Borgarráð - Fundur nr. 5684

Borgarráð

Ár 2022, fimmtudaginn 10. nóvember, var haldinn 5684. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:08. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon, Pawel Bartoszek, Skúli Helgason og Trausti Breiðfjörð Magnússon. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Baldursdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Þorsteinn Gunnarsson og Ívar Vincent Smárason. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram trúnaðarmerkt mánaðarlegt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-ágúst 2022, dags. 8. nóvember 2022. FAS22060027

    Helga Benediktsdóttir og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

  2. Lagt fram bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., dags. 17. október 2022, varðandi gjaldskrá Slökkviliðsins fyrir árið 2023. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 2. nóvember 2022. MSS22100153
    Vísað til borgarstjórnar.

    Helga Benediktsdóttir og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
     

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 7. nóvember 2022, varðandi seinni úthlutun stofnframlaga fyrir árið 2022 vegna almennra íbúða. FAS22090028

    Helga Benediktsdóttir og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. nóvember 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 2. nóvember 2022 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðarinnar nr. 32 við Brautarholt, ásamt fylgiskjölum. MSS22110051
    Samþykkt.

    Björn Axelsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 7. nóvember 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili framlengingu á lóðarvilyrði vegna Lágmúla 2, ásamt fylgiskjölum. MSS22100205
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 7. nóvember 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Uppfærð húsnæðisáætlun Reykjavíkur er lögð fram til staðfestingar. Með áætluninni er sett fram á einum stað greining á stöðu húsnæðismála og veitt yfirlit yfir aðgerðir borgarinnar í húsnæðismálum. Þær eiga það sammerkt að mæta áskorunum á húsnæðismarkaði og stuðla að því að ná markmiðum Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22020087
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Hilmar Hildar Magnúsarson og Ívar Örn Ívarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks vekja athygli á því að uppfærð húsnæðisáætlun setur ekki fram jafn metnaðarfull markmið um húsnæðisuppbyggingu og birtust í liðnum borgarstjórnarkosningum. Jafnframt er gert ráð fyrir því að aðeins 30% íbúðanna verði hagkvæmar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja í áætluninni vannýtt tækifæri til húsnæðisuppbyggingar á mörgum svæðum, t.d. Staðarhverfi í Grafarvogi og Örfirisey. Jafnframt skortir áform um einföldun regluverks og sveigjanlegri stjórnsýslu sem getur liðkað fyrir og hraðað húsnæðisuppbyggingu í borginni.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Samkvæmt fasteignaskrá Þjóðskrár hafa verið byggðar 2.526 íbúðir á landinu í ár. Meira en fimmtíu prósent íbúðanna hafa endað í höndum fyrirtækja eða eignafólks sem á fasteignir fyrir. Á meðan það er ekki ráðist að því meini sem uppsöfnun íbúða er og áhrifum þess á húsnæðisverð, munu borgaryfirvöld halda áfram að glíma við húsnæðiskreppu um ófyrirsjáanlega framtíð. Það er nauðsynlegt að setja skorður á uppsöfnun eigna eins og þekkist í borgum allt í kringum okkur. Öll plön og áætlanir um að einungis framboðsvandamál sé að valda hækkun húsnæðisverðs er ofureinföldun á stöðunni sem við stöndum frammi fyrir.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það virðist vera ágætur kraftur í uppbyggingu þótt langt sé í land að framboð og eftirspurn dansi í takt. Auka á stuðning við leigjendur. Hámarksgreiðslur voru hækkaðar úr 82.000 krónum í 90.000 krónur á mánuði og stuðull útreikninga hækkaður úr 0,9 í 1,0. Hér finnst Flokki fólksins að hefði mátt gera betur þótt vissulega muni um hverja krónu. Staðan á biðlistum er 604 á biðlista eftir félagslegu húsnæði og er það aukning. Biðlisti eftir húsnæði fyrir fatlað fólk er einnig langur. Almennt eru biðlistar of langir í öllum húsnæðisflokkum. Einnig er hægt að nefna að meira mætti kannski byggja á Keldnalandinu. Byggja á 3.500 íbúðir samkvæmt núverandi áætlunum.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 7. nóvember 2022, þar sem yfirlit innleiðingar húsnæðisáætlunar Reykjavíkur á þriðja ársfjórðungi 2022 er sent borgarráði til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS22020087

    Hilmar Hildar Magnúsarson og Ívar Örn Ívarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 7. nóvember 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fela borgarstjóra að undirrita Global Declaration of Mayors for Democracy.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22100251
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  9. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS21120187

  10. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 7. nóvember 2022, varðandi fyrirhugaða ferð borgarstjóra til Barcelona, ásamt fylgiskjölum. MSS22110021

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarstjóri vill fara til Barcelona. Nýlega voru kynntir reikningar borgarinnar og fjárhagsáætlun og aldrei hefur sést svo slæm útkoma. Fjármálastjóri hefur sagt að velta þurfi við hverri krónu. Er ekki sjálfsagt að borgarstjóri gæti hófs í ferðum erlendis og fari aðeins til útlanda fyrir skattfé borgarbúa í undantekningartilfellum? Eftir COVID eru flestir færir í notkun fjarfunda og svo má notast við streymi þar sem það býðst. Flokkur fólksins minnir á að margt smátt gerir eitt stórt og sárlega vantar að streyma meira fjármagni í beina þjónustu við börn sem dæmi.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 7. nóvember 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu um tíma- og kostnaðaráætlun vegna heildstæðrar athugunar á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins. Fjármála- og áhættustýringarsviði verði falið að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna þessa, heildarkostnaður er áætlaður 76 m.kr. Fyrir liggur umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22110041
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Gott er að sjá að þessi heildstæða athugun sé að fara af stað. Mikilvægt er að öllum spurningum verði svarað sem baráttuhópurinn Réttlæti lagði fram. Nefndin verður að fá til þess fullt rými ef fyrirséð er að störf muni standa yfir lengur en hér kemur fram.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 10. október 2022, varðandi tillögur starfshóps um mótun stefnu og tillagna um aðkomu Reykjavíkurborgar að sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólum, ásamt fylgiskjölum. MSS22100084
    Vísað til borgarstjórnar.

    Helgi Grímsson og Birgir Björn Sigurjónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er mikilvægt að fara yfir samstarf við sjálfstætt rekna skóla með það að hugarfari að jafna aðstöðu nemenda, draga úr þeim gjöldum sem leggjast á foreldra og tryggja jafnræði í samningsumhverfi skólanna. Eins er mikilvægt að samræma skráningakerfi með það að markmiði að koma í veg fyrir tvískráningu og tryggja að börn njóti samræmis og væntingar varðandi forgangsröðun séu skýrar. Eins er mikilvægt að tryggja að aukið fjármagn sem Reykjavíkurborg leggur til í rekstur einkarekinna skóla nýtist við að efla skólastarf.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins styður tillögur starfshóps sem hefur mótað stefnu og tillögur um aðkomu Reykjavíkurborgar að sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólum. Markmiðið er að auka fjölbreytni í skólastarfi í borginni og fjölga valkostum fyrir foreldra varðandi menntun barna. Skapa á aukið jafnræði fyrir foreldra og nemendur um val á skólum í borginni. Einnig að skapa möguleika fyrir einkaaðila að hafa rekstur leik- eða grunnskóla í húsnæði borgarinnar á sömu kjörum og borgarreknir skólar.  Tekið er undir mikilvægi þess að samræma gjaldskrár sjálfstætt starfandi leikskóla og borgarrekinna leikskóla til að skapa aukið jafnræði foreldra við val á leikskólum í borginni. Flokkur fólksins fagnar tillögunni um að setja eigi skorður við útgreiðslu arðs með ákvæðum um rekstrarafgang hjá sjálfstætt reknum leikskólum sem leiðir af opinberum framlögum. Flokkur fólksins telur mikilvægt að rekstrarafgangur verði nýttur til að efla skólastarf og tryggja að hann verði nýttur í þróun skóla um leið og skólagjöld verði lögð af.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna minnir á það fjölskrúðuga og öfluga starf sem rekið er í borgarreknum grunn- og leikskólum. Engir tveir skólar eru eins og starf á þessum skólastigum einkennist af gríðarlegri fjölbreytni og sköpunarmætti. Því er hvimleitt að sjá því ítrekað haldið fram í yfirlýsingum og samþykktum stjórnenda borgarinnar að fjölbreytni, framboð og fjölgun valkosta fyrir foreldra þegar kemur að skólastarfi verði helst eða jafnvel einungis náð með einkarekstri. Ekki verður séð að nein haldbær rök styðji það mat, heldur sé einfaldlega um að ræða eina af margtuggnum klisjum frjálshyggjunnar. Það er skýr stefna Vinstri grænna að skólakerfið skuli vera í samfélagslegum rekstri og megi aldrei vera haft að féþúfu, það er mat fulltrúa flokksins að þeir varnaglar sem slegnir eru í tillögunni um útgreiðslu arðs úr sjálfstætt reknum skólum séu alltof veikir og muni ekki halda.

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. nóvember 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að heimild verði veitt til að undirrita þjónustusamning við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks, sem kveður á um að Reykjavíkurborg taki á móti allt að 1500 flóttamönnum á samningstímanum, 1. október 2022 til 31. desember 2023. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið greiðir allan kostnað vegna samningsins í samræmi við kostnaðarlíkan sem honum fylgir. Þá er jafnframt lagt til að heimild verði veitt til að undirrita viðauka við þjónustusamning um móttöku, aðstoð og þjónustu við hóp flóttafólks frá 4. febrúar 2021, en viðaukinn kveður á um greiðslur fyrir þá þjónustu sem var veitt flóttafólki í samræmdri móttöku frá 1. apríl-30. september 2022. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið greiðir allan kostnað vegna viðaukans sem byggir á kostnaðarlíkani með þjónustusamningnum um móttöku, aðstoð og þjónustu við hóp flóttafólks frá 4. febrúar 2021.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL22090033
    Samþykkt.

    Aðalbjörg Traustadóttir, Jasmina Vajzovic Crnac, Elsa Guðrún Jóhannesdóttir og Helga Jóna Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins fagnar samningi við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks. Mikil vinna liggur honum að baki. Það liggur á að fá þennan samning svo það sé hægt að aðstoða flóttafólk og m.a. koma börnum í skóla. Helstu breytingar frá fyrri samningi eru að greitt verður sérstaklega fyrir hvert barn í samræmdri móttöku en ekki eingöngu eitt gjald fyrir barnafjölskyldur óháð fjölda barna.

    Fylgigögn

  14. Lögð fram drög að umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 7. nóvember 2022, um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd), 382. mál. MSS22100268
    Frestað.

    Aðalbjörg Traustadóttir, Jasmina Vajzovic Crnac, Elsa Guðrún Jóhannesdóttir og Helga Jóna Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

  15. Lagt fram bréf innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 7. nóvember 2022, varðandi nýtt erindisbréf fyrir fagsvið persónuverndar, ásamt fylgiskjölum. MSS22110059

    Hallur Símonarson, Dagbjört Hákonardóttir og Agnes Guðjónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Verið er að skipta innri endurskoðun upp og sennilega þar með útvíkka hlutverk hennar. Starfa eiga þrjú fagsvið innan innri endurskoðunar í stað tveggja. Þau eru fagsvið innri endurskoðunar, fagsvið ráðgjafar og fagsvið persónuverndar. Hvað varðar fagsvið persónuverndar, þá er þetta án efa ágætis breyting enda er tilefni hennar rakið til frumkvæðisathugunar Persónuverndar um að tryggja þyrfti að persónuverndarfulltrúi nyti fullnægjandi sjálfstæðis í starfi og að önnur verkefni og skyldustörf leiddu ekki til hagsmunaárekstra. Flokkur fólksins veltir því þó upp hvort fagsvið persónuverndar eigi yfir höfuð að vera hlut af innri endurskoðun og ætti jafnvel að vera staðsett á öðrum stað en á skrifstofu innri endurskoðunar.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 31. október 2022, varðandi nýtt erindisbréf fyrir fagsvið ráðgjafar, ásamt fylgiskjölum. MSS22110043

    Hallur Símonarson, Dagbjört Hákonardóttir og Agnes Guðjónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er verið að draga úr aðhaldi borgarbúa við yfirvöld Reykjavíkur. Fagsviði verður ekki lengur gert að aðstoða við að semja kærur fyrir borgarbúa þegar þeir eiga í samskiptum við Reykjavíkurborg, sem gerir fólki erfiðara fyrir. Einnig mun ráðgjafi borgarbúa koma í stað umboðsmanns borgarbúa. Þetta er verulega útþynnt nafn og mætti skilja sem svo að þessi ráðgjafi standi ekki að fullu með borgarbúum eins og umboðsmaður gerir.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fagsviði ráðgjafar hefur verið skipt upp í fagsvið ráðgjafar og fagsvið persónuverndar. Undir þessum hatti er eins konar umboðsmaður sem þó má ekki kalla umboðsmann heldur „ráðgjafa íbúa“. Þetta er ný birtingarmynd af því sem var áður umboðsmaður borgarbúa. Flokki fólksins finnst miður að sjá að ráðgjafa borgarbúa er ekki gert að semja kærur fyrir borgarbúa þegar þeir eiga í samskiptum við Reykjavíkurborg. Þetta er galli, og þetta er kannski einmitt það sem fólk þarf aðstoð  við. Með því að taka þetta hlutverk frá ráðgjafanum lítur einnig út eins og hann sé í liði með Reykjavík en ekki með borgarbúum sem vilja kæra. Hver á að hjálpa borgarbúa sem ekki hefur ráð á lögfræðingi að semja kærur þegar hann telur borgina hafa brotið á sér? Ráðgjafinn á einna helst að gefa ráð. Samkvæmt lýsingu er ekki séð að hann beiti sér, hlutist til um mál af alvöru, geri það sem þarf að gera til að leysa mál. Þess utan er borgin ekki bundin af tilmælum ráðgjafar. Þetta virkar máttlaust, starf sem er í bómull og skilur mögulega borgarbúann eftir í sömu sporum. Það geta allir veitt góð ráð sem borgin þarf svo ekki einu sinni að hlusta á.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf endurskoðunarnefndar, dags. 3. nóvember 2022, varðandi starfsskýrslu endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar fyrir starfsárið 2021-2022,  ásamt fylgiskjölum. MSS22110038
    Frestað.

  18. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. október 2022, sbr. samþykkt forsætisnefndar frá 14. október 2022 á tillögu að styrk til nýsköpunarviku, ásamt fylgiskjölum. MSS22090037
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á nýsköpunarviku í Reykjavík. Nýsköpun er forsenda framfara, en nýsköpun fylgir einnig mikil fjárhagsleg áhætta. Það þekkja mörg sprotafyrirtæki á markaði. Oft er þunn lína á milli þess að ná tilsettum árangri í nýsköpun og þess að mistakast. Það hefur komið í ljós að stór hluti þeirra nýsköpunarverkefna sem opinberir aðilar hafa lagt upp með, hefur mistekist. Um þetta hafa verið gerðar kannanir erlendis. Bestum árangri í nýsköpun hafa einkafyrirtæki verið að ná, en ekki opinberir aðilar. Þess vegna gerir fulltrúi Flokks fólksins athugasemdir við þá ákvörðun að að gera Reykjavíkurborg einn af burðarstólpum hátíðarinnar. Það er sjálfsagt að Reykjavíkurborg leggi sitt af mörkum til hátíðarinnar eins og með að leggja til húsnæði og annað. Meirihlutinn í Reykjavík verður hins vegar að fara að gera sér grein fyrir því að borgin er ekki samkeppnisfyrirtæki á einkamarkaði og lýtur einfaldlega öðrum lögmálum en slík fyrirtæki.

    Fylgigögn

  19. Lagt til að Dagur B. Eggertsson, Einar Þorsteinsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Alexandra Briem, Helga Þórðardóttir, Líf Magneudóttir, Trausti Breiðfjörð Magnússon og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins taki sæti í rýnihópi um hlutafjáraukningu Ljósleiðarans ehf. MSS22100231
    Samþykkt.

  20. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um skilgreinda baðstaði við sjó, sbr. 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 6. október 2022. Einnig lögð fram umsögn starfshóps um haftengda upplifun og útivist, dags. 2. nóvember 2022. MSS22100064
    Tillögunni er vísað til frekari skoðunar í vinnu starfshóps um haftengda upplifun og útivist.

    Fylgigögn

  21. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna um takmörkun umferðar einkaþotna um Reykjavíkurflugvöll, sbr. 57. lið fundargerðar borgarráðs frá 7. júlí 2022. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 8. nóvember 2022.
    Tillagan er felld með sex atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. MSS22010214

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna áréttar mikilvægi tillögu flokksins um að fela borgarstjóra þegar að ganga til samninga við ríkisvaldið um að losa Reykjavíkurflugvöll og þar með borgarbúa undan þeirri áþján sem hlýst af einkaþotu- og þyrluflugi á vellinum. Í umsögn borgarritara um málið er vísað til níu ára gamals samkomulags ríkis og borgar um að færa einka- og kennsluflug á annan stað. Sú staðreynd ein og sér að lítið hefur gerst í málinu í tæpan áratug ætti að staðfesta mikilvægi þess að hreyfa við því að nýju með róttækum hætti. Þá hafa forsendur breyst mikið á þeim tíma sem liðinn er, ekki síst varðandi stórkostlega aukna þyrluumferð sem mörg telja enn meira truflandi en umferð flugvéla. Líklegt má telja að leysa mætti þyrlumálin sérstaklega án þess að tengja það ákvörðunum um framtíðarmiðstöð innanlandsflugsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er búið að vera á dagskrá borgarinnar í um 20 ár að færa óþarfa flug frá Reykjavíkurflugvelli. En hinn aðilinn, samgönguyfirvöld, eru greinilega á öðrum stað sbr. svarbréf  samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, dags. 16. september 2020. Þar er lýst þeirri afstöðu ráðuneytisins að það telji það ekki vera tímabært að fjárfesta í flutningi æfinga-, kennslu- og einkaflugs frá Reykjavíkurflugvelli yfir á annan flugvöll á meðan rannsóknir um nýjan flugvöll í Hvassahrauni eru enn í gangi. Svo mörg voru þau orð.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 8. nóvember 2022, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um biðlista eftir plássi á frístundaheimili, sbr. 29. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. október 2022. MSS22100202

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Er mannekla helsta ástæða þess að tæp 200 börn fá ekki pláss á frístundaheimili? Eða kemur fleira til? Borgin getur ekki veitt þjónustu víða vegna vöntunar á starfsfólki en virðist samt lítið vera að gera í málinu nema að slá því fram sem ástæðu fyrir að ekki er hægt að veita mannsæmandi þjónustu. Flokkur fólksins telur að hægt sé  að leysa þennan vanda sé vilji til að leysa hann. Flokkur fólksins fær daglega fréttir frá foreldrum sem ýmist geta ekki komið með barn sitt í leikskólann eða er beðið að sækja það stuttu eftir komu barnsins vegna þess að það vantar starfsfólk. Þessu er meirihluti borgarstjórnar, eins og sá síðasti, orðin samdauna. Fram kemur í svari að mánaðarlegur kostnaður borgarinnar við hvert barn á almennu frístundaheimili er 34.773 kr. vegna ársins 2021. Ekki er séð hvernig fólk sem hefur lítið milli handanna á að standa skil á þessu. Hér þurfa að koma til sértækar aðgerðir. Foreldrar sem eru verst settir ættu að fá þetta gjald niðurfellt.

    Fylgigögn

  23. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. október 2022, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um samninga borgarinnar við innheimtufyrirtæki, sbr. 54. lið fundargerðar borgarráðs frá 23. júní 2022. MSS22060187

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er sérstakt að borgin hafi ekki hugmynd um það hvenær fyrstu samningar voru gerðir við innheimtufyrirtæki vegna skulda borgarbúa. Þessar upplýsingar ættu auðvitað að liggja fyrir starfandi fulltrúa. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það getur komið fyrir alla að geta ekki borgað og þykir Flokki fólksins það harkalegt að senda vangreidda leigu í innheimtu með tilheyrandi aukakostnaði fyrir leigjandann. Leigjendur Félagsbústaða eru viðkvæmur hópur og margir búa við fátækt. Talað er um betri árangur innheimtuaðgerða. Þegar fólk er komið með lögfræðing á bakið og kröfubréf með hótun um dráttarvexti segir það sig sjálft að fólk leitar allra leiða til að redda greiðslu. Hér er bókun Flokks fólksins frá mars 2019 við svari frá Félagsbústöðum við fyrirspurn um sundurliðun lögfræðikostnaðar: „Félagsbústaðir hafa eytt tæpum 112 milljónum í lögfræðikostnað undanfarin 6 ár. Stærstu póstarnir eru Málþing ehf., Lögheimtan og Motus eða um 100 milljónir. Lögfræðikostnaður vegna innheimtumála nam tæpum 65,8 milljónum eða um 12,3 m.kr. á ári.“ Borgarfulltrúa finnst miklu fé hafa verið varið í að innheimta af fólki sem margt hvert hefur e.t.v. enga möguleika á að greiða þessar skuldir. Er t.d. kannað hvað liggur að baki því að fólkið geti ekki greitt? Fólk skuldar varla að gamni sínu.

    Fylgigögn

  24. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 8. nóvember 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um breytingu samningsmarkmiða Reykjavíkurborgar vegna alvarlegs húsnæðisástands, sbr. 61. lið fundargerðar borgarráðs frá 23. júní 2022. MSS22060181

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins lagði fram fyrirspurn um hvort ekki sé tímabært að breyta samningsmarkmiðum Reykjavíkur á þann hátt að hækka prósentu íbúða sem skilgreindar eru sem leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða hf., búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Um þetta er spurt vegna húsnæðisástandsins sem kemur hvað verst niður á leigjendum og efnaminna fólki. Í svari segir að samningsmarkmið hafi verið endurskoðuð þegar ástæða hefur þótt til frá því þau voru fyrst samþykkt árið 2014. Flokkur fólksins áttar sig ekki alveg á hvað það þýðir „þegar ástæða hefur þótt til“. Hverjar eru skilgreiningar á því og hver metur þörfina og á hverju er hún byggð? Flokkur fólksins mun leggja fram formlega fyrirspurn um þessi atriði enda er þetta forvitnilegt. Að öðru leyti er sjálfsagt að bíða með að endurskoða samningsmarkmið Reykjavíkurborgar þar til niðurstaða úr viðræðum borgar og ríkis um húsnæðissáttmálann liggur fyrir eins og lagt er til í svari. 

    Fylgigögn

  25. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. nóvember 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna um afdrif tillögu um takmörkun umferðar einkaþotna um Reykjavíkurflugvöll, sbr. 33. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. október 2022. MSS22070063

    Fylgigögn

  26. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 24. og 31. október 2022. MSS22010020

    Fylgigögn

  27. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 25. október 2022. MSS22010022

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir fyrsta lið fundargerðarinnar: 

    Flokkur fólksins tekur undir bókun meirihlutans um Jöfnunarsjóð. Eins og fram kemur í minnisblaði um fjölmenningarlegt skóla og frístundastarf í Reykjavík er horft fram á áframhaldandi fjölgun flóttabarna út næsta ár.  Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á landinu sem fær ekki úthlutað úr Jöfnunarsjóði vegna kennslu í íslensku 2 í grunnskólum. Jöfnunarsjóður sveitarfélaganna er jafnvel notaður til að skerða framlög til Reykjavíkur sérstaklega. Flokkur fólksins lagði fram þingsályktunartillögu fyrr á árinu um að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að endurskoða löggjöf og regluverk með það að markmiði að öll börn njóti réttlætis óháð búsetu. Það er ekki hægt að una við að eitt sveitarfélag sé fyrirfram útilokað frá úthlutunum jöfnunarframlaga vegna reksturs grunnskóla einungis vegna stærðar. Þetta er ekki síður óréttlátt þar sem langflestir nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku búa í Reykjavík. Tryggja þarf hverju flóttabarni nægilegt fjármagn til að sveitarfélag geti veitt þeim nauðsynlega þjónustu. 

    Fylgigögn

  28. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 27. október og 3. nóvember 2022. MSS22010006

    Fylgigögn

  29. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Háaleitis og Bústaða frá 26. október 2022. MSS22010030

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið fundargerðarinnar:

    Fram fer umræða um breytingar á gatnamótum Háaleitisbrautar og Bústaðavegar.  Komið er inn á samstarf við íbúa þegar unnið er að hugmyndum um öryggismál. Umræða hefur verið um fyrirætlanir Reykjavíkurborgar að þrengja Háaleitisbraut í eina akrein í hvora átt, við gatnamót Háaleitisbrautar og Bústaðavegar, og taka af hægri beygjur á þessum gatnamótum. Hér þarf að staldra við og ræða við íbúa enda þekkja þeir best hvar skóinn kreppir í umferðaröryggismálum. Flokkur fólksins minnir á loforð um samráð.

    Fylgigögn

  30. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 27. október 2022. MSS22010033

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 12. lið fundargerðarinnar: 

    Flokkur fólksins tekur undir bókun íbúaráðsins um næturstrætó. Harmað er að rekstri næturstrætó hafi verið hætt eftir einungis tvo mánuði. „Tveir mánuðir er alltof stutt tímabil til að fá raunsanna mynd af eftirspurn eftir slíkri þjónustu.  Mannsöfnuður í miðbænum eftir lokun skemmtistaða skapar ýmis konar hættur og getur ógnað öryggi fólks. Jafnframt veldur fólk á gangi í miðbænum eftir lokun skemmtistaða verulegum hávaða.“ Flokkur fólksins tekur undir með íbúðaráðinu um að stjórn strætó og borgarstjórn leiti allra leiða til að halda úti þjónustu næturstrætó. Mikilvægt er að kanna hver raunverulegur kostnaður við þjónustuna er og þá fyrst er hægt að taka ígrundaða afstöðu til reksturs næturstrætó sem er eitt stefnumála meirihluta borgarstjórnar, eins og segir í bókun íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. Heyr heyr! 

    Fylgigögn

  31. Lagðar fram fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 2. og 9. nóvember 2022. MSS22060175
    B-hlutar fundargerðanna eru samþykktir.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 7. lið fundargerðarinnar:

    Umræða var um nagladekk í ráðinu og bókuðu flestir flokkar um málið. Meirihlutinn bókar að svifryksmengun valdi um 80 árlega ótímabærum dauðsföllum á Íslandi og telur að nagladekk eiga verulegan þátt í því. Fulltrúi Flokks fólksins telur að hér sé verið að fullyrða út í loftið. Einnig er sagt að nagladekk skapi verulegan kostnað vegna slits á malbiki. En slíta harðkornadekk þá ekki malbiki neitt? Ekki skal gleyma hvar við búum. Ef veturinn er snjóþungur verða alltaf einhverjir að vera á nagladekkjum svo sem þeir sem komast ekki inn og út úr götunni sinni á verstu dögum vegna þess að ekki hefur tekist að ryðja braut út á stofnveg. Einnig þeir sem starfa utan höfuðborgarsvæðisins eða fara títt úr borginni yfir vetrartímann. Hver og einn verður að meta þetta og taka mið af aðstæðum. Flokkur fólksins fagnar því að lögreglan sekti ekki fyrir notkun nagladekkja áður en nagladekkjatímabilið hefst. Þegar upp er staðið og allt tekið til þá er aðeins eitt sem skiptir máli og það er öryggi. Ekki á að refsa fólki fyrir að vilja lifa við öryggi og fólk sem sér að það verður að vera á nagladekkjum á ekki að mæta fordómum samfélagsins og allra síst borgarkerfisins. 

    Fylgigögn

  32. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 12 mál. MSS22110004

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 12. lið yfirlitsins:  

    Þann 2. september 2021 fékk borgarstjóri bréf frá UNICEF þar sem Reykjavík er boðið að taka þátt í verkefninu barnvæn sveitarfélög. Gerður hefur verið samningur milli UNICEF á Íslandi og félagsmálaráðuneytisins um samstarf við innleiðingu verkefnisins. Markmiðið er að öll sveitarfélög á Íslandi hafi á næsta áratug hafið innleiðingu Barnasáttmálans. Ef Reykjavík hyggst innleiða Barnasáttmálann er full ástæða til að nýta þann stuðning sem í boði er. Nú stendur yfir sameiginleg vinna mannréttindastjóra og sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs við að greina næstu aðgerðir í framhaldi af umsögn skóla- og frístundasviðs sem liggur fyrir. Flokkur fólksins hefur einnig lagt til að umsögn verði fengin frá mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði. Reykjavík er eftirbátur annarra sveitarfélaga í þessum efnum og þarf hér að spýta í lófana. 

    Fylgigögn

  33. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS22110050

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Ekki hefur farið fram hjá neinum umræða um hávaðamengun í miðbænum og að reglugerð um hávaðamengun hefur ekki verið fylgt. Íbúar hafa reynt að vekja athygli á málinu árum saman og nú eftir COVID er vandinn meiri en nokkru sinni. Þegar listinn um umsagnir um veitinga- og gististaði er birtur þá getur fulltrúi Flokks fólksins ekki annað en leitt hugann að þessum málum. Meðal umsagna í þetta sinn er sem dæmi umsögn um tímabundið áfengisleyfi – American Bar, Austurstræti 8-10, 4. nóvember 2022. Jákvæð umsögn send leyfadeild Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Því er velt upp hvort eigendur barsins hafi kynnt sér reglugerð um hávaðamengun. Í vikunni setti Heilbrigðiseftirlitið upp hljóðmæli á horni Bankastrætis og Laugavegar vegna fjölda hávaðakvartana sem hafa borist frá íbúum á svæðinu. Margar kvartanir hafa einnig borist frá Grjótaþorpinu. Skoða þarf að setja upp fleiri mæla til að fylgjast með því hvort það sé verið að fara eftir settum lögum og reglum. Samkvæmt reglugerð má hávaði ekki vera meiri en 95 desíbil. Sé reglum ekki fylgt getur Heilbrigðiseftirlitið gripið til fleiri ráða s.s. takmarkað starfsemina og jafnvel takmarkað opnunartíma skemmtistaðarins. Mikilvægt er að nýta allar heimildar ef reglur eru brotnar.

    Fylgigögn

  34. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu eftirfarandi fyrirspurn fram á fundi borgarráðs 6. október sl. Af einhverjum ástæðum hefur fyrirspurnin enn ekki skilað sér í þá útgáfu fundargerðarinnar sem er aðgengileg á netinu. Hins vegar er hún í þeirri útgáfu fundargerðarinnar sem undirrituð var í lok fundar. Slíkt misræmi vekur undrun og jafnframt þá spurningu hvort fundargerðir borgarráðs séu gefnar út í fleiri en einni útgáfu. Ein útgáfa gildi í Ráðhúsinu og sé þar aðgengileg embættismönnum. Önnur útgáfa sé hins vegar sett í fundargerðarkerfi borgarinnar á netinu, þ.e. þann gagnabanka sem aðgengilegur er fjölmiðlum og almenningi. Þar sem umrædda fyrirspurn er ekki að finna í fundargerð fundarins 6. október, a.m.k. ekki í þeirri útgáfu sem er á netinu, er óhjákvæmilegt að ítreka hana með ósk um að svör berist sem fyrst. Fyrirspurn vegna Amsterdam-ferðar, sem lögð var fram á fundi borgarráðs 6. október: „Nú í vikunni fer borgarstjóri fyrir fjögurra manna sendinefnd borgarinnar á ráðstefnu um nýsköpun í Amsterdam. Óskað er eftir upplýsingum um kostnað borgarinnar vegna ferðarinnar.“ MSS22100002

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar. 

  35. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í komandi viku fer borgarstjóri í fimm daga ferð til Barcelona ásamt aðstoðarmanni. Óskað er eftir upplýsingum um kostnað Reykjavíkurborgar vegna ferðarinnar. MSS22110021

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. 

  36. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Snemma í vor var hluta af leið 2 og leið 5 hjá Strætó bs. komið til verktakanna Kynnisferða og Hópbíla. Þessi viðbót til verktakanna fór ekki fram í gegnum útboð. Hvað fá verktakarnir greitt fyrir þessa viðbót? Einnig er spurt að því hver eða hverjir greiddu fyrir næturaksturinn út á Seltjarnarnes í sumar. Greiða sveitarfélögin framlag í samræmi við næturakstur eða greiðir Strætó bs. fyrir þann akstur? MSS22110078

    Vísað til umsagnar stjórnar Strætó.

  37. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi sósíalista kallar eftir upplýsingum um byggingarkostnað og söluverð á hvern fermetra við framkvæmdir hjá Þorpinu í Gufunesi. Auk þess óskar fulltrúi sósíalista eftir áætluðum byggingarkostnaði og söluverði á hvern fermetra frá Frambúð ehf. vegna verkefnisins HOOS, skrefahúsnæði í Skerjafirði. Það er verið að búa til væntingar hjá íbúum borgarinnar um að þeir hljóti hlutdeild í þeim fjárhagslega ávinningi sem ætla mætti að komi til með byggingu hagkvæms húsnæðis. Í ljósi þess er mikilvægt að fá upplýsingar um hlutfall kostnaðar og söluverðs, öðruvísi verður ekki hægt að dæma um hvort hagkvæmnin skili sér til neytenda og hafi áhrif til jafnvægis í verðmyndun á húsnæðismarkaði. MSS22110086

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  38. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hefur borgin sett sér einhver viðmið varðandi hámarks ávöxtun þeirra byggingaraðila sem hljóta brautargengi hjá skipulagsyfirvöldum undir „verkefninu“ hagkvæmt húsnæði? MSS22110087

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  39. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Flokkur fólksins óskar upplýsinga um þá leikskólastarfsmenn sem meirihlutinn tilkynnti við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkur að yrði sagt upp störfum. Fram kom til skýringar að um væri að ræða starfsfólk sem ráðið hafi verið til starfa vegna COVID, t.d. til að annast hólfanir. Þessar upplýsingar komu eins og þruma úr heiðskíru lofti þar sem um nokkurt skeið hefur mikil ólga ríkt meðal foreldra í Reykjavík en mörg hundruð börn hafa ekki fengið leikskólapláss. Óskað er ítrekað eftir því að foreldrar sæki börn sín þegar þau eru rétt komin í leikskólann vegna fjarveru starfsfólks. Spurt er hvort einhver af þessum starfsmönnum sem segja á upp komi ekki til starfa áfram eða verði endurráðnir einmitt vegna manneklu í leikskólum. Var sá hópur sem til stendur að segja upp ráðinn aðeins vegna COVID t.d. til að annast hólfanir? Ef svo er, hvaða verkefnum hafa þeir sinnt síðan COVID lauk? MSS22110081

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

  40. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hefur Reykjavík í hyggju að styðja einkavæðingu á Strætó? Flokkur fólksins hefur þungar áhyggjur ef áformað er að útvista leiðum Strætó bs. til einkaaðila með þeim afleiðingum að laun verði lækkuð og að einkaaðilar hirði þann launamun í sinn vasa. Óttast er að þjónustan verði dýrari og að starfsmönnum verði sagt upp. Einnig er fyrirséð að verði reksturinn boðinn út eru teknir frá borginni möguleikar á að hafa t.d. frítt í strætó. Vísað er til slæmrar reynslu af útvistun almenningssamgangna í Bretlandi og Svíþjóð. Flokkur fólksins varar við áformum af þessu tagi og hvetur sveitarfélögin sem eiga Strætó bs.; Reykjavíkurborg, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ að veita nægilegu fé til rekstursins  og standa í fæturna gagnvart ríkinu, sem ekki stóð við loforð um að veita fé til rekstrarins í COVID-19 faraldrinum. MSS22110080

  41. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Verið er að skipta innri endurskoðun upp og sennilega þar með útvíkka hlutverk hennar. Það eiga að starfa þrjú fagsvið innan innri endurskoðunar í stað tveggja. Þau eru fagsvið innri endurskoðunar, fagsvið ráðgjafar og fagsvið persónuverndar. Nokkuð er síðan ráðinn var persónuverndarfulltrúi. Flokkur fólksins óskar upplýsinga og yfirlits yfir þau verkefni sem hafa komið inn á hans borð og að þau séu grófflokkuð. Einnig er óskað eftir að vita hvernig þeim lyktaði og hvort aðilar voru sáttir með málalyktirnar. MSS22110079

    Vísað til umsagnar innri endurskoðunar og ráðgjafar.

Fundi slitið kl. 12:25

Einar Þorsteinsson Skúli Helgason

Alexandra Briem Pawel Bartoszek

Hildur Björnsdóttir Kjartan Magnússon

Trausti Breiðfjörð Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarrad_1011_0.pdf