóttafólks eru send borgarráði til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS22030128

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 28. mars 2023, varðandi stuðningsyfirlýsingu við verkefnið 112 Loftslagsborgir Evrópu, ásamt fylgiskjölum. MSS21120238

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. mars 2023:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Gísla Brynjólfsson í stefnuráð Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22040065

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. mars 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samning um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf Reykjavíkurborgar og samning um fyrirgreiðslu vegna samnings um viðskiptavakt. Reykjavíkurborg mun gera samhljóða samninga til eins árs við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankann.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Halldóra Káradóttir og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23030045

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 30. mars 2023, varðandi ábyrgðargjald Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2023, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Halldóra Káradóttir og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23010100

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 30. mars 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að auglýsa stofnframlög vegna almennra íbúða.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23030042

    Fylgigögn

  14. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 28. mars 2023, að viðaukum við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar vegna fjárfestingaráætlunar A-hluta. 
    Greinargerðir fylgja tillögunum.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir og Óli Jón Hertervig taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23010016

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 23. mars 2023, þar sem óskað er eftir heimild til að selja tíu íbúðir við Hallgerðargötu 1, 1A, 11 og 11A, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Þórdís Lóa Þórhallsdóttir víkur af fundinum undir þessum lið.
    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23030047

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Sósíalista hefði viljað sjá allar íbúðirnar fara til Félagsbústaða og þeirra sem eru í nauðsynlegri þörf fyrir húsnæði núna. 

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 13. mars 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að falla frá forkaupsrétti að sinni að lóðinni Selásblettur 17AB – Yrjar við Elliðavatn, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23030031

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. mars 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili leigu á færanlegum leikskóla fyrir leikskólann Sunnuás, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig og Jón Valgeir Björnsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23030057

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Um er að ræða leigu á færanlegu húsnæði fyrir leikskólann Sunnuás, 900 fermetra rými sem á að rúma 100 börn. Til stendur að leikskólinn starfi á lóð Sunnuáss að Dyngjuvegi 18 á meðan gagngerar endurbætur fara fram á húsnæði leikskólans. Með tilkomu færanlega húsnæðisins verður hægt að flytja starfsemi leikskólans úr tímabundnu húsnæði í Kringlunni 1 aftur á lóð Sunnuáss og nýta útileiksvæðið sem þar er.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. mars 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki húsaleigusamning vegna leigu á leikskólahúsnæði að Barónsstíg 34, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig og Jón Valgeir Björnsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23030058

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er um að ræða Ævintýraborg sem sett verður upp á lóð Vörðuskóla við Barónsstíg 34. Leikskólahúsnæðið er 629 m2 og á að rúma 60 börn. Gert er ráð fyrir afhendingu húsnæðisins þann 14. september 2023. Mikilvægt er að fjölga leikskólaplássum eins og kostur er og því liggur mikið við að passa vel upp á eftirfylgni og skil á húsnæði.

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 21. mars 2023, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 20. mars 2023 á tillögu um niðurfellingu leikskólagjalda vegna barna sem eru í leyfi í dymbilviku og vetrarfríum grunnskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23020056

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er verið að falla frá gjöldum fyrir þau börn sem taka sér frí frá leikskólum í dymbilviku, vetrarfríum grunnskóla og milli jóla og nýárs. Fulltrúi Sósíalista gerir athugasemdir við þau skilyrði að foreldrar verði að taka sér frí alla virku dagana til að fá niðurfellingu leikskólagjalda. Foreldrum hefði einnig átt að vera veittur kostur á niðurfellingu gjalda á þeim dögum sem þau ráða við að taka sér frí á.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Lagt er fyrir borgarráð að leikskólagjöld verði felld niður vegna barna sem ekki sækja leikskóla í dymbilviku (síðustu vikunni fyrir páska) og alla virka daga í öðru hvoru eða báðum vetrarleyfum grunnskóla (samkvæmt samþykktu skóladagatali vegna grunnskóla Reykjavíkurborgar). Flokki fólksins finnst þetta auðvitað sjálfsagt mál og má spyrja af hverju þetta hefur ekki verið gert fyrir lifandis löngu enda bæði sanngjarn og eðlilegt. Varla getur talist eðlilegt að rukka fólk fyrir þjónustu sem ekki er veitt. Flokkur fólksins hefur lagt fram fyrirspurn um hvort foreldrum sé ekki einnig veittur afsláttur á gjaldi vegna skerðingar þjónustu leikskóla. Í gangi eru skipulagðar skerðingar en einnig óvæntar skerðingar sem koma foreldrum mjög illa. Ítrekað þurfa foreldrar að sækja börn sín fyrr á leikskóla vegna þess að ekki tekst að manna daginn. Það er sanngirnismál að leikskólagjöldin verði lækkuð í hlutfalli við skerðingu þjónustu.

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 21. mars 2023, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 20. mars 2023 á tillögu að breytingu á reglum um leikskólaþjónustu, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23020056

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks gera fyrirvara við þá breytingu sem hér er kynnt, þ.e. að dregið sé enn frekar úr sveigjanleika fjölskyldufólks til að skipuleggja frítíma sinn. Mikilvægt er að þjónusta borgarinnar mæti ólíkum þörfum og sé sveigjanleg.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Þetta er ekki auðskilin breyting. Hér á kennitala að ráða og kannski ef fólk er framsýnt blessast þetta, en fyrir þá sem sækja um innritun næsta haust getur þetta verið vont. Bent er á ákvæði þar sem 3 ára börn á ungbarnaleikskóla fá að vera innrituð í almennan leikskóla áður en almenn úthlutun fer fram. Einhverjir myndu kalla þetta ákveðna reddingu en svona fyrirkomulag skilar engri varanlegri lausn. Foreldrar sem eru þegar komnir með pláss í ungbarnaleikskóla eru í vandræðum því það gæti allt eins farið að börn sem ættu að vera á leið í almennan leikskóla verði föst í ungbarnaleikskólanum og því ekki pláss þar fyrir ný börn sem þá þurfa að bíða enn lengur eftir plássi. Foreldrar eru langoftast með einn leikskóla í huga fyrir barnið sitt eftir að ungbarnaleikskóla lýkur og það er sá sem er í nágrenni við heimilið. Það er ekki nóg að breyta reglum leikskólaþjónustunnar heldur þarf fyrst að leysa bæði húsnæðisvanda og manneklu sem er orsökin fyrir öllu þessu klúðri. Einhverjar reglubreytingar má svo framkvæma líka eftir atvikum. Þessi mál ættu að vera alger forgangsmál hjá meirihlutanum. Enn sést ekki til sólar.

    Fylgigögn

  21. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. mars 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða tillögu sviðstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 28. mars 2023, um skil á húsnæði leikskólans Miðborgar við Njálsgötu 9-11 og flutning starfseminnar í Ævintýraborg við Vörðuskóla, þó með þeirri breytingu að þess verði gætt að leikskólastarf leggist ekki af fyrr en Ævintýraborg við Vörðuskóla opnar svo ekki verði rof á starfseminni.

    Samþykkt.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23030063

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Leikskólinn Miðborg er rekinn í þremur húsum við Njálsgötu 9-11, Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Til stendur að reisa nýjan leikskóla fyrir Miðborg á svokölluðum Njálsgöturóló og leggja af rekstur á Njálsgötu og Lindargötu. Vegna ástands á húsnæði leikskólans við Njálsgötu 9-11 er nauðsynlegt að færa starfsemina úr húsnæðinu yfir í Ævintýraborg við Vörðuskóla, um leið og hún er tilbúin til notkunar. Leikskólinn Miðborg mun reka Ævintýraborgina undir sínum formerkjum og starfsfólk flytjast milli staða og taka á móti börnum á nýjum stað í haust. 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hér birtist enn eitt dæmið um myglað skólahúsnæði í Reykjavík. Skólastarf í um þrjátíu leik- og grunnskólum í Reykjavík hefur verið í uppnámi undanfarna mánuði og ár vegna viðhaldsskorts borgarinnar. Mikilvægt er að taka húsnæðismálin föstum tökum og að öllum börnum sé tryggt skólastarf í heilnæmu skólahúsnæði.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 20. mars 2023, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 15. mars 2023 á tillögu um framlengingu samnings við Hugarafl um þjónustu við einstaklinga með andleg veikindi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Rannveig Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL23030036

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hugarafl sér um sérstök virkniúrræði fyrir einstaklinga sem hafa verið lengi á fjárhagsaðstoð og þurfa frekari stuðning vegna andlegra veikinda. Samstarf við Hugarafl er farsælt og hefur reynst árangursríkt fyrir þennan hóp fólks. Meirihlutinn fagnar því að samningurinn sé framlengdur.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er lagt til að samningur við Hugarafl um þjónustu við einstaklinga með andleg veikindi verði framlengdur til loka árs 2024. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessum samningi. Samkvæmt úttekt gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á árinu 2022 á starfsemi Hugarafls er mikil ánægja með starfsemina. Niðurstöður viðtala bentu til þess að starfsemi Hugarafls hafi nýst mörgum vel við að bæta lífsgæði sín og ná bata.

    Fylgigögn

  23. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 16. mars 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja verkefni um sjálfvirknivæðingu upplýsingatækniinnviða, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON23030044

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Sjálfvirknivæðing getur sannarlega skapað töluvert hagræði í hvers kyns rekstri. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks gera þó athugasemdir við að ekki liggi fyrir hvort, og þá hvert, hagræðið gæti orðið af þeirri fjárfestingu sem hér er til umfjöllunar. Mikilvægt er að öllum fjárfestingum í sjálfvirknivæðingu fylgi skýr áætlun um það hagræði sem náð verður fram með breytingunni, til að mynda hvað varðar fækkun stöðugilda.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Þjónustu- og nýsköpunarsvið óskar heimildar til að hefja verkefni um sjálfvirknivæðingu upplýsingatækniinnviða. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar innleiðingu á lausnum sem nú þegar eru til í stað þess að verið sé að eyða útsvarspeningum borgarbúa í tímafreka vinnu við að uppgötva eitthvað sem búið er að uppgötva og þegar komið í notkun annars staðar.

    Fylgigögn

  24. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð staðfesti meðfylgjandi umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Reykjavíkurborg leggur til að frumvarpið verði lagt fram með þeim breytingum sem koma fram í þessari umsögn og styður framgang þess á Alþingi.

    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS23030198

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Þakkað er fyrir ítarlega umsögn um þetta stóra mál og tekið undir þann kjarna þess að Reykjavíkurborg leggi til að frumvarpið verði lagt fram með þeim breytingum sem koma fram í þessari umsögn og styður framgang þess á Alþingi.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Sósíalista tekur undir mikilvægi þess að ekki eigi að útiloka Reykjavíkurborg frá fjárframlögum Jöfnunarsjóðsins. Umsögn Reykjavíkurborgar um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga tekur á því ásamt öðrum þáttum sem þarf að skerpa á. Fulltrúi Sósíalista er þó hugsi yfir þeirri lokatillögu sem lögð er fram í umsögn borgarinnar. Þar er talað um að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga verði gerður að sjálfstæðu stjórnvaldi sem skuli skipa sérstaka stjórn yfir er hafi á hendi yfirstjórn hans. Rétt er að taka fram að við það gætu verið kostir og gallar. Markmið frumvarpsins snúa að ýmsum þáttum, þar með talið að í regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga séu innbyggðir hvatar til sameiningar sveitarfélaga. Fulltrúi Sósíalista ítrekar mikilvægi þess að mögulegar sameiningar verða að vera á forsendum íbúa sveitarfélaganna og að þau upplifi ekki pressu til sameiningar.

    Fylgigögn

  25. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. mars 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ferð borgarstjóra til Kaupmannahafnar, sbr. 51. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. mars 2023. MSS23020144

    Fylgigögn

  26. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. mars 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ferð borgarstjóra til Kaupmannahafnar og Parísar og ítrekun vegna fyrri fyrirspurna, sbr. 18. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. nóvember 2022. MSS22110022

    Fylgigögn

  27. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. mars 2023, um ferð borgarstjóra til Vilníus, sbr. 29. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. janúar 2023. MSS23010153

    Fylgigögn

  28. Lögð fram að nýju tillaga Sósíalistaflokks Íslands um könnun á húsnæðismarkaðnum í Reykjavík, sbr. 44. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. júlí 2022. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 28. mars 2023.
    Tillögunni er vísað frá með sex atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. MSS22070050

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að borgin sé með þessa yfirsýn til staðar um húsnæðismarkaðinn og að hún kanni upplifun borgarbúa á húsnæðismarkaðnum í Reykjavík. Hér var m.a. lagt til að þarfir og væntingar borgarbúa til húsnæðis yrðu kannaðar.

    Fylgigögn

  29. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um úttekt á eignarhaldi íbúða í Reykjavík, sbr. 47. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. júlí 2022. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjóra og borgarritara frá 28. mars 2023.
    Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22070053

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að þessar upplýsingar og yfirsýn um stöðuna sé til staðar.

    Fylgigögn

  30. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. mars 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um þjónustu og tíðni borgarlínu, sbr. 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 9. mars 2023. MSS23030067

    Fylgigögn

  31. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um tungumálakunnáttu strætóbílstjóra, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. mars 2023.
    Tillagan er felld. MSS23030118

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins lagði til að borgarráð beindi því til Strætó að það verði gert að skilyrði að bílstjórar strætó geti bjargað sér á íslensku og skilji málið nógu vel til að leiðbeina farþegum áður en þeir hefji störf sem strætóbílstjórar. Upp hafa komið samskiptavandamál í vögnunum vegna þess að bílstjóri hvorki skilur íslensku né jafnvel ensku. Fjölmargar ábendingar hafa borist um erfiðleika sem leiða má beint og eingöngu til samskiptavanda vegna tungumálaörðugleika. Ljóst er að Strætó er ekki mikið að fylgja sinni eigin þjónustustefnu. Tillögunni er hafnað í borgarráði sem gengur þvert á stefnu borgarinnar. Reykjavíkurborg hefur þá stefnu að íslenskukennsla fyrir starfsfólk sé almennt í boði innan vinnustaða Reykjavíkurborgar. Samkvæmt lið 9.2 í mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar vill borgin koma í veg fyrir hvers konar mismunun varðandi starfsaðstæður, starfsþróun og símenntun fólks af erlendum uppruna. Öll eiga að njóta jafnra tækifæra til starfsframa og starfsþróunar. Segir að starfsfólki af erlendum uppruna sé gefinn kostur á starfstengdu íslenskunámi. Í málstefnu Reykjavíkurborgar segir að starfsfólk, sem er í beinum samskiptum við borgarbúa, skuli hafa grundvallarfærni í íslensku. Flokkur fólksins telur að Reykjavíkurborg sé ekki að framfylgja sínum eigin stefnum með þessu.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er mikilvægt að Strætó hugi áfram vel að þjálfun starfsfólks og styðji við íslenskunám þar sem þess er þörf, í samræmi við fræðslustefnu fyrirtækisins. Eins er mikilvægt að tryggja góða upplýsingagjöf til farþega bæði í vögnum og eftir atvikum á netinu. Strætó er í dag í samvinnu við Retor fræðslu um íslenskukennslu starfsmanna. Flestir starfsmannanna hafa nú lokið einu til þremur stigum í íslenskunámi. Þá er boðið upp á stöðupróf fyrir nýja starfsmenn og svo í kjölfarið á næsta námskeið sem þeim hentar. Ekki er því hægt að taka undir þessa tillögu.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Æskilegt væri að starfsmönnum Strætó yrði boðinn sá valkostur að sækja byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið í íslensku og þeim veittur stuðningur til að aðlagast íslensku málumhverfi.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að tryggja að allir strætóbílstjórar fái viðeigandi undirbúning og stuðning til starfsins, þannig að þeim líði vel í starfi.

    Fylgigögn

  32. Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 15. mars 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um stöðugildi leikskólakennara og menntun starfsfólks, sbr. 33. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. mars 2022. MSS22030102

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins spurði um hvað vantar í mörg stöðugildi leikskólakennara í dag og hvað eru margir í stöðum leikskólakennara sem ekki eru menntaðir leikskólakennarar. Ekki er gott að lesa úr svari hvað vantar í mörg stöðugildi leikskólakennara í dag. Annað sem er þó eftirtektarvert í svari er að tæp 26% starfsfólks leikskólanna eru leikskólakennarar með leyfisbréf. Aðrir 315 starfsmenn í 272 stöðugildum eru með annarskonar uppeldismenntun sem nýtist vel í starfi leikskólanna. Í heildina eru því 41% starfsmanna leikskóla með fagmenntun á sviði menntunar og uppeldis. 

    Fylgigögn

  33. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. mars 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um tíðni og kostnað við að kalla inn varamenn, sbr. 21. lið fundargerðar borgarráðs frá 31. október 2019. MSS23030200

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fyrirspurnin var á þá leið að óskað var eftir upplýsingum í hversu mörgum tilfellum það hefur verið gert á kjörtímabilinu og sundurliðun eftir flokkum sem og í hvaða sætum lista viðkomandi varamenn voru. Fyrirspurn er samkvæmt svari ekki nógu skýr og svarið við hinni óskýru fyrirspurn er þess utan mjög óskýrt, eitthvað sem fulltrúi Flokks fólksins skilur illa. Fulltrúi Flokks fólksins mun því reyna að leggja þessa fyrirspurn aftur fram með skýrari hætti.

    Fylgigögn

  34. Lagðar fram fundargerðir aðgengis- og samráðsnefndar frá 2. og 16. mars 2023. MSS23010026

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið fundargerðarinnar frá 16. mars:

    Umsögn aðgengis- og samráðsnefndar um tillögu Flokks fólksins um að hefja kynningu og innleiðingu aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar til 2030 með markvissum hætti innan kerfis borgarinnar, s.s. í ráðum, deildum og stofnunum hennar að fullu. Segja má að þessari stefnu hafi verið stungið undir stól. Í umsögn kemur í raun fram það sem hafði áður komið í svari þ.e. að stefnan hafi ekki verið kynnt en hægt væri að skoða hana á ytri vef borgarinnar. Fulltrúi Flokks fólksins áttar sig ekki á af hverju verið sé að búa til stefnu en síðan ekki að kynna hana. Hvað er það sem hindrar? Ljóst er á bæði svörum sem hafa fengist og umsögninni að ekki er áhugi á að stefna þessi komi fyrir margra augu. Í raun segir ekki mikið í umsögninni annað en að hafa eigi samráð við aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks. En varla er það nú umdeilt. Einnig að upplýsa eigi borgarbúa um framgang aðgerðar eftir því sem við á hverju sinni. Þetta hefur áður verið sagt í svari. Það er afar óvenjulegt og ekki í neinum takt við innleiðingu á stefnum borgarinnar að setja þær aðeins á ytri vef og hvorki kynna þær né innleiða í deildir og svið borgarinnar. Ef þessi stefna er svo slæm að hún er ekki frambærileg þá væri best að viðurkenna það.

    Fylgigögn

  35. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 13., 16. og 20. mars 2023. MSS23010022

    Fylgigögn

  36. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 16. mars 2023. MSS23010005

    Fylgigögn

  37. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 14. mars 2023. MSS23010027

    Fylgigögn

  38. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 15. mars 2023. MSS23010029

    Fylgigögn

  39. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 23. mars. MSS23010035

    Fylgigögn

  40. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Vesturbæjar frá 20. mars 2023. MSS23010036

    Fylgigögn

  41. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 22. mars 2023.
    4. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS23010011

    Fylgigögn

  42. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 27. febrúar 2023. MSS23010018

    Fylgigögn

  43. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 8. og 17. mars. MSS23010021

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðar frá 8. mars og 1. lið fundargerðar frá 17. mars: 

    Fjárhagsstaða Strætó bs. er í járnum sbr. ársreikninginn. Ekki sést til sólar í þeim efnum. Rekstrarhæfi félagsins sé einungis tryggt til skemmri tíma sbr. áritun endurskoðenda. Mikil gagnrýni hefur einnig verið á ýmsa þjónustuþætti Strætó. Ekki nóg með að þjónustan hafi skerst þá virðist sem þjónustustefnu sé ekki fylgt. Borgarfulltrúar fá mikið af kvörtunum frá strætónotendum og hefur fulltrúi Flokks fólksins lagt inn margar fyrirspurnir sem ekki hefur verið séð að hafi verið teknar fyrir. Þær lúta m.a. að samskiptum vagnstjóra við farþega m.a. vegna tungumálaerfiðleika og aksturslags. 17. mars, 1. liður: Útboð á akstri er greinilega í fullum undirbúningi en sú aðgerð er mjög umdeild. Óttast er að þjónusta versni enn meira með útvistun og má hún ekki við því. Á þessum fundi samþykkti stjórn að á næsta fundi yrðu drög að útboðsgögnum lögð fyrir fundinn til samþykktar. Fulltrúi Flokks fólksins er uggandi yfir þessu og hefði viljað sjá sveitarfélögin sem eiga byggðasamlagið standa sterkar að baki Strætó þar sem þetta eru jú einu almenningssamgöngurnar. Tímabært er að skoða að leysa upp þetta byggðasamlag og huga að öðru rekstrarfyrirkomulagi fyrir Strætó.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Í fundargerð Strætó frá 8. mars kemur fram að fyrirhugað sé að fara í útboð á akstri. Vitað er að launakjör þeirra sem starfa fyrir verktaka eru lakari en hjá þeim sem vinna beint fyrir Strætó. Sósíalistar hvetja sérstaklega fulltrúa Reykjavíkur í stjórn Strætó til þess að vinna gegn þeirri útvistunarstefnu sem ríkir hjá félaginu.

    Fylgigögn

  44. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 21 mál. MSS23020106

    Fylgigögn

  45. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS23020163

    Fylgigögn

  46. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hver er áætlaður heildarkostnaður við Fossvogsbrú? Óskað er eftir því að núgildandi kostnaðaráætlun við verkið verði lögð fram ásamt fyrri áætlunum. USK22100138

  47. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir upplýsingum um kostnað við fyrirhugaða ferð borgarstjóra, aðstoðarmanns borgarstjóra og verkefnisstjóra lýðheilsumála til Cork. MSS23030202

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.

  48. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Flokkur fólksins leggur til að borgarráð samþykki að stofna þverpólitískan starfshóp sem skoðar hvernig Reykjavíkurborg getur mótað stefnur sem eru raunhæfar þannig að hægt sé að fylgja þeim betur eftir. Vel kann að vera að hugsa þurfi stefnur til styttri tíma þar sem sviptingar í samfélaginu eru það miklar. Engin stefna, góð eða slök, getur staðið tímans tönn í árafjölda í slíku róti sem ríkir í efnahagsmálum. Ekki er hægt að kenna fjármálastjórn Reykjavíkurborgar um allt það ófremdarástand sem nú ríkir þar sem verðbólgan er að einhverju leyti innflutt. Stór ábyrgð liggur þó hjá Reykjavíkurborg þar sem ekki tókst að skapa húsnæðismarkað í samræmi við þörf eins og búið var að lofa ítrekað. MSS23030221

    Greinargerð fylgir tillögunni. 
    Frestað. 

    Fylgigögn

  49. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að gera óháð, faglegt árangursmat á verkefninu Betri borg fyrir börn þar sem sérstaklega er mæld ánægja/óánægja hjá foreldrum með þjónustuna, skilvirkni og almenn upplifun af verkefninu. Þessi tillaga er lögð fram í ljósi þess að tvennar sögur fara af þessu verkefni eftir því við hvern er talað og aðeins hefur verið talað við þá hópa sem sýnilega eru ánægðir. Starfsfólk og „deildir“ eru sögð fagna Betri borg fyrir börn og finna mun á þjónustu. Ef vandi kemur upp í skóla mætir þangað lausnateymi sem styrkir starfsfólk og veitir því ráðgjöf. Ekkert hefur frést af hvernig foreldrar upplifa afköst og skilvirkni verkefnisins. Þarna skortir alfarið mælingar. Verkefnið er dýrt og stefnt er að því að það komi í öll hverfi. Verkefnið hófst í Breiðholti sem tilraunaverkefni. Nú er tímabært að gera árangursmælingar áður en lengra er haldið til að sjá hvað hefur virkað og hvað má betur fara. Langur biðlisti barna eftir fagþjónustu er merki þess að eitthvað er ekki að virka nógu vel í borgarkerfinu. Það breytir engu hvaða skýringar eru á fjölgun beiðna eftir aðstoð því á bak við hverja einu og einustu er barn og fjölskylda sem hrópar á aðstoð. MSS23030036

    Frestað. 

  50. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarráð samþykki að beina því til velferðarsviðs að fagfólk skólanna (sálfræðingar, talmeinafræðingar og aðrir sérmenntaðir einstaklingar sem starfa innan skólakerfisins) komi meira inn í nærumhverfi barnanna, þ.e. skólana, en nú er raunin. Hávært kall skólasamfélagsins er um að fá sérfræðingana meira inn í skólabyggingarnar, „inn á gólf“ eins og það er kallað og er þá átt við að þeir sérfræðingarnir séu til staðar á staðnum mun oftar og meira en nú tíðkast og veiti börnunum þjónustu í þeirra nærumhverfi þegar þau þurfa hana. Það er mat fleiri en fulltrúa Flokks fólksins að kerfið sem nú er í gangi sé of flókið, seinvirkt og óskilvirkt. Áhyggjur eru af því að börnin séu ekki að fá beina þjónustu, séu ekki að fá hlustun á mál sín. Eitt helsta markmiðið með Betri borg fyrir börn var að færa sálfræðinga í nærumhverfi barna og var talið að það þýddi að starfsstöð þeirra yrði þá í skólanum. Það hefur ekki gerst. Tryggja þarf að barn í vanda hitti sálfræðing skólans í eigin persónu og geti myndað við hann trúnaðarsamband í samvinnu og samráði við foreldra. Samtal við barnið er lykilatriði. Þjónusta við börn hefur vissulega verið í þróun í Reykjavík síðustu misseri. Biðlisti barna eftir sálfræðiþjónustu skólasálfræðinga hefur þó aldrei verið eins langur og nú. Á þriðja þúsund börn bíða ýmist eftir fyrstu eða frekari þjónustu, þá helst sálfræðinga og talmeinafræðinga. Þessi sami listi taldi 400 börn árið 2018. MSS23030222

    Greinargerð fylgir tillögunni. 
    Frestað.

    Fylgigögn

  51. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Flokkur fólksins óskar upplýsinga um heildarkostnað við ferðir borgarstjóra erlendis og hans föruneytis frá því að COVID létti. Óskað er sundurliðunar eftir fargjöldum og dagpeningum. MSS23030223

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. 

  52. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um kostnað við kynjaða fjárhags- og starfsáætlunargerð frá upphafi. Kynjuð fjárhags- og starfsáætlun er tæki sem notað er til þess að stuðla að jafnrétti og betri og réttlátari nýtingu fjármuna með tilliti til ólíkra þarfa borgarbúa. Árið 2011 var tekin sú ákvörðun að hefja formlega innleiðingu á kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg. Markmiðið með innleiðingunni er að samþætta mannréttindastefnu og fjármálastefnu borgarinnar. Fulltrúa Flokks fólksins finnst afar mikilvægt að gæta að jafnrétti í hvívetna og fylgjast þarf grannt með að það sé gert. Mikilvægt er einnig að gæta að því að flækja ekki aðferðafræðina umfram það sem nauðsynlegt er. Kynjuð fjárhags- og starfsáætlun er eitthvað sem ekki allir vita hvað er. Flokkur fólksins óskar eftir að sjá hver afraksturinn er af þessari vinnu og hvort eitthvað hafi breyst og hvernig, hver er ávinningurinn og hver er kostnaður af þessu verkefni frá því það hófst 2011? MSS23030224

  53. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort það sé biðlisti í íslenskuver borgarinnar. Ef svo er, hvað bíða margir nemendur eftir þjónustu íslenskuveranna sem eru fjögur? MSS23030225

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

  54. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Flokkur fólksins óskar upplýsinga um það hvernig á að bjarga Strætó frá gjaldþroti. Hverjar verða björgunaraðgerðirnar til skemmri tíma en einnig til lengri tíma? Nú liggur fyrir að Strætó bs. er í alvarlegum fjárhagskröggum. Tapið nam á síðasta ári um 834 milljónum króna og gerir áætlun ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu af rekstri, 242 milljónir króna. Tap af rekstri Strætó var því um 592 milljónir umfram áætlun ársins. Ljóst má þykja að Strætó stefnir í gjaldþrot nema eitthvað verulega stórt og bitastætt komi til til bjargar. MSS23030117

Fundi slitið kl. 11:15

Einar Þorsteinsson Alexandra Briem

Heiða Björg Hilmisdóttir Hildur Björnsdóttir

Kjartan Magnússon Sanna Magdalena Mörtudottir

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 30.3.2023 - Prentvæn útgáfa