Borgarráð - Fundur nr. 5663

Borgarráð

Ár 2022, fimmtudaginn 28. apríl, var haldinn 5663. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:08. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Alexandra Briem, Elín Oddný Sigurðardóttir, Eyþór Laxdal Arnalds, Jórunn Pála Jónasdóttir og Valgerður Sigurðardóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Anna Wojtynska, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Alexandra Briem. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þorsteinn Gunnarsson, Ebba Schram og Hulda Hólmkelsdóttir. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. apríl 2022, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 6. apríl 2022 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 34-36 við Borgartún, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    -    Kl. 09:15 tók Alexandra Briem sæti á fundinum og aftengdist fjarfundarbúnaði.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040175

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins bókaði um lóðina Borgartún 34-34 í skipulags- og samgönguráði þann 6. apríl sl. Fækka á íbúðum um tvær. Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvort ráðlagt sé að setja svo margar íbúðir í eitt hús. Fordæmi er varla fyrir þessu í Reykjavík nema kannski má finna eitt dæmi. Fulltrúi Flokks fólksins finnst þéttingarstefna meirihlutans ganga ansi langt hér og óttast þrengsl og umferðavandamál. Hér er dæmi um hvernig þéttingarstefna hefur verið tekin út í öfgar.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. apríl 2022, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 6. apríl 2022 á breytingu á deiliskipulagi hesthúsabyggðar á Hólmsheiði, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040174

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins bókaði í skipulags- og samgönguráði þann 6. apríl um að mjög margar athugasemdir bárust við deiliskipulagstillöguna. Eftir því sem sýnist var tekið vel í þær flestar. Svo virðist sem skipulagsyfirvöld hafi ekki samband við þá sem senda inn athugasemdir eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins kemst allavega næst. Þeir sem það gera geta því aðeins vonað að tekið verði tillit til þeirra. Fyrir lesanda gagna er ekki gott að átta sig á hvað af þessum athugasemdum og frá hverjum hafa verið teknar til greina. Það væri gott ef þetta væri sett skýrar fram í gögnum með málinu. Gott væri ef það væri gert skýrar í framtíðinni.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við 1. áfanga uppbyggingar á útivistarsvæði Austurheiða, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 100 m.kr.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK22040050

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er mikilvægt að fjölga útivistarsvæðum í Reykjavík. Hér er verið að bjóða út framkvæmdir við að gera Austurheiðar borgarinnar að betra útivistarsvæði enda er verkefnið í samræmi við samþykkt aðalskipulag Reykjavíkurborgar og styður við stefnu Reykjavíkurborgar um að efla lýðheilsu og að gera aðgengilegt útivistarsvæði

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Setja á 100 milljónir í að bæta aðstöðu til útivistar. Hér er kannski um að ræða verkefni sem mætti bíða og nota fjármagnið í að bæta þjónustu við fólkið. Minnt er á biðlista í nánast allt í Reykjavík, allt frá biðlistum til sálfræðinga og eftir leikskólaplássi yfir í biðlista barna í skólahljómsveitir. Meirihlutinn verður að forgangsraða í þágu fólksins umfram allt annað. Fínheit eins og hér er lýst mega bíða þar til betur árar. Fyrir liggur slæm staða borgarsjóðs, veltufé frá rekstri er einungis rúmlega 300 milljónir króna. Aldrei í sögu borgarinnar hefur sést annað eins. Flokkur fólksins leggur áherslu á að þörf er á grundvallarbreytingu á forgangsröðun verkefna í þágu fólksins og þjónustu við það. Endurskoða verður fjármálastjórn Reykjavíkurborgar ef ekki á að stefna fjárhag borgarinnar í óefni.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við að gera byggingahæfa íbúðahúsalóðina Nauthólsveg 79, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 vegna hluta Reykjavíkur er 95 m.kr.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK22030190

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 27. apríl 2022, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 27. apríl 2022 á tillögu um að torgið á norðausturhorni Túngötu og Garðastrætis fái heitið Kænugarður og undirheiti þess verði Kýiv-torg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. USK22030078

    Borgarráð og áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er fagnaðarefni að Reykjavíkurborg nefni torgið á mótum Garðastrætis og Túngötu Kænugarð með undirheitinu Kýiv-torg/Kyiv-square. Hér er verið að gefa höfuðborg Úkraínu sess í hjarta Reykjavíkur. Með þessari ákvörðun borgarinnar er verið að senda skýr skilaboð um samstöðu með íbúum Úkraínu sem berjast fyrir frelsi sínu og sjálfstæði. Heitið Kænugarður á sér aldalanga sögu og tengsl borganna rótgróin.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf formanns borgarráðs, dags. 25. apríl 2022, þar sem lagt er til að borgarráð samþykki tillögu stýrihóps um almenna eigendastefnu Reykjavíkurborgar gagnvart B-hlutafélögum, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Helga Hlín Hákonardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040201

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja eigandastefnu Reykjavíkurborgar, sem unnin var í þverpólitískri sátt og tekur mið af leiðbeiningum OECD um stjórnarhætti fyrirtækja í opinberri eigu. Eigendastefnan tryggir gagnsæja, faglega og skilvirka stjórnun B-hluta fyrirtækja borgarinnar þannig að þar ríki almennt traust á stjórn og starfsemi þeirra. Hlutverk, umboð og ábyrgð eigandafyrirsvars er skilgreint, þar á meðal valdheimildir og mörk þeirra og upplýsingagjöf. Stefnan kveður einnig á um þær kröfur sem gerðar eru til skipulags og stjórnarhátta þeirra fyrirtækja sem eigendastefnan nær til og hlutfall óháðra stjórnarmanna sem skipa skuli stjórnir fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Hér er um mikla framþróun að ræða og er þessu skrefi fagnað sérstaklega.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Í nýrri eigendastefnu Reykjavíkurborgar er verið að bæta upplýsingaflæði til kjörinna fulltrúa, en jafnframt stigin skref í átt að faglegri skipan stjórna félaga í eigu borgarinnar með tilnefninganefnd. Mikilvægt er að hér er jafnframt verið að gæta að því að ekki sé gengið gegn lýðræðislegu jafnræði þannig að ekki sé unnt að ganga á rétt og áhrif þeirra sem kunna að vera í minnihluta í borgarráði og borgarstjórn. Upplýsingaflæði úr félögum borgarinnar til kjörinna fulltrúa hefur oft verið takmarkað og verður vonandi hér því um jákvæða breytingu að ræða í átt að auknu gagnsæi og fagmennsku. Skuggastjórnun heyri þá sögunni til.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tími er kominn til að skilgreina eigendastefnu borgarinnar. Ekki er verra að viðhafa virka, gegnsæja og góða stjórnarhætti. Borgarstjóri á sæti í stefnuráði byggðasamlaga og ber ábyrgð á að upplýsa borgarráð reglulega og þegar tilefni er til. Það er mat fulltrúa Flokks fólksins að ekki dugir aðeins að upplýsa borgarráð heldur þarf að tryggja aðkomu minnihlutafulltrúa að ráðinu til að geta veitt gott aðhald. Ekki er séð að ákvörðun um það hafi komist inn á þetta teikniborð.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf formanns borgarráðs, dags. 11. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki fyrir sitt leyti tillögur að breytingum á sameignarfélagssamningi Faxaflóahafna og eigendastefnu fyrirtækisins, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Helga Hlín Hákonardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22030211

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er lögð fram ný eigendastefna og endurnýjaður stofnsamningur fyrir Faxaflóahafnir, sem unnin var af fulltrúum sameiginlegra eigenda Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar og tekur mið af leiðbeiningum OECD um stjórnarhætti fyrirtækja í opinberri eigu. Hér er verið að taka ákveðin skref til að aðlaga stefnumörkun, skipulag og stjórnarhætti Faxaflóahafna til nútímalegra og góðra stjórnarhátta. Þegar þau skref hafa sannað sig er viðbúið að taka þurfi enn frekari skref í átt til stjórnarhátta atvinnufyrirtækja.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. apríl 2022, þar sem lagt er til að nýta framlengingarheimildir i samningi við Gjaldheimtuna ehf. og Momentum greiðslu- og innheimtuþjónustu ehf. og framlengja samning um að sinna fjármálaþjónustu vegna milli- og löginnheimtu fyrir Reykjarvíkurborg til næstu tveggja ára þannig að hann nái til krafna sem eru stofnaðar á tímabilinu 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2024.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðiflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
    Halldóra Káradóttir og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22040006

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Rétt væri að endurskoða reglur borgarinnar um innheimtu til að lágmarka íþyngjandi kostnað sem kann að leggjast á þá sem ekki geta greitt reikninga sína. Dæmi eru um að kröfur hækki verulega í innheimtuferli. Hér er verið að framlengja samninga við innheimtufyrirtæki, en ekki er búið að fara í endurskoðun á innheimtureglum og endurskoða ferla eins og rætt hefur verið um. Fyrst ætti að endurskoða reglur borgarinnar áður en farið er í að framlengja samninga við innheimtufyrirtæki.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalista leggst alfarið gegn þessu. Núverandi stefna þar sem skuldir fara til innheimtufyrirtækja ber með sér mikinn skaða og kostnað fyrir fólk í fátækt sem ekki getur greitt reikninga. Á borgarstjórnarfundi þann 5. apríl síðastliðinn var samþykkt að vísa tillögu Sósíalista um að borgin hætti notkun á starfsemi innheimtufyrirtækja, til meðferðar borgarráðs. Fulltrúi meirihlutans tók fram að ekki væri verið að taka afstöðu til tillögunnar en að málin yrðu skoðuð. Það er miður að verið sé að endurnýja samning við umrædd fyrirtæki í stað þess að borgin taki málin inn á sitt borð og taki upp notendavænni nálganir við innheimtu reikninga.

    Fylgigögn

  9. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 25. apríl 2022, að viðaukum við fjárhagsáætlun 2022. Greinargerðir fylgja tillögunum. Einnig lögð fram jafnréttisskimun vegna viðaukanna.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir, Lóa Birna Birgisdóttir og Harpa Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22010035

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 4. apríl 2022, þar sem nýr kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag grunnskólakennara er lagður fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum.

    Lóa Birna Birgisdóttir og Harpa Ólafsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MOS22010005

    Fylgigögn

  11. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 25. apríl 2022, um þau málaferli sem Reykjavíkurborg á aðild að fyrir dómstólum. MSS22040188

  12. Lagt fram bréf borgarlögmanns, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að taka eignarnámi 3.275 fm spildu úr landi jarðarinnar Höf á Kjalarnesi undir Brautarholtsstíg, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til borgarstjórnar. MSS22040194

    Fylgigögn

  13. Lagður fram dómur Landsréttar í máli nr. 243/2021. MSS21120210

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Niðurstaða Landsréttar er algjör áfellisdómur yfir sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs. Dómurinn afhjúpar mjög íþyngjandi og ólögmæta beitingu stjórnvalds.

  14. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 26. apríl 2022, þar sem minnisblað VSÓ Ráðgjafar varðandi þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024, dags. 29. mars 2022, er lagt fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum.
    Jón Kjartan Ágústsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040012

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fólksfjölgun er fyrirsjáanleg og mikið þarf að byggja. Alvarlegur húsnæðisskortur er í borginni rétt eins og ekki hefði verið hægt að sjá fyrir alla þessa fólksfjölgun. Húsnæðis og mannvirkjastofnun mat uppsafnaða íbúðaþörf vera tæpar 3.950 íbúðir á landinu í ársbyrjun 20211. Það samsvarar 2.500 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu eða álíka mikið og byggt var á metárinu 2020 eins og kemur fram í gögnum.

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 26. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og þróunar á lóðum á Ártúnshöfða í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22040160

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 26. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki samkomulag við lóðarhafa að lóðinni Höfðabakka 7, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040003

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er efitr því að borgarráð samþykki að veita vilyrði fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirvogstjörn vestur í Úlfarsárdal.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040198 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi liðir 17 til 20 að báðum meðtöldum sem meirihlutinn setur fram nú gefa sterklega til kynna að kosningar eru í nánd. Nú á allt að gerast en best hefði verið að sjá þessa liði á dagskrá fyrr á kjörtímabilinu eins og lofað var.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 26. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita vilyrði fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirvogstjörn vestur í Úlfarsárdal.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040219

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi liðir 17 til 20 að báðum meðtöldum sem meirihlutinn setur fram nú gefa sterklega til kynna að kosningar eru í nánd. Nú á allt að gerast en best hefði verið að sjá þessa liði á dagskrá fyrr á kjörtímabilinu eins og lofað var.

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viljayfirlýsingu fyrir allt að 70 íbúðum á tveimur lóðum, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040199

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi liðir 17 til 20 að báðum meðtöldum sem meirihlutinn setur fram nú gefa sterklega til kynna að kosningar eru í nánd. Nú á allt að gerast en best hefði verið að sjá þessa liði á dagskrá fyrr á kjörtímabilinu eins og lofað var.

    Fylgigögn

  20. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 25. apríl 2022:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að auglýsa eftir samstarfsaðilum og hugmyndum um þróun á völdum reitum í Reykjavík fyrir lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara. Reitirnir þrír sem lagt er til að verði lagðir fram í verkefnið verða í Leirtjörn vestur, Ártúnshöfða og í Gufunesi. Fleiri gætu bæst við síðar. Með lífsgæðakjarna er átt við húsnæðisuppbyggingu fyrir aldraða sem er með fjölbreytt framboð af þjónustu í nærumhverfinu. Gert er ráð fyrir lóð fyrir hjúkrunarheimili í Ártúnshöfða sem gæti tengst uppbyggingunni. Skilmálar samkeppninnar verða lagðir fyrir borgarráð til endalegrar staðfestingar áður en kemur til auglýsingar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040200

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Lífsgæðakjarnar eldri borgara eru að erlendri fyrirmynd. Hér er lagt til að borgarráð samþykki að auglýsa eftir samstarfsaðilum og hugmyndum um þróun á völdum reitum í Reykjavík fyrir lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara. Reitirnir þrír sem lagt er til að verði lagðir fram í verkefnið verða í Leirtjörn vestur, Ártúnshöfða og í Gufunesi. Fleiri gætu bæst við síðar. Með lífsgæðakjarna er átt við húsnæðisuppbyggingu fyrir aldraða sem er með fjölbreytt framboð af þjónustu í nærumhverfinu. Gert er ráð fyrir lóð fyrir hjúkrunarheimili í Ártúnshöfða sem gæti tengst uppbyggingunni.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessir liðir 17 til 20 að báðum meðtöldum sem meirihlutinn setur fram nú gefa sterklega til kynna að kosningar eru í nánd. Nú á allt að gerast en best hefði verið að sjá þessa liði á dagskrá fyrr á kjörtímabilinu eins og lofað var.

    Fylgigögn

  21. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 25. apríl 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki gerð framlagðrar viljayfirlýsingar við Betri samgöngur ohf. um samstarf vegna þróunar og uppbyggingar Keldnalands og Keldnaholts og flýtingu uppbyggingar innviða tveggja Borgarlínuleiða.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22040189

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja viljayfirlýsingu við Betri samgöngur um flýtingu Borgarlínu og flýtingu á uppbyggingu í Keldnalandi. Keldnaland verður með því fyrsta hreina borgarlínuhverfið í Reykjavík.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Uppbygging Keldnalandsins er löngu tímabær og hefur dregist úr hömlu. Mörg ár eru síðan lagt var upp með skipulag Keldnalandsins undir íbúðabyggð meðal annars við gerð Lífkjarasamninganna frá 2019. Síðan hafa liðið þrjú dýrkeypt ár. Hætta er á að áfram verði tafir á uppbyggingu svæðisins þegar litið er á skilyrði varðandi borgarlínu. Hér er því haldið fram að ekki sé unnt að taka Keldnalandið undir byggð fyrr en borgarlína sé komin í gagnið upp að Keldum. Engin gögn liggja fyrir um að borgarlínan hafi slík úrslitaáhrif. Þvert á móti hefur samanburður á áhrifum Sundabrautar annars vegar og borgarlínu hins vegar leitt í ljós að Sundabraut muni létta tíu sinnum meira á umferð í Ártúnsbrekku en borgarlína, samanber greinargerð Þórarins Hjaltasonar umferðarverkfræðings. Þá mun uppbygging atvinnu- og stofnanalóða á Keldum minnka skipulagshallann í borginni sem er verulegur og fer vaxandi. Því ætti ekki að þurfa að skilyrða þróun og uppbyggingu Keldna við borgarlínu.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Reykjavíkurborg þjáist af heimatilbúnum lóðaskorti. Öllum má vera ljóst að Keldnalandið og Keldnaholt eru framtíðarbyggingarlönd Reykjavíkur. Hér er lögð fram viljayfirlýsing við Betri samgöngur ohf. Í henni kemur fram að borgarlína tengi svæðið áður en „íbúar flytja inn“ og að Keldur verði „fyrsta hreina Borgarlínu-hverfið“ í sögu borgarinnar. Laumufarþegi þessa samnings er að til stendur að flýta innviðum fyrir borgarlínu í Efra-Breiðholti. Það er hreint með ólíkindum að lífskjarasamningunum skuli vera blandað inn í þetta samkomulag því ljóst er að verkefnið fer ekki af stað fyrr en að mörgum árum liðnum. Minnt er á að samgöngusáttmálinn var undirritaður 26. september 2019. Forgangsverk hans af hálfu Reykjavíkur hafa ekki enn farið af stað og er það klárt vanefndabrot á samningnum. Hér er átt við að greiða umferð um borgina með bættum ljósastýringum. Í viljayfirlýsingunni er sett inn „ófrávíkjanleg forsenda“ að flýting á borgarlínu á Keldum, Keldnaholti og í Efra-Breiðholti seinki ekki fyrsta áfanga borgarlínu og verði þær ávallt í forgangi. Það er sem sagt verið að setja alla borgarlínuna í forgang í samgöngumálum Reykjavíkur. Það er skýrt samningsbrot á samgöngusáttmálanum. Það er óskiljanlegt að Betri samgöngur taki þátt í þessum forsendubresti samgöngusáttmálans og lúti eingöngu vilja og frekju borgarstjóra.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins styður ekki borgarlínu eins og hún er lögð upp af hálfu borgarstjóra og meirihlutanum. Hér má sjá glöggt hversu stutt þetta verkefni er komið en hefur nú þegar kostað ævintýralegar háar upphæðir eða 1,7 milljarða frá Reykjavík einungis. Um er að ræða fjárfrekt verkefni sem ekki er séð fyrir endann á næstu 10-15 árin. Nú hefur verið dregið úr þjónustu strætó vegna fjárhagserfiðleika þannig að almenningssamgöngur eru hvorki fugl né fiskur. Fólk á þess einn kost eða hér um bil að nota bíla eða hjóla. Hér er rætt um samkeppni um þróun Keldnalands og Keldnaholts. Samkeppni er af hinu góða enda eykur hún valkosti. Best er að fá skoðanir og hugmyndir/tillögur frá sem flestum. Í borgarlínuverkefninu er Vegagerðin ríkjandi en þar er mikil þekking um hvernig aka má bílum hratt á milli staða, en minni þekking og reynsla á umhverfisáhrifum fólksflutninga í þéttbýli.

    Fylgigögn

  22. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. apríl 2022:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að staðsetningarkostir Borgarbókasafnsins í Árbæ verði greindir. Þrír kostir að minnsta kosti verði greindir og skoðaðir út frá þörfum notenda safnsins í nútíð og framtíð. Staðsetningakostirnir þrír sem lagt er til að greina eru; núverandi staðsetning eða nágrenni, umhverfi Árbæjartorgs, þ.m.t. sá kostur að byggt verði við Ársel og í þriðja lagi nálægð við Árbæjarlaug og uppbygging í tengslum við svæði Fylkis. Núverandi húsnæði er leiguhúsnæði og að mestu leyti á annarri hæð og uppsegjanlegt með ákveðnum fyrirvara. Óskað er eftir að lagt verði mat á kostnað, bæði stofnkostnað og rekstur, þarfir notenda bókasafnsins, skipulagssjónarmið, sjónarmið um þjónustuþróun í borgarsamfélaginu, samstarfsmöguleika við nærliggjandi skóla, s.s. Árbæjarskóla, aðgengi íbúa og nemenda og samspil við aðra starfssemi í hverfinu. Til grundvallar liggi sýn á þróun bókasafnsins inn í framtíðina, hagkvæmni, þjónustustefna borgarinnar, önnur sambærileg verkefni í öðrum borgarhlutum s.s. hönnunarsamkeppni um nýtt Grófarhús og menningarmiðstöðina Úlfarsárdal, hagsmunir hverfisins og notenda sem og leiðarljós græna plansins um góða nýtingu fjármuna og samnýtingu húsnæðis. Fulltrúar eignaskrifstofu, menningar- og ferðamálasviðs/Borgarbókasafns, íþrótta- og tómstundasviðs, skóla- og frístundasviðs og þjónustu-og nýsköpunarsviðs verði falið verkefnið og leitað verði samráðs, m.a. verði leitað eftir sjónarmiðum umhverfis- og skipulagssviðs, íbúaráðs og íbúasamtaka, Fylkis og stofnana sem málið og valkostirnir snerta.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22030070

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Um er að ræða greiningu á staðsetningu vegna bókasafnsins í Árbæ. Staðsetningakostirnir þrír sem lagt er til að greina eru; núverandi staðsetning eða nágrenni, umhverfi Árbæjartorgs, þ.m.t. sá kostur að byggt verði við Ársel og í þriðja lagi nálægð við Árbæjarlaug og uppbygging í tengslum við svæði Fylkis. Núverandi húsnæði er leiguhúsnæði og að mestu leyti á annarri hæð og uppsegjanlegt með ákveðnum fyrirvara.

    Fylgigögn

  23. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. apríl 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgaráð samþykki að skrifað verði undir viljayfirlýsingu um samstarf ríkis og borgar um framtíðarþróun á reitnum við Laugarnesveg 91 þar sem m.a. yrði fjallað um möguleikann á því að andvirði á sölu byggingarréttar á reitnum verði nýtt til að standa undir fjárfestingunni við endurbyggingu á Tollhúsinu undir starfsemi LHÍ. Lóðahluti Reykjavíkurborgar verði hluti af verkefninu og myndi eftir atvikum eignahlut í húsnæði Listaháskólans.

    Greinargerð fylgir tillögunni
    Samþykkt. MSS22040217

    Borgarráð ásamt áheyrnarfulltrúum leggur fram svohljóðandi bókun:

    Lengi hefur verið leitað að varanlegu húsnæði fyrir LHÍ. Borgin hefur átt aðild að ótal starfshópum í gegnum árin en beðið hefur verið eftir ákvörðun yfirvalda menntamála. Sú ákvörðun hefur nú verið tekin og er söguleg þar sem Listaháskóli Íslands verður í Tollhúsinu við Tryggvagötu, í grennd við helstu menningarstofnanir landsins á borð við Listasafn Reykjavíkur, Aðalsafn Borgarbókasafns, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Safn Nínu Tryggvadóttur þegar það mun opna - ásamt Bæjarins beztu. Þessari ákvörðun er fagnað ákaft. Þá mun þessi ákvörðun opna á uppbyggingu við Laugarnes sem felur í sér mikil tækifæri til borgarþróunar.

    Fylgigögn

  24. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 26. apríl 2022, þar sem lögð eru fram til kynningar drög að erindisbréfi starfshóps um framtíðarhúsnæði Kolaportsins, ásamt fylgiskjölum. MSS22040218

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Flóamarkaður í miðborg Reykjavíkur undir heitinu Kolaportið var fyrst komið á laggirnar laugardaginn 8. apríl árið 1989 og var húsnæði þess staðsett í bílgeymslum Reykjavíkurborgar undir Seðlabanka Íslands við Arnarhól. Fimm árum síðar, 15. maí 1994 flutti Kolaportið sig um set á jarðhæð Tollhússins við Tryggvagötu og hefur verið þar síðan. Það var Þróunarfélag Reykjavíkur sem leigði húsið af fjármálaráðuneytinu og endurleigði aftur til félags um Kolaportið. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að breyta Tollhúsinu í nýjar höfuðstöðvar Listaháskóla Íslands og því ljóst að þörf er á því að finna nýtt húsnæði undir starfsemi Kolaportsins í miðborginni.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að mynda starfshóp um Kolaportið og framtíðarhúsnæði þess sem og að gera á þarfagreiningu, kortleggja mögulegar staðsetningar og gera markaðskönnun. Hópinn skipa fjórir aðilar og er einn af þeim fulltrúi Kolaportsins. Spurning er hvort ekki ætti einnig að vera fulltrúi borgarbúa? Kolaportið er gríðar mikilvægur vettvangur sem borgarbúar eiga og sem standa þarf vörð um. Á kjörtímabilinu hefur verið þrengt að aðgengi með framkvæmdum og lokunum gatna og bílastæðum fækkað. Árið 2020 lagði Flokkur fólksins fram tillögu um að það yrði frítt í bílastæðahús t.d. 2-4 tíma á laugardegi og sunnudegi. Þá hafði Íslendingum fækkað verulega í Kolaportinu sem fjölmenntu áður þangað. Hugsunin með tillögunni var einnig að laða að fólk sem öllu jafna treystir sér ekki til að fara með bíl sinn í bílastæðahús. Rök skipulagsyfirvalda gegn tillögunni voru að bílastæðasjóður yrði fyrir tekjutapi. Þau rök halda ekki því á þessum tímum eru bílastæðahús hvergi nándar nærri full. Þess utan er það ólíklegt að eldra fólk sem nýta myndu sér frítíma í bílastæðahúsum myndu fjölmenna í bæinn um helgar í slíkum mæli að rekstrargrundvelli bílastæðasjóðs væri ógnað.

    Fylgigögn

  25. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 26. apríl 2022, varðandi samkeppni um Fossvogslaug, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS22040001

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja undirbúning að samkeppni Fossvogslaugar. Það þarf meðal annars að skipa dómnefnd og undirbúa samkeppnislýsingu fyrir samkeppni. Verið er að vinna að samgöngumati, greiningu á akstursleiðum, lýðfræðigreiningu, ferðavenjukönnun, öryggis- og áhættugreiningu o.fl. m.t.t. staðsetningu nýrrar laugar. Umræddar greiningar verða hluti af forsögn og samkeppnislýsingu. Sundlaugin skal byggð samkvæmt grænum stöðlum þar sem lögð verði áhersla á vistvæna hönnun. Stefnt er að því að sundlaugin veiti fjölbreytta upplifun og þjónustu fyrir nærliggjandi íbúasvæði og gesti Fossvogsdals og eigi þar með þátt í að auka lífsgæði og sundmenningu á svæðinu.

    Fylgigögn

  26. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. apríl 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að viðauka við þjónustusamning við Fjölsmiðjuna sbr. hjálagt bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 6. apríl 2022. Jafnframt er lagt til að borgarstjóra verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til undirritunar samningsins. Kostnaður Reykjavíkurborgar nemur 6.555 þ. kr á ári árin 2022, 2023 og 2024. Kostnaðurinn verður fjármagnaður af kostnaðarstaðnum 09205, ófyrirséð, fyrir árið 2022, en fer inn í fjárhagsáætlun fyrir árin 2023 og 2024.

    Samþykkt. MSS22040213

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Garðabær og Seltjarnarnes greiða minnst, sem væri eðlilegt ef þessi sveitarfélög væru að sinna þeim sem minnst hafa milli handanna í einhverjum mæli t.d. sjá þeim fyrir fæði, klæði og húsnæði. En þetta eru sennilega þau sveitarfélög sem gera það hvað minnst ef þá nokkuð.

    Fylgigögn

  27. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. apríl 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að stofnaður verði starfshópum með fulltrúum Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands um sameiginlega heildarsýn fyrir háskólasvæðið og samþættingu hennar við borgarlínu með vísan í hjálagt bréf frá rektor Háskóla Íslands, dags. 6. apríl 2022. Jafnframt er lagt til að borgarráð feli umhverfis- og skipulagssviði að skipa í hópinn í samráði við Háskóla Íslands.

    Samþykkt. MSS22040120

    Fylgigögn

  28. Umræðu um samstarf Reykjavíkurborgar við Lvív er frestað. MSS22040212

  29. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar með fyrirvara um kostnaðarmat á aðgerðum frá umhverfis- og skipulagssviði sem vísað yrði inn í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2023, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með fyrirvara um kostnaðarmat á aðgerðum frá umhverfis- og skipulagssviði.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Anna Kristinsdóttir og Tómas Ingi Adolfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22010199

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Aðgengisstefnan er ágæt upp að ákveðnu marki. Samgöngumálin eru mjög fyrirferðarlítil í stefnunni. Fjölga ber P-merktum bílastæðum í borgarlandinu en ekki fækka eins og gert hefur verið að undanförnu. Skýra þarf og skilgreina betur hlutverk aðgengis- og samráðsnefndar Reykjavíkurborgar og tryggja það að eðlilegt og reglulegt samráð sé haft við nefndina um málefni fatlaðra. Alveg gleymist að skoða og ræða um fjárhagslegt aðgengi en fram hefur komið að það var ekki hluti af erindisbréfinu. Til dæmis er verðskrá og þjónustan ekki sambærileg hjá strætó og akstursþjónustunni, sem hugsuð er sem ígildi strætó fyrir þau sem geta sjaldan eða aldrei notað hann. Ferð með akstursþjónustunni er dýrari. Fötluðu fólki á ekki að refsa fyrir fötlun sína með því að borga meira af því þau þurfa sérhæfða þjónustu. Þessi hópur er auk þess sá verst setti í samfélaginu og er skemmst að vitna í nýútkomna skýrslu um fátækt og bága stöðu öryrkja. 80 prósent fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman og jafnhátt hlutfall þeirra þarf að neita sér um heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. Skipa þyrfti einn yfiraðgengisfulltrúa og síðan ráða aðgengisfulltrúa.

    Fylgigögn

  30. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 13. apríl 2022, þar sem lögð er fram skýrsla um störf stýrihóps um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun kjörtímabilið 2018 - 2022, ásamt fylgiskjölum.

    Anna Kristinsdóttir og Tómas Ingi Adolfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS21120231

    Fylgigögn

  31. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 11. apríl 2022, sbr. samþykkt mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 7. apríl 2022 á uppfærðri þjónustustefnu Reykjavíkurborgar og aðgerðaráætlun, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Anna Kristinsdóttir, Karen María Jónsdóttir og Tómas Ingi Adolfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON21070032

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Stafrænar lausnir eru framtíðin, um það er ekki deilt. Búið er að veita til þjónustu- og nýsköpunarsviði borgarinnar um 13 milljarða á 3 árum. Farið hefur verið með fjármagnið af lausung. Ómældu fé hefur verið veitt í ráðgjöf sem ekki er séð hvernig skilaði sér. Þetta er óásættanlegt miðað við nútímakröfur um skilvirkni og árangursstjórnun. Í stað þess að setja þær stafrænu lausnir sem liðka fyrir t.d. umsóknarferlum eins og umsókn um leikskólapláss strax í forgang og hefja samvinnu við Stafrænt Ísland frá upphafi, hefur stór hluti þessa fjármagns farið í að belgja út sviðið sjálft. Hver skrifstofan á fætur annarri verið sett á laggirnar á sviðinu og fjöldi fólks úr einkageiranum ráðið til starfa. Búið er að halda úti tilraunateymum sem miða að því að uppgötva stafrænar lausnir sem víða eru til. Hér má nefna rafrænar undirskriftir sem enn eru í þróun hjá borginni. Nýtt skjalastjórnunarkerfi hefur verið að malla í þrjú ár en er ekki enn komið í fulla notkun. Flokkur fólksins harmar vinnubrögð af þessu tagi en flokkurinn berst fyrir að börn fái þá þjónustu sem þau þarfnast, að fátækt og efnalítið fólk fái þak yfir höfuðið og mat á diskinn sinn.

    Fylgigögn

  32. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 25. apríl 2022, þar sem bæklingur um kosningar og lýðræði - leiðbeiningar um þátttöku í kosningum er sendur borgarráði til kynningar, ásamt fylgiskjölum.

    Anna Kristinsdóttir og Tómas Ingi Adolfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22030280

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Aftur er Reykjavíkurborg á hálum ís að vera að gefa út leiðbeinandi bækling fyrir kosningar. Minnt er á að Persónuvernd gerði alvarlegar athugasemdir við framkvæmd síðustu borgarstjórnarkosninga sem voru svo alvarlegar að þær hefðu átt að leiða til ógildingar þeirra. Upplýst var um kosningasvindl þar sem borgin sem stjórnvald snerti ákveðna hópa kjósenda með bréfasendingum og fl. Þessi bæklingur er almenns eðlis að öllu leiti hvað snýr að sveitastjórnarkosningum, alþingiskosningum og forsetakosningum og er það vel. Þess vegna er með ólíkindum að borgarstjóri skuli sérstaklega dreginn fram í bæklingnum. Það getur hæglega dregið fram hughrif fyrir kjósendur.

    Fylgigögn

  33. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki tillögu um skipan 23 hverfiskjörstjórna og að borgarstjóra verði falið að skipa í hverfiskjörstjórnir í stað þeirra sem kunna að forfallast, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS21110010

    Fylgigögn

  34. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 25. apríl 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki tillögu skrifstofu borgarstjórnar um skipan undirkjörstjórna í Reykjavík og að borgarstjóra verði falið að skipa í undirkjörstjórnir í stað þeirra sem kunna að forfallast, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS21110010

    Fylgigögn

  35. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 26. apríl 2022, þar sem mælt er með því að borgarráð samþykki jákvæða umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar um nýtt lyfsöluleyfi fyrir nýja lyfjabúð að Hallgerðargötu 13, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS22040136

    Fylgigögn

  36. Lagt fram svarbréf borgarstjóra, dags. 12. apríl 2022, við bréfi innviðaráðuneytisins vegna uppbyggingar í Skerjafirði, ásamt fylgiskjölum. MSS22030142

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarstjóri gefur innviðaráðherra og Isavia puttann í svarbréfi sínu þegar kemur að flugöryggi Reykjavíkurflugvallar vegna uppbyggingar í hinum svokallaða nýja Skerjafirði. Allir vita að borgarstjóri vill flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni og skeytir engu um mikilvægi hans fyrir landsmenn alla og hundsar öryggishlutverk hans. Allir samningar við ríkið eru brotnir og pöntuð eru lögfræði- og verkfræðiálit sem falla að skoðunum borgarstjóra. Einnig er því hafnað að hans hálfu að uppbyggingin í nýja Skerjafirði gangi ekki í berhögg við samkomulag við ríkið um rannsóknir á nýjum flugvelli í Hvassahrauni. Minnt er á að Reykjanesið er vaknað sem eldstöð og ljóst að það væri óðs manns æði að fara í uppbyggingu nýs flugvallar þar. Hvenær fær ríkið nóg af samningum við borgarstjóra sem sífellt eru brotnir og leiða af sér forsendubrest samninga? Borgarstjóri misnotar ríkið pólitískt trekk í trekk. Samningar um flugvöllinn í Vatnsmýri eru skýrt dæmi um það, annað dæmi um slíka misnotkun er samgöngusáttmálinn að ógleymdri samninga um Sundabraut.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins hefur margoft bókað um þessi mál. Uppbyggingin í Skerjafirði mun skerða gæði flugvallarins og skemma náttúrulega fjöru. Er ekki bara best að bíða með að byggja þar til flugvöllurinn fer í stað þessa að byggja á hvern blett í kringum hann.

    Fylgigögn

  37. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. febrúar 2022, sbr. vísun borgarstjórnar frá 1. febrúar 2022 á tillögu borgarfulltrúa Miðflokksins um að innri endurskoðandi leggi mat á lögmæti samninga Reykjavíkurborgar við olíufélögin, ásamt fylgiskjölum. Einnig lagt fram álit borgarlögmanns, dags. 28. mars 2022.
    Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. . MSS22020024

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Bensínstöðvadíllinn. Innri endurskoðandi og borgarlögmaður leggja blessun sína yfir bensínstöðvadíl borgarstjóra. Hér er um algjöran hvítþvott að ræða. Innri endurskoðandi á að hafa eftirlit með meirihlutanum og borgarlögmanni og ætlar ekki að leggja mat á lögmæti bensínstöðvardílsins. Reykjavíkurborg undir stjórn Dags B. Eggertssonar gaf olíufélögunum og fleiri aðilum lóðir og þar með byggingarétt á besta stað í borginni. Þar með er hann þátttakandi í að umbreyta félögunum í fjárfestingar- og fasteignafélög. Það eitt og sér er forkastanlegt og hefur birst landsmönnum í stórkostlegum hækkunum félaganna eftir dílinn sem sumir vissu af en aðrir ekki. Reykjavíkurborg hefur gefið frá sér skipulagsvaldið til þriðja aðila á flestum bestu uppbyggingarreitum í borginni. Það er ekki heimilt samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Eins og fyrr hefur verið reifað í bókunum er hér um að ræða samninga sem þegar eru komnir til framkæmda upp á 20 milljarða auk framtíðarsamninga lóða sem bensínstöðvar eru á og liggja í vegstæði hinnar svokölluðu borgarlínu. Ómögulegt er nú að leggja mat á verðmæti þeirra samninga. Minnt er á að borgarsjóður rambar á barmi gjaldþrots og hefði ekki veitt af þessum tekjum.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Rétt væri að gera úttekt á samningsgerð borgarinnar við olíufélögin til að meta lögmæti og hagsmunagæslu borgarinnar varðandi útdeilingu byggingarréttar á verðmætum stöðum. Slík úttekt myndi vera líklegt til að svara spurningum sem upp hafa komið í málinu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Samningarnir eru taldir vera lögmætir, en það er ekki það sama og að segja að þeir séu borginni hagstæðir, sem þeir eru sennilega ekki. Líklega munu olíufélögin hagnast verulega, fjármagn sem hefði verið vel þegið að fá í borgarsjóð og nota þá til að bæta þjónustu við borgarbúa.

    Fylgigögn

  38. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 26. apríl 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um að tillaga um úttekt innri endurskoðunar á lögmæti samninga við olíufélögin verði tekin fyrir í borgarráði, sbr. 40. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. febrúar 2022. MSS22020061

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Bensínstöðvadíllinn. Innri endurskoðandi og borgarlögmaður leggja blessun sína yfir bensínstöðvadíl borgarstjóra. Hér er um algjöran hvítþvott að ræða. Innri endurskoðandi á að hafa eftirlit með meirihlutanum og borgarlögmanni og ætlar ekki að leggja mat á lögmæti bensínstöðvardílsins. Reykjavíkurborg undir stjórn Dags B. Eggertssonar gaf olíufélögunum og fleiri aðilum lóðir og þar með byggingarétt á besta stað í borginni. Þar með er hann þátttakandi í að umbreyta félögunum í fjárfestingar- og fasteignafélög. Það eitt og sér er forkastanlegt og hefur birst landsmönnum í stórkostlegum hækkunum félaganna eftir dílinn sem sumir vissu af en aðrir ekki. Reykjavíkurborg hefur gefið frá sér skipulagsvaldið til þriðja aðila á flestum bestu uppbyggingarreitum í borginni. Það er ekki heimilt samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Eins og fyrr hefur verið reifað í bókunum er hér um að ræða samninga sem þegar eru komnir til framkæmda upp á 20 milljarða auk framtíðarsamninga lóða sem bensínstöðvar eru á og liggja í vegstæði hinnar svokölluðu borgarlínu. Ómögulegt er nú að leggja mat á verðmæti þeirra samninga. Minnt er á að borgarsjóður rambar á barmi gjaldþrots og hefði ekki veitt af þessum tekjum.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Rétt væri að gera úttekt á samningsgerð borgarinnar við olíufélögin til að meta lögmæti og hagsmunagæslu borgarinnar varðandi útdeilingu byggingarréttar á verðmætum stöðum. Slík úttekt myndi vera líklegt til að svara spurningum sem upp hafa komið í málinu.

    Fylgigögn

  39. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. apríl 2022, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um innviðagjöld og fjárhagslega hagsmuni í yfirstandandi málaferlum, sbr. 52. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. október 2019. FAS22040045

    Fylgigögn

  40. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. apríl 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um auglýsingakostnað Reykjavíkurborgar, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. mars 2022. MSS22030035

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Frá árinu 2016 hefur Reykjavíkurborg auglýst fyrir rúman 1,1 milljarð eða fyrir tæpar 200 milljónir á ári. Miðast þessi upphæð við 1. mars sl. Því er ótalin kosningabarátta borgarstjóra sem nú stendur yfir á kostnað borgarbúa. Finnst fólki þetta í lagi?

    Fylgigögn

  41. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 13. apríl 2022, við framhaldsfyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um viðhald á leigueignum fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sbr. 42. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. febrúar 2022. MSS22020062

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Svar við fyrirspurn Flokks fólksins um leigueignir hefur borist og er þakkað fyrir það. Spurt var um hvort skilin milli minni- og meiriháttar viðhalds séu skýr og skilgreind. Einnig hvort upp hafi komið deilumál aðila um hvers ábyrgð viðgerð/viðhald sé? Í svari segir að skilin séu skilgreind og að hvert tilvik sé skoðað fyrir sig. Lagagreinin skilgreinir minniháttar viðhald svo: Leigjanda er skylt að annast á sinn kostnað minniháttar viðhald, svo sem skipti á ljósaperum og rafhlöðum í reykskynjurum og hreinsun niðurfalla. Annað er á ábyrgð leigusala.Einnig kemur fram í svari að ekki hafi komið upp deilumál vegna viðhalds milli leigusala og Reykjavíkurborgar. Af svari að dæma virðist fulltrúa Flokks fólksins sem þessi mál séu skýr.

    Fylgigögn

  42. Lagt fram svar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs, ódags., við framhaldsfyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um viðbrögð við niðurstöðum starfsánægjukönnunar slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, sbr. 37. lið fundargerð borgarráðs frá 17. mars 2022. MSS21120028

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í svari við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um hvernig brugðist hafi verið við niðurstöðum starfsánægjukannanna hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að í kjölfarið af niðurstöðum starfsánægjukannanna sem komu afar illa út hjá Slökkviliðinu var farið í samstarf við Empower. Í framhaldsvari við fyrirspurn um hvort ekki sé rétt að gerð verði heildarúttekt á trausti starfsfólks til stjórnenda SHS? segir að starfsfólk hafi fengið fræðslu um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi (EKKO) frá Auðnast, fyrirtæki sem hefur m.a. sérhæft sig í EKKO málum. Segir enn fremur að kynna eigi “veitu” út úr húsi sem fólk getur leitað til ef það treystir sér ekki til að ræða sín mál við stjórnendur innanhúss eða ef um formlega kvörtun er að ræða. Fulltrúi Flokks fólksins leggur mikla áherslu á að gerð verði heildarúttekt á trausti starfsfólks til stjórnenda Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og skorar á borgarstjóra að ýta við þeirri framkvæmd svo hún megi verða sem fyrst. Þetta er spurning um hvaða leið er farin og sá aðili sem er með öllu óháður og hlutlaus verði valinn til verksins.

    Fylgigögn

  43. Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 7. apríl 2022. MSS22010025

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:

    Lagt er fram erindi frá öryggisnefnd Ráðhúss Reykjavíkur, dags. 4. apríl 2022, um aðgengi úr Tjarnarsal Ráðhússins. Aðgengis- og samráðsnefnd óskar eftir því að fasteignastjóra og hönnuði Ráðhússins verði falið að finna viðunandi lausn á aðgengi úr Tjarnarsal í neyðartilfellum í samráði við aðgengis- og samráðsnefnd og öryggisnefnd Ráðhússins. Fulltrúa Flokks fólksins finnst ámælisvert að Reykjavíkurborg hafi ekki í eigin húsnæði viðunandi aðgengi fyrir fatlað fólk. Ef borgin sýnir sjálf ekki gott fordæmi í aðgengismálum er ekki hægt að krefjast þess að aðrir geri það.

    Fylgigögn

  44. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 11. apríl 2022. MSS22010022

    Áheyrnarfulltrúi Flokks Fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fundur fjölmenningarráðs undir yfirskriftinni “Why should I vote?”, var haldinn í Gerðubergi þann 23 apríl 2022. Á ráðstefnuna voru mættir fulltrúar flestra flokka sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum næstkomandi. Á ráðstefnunni var keyrð glærusýning og lifandi þýðingarforrit sem var í gangi á skjá á meðan henni stóð. Ljóst er að engu var til sparað í kynningu og framsetningu ráðstefnunnar. Þeir innflytjendur sem þessi ráðstefna var sniðin fyrir, voru hins vegar hvergi þar að finna. Þó að málefni ráðstefnunnar hafi verið gott og gilt og mikilvægt að virkja innflytjendur og aðra minnihlutahópa til víðtækrar þátttöku í samfélaginu, er alveg ljóst að þarna þarf að koma til fjölbreyttari nálgun. Það má leiða að því líkum að það verkefni að ná til innflytjenda sé á vissan hátt svipað og það að ná til eldra fólks og annarra sem ekki eru eins rafræn í sinni upplýsingaleit og margir aðrir. Þess vegna þarf Reykjavíkurborg að hugsa út fyrir rammann hvað þetta fólk varðar. Það er bara þannig að ein lausn hentar ekki öllum. Það gleymist ansi oft í þeirri stafrænu ævintýramennsku sem núverandi meirihluti hefur talið vera lausn á öllum vandamálum heimsins hingað til.
     

    Fylgigögn

  45. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 12. apríl 2022. MSS22010026

    Fylgigögn

  46. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 11. apríl 2022. MSS22010032

    Fylgigögn

  47. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Vesturbæjar frá 20. apríl 2022. MSS22010034

    Fylgigögn

  48. Lögð fram fundargerð skipulags- og samgönguráðs frá 27. apríl 2022.
    B-hluti fundargerðarinnar er samþykktur. MSS22010010

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 13. lið fundargerðarinnar:

    Gerð hafa verið mistök. Einkavegur var gerður fyrir einn aðila sem er nú staðfest með gögnum að hafi ruglað alla hæðarsetningu í Gufunesi. Gögnum hefur verið haldið frá aðstandendum og reynt að þagga málið niður í þrjú ár. Ekki hefur einu sinni verið fylgt lögbundnu samráðsferli. Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi ekki útfært í deiliskipulagi það sem þó ber að gera skv. skipulagsreglugerð, afstöðu gatna og jarðvegs við gólfhæð 1. hæðar húsa, hæð landslags á lóðum. Þetta er ákveðið og gert án vitundar og athugasemda- og ábendinga möguleika almennings eftir því sem Flokkur fólksins kemst næst. Haldinn var loks fundur 25. apríl þar sem boðið var lækkun á götu og seinkun á gjalddögum. Þetta er slakt tilboð eftir allt sem á undan er gengið. Tafir hafa verið miklar og skemmdir á starfsemi í rúm 3. ár. Eftir því sem næst er komist er búið að framkvæma alla gatnagerð þarna á rangan hátt og með því mögulega brjóta á aðstandendum Loftkastalans stjórnsýslulagabrot, eignarréttarbrot, hegningarlagabrot. Af hverju var ekki fenginn óháður aðili til mælinga? Fulltrúi Flokks fólksins ítrekar að lenda þarf þessu máli og það fyrir kosningar. Málinu hefur verið vísað til innri endurskoðunar sem hefur nú hlutverk „umboðsmanns borgarbúa.“

    Fylgigögn

  49. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls átta mál. MSS22040031

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið yfirlitsins:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að ekki er lengur verið að skjóta í Álfsnesi enda hefur það verið íbúum til ama í nærri tvo áratugi og á skjön við ekki bara mannlíf, heldur einnig náttúru. Finna þarf þessari íþrótt nýjan stað þar sem sport eins og þetta á heima. Erfitt getur reynst að finna svæði þar sem ekkert mannlíf er í nágrenninu og þar sem blýmengun veldur ekki skaða og/eða þar sem skotæfingar skaða ekki náttúru. Utandyra þarf það svæði að vera einangrað og fagmannlega útbúið. Þar getum við leitað þekkingar hjá öðrum Evrópuþjóðum þar sem slík svæði eru í sátt við umhverfi sitt.

    Fylgigögn

  50. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS22040018

    Fylgigögn

  51. Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir til borgarráðs utan umsóknartíma.
    Samþykkt að veita Skrautás ehf. styrk að fjárhæð kr. 1.500.00 vegna útgáfu Árbæjar-, Grafarholts- og Grafarvogsblaðsins.
    Samþykkt að veita Með oddi og egg ehf. styrk að fjárhæð kr. 500.000 vegna útgáfu hverfablaðsins Miðborgar & Hlíða.
    Samþykkt að veita Með oddi og egg ehf. styrk að fjárhæð kr. 500.000 vegna útgáfu hverfablaðsins Laugardalur, Háaleiti & Bústaðir.
    Samþykkt að veita Golfklúbbi borgarstarfsmanna styrk að fjárhæð kr. 250.000 vegna golfiðkunar starfsmanna Reykjavíkurborgar.
    Samþykkt að veita Bridgesambandi Íslands styrk að fjárhæð kr. 250.000 vegna heimsmeistaramótsins í bridge 2022.
    Samþykkt að veita Lionshreyfingunni á Íslandi styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna verkefnisins Rauð fjöður.
    Öðrum styrkumsóknum er hafnað. MSS22010042

    -    Kl. 13:15 víkur Eyþór Laxdal Arnalds af fundi.

Fundi slitið klukkan 13:25

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Heiða Björg Hilmisdóttir

Alexandra Briem

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_2804.pdf