Borgarráð - Fundur nr. 5636

Borgarráð

Ár 2021, fimmtudaginn 16. september, var haldinn 5636. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:06. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Alexandra Briem, Líf Magneudóttir, Eyþór Laxdal Arnalds og Marta Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 894/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Heiða Björg Hilmisdóttir og Valgerður Sigurðardóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram og Ívar Vincent Smárason ásamt Þorsteini Gunnarssyni sem tók sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram minnisblað fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 16. september 2021, um áætlaða lántöku A-hluta árið 2021. R20120178

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Lántaka borgarinnar er gríðarleg, bæði af hálfu borgarsjóðs og í félögum borgarinnar sem mörg taka lán með ábyrgð borgarinnar. Gert er ráð fyrir því að borgarsjóður taki meira en tvo milljarða að láni í hverjum mánuði, þrátt fyrir að fjárfrek verkefni hafi tafist. Að óbreyttu munu skuldir samstæðu borgarinnar fara yfir 400 milljarða á næstunni.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að draga eigi aðeins úr skuldasöfnun og að við vinnslu á útkomuspá ársins vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 þá lítur út fyrir að lántaka borgarsjóðs verði ekki eins mikil og áætlað var. Fulltrúi Flokks fólksins hefur gagnrýnt harðlega 10 milljarða innspýtingu í stafræna umbreytingu á þremur árum og þá helst að ekki er verið að fara vel með þessa fjármuni eins og fulltrúi Flokks fólksins hefur bent á með dæmum. Þegar COVID reið yfir átti að endurskoða þessa ákvörðun og umfram allt á þjónustu- og nýsköpunarsvið að leita hagkvæmustu leiða en ekki eyða fé í að finna upp hjól sem löngu hefur verið fundið upp. Fleiri, s.s. fjölmiðlar, eru sem betur fer farnir að fjalla um málið og þess er vænst að gerð verði úttekt af innri endurskoðanda á fjárreiðum þjónustu- og nýsköpunarsviðs innan tíðar. Enginn er hér að mótmæla að stafrænum lausnum þarf að fjölga. Finna má frábærar stafrænar lausnir hjá upplýsingatæknifyrirtækjum og öðrum fyrirtækjum. Hagkvæmast væri að tengja sig við þá sem nú njóta stafrænna afurða, eru komnir lengra eins og verkefnið Stafrænt Ísland sem er umfangsmeira, þróaðra og virkar vel og bíður auk þess sveitarfélögum að stíga um borð.

    Helga Benediktsdóttir og Óli Jón Hertervig taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 13. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðbótarsamning við leigusamning vegna Álfabakka 10 um viðbótarhúsnæði fyrir velferðarsvið, ásamt fylgiskjölum. R19030069
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Enn blæs báknið út. Skrifborðum og stólum fjölgar og fjölgar. Minnt er á að um síðustu áramót var búið að ráða um 1.100 nýja starfsmenn hjá Reykjavíkurborg. Á meðan er ekki hægt að halda úti sem dæmi eðlilegri leikskólaþjónustu.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    -    Kl. 9:57 tekur Pétur Ólafsson sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um langtímasýn sóttvarnaraðgerða vegna COVID-19. R20030002

    Þórólfur Guðnason tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. Einnig taka sæti borgarfulltrúarnir Baldur Borgþórsson, Diljá Ámundadóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir, Ellen Jacqueline Calmon, Jórunn Pála Jónasdóttir, Rannveig Ernudóttir, Sabine Leskopf og Örn Þórðarson ásamt fulltrúum í neyðarstjórn Reykjavíkurborgar; Óskari Sandholt, Önnu Kristinsdóttur, Árnýju Sigurðardóttur, Dagnýju Ingadóttur, Huld Ingimarsdóttur, Lóu Birnu Birgisdóttur, Jóni Viðari Matthíassyni og Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur. Einnig tók Svanborg Sigmarsdóttir sæti á fundinum.

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 14. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti að lóðarvilyrði að lóðinni að Álfabakka 2a-2d, ásamt fylgiskjölum. R21020117
    Samþykkt.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 13. september 2021, varðandi ársfjórðungsskýrslu borgarvaktar í velferðar- og atvinnumálum fyrir apríl til júní 2021, ásamt fylgiskjölum. R20060197

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er lögð fram samantekt borgarvaktarinnar sem borgarráð samþykkti að setja á fót til að vakta afleiðingar faraldursins á aðstæður borgarbúa í velferðar- og atvinnumálum. Afleiðingar COVID eru margvíslegar og mikilvægt að Reykjavíkurborg vinni að því að styrkja alla verndandi þætti og tækifæri til heilsueflandi lífs fyrir borgarbúa alla og sú vinna er sannarlega í gangi.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fram kemur í kynningu að uppsöfnuð vannýting frístundakorts er um 450 m.kr. Fulltrúi Flokks fólksins vill að þessi upphæð verði færð yfir á næsta ár og styrkir þá bæði hækkaðir og reglur rýmkaðar. Fulltrúi Flokks fólksins var með tillögu um að vannýttar fjárhæðir frístundakortsins 2020 vegna COVID myndu færast yfir á þetta ár en sú tillaga var felld í lok árs 2020. Búið er að eyrnamerkja ákveðið fjármagn í frístundakortsstyrki og ef það er af einhverjum ástæðum ekki fullnýtt væri eðlilegt að afgangurinn flyttist yfir á næsta ár og það notað til að gera betur fyrir börnin. Þetta er sérstaklega brýnt núna eftir innilokanir og takmarkanir vegna COVID. Frístundakortið er sérstaklega ætlað til að auka jöfnuð og fjölbreytileika tómstundastarfs en hefur aldrei verið fullnýtt. Á COVID tíma var það eðli málsins samkvæmt ekki fullnýtt. Tilgangur þess, eins og segir í 2. gr. í reglum um frístundakort, er að öll börn, 6-18 ára, í Reykjavík geti tekið þátt í frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Reglur um frístundakort eru enn of stífar þótt þær hafi verið rýmkaðar aðeins. Þær þarf að rýmka enn meira, þannig að hægt sé að nota styrkinn á öll námskeið á vegum Reykjavíkurborgar.

    Svavar Jósefsson og Hlynur Hallgrímsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 13. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir vegna uppbyggingar í Gufunesi. Kostnaðaráætlun 2 er 60 m.kr. R21090102
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 13. september 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við gerð nýrrar aðkomu að lóð Furugerðis 23. Kostnaðaráætlun 2 er 30 m.kr. R21090103
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. 

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu með borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. 

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  8. Fram fer umræða um Listaháskóla Íslands í Tollhúsinu. R21080157

  9. Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 30. ágúst 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um áætlanir þjónustu- og nýsköpunarsviðs að stafrænni umbreytingu lokinni, sbr. 42. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. ágúst 2021.  R21080163

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um hvað þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar ætli að gera þegar það verður búið að eyða tíu þúsund milljónum af útsvarspeningum borgarbúa að 2 árum liðnum. Fulltrúi Flokks fólksins hefur í marga mánuði gagnrýnt harðlega þjónustu- og nýsköpunarsvið með borgarmeirihlutann að bakhjarli fyrir að vera að byggja upp sitt eigið hug-búnaðarfyrirtæki. Meirihlutinn samþykkti að setja tíu milljarða í netþróun á 3 árum og hefur nú ráðið um 60 sérfræðinga. Enginn mótmælir því að stafrænar lausnir eru framtíðin og mun létta og einfalda fjölda ferla. Allar þessar stafrænu lausnir má finna hjá flestum upplýsingatæknifyrirtækjum hér á landi sem geta leyst þau verk-efni sem borgin hyggst nú vinna frá grunni. Fulltrúi Flokks fólksins gagnrýnir hvernig farið er með fé borgarbúa á sviðinu og hefur rökstutt það m.a. í fjölda bókana. Hagkvæmast væri að tengja sig við þá sem nú njóta stafrænna afurða, eru komnir lengra eins og verkefnið Stafrænt Ísland sem er umfangsmeira, þróaðra og virkar vel. Þar eru verkefni boðin út en verkefnastjórn sér um utanumhald. Aðferðafræði og ferlar þjónustu- og nýsköpunarsviðs standast ekki skoðun og hefur fulltrúi Flokks fólksins leitað til innri endurskoðanda með beiðni um úttekt.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 30. ágúst 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fjölda og afköst stafrænna leiðtoga, sbr. 41. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. ágúst 2021. R21080162

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í svari koma fram ýmis atriði sem vert er að skoða. Enn og aftur er hamrað á fjórðu iðnbyltingunni og talað um auknar kröfur borgarbúa um rafræna þjónustu. Rafrænar lausnir eru mikilvægar en fulltrúi Flokks Fólksins minnist þess ekki að hafa séð borgarbúa heimta að meirihlutinn ausi tíu þúsund milljónum af útsvarspeningum þeirra næstu þrjú ár í hugmyndavinnu og þróun stafrænna lausna sem nú þegar eru til. Stærstu mistök þessa meirihluta, með þjónustu- og nýsköpunarsvið sem leiðbeinanda um stafræna umbreytingu, er að ímynda sér að rjúka þurfi upp til handa og fóta líkt og mannslíf liggi við, að hraða þessu eins og kostur er á meðan fólk, þ.m.t. stór hópur barna, bíður eftir grunnaðstoð, s.s. sálfræðiþjónustu sem sveitarfélagi er skylt að veita. Stafræn umbreyting er vissulega þróunarverkefni sem nú þegar hefur verið skapað og er komið í virkni hvert sem litið er. Notendur rafrænnar þjónustu í Reykjavík eru ekkert frábrugðnir öðrum notendum og heimta hvorki meira né minna en aðrir í þeim efnum. Opinber stafræn þjónusta er í grunninn mjög áþekk á milli borga og bæja. Þess vegna má spyrja hvort hlutverk sem dæmi Gróðurhússins, sem verkefnis, sé ekki óþarft. Þangað hafa milljónir streymt undanfarin þrjú ár.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 13. september 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnað vegna könnunar um framtíð Reykjavíkurborgar, sbr. 68. lið fundargerðar borgarráðs þann 20. maí 2021. R21050229

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um hvað þessi könnun um framtíð Reykjavíkurborgar kostaði borgarsjóð. Í þetta fóru 58.000 kr. Hverjum gagnast þessar upplýsingar í þeim mæli að það væri þess virði að borga fyrir þetta 58.000 kr.? Nú bíða 1448 börn þess að fá þjónustu fagaðila hjá skólaþjónustu. Laun tveggja sálfræðinga og eins talmeinafræðings myndu kosta 40,5 m.kr. á ári. Með aukningu þriggja stöðugilda tímabundið væri hægt að grynnka verulega á biðlistanum. Eru þarfir barna eftir fagþjónustu ekki mikilvægari en að finna út hvernig Reykjavík lítur út eftir 15 ár og greiða fyrir það 58.000 kr. auk vinnu starfsmanna atvinnuþróunarteymis á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara? Þar að auki var keypt vinna af Deloitte, en sá kostnaður er ekki gefinn upp í svarinu.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 18. ágúst 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins varðandi biðtíma í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, sbr. 70. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. maí 2021. R21050231

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Svar hefur borist frá þjónustu- og nýsköpunarsviði um meðallengd biðtíma eftir svörun þjónustuvers og um fjölda símtala á dag. Meðaltími símaborðs er um 1,4 mínútur. Fulltrúi Flokks fólksins telur að það hljóti þó að vera þannig að stundum sé svarað strax og dregur það þá niður meðalbiðtíma. Sumir bíða kannski í fáar sekúndur og aðrir kannski í tíu mínútur allt eftir hvað álagið er mikið. Fram kemur að ekki öllum innhringingum er svarað eða hátt í 10%. Þetta tölfræðiuppgjör sýnir að margir þurfa að bíða lengi, jafnvel í allmargar mínútur. Að bíða í margar mínútur veldur vonbrigðum og pirringi sem fulltrúi Flokks fólksins heyrir af. Þá kemur einnig fram að 50 tölvupóstar berist daglega og 34 koma í netspjall. Hvernig væri að þjónustu- og nýsköpunarsvið myndi kynna sér snjallmennið „Vinný“ hjá Vinnumálastofnun? Vinný er búin að sanna sig og skoða má sambærilega innleiðingu til að bæta og auka þjónustu í Reykjavík hratt og vel! Fulltrúi Flokks fólksins vill sjá svörun þannig að biðtími sé vel innan við 45 sekúndur eftir að heyra rödd starfsmanns. Netspjallið mætti vera mikið öflugra og í gegnum það fengi fólk afgreiðslu á erindum frá öllum sviðum, erindum sem hægt er að afgreiða í gegnum rafrænar lausnir.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 6. september 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um stýribúnað umferðarljósa og úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 32/2019, sbr. 31. lið fundargerðar frá 21. janúar 2021. R19100308

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er alrangt að halda því fram að um „framhaldsinnkaup“ hafi verið um að ræða á miðlægri stýritölvu umferðarljósa (MSU). Þau innkaup voru ný innkaup og ný ákvörðun eins og segir í úrskurði kærunefndar útboðsmála. Eins og segir í svari nr. 6, „Samningur um þjónustu við þann búnað sem keyptur var í kjölfar útboðsins frá 2005 rann sitt skeið árið 2010 en var endurnýjaður árið 2017.“ Reykjavíkurborg fór í útboð sem fela í sér gríðarlegar samkeppnishindranir því útboðið var háð því skilyrði að búnaðurinn yrði tengdur hinni nýkeyptu stýritölvu sem dæmd voru ólögleg innkaup. Tæpur milljarður hefur farið í ljósastýringar á 15 árum. Það eru óheyrilegar upphæðir þegar litið er þeirra markmiða sem ljósastýringar eiga að fela í sér að greiða úr umferð því reyndin hefur orðið önnur því umferðarflæðið hefur skrúfast niður á höfuðborgarsvæðinu. Rétt er að minna á að Reykjavíkurborg hefur stefnt fyrir dóm samkeppnisaðila þess fyrirtækis sem útboðin eru sérsniðin að og staðfestir þar með að samkeppnishindranir eru viðurkennd sjónarmið í ljósastýringarmálum á höfuðborgarsvæðinu.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 13. september 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um heildarkostnað við stefnumótun stýrihópa á kjörtímabilinu, sbr. 27. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. ágúst 2021. R21080061

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Nú þegar er aðkeypt vinna og kostnaður vegna stefnumótunar stýrihópa komin í 43 milljónir á kjörtímabilinu. Þá er ótalinn kostnaður vegna starfsmanna borgarinnar sjálfrar en sá kostnaður er verulegur. Hann er til viðbótar. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Birtur er heildarkostnaður við stefnumótun stýrihópa á kjörtímabilinu. Samtals er kostnaður vegna 10 stýrihópa 43.386.430. Eftir því er tekið að verkefnið „2. áfangi tilraunaverkefnis um styttingu vinnudags án launaskerðingar“ sem mátti ekki kosta krónu kostaði tæpar 11 milljónir, laun til Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri og Félagsvísindastofnunar (rannsókn og skýrsla).

    Fylgigögn

  15. Fram fer umræða um fyrirkomulag funda borgarráðs í næstu viku vegna alþingiskosninga 2021. R21010081

  16. Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 2. september 25. september 2021. R21010023

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 5. lið fundargerðarinnar:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að sjá þennan lið á dagskrá nefndarinnar. Um er að ræða tillögu áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að gerð verði úttekt á starfi aðgengis- og samráðsnefndar Reykjavíkurborgar, hvernig hún er raunverulega tengd í stjórnkerfinu, hvaða mál berast henni til afgreiðslu og hvaðan. Einnig hvernig mál eru afgreidd í nefndinni, hvert og hvaða áhrif þau hafi á áætlanir í borgarkerfinu. Fulltrúi Flokks fólksins er ekki með þessari tillögu að segja að nefndin leggi sig ekki fram. Engu að síður finnst fulltrúa Flokks fólksins hún geti gert betur, barist af meiri elju og krafti fyrir bættum réttindum þess hóps sem hún á að standa vörð um. Nefna má mál eins og af hverju verðskráin og þjónustan sé ekki sambærileg hjá Strætó og hjá akstursþjónustunni og mörg fleiri sanngirnismál. Skemmst að vitna í nýútkomna skýrslu um fátækt og bága stöðu öryrkja sem birt var í vikunni. 80 prósent fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman og jafnhátt hlutfall þeirra þarf að neita sér um heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. 60 prósent geta ekki mætt óvæntum útgjöldum og meira en einn af hverjum tíu þiggur mataraðstoð frá hjálparsamtökum. Um hverja krónu munar hjá þessum hópi.

    Fylgigögn

  17. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Breiðholts frá 6. september 2021. R21010025

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar:

    Fulltrúi Flokks fólksins vekur athygli á því að undir lið þrjú um málefni hverfisins var tekin umræða um mögulega breikkun Breiðholtsbrautar vegna mikilla umferðarþyngsla þar um á álagstímum. Fulltrúinn hafði óskað eftir umræðunni en hefði kosið að málið hefði verið rætt undir sérstökum dagskrárlið. Bæði auðveldar það íbúum að taka þátt í umræðunni og þar með gagnsæi í stjórnkerfinu. Fulltrúinn telur mikilvægt að þessi ábending um þörf á tvöföldun verði tekin til skoðunar sem fyrst í borgarkerfinu.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Kjalarness frá 9. september 2021. R21010029

    Fylgigögn

  19. Lagðar fram fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 26. og 30. ágúst 2021. R21010013

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Starfsmenn SORPU höfðu snör handtök þegar myglugró greindist í GAJU í ágúst Hafist var tafarlaust handa við að stemma stigu við útbreiðslunni og tryggja öryggi starfsfólks. Á meðan var fullvinnsla á lífefnum stöðvuð tímabundið en önnur starfsemi stöðvarinnar heldur áfram. Stjórnin fékk kynningu á viðfangsefninu 10. september og fól þá framkvæmdastjóra að fá óháða sérfræðinga til að gera ítarlega úttekt á umfangi vandans og leggja fram tillögur til úrbóta. Sú vinna stendur nú yfir og verða fulltrúar sveitarfélaganna upplýstir þegar niðurstöður liggja fyrir. Það er ekki rétt sem haldið er fram af nokkrum borgarfulltrúum að uppbygging gas- og jarðgerðarstöðvarinnar hafi verið mistök og að hún sinni ekki því sem henni var ætlað. Hins vegar er það rétt að til þess að GAJA geti framleitt nothæfa moltu þá þurfa efnisstraumarnir að vera hreinir. Moltan stenst þá þær kröfur sem gerðar eru til hennar. GAJA er liður í því að innleiða hringrásarhagkerfið og hætta urðun á lífrænum úrgangi sem getur skilað allt að 90.000 tonna samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Það er miður að borgarfulltrúar sem ættu að vera vel upplýstir um þau brýnu viðfangsefni sem steðja að heiminum öllum vegna loftslagsbreytinga finni GAJU allt til foráttu og tali hana ítrekað niður.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun: 

    GAJA átti að virka frá upphafi, en reyndin hefur verið önnur. GAJA fór langt fram úr fjárhagsáætlun, en hefur enn ekki getað framleitt þá moltu sem stefnt var að. Moltan hefur verið menguð plasti og þungmálmum og ljóst að flokkun með blásara hefur gjörsamlega misheppnast. Nú hefur komið í ljós mygla í húsinu sjálfu og hefur starfsemi verið stöðvuð vegna þessara nýjustu frétta. Fjölmörg mistök hafa verið gerð frá upphafi þessa verkefnis. Þrátt fyrir að Gas- og jarðgerðarstöðin hafi enn ekki getað framleitt nothæfa moltu, hefur tilurð hennar leitt til stórfelldra gjaldskrárhækkana sem lent hefur á versta tíma á heimilum og fyrirtækjum. SORPA og GAJA eru í meirihlutaeigu Reykjavíkurborgar. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun: 

    Það er eðlilegt að þegar ráðist er í umbreytingar á úrgangsstjórnun og brautryðjendastarf þá þurfi að sníða af nokkra vankanta. GAJA er enn í tilraunafasa og er ekki komin í full afköst. Það er eðlilegt að gefa henni reynslutíma áður en hún er afskrifuð með þeim hætti sem Sjálfstæðisflokkurinn gerir. Framleiðsla á nothæfri moltu er háð sérsöfnun. Það verkefni er þegar farið af stað á höfuðborgarsvæðinu. Það er rangt að uppbygging GAJU hafi hækkað gjaldskrár. SORPA verður lögum samkvæmt að innheimta raunkostnað af meðhöndlun úrgangs og taka gjaldskrár mið af því bæði til hækkunar og lækkunar á einstaka gjaldskrárliðum.  

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun: 

    Þann 2. maí 2018 eða rétt fyrir síðustu kosningar sendi SORPA frá sér eftirfarandi tilkynningu: „Kári blæs plasti eins og vindurinn. Sömu kraftar og valda plastmengun í umhverfinu hjálpa okkur nú að ná plasti frá almennum úrgangi og koma til endurvinnslu – þ.e.a.s. vindurinn. Kári vindflokkari í móttökustöðinni hefur verið að störfum því í byrjun mars og blæs pokum með plasti frá heimilisúrgangi íbúa í fjórum sveitarfélögum, á Seltjarnarnesi, í Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ.“ Ennfremur er sagt: „Gert er ráð fyrir að ljúka uppsetningu vinnslulínunnar í kringum 20. maí og taka þá við prófanir á búnaði. Gera má ráð fyrir að vinnslulínan, að Kára meðtöldum, verði komin í fulla virkni fyrri hluta júní.“ Ekki er hægt að skilja þessa tilkynningu SORPU á annan hátt en þann að vindblásarinn „Kári“ ætti að sinna því að flokka plast frá almennum úrgangi. GAJA átti að leysa urðun sorps af hólmi. Gert var sérstakt samkomulag milli Reykjavíkurborgar og Mosfellsbæjar um að urðun yrði hætt árið 2017. Það hefur svo sannarlega ekki gengið eftir. Framúrkeyrsla GAJU hefur leitt til þess að SORPA þurfti sérstaka neyðaraðstoð. Gríðarleg gjaldskrárhækkun er bein afleiðing af því. Hér eiga orð Galíleós við, „Hún snýst nú samt, jörðin.“ 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Athygli vekur að ekkert er fjallað um í fundargerðunum um myglu sem hefur komið upp í burðarvirki GAJA en upplýsingar um hana lágu fyrir í ágúst sl. Á síðasta borgarstjórnarfundi fór fram ítarleg umræða um málefni SORPU en þar var þetta ekkert nefnt þrátt fyrir að meirihlutinn í Reykjavík hafi skipað stjórnarformann SORPU bs.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Enn eitt reiðarslagið fyrir útsvarsgreiðendur höfuðborgarsvæðisins. GAJA er löngu búin að breytast í martröð. Nú er komin mygla upp í stöðinni ofan á allt annað. Ekkert hefur gengið upp þegar kemur að uppbyggingu og starfsemi hennar. Formaður stjórnar SORPU yppir öxlum og hefur ekkert um málið að segja og fer með ósannindi í útvarpsviðtölum eins og t.d. það að aldrei hafi staðið til að selja moltu og metangas. Atburðarásinni er breytt eftir hvern skandalinn á fætur öðrum í þeirri von að fólk hafi gleymt fortíðinni. Svo er ekki raunin og nú þarf stjórnarformaðurinn að axla ábyrgð.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar frá 26. ágúst:

    Ekki er ein báran stök þegar kemur að GAJU, gas- og jarðgerðarstöð SORPU í Álfsnesi. Nú er mygla komin upp í þaki og burðarvirki GAJU og hefur jarðgerð verið stöðvuð af þeim sökum. Framkvæmdastjóri segir tjónið líklega hlaupa á tugum milljóna króna. Myglan hreiðraði um sig í límtré sem notað var í burðarvirkið. Stöðin opnaði í fyrra vor og nam kostnaður við bygginguna sex milljörðum króna. Óhætt er að álykta sem svo að ákvörðun um GAJU hafi verið óheillaskref ef horft er til alls þess sem gengið hefur á í sambandi við verkefnið. Nú virðist sem mistökin liggi hjá „færustu“ verkfræðistofum landsins sem hönnuðu bygginguna. Má ekki spyrja hver átti að hafa eftirlit með framkvæmdinni? Í ljós hefur komið, eftir á, að burðarbitarnir eru úr límtré og segir framkvæmdastjórinn að það sé víst aldrei notað í starfsemi sem þessari. Tjónið er mikið en þó sagt minna en á horfðist því moltan er hvort eð er ónothæf. Metið er að tjónið hlaupi á einhverjum tugum milljóna. Nei, það er ekki ein báran stök þegar kemur að málefnum SORPU.

    Fylgigögn

  20. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 3. september 2021. R21010017

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Í fjárhagsætlun meirihlutans var gert ráð fyrir því að ríkið kæmi með viðbótarframlög inn í Strætó sem engin vissa var fyrir. Nú er komið á daginn að ríkið mun ekki koma með frekari fjármuni inn í fyrirtækið vegna síðasta rekstrarárs og þarf því Strætó að taka lán fyrir rekstrarreikningi að fjárhæð 400 milljóna kr. en borgin gengst í ábyrgð á láninu og veitir veð í framtíðar útsvarstekjum hennar.

    Fylgigögn

  21. Lögð fram fundargerð öldungaráðs frá 6. september 2021. R21010022

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar:

    Flokki fólksins finnst að fjalla þurfi meira um fjármögnun í umsögn um stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða. Tryggja þarf að þeir sem ekki geta dvalið heima þrátt fyrir víðtæka heimaþjónustu og heimahjúkrun fái pláss á hjúkrunarheimilum. Einnig er mikilvægt að efla heimastuðning því ef þjónustuþáttum væri fjölgað og aðrir dýpkaðir myndu fleiri geta búið lengur heima. Horfa þarf til fleiri úrræða og fjölbreyttari, t.d. sveigjanlegrar dagdvalar sem millilið. Það er vilji flestra að vera sem lengst heima og er það hagkvæmt fyrir þjóðfélagið. Þess vegna er það ekki skynsamlegt að stefna um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða setji markmið um að aðeins 15% 80 ára og eldri dvelji í hjúkrunarrýmum þegar raunin er sú að í dag skortir yfir hundrað hjúkrunarrými þrátt fyrir að hjúkrunarrými séu til staðar fyrir 21,4% fólks 80 ára og eldri. Hér munar of miklu á raunverulegri þörf og markmiði sem sett er. Þeir sem þurfa pláss verða að fá pláss í stað þess að þurfa að vera á Landspítala vikum eða mánuðum saman vegna þess að ekkert annað úrræði er til. Umfram allt má ekki setja öll eggin í eina körfu. Fleiri tegundir úrræða þyrftu að vera til staðar í samræmi við aldursþróun þjóðarinnar.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 12 mál. R21080190

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 5. lið yfirlitsins:

    Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu aldraðra. Birtar eru umsagnir Reykjavíkurborgar. Flokkur fólksins hefur barist fyrir þessum málaflokki bæði á þingi og í borg. Flokkur fólksins vill jafnrétti og mannréttindi fyrir þennan hóp sem dæmi að skerðingar verði afnumdar á atvinnutekjum eldra fólks. Stefna í málefnum aldraðra þarf að taka mið af þessum veruleika. Innan þessa hóps fyrirfinnst einnig ofbeldi eins og í öðrum hópum. Markvisst þarf að draga úr kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Það er skylda stjórnvalda að vinna gegn ofbeldi. Það hefur reynst erfitt að meta umfang ofbeldis í garð aldraðra af ýmsum ástæðum. Sumt eldra fólk vill ekki tala um ofbeldi vegna ríkjandi fordóma. Ekki er heldur víst að eldra fólk viti af mögulegri aðstoð, s.s. að hægt sé að hafa samband við Kvennaathvarfið og Stígamót.

    Fylgigögn

  23. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. R21080191

    Fylgigögn

  24. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Nú eru liðin þrjú ár síðan ákveðið var að kaupa 25 smáhýsi í borgarráði. Hvað eru margir íbúar í smáhýsunum nú í september 2021? R21090138

    Vísað til umsagnar velferðarsviðs.

  25. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hvers vegna hefur ekki verið gerð könnun á fjölda utangarðsfólks í borginni eins og gert var síðast árið 2017? Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram tillögu um slíka könnun á fundi borgarstjórnar 16. mars 2021 sem var samþykkt og vísað til meðferðar velferðarráðs. Nú er liðið hálft ár frá því þetta var samþykkt í borgarstjórn. R21090139

    Vísað til umsagnar velferðarsviðs.

  26. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Óskað er upplýsinga um hver ástæðan er fyrir því að Esjuskáli á Kjalarnesi geti ekki tengst ljósleiðara. Esjuskáli er eina verslunin á Kjalarnesi og sinnir mikilvægri nærþjónustu bæði fyrir Grundarhverfi og dreifbýlið á Kjalarnesi en lélegt netsamband kemur niður á starfseminni sem þarf að hafa aðgengi að háhraðaneti fyrir greiðslukerfi sín. R21090140

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.

  27. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Í svari við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks um heildarkostnað við stefnumótum stýrihópa kom aðeins fram aðkeypt vinna en ekki vinna starfsmanna borgarinnar sem sýnir ekki hver er raunverulegur heildarkostnaður við þessa vinnu. Til að sjá heildarkostnað er nauðsynlegt að sjá kostnað við vinnuframlag starfsmanna borgarinnar og er því óskað eftir að hann verði lagður fram. R21080061

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

    -    Kl. 11:10 víkur Vigdís Hauksdóttir af fundinum.

Fundi slitið klukkan 11:28

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Heiða Björg Hilmisdóttir

Alexandra Briem Líf Magneudóttir

Marta Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_1609.pdf