Borgarráð - Fundur nr. 5679

Borgarráð

Ár 2022, fimmtudaginn 13. október, var haldinn 5679. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 08:15. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir . Einnig sat fundinn áheyrnarfulltrúinn Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Alexandra Briem og áheyrnarfulltrúinn Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þorsteinn Gunnarsson, Ebba Schram og Ívar Vincent Smárason.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. október 2022:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 572 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,03%, í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 32 1, sem eru 519 m.kr. að markaðsvirði og tilboð að nafnvirði 345 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 6,94%, í óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 35 1, sem er 215 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 12. október 2022.

    Trúnaðarmerkt greinargerð fylgir tillögunni. FAS22010057
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Halldóra Káradóttir og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Fylgigögn

  2. Lögð fram uppfærð umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 7. október 2022, um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023, 1. mál, sbr. 12. lið fundargerðar borgarráðs frá 6. október 2022. MSS22100001
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    -    Kl. 8:35 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.
    -    Kl. 8:38 tekur Pétur Ólafsson sæti á fundinum. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Vanfjármögnun ríkisins á verkefnum sveitarfélaga er sláandi í fjárlagafrumvarpi næsta árs, einkum í ljósi þess að ríkið gerir sífellt meiri kröfur um þjónustu sveitarfélaga án þess að fjármagn fylgi með. Þetta er í mörgum tilfellum þjónusta sem krefst mikillar mönnunar. Til að mynda þjónusta við fatlað fólk, þjónusta við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir, frístund fatlaðra ungmenna, áframhaldandi uppbygging á húsnæði fyrir fatlað fólk, NPA, íslenskukennsla fyrir börn af erlendum uppruna, rekstur grunnskóla, samningar um móttöku flóttafólks og svo mætti lengi telja. Reykjavíkurborg og sveitarfélögin hafa lagt metnað sinn í að sinna þessum verkefnum í samræmi við lög og vinna að stöðugum umbótum í þjónustunni en það er fullkomið ábyrgðaleysi af ríkinu að leggja fram fjárlagafrumvarp án þess að bæta sveitarfélögunum upp það sem vantar í fjármögnun hennar sem hefur gríðarleg og alvarleg áhrif á fjárhag sveitarfélaga og verkefni um land allt. 

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista tekur heilshugar undir þær áherslur sem koma fram í umsögn Reykjavíkurborgar við frumvarp til fjárlaga. Hér er mikilvægt að taka fram að allt of lengi hefur ríkisvaldið komið verkefnum til sveitarfélaganna án þess að fjármagn eða tekjustofnar hafi fylgt. Sósíalistar leggja áherslu á að tekjustofnar sveitarfélaganna verði auknir og að aukið fjármagn fylgi verkefnum sem sett eru í hendur þeirra. Hér er augljóst að leiðrétta þarf fjárframlög ríkisins til borgarinnar, þannig að fjármagn verði veitt eftir því sem raunverulega kostar að veita þjónustuna. Íbúar eiga ekki að þurfa að finna fyrir deilum á milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun á þjónustu sem þeir eiga lögbundinn rétt á. Ljóst er að stórauka þarf tekjur til borgarinnar og í því samhengi hafa sósíalistar lagt áherslu á útsvar á fjármagnstekjur og að hluti af áfengisgjaldi renni til sveitarfélaganna, svo dæmi séu nefnd.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fjölmörg verkefni eru sameiginleg ábyrgð ríkis og borgar. Það er þekktur vandi að ekki fylgi nægt fjármagn frá ríki til borgar vegna verkefna sem komið er inn á borð sveitarfélaga. Þetta er sagan endalausa og hefur bitnað alvarlega á þjónustuþegum. Leiðrétta þarf fjárframlög ríkisins til borgarinnar þannig að fjármagn verði veitt eftir því sem það kostar að veita þjónustuna. Flokkur fólksins vill nefna hér sérstaklega þjónustu við fatlað fólk og íslenskukennslu barna af erlendum uppruna. Flokkur fólksins bendir á að nú þegar eru langir biðlistar í íslenskuver borgarinnar en þar eru ungmennin í forgangi. Staðan er þannig núna að það eru eingöngu nemendur í unglingadeildum sem fá inni í íslenskuverum borgarinnar. Það verður að fjölga íslenskuverum sem hafa gefið góða raun. Þannig væri hægt aðstoða fleiri nemendur og yngri nemendur fengju þá kennslu líka. Því miður virðist ríkja ákveðið skilningsleysi á þörfum barna því þessu verkefni fylgir ekki nægjanlegur fjárhagslegur stuðningur frá ríkinu. Að þessu verkefni þurfa ríki og borg að vinna saman.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 10. október 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki uppfærðar reglur um innri leigu fasteigna og uppsögn og skil á húsnæði og nýjar reglur um leigu gatnakerfis, ásamt fylgiskjölum. FAS22100014
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. október 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 5. október 2022 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suður-Mjóddar vegna lóðanna nr. 2A, 2B, 2C og 2D við Álfabakka, ásamt fylgiskjölum. MSS22070021
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Borgaráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að framtíðaruppbygging á svæðinu fari fram í samráði við íbúa svæðisins.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. október 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 5. október 2022 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 34-36 við Borgartún, ásamt fylgiskjölum. MSS22040175
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í nýjustu breytingunni felst að fækka eigi íbúðum um tvær, þ.e. úr 102 í 100. Húsið er lækkað um eina hæð, skuggavarp er minnkað og fjölgun er á íbúum hússins. Þetta eru litlar breytingar í heildarsamhengi. Var ekki vilji til að lækka húsið um fleiri hæðir? Er almennt ráðlagt að setja svo margar íbúðir í eitt hús? Fordæmi er varla fyrir þessu í Reykjavík. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þéttingarstefna meirihlutans ganga ansi langt hér og óttast að of mikil þrengsli verði og umferðarvandamál. Svo mikil þétting hefur neikvæð áhrif á sálræna líðan margra. Flokkur fólksins styður þéttingu ef hún er gerð skynsamlega og án öfga. Vissulega þarf að nota landið vel en ekki á kostnað grænna svæða og heilsufars fólks. Fjölmargar athugasemdir hafa borist og eru flestar af sama meiði, of mikið byggingarmagn og áhyggjur af umferð. Taka hefði mátt meira tillit til skoðana fólks í þessu máli. 

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. október 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 5. október 2022 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrekkna-Hallsvegar vegna lóðarinnar nr. 12 við Lambhagaveg, ásamt fylgiskjölum. MSS22100091
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. október 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 5. október 2022 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Öskjuhlíðar, ásamt fylgiskjölum. MSS22070033
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Deiliskipulagsbreytingin er nauðsynleg til að færa einn mest notaða hjólastíg borgarinnar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á nálægri lóð. Afnotasamningur vegna þess svæðis sem nýtt hefur verið undir bílastæði rann út 2019 og liggur stígurinn því alfarið á borgarlandi. Nauðsynlegt er að eiga í framhaldinu gott samráð við Flugbjörgunarsveitina um aðstöðumál fyrir þessa mikilvægu og nauðsynlegu starfsemi.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vekja athygli á óskum Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík varðandi bílastæðamál og telja mikilvægt að komið verði til móts við þær óskir með einhverjum hætti. Flugbjörgunarsveitin gegnir mikilvægu hlutverki í þágu almannaheilla og eðli starfseminnar felur það í sér að björgunarsveitafólk hafi aðgang að umræddri björgunarmiðstöð á öllum tímum sólarhringsins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til í umhverfis- og skipulagsráði að afgreiðslu málsins yrði frestað á meðan rætt væri við Flugbjörgunarsveitina um lausnir á bílastæðamálum hennar. Við hörmum að meirihlutinn hafi fellt slíka tillögu um frestun máls í því skyni að eiga eðlilegt samráð við aðila, sem á ríkra hagsmuna að gæta í málinu.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að tryggja aðgengi að svæðinu út frá ólíkum fararmátum. Á þessu svæði er Flugbjörgunarsveitin. Björgunarsveitir landsins eru reknar alfarið á baki sjálfboðaliða án þess að reiða sig á ríki eða önnur stjórnvöld um rekstrarfé, en sinna þrátt fyrir það mikilli grundvallar öryggisþjónustu við íbúa landsins og við sívaxandi ferðamannaiðnað. Flugbjörgunarsveitin hefur óskað eftir góðri aðkomu að sínu húsnæði og mikilvægt er að mæta því í ferlinu, hér er um að ræða málefni sem tengist bílastæðum sem m.a. eru nýtt fyrir þau sem koma víðsvegar að til að sinna starfinu. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flugbjörgunarsveitin mótmælir skerðingu á bílastæðum og að önnur bílastæði sem fyrir eru verði óaðgengileg með þessari breytingu. Félagar í Flugbjörgunarsveitinni sinna mikilvægu sjálfboðastarfi við að aðstoða Reykvíkinga og gesti þeirra þegar neyð steðjar að. Skerðing á bílastæðum um ⅔ hluta mun hefta útköll, fjáraflanir og félagsstarf Flugbjörgunarsveitarinnar verulega. Bílastæðum hefur þegar fækkað mikið. Varast ber að ganga of langt í þessu sem öðru. Gæta þarf meðalhófs. Er hægt að finna lausn sem allir geta sætt sig við? Þetta er vissulega gömul ákvörðun en þeim má breyta eins og nýjum. Best væri að fresta þessu og eiga samtal. Vika eða vikur til eða frá skipta ekki sköpum í þessu máli.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. október 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 5. október 2022 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis vegna lóðarinnar nr. 26 við Kvistaland, ásamt fylgiskjölum. MSS22100090
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. október 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út kaup á sorpílátum vegna fyrirhugaðra breytinga á sorphirðu í Reykjavík árið 2023. USK22080136
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins telur að þetta þurfi að gera. Meta þarf í hverju máli hvenær útboð er hagkvæmari kostur og á sama tíma kostur sem kemur vel út fyrir borgarbúa. Reykjavíkurborg getur ekki vasast í öllu sjálf og á ekki að gera það. Það sem hér er lagt fram getur gengið þar sem þetta er mikið magn. Kannski mætti skoða með að bjóða út rekstur á þessu og tæmingu eins og fulltrúi Flokks fólksins hefur áður lagt til að skoðað yrði t.d. í einu póstnúmeri þar sem aðilar myndu taka við tunnum og sjá um þær, s.s. þrif, endurnýjun og fleira sem verkinu tengist.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf samninganefndar Reykjavíkurborgar, dags. 6. september 2022, varðandi kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við Skólastjórafélag Íslands og Félag stjórnenda leikskóla. Einnig er lagður fram kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands, ódags., og Félags stjórnenda leikskóla, ódags. MOS22050008

    Lóa Birna Birgisdóttir og Rakel Guðmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 6. október 2022, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 3. október 2022 á tillögu varðandi framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi, ásamt fylgiskjölum. SFS22020010
    Samþykkt.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráð þakkar fyrir ítarlegt og vandað samráðsferli um skólamál í Laugardal. Þeirri umræðu sem átt hefur sér stað um stöðu skóla- og frístundamála í Laugardalnum er fagnað. Lögð hefur verið áhersla á að sátt ríki um þá tillögu sem skóla- og frístundaráð leggur til eftir þverpólitískt samráð við hagaðila, stjórnendur, starfsmenn, foreldra og börn. Góð umfjöllun er um allar sviðsmyndir en ljóst að það er augljós veikleiki á hugmynd um safnskóla að þeirri hugmynd hafði ekki verið fundinn staður. Mikilvægt er að næstu skref verði unnin markvisst og gerðar frekari tillögur að áfangaskiptingu, forgangsröðun, tímaáætlun og fjármögnun. Það er jafnframt eðlilegt að yfirfara spár um íbúa- og nemendafjölda í ljósi uppbyggingaráforma í og við Laugardalinn og þarfagreiningar fyrir uppbygginguna mátaðar við þær til að tryggja að verið sé að byggja upp til framtíðar en ekki aðeins nokkurra næstu ára.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er ástæða til að fagna því að ákvörðun hefur verið tekin um hvernig byggja eigi upp framtíð skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja þá sviðsmynd sem orðið hefur fyrir valinu, þ.e. að byggja við þá skóla sem fyrir eru í hverfinu, Laugarnesskóla, Laugarlækjarskóla og Langholtsskóla. Hæg viðbrögð borgarinnar í þessum málefnum verða hins vegar að teljast ámælisverð, svo sem ráða má af máli þeirra sem staðið hafa að undirskriftasöfnuninni „stöndum vörð um skólana í Dalnum“ en í áskorun forsvarsmanna undirskriftasöfnunarinnar kom m.a. eftirfarandi fram: „Undanfarinn áratug hefur stóraukinn nemendafjöldi þrengt sífellt meir að starfi Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla og er nú svo komið að aðstaða nemenda og starfsfólks er komin langt fram yfir þolmörk.“ Full þörf er á því að lærdómur sé dreginn af þeim seinagangi sem þetta mál hefur einkennst af.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins fagnar þessari niðurstöðu enda er hér verið að ákveða að byggja ofan á farsælt skóla- og frístundastarf í Laugardal og menning hverfanna fær að halda sér. Flokkur fólksins styður þessa sviðsmynd, þ.e. að byggja við þá skóla sem fyrir eru í hverfinu, Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla, þar sem kostir þess eru ótvíræðir. Við þessa stefnumarkandi ákvörðun hefur verið hlustað á foreldra sem ráða má af máli þeirra sem staðið hafa að undirskriftasöfnuninni „stöndum vörð um skólana í Dalnum“. Full þörf er á því að lærdómur sé dreginn af þeim seinagangi sem þetta mál hefur einkennst af. Nú verður að taka til hendinni og bregðast við aðþrengdri stöðu skólanna með aðgerðum. Íbúar hverfisins kalla hátt eftir tímasettri aðgerðaáætlun og forgangsröðun verkefna, við tökum undir með þeim. Tekið er undir mikilvægi þess að viðunandi aðstaða verði tryggð fyrir frístundaheimilis- og félagsmiðstöðvarstarf í Laugarnes- og Langholtshverfi í þeirri vinnu sem er framundan.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 6. október 2022, varðandi minnisblað um stöðu fjölmenningarlegs skóla- og frístundastarfs í Reykjavík í október 2022, ásamt fylgiskjölum. SFS22100034

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fjöldi fjöltyngdra barna hefur aukist á liðnum árum bæði í leikskólum og grunnskólum. Árið 2015 voru börnin 1654 í grunnskólum en 2021 var fjöldinn kominn upp í 2929. Tölur yfir fjölda fjöltyngdra grunnskólabarna fyrir 2022 liggja ekki fyrir en af nýjustu tölum frá 1. september að dæma hefur fjölgunin verið mikil. Nýir nemendur bætast við í viku hverri. Sennilega mun fjöldi tvítyngdra nemenda í grunnskólum Reykjavíkur fara yfir 3200 á þessu ári. Þessi hópur hefur litlar forsendur til þess að taka þátt í almennu grunnskólastarfi með jafnöldrum sínum án sérstakrar aðlögunar og stuðnings til að ná tökum á íslenskunni. Þessi gríðarlega fjölgun kallar á fleiri skólaúrræði og fjölgun á starfsfólki. Flokkur fólksins bendir á að nú eru þegar langir biðlistar í íslenskuver borgarinnar en þar eru ungmennin í forgangi. Staðan er þannig núna að það eru eingöngu nemendur í unglingadeildum sem fá inni í íslenskuverum borgarinnar. Það verður að fjölga íslenskuverum sem hafa gefið góða raun. Þannig væri hægt aðstoða fleiri nemendur og yngri nemendur fengju þá kennslu líka. Því miður virðist ríkja ákveðið skilningsleysi á þörfum barna því þessu verkefni fylgir ekki nægjanlegur fjárhagslegur stuðningur frá ríkinu. Að þessu verkefni þurfa ríki og borg að vinna að saman.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 11. október 2022, varðandi minnisblað um stöðuna í málaflokki flóttafólks hjá Reykjavíkurborg, ásamt fylgiskjölum. VEL22090033

    Dís Sigurgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 11. október 2022, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 5. október 2022 á tillögu um hækkun tekjumarka sérstaks húsnæðisstuðnings, ásamt fylgiskjölum. VEL22090235
    Samþykkt.

    Dís Sigurgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Vinstri græn og Sósíalistar lögðu fram tillögu í sumar um að brýnt væri að hækka tekjumörk sérstaks húsnæðisstuðnings til samræmis við hækkun örorkulífeyris. Þremur mánuðum síðar er tillagan tekin til afgreiðslu og staðfest í borgarráði. Betra hefði verið að samþykkja tillöguna strax í sumar en vissulega fagnaðarefni að hún hafi orðið til þess að nú hafi fengist einhverjar kjarabætur til þessa hóps. Hins vegar eru fyrirhugaðar enn frekari hækkanir á örorkulífeyri eins og boðað hefur verið í fjárlagafrumvarpinu og því mikilvægt að borgaryfirvöld séu á tánum og hækki sinn stuðning í samræmi við það. Vinstri græn og Sósíalistar munu áfram vera vakandi yfir kjörum öryrkja og fólks í viðkvæmri stöðu og halda meirihlutanum við efnið.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins fagnar tillögu um hækkun tekjumarka sérstaks húsnæðisstuðnings. Flokkur fólksins lagði til svipaða tillögu um endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning í borgarráði 30. júní 2022. Það vakti furðu að þegar Flokkur fólksins lagði til samskonar tillögu var kostnaðurinn metinn á 24-30 m.kr. á ári og metið sem svo að auka þyrfti fjárheimildir. Umsögn velferðarsviðs barst Flokki fólksins 14. september. Það er athyglisvert að nú aðeins 4 vikum síðar er samskonar aðgerð meirihlutans metin innan fjárheimilda. Flokkur fólksins fagnar þessari viðhorfsbreytingu hjá meirihlutanum því batnandi mönnum er best að lifa. 

    Fylgigögn

  15. Lagt fram uppfært fundadagatal borgarráðs til loka árs 2022. MSS22060038

    Fylgigögn

  16. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um aðgengisvanda í miðbænum á hátíðisdögum, sbr. 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. ágúst 2022. Einnig lögð fram umsögn menningar- og ferðamálasviðs, dags. 4. október 2022. MSS22080177
    Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Flokkur fólksins lagði það til í ljósi ábendinga eftir menningarnótt um slakt aðgengi að miðbænum og á salerni t.d. í Hljómskálagarðinum að skipuleggjendur viðburða af þessu tagi finni lausnir til að hátíð af þessu tagi geti tekið á móti öllum þar sem stórt svæði er hátíðarsvæði. Fatlað fólk á að geta tekið þátt í hátíðarhöldum eins og ófatlaðir. Í tillögu Flokks fólksins var sérstaklega nefnt að forgangsakstur fyrir stæðiskorthafa og akstursþjónustu fatlaðra að jaðri svæðisins dugar ekki til. Í umsögn menningar- og ferðamálasviðs finnst fulltrúa Flokks fólksins frekar lítið gert úr þessum ábendingum. Það liggur fyrir að Öryrkjabandalag Íslands kom að undirbúningi menningarnætur og aðgengi fatlaðs fólks hafi verið bætt. En aðgengileg ferðasalerni eru fá. Skoða þarf skipulagið frá grunni ef ætlunin er að fatlað fólk eigi að geta tekið fullan þátt með sama hætti og aðrir. Það er einfaldlega mjög erfitt þegar um er að ræða svo stórt svæði sem er alveg lokað af fyrir bílaumferð. Umsögnin tekur ekki á því.

    Fylgigögn

  17. Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 6. október 2022. MSS22010025

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun 2. og 4. lið fundargerðarinnar: 

    Liður 2; Flokkur fólksins tekur undir bókun aðgengisnefndar. Nefndin bókar um kynningu á rafrænum skilríkjum þess efnis að leiðir til að sækja þjónustu í borginni fyrir fatlað fólk og aðra jaðarsetta hópa án rafrænna skilríkja skuli aldrei vera verri en þegar sótt er þjónusta með rafrænum skilríkjum. Einnig er bókað að gott væri að hafa sérstakt símanúmer sem hægt væri að hringja í til að fá aðstoð við stafræna þjónustu og stafræn mál. Minnt er á ómæld vandræði sem ákveðinn hópur öryrkja lenti í þegar Klapp greiðslukerfið var sett upp í Strætó. Liður 4; í umsögn aðgengis- og samráðsnefndar vegna tillögu Flokks fólksins um aðgengis- og salernismál á hátíðum eins og menningarnótt er vísað til aðgengisstefnu borgarinnar. Varðandi aðgengisstefnuna þá kom á daginn ekki alls fyrir löngu að hún var ekki aðgengileg og hvergi að finna á vefnum. Flokkur fólksins vakti athygli á þessu og var lofað að bæta þar úr. Stefnan nýtist ekki neinum sé hana hvergi að finna. 

    Fylgigögn

  18. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 29. september og 6. október 2022. MSS22010006

    Fylgigögn

  19. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarvogs frá 3. október 2022. MSS22010029

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 28. september 2022. MSS22010033

    Fylgigögn

  21. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 30. september 2022. MSS22010018

    Fylgigögn

  22. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 12. október 2022. MSS22060175
    8. liður fundargerðarinnar er staðfestur. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:

    Skipulagsyfirvöld leggja til að gerðar verði breytingar á hverfisskipulagi Efra-Breiðholts, Seljahverfis og deiliskipulag fyrir Arnarnesveg. Tillöguna á að samþykkja án grenndarkynningar og auglýsingar. Rökin eru sögð þau að hún varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og/eða sveitarfélagsins. Þegar samþykkt liggur fyrir í umhverfis- og skipulagsráði þá leggja skipulagsyfirvöld það til að bæði breytingartillögur fyrir hverfisskipulag og nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnesveginn hljóti staðfestingu í B-deild Stjórnartíðinda samtímis. Hér er gróflega farið áfram með aðgerð sem ekki einu sinni hefur verið útkljáð í kæruferli en Vinir Vatnsendahvarfs og Vinir Kópavogs sem og Elliðaárdalsins hafa kært málið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Flokkur fólksins mótmælir þessum vinnubrögðum og skorti á samráði við íbúa í nágrenni Vatnsendahvarfs sem og fleiri hagaðila. Aðgerðin er í hrópandi ósamræmi við allt tal um grænt plan. Flokkur fólksins hefur margrætt þetta mál í borgarstjórn og þá helst að nauðsynlegt sé að gera nýtt umhverfismat. Þetta á að gera þrátt fyrir að Framsókn hafi lofað á fundi með Náttúruvinum Reykjavíkur í aðdraganda kosninga að gert yrði nýtt umhverfismat fyrir 3. kafla Arnarnesvegar. Það er hvorki umhverfislega né siðferðislega rétt að byggja svo stóra framkvæmd á tveggja áratuga gömlu umhverfismati. 

    Fylgigögn

  23. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 18 mál. MSS22090188

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 8. lið yfirlitsins: 

    Flokkur fólksins vill nota tækifærið og taka undir ánægju skólanefndar Fjölbrautarskólans í Breiðholti sem fagnar því að nú lítur út fyrir að bygging verknámshúss sem hýsa á rafvirkja-, húsasmíða- og listnámsbrautir sé að komast á útboðsstig. Það er afar mikilvægt að tryggt verði að verkefnið haldi áfram en um leið verði rætt hvernig bregðast megi við stækkandi biðlistum í þessar verknámsbrautir og leitað leiða til að tryggja að nýtt hús verði ekki strax sprungið þegar það opnar. Þær brautir sem um ræðir eru löngu sprungnar og mikil ásókn er í þær. 

    Fylgigögn

  24. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS22100008

    Fylgigögn

  25. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarráð samþykki að fela skóla- og frístundasviði í samvinnu við mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu að fara kerfisbundið yfir ferla grunnskóla Reykjavíkur gagnvart einelti og ofbeldi. Markmiðið er að kanna hvernig skólar sinna forvörnum og hver viðbrögð skólanna eru komi kvörtun um einelti. Í framhaldi er óskað eftir yfirliti um stöðu mála.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22100130
    Frestað. 

    Fylgigögn

  26. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Flokkur fólksins leggur til að borgarráð samþykki að fela skóla- og frístundaráði að vinna að því, í samráði við skólasamfélagið, að gera úttekt á öryggisvörnum í skólum þegar kemur að verklagi og viðbrögðum ef ytri vá steðjar að s.s. utanaðkomandi hættuástand eða ógn/hótun um að skaða börn og starfsmenn. Mikilvægt er að fyrir liggi skýrar reglur og verklagsferlar sem allir starfsmenn séu meðvitaðir um og þekki í þaula. Hver og einn þarf að vera með sitt hlutverk á hreinu standi fyrir dyrum ógn, hótun um skaða eða önnur ytri vá sem steðjar að börnunum og starfsfólki. MSS22100129

    Frestað.

  27. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Flokkur fólksins leggur til að borgarráð samþykki að fela skóla- og frístundasviði að vinna að, í samráði við skólasamfélagið, að komið verði upp öryggismyndavélum á leikvöllum barna á vegum borgarinnar.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22100128
    Frestað.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 9:35

Einar Þorsteinsson Dagur B. Eggertsson

Alexandra Briem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Hildur Björnsdóttir Kjartan Magnússon

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarrad_1310.pdf