Borgarráð - Fundur nr. 5639

Borgarráð

Ár 2021, fimmtudaginn 30. september, var haldinn 5639. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:10. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Alexandra Briem og Eyþór Laxdal Arnalds. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 894/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Líf Magneudóttir, Hildur Björnsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þorsteinn Gunnarsson, Ebba Schram, Ívar Vincent Smárason og Pétur Ólafsson með fjarfundabúnaði. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að eignaskrifstofu fjármála- og áhættustýringarsviðs verði veitt heimild til að ganga til samninga við Spildu ehf. um kaup á Gufunesvegi 19 á grundvelli tilboðs þessara aðila.  
    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Asbest hefur fundist í byggingum sem áður hýstu Áburðarverksmiðju ríkisins, t.d. húsnæði sem leigt hefur verið út til listamanna af hálfu Reykjavíkurborgar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram tillögu þess efnis að kortlagt verði hvar asbest er að finna í byggingum í eigu Reykjavíkurborgar. Mikilvægt er að sú þekking sé til staðar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram tillögu um það að kannað væri hvort asbest væri í þessari byggingu sem núna er verið að samþykkja að selja en við þeirri ósk var ekki brugðist. Það er mikilvægt að fólk sem er að vinna að endurgerð húsnæðis í eigu Reykjavíkurborgar sé meðvitað um það hvort að asbest sé að finna í húsnæðinu.

    Ívar Örn Ívarsson og Óli Jón Hertervig taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að eignaskrifstofu fjármála- og áhættustýringarsviðs verði veitt heimild til að ganga til samninga við GN Studios ehf. um kaup á Gufunesvegi 21 á grundvelli tilboðs þessara aðila.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Asbest hefur fundist í byggingum sem áður hýstu Áburðarverksmiðju ríkisins, t.d. húsnæði sem leigt hefur verið út til listamanna af hálfu Reykjavíkurborgar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram tillögu þess efnis að kortlagt verði hvar asbest er að finna í byggingum í eigu Reykjavíkurborgar. Mikilvægt er að sú þekking sé til staðar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram tillögu um það að kannað væri hvort asbest væri í þessari byggingu sem núna er verið að samþykkja að selja en við þeirri ósk var ekki brugðist. Það er mikilvægt að fólk sem er að vinna að endurgerð húsnæðis í eigu Reykjavíkurborgar sé meðvitað um það hvort að asbest sé að finna í húsnæðinu.

    Ívar Örn Ívarsson og Óli Jón Hertervig taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að gengið verði til viðræðna við Truenorth ehf., Pegasus ehf., Sagafilm ehf. og Þorpið-Vistfélag ehf. um lóðavilyrði til þróunar og uppbyggingar á kvikmyndatengdri starfsemi í Gufunesi.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Ívar Örn Ívarsson og Óli Jón Hertervig taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 28. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili að bjóða byggingarrétt lóðarinnar Frakkastígur 1 til sölu í sölusamkeppni.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. 

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er síðasti reiturinn sem tengir með sjónrænum hætti Sæbrautina við Miðborgina. Turn upp á 7 hæðir mun loka á útsýni í báðar áttir. Skortur er á leikskólarýmum og hefur þessi lóð verið til skoðunar sem leikskólalóð, en búið er að samþykkja talsverða fjölgun íbúða í hverfinu. Það skýtur því skökku við að borgin sé að selja undan sér þennan möguleika.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er forkastanlegt að Reykjavíkurborg tuddist áfram í þessu máli í andstöðu íbúa á svæðinu. Allar umsagnir sem bárust hnigu í eina átt og voru mjög vel rökstuddar. Þessi ákvörðun er blaut tuska framan í þá sem vilja hafa útsýni, græn svæði og lokar inni sögufrægt hús á Lindargötu 51, sem hýsir nú Tónmenntaskóla Reykjavíkur og áður Franska spítalann. Það er ekkert heilagt hjá borgarstjóra og meirihlutanum.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að taka þátt í stuðningsverkefni vegna innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í íslenskum sveitarfélögum, ásamt því að samþykkja tilnefningu tveggja fulltrúa, annars vegar kjörins og hins vegar starfsmanns, til að bera ábyrgð á innleiðingarvinnunni. Lagt er til að fulltrúar Reykjavíkurborgar verði Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, sérfræðingur á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar. Samband íslenskra sveitarfélaga mun styðja við innleiðingu heimsmarkmiðanna í sveitarfélögum á grundvelli verkfærakistu um heimsmarkmiðin fyrir sveitarfélögin sem kom út í maí 2021 og þurfa umsóknir um þátttöku í verkefninu að berast fyrir 15. október nk.

    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarstjóri leggur til að borgarráð samþykki að taka þátt í stuðningsverkefni vegna innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í íslenskum sveitarfélögum og tilnefni tvo fulltrúa til að bera ábyrgð á innleiðingarvinnunni. Flokkur fólksins lagði til árið 2019 að Reykjavíkurborg innleiddi Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í stefnu sína með formlegum hætti en tillagan var felld, Sjálfstæðisflokkur og Sósíalistaflokkur sátu hjá. Nú skyndilega hugnast meirihlutanum að leggja þetta sjálfur til. Af hverju? Þótti þessi tillaga Flokks fólksins ekki tímabær árið 2019? Margar tillögur Flokks fólksins hefur meirihlutinn vísað frá eða fellt sem hann síðar leggur síðan sjálfur fram. Þetta er ein af þeim. Fulltrúa Flokks fólksins þótti miður að þessari tillögu var hent árið 2019. Í tillögu Flokks fólksins var lögð áhersla á yngstu börnin enda mikilvægt að byrja snemma að ræða heimsmarkmiðin við þau þar sem líklegt er að börnin meðtaki fræðsluna og geti byrjað að taka þátt á eigin forsendum allt eftir aldri, getu og þroska. Óhætt er að segja að þessi meirihluti í borgarstjórn er afar seinn að taka við mikilvægum málum og hann hefði verið farsælli ef hann hefði í ríkari mæli meðtekið mál sem minnihlutinn leggur fram.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 27. september 2021:

    Lagt er til að efnt verði til hugarflugs og samráðs vegna útfærslu á Hafnarhúsi, húsi myndlistar. Kallað verði eftir aðkomu fjölbreyttra fulltrúa listafólks og borgarbúa á öllum aldri, Listasafns Reykjavikur, bakhjarla Safns Nínu Tryggvadóttur, Erró-safnsins, Listaháskóla Íslands, tónlistarhússins Hörpu og annarra hagaðila. Kallað verði eftir viðhorfum og hugmyndum til undirbúnings hönnunarsamkeppni þar sem útfærðar verði breytingar á Hafnarhúsi til að rúma Safn Nínu Tryggvadóttur, stækkun Listasafns Reykjavíkur og til að skapa rými fyrir aðra notkun hússins í þágu myndlistar og eftir atvikum annarrar listsköpunar, skv. nánari ákvörðun. Einnig verði horft til samspils byggingarinnar og starfsemi þess við nágrenni sitt: Listaháskóla Íslands í Tollhúsinu, nýtt og endurnýjað Grófarhús, umhverfi og nágrenni Hafnarhúss, Hörpu, Austurhöfn, Hafnartorg og Kvos. Byggt verði á fyrirmynd flugráðs sem skilaði góðu starfi í aðdraganda hönnunarsamkeppni um Grófarhús. Umsjón verkefnisins og utanumhald verði í höndum umhverfis- og skipulagssviðs sem og menningar- og ferðamálasviðs. Samantekt á sjónarmiðum og niðurstöðum samráðsins verði skilað á fæðingardegi Nínu Tryggvadóttur 16. mars 2022.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er einstakt tækifæri að gera list Nínu Tryggvadóttur sýnilega og efla Hafnarhús sem hús myndlistar á besta stað í borginni. Gjöf Unu Dóru Copley er mikilsverð og ómetanlegt framlag til Reykjavíkurborgar og þjóðarinnar allrar. Það er ábyrgðarhluti að taka við stórri gjöf svo sómi sé af.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð heimili að ganga frá kaupum Reykjavíkurborgar á 61% eignarhluta Faxaflóahafna sf. í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17. 
    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hafnarhúsið var upprunalega byggt sem skrifstofu- og vörugeymsluhús Reykjavíkurhafnar og reis í nokkrum áföngum á mikilli landfyllingu sem gerð var við höfnina á árunum 1913-17. Það var á sínum tíma ein stærsta bygging landsins og var vandað mjög til byggingarinnar sem ber einkenni hins alþjóðlega módernisma, sem þróaðist á millistríðsárunum í mið-Evrópu, m.a. út frá Bauhaus skólanum í Þýskalandi. Með kaupum á þessu sögufræga húsi er stefnt að því að til verði miðstöð myndlistar í höfuðborginni. Í Hafnarhúsinu er nú þegar Listasafn Reykjavíkur og fyrir liggur samkomulag sem gerir ráð fyrir að að Safn Nínu Tryggvadóttur verði þar til húsa, sem byggt er á höfðinglegri gjöf Unu Dóru Copley, dóttur Nínu. Með tíð og tíma verður Listaháskóli Íslands í Tollhúsinu og Tryggvagatan gæti því orðið sannkallað stræti listarinnar.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er eðlileg þróun að Reykjavíkurborg eignist Hafnarhúsið að fullu þó deila megi um kaupverðið. Ekki kemur fram hvenær eigi að greiða fyrir kaupin né hvernig þau séu fjármögnuð. Þá er ekki til full fjárheimild fyrir þessum kaupum á þessu ári, en greiðsluáætlun liggur ekki fyrir fundinum. Enginn kaupsamningur eða kauptilboð liggja fyrir í gögnum fundarins. Ekki er komin endanleg ákvörðun skrifstofu Faxaflóahafna um að flytja starfsemi sína á annan stað. Mikilvægt er að huga að heildarmyndinni svo allt gangi upp í tíma og rúmi.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir rausnarlega og einstaka gjöf erfingja Nínu Tryggvadóttur og uppbyggingu safns henni til heiðurs í Reykjavík. Það sem hinsvegar er gagnrýnivert er skuldsetning Reykjavíkur og þær skuldbindingar sem verið er að gangast í. Fyrir liggur kostnaðarmat um að 61% hlutur Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu kostar 2,2 milljarða. Reykjavíkurborg á Faxaflóahafnir eiginlega að öllu leyti. Hvaða fjármálasnúningar eru þetta eiginlega. Einungis 100 milljónir eru inn í fjárhagsáætlun 2021, 800 milljónir eru áætlaðar inn í fjárhagsáætlun 2022 og 1,2 milljarðar á árinu 2023. Hér er verið að skuldbinda nýjan meirihluta um fleiri hundruðir milljóna á nýju kjörtímabili. En það er í takt við allt að henda skuldbindingum yfir á komandi kynslóðir. Þegar þetta er skrifað eru skuldir A-hlutans, þ.e. borgarsjóðs 140 milljarðar.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 20. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki leigusamning um húsnæði á Vesturlandsvegi 103, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 20. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki leigusamning um hluta húsnæði á 1. hæð í Frostaskjóli 2, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 20. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðauka um húsnæði í Frostaskjóli 6, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 24. september 2021, þar sem óskað er eftir að leigusamningur um atvinnuhúsnæði í Víkurhvarfi 1 verði samþykktur.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afreiðslu málsins. 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er verið að gera leigusamning á geymsluhúsnæði til 10 ára. Borgin ætti að skoða þann valkost að eiga húsnæði sem þetta í stað þess að leigja sífellt meira húsnæði undir starfsemi sína.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Leiga fyrir Listasafn Reykjavíkur. Sé þetta hagstæðasta tilboðið verður svo að vera, en þetta er ekki lág leiga: Leigugjaldið er 1.452.700 krónur á mánuði fyrir 730 fermetra

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 27. september 2021, varðandi tillögur valnefndar fjárfestinga um fjármögnun grænna framkvæmda með grænum skuldabréfum, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Sum þeirra verkefni sem upp eru talin kunna að vera grá fremur en græn. Í því sambandi má nefna hverfastöðina í Örfirisey en búið er að malbika 12.500 fermetra í Vesturbænum undir hverfastöð borgarinnar eða um 90% af lóðinni. Nýtingarhlutfallið af þessu verðmæta landi er 0,1. Þá er gert ráð fyrir að setja 4,5 milljarða króna í að breyta Grófarhúsi, sem nú hýsir starfsemi Borgarbókasafnið, þannig að það geti í framtíðinni hýst húsnæði Borgarbókasafnsins. Verður að segjast eins og er að þessar framkvæmdir eru gríðarlega kostnaðarsamar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Sjálfsagt er að koma með fjármögnun grænna fjárfestinga með grænum skuldabréfum. Fulltrúi Flokks fólksins kallar engu að síður eftir meiri samkvæmni hjá borgarmeirihlutanum í umræðu um græn mál. Segir í meðfylgjandi gögnum að „Reykjavíkurborg hafi markað sér þá stefnu að verða kolefnishlutlaus borg fyrir árið 2040. Græna planið byggir á sjálfbærni og framtíðarsýn um kolefnishlutlaust borgarsamfélag.“ Fulltrúi Flokks fólksins bendir á að hér er ekki allt gott og sóknarfæri eru lítt nýtt. Nefna má Úlfarsárdal, 15 ára hverfi sem til stóð að yrði sjálfbært. Ekki er vísir að neinni sjálfbærni enn þá í því hverfi. Fleira mætti telja, t.d. að ekkert er að gerast að heitið geti í nýtingu metans sem er orkugjafi sem nú er sóað. Fram kemur hjá meirihlutanum að græna netið hefur það að markmiði að fjölga gróðursetningu á trjágróðri og fjölæringum á opnum svæðum og með fram helstu hjóla- og gönguleiðum. Þar er sagt að verkefnið uppfylli stefnu um líffræðilegan fjölbreytileika og markmið í græna planinu. En hvað átt er við með líffræðilegum fjölbreytileika er með öllu óljóst hvað þá hvernig sá fjölbreytileiki tengist kolefnisbindingu? Skógrækt er vissulega kolefnisbinding. Hægt væri t.d. að planta trjám frá Reykjavík og upp að rótum Hengils og Bláfjalla.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram trúnaðarmerkt mánaðarlegt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-júlí 2021, dags. 28. september 2021.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

  14. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 28. september 2021, að viðauka við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar vegna fjárfestingaráætlunar A-hluta. Greinargerð fylgir tillögunum.
    Vísað til borgarstjórnar.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Til umræðu eru nokkur verkefni sem falla undir græna planið. Reykjavíkurborg hefur markað sér þá stefnu að verða kolefnishlutlaus borg fyrir árið 2040 og var Aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar í loftslagsmálum 2021-2025 samþykkt. Græna planið er til 10 ára og á að byggja á sjálfbærni og framtíðarsýn um kolefnishlutlaust borgarsamfélag. Hér er ekki allt gott og sóknarfæri eru lítt nýtt. Ekkert á að gerast að heitið geti í nýtingu metans sem er orkugjafi sem nú er sóað. Græna netið hefur það að markmiði að fjölga gróðursetningum á trjágróðri og fjölæringum á opnum svæðum og meðfram helstu hjóla- og gönguleiðum. Þar er sagt að verkefnið uppfylli stefnu um líffræðilegan fjölbreytileika og markmið í græna planinu. Ávinningur er reiknaður sem kolefnisbinding m.v. fjölda trjáa eða m3 af trjám eða tegund gróðurs. Hvað er átt við þegar talað er um líffræðilegan fjölbreytileika og hvað kemur hann kolefnisbindingu við? Óskað hefur verið eftir skilgreiningum á hvernig hugtakið líffræðilegur fjölbreytileiki er notað í borgarkerfinu og hjá þeim verkfræðistofum sem borgin skiptir við. Skógrækt er sögð vera kolefnisbinding, sem er rétt, en það sem á að gera er skiptir ekki sköpum. Hægt væri t.d að planta trjám frá Reykjavík og upp að rótum Hengils og Bláfjalla.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Jón Valgeir Björnsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagðar er fram eftirfarandi tillögur til samþykktar í borgarráði um fjármál og rekstur á skóla- og frístundasviði: 1. Lagt er fram til samþykktar líkan til úthlutunar á fjárheimildum til grunnskóla Reykjavíkurborgar, Grunnskólalíkanið Edda, sbr. kynning í borgarráði dags. 9. sept. 2021 og skóla- og frístundaráði 14. september 2021. 2. Lagt er til að fjárheimildir skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2022 hækki um 1.546 m.kr. sem felur í sér fulla fjármögnun á áætluðum rekstri grunnskóla Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 skv. líkaninu og forsendum þess. 3. Lagt til að reynslutímabil líkansins verði til tveggja ára eða rekstrartímabilið 1. jan. 2022 – 31. des. 2023. Áhersla verði lögð að grunnskólar Reykjavíkur sem fá úthlutað fjármagni með hliðsjón af forsendum reiknilíkansins hagi rekstri innan fjárheimilda og í jafnvægi á tímabilinu. Takist það er lagt til að litið verði framhjá útgjöldum ársins 2021 sem eru umfram fjárheimildir og ekki hægt að rekja til óhagstæðra ytri skilyrða sbr. reglur Reykjavíkurborgar um gerð og framkvæmd fjárhagsáætlunar. Að öðrum kosti taki stofnanir með sér halla sem er utan óhagstæðra ytri skilyrða árið 2021 yfir á árið 2024.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 
    Vísað til vinnu við gerðar fjárhagsáætlunar Reykjavíkur 2022. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Edda, nýtt úthlutunarlíkan grunnskóla er stórt framfaraskref og mikið fagnaðarefni. Það snýst um að auka gagnsæi, fyrirsjáanleika og jafnræði milli skóla og hverfa. Dregið er úr aðstöðumun á milli skóla og verður úthlutun á hvert barn því réttlátari og eykur jöfnuð. Líkanið mun einnig efla faglegt frelsi og ábyrgð skólastjórnenda. Lagt er til að vísa til fjárhagsáætlunar að fjárheimildir skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2022 hækki um 1.546 m.kr. sem felur í sér fulla fjármögnun á áætluðum rekstri grunnskóla borgarinnar skv. líkaninu. Áhersla verður lögð á að grunnskólar Reykjavíkur sem fá úthlutað fjármagni með hliðsjón af líkaninu, hagi rekstri innan fjárheimilda á næstu tveim árum, sem verður reynslutímabil líkansins.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Kostnaður við rekstur grunnskóla hefur ítrekað farið fram úr fjárheimildum. Núverandi áætlanagerð hefur engan veginn gengið sem skyldi. Það er því ljóst að breyta þarf áætlanagerð og valdefla skólastjórnendur. Það er því jákvætt að nú hefur verið farið í ítarlega vinnu við að stokka upp núverandi kerfi. Gæta þarf að því að skólahúsnæði sé heilsusamlegt og viðhaldi sé sinnt. Þá er mikilvægt að grípa snemma inn í og reglulega svo sem vegna ÍSAT nemenda. Ef rétt er á innleiðingu haldið á áætlanagerð að vera áreiðanlegri og með því ætti að vera hægt að vinna að raunverulegri hagræðingu í rekstri og bættri meðferð fjármuna sem nýtast þá betur í þjónustu við nemendur. Rétt er að fara yfir forsendur að nýju áður en fjárhagsáætlun er lögð fram.

    Halldóra Káradóttir og Kristján Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  16. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar reglur um rekstur Grunnskólalíkansins Eddu, merktar FASSTE-021.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins fagnar því að nú sé að koma nýtt og betrumbætt reiknilíkan skólanna. Hið gamla var löngu orðið úrelt og plástrað eins og fram kom í skýrslu innri endurskoðunar um rekstur grunnskólanna. Einn starfsmaður kunni á líkanið sem notað var til að úthluta tæpum 35 milljörðum til skólanna. Úthlutun fjármagns var í sumum tilfellum byggð á kolröngum forsendum. Það sætir furðu að gamalt, úrelt excel-vinnuskjal hafi lifað svo lengi og fengið að valda svo miklum usla. Gera má ráð fyrir að hafi ekki skýrsla innri endurskoðunar verið með svo afgerandi álit þá væri hið plástraða skjal enn aðalleiðarljós skóla- og frístundasviðs við útdeilingu fjármuna til skóla. Fram hefur komið að við úthlutun fjármagns í framtíðinni á að draga enn meira úr greiningum. Síðustu ár hafa mörg börn með röskun, jafnvel með hamlandi einkenni röskunar útskrifast úr grunnskóla án þess að fá þjónustu fagaðila en á biðlista eru nú tæp 1.500 börn. Ef barn með hamlandi einkenni ADHD fær ekki greiningu með tilheyrandi eftirfylgni er það að glíma við afleiðingar kannski alla ævi. Sjálfsmat brotnar enda barnið sífellt að rekast á veggi. Nú er margra ára bið hjá ADHD teymi Landspítala, einstaklingar sem fengu ekki greiningu í grunnskóla.

    Halldóra Káradóttir og Kristján Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  17. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagðar eru fram til samþykktar „Reglur skóla- og frístundasviðs um undirbúning og framkvæmd fjárhagsáætlunar, rekstraruppgjör og eftirlit með rekstri“, ásamt skilgreiningum á ábyrgð hlutaðeigandi aðila í rekstri, stuðningi og eftirliti, sjá skjal merkt SFS VLR – 21-09.30 áb. SVIÐSSTJ. SFS.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Við útfærslu og innleiðingu Eddu - úthlutunarlíkans grunnskóla Reykjavíkur er lögð áhersla á árangursstjórnun og skipulegar mælingar. Á sama tíma og líkanið skapar forsendur fyrir raunhæfari fjármögnun grunnskólanna, er búinn til grunnur fyrir betri rekstur og fjármálastjórn þeirra, með skilgreiningum á ábyrgð á rekstri, stuðningi og eftirliti.

    Halldóra Káradóttir og Kristján Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 28. september 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 14. september 2021 á tillögu um breytingu á samningi við leikskólann Vinaminni, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt

    Kristján Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 16. september 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 14. september 2021, á breyttu rekstrarleyfi fyrir leikskólann Vinaminni.
    Samþykkt. 

    Kristján Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 16. september 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 14. september 2021 á tillögu um viðauka við samning Reykjavíkurborgar við sjálfstætt rekna leikskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 

    Kristján Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  21. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að setja á fót sjálfstæða starfseiningu á sviði jafnlaunamála, Jafnlaunastofu, í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Jafnlaunastofa verði sameignarfélag í eigu Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hafi m.a. það hlutverk að styðja stjórnendur sveitarfélaga við að uppfylla jafnlaunaákvæði jafnréttislaga með ráðgjöf og fræðslu á sviði jafnlaunamála. Samhliða flyst verkefnastofa starfsmats yfir á Jafnlaunastofu með samningi þar að lútandi. Starfseiningin verði fjármögnuð af Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Um er að ræða tilfærslu fjárheimilda af mannauðs- og starfsumhverfissviði og því ekki þörf auknum fjárheimildum vegna þessa

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa skipað sér í forystu hér á landi í baráttunni gegn því meini sem launamunur kynjanna á íslenskum vinnumarkaði er. Fjárfest hefur verið í innviðum og þekkingu og í miklu samstarfi við stéttarfélögin hefur starfsmatskerfið sannað sig sem mikilvægt verkfæri í þessari baráttu. Reykjavíkurborg lætur reglulega framkvæma launagreiningar og þar má sjá að leiðréttur launamunur kynjanna hjá Reykjavíkurborg hefur minnkað úr 21,1% árið 1995 í 1,8% árið 2020, óleiðréttur launamunur er einnig minni en meðaltal sveitarfélaganna en verkinu er engu að síður alls ekki lokið. Með stofnun Jafnlaunastofu gefst tækifæri til að sameina kraftana enn frekar, þróa starfsmatskerfið þannig það nái til fleiri þátta en grunnlauna og til frekari þekkingarþróunar m.a. með samstarfi við stéttarfélög, ríkið, háskóla, rannsóknarsetur o.fl. Horfa þarf til fleiri þátta en bara launamunar kynjanna og til framtíðar má hugsa sér að til verði þekkingarsetur jafnlaunamála sem styðji við framfylgd laga um launajafnrétti hér á landi.

    Lóa Birna Birgisdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu, í samstarfi við skóla- og frístundasvið, að ráðstafa áætluðu fjármagni að upphæð 260 m.kr. í innleiðingu og stuðningi við UT umbreytingu í skóla- og frístundastarfi, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins er sammála öllum uppfærslum á tölvubúnaði í grunnskólum borgarinnar sem auka aðgengi nemenda að nýjustu tækni í skólastarfi. Fram kemur að 260 milljónum verði varið í þessar búnaðaruppfærslur. Það er gott og vel. En eins og svo oft áður í umsýslu þjónustu- og nýsköpunarsviðs á fjármunum sem ætlaðir eru í þágu barna og annarra þjónustuþega hjá Reykjavíkurborg, virðist alltaf stór hluti af því fjármagni sem sviðið meðhöndlar, fara beint í ráðgjafarkaup, nýráðningar starfsfólks til sviðsins sjálfs sem og alls kyns notendatilrauna sem engan endi ætlar að taka. Það gefur auga leið að með þessum starfsháttum skilar fjármagnið sér ekki allt þangað sem það á að fara. Af þeim 260 milljónum sem úthlutað er til uppfærslu tölvubúnaðar í grunnskólum Reykjavíkurborgar fara 160 milljónir í það að ráða inn aukalega 10 sérfræðinga sem eiga að vera tveir saman í hverjum borgarhluta sem og auknum ráðgjafarkaupum, til þess að útvíkka enn frekar vegferð tilraunasmiðja, hugmyndavinnu hvers lags og notendarannsókna sem af einhverjum ástæðum virðist vera orðin þungamiðja í í allri starfsemi þessa sviðs. Einnig er sviðið búið að vera á fullri ferð að útvista allri grunntölvuþjónustu en innvista hugbúnaðarframleiðslu sem virðist oft vera algjörlega á skjön við það sem fagaðilar hérlendis eru að mæla með.

    Karen María Jónsdóttir og Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  23. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. september 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samstarfssamning Bloomberg Philanthropic við Reykjavíkurborg um stafræna vegferð Reykjavíkurborgar til þriggja ára. Verði þjónustu- og nýsköpunarsviði falin framkvæmd samningsins, að andvirði 2,3 milljónir bandaríkjadala, en hann felur meðal annars í sér ráðningu fimm starfsmanna á tímabilinu. Vísað er til minnisblaðs þess efnis, dagsett þann 1. júlí 2021.

    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Build Back Better er verkefni á vegum Bloomberg Philantropies sem ætlað er að hraða stafrænni umbreytingu eftir heimsfaraldur til að tryggja betri lífsgæði íbúa jarðar. Bloomberg styður borgina um 2,3 milljónir bandaríkjadala með verkefninu sem gerir borginni kleift að ráðast í mikilvæg verkefni á sviði stafrænnar umbreytingar. Stuðningur frá Bloomberg Philanthropic og samflot við þær fimm borgir sem valdar hafa verið til þátttöku í verkefninu felur ekki aðeins í sér viðurkenningu á því brautryðjendastarfi sem þegar hefur verið unnið á vettvangi Reykjavíkurborgar síðastliðin ár heldur einnig trú á getu borgarinnar til að raungera sýn sína næstu þrjú árin og traust á þeirri stafrænu vegferð sem framundan er.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fimm nýir starfsmenn til viðbótar við þá tæpu 60 sem búið er/stendur til að ráða vegna „stafrænnar umbreytingar“ upp á 10 milljarða. Það er á mörkum þess að vera löglegt að Reykjavíkurborg hafi heimildir til að taka við gjafafé frá Bloomberg Philanthropies samtökunum upp á 300 milljónir íslenskra króna. Með móttöku þessa fjármagns eru erlendir aðilar að hafa áhrif á innanborgar- og innanríkismál. Slík lagaheimild er ekki til staðar sbr. þegar ESB umsóknin var til umræðu og reynt var að koma fjármagni að utan í kynningaráróður fyrir sambandið hér á landi. Ég lagði fram fyrirspurn 12. ágúst sem hljóðaði svo: „Á hvaða lagagrunni byggir móttaka fjármagns upp á 2,2 milljónir bandaríkjadala eða sem nemur tæpum 300 milljónum íslenskra króna frá Bloomberg Philantropies?“ Enn hefur ekkert svar borist – hvað veldur? Það er mjög skattalega flókið að færa fjármagn milli landa og sérstaklega ef ríki eru utan EES- svæðisins. Þetta fjármagn er að koma frá Bandaríkjunum og ég tel fyllstu ástæðu að eftirlitsaðilar ríkisins rannsaki þessa fjármagnsflutninga til Reykjavíkurborgar sem opinbers aðila. Ég mun senda erindi til ríkisskattstjóra til að fá álit embættisins á lögmæti þessa gjafagjörnings.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill taka það fram að auðvitað á Reykjavíkurborg að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi. Um það er ekki deilt. Þetta nýjasta „stafræna útrásarævintýri“ Reykjavíkurborgar með þjónustu- og nýsköpunarsvið (ÞON) við stjórnvölinn þarf ekki að koma á óvart. Reykjavíkurborg/ÞON hefur af einhverjum ástæðum verið að sækjast eftir þessu og er nú komin í samflot með borgum eins og Bógóta í Kólumbíu og Mexico City sem eru borgir sem Reykjavíkurborg er nú ansi fjarri á flestum sviðum. Þarna kemur fram að „Reykjavíkurborg muni njóta ráðgjafar færustu sérfræðinga víða um heim í þessari vegferð í gegnum Bloomberg Philanthropies“. Þjónustu og nýsköpunarsvið er búið að eyða hundruðum milljóna undanfarin ár í allskyns ráðgjafarkaup innlendra sem erlendra fyrirtækja og m.a. keypt ráðgjöf af Gartner Group á Írlandi í heilan áratug fyrir háar fjárhæðir. Það er því alveg farið að verða spurning hvenær borgin með ÞON í fararbroddi klári að kaupa sér alla þá þekkingu og ráðgjöf sem hana greinilega vantar. Það hlýtur að vera komið að því að öll þessi gríðarlegu ráðgjafarkaup fari að skarast. Hætta er á því að þessi fjöldi erlendra ráðgjafa hverjir með sínar áherslur fari að flækja málin frekar en hitt.

    Karen María Jónsdóttir og Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  24. Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga, dags. 9. ágúst 2021, þar er óskað er samþykktar borgarráðs á starfsreglum svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins og á drögum að nýju samkomulagi sveitarfélaganna um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. R21080079
    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarbúar hafa orðið varir við að samkrull er með byggðasamlögum. Er ekki æskilegt að enda ólýðræðislegt fyrirkomulag? Hér er á ferðinni byggðasamlag þar sem Reykvíkingar borga mest en hafa lítil áhrif. Þetta hefur oft verið rætt og unnið hefur verið að breytingum sem ekki láta frekar á sér kræla. Að loknum hverjum sveitarstjórnarkosningum skal hvert sveitarfélag skipa tvo fulltrúa og tvo til vara í svæðisskipulagsnefnd en árlegur kostnaður vegna starfa nefndarinnar skiptist milli sveitarfélaganna í hlutfalli við íbúafjölda 1. desember næstliðins árs. Leitast skal við að ná samkomulagi um sem flestar ákvarðanir en takist það ekki ræður afl atkvæða. En í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er gengið út frá því að höfuðborgarsvæðið sé eitt búsetusvæði, einn atvinnu- og húsnæðismarkaður, með sameiginleg grunnkerfi, útivistarsvæði, auðlindir, útmörk, landslag og náttúru. Væri ekki miklu lýðræðislegra að sameinast í eitt sveitarfélag. Svona samkrull hindrar það í rauninni.

    Fylgigögn

  25. Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 10. júní 2021, þar sem óskað er samþykktar borgarráðs á viðaukum við stofnsamninga SORPU bs. og Strætó bs. Einnig er óskað eftir því að borgarráð tilnefni fulltrúa í stefnuráð byggðasamlaganna. 
    Einnig lögð fram umsögn borgarlögmanns, dags. 28. september 2021. R21060133
    Samþykkt. 
    Jafnframt er samþykkt að tilnefna Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, Eyþór Laxdal Arnalds, Dóru Björt Guðjónsdóttur og Ragnhildi Öldu Vilhjálmsdóttur.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samþykkt stefnuráðs er framþróun á umgjörð byggðasamlaga á höfuðborgarsvæðinu. Á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu haustið 2019, kom fram tillaga frá Reykjavík um að endurskoða þessa umgjörð m.t.t. góðra stjórnarhátta og ábyrgri stjórn byggðasamlaganna og hefur verið unnið að málinu síðan. Stefnuráðin sem nú er gerð tillaga um, gerir ráð fyrir aðkomu borgar- og bæjarstjóra allra sveitarfélaganna, auk a.m.k. tveggja kjörinna fulltrúa. Í tilfelli Reykjavíkur verða fulltrúarnir fjórir, auk borgarstjóra. Bæði meiri- og minnihluti hvers sveitarfélags ætti því að hafa aðkomu að stefnuráðinu til að tryggja aukna aðkomu kjörinna fulltrúa í mótun stefnu. Að koma á stefnuráði er fyrsta skrefið til að móta framtíðarskipulag starfsemi og verkefna byggðasamlaganna.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er ekkert að rekstrarformi bs.-félaganna – það eru þeir aðilar í stjórn sem bera ábyrgð á rekstri félaganna. Við vitum að flest að þau bs.-félög sem borgin er meirihlutaeigandi í eru gjaldþrota og þurfa sífellt meira fjármagn frá eigendum sínum að reka sig frá degi til dags. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Engar lagalegar hindranir eru fyrir „stefnuráðinu“ eins og fram kemur í gögnum en verið er að undirbúa upphaf „stefnuráðs í byggðasamlögum Strætó bs. og Sorpu bs. í samræmi við tillögur starfshóps kjörinna fulltrúa um stjórnsýslu byggðasamlaga. Gera má ráð fyrir að tilkoma stefnuráðs eins og það er skilgreint verði til bóta til að vinna í því að sníða af bs kerfum helstu galla. Engar grundvallar breytingar eru í farvatninu. Áfram verður aðkoma minnihlutafulltrúa ábótavant þótt rætt sé um að hún verði meiri þannig að þeim sé haldið betur upplýstum. Halli milli kjósenda eftir því hvar þeir búa er mikill. Ef horft er til kjósenda þá eru tengslin lítil. Þetta er eðli kerfisins frekar en vilji stjórnarmanna. Kjósendur og minnihlutaflokkar þurfa að geta haft alvöru áhrif. Í stað bs. kerfis gætu komið samningar um einstök verkefni, ef það er hagkvæmt. Auðvitað geta sveitarfélögin sjálf ákveðið baklandið. Ef ef sveitarfélög eiga sjálf að ráða hvernig baklandið er, þá getur bakland orðið mismunandi eftir sveitarfélagi? Kannski er ekki skynsamlegt að setja þetta í hendur sveitarfélagsins sjálfs? Meirihlutinn hverju sinni vill sennilega aldrei sjá að minnihlutinn komist til neinna áhrifa. Ef þörf er á byggðasamlögum er miklu einfaldara að sameina sveitarfélögin. Byggðasamlög tefja iðulega alla þróun.

    Fylgigögn

  26. Lagt fram að nýju bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dags. 24. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir tilnefningum í skólanefndir framhaldsskóla í Reykjavík, sbr. 8. lið fundargerðar borgarráðs frá 9. september 2021. R21070129
    Samþykkt að tilnefna Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson í skólanefnd Fjölbrautaskólans við Ármúla í stað Elínar Oddný Sigurðardóttur.
    Samþykkt að tilnefna Elínu Oddný Sigurðardóttir sem varamann í skólanefnd Kvennaskólans í Reykjavík í stað Gústavs Adolfs Bergmann Sigurbjörnssonar.

    Fylgigögn

  27. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. september 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um flækjustig í útboðsmálum, sbr. 40. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. ágúst 2021. R21080161

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Svar við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um flækjustig í útboðsmálum er lagt fram. Fram kemur að símenntun og skipuleg fræðsla er í gangi. Eitthvað virðist vanta upp á gæði fræðslunnar því að mislukkuð útboð er tíð og verulegur kostnaður fellur á borgina af þeim sökum. Flokkur fólksins hvetur til að úr því verði bætt.

    Fylgigögn

  28. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 16. september 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um riftingu á samningum vegna forsendubrests eða vanefnda styrkþega, sbr. 57. lið fundargerðar borgarráðs frá 4. mars 2021. R21030045

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um hversu mörgum samningum hefur verið rift sl. 3 ár vegna forsendubrests eða vanefnda af hálfu styrkþega? Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu borgarstjórnar kemur fram að ekki hafi komið til riftunar á samningum vegna styrkja sem veittir eru af borgarráði. Þá hefur engum samningum verið rift vegna styrkja hjá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu né á velferðarsviði. Hjá íþrótta- og tómstundasviði hefur greiðslum verið haldið eftir í nokkrum tilvikum þar sem gögn bárust ekki frá styrkþegum samkvæmt samningi eða voru ekki fullnægjandi og eru 5 aðilar nafngreindir í svarinu. Hins vegar kemur fram að hjá skóla- og frístundasviði eru það 53 aðilar sem fengu styrk en sem ekki skiluðu skýrslu. Engar lokaupplýsingar liggja sem sagt fyrir um hvernig þessi 53 aðilar nýttu styrkina. Má því ekki segja að um sé að ræða tapað fé? Fulltrúi Flokks fólksins telur að bæta þurfi reglur um styrkveitingar enn frekar þannig að meirihluti styrksins sé ekki greiddur fyrr en lokaskýrslu hefur verið skilað.

    Fylgigögn

  29. Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 27. september 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um göngugötu í níu skrefum, sbr. 83. lið fundargerðar borgarráðs frá 15. apríl 2021. R21040125

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér birtist forgangsröðun í fjármálum Reykjavíkurborgar glöggt. Gæluverkefnið Laugavegur í 9 skrefum á að kosta samkvæmt frumkostnaðaráætlun 450 milljónir króna. Þá er ekki talinn með kostnaður við samræmingarhönnuði, hönnunarteymi, arkitekta, landslagsarkitekta, skipulagsfræðinga, lýsingarhönnuði, upplifunarhönnuði, myndlistamenn og listmálara! Í sumar fóru þrjú hönnunarteymi af stað með þrjá búta af Laugaveginum og er sá kostnaður kominn upp í tæpar 20 milljónir og þá er auglýsingakostnaður ekki talinn með. Tekið er sérstaklega fram í svarinu að í framangreindri fjárhæð er ekki gert ráð fyrir veitukostnaði. Við vitum hvað það þýðir – gríðarlegur kostnaður á eftir að falla til sem fellur á Veitur sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur sem er að fullu á ábyrgð Reykjavíkur. Á meðan þessir aðilar leika sér með útsvar okkar Reykvíkinga vegna ákvörðunar borgarstjóra grotna t.d. skólabyggingar borgarinnar niður og ungbarnaleikskólum er dritað niður í bráðabirgðahúsnæði og kofum. Það hljóta allir að sjá að rekstur borgarinnar er í molum og lögbundin þjónusta og grunnþjónusta mæta afgangi. Það er forkastanlegt og ljóst að meirihlutinn er kominn langt út fyrir lögbundið hlutverk sitt samkvæmt sveitarstjórnarlögum.

    Fylgigögn

  30. Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 21. september 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um viðbrögð þegar ekki næst að ráða í stöður í leikskólum og frístundaheimilum, sbr. 48. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. ágúst 2019. R19080151

    Fylgigögn

  31. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. september 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um asbest í húsnæði sem Reykjavíkurborg hefur til sölu í Gufunesi, sbr. 43. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. júlí 2021. R21070159

    Fylgigögn

  32. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. september 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um asbest í húsnæði fyrir listamenn, sbr. 26. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. mars 2021. R21030281

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Því miður þá hefur Reykjavíkurborg borið því við í fjölmiðlum að borginni hafi ekki verið kunnugt um asbest sem fannst í Gufunesi er iðnaðarmenn voru að störfum þar óvarðir og komust í snertingu við asbest og veiktust. Í kjölfarið bannaði Vinnueftirlitið alla vinnu í húsnæðinu. Árið 2003 féll í Héraðsdómi Reykjavíkur dómur þar sem Áburðarverksmiðjan var dæmd til þess að greiða dánarbúi manns bætur eftir að hafa starfað í verksmiðjunni og reyndist vera með asbest í lungum. Þetta er fyrsti dómur sem fellur hér á landi vegna asbestmengunar. Það er því ótrúlegt að Reykjavíkurborg hafi ekki haft vitneskju um það að asbest væri að finna í húsnæðinu í Gufunesi og að ekki sé búið að kortleggja hvar það er að finna eða að ekki sé vilji til þess. Það harma fulltrúar Sjálfstæðisflokks.

    Fylgigögn

  33. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 28. september 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ósk Reykjavíkurborgar um aðgang að Facebook-síðum íbúasamtaka, sbr. 32. lið fundargerðar borgarráðs frá 9. september 2021. R21090075

    Fylgigögn

  34. Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. september 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ráðningar umhverfis- og skipulagssviðs vegna skipulagssvæðis á Ártúnshöfða og Skerjafirði, sbr. 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 9. september 2021. R21090074

    Fylgigögn

  35. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um störf aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks, sbr. 39. lið fundargerðar borgarráðs frá 15. október 2020. Einnig lögð fram umsögn aðgengis- og samráðsnefndar, dags. 21. september 2021. R20100130
    Tillagan er felld.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að gerð verði úttekt á starfi aðgengis- og samráðsnefndar Reykjavíkurborgar, hvernig hún er raunverulega tengd í stjórnkerfinu, hvaða mál berast henni til afgreiðslu og hvaðan. Einnig hvernig mál eru afgreidd í nefndinni og hvaða áhrif þau hafi á áætlanir í borgarkerfinu. Tillagan er lögð fram í ljósi þess að stundum finnst fulltrúa Flokks fólksins sem nefndin hafi mátt berjast af meiri krafti fyrir réttindum þess hóps sem henni er gert að standa vörð um. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir að nefndin sem fær tillöguna til umsagnar geti ekki tekið afstöðu til þess hvort gera skuli úttekt á starfi nefndarinnar. Ekki er hægt að gera úttekt á „sjálfri“ sér. Meirihlutinn í Reykjavík á meirihluta í nefndinni og stýrir þar að leiðandi ferð, beint eða óbeint, leynt og ljóst. Fulltrúi Flokks fólksins myndi vilja sjá skipulag nefndarinnar öðruvísi, að hún sé einungis skipuð fulltrúum hagsmunasamtaka fatlaðs fólks sem sjálfir hafa fjölbreyttar aðgengisþarfir. Nefndin þyrfti að vera frjáls og óháð pólitískum hræringum og fengi álit hennar, bókanir og tillögur þá fullt vægi. Borgarstjórn ætti svo að fylgja tillögum nefndarinnar eftir fremsta megni.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Aðgengis- og samráðsnefnd Reykjavíkurborgar fer með lögbundin verkefni fyrir hönd borgarinnar en hún gegnir hlutverki samráðshóps um málefni fatlaðs fólks. Hún er borgarstjórn, nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um málefni og hagsmuni fatlaðs fólks. Tengsl nefndarinnar við stjórnkerfi borgarinnar er gott eins og kemur fram í umsögn nefndarinnar. Engin ástæða er til að ætla að nefndin sé illa tengd eins og ýjað er að í tillögu flokk fólksins, né að mál sem koma fyrir nefndina séu ekki afgreidd. Þvert á móti hafa störf nefndarinnar gengið vel og allar aðdróttanir um annað eru einungis gerðar í pólitískum tilgangi. Við leggjum því til að tillagan verði felld.

    Fylgigögn

  36. Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 16. september 2021. R21010023

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 7. lið fundargerðarinnar: 

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að gerð verði úttekt á starfi aðgengis- og samráðsnefndar Reykjavíkurborgar og hvernig hún er raunverulega tengd í stjórnkerfinu. Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sem og í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er skýrt kveðið á um samráð við fatlað fólk. Reykjavíkurborg hefur sett á laggirnar sérstaka aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks í Reykjavík sem einblína á einmitt á samráðsþáttinn. Þrátt fyrir belti og axlabönd í þessum efnum kvarta notendur yfir samráðsleysi og ekki síst upplýsingaskorti. Taka má sem dæmi að enn er hópur fólks sem ekki notar tölvur, er ekki með net og nýtir sér því ekki rafrænar lausnir sem reyndar eru ekki margar í Reykjavík enn sem komið er. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að nefndir og ráð sem standa eiga vörð um minnihlutahópa þurfi að stíga enn sterkar fram fyrir réttlæti þeim til handa. Til þess þurfa þær ákveðið sjálfstæði og geta tekið ákvarðanir út frá hagsmunum þess hóps sem standa á vörð um án þess að þurfa að lúta pólitísku meirihlutavaldi hverju sinni.

    Fylgigögn

  37. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 20. og 23. september 2021. R21010018

    Fylgigögn

  38. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 13. september 2021. R21010020

    Fylgigögn

  39. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 16. og 23. september 2021. R21010004

    Fylgigögn

  40. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 14. september 2021. R21010024

    Fylgigögn

  41. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 20. september 2021. R21010026

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 5. lið fundargerðarinnar: 

    Fulltrúi Flokks fólksins í skipulags- og samgönguráði lagði fram tvö mál sem tengjast Úlfarsárdal á fundi ráðsins þann 29. september 2021 Hið fyrra: Tillaga Flokks fólksins að skipulagsyfirvöld gerir skurk með öllum ráðum og dáðum að tekið verði til í Úlfarsárdal. Í kringum Úlfarsársbraut má finna byggingarefni liggja eins og hráviði. Enn berast borgarfulltrúum myndir af óreiðu og drasli, mest byggingarefni við Úlfarsárbraut. Þetta er ekki fallegt og hætta stafar af sumum efnum og aðstæðum. Reykjavíkurborg/skipulagssvið getur varla verið að sinna skyldum sínum í skilmálaeftirliti og eftirfylgni þar sem ástandið er eins slæmt þarna sem raun ber vitni. Hið síðara: Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að skipulagsyfirvöld beiti sér fyrir því með ákveðnari hætti að gera Úlfarsárdal sjálfbært hverfi eins og til stóð að það yrði og lofað var. Í hverfinu eru engar verslanir og hverfið engan vegin sjálfbært. Íbúar verða að aka í Grafarholt eftir allri þjónustu og vistum, nema þá vanti byggingarefni sem hægt er að sækja í Bauhaus. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að skipulagsyfirvöld beiti sér í þessum efnum. Í hverfinu er ekki einu sinni að finna bakarí, ísbúð, kaffihús eða hvað þá veitingastað.

    Fylgigögn

  42. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Háaleitis og Bústaðahverfis frá 23. september 2021. R21010028

    Fylgigögn

  43. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 13. september 2021. R21010030

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 6. lið fundargerðarinnar: 

    Svo virðist sem framkvæmd vegna lausra kennslustofa við Laugalækjaskóla ætli að dragast von úr viti, jafnvel fram yfir áramót. Þessi töf hefur mikil áhrif á skólastarf og hefur sem dæmi þurft að fækka um einn bekk hjá elsta árganginum. Hvað veldur þessari töf er ekki skýrt.

    Fylgigögn

  44. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Vesturbæjar frá 15. september 2021. R21010032

    Fylgigögn

  45. Lögð fram fundargerð ofbeldisvarnarnefndar frá 20. september 2021. R21010021

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir mikilvægi þess að til sé úrræði fyrir gerendur kynferðisbrota. Margir gerendur hafa í síðustu Metoo-bylgju stigið fram og viljað axla ábyrgð á hegðun sinni og samhliða óskað eftir sérfræðiaðstoð. Úrræðið „taktu skrefið“ er þarft og mikilvægt að það fari af stað. Til þess þarf fjármagn til að hægt sé að kynna úrræðið vel og að þróa áfram leiðir til að aðstoða gerendur ofbeldis. Taktu skrefið er hópur sálfræðinga með sérþekkingu á þessu sviði. Þar geta börn, ungmenni og fullorðnir fengið aðstoð. Það sem veldur fulltrúa Flokks fólksins áhyggjum er að þjónustan er ekki gjaldfrjáls. Flest stéttarfélög niðurgreiða þó sálfræðiþjónustu en þó aðeins upp að vissu marki. Strax er því fyrirsjáanlegt að þeir sem berjast í bökkum fjárhagslega munu síður sækja sér aðstoð í þessu úrræði. Ekki allir eru heldur í stéttarfélagi. Margir gerendur upplifa skömm vegna hegðunar sinnar og líður því kannski illa með að sækja um styrki t.d. hjá félagsþjónustu eða þjónustumiðstöðvum þar sem fylla þarf út eyðublöð með ýmsum persónulegum upplýsingum.

    Fylgigögn

  46. Lögð fram fundargerð skipulags- og samgönguráðs frá 29. september 2021. R21010008
    B-hluti fundargerðarinnar er samþykktur.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Til stendur að byggja battavöll á Landakotstúni og það var góð hugmynd. Nú er ekki lengur rætt um battavöll heldur almenningsskrúðgarð. Fulltrúi Flokks fólksins er hugsi yfir hvað hugmyndin um byggingu battavallar hefur blásið út með tilheyrandi kostnaði. Fulltrúi Flokks fólksins vill allt gera fyrir börnin en mestu skiptir að þau hafi fæði, klæði og húsnæði og fái nauðsynlega þjónustu. Á meðan langt er í land með að mæta grunnþörfum þúsunda barna og fjölskyldna þeirra hefði kannski góður battavöllur dugað í þessu tilfelli. Á biðlista eftir m.a. sálfræðiþjónustu og talmeinafræðingum bíða nú 1474 börn. Nú hefur bæst við allt mögulegt annað, allskonar skraut sem kostar sitt þegar allt er talið. Heildarkostnaður er 88 milljónir. Skraut er ekki það sem börn sækja sérstaklega í þegar þau velja sér stað til að leika sér á. Horfa má á torgið, nýgerða í Mjódd, með fínum túlípanasætum. Þar situr aldrei neinn en vissulega gleðja litir og skraut augað.

    Fylgigögn

  47. Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 20. ágúst 2021. R21010012

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar að verið sé að skoða samninga um sjúkraflutninga og ræða þörfina á endurskoðun á mönnun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, m.a. vegna aukins álags í sjúkraflutningum. Kannski þarf að gjörbreyta fyrirkomulaginu þannig að sveitarfélögin losi sig við sjúkraflutningana. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður spurt hvort ekki væri tímabært að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hætti verktöku í sjúkraflutningum til þess að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Reynt var að rökstyðja þetta fyrirkomulag með því að hægt sé að kalla út marga slökkviliðsmenn. Er það ekki rétt að sumir starfsmenn eru sérhæfðir sjúkraflutningamenn? Sérhæfing þarf að vera og taka þarf mið af því. Viðbragð í slökkviþættinum getur verið takmarkað á sama tíma og álag er á sjúkraflutningum, sem getur kostað mannslíf. Þetta eru tvö aðskilin mikilvæg störf og sjúkraflutningamenn eru heilbrigðisstarfsmenn sem þurfa að getað viðhaldið þekkingu sinni. Undir liðnum önnur mál er ítrekað mikilvægi þess að klára ákvörðunartöku um staðsetningu nýrrar slökkvistöðvar í stað Tunguhálsstöðvarinnar í tengslum við uppbyggingu á Arnarnesveginum. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort þetta þýði að loka eigi stöðinni á Tunguhálsi? Lengir það ekki útkallstíma á því svæði sem hún hefur sinnt?

    Fylgigögn

  48. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 17 mál. R21080190

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 16. lið yfirlitsins:

    Fulltrúi Flokks fólksins vill sjá svið og ráð vinna betur og meira saman í borginni. Eiginlega heyrir það til undantekninga ef innbyrðis samvinna eigi sér stað í borgarkerfinu. Með þetta í huga lagði fulltrúi Flokks fólksins fram tillögu um að ráð borgarinnar, bæði í borgarráði, sem er regnhlífarráð og einnig í mannréttinda- nýsköpunar- og lýðræðisráði sem fulltrúi Flokks fólksins á sæti í myndu vinna saman að úttekt á fátækt í Reykjavík. Tillögunni er vísað frá í mannréttindaráði með þeim rökum að ekki mætti setja sambærilega tillögu fram í fleiri en einu ráði. Frávísun er byggð á rökum að „tölvan segir nei“. Tillögunni er ætlað að skoða stöðu fátækra sem er stækkandi hópur á viðkvæmum tímum í kjölfar COVID. Flokkur fólksins hefur áhyggjur af mannréttindaþætti hinna fátæku og þær bágbornu aðstæður sem fátækt fólk býr við. Meirihlutinn þarf að viðurkenna þetta og gera nú nákvæma úttekt sambærilegri og þeirri sem gerð var 2008 en þá skipaði Reykjavík starfshóp um fátækt.

    Fylgigögn

  49. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. R21080191

    Fylgigögn

  50. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja það til að skráð verði í sérstakan gagnagrunn hvar asbest er að finna í þeim byggingum sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. Töluverð þekking er í dag á því hvar asbest er að finna í byggingum sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. Þetta er þekking sem tapast þegar starfsfólk hættir og því er gríðarlega mikilvægt að byrjað sé að skrá það niður á miðlægan stað hvar asbest er að finna. Það er mikilvægt hvort svo það séu leik- eða grunnskólar eða aðrar byggingar sem eru í eigu Reykjavíkurborgar til þess að koma í veg fyrir að einstaklingar komist í snertingu við asbest án þess að vera í viðeigandi hlífðarbúnaði og koma í veg fyrir alvarleg veikindi. R21090276

    Vísað til meðferðar skipulags- og samgönguráðs.

  51. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Reykjavíkurborg hefur tilkynnt að til standi að fara í íbúðauppbyggingu á nokkrum reitum þar sem Festi hf. rekur í dag bensínstöðvar undir merkjum N1 og verslanir undir merkjum Krónunnar. Þetta kemur í kjölfar tillagna sem voru lagðar fram og kynntar 24. júní 2021 í borgarráði. Í fjölmiðlum hefur komið fram að Festi mun selja byggingarréttinn, þar sem þau séu ekki í byggingarbransanum. Fulltrúi sósíalista spyr af hverju byggingarrétturinn er í eigu Festis en ekki Reykjavíkurborgar og útskýringu á því af hverju hann fer ekki til Reykjavíkurborgar í kjölfar þeirra samninga sem voru gerðir. R21090279

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. 

  52. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hver er staðan á tillögu Sósíalistaflokks Íslands um stofnun íbúðafélags Reykjavíkurborgar? Sú tillaga var lögð fram á borgarstjórnarfundi 19. nóvember 2019 og samþykkt var að vísa tillögunni til meðferðar borgarstjóra. R19110179

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar.

  53. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hvernig verður unnið úr tillögu Sósíalistaflokks Íslands um að kanna umfang harkhagkerfisins í Reykjavík? Hver er staðan á vinnslu þeirrar tillögu? Á fundi borgarstjórnar þann 16. júní 2020 var samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar borgarráðs og í bókun meirihluta kom m.a. fram að að tillögunni væri vísað til borgarráðs til að skoða hvernig atvinnustefna borgarinnar geti tekist á því þessar áskoranir og hvernig aðgerðir sem borgin hefur gripið til nýtist þessum hópi. R20060168

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar.

  54. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Félagsbústaðir hafa byggt nýjan íbúðarkjarna við Árland í Fossvogi með nokkrum íbúðum sem er löngu tilbúinn. 
    1.    Hvað kostaði tæmandi talið að byggja þennan íbúðakjarna?
    2.    Hvert var upphaflegt kostnaðarmat samkvæmt kostnaðarmati 1 og 2? 
    3.    Hvers vegna hafa engir skjólstæðingar flutt í íbúðakjarnann?
    4.    Hvað er íbúðakjarninn búinn að standa tómur lengi án íbúa frá því hann var tilbúinn? R21090282

    Vísað til umsagnar Félagsbústaða.

  55. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Landsvirkjun átti á sínum tíma Toppstöðina í Elliðaárdal. Reykjavíkurborg og Landsvirkjun komust að samkomulagi 2008 að húsið yrði rifið á sama tíma og borgin yfirtók þrjár lóðir í Elliðaárdal, þar á meðal þá sem Toppstöðin stendur á. Í deiliskipulagi sem var frá 1994 kom einnig fram að húsið yrði rifið. Mikið er af asbesti í húsinu. Skipt var um skoðun hjá borgaryfirvöldum og nú er stefnan að finna Toppstöðinni hlutverk. 
    1.    Hver er áætlaður núvirtur kostnaður við það að rífa húsið með asbestmengun í?
    2.    Hvað hefur Reykjavíkurborg lagt mikið fjármagn í Toppstöðina tæmandi talið frá upphafi? 
    3.    Hvað er áætlað að Reykjavíkurborg leggi mikið fjármagn í Toppstöðina gangi núverandi hugmyndir um miðstöð fyrir jaðaríþróttir verði að veruleika? R21090281

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.

  56. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Rekstur SORPU bs. og GAJU er í algjörum ólestri og tæknilega er félagið gjaldþrota. Vandamálin hrannast upp og nú hefur GAJU verið lokað til ársins 2022. 
    1.    Hvað hefur SORPA bs. flutt mörg tonn af sorpi/úrgangi úr landi undanfarin 5 ár?
    2.    Hvert er það sent og hver er lokaáfangastaður á leiðarenda? 
    3.    Hvað hefur þessi útflutningur kostað undanfarin 5 ár? 
    4.    Hefur SORPA bs. haft tekjur af útflutningi á sorpi/úrgangi? 
    5.    Hver eru áætluð kolefnisfótspor við þennan útflutning undanfarin 5 ár? R21090297

    Vísað til umsagnar SORPU bs.

  57. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvar kostnaðargreining þriggja möguleika á framtíðarskipulagi skólamála í Laugardal og Laugarneshverfi er stödd og hvenær er að vænta niðurstöðu hennar? Um nokkurra ára skeið hefur verið ljóst að vegna fjölgunar nemenda að farið að þrengja að í skóla- og frístundahúsnæði Laugarnesskóla, Laugarlækjarskóla og Langholtsskóla. Fulltrúi Flokks fólksins hefur spurt um framtíð skólamála í Laugardal og Laugarneshverfi í ljósi þessa. Svar við fyrirspurninni barst á fundi skóla- og frístundaráðs 28. september. Í svari kemur fram að í janúar 2021 var samþykkt að setja af stað starfshóp sem hefði það hlutverk að rýna stöðuna í Laugarnes- og Langholtshverfi með tilliti til úrbóta í húsnæðismálum grunnskóla og frístundastarfs og koma með tillögur um framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í hverfinu. Skóla og frístundasvið stýrði hópnum en umhverfis- og skipulagssvið kom líka að vinnunni. Kostnaðargreining þeirra möguleika sem þóttu vænlegastir átti að hefjast á sumarmánuðum. Fulltrúi Flokks fólksins óskar að fá upplýsingar um hvar kostnaðargreiningin er stödd og hvenær er að vænta niðurstöðu. R21090284

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

  58. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hvert er hlutfall barna í 1.-4. bekk í Reykjavík þar sem notaður er frístundastyrkur þeirra upp í greiðslu fyrir dvöl á frístundaheimili? Hversu mörg af þeim börnum eru börn foreldra sem þiggja fjárhagsaðstoð af einhverju tagi. Hversu mörg af þeim börnum eru af erlendu bergi brotin? Til samanburðar, þá var árið 2018 staðan svona: Haustið 2018 voru 6.298 börn í 1.-4. bekk. Frístundastyrkur var nýttur upp í greiðslu fyrir dvöl 1.503 barna á frístundaheimili eða 23,9% þeirra. Þar af eru 82 börn sem eiga foreldra sem þiggja fjárhagsaðstoð af einhverju tagi og 12 börn foreldra með erlent ríkisfang, en upplýsingar um fjölda barna sem eru af erlendu bergi brotin eru ekki til staðar nema í formi ríkisfangs. Spurt er um hver sé staðan núna þ.e. í september 2021? R21090286

    Vísað til meðferðar menningar- íþrótta- og tómstundaráðs.

  59. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvernig standi á því að þjónustu og nýsköpunarsvið þurfi á svona gríðarlega mikilli erlendri ráðgjöf að halda við að uppfæra nokkra vefi og tölvubúnað og annað því tengdu í borg sem er jafn lítil og Reykjavík, í erlendum samanburði, er? Borgarfulltrúi Flokks fólksins spyr einnig af hverju þarf sviðið að ráða inn fleiri og fleiri verkefnastjóra og sérfræðinga í hvert sinn sem ný verkefni verða til? Hversu margir verkefnastjórar, forritarar, sérfræðingar, notendarannsóknar aðilar og aðrir aðilar sem koma beint að hugmyndavinnu og hönnun, hefur sviðið verið að ráða inn undanfarin 2 ár? R21090289

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs.

  60. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Ekki hefur enn tekist að innleiða nýja skjalavistunarkerfi Reykjavíkurborgar Hlöðuna. Nú eru orðin meira en 2 ár síðan þetta stóra og dýra kerfi var keypt. Í hinum og þessum kynningum þjónustu- og nýsköpunarsviðs þennan tíma hefur Hlöðunni verið lýst með stóryrðum. Í vor réði sviðið inn enn fleiri sérfræðinga sem m.a. áttu sérstaklega að koma að innleiðingunni á þessu kerfi. Þrátt fyrir það virðist ekkert bóla á því að kerfið verði tekið í notkun á næstunni. Spurt er hvort skipulagðar prófanir á þessu kerfi og öðrum kerfum sem komu til greina eftir útboð, hafi átt sér stað innan þjónustu- og nýsköpunarsviðs áður en ákveðið var að kaupa þetta kerfi? Var kerfið e.t.v. ekki fullprófað fyrr en eftir að það var keypt? Hvað kostaði þetta kerfi og hvernig er kaupum á þjónustu við kerfið háttað frá söluaðila ef um slíkt er að ræða? Einnig vill fulltrúi Flokks fólksins vita hversu miklir fjármunir hafa tapast undanfarin tvö ár vegna tafa á innleiðingu? Óskað er eftir að allt sé til tekið t.d. afleiddur kostnaður við vinnu og ráðningar nýs starfsfólks og annarra sérfræðinga sem þjónustu- og nýsköpunarsvið hefur verið að ráða inn eða kaupa vegna þessarar innleiðingar sem og annars kostnaðar sem af þessu hefur leitt. R21090291

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. 

    -    Kl. 12.50 víkur Eyþór Laxdal Arnalds af fundinum. 

Fundi slitið klukkan 12:51

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Heiða Björg Hilmisdóttir

Alexandra Briem Líf Magneudóttir

Hildur Björnsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_3009.pdf