Borgarráð - Fundur nr. 5693

Borgarráð

Ár 2023, fimmtudaginn 26. janúar, var haldinn 5693. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:15. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem, Heiða Björg Hilmisdóttir, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Bjarni Þóroddsson, Diljá Ragnarsdóttir, Ebba Schram, og Þorsteinn Gunnarsson. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf fjármála- áhættustýringarsviðs, dags. 23. janúar 2023, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki makaskipti vegna lóða við Blikastaðaveg 10 og 25, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23010066

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 24. janúar 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Lögð er fram hjálögð tíma- og verkáætlun vegna undirbúnings og afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2024-2028. Borgarráð felur sviðum og fagráðum að hefja undirbúning að vinnu við fjárhagsáætlun og fjárfestingaáætlun næsta árs og til næstu fimm ára á grundvelli gildandi fimm ára áætlunar. Jafnframt er sviðum og fagráðum falið að gera áætlun um greiningar, framkvæmd og eftirlit vegna kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar. Að öðru leyti er vísað í framlagða tíma- og verkáætlun og ábyrgðaraðilum falið að fylgja eftir framkvæmd hennar.

    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS23010019

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi sósíalista telur mikilvægt að fulltrúar allra flokka komi fyrr að undirbúningi fjárhagsáætlunar og að sérstaklega verði gert ráð fyrir því í tíma- og verkáætlun. Fulltrúi sósíalista myndi vilja sjá tíma- og verkáætlun sem gerir ráð fyrir frekari aðkomu allra flokka og fulltrúa þvert á fagráð. Einnig telur fulltrúi sósíalista mikilvægt að flýta opinberri birtingu frumvarps að fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun. Miðað við núverandi áætlun er gert ráð fyrir að frumvarp að fjárhagsáætlun verði lagt fram í borgarráði 26. október og lagt fram til fyrri umræðu í borgarstjórn 31. október. Fram að þeim tíma er trúnaður yfir gögnunum og fulltrúi sósíalista telur mikilvægt að frumvarpið verði birt fyrr svo að nægur tími gefist í rýni og svo að Reykvíkingar allir geti með virkari og gegnsærri hætti komið athugasemdum á framfæri varðandi áætlunina.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 26. janúar 2023, varðandi áætlaðar tímasetningar vegna mánaðar- og árshlutauppgjöra á árinu 2023.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22120016

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 17. janúar 2023, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 16. janúar 2023 á tillögu um heimild til skólastarfs við Skógarhlíð 6 og framlengingu samnings, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS22080026

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að Reykjavíkurborg ljúki lóðamálum Hjallastefnunnar sem fyrst svo unnt verði að byggja upp skólastarf Barnaskólans til framtíðar og draga úr langvarandi óvissu.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 17. janúar 2023, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 16. janúar 2023 á tillögu varðandi samninga vegna frístundaheimila sjálfstætt rekinna grunnskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS23010047

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítreka þá afstöðu sína að borginni beri að tryggja aukin fjárframlög með þeim börnum sem lögheimili eiga í Reykjavík og sækja nám í sjálfstætt starfandi leikskólum, grunnskólum eða frístundaheimilum í borginni. Markmiðið verði að treysta rekstrargrundvöll skólanna og frístundaheimilanna, þannig að ekki þurfi að innheimta skjólagjöld eða notast við hærri gjaldskrár. Þannig verði efnahagur foreldra ekki ákvarðandi ástæða við skóla- og frístundaval.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. janúar 2023, ásamt fylgiskjölum:

    Boðað hefur verið til aukaaðalfundar í Félagsbústöðum hf. í samræmi við 14. gr. samþykkt félagsins dags. 28. maí 2020. Samkvæmt 13. gr. er æðsta vald í málefnum félagsins í höndum lögmætra hluthafa. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram til afgreiðslu á aukaaðalfundi Félagsbústaða 2. febrúar 2023: 1. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. Til samþykktar. 2. Kjör stjórnar og varastjórnar. Til samþykktar. 3. Þóknun stjórnarmanna og varamanna. Til samþykktar. Lagt er til að tillögur nr. 1 og 3 verði samþykktar. Borgarráð samþykkti þann 1. desember 2022 tilnefningar í kjör stjórnar og varastjórnar Félagsbústaða hf.

    Samþykkt. MSS23010234
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins og leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista telur nauðsynlegt að a.m.k. einn fulltrúi leigjenda hjá Félagsbústöðum verði í stjórn félagsins. Rödd leigjenda þarf að koma að ákvarðanatöku þeirra mála sem fara fram hjá Félagsbústöðum.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 23. janúar 2023, um málaferli Reykjavíkurborgar. MSS23010233

  8. Lagður fram dómur héraðsdóms Reykjavíkur í máli E-2837/2022. MSS22060041

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 24. janúar 2023:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að Þórdís Lóa Þórhallsdóttir verði tilnefnd af hálfu Reykjavíkurborgar í stjórn Áfangastaðastofu til samræmis við beiðni Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um slíka tilnefningu. Þann 5. janúar sl. samþykkti borgarráð umboð til borgarstjóra til að undirrita samning um stofnun Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins.

    Samþykkt. MSS23010243

    Fylgigögn

  10. Lögð fram beiðni Stefáns Björnssonar, dags. 16. nóvember 2022, um endurupptöku á ákvörðun um staðsetningu smáhýsa í Laugardal. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 24. janúar 2023, og umsögn velferðarsviðs, dags. 19. desember 2022.
    Samþykkt að hafna beiðni um endurupptöku með vísan til framlagðra umsagna.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22110131

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þegar kemur að ákvörðunum sem varðar viðkvæma hópa er nauðsynlegt að allir hlutaðeigandi upplifi að vandað hafi verið til verka, því slíkt er forsenda þess að hægt sé að leiða fram betri ákvörðunartöku sem sátt ríkir um. Ljóst er að betur hefði mátt standa að samráði við íbúa í Laugardal vegna málsins.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 17. janúar 2023, þar sem sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf. um stöðu og framgang verkefna er sent borgarráði til kynningar. MSS22080126

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrstu lotu borgarlínu seinkar verulega þar sem niðurstaða í mörkun samgöngusáttmálans hefur dregist. Uppfæra þarf tímalínu framkvæmda. Það segir sig sjálft að áhrifin verða mikil. Fyrstu framkvæmdir lotunnar vegna fyllingar undir nýja Fossvogsbrú voru áætlaðar á seinni helmingi 2022, en þar sem ekki er hægt að bjóða verkið út fyrr en kostnaðarskipting og fjármögnun liggur fyrir tefjast útboð um sinn. Þetta er bagalegt því eins og allir vita eru samgöngumál borgarinnar í lamasessi. Bílum hefur fjölgað mikið enda eini valkostur fjölmargra. Eftir að Strætó bs. dró úr þjónustu og vegna erfiðleika Klapps greiðslukerfisins þá hefur fækkað í vögnunum. Því fer ekki mikið fyrir „betri samgöngum“ í borginni og óvissa ríkir um framhaldið. Hefja á framkvæmdir með þriðja áfanga Arnarnesvegar í óþökk fjölmargra enda framkvæmd byggð á eldgömlu umhverfismati. Því miður verður Arnarnesvegurinn eins og sár á viðkvæmum stað í borgarlandinu og mun hafa neikvæð áhrif á framtíðarmöguleika Vatnsendahvarfs. Nú er loksins viðurkennt að breikkun Breiðholtsbrautar sé nauðsynleg, en hér er ekki nóg gert. Hana þarf að tvöfalda frá Jafnaseli og alveg að Rauðavatni. 

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 6. október 2022, þar sem tillögu skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er vísað til meðferðar borgarráðs sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 3. október 2022. Einnig er lögð fram umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 18. janúar 2023.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands að vísa tillögunni frá. SFS22060089

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja mikilvægt að unnið verði með Kennarafélagi Reykjavíkur að afnámi stimpilklukku í grunnskólum svo koma megi til móts við sjálfstæði kennara í störfum og tryggður verði sveigjanlegri vinnutími, en kennarar hafa lengi kallað eftir breytingunni. Betur hefði farið á því að óska umsagnar Kennarafélags Reykjavíkur áður en tillagan kæmi til afgreiðslu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins er með sambærilega tillögu og þessa sem einnig er afgreidd á fundi borgarráðs. Umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs liggur til grundvallar afgreiðslu þessarar tillögu sem og tillögu Flokks fólksins. Misskilnings gætir í umsögn frá mannauðs- og starfsumhverfissviði. Ekki er gerður greinarmunur á stimpilklukku og Vinnustund sem sýnir að sá sem semur umsögnina þekki málið ekki nógu vel. Umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs fjallar mest um hversu Vinnustund sé mikilvægt tæki til að hafa yfirlit yfir vinnuframlag kennara til að laun séu rétt greidd, til að halda utan um fjarvistir og til að fylgjast með hvort starfsfólk uppfylli vinnuskyldu eins og segir í umsögninni. Því sé ekki hægt að hætta með stimpilklukkur/tímaskráningarkerfi/viðverukerfi í grunnskólum. Þetta eru einmitt rökin sem Flokkur fólksins leggur til grundvallar því að mikilvægt er að leggja stimpilklukkuna af. Með stimpilklukkunni eru fjölmargir grunnskólakennarar að upplifa sig þvingaða og að þeim sé ekki treyst. Það hlýtur að vera hægt að halda utan um vinnuframlag grunnskólakennara eins og annarra kennara á annan hátt en gert er í dag.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Með tilliti til upplýsinga úr umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs liggur fyrir að erfitt væri að hætta einhliða að halda utan um vinnustundir starfsfólks. Tekur sú niðurstaða mið af ákvæðum gildandi kjarasamninga og ákvæðum vinnutímatilskipunnar ESB, sem innleidd hefur verið hérlendis í gegnum lög og kjarasamningsákvæði. Tilskipunin hefur verið túlkuð þannig að hún feli i sér skyldu fyrir vinnuveitendur í EES-ríkjum til að setja upp hlutlægt, áreiðanlegt og aðgengilegt kerfi sem skráir vinnutíma starfsmanna. Eftirlitsstofnun EFTA hefur aðvarað íslensk stjórnvöld vegna ófullnægjandi innleiðingar á skyldu til að halda utan um vinnutíma með fullnægjandi hætti. Almennt er litið á utanumhald um vinnutíma sem ákveðið réttindatól starfsfólks, en ekki einungis eftirlitstól vinnuveitanda, enda mikilvægt að haldið sé utan um unna vinnu með skýrum og gegnsæjum hætti. Loks er mikilvægt að jafnræðis sé gætt meðal starfsfólks Reykjavíkurborgar en skráning vinnutíma er ekki bundin við kennara þar sem allt starfsfólk Reykjavíkurborgar skráir vinnustundir sínar.
     

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að hætta með stimpilklukkur í grunnskólum Reykjavíkur, sbr. 5. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. september 2022.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands að vísa tillögunni frá. MSS22090028

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga Flokks fólksins um að hætta að notast við stimpilklukku í grunnskólum í samráði við Kennarafélag Reykjavíkur var lögð fram í borgarstjórn og vísað til borgarráðs. Tillagan er felld í borgarráði. Umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs liggur til grundvallar afgreiðslunni. Nokkurs misskilnings gætir í umsögninni. Ekki er gerður greinarmunur á stimpilklukku og Vinnustund sem sýnir að sá sem semur umsögnina þekki málið ekki nógu vel. Fulltrúi Flokks fólksins lagði aldrei til að Vinnustund yrði lokað heldur að hætt yrði daglegri stimplun í kerfið og að það yrði gert í samráði við Kennarafélag Reykjavíkur. Umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs fjallar mest um hversu Vinnustund sé mikilvægt eftirlitstæki t.d. til að halda utan um fjarvistir og hvort starfsfólk uppfylli vinnuskyldu eins og segir í umsögninni. Því sé ekki hægt að hætta með stimpilklukkur/tímaskráningarkerfi/viðverukerfi í grunnskólum. Þetta eru einmitt sömu rökin og Flokkur fólksins leggur til grundvallar því að mikilvægt er að leggja stimpilklukkuna af. Grunnskólakennarar upplifa að þeim sé ekki treyst og finna sig þvingaða af stimpilklukkunni en ekki af Vinnustund. Það hlýtur að vera hægt að halda utan um vinnuframlag grunnskólakennara eins og annarra starfsmanna í öðrum sérfræðistéttum. Vísað er í kjarasamninga í umsögn. Kjarasamningar eru ekki meitlaðir í stein og samninganefnd borgarinnar starfar í umboði meirihlutans.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Með tilliti til upplýsinga úr umsögn mannauðs- og starfsumhverfissviðs liggur fyrir að erfitt væri að hætta einhliða að halda utan um vinnustundir starfsfólks. Tekur sú niðurstaða mið af ákvæðum gildandi kjarasamninga og ákvæðum vinnutímatilskipunnar ESB, sem innleidd hefur verið hérlendis í gegnum lög og kjarasamningsákvæði. Tilskipunin hefur verið túlkuð þannig að hún feli i sér skyldu fyrir vinnuveitendur í EES-ríkjum til að setja upp hlutlægt, áreiðanlegt og aðgengilegt kerfi sem skráir vinnutíma starfsmanna. Eftirlitsstofnun EFTA hefur aðvarað íslensk stjórnvöld vegna ófullnægjandi innleiðingar á skyldu til að halda utan um vinnutíma með fullnægjandi hætti. Almennt er litið á utanumhald um vinnutíma sem ákveðið réttindatól starfsfólks, en ekki einungis eftirlitstól vinnuveitanda, enda mikilvægt að haldið sé utan um unna vinnu með skýrum og gegnsæjum hætti. Loks er mikilvægt að jafnræðis sé gætt meðal starfsfólks Reykjavíkurborgar en skráning vinnutíma er ekki bundin við kennara þar sem allt starfsfólk Reykjavíkurborgar skráir vinnustundir sínar.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram svar mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 25. janúar 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um störf innan Reykjavíkurborgar, sbr. 35. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. júní 2022. MSS22060106

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Svarið lýtur að störfum í Ráðhúsinu sem eru um hundrað. Spurt var hversu margir hreyfihamlaðir störfuðu í Ráðhúsinu en fram kemur að ekki er haldið utan um þær upplýsingar. Svarið við fyrirspurninni er annars nokkuð sérkennilegt. Talað er um að ekki sé haldið utan um hvað margir eru hreyfihamlaðir til að þeir verði ekki „aðgreindir“. Einnig segir að ekki megi merkja í launakerfi að viðkomandi glími við fötlun eins og fram kemur í svari. Hverjum dettur í hug að merkja slíkt í launakerfið? Það eru aðgengismálin sem skipta máli eins og augljóst er af þessari fyrirspurn og að fatlaðir sem ófatlaðir sitji við sama borð. Í kerfið vantar sveigjanleika í störfum að mati fulltrúa Flokks fólksins, bæði gagnvart fötluðu fólki en einnig eldra fólki sem óskar eftir að vinna fram yfir sjötugt. Með þessu er ekki verið að segja að Reykjavíkurborg hafi staðnað heldur má einfaldlega gera betur, miklu betur.

    Fylgigögn

  15. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 12 mál. MSS23010007

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 9. lið yfirlitsins:

    Mennta- og barnamálaráðuneyti hefur borist beiðni frá Alþingi um skýrslu um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps í leik- og grunnskólum og áhrif þeirra á starfsemi og heilsu. Óskað er eftir því að Reykjavíkurborg taki þátt í gagnaöflun með því að svara spurningalista. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessu frumkvæði Alþingis. Myglumálin í Reykjavík eru orðin fjölmörg og óljóst er hversu langur tími líður frá því að upplýsingar berast um myglu áður en farið er í aðgerðir. Einnig liggur ekki fyrir hvort  sérstaklega sé hlúð að börnum og starfsfólki vegna heilsufars. Meta þarf heilsufar vegna myglunnar. Frá árinu 2018 hefur greinst mygla í yfir 30 skólahúsum sem tilheyra borgarreknum leik- og grunnskólum samkvæmt samantekt fréttastofu RÚV frá því í haust. Þá voru yfir 1.200 grunn- og leikskólabörn í húsnæði utan skólalóðar heimaskóla vegna mygluvandamála, 860 grunnskólabörn og 350 leikskólabörn. Síðan þá hafa líklega bæst við hátt í hundrað börn. Mörg þúsund börn verða fyrir raski á skólastarfi vegna myglu og raka. Skaðsemi og önnur áhrif af þessu eru með öllu óljós.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS23010020

    Fylgigögn

  17. Lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. janúar 2023, vegna tímabundins áfengisveitingaleyfis til kl. 04:00 aðfaranótt 13. febrúar nk. fyrir veitingastaðinn Lebowski bar, Laugavegi 20, vegna beinnar sjónvarpsútsendingar á Superbowl 2023 í Bandaríkjunum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS23010221

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tímabundið áfengisleyfi er veitt í tilefni útsendingar á Superbowl (Ofurskálarinnar) 13. febrúar á Lebowski bar. Í ljósi umræðunnar um hávaðann í miðbæ og vinnu við að koma böndum á hann koma upp í hugann margar spurningar sem almennt tengjast leyfi af þessu tagi. Fulltrúi Flokks fólksins er aðdáandi Superbowl en leggur jafnframt mikla áherslu á góðan svefn til að geta mætt ferskur til starfa sérhvern dag.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. janúar 2023.
    1. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS23010011

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 6., 21. og 22. lið fundargerðarinnar:

    6. liður; fyrirliggjandi tillaga felur í sér að mörk nokkurra einkalóða eru færð út um allt að 3,1 metra og að Sundlaugartúnið, sem er borgarland, minnki sem því nemur. Það er óásættanlegt enda gengið á græn svæði í vesturbænum. Sundlaugartúnið er vinsælt leiksvæði. Flokkur fólksins telur að þarna sé verið að minnka möguleikana á að skapa fjölbreytt útivistarsvæði við Vesturbæjarlaug. Gengið er á hverfisstíg með þessari breytingu með neikvæðum afleiðingum. Hér er um dýrmætt svæði að ræða og verðmæti sennilega það hæsta á öllu landinu. Liður 21 og 22; Fyrirspurnum Flokks fólksins er vísað frá án nokkurs fyrirvara. Önnur varðar undirbúning stórviðburða í Reykjavík sem tengist m.a. aðgengismálum. Spurt var í því sambandi hvort gátlistar sem höfðu verið gefnir út um aðgengismál hafi verið tilbúnir og ef svo var, voru þeir nýttir og var framkvæmd síðan fylgt eftir. Þessir þættir eru á ábyrgð borgarinnar. Hin fyrirspurnin laut að Svansvottun. Spurt var um hver annast Svansvottun og hver sé kostnaður af slíkri vottun á byggingu. Fyrirspurnunum var vísað frá án skýringa.

    Fylgigögn

  19. Lagt til að Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir taki sæti í tilnefningarnefnd borgarráðs í stað Mörtu Guðjónsdóttur.
    Samþykkt. MSS22060144

  20. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hversu miklu magni af sandi er dreift af hálfu Reykjavíkurborgar í Reykjavík á ári? Hvenær er sandinum þá helst dreift? MSS23010255

  21. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hversu miklu magni af salti er dreift af hálfu Reykjavíkurborgar í Reykjavík á ári? Hvenær er saltinu þá helst dreift? MSS23010256

  22. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: MSS23010257

    Hvernig er götuþrifum af hálfu borgarinnar háttað? Hversu oft eru borgargötur þrifnar á ári? Með hvaða hætti eru þær þrifnar og hefur borgin stundað rykbindingu, ef svo þá hvernig og hvenær?

  23. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er upplýsinga um samanlagðan kostnað við framkvæmdir, viðhald og endurbætur á Fossvogsskóla síðustu ár vegna vandamála tengdum raka, myglu og sambærilegu. Jafnframt er óskað upplýsinga um áætlaðan kostnað við fyrirhugaðar framkvæmdir framundan. MSS23010264

  24. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvort gefnir hafi verið út gátlistar um aðgengismál að viðburðum sbr. aðgerð 3.2. í aðgengisstefnu sem kveður á um að gefnir séu út slíkir listar um aðgengismál á viðburðum sem berist sviðum og starfsstöðum borgarinnar. Hafi svo verið er spurt hvort þeir hafi verið nýttir. Einnig er spurt hvort viðburði hafi verið fylgt eftir með könnun á framkvæmd sbr. 3.2. í aðgengisstefnu sem kveður á um að markmiðið sé að 10-15 viðburðum verði fylgt eftir með könnunum á framkvæmd og að 75-90% viðburða hafi nýtt gátlista. Óskað er eftir að borgarráð kalli eftir svörum frá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu í samstarfi við velferðarsvið, umhverfis- og skipulagssvið og þjónustu- og nýsköpunarsvið en það eru þau svið sem bera ábyrgð á þessum atriðum. MSS23010253

  25. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Á biðlista eftir fagþjónustu skólaþjónustu bíða nú 2048 börn, langflest eftir aðstoð sálfræðings þ.e. skimun, greining, viðtöl vegna kvíða og annarra tilfinningalegra og félagslegra erfiðleika. Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hversu mörg börn á þessum lista glíma við skólaforðun á einhverju stigi. Kvíði og þunglyndi eru helstu áhættuþættir þegar kemur að skólaforðun auk tilfinningavanda og hegðunarörðugleika. Það er því grafalvarlegt mál ef börn sem glíma við slíka vanlíðan eru látin bíða eftir aðstoð á biðlista lon og don. Rannsókn sýnir að 2,2% íslenskra barna treysta sér ekki til að mæta í skólann. Kvíði og þunglyndi eru helstu áhættuþættir samkvæmt nýlegri umfjöllun í Fréttablaðinu. Um þúsund íslensk börn glíma við skólaforðun og treysta sér ekki til að mæta í skólann samkvæmt rannsóknum. MSS22020237

  26. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Alls bíða nú 55 börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd eftir að hefja grunnskólagöngu. Nokkur barnanna eru í Reykjavík. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hver staða þeirra barna er sem bíða eftir að hefja skólagöngu í Reykjavík og þá er helst spurt hvort fjölskyldur þeirra séu að fá sérstaka aðstoð á meðan beðið er og hvort börnin eru að fá einhverja heimkennslu. MSS23010254

  27. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um móttökudeildina Birtu. Fyrir tæpum þremur árum var sett á laggirnar móttökudeild fyrir börn umsækjenda um alþjóðlega vernd. Um var að ræða skólaúrræðið Birtu sem var hugsað sem tilraunaverkefni til þriggja ára. Staðsetning var í Álftamýrarskóla en hefur nú flutt. Spurningar: Hver er staðan á deildinni nú? Er deildin búin að koma sér fyrir á nýjum stað? Hefur tekist að ráða í allar stöður? Hver er biðlistinn í hana og hvenær komast þau börn að sem nú bíða? Er Birta ekki lengur tilraunaverkefni? Loks er spurt, hver er stefna yfirvalda í málefnum hælisleitenda/innflytjenda sem snýr að menntun? MSS23010258

Fundi slitið kl. 10:26

Einar Þorsteinsson Alexandra Briem

Heiða Björg Hilmisdóttir Hildur Björnsdóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráð 26.1.2023 - Prentvæn útgáfa