Borgarráð
Ár 2022, fimmtudaginn 24. nóvember, var haldinn 5686. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:06. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem, Heiða Björg Hilmisdóttir, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Þorsteinn Gunnarsson og Hulda Hólmkelsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um öryggi í miðborginni. MSS22110218
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 18. nóvember 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 16. nóvember 2022 á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Presthús á Kjalarnesi, ásamt fylgiskjölum.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu:
Lagt er til að afgreiðslu umræddrar deiliskipulagsbreytingar verði frestað í því skyni að tryggja að ekki verði gengið gegn eignarréttindum nágranna en skv. tillögunni á aðkoma að hinni nýju byggð að liggja um einkaveg í landi Brautarholts. Eðlilegt samráð verði haft við veghaldara og þess freistað að ná samkomulagi milli aðila um hagnýtingu vegarins áður en tillagan verður afgreidd.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Presthús á Kjalarnesi er samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða í 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22050016
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga felur í sér uppbyggingu á óbyggðu svæði til fjölbreytilegrar notkunar. Um er að ræða uppbyggingu jarðarinnar Presthúsa. Þar verða byggð íbúðarhús til fastrar búsetu, vinnustofur og gestahús ásamt fjölnota sal. Gert er ráð fyrir því að aðkoma að umræddri byggð verði um aðkomuveg, sem er í einkaeigu annars aðila og á landi hans án þess að samþykki eigandans liggi fyrir. Afar óheppilegt er að samþykkja svo víðtæka deiliskipulagstillögu án nokkurs samráðs við veghaldarann, sem jafnframt er eigandi landsins, og án þess að samkomulag um hagnýtingu vegarins í þágu hins nýja hverfis liggi fyrir.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 18. nóvember 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 16. nóvember 2022 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits, með síðari breytingum, vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Sóltún, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt með sex atkvæðum borgarráðfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða í 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurbogar og fundarsköp borgarstjórnar.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22030079
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Lóðin Sóltún 2-4 er á skipulögðu íbúðasvæði samkvæmt aðalskipulagi og lengi hefur staðið til að byggja á svæðinu. Fyrir er deiliskipulag sem gerir ráð fyrir hjúkrunarheimili á lóðinni. Breytingarnar fela í sér aukningu á byggingarmagni, aðallega með hækkun bygginga og stækkun bílakjallara, en hætt er við tengibyggingu sem heimiluð er með gildandi deiliskipulagi svo þannig dregur úr yfirborðsfleti uppbyggingarinnar. Niðurstaða greiningar er að skuggavarp breytist óverulega vegna breyttrar tillögu og sé innan þeirra marka sem við má búast þegar uppbygging á sér stað í þéttri borgarbyggð. Mikilvægt er að hugað sé vel að göngu- og hjólaleiðum á svæðinu og umferðaröryggi allra vegfarenda sé tryggt. Suður af uppbyggingarreitnum er áfram gert fyrir almenningsgarði fyrir hverfið sem mikilvægt er að þróa í kjölfarið, í góðu samráði við nærumhverfið.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Mikilvægt er að hönnun leiksvæðis og almannarýmis verði vönduð og útfærð í samráði og sátt við alla íbúa á svæðinu.
Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sósíalista harmar að ekki hafi verið haldið við upprunalegt deiliskipulag reitsins sem gerði ráð fyrir nýtingu alls reitsins í hjúkrunartengda þjónustu. Í nóvember eru 122 á biðlista eftir þjónustuíbúð í Reykjavík og hefði verið betra að sjá kvaðir um samfélagslega uppbyggingu, t.d. þjónustuíbúðir á þessum reit, frekar en íbúðir á almennum markaði.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Íbúar hafa verið með athugasemdir vegna stærð hússins sem hér um ræðir og fjölda íbúða að Sóltúni 4. Áhyggjur eru af aukinni bílaumferð. Óttast er að Sóltún anni ekki þessari miklu umferð. Ástandið er tæpt í dag og viðbótin mun ekki bæta ástandið. Húsið við Sóltún 4, upp á 6 hæðir, mun svo varpa skugga á einhverjar neðri hæðir hússins við Mánatún 1. Íbúum finnst að verið sé að ganga á græn svæði. Eftir að bygging við Sóltún verður komin upp er 1,3 km gönguleið í næsta græna svæði, Klambratún. Þarna hefðu átt að vera fjórar hæðir að hámarki samkvæmt aðalskipulagi. Það er mat sumra að þarna hefði átt að skila inn lóðinni aftur þegar breytingar á nýtni lóðar urðu ljósar. Af hverju er það liðið að fyrirtæki geti verið að græða á að eiga lóðir og selja? Miðað við fjölda athugasemda hefði átt að setjast niður og skoða hlutina. Þetta er mat fulltrúa Flokks fólksins sem skilur vel að svona mikil breyting hafi eðlilega áhrif á nágranna.
Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er erfitt að samþykkja þessa tilteknu uppbyggingu í þeirri mynd sem fyrirætluð er skv. teikningum. Umrætt svæði hefði verið fallegra með minna byggingarmagni og stórum og fjölbreyttum almenningsgarði enda er vöntun á nálægu andrými innan hverfisins. Ekki er hugað nægilega vel að þörfum íbúa sem þegar búa í hverfinu og hefði borgin átt á fyrri stigum málsins að leggja sig fram við að eignast lóðina fyrst hætt var við áform um að stækka hjúkrunarheimilið. Nú er staðan orðin þannig að borgin tekur að sér að gera garð fyrir húsnæðið sem rís en er minni en hann hefði getað orðið og undir sex hæða húsi. Tryggja verður að hann nýtist öllu hverfinu og sé til yndisauka og unninn í samstarfi við íbúana. Þétting byggðar á að tryggja sjálfbærni hverfa þar sem verslun, þjónusta, afþreying og andrými tvinnast vel saman. Það virðist hins vegar ekki vera búið að hugsa þá samþættingu til enda í þessu máli og því erfitt að sjá að uppbyggingin samræmist að öllu leyti aðalskipulagi Reykjavíkur.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 24. nóvember 2022, um útboð á fruminnheimtu.
Helga Benediktsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22050043
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Verið er að gera nýjan samning við innheimtufyrirtæki. Innkauparáð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum þann 10. nóvember sl. að semja við lægstbjóðanda, Landsbankann. Fulltrúi Flokks fólksins vonar að allt hafi verið gert rétt í þessu útboði svo ekki komi bakreikningur vegna útboðsmistaka. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður tjáð sig um að ekki sé rétt að senda skuldir þeirra sem engan aurinn eiga í innheimtu lögfræðinga heldur ætti að fara mildari leiðir. Þeir sem eiga ekki krónu eiga hana ekki frekar þótt skuldin sé send til innheimtufyrirtækis.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 21. nóvember 2022, þar sem lögð eru fram drög að fræðslustefnu fyrir vinnustaðinn Reykjavíkurborg, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Lóa Birna Birgisdóttir og Ásta Bjarnadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MOS21120019
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Reykjavíkurborg setur sér hér fræðslustefnu enda viljum við tryggja öfluga símenntun fyrir allt starfsfólk borgarinnar. Með því styrkjum við borgina sem eftirsóknarverðan vinnustað og undirstrikum að fræðsla sé hluti af leið til að ná árangri í allri þjónustu og starfsemi borgarinnar.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins er sammála mikilvægi þess að hafa fræðslustefnu fyrir vinnustaði Reykjavíkurborgar. Tengist það helst því markmiði að starfsfólki líði vel í vinnunni og að það sé áfram um að veita borgarbúum framúrskarandi þjónustu og hafi ávallt hagsmuni þeirra og borgarinnar að leiðarljósi. Til að spara fjármagn hefði mátt slá saman fræðslustefnu og mannauðsstefnu. Of margar stefnur sem auk þess skarast valda ruglingi og hætta er á að eitthvað falli milli skips og bryggju. Þegar fræðslu ber á góma leitar hugurinn til mikilvægi fræðslu í samskiptum. Fræðslu um hvernig vinnustaður getur gert sig tilbúinn að taka faglega á erfiðum málum sem upp kunna að koma t.d. með því að hafa viðbragðsáætlun og ofbeldisvarnateymi. Hvorugum þessara þátta er gerð góð skil í þeim gögnum sem hér er lögð fram. Yfirmenn og stjórnendur þurfa einnig fræðslu, t.d. um hvernig þeir hámarka farsæld sína sem yfirmenn. Farsæll yfirmaður lætur sig varða nærumhverfið. Hann gefur skýr skilaboð um samskiptareglur. Stjórnunarstíll hans er gegnsær og fyrirsjáanlegur. Góður yfirmaður gerir miklar kröfur til starfsmanna sinna um að skila góðri vinnu, leggja sig alla fram og hafa hagsmuni vinnustaðarins í heiðri í hvívetna.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 21. nóvember 2022, varðandi kynningu á stöðu hóteluppbyggingar og þróun á fjölda gistinátta á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2022, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til forsætisnefndar.Óli Örn Eiríksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22110170
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fjöldi gistinátta á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið af miklum krafti á árinu og er nú sambærilegur við sömu mánuði árið 2019. Nokkur stór verkefni hafa nýlega verið kláruð og um sex hótelverkefni með alls 901 hótelherbergi eru annað hvort á teikniborðinu eða komin af stað. Ljóst er, miðað við spá sem kynnt var af Ferðamálastofu í október, að erlendum ferðamönnum mun fjölga þó nokkuð á komandi misserum. Þar er gert ráð fyrir að 2,4 milljónir sæki Ísland heim árið 2023. Því er líklegt að umtalsverður þrýstingur verði á uppbyggingu gistirýma í Reykjavík á komandi misserum. Því mun verða aflað frekari upplýsinga um tímaáætlanir viðkomandi verkefna og annarra sem kunna að vera í undirbúningi fyrir árlegan fund um atvinnuhúsnæði sem haldinn verður á vormánuðum.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Það verður að tryggja stöðugt framboð á lóðum fyrir uppbyggingu á íbúðarhúsnæði að mati Flokks fólksins. Ferðamannabransinn á Íslandi er sveiflukenndur og einkennist af offjárfestingu þegar vel gengur. Hver einasta lóð sem fer undir nýtt hótel er lóð sem ekki verður hægt að nýta til uppbyggingar íbúða. Ef illa gengur í ferðamannabransanum munu þessi hótel ekki nýtast undir íbúðir, heldur munu þau standa auð – það sáum við í COVID. Á meðan húsnæðisverð er jafn hátt og raun ber vitni og útilokað er fyrir venjulegt fólk að safna fyrir útborgun á íbúð ætti ekki að úthluta lóðum undir hótel í borginni.
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að tillögu borgarstjóra, dags. 22. nóvember 2022 um farþegaferju á Esju.
Frestað. MSS22100077 -
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. nóvember 2022:
Lagt er til að borgarráð samþykki að skipa Dag B. Eggertsson, Hildi Björnsdóttur og Ólöfu Örvarsdóttur sem fulltrúa Reykjavíkurborgar í dómnefnd vegna samkeppni um þróun Keldna og Keldnaholts. Samkeppnin er i samræmi við samþykkt borgaráðs frá 22. september sl. um umgjörð vegna samkeppni um þróun Keldna og Keldnaholts og viljayfirlýsingar Reykjavíkurborgar og Betri samgangna ohf. frá 28. apríl sl.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu:
Lagt er til að málinu verði frestað. Skoða þarf nánar að fá meiri fjölbreytni inn í dómnefndina, þ.m.t. einhvern utanaðkomandi, til að tryggja einhverja tengingu við borgarbúa og aðra áhuga- og hagsmunaaðila og samráð við íbúa/borgarbúa.
Málsmeðferðartillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:
Lagt er til að íbúasamtök Grafarvogs og íbúaráð Grafarvogs fái að tilnefna fulltrúa í dómnefnd vegna samkeppni um þróun Keldna og Keldnaholts. Einn fulltrúi komi frá íbúasamtökunum og annar frá íbúaráðinu.
Breytingartillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands.
Tillaga varðandi fulltrúa í dómnefnd vegna samkeppni um þróun Keldna og Keldnaholts er samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22040189Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Hér er um að ræða alþjóðlega tveggja þrepa samkeppni um þróun Keldnalands. Með samkeppninni er ætlunin að ná fram raunhæfum hugmyndum borgarhönnuða um víða veröld um stórt sjálfbært framtíðarhverfi, sem fléttast vel inn í borgarmynstur Reykjavíkur.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrir dyrum stendur að skipuleggja íbúabyggð í landi Keldna og Keldnaholts. Gott tækifæri er til að hanna eftirsóknarvert íbúðahverfi á þessu fallega svæði. Æskilegt er að það verði skipulagt með svipuðum hætti og gert hefur verið með góðum árangri í næsta nágrenni, þ.e. í Foldahverfi og Húsahverfi. Æskilegt er að í umræddri skipulagsvinnu sé ekki lögð megináhersla á mikla uppbyggingu og hámarksafrakstur af lóðasölu heldur að skapa þar fallegt og mannvænlegt hverfi. Augljóst er að hagsmunir landeiganda í þessari skipulagsvinnu eru mjög skýrir: að hafa þar sem mesta og þéttasta byggð í því skyni að fá hámarksafrakstur af sölu lóða þar. Athyglisvert er að meirihluti Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar skuli kjósa að hafa þrjá fulltrúa landeiganda í dómnefndinni, sem augljóst er að hafi áðurnefnda hagsmuni. Hins vegar kýs meirihlutinn að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins um að Íbúasamtök Grafarvogs og íbúaráð Grafarvogs fái að skipa fulltrúa í dómnefndina. Ljóst er að yfirlýsingar meirihlutans um aukið gagnsæi og samstarf við íbúa í mikilvægum skipulagsmálum eru innantómar og merkingarlausar.
Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi sósíalista hefði viljað sjá fleiri með fjölbreyttari bakgrunn og áherslur skipaða í dómnefndina og leggur áherslu á að þar verði m.a. litið til umhverfissálfræðinga og að fulltrúar íbúa og leigjenda komi þar að vinnunni sem er framundan.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Það væru mistök að stilla þróun Keldnalands og Keldnaholts upp sem innanhverfismáli Grafarvogs, en um er að ræða stórt nýtt uppbyggingarsvæði sem varðar ekki síður aðra borgarbúa. Á þessu frumstigi eru fulltrúar borgarinnar að koma fram fyrir hönd allra íbúa og gæta þeirra sjónarmiða gagnvart sjónarmiðum landeigenda og sérfræðinga. En vissulega er mikilvægt að íbúar í nærumhverfi hafi aðkomu að endanlegri útfærslu.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 22. nóvember 2022, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að erindisbréfi valnefndar um tilnefningar í umdæmisráð barnaverndar Reykjavíkur.
Samþykkt. MSS22110171
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 21. nóvember 2022, varðandi fyrirhugaða ferð staðgengils borgarstjóra til Tórshavnar, ásamt fylgiskjölum. MSS22110024
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Formaður borgarráðs vill fara til Þórshafnar. Nýlega voru kynntir reikningar borgarinnar og fjárhagsáætlun og aldrei hefur sést svo slæm útkoma. Fjármálastjóri hefur sagt að velta þurfi við hverri krónu. Fulltrúi Flokks fólksins veltir því upp hvort ekki sé sjálfsagt að gæta hófs í ferðum erlendis og farið verði til útlanda eingöngu í undantekningartilfellum. Eftir COVID eru flestir færir í notkun fjarfunda og svo má notast við streymi þar sem það býðst. Flokkur fólksins minnir á að margt smátt gerir eitt stórt og sárlega vantar að streyma meira fjármagni í beina þjónustu við börn sem dæmi.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 21. nóvember 2022, varðandi fyrirhugaða ferð forseta borgarstjórnar til Brussel, ásamt fylgiskjölum. MSS22110169
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Forseti borgarstjórnar vill fara til Brussel. Nýlega voru kynntir reikningar borgarinnar og fjárhagsáætlun og aldrei hefur sést svo slæm útkoma. Fjármálastjóri hefur sagt að velta þurfi við hverri krónu. Fulltrúi Flokks fólksins veltir því upp hvort ekki sé sjálfsagt að gæta hófs í ferðum erlendis og farið til útlanda eingöngu í undantekningartilfellum. Eftir COVID eru flestir færir í notkun fjarfunda og svo má notast við streymi þar sem það býðst. Flokkur fólksins minnir á að margt smátt gerir eitt stórt og sárlega vantar að streyma meira fjármagni í beina þjónustu við börn sem dæmi.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 22. nóvember 2022, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um ávöxtunarviðmið hagkvæms húsnæðis, sbr. 38. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. nóvember 2022. MSS22110087
Fylgigögn
-
Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 22. nóvember 2022, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um byggingarkostnað og söluverð hjá Þorpinu í Gufunesi, sbr. 37. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. nóvember 2022. MSS22110086
Fylgigögn
-
Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 17. nóvember 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um úthlutun fjármuna til grunnskóla Reykjavíkur, sbr. 33. lið fundargerðar borgarráðs frá 5. september 2019. SFS22110133
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Ein leið til að þagga niður viðkvæm mál er að svara ekki fyrirspurnum um þau fyrr en fjórum árum seinna. Þetta er tilfellið með þessa fyrirspurn Flokks fólksins um úthlutun fjármuna til skóla og hina svokölluðu fimm skóla skýrslu. Fyrirspurnin var lögð fram í nóvember 2019. Á þessum tíma var umræða um ástand skólabygginga í borgarstjórn að beiðni Flokks fólksins. Þar var sérstaklega rakið ástandið m.a. í Hagaskóla en þurfti skólinn að vaða eld og brennistein til að fá hlustun skóla- og frístundasviðs á myglu- og rakavandamáli skólans. Svarið nú eftir fjögur ár er bæði loðið og í raun útúrsnúningur. Skóla- og frístundasvið hélt utan um skjal með breytingum frá 2018 og óskum skólastjóra um viðbótarfjármagn. Flokkur fólksins óskaði eftir að fá að sjá þetta breytingarskjal skóla- og frístundasviðs og hvaða meðferð óskir skólastjóra fengu, hvaða óskir voru samþykktar og hverjum var hafnað. En það fékkst aldrei. Einnig vildi Flokkur fólksins fá í hendur hina svokölluðu fimm skóla skýrslu. En hún var aldrei opinberuð. Skólar sem um var fjallað í þessari skýrslu fengu í mesta lagi að sjá ákveðinn hluta skýrslunnar, þann hluta sem varðaði þá. Borgarfulltrúar minnihlutans fengu ekki að sjá hana.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um könnun á ánægju með störf aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks, sbr. 22. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. september 2022. Einnig lögð fram umsögn mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 17. nóvember 2022.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS22090167Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Í meðfylgjandi umsögn gætir einhvers misskilnings. Tillaga Flokks fólksins gekk út á að borgarráð samþykki að láta fara fram könnun hjá hagsmunasamtökum fatlaðs fólk á ánægju þeirra með störf aðgengis- og samráðsnefndar Reykjavíkur í málefnum fatlaðs fólks. Í umsögn mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu segir að aðgengis- og samráðsnefndin hafi ekki fjármagn til að gera slíka könnun. En Flokkur fólksins var ekki að leggja það til heldur að borgarráð myndi samþykkja að gerð yrði könnun af þessu tagi hjá hagsmunasamtökum. Flokkur fólksins myndi aldrei leggja annað til en að fenginn yrði óháður aðili til að gera könnun sem þessa. Spurning er hvort Flokkur fólksins leggi þessa tillögu fram aftur í von um að fá umsögn sem stemmir við tillöguna.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna um endurhönnun stofnbrauta, sbr. 19. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. nóvember 2022. MSS22110150
Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn einu atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúa Flokks fólksins finnst þessi tillaga Vinstri grænna ekki raunhæf en hugur að baki henni er góður. Kjarni hennar er sá að endurhanna stofngötur og gatnamót í Reykjavík sem borgargötur með fleiri þverunum þar sem fjölbreyttir og vistvænir ferðamátar fá enn meira rými. Götur sem kæmu til greina að mati Vinstri grænna eru engar smá götur heldur einar helstu stofnæðar borgarinnar, s.s. Kringlumýrarbraut, Sæbraut og Breiðholtsbraut. Flokki fólksins finnst að þetta muni ekki ganga upp alveg sama hvernig á það er litið og hversu mjög við þráum að ganga lengra í kolefnishlutleysi borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 17. nóvember 2022. MSS22010025
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:
Á fundi aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks fer fram kynning velferðarsviðs á stöðu innleiðingar farsældarlaga í Reykjavíkurborg. Fulltrúi Flokks fólksins saknar þess að sjá ekki kynningu og umræðu um aðgengi fatlaðra barna að skólum borgarinnar og hvar við erum stödd í að uppfylla ekki aðeins Barnasáttmálann heldur einnig samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þegar kemur að fötluðum börnum og aðgengi þeirra að skólum. Rannsóknir hafa sýnt að aðgengi að skólum og stöðum þar sem frístundastarf barna fer fram er víða ábótavant og jafnvel mjög slæmt. Fötluð börn hafa reynslu af ýmiskonar aðgengishindrunum stundum vegna þrengsla og þá óttast þau að detta, og einnig þar sem eru aðeins tröppur en engin lyfta. Oft er jafnvel tregða að gera breytingar á húsnæði til að gera það aðgengilegt, sér í lagi þegar kemur að gömlum húsum. Í þessu þarf að gera betur að mati Flokks fólksins. Auka þarf fræðslu og umræðu um aðgengismál og mikilvægt er að hún taki til fjölbreyttra þarfa ólíkra hópa, þ.m.t. barna. Aðgengi snýst ekki aðeins um aðgengi fyrir hjólastóla, það snýst einnig um aðgengi fyrir sjón- og heyrnarskerta.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 14. nóvember 2022. MSS22010020
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 16. nóvember 2022. MSS22010028
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 6. lið fundargerðarinnar:
Flokkur fólksins vill draga fram hér í bókun erindi íbúa sem snúa að umferðaröryggi og nefna gatnamótin inn í hverfið Úlfarsárdal Lambhagavegur – Mímisbrunnur. Þarna hafa orðið mjög mörg slæm slys. Hraðakstur er stundaður eftir Lambhagaveginum í báðar áttir, ef ekki er ætlunin að beygja inn í hverfið upp Mímisbrunn. Bílar sem koma upp brekkuna að Bauhaus sjást mjög seint. Þarna er þörf á hraðahindrun beggja vegna upp og niður Lambhagaveginn. Eins er það hringtorgið sem flytur alla umferð inn í Úlfarsárdal og Leirtjörn. Þarna vantar allar gangbrautarmerkingar (sebrabraut) og lýsingu. Þarna er mikið hjólað og gengið yfir. Rafhlaupahjól fara þarna yfir svo hratt að erfitt er að bregðast við þeim. Bílar sem koma upp að hringtorginu og beygja inn til hægri á Úlfarsbrautina sjá ekki nógu vel ómerkta gangbraut. Hringtorgið inn á Vesturlandsveg fyrir neðan Bauhaus er til vandræða. Úlfarsfellsvegur hefði þurft tvær akreinar strax fyrir 10 árum. Fleiri öryggisþætti mætti nefna hér, t.d. gatnamót Úlfarsbrautar og Freyjubrunns. Þegar keyrt er í norðurátt upp Úlfarsbraut er grindverk um lóð húss í Lofnarbrunni sem skyggir á umferð gangandi sem koma niður Freyjubrunn. Þarna er brekka niður í móti og það koma oft krakkar á mikilli ferð og yfir gangbrautina sem tekur við. Hætta er á að þarna geti orðið slys.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 14. nóvember 2022. MSS22010032
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. og 2. lið fundargerðarinnar:
Flokkur fólksins vill ítreka mikilvægi samráðs við íbúa í öllum málum, þ.m.t. málefni um smáhýsin í Laugardal. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að gefa ekki tækifæri á góðu samtali við íbúa hverfisins.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 31. október 2022. MSS22010017
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 21. október 2022. MSS22010015
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. og 4. lið fundargerðarinnar:
Undir lið 3 eru „hlunnindabifreiðar“. Fjármálastjóri kynnir stöðu hlunnindabifreiða hjá SORPU. Hér vantar allar upplýsingar og skýringar á hvað hlunnindabifreiðar eru og hverjir hafa aðgang að þeim. Einnig undir lið 4 er rætt um launakjör framkvæmdastjóra. Stjórn SORPU bókar um launakjörin og fer bókun í trúnaðarbók. Fulltrúi Flokks fólksins telur að launakjör framkvæmdastjóra eigi ekki að vera leyndarmál. Það á ekki að pukrast með laun eða launakjör neinna sem starfa hjá fyrirtækjum tengdum borginni. Allra síst á að halda slíku leyndu fyrir borgarfulltrúum.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 23. nóvember 2022.
B-hluti fundargerðarinnar er staðfestur. MSS22060175Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 10. lið fundargerðarinnar:
Flokkur fólksins lagði til að ekki verði lokað eins mikið fyrir bílaumferð á menningarnótt og 17. júní eins og tíðkast hefur. Gengið er of langt í að loka fyrir bílaumferð og með því er loku fyrir það skotið að ákveðinn hópur geti lagt leið sína í bæinn. Frítt í strætó og skutluferðir leysa ekki vanda þeirra sem eiga erfitt með gang og komast hvergi nærri hátíðarsvæði borgarinnar. Ekki einu sinni bílar með stæðiskort fá leyfi til að aka inn á lokað svæði. Á menningarnótt lentu margir í vandræðum. Víðfeðmar lokanir urðu til þess að fjölmargir gátu ekki tekið þátt í hátíðarhöldunum. Engu að síður er þessari tillögu vísað frá án þess að breytingar séu fyrirhugaðar fyrir næstu hátíðarhöld. Takmörkun bílaumferðar er gengin út í öfgar þegar ekki er séð til þess að fatlað fólk geti notið hátíðahalda. Hávær gagnrýni kom fram vegna strætóferða á menningarnótt ýmist vegna þess að þeir voru of fáir, of seinir eða óku fram hjá fólki. Vegna róttækra lokana fylltust vagnar af fjölskyldum með barnavagna. Líkamlega fatlaður einstaklingur á erfitt með að nota strætó undir slíkum kringumstæðum. Eins sniðug og skutluþjónusta er þá var hún ekki að virka á menningarnótt. Skoða þarf hvað þarf að gera betur.
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 16. nóvember 2022. MSS22010024
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 10 mál. MSS22110004
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS22110050
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Óvenju margar leyfisveitingar eru að þessu sinni eða 20 og eru 15 jákvæðar. Af þeim eru 8 í Pósthússtræti, ein í Thorvaldsenstræti og ein í Skúlagötu. Reyndar er hluti af þessu leyfum veittar til gistiheimila með fáum gestum. Þessar leyfisveitingar vekja engu að síðu upp hugsun um ástandið í miðbænum í ljósi frétta frá síðustu helgum um ofbeldi og ólæti. Einnig er vert að nefna áralangar kvartanir um hávaðamengun. Flokkur fólksins spyr hvort rætt hafi verið við þessa nýju rekstraraðila um mikilvægi þess að fylgja reglugerð um hávaðamengun. Fyrir skemmstu setti Heilbrigðiseftirlitið upp hljóðmæli á horni Bankastrætis og Laugavegar vegna fjölda hávaðakvartana sem hafa borist frá íbúum á svæðinu. Það var löngu tímabært. Margar kvartanir hafa einnig borist úr Grjótaþorpinu. Skoða þarf að setja upp fleiri mæla til að fylgjast með því hvort það sé verið að fara eftir settum lögum og reglum. Samkvæmt reglugerð má hávaði ekki vera meiri en 95 desíbil. Sé reglum ekki fylgt getur Heilbrigðiseftirlitið takmarkað starfsemina og opnunartíma staðanna. Mikilvægt er að nýta allar heimildir ef reglur eru brotnar og linna ekki látum fyrir íbúar miðbæjar fá svefnfrið um helgar.
Fylgigögn
-
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir því að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu komi á fund borgarráðs í næstu viku til að ræða fjölgun ofbeldisglæpa í Reykjavík að undanförnu. Ræða þarf leiðir til að stemma stigu við þessari öfugþróun, t.d. með því að efla löggæslu og auka samstarf milli lögreglunnar og Reykjavíkurborgar í löggæslumálum. MSS22110209
Frestað.
-
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Í þessari viku er fyrirhuguð ferð formanns borgarráðs til Þórshafnar í Færeyjum og í næstu viku ferð forseta borgarstjórnar til Brussel. Óskað er eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað Reykjavíkurborgar vegna þessara ferða. Jafnframt eru ítrekaðar fyrri fyrirspurnir um kostnað vegna ferðar borgarstjóra til Parísar ásamt aðstoðarmanni, sem nú stendur yfir, til Kaupmannahafnar fyrr í vikunni ásamt aðstoðarmanni, til Barcelona í síðustu viku og til Amsterdam í síðasta mánuði ásamt fylgdarliði, sem enn hafa ekki fengist svör við þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Óskað er eftir þessum upplýsingum sem fyrst enda ljóst að áfallinn kostnaður vegna ferða, sem þegar hafa verið farnar, liggur fyrir í kerfinu. MSS22110214
Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.
-
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um af hverju þjónustu- og nýsköpunarsvið ákvað að hefja vegferð stafrænna umbreytinga án nánast alls samráðs við bæði önnur sveitarfélög og ríkið sem nú eru að vinna þetta saman. Einnig er óskað upplýsinga um hvort öll sú erlenda ráðgjöf sem sviðið hefur verið að kaupa undanfarinn áratug, hafi ekki tekið með í myndina þá hagkvæmni samlegðaráhrifa sem sameiginleg vegferð sveitarfélaga hefði haft. Fulltrúi Flokks fólksins hefur undanfarin ár ítrekað verið að benda á þá sér leið sem þjónustu- og nýsköpunarsvið hefur verið á varðandi stafræna umbreytingu. Í stað þess að hafa strax í byrjun farið þá leið að fá sem flest sveitarfélög með í þessa vegferð, var ákveðið að borgin skyldi gera þetta upp á eigin spýtur. Samkvæmt kynningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, sbr. 1. lið fundargerðar stafræns ráðs frá 23. nóvember 2022 á samstarfi sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu, eru sveitarfélög á Íslandi að sameinast um þekkingaruppbyggingu, þróun sameiginlegra lausna og kaup á lausnum. Sveitarfélög eru að setja sér sameiginlega stefnu sem talar beint inn í stefnu um stafræna þjónustu hins opinbera. Með öðrum orðum er stafræn umbreyting sveitarfélaga hagkvæmari vegna samlegðaráhrifa en að hvert sveitarfélag hefði verið að gera þetta í sínu horni. MSS22110210
Vísað til meðferðar stafræns ráðs.
-
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort þjónustu- og nýsköpunarsvið gæti mögulega fækkað tímafrekum og kostnaðarsömum notendatilraunum og reynt að nýta sér frekar þá þekkingu sem nú þegar liggur víða fyrir varðandi innskráningarferla í leikskóla og þannig flýtt innleiðingu þeirra lausna sem lengi hefur verið beðið eftir í Reykjavík. Í svari skóla- og frístundasviðs í 9. lið fundargerð stafræns ráðs frá 23. nóvember 2022 vegna fyrirspurnar Flokks fólksins varðandi umsóknir í leikskóla, kemur fram að stafræn umbreytingarverkefni séu umfangsmikil og tímafrek. Fulltrúi Flokks fólksins telur þess vegna að þjónustu- og nýsköpunarsvið eigi ekki að gera þessi stafrænu umbreytingarverkefni umfangsmeiri og flóknari en þörf er á. Það er óþarfi að tíunda upp hér allt það sem enn sér ekki fyrir endann á varðandi stafræna umbreytingu borgarinnar, en það að skrá börn í eða flytja á milli leikskóla er ferli sem enn er ekki komið í lag og langt virðist í land með. Í umsögn skóla- og frístundasviðs kom fram það sem fulltrúi Flokks fólksins hefur oft gagnrýnt, sem eru allar þessar notendarannsóknir sviðsins. Fulltrúi Flokks fólksins á mjög erfitt með að trúa því að hegðun Reykvíkinga sé svo mikið öðruvísi en hegðun notenda annars staðar, að áralangar rannsóknir þurfi að liggja að baki lausnum sem margar hverjar eru nú þegar til. MSS22110211
Vísað til meðferðar stafræns ráðs.
-
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um kostnað lykilbúnaðar greiðslukerfis Strætós, skanna Klapp-apps sem notaðir eru í vögnunum og sem nú hefur verið lýst sem ónothæfum og stendur til að skipta út. Hver var heildarkostnaður þessa búnaðar með öllu tilheyrandi? Óskað er sundurliðunar á helstu þáttum. Er það fjármagn sem farið er í Klapp kerfið með öllu tapað? Hvað tekur nú við hvað varðar greiðslukerfi, verður farið aftur í strætómiðana? Er Strætó bs. að stefna í gjaldþrot? Það virðist ekki lát á ógöngum Strætó bs. Enn ein alvarleg mistök virðast hafa verið gerð með kaupum og innleiðingu á greiðslukerfi Strætós bs. Þetta kom fram í kynningu Strætó á ársfundi byggðasamlagsins, SORPU og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins). Flokkur fólksins hefur margsinnis bent á að í fyrsta lagi var tímasetning þessarar fjárfestingar algerlega út úr kortinu vegna slæmrar fjárhagsstöðu Strætó. Klappið hefur þess utan valdið ákveðnum hópi ómældu tjóni og skemmst að minnast frétta um vandamál með notkun Klappkerfisins ef fólk getur ekki notað rafræn auðkenni. Fram kom í kynningu stjórnenda á ársfundinum að félagið væri á mörkum þess að vera rekstrarhæft og að félagið hafi ekki átt fyrir reikningum fyrir síðustu helgi. Ljóst er að komið er að einhverjum vatnaskilum með almenningssamgöngur í Reykjavík sem fram til þessa hafa hvorki verið fugl né fiskur. MSS22110212
Vísað til umsagnar stjórnar Strætó bs.
-
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fram kemur undir lið 3 og 4 í fundargerð SORPU bs. frá 21. október að staða „hlunnindabifreiða“ er kynnt og á dagskrá eru einnig launakjör framkvæmdastjóra sem er haldið leyndum. Fyrirspurn frá Flokki fólksins vegna hlunnindabifreiða. Hvað er átt við með hlunnindabifreiðum? Hverjir fá aðgang að slíkum bifreiðum? Eru umtalsverð hlunnindi í gangi í SORPU og fyrir hverja þá? Fyrirspurn um launakjör framkvæmdastjóra: Af hverju eru launakjör framkvæmdastjóra trúnaðarmál? Flokkur fólksins vill fá upplýsingar um hver launakjör framkvæmdastjóra eru. MSS22110213
Vísað til umsagnar stjórnar SORPU bs.
Fundi slitið kl. 11:10
Einar Þorsteinsson Alexandra Briem
Heiða Björg Hilmisdóttir Hildur Björnsdóttir
Kjartan Magnússon Sanna Magdalena Mörtudottir
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarrad_2411.pdf