Borgarráð - Fundur nr. 5632

Borgarráð

Ár 2021, fimmtudaginn 12. ágúst, var haldinn 5632. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:04. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir, Eyþór Laxdal Arnalds og Marta Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 894/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Dóra Björt Guðjónsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þorsteinn Gunnarsson og Ívar Vincent Smárason. Pétur Ólafsson tók sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga formanns borgarráðs, dags. 9. ágúst 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki, samkvæmt þeim heimildum sem ráðið fer með í sumarleyfi borgarstjórnar, tímabundin frávik frá skilyrðum ákvæða 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga með vísan til auglýsingar um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 894/2021, skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Til og með 1. október 2021 verður heimilt að nota fjarfundarbúnað á fundum borgarstjórnar, borgarráðs og fagráða samkvæmt B-lið 63. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og annarra nefnda samkvæmt B-lið 64. gr. samþykktarinnar, eftir því sem við á. Notkun fjarfundarbúnaðar skal að jafnaði vera í samræmi við ákvæði í leiðbeiningum um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna nr. 1140/2013 og verklagsreglum Reykjavíkurborgar um fjarfundi, þó þannig að meirihluti fundarmanna þarf ekki að vera á boðuðum fundarstað sbr. ákvæði 5. gr. leiðbeininganna. Fundargerð borgarstjórnar verður áfram staðfest og yfirfarin af forseta borgarstjórnar, varaforsetum og/eða skrifurum, sbr. ákvæði 8. gr. leiðbeininganna. Gert verður ráð fyrir að áfram verði boðið upp á að kjörnir fulltrúar geti tekið sæti á fundum ráða og nefnda í fjarfundi á meðan fjöldatakmarkanir, grímuskylda og reglur um nálægðarmörk eru í gildi.

    Greinargerð fylgir tillögunni. R18060129
    Samþykkt.

    -    Kl. 9:08 tekur Ebba Schram sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga staðgengils borgarstjóra, dags. 12. ágúst 2021: 

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 700 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 4,03%, í óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 35 1, sem eru 579 m.kr. að markaðsvirði og tilboð að nafnvirði 990 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 0,88%, í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 32 1, en það eru 982 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 11. ágúst 2021.

    Trúnaðarmerkt greinargerð fylgir tillögunni. R20120178
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að auka skuldir borgarinnar enn og aftur. Hér um að ræða tæpa tvo milljarða að nafnvirði til viðbótar. Athygli vekur að borgin sækir í vaxandi mæli í styttri lán og er meðalbinditími skuldabréfa kominn í 9,1 ár, en var 10,5 ár í lok síðasta árs. Endurfjármögnunarþörf borgarinnar vex því að krónutölu og færist nær í tíma, en slíkt eykur áhættu borgarinnar.

    Halldóra Káradóttir og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    -    Kl. 9:29 tekur Dóra Björt Guðjónsdóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 6. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki leigusamning vegna skrifstofuhúsnæðis að Guðrúnartúni 1, ásamt fylgiskjölum. R21080022
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Nýlega voru eftirlitsaðilar Reykjavíkur sameinaðir í eina óháða og öfluga eftirlitseiningu sem ber nú heitið innri endurskoðun og ráðgjöf. Með þessu fyrirkomulagi nýtast innviðir borgarinnar betur og hægt er að tryggja að brýn verkefni nái fram að ganga með öruggum hætti hvort sem það eru verkefni umboðsmanns borgarbúa, innri endurskoðanda eða á vettvangi persónuverndar. Breytingin snýst um að auka réttaröryggi borgarbúa og styðja við aðhald og eftirlit. Til að ná að fullu markmiðum sameiningar og aukinni samlegð þarf starfsemin að vera sameinuð á sama stað og því er verið að taka þetta rými á leigu undir starfsemina. Vissulega felst í þessu viss kostnaðarauki en sameiningin hefur líka skilað sparnaði og mun skila sér í betri þjónustu við borgarbúa fyrst og fremst sem er mikils virði.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Sameining innri endurskoðunar ætti að leiða til hagræðingar en hér er verið að leigja húsnæði fyrir 9 milljónir króna á ári sem eykur kostnað. Þetta er gert þrátt fyrir að borgin eigi mikið skrifstofuhúsnæði og sé með umtalsvert leiguhúsnæði fyrir.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Báknið þenst og þenst út. Nú er verið að taka á leigu tæplega 400 fermetra húsnæði fyrir tæpa 1 milljón á mánuði fyrir innri endurskoðun, persónuverndarfulltrúa og umboðsmann borgarbúa. Peningasukkið og sóunin er gríðarleg í rekstri borgarinnar. Þetta þýðir nýjar 12 milljónir í útgjöld á ári því borgin situr uppi með Tjarnargötuna. Starfsmönnum Reykjavíkur hefur fjölgað um rúmlega 1.000 manns það sem af er af kjörtímabilinu. Reykjavíkurborg hefur yfir að ráða gríðarlega miklu húsnæði en sífellt er verið að taka nýtt og nýtt húsnæði á leigu fyrir skrifborð og stóla en hvergi bætt við grunnþjónustuna. Rökin með því að taka þetta húsnæði á leigu er að færa starfsemina á eitt gólf í stað þess að vera á þremur ólíkum stöðum á 1. og 3. hæð í Tjarnargötu 12 og í Ráðhúsi. Hér er verið að uppfylla kröfur sem flokka má sem lúxusvandamál.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Meirihlutinn óskar eftir að borgarráð samþykki að leigja Guðrúnartún 1 fyrir innri endurskoðun Reykjavíkurborgar m.a. til að skrifstofan geti verið öll á einni hæð. Skrifstofan er nú í Tjarnargötu þar sem leigan er 8.854.000 kr. á ári. Í nýju húsnæði í Guðrúnartúni er leigan 12 milljónir á ári. Vissulega er þægilegt að starfsemin færist á eitt gólf en spyrja má hvort þessi þægindi séu ekki dýru verði keypt. Um er að ræða fimm milljóna króna mismun á leigu sem greitt er aukalega fyrir þægindi.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 13. júlí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 7. júlí 2021 á breytingu á gjaldskrá fyrir gjöld á bílastæðum í Reykjavíkurborg, ásamt fylgiskjölum. R21030151
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Með breytingunum er lagt til að gjald fyrir íbúakort fari úr 8.000 kr. á ári í 1.250 kr. á mánuði fyrir hreina rafmagns- og vetnisbíla og 2.500 kr. á mánuði fyrir aðra bíla. Nýlega voru reglur um íbúakort einfaldaðar og með þeim breytingum hefur þeim sem rétt eiga á slíkum kortum fjölgað umtalsvert. Gjaldtaka í hverjum mánuði eykur sveigjanleika og er til hagsbóta fyrir íbúa. Þá styðja grænir hvatar í gjaldskrá íbúakorta við betri loftgæði og áherslur borgarinnar í baráttunni við loftslagsbreytingar sem eru stærsta viðfangsefni okkar tíma.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er jákvætt að vistvænir bílar njóti hagstæðari kjara í borgarlandinu. Orkuskipti í samgöngum er lykilatriði í loftlagsmálum og þróun samganga á Íslandi. Borgin hefur hér miklu hlutverki að gegna. Því miður eru hleðslustöðvar borgarinnar óvirkar vegna ólöglegs útboðs. Ekki liggur enn fyrir hvernig það verður leyst.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er verið að leggja til breytingar á bílastæðakorti íbúa í Reykjavík, gjaldið fer úr 8.000 kr. á ári fyrir allar bifreiðar í 1.250 kr. á mánuði fyrir hreinar rafmagns- og vetnisbifreiðar og 2.500 kr. á mánuði fyrir aðrar bifreiðar. Gildistími íbúakorta er eitt ár en íbúar geta greitt mánaðarlega eða árgjald. Árskort fer því úr 8.000 krónum í 30.000 fyrir þau sem eru ekki á rafmagns- og vetnisbifreiðum. Fulltrúi sósíalista ítrekar nauðsyn þess að grípa til aðgerða við hamfarahlýnun en hér er hætta á að aðgerðirnar leggist misþungt á borgarbúa eftir efnahagslegri stöðu, þar sem erfitt getur verið að fjárfesta í rafmagns- og vetnisbifreiðum ef fólk hefur lítið á milli handanna og ekki geta allir stuðst við og/eða treyst á vistvænar samgöngur svo sem hjól og almenningssamgöngur miðað við stöðuna nú. Fulltrúi sósíalista veltir því fyrir sér hvort þetta sé besta leiðin til að ná markmiðum um grænni borg og óttast að kvaðir séu settar á þau sem geti efnahagslega ekki borið þær.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Verið er að boða gríðarlega hækkun íbúakorta í miðbæ Reykjavíkur. Allir tekjustofnar eru í botni og allt er hækkað sem hægt er að hækka. Nú á að hækka kortin úr 8.000 í 15.000 kr. fyrir hreina rafmagns- og vetnisbíla og 30.000 kr. fyrir aðra bíla á ársgrundvelli. Þetta er refsistefna og mismunun á milli íbúa Reykjavíkur eftir búsetu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Breyting á gjaldskrá, gjald fyrir bílastæðakort íbúa í Reykjavík. Meirihlutinn leggur til að gjald fyrir íbúakort fari úr 8.000 kr. á ári í 1.250 kr. á mánuði fyrir hreina rafmagns- og vetnisbíla og 2.500 kr. á mánuði fyrir aðra bíla. Þetta er um 200% hækkun. Ekki er verið að gera þeim sem aka vistvænum bílum hátt undir höfði nú þegar ríður á að fara hratt í orkuskiptin. Til dæmis fá þeir sem aka tvinnbílum, og aka innanbæjar á rafmagni, eða á bílum sem brenna metani engar ívilnanir. Þeir eru látnir greiða fullt gjald. Frekar skal metan brennt á báli en að meirihlutinn í borgarstjórn beiti sér af krafti til að nýta vistvænt eldsneyti sem fyrirtæki í langstærstum hluta í eigu borgarinnar (bs. fyrirtæki) eins og Sorpa framleiðir gnótt af og þarf að brenna vegna þessa að það er ekki nýtt. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að tvinnbílar eigi að vera í flokki vistvænna bíla enda almennt keyrðir á rafmagni innanbæjar. Betur má ef duga skal í þessum efnum.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 9. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki úthlutun lóðar og sölu byggingarréttar að Járnsléttu 2. R21070007
    Samþykkt.

    Hrefna Þórsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 9. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að afturkalla lóðarúthlutun vegna Lambhagavegar 8. R21040135
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mjög erfitt er að henda reiður á eftir hvaða reglum borgin spilar við úthlutun lóða og afturköllunar á þeim ef ekki er staðið í skilum. Borgarráð er sífellt að veita heimildir til framlengingar á greiðslum til aðila sem ekki greiða á gjalddaga á meðan riftun gengur yfir aðra. Þetta eru mjög handahófskennd og ógagnsæ vinnubrögð.

    Hrefna Þórsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  7. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-7485/2020. R21070130

  8. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 14. júlí 2021, um þau málaferli sem Reykjavíkurborg á aðild að fyrir dómstólum. R19100258

  9. Lagt til að Dóra Magnúsdóttir taki sæti í innkaupa- og framkvæmdaráði í stað Ellenar Jacqueline Calmon. Jafnframt er lagt til að Ellen taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Dóru. R20030171
    Samþykkt.

  10. Lagt fram svar Strætó bs., dags. 23. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um hugsanleg kaup á metanstrætisvögnum, sbr. 52. lið fundargerð borgarráðs frá 12. mars 2020. R20030120

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins vill minna á allt það metan sem brennt er á báli og þá firru að nýta það ekki á vagna borgarinnar og greiðabíla frekar en að brenna það á báli. Bæði Sorpa og Strætó eru að mestu í eigu borgarinnar og ættu því að geta unnið saman. Taka ætti Akureyringa til fyrirmyndar en hjá þeim er metanskortur því þar er metanið sem til fellur nýtt. Árum saman hefur metan sem er safnað í miklum mæli verið brennt. Áætlað er að stöðin GAJA muni framleiða árlega nægt metangas fyrir um 6 til 8 þúsund bifreiðar. Í dag framleiðir Sorpa metangas sem dugar fyrir um 5 þúsund bifreiðar. Alls eru 1.419 metangasbifreiðar skráðar, sem ganga fyrir metangasi og eldsneyti, hér á landi. Það sem liðið er af árinu 2021 hafa alls verið 7 metangasbifreiðar fluttar inn, samanborið við 1.891 hreina rafmagnsbíla. Þá eru ekki taldar með bifreiðar sem flokkast sem tvinnbifreiðar, sem ganga fyrir eldsneyti og rafmagni. Er því langt í land að framleiðsla Sorpu á metangasi verði fullnýtt. Fátt væri eðlilegra en að allir vagnar Strætó væru metanvagnar.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram minnisblað Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 9. desember 2020, vegna  fyrirspurnar áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um minnisblað Orkuveitu Reykjavíkur vegna Árbæjarlóns, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. nóvember 2020. R20110208

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins furða sig á vinnubrögðum í tengslum við tæmingu lónsins en hún var ekki lögð fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til samþykktar áður en Árbæjarlónið var tæmt. Nauðsynlegt er að kanna til hlítar hvernig best er að skila Elliðaárdalnum áður en farið er í að breyta Árbæjarlóni til frambúðar. Ekki hefur borist álit Náttúrufræðistofnunar eins og stefnt var að. Rétt er að rifja upp að Orka náttúrunnar braut lög þegar lón Andakílsárvirkjunar var tæmt. Því er mikilvægt að fara varlega. Mannvirki á svæðinu eru friðuð og Árbæjarlón er hluti af gildandi deiliskipulagi og var því tæmt þvert á lög og skipulag.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er þyngra en tárum taki að Árbæjarlón hafi verið tæmt í skjóli nætur. Hér er komin tímalína sem sýnir aðdraganda tæmingarinnar. Vönduð skýrsla starfshóps um Elliðaárdal hefur verið lögð fram og birtast þar ýmis sjónarmið, m.a. að lög hafi verið brotin. Það er álit borgarfulltrúa Miðflokksins að án tafar verði farið í að leiðrétta þá ólögmætu framkvæmd að tæma Árbæjarlónið og að yfirborði lónsins verði aftur komið í það horf sem það á að vera samkvæmt deiliskipulagi.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram svar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., dags. 8. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um starfsmannamál hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og viðbrögð vegna COVID-19, sbr. 49. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. júní 2021. R21030227

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er ljóst að starfsmannamál Slökkviliðsins eru í molum eins og ný úttektarskýrsla ber með sér þar sem allir þættir voru á eldrauðu. Það er með ólíkindum að á fimm ára tímabili hafi komið upp þrjú mál sem snerta starfsmenn sem enda með dómi eða sátt og hafa þau mál kostað 14,5 milljónir. Að auki hefur Slökkviliðið greitt 5.419.917 kr. vegna tveggja dómsátta á tímabilinu og ekki eru gefnar upp frekari sundurliðun á fjárhæðum þar sem trúnaður ríkir um efni þeirra. Þessu til viðbótar hefur Slökkviliðið samið sérstaklega um starfslok við tvo starfsmenn frá árinu 2010 að ráðleggingu lögmanna, enda talið þjóna hagsmunum Slökkviliðsins og viðkomandi starfsmanna. Greiðslur vegna þeirra samninga eru alls 7.355.305 kr., lögfræðikostnaður vegna þeirra er 918.361 kr. Hér er því um að ræða tæpar 30 milljónir. Hér hljóta allir að sjá að pottur er brotinn í samskiptamálum innan Slökkviliðsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fram kemur í svari við fyrirspurn um starfsmannamál Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu að alls voru greiddar 5.419.917 kr. vegna tveggja dómsátta á tímabilinu. Þessu til viðbótar hefur Slökkviliðið samið sérstaklega um starfslok við tvo starfsmenn frá árinu 2010. Greiðslur vegna þeirra samninga eru alls 7.355.305 kr., lögfræðikostnaður vegna þeirra er 918.361 kr. Þessar upplýsingar vekja upp margar aðrar spurningar sem tengjast ástandinu á vinnustaðnum. Minnt er á nýlega starfsmannakönnun sem kom afar illa út. Niðurstöður sýndu að hjá Slökkviliðinu er allt í ljósum logum í orðsins fyllstu merkingu og er þá vægt til orða tekið. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram fyrirspurnir um hverju þetta sætir og hvernig yfirmenn koma að þessum málum en hefur ekki fengið svör. Ítrekun var send á síðasta borgarráðsfundi en engin svör hafa borist. Svo lítur út sem eigi að þagga málið eða kæla nema hvort tveggja sér. Lengi hefur gengið sá orðrómur að illa sé farið með starfsfólk af æðstu stjórnendum hjá Slökkviliðinu og hefur hugtakið „ógnarstjórn“ verið nefnt í því sambandi. Tortryggni vex þar sem engin koma svörin. Hvað er þarna eiginlega í gangi?

    Fylgigögn

  13. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 10. ágúst 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um stuðning Bloomberg Philantropies við stafræna umbreytingu í Reykjavík, sbr. 52. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. júlí 2021. R20080035

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Á hvaða lagagrunni byggir móttaka fjármagns upp á 2,2 milljónir bandaríkjadala eða sem nemur tæpum 300 milljónum íslenskra króna frá erlendum aðilum? Móttaka þessa fjármagns er á mjög gráu svæði lagalega séð. Það er víst búið að ráða 60 manns vegna stafrænnar þjónustu hjá borginni. Það er orðhengilsháttur og ósannindi að halda því fram að ekki sé um ráðningu að ræða því ráðningin á að vera „tímabundin“ og allir vita hvað það þýðir. Það hefur margoft komið fram í borgarráði.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um öryggisatriði í samningi um framtíð Reykjavíkurflugvallar, sbr. 40. lið fundargerðar borgarráðs frá 23. júlí 2020. R20070145

    Fylgigögn

  15. Lagt fram svar Strætó bs., dags. 23. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um kostnað Reykjavíkurborgar vegna rafræns greiðslukerfis Strætó bs., sbr. 38. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. júlí 2021. R21070050

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Í svari frá Strætó við fyrirspurn um kostnað Reykjavíkurborgar vegna rafræns greiðslukerfis kemur fram að þetta komi ekki borgarbúum við heldur sé þetta fjármagnað af Strætó. Fulltrúi Flokks fólksins vill nú nefna í þessu sambandi að Strætó bs. er að mestu kostað af framlagi borgarinnar. Þess vegna er varla hægt að segja að ,,það kemur ekkert sérstakt framlag frá eigendum Strætó vegna rafræns greiðslukerfis heldur er fjárfestingin fjármögnuð af Strætó“. Allar ákvarðanir um stór útgjöld koma borgarbúum við, það er ekkert sem Strætó fjármagnar í sjálfu sér enda er Strætó gjaldþrota fyrirtæki, það lifir ekki af nema með miklum stuðningi.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram svar Strætó bs., dags. 23. júlí 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kaup Strætó bs. á vögnum árin 2019, 2020 og 2021, sbr. 53. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. apríl 2021. R21040332

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg sem er meirihlutaeigandi í Strætó bs. hefur vanrækt eðlilega endurnýjun vagna allt kjörtímabilið. Árleg þörf er allt að tíu vagnar en á árunum 2019-20 og það sem af er ári 2021 hafa eingöngu tveir vagnar verið keyptir. Nú stendur til að kaupa tvo vagna í viðbót en þó að það sé gert er uppsöfnuð þörf upp á 26 vagna frá upphafi árs 2019. Á sama tíma og þjónustan er skert er verið að setja gríðarlega fjármuni í borgarlínu. Bent er á að borgarstjórn samþykkti í upphafi kjörtímabils tillögu um að auka tíðnina í 7,5 mínútur á lykilleiðum en ekkert hefur orðið af því. Það hefur beinlínis verið svikið.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram svar menningar- og ferðamálasviðs, dags. 22. júlí 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðivinnu vegna nýrrar ferðamálastefnu, sbr. 66. lið fundargerðar borgarráðs frá 2. júlí 2020. R20060201

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Svar er lagt fram við fyrirspurn um kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðivinnu vegna nýrrar ferðamálastefnu. Fram kemur í svari að Capacent taki 9,6 milljónir fyrir viðtöl og greiningaviðtöl. Sérstaklega er tekið fram að um sér að ræða „djúpviðtöl“. Þetta vekur athygli. Vissulega hlýtur það að vera gott að hægt sé að taka svona mörg djúpviðtöl við háttsett fólk. Það bendir til að viðtöl áður fyrr hafi þá verið verið grunn. Hér er kannski komin skýring á áður tilgangslitlum viðtölum um ýmis brýn mál. Og djúpviðtöl kosta meira en grunnviðtöl segir í svari og er hár kostnaður skýrður með því. Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvort „grunn“ viðtöl hefðu kannski geta dugað í einhverjum tilfellum og þar með hefði kannski mátt spara margar milljónir.

    Fylgigögn

  18. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um sérstakan húsnæðisstuðning, sbr. 50. lið fundargerðar borgarráðs frá 12. mars 2020. Einnig lögð fram umsögn velferðarsviðs, dags. 4. ágúst 2021, ásamt fylgiskjölum. R20030118
    Tillagan er felld. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Tillaga Flokks fólksins um sértækan húsnæðisstuðning er felld. Umsögn velferðarsviðs gefur í skyn að það myndi fara á skjön við leiðbeiningar félagsmálaráðuneytisins ef reglum um sérstakan húsnæðisstuðning yrði breytt í samræmi við tillögu Flokks Fólksins. Ráðuneytið hafi lagt áherslu á það að ekki skuli einungis horft til hlutlægra tekju- og eignaviðmið. Fulltrúi Flokks fólksins vill benda á það að hér er lögð til útvíkkun á gildandi reglum sem kemur aðeins til með að auka réttindi en myndi ekki leiða til skertra réttinda hjá neinum. Þau sjónarmið sem búa að baki tilllögu fulltrúa Flokks Fólksins eru einmitt að tryggja það að allir sem hafi lágar tekjur hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Ekki er verið að leggja til að aðeins þeir sem hafa rétt á húsnæðisbótum skuli eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Fulltrúi Flokks Fólksins telur að það séu eflaust mörg tilfelli þar sem einstaklingar þurfa á sérstökum húsnæðisstuðningi að halda, t.d. vegna félagslegra ástæðna. Það sést glöggt á bréfi ráðuneytisins að verið er að bregðast við því þegar sveitarfélög hafa sett þrengri reglur og að þær þrengri reglur hafi leitt til þess að fólk hafi ekki fengið greiddan sérstakan húsnæðisstuðning. Hins vegar er tillaga Flokks Fólksins sú að rýmka skilyrðin og kemur því ekki til með að skerða réttindi fólks.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Sérstakur húsnæðisstuðningur er veittur á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og byggist á meginreglum þeirra laga. Sveitarfélög skulu veita sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við nánari reglur sem sveitarstjórn setur á grundvelli leiðbeininga ráðherra um sérstakan húsnæðisstuðning. Í leiðbeinandi reglum félagsmálaráðuneytisins um sérstakan húsnæðisstuðning kemur skýrt fram að við ákvörðun um sérstakan húsnæðisstuðning skuli fara fram mat sem tekur tillit til tekna og eigna, framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna. Því er ekki hægt að afnema félagslegt mat vegna umsókna um sérstakan húsnæðisstuðning miðað við núgildandi lög þar að lútandi. Sé það vilji löggjafans að allir sem fái almennar húsnæðisbætur fái einnig sérstakar húsnæðisbætur er einfaldast að slíkt yrði framkvæmt með breytingum á lögum um húsnæðisbætur og þær hækkaðar.

    Fylgigögn

  19. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 28. júlí 2021. R21010004

    Fylgigögn

  20. Lagðar fram fundargerðir neyðarstjórnar Reykjavíkurborgar frá 26. og 29. júlí og 4., 6. og 9. ágúst 2021. R21010069

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Búið er að ræsa hina svokölluðu neyðarstjórn Reykjavíkur út á ný. Hver er neyðin og hvaða botnlausa vitleysa er í gangi í stjórnun Reykjavíkur? Kjörnir fulltrúar í borgarstjórn, borgarráði og fagráðum eru kosnir til að fara með stjórn borgarinnar. Ef borgarstjóri og meirihlutinn treysta sér ekki til að stjórna Reykjavík og framselja vald sitt til neyðarstjórnar sem enginn hefur kosið eiga þau að láta af völdum. Langt er síðan að búið er að taka Ísland af neyðarstigi og miklar tilslakanir hafa verið gerðar að hálfu ríkisins, en Reykjavík er enn höfð á neyðarstigi vegna COVID-19. Nær væri að málefni t.d. Fossvogsskóla væru rædd í neyðarstjórninni.

  21. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 2. júlí 2021. R21010017

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fram kemur í fundargerðinni að Strætó hyggist semja reglur varðandi fargjaldaálag eða réttara sagt hvernig á að bera sig að við að sekta þá sem svindla sér í strætó. Hugsunin er að framkvæmdin sé sambærileg því sem gerist í lestum erlendis, þ.e. að eftirlitsaðilar fari í strætisvagna af handahófi og biðji einstaklinga að sýna sér strætómiðann. Í lögunum er kveðið á um að sektin megi vera að hámarki 30.000 kr. en skuli þó vera í hlutfalli við miðaverð. Hér er um heimild að ræða sem Strætó er greinilega að hugsa um að nýta sér fyrir alvöru. Fulltrúi Flokks fólksins efast um að eltingaleikur sem þessi bæti reksturinn þar sem það kostar að senda eftirlitsaðila inn í vagna til að grípa þá sem hafa svindlað sér um borð. Er ekki verið að eyða orku í ranga hluti? Væri t.d. ekki nær að beina áherslum á að reyna að draga úr kvörtunum og ábendingum um hvað þarf að laga til að almenningssamgöngur falli betur að fólki og laði fleiri að? Kvartanir/ábendingar 2019 voru 2948 og eru þær fleiri en árið áður. Ekki er sjálfgefið að fólk sem fái sekt borgi hana.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 21 mál. R21080034

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið yfirlitsins: 

    Fulltrúi Flokks fólksins á 13 mál á lista embættisafgreiðslna af 21 alls. Málunum er vísað á viðeigandi staði í borgarkerfinu, væntanlega til umsagnar. Fulltrúi Flokks fólksins væntir þess að svör berist sem fyrst en brögð hafa verið á því að svör berist ekki fyrr en eftir dúk og disk, oft ekki fyrr en mörgum mánuðum síðar, jafnvel ári. Fulltrúi Flokks fólksins vill bóka við lið 1 í embættisafgreiðslum, lið sem lýtur að áskorun Krabbameinsfélags Íslands um dagdeild blóð- og krabbameinslækninga. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir með Krabbameinsfélaginu þar sem félagið skorar á stjórnvöld að setja uppbyggingu fyrsta flokks framtíðarstöðu dagdeildar blóð- og krabbameinslækninga í forgang. Þeir sem fá lyfjameðferð vegna krabbameins fá hana flestir á dagdeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala. Krabbamein er sjúkdómur sem getur herjað á alla. Í baráttunni gegn krabbameini þarf samfélagið allt að standa sem einn maður.

    Fylgigögn

  23. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. R21080036

    Fylgigögn

  24. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Íbúar fjölda hverfa hafa kvartað undan hávaða sem berst frá hafnarsvæði Sundahafna á kvöldin og næturnar. Óskað er eftir því að gerðar verði mælingar á þeim hávaða sem er á svæðinu ásamt því að mælingar verði gerðar í íbúðahverfum næst hafnarsvæðinu. Niðurstöðurnar verði svo kynntar borgarráði. R21080058

    Vísað til meðferðar umhverfis- og heilbrigðisráðs.

  25. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Óskað er eftir að því að vinna að úrbótum vegna lyktarmengunar sem hefur borist í sumar yfir Grafarvog frá Gufunesi verði sett af stað. Margoft hefur verið kvartað undan þessari lyktarmengun sem ekki virðist vera hægt að finna lausn á. Þessi lyktarmengun er að valda íbúum óþægindum ásamt því að hún leggst yfir útivistarsvæðið við Gufunesbæ og því eru færri sem sækja svæðið vegna óþæginda sem þessi lykt er að valda. Það er mikilvægt að fundin verði lausn á þessari lyktarmengun sem fyrst og komið í veg fyrir hana ásamt því að úrbætur verði kynntar fyrir borgarráði fyrir lok september. R21080059

    Vísað til meðferðar umhverfis- og heilbrigðisráðs.

  26. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Hvenær lýkur uppsetningu snjallgangbrauta sem samþykktar voru að tillögu sjálfstæðismanna í borgarstjórn? R19050070

    Vísað til meðferðar skipulags- og samgönguráðs.

  27. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Hver er heildarkostnaður við stefnumótun stýrihópa á kjörtímabilinu? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum.  R21080061

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  28. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Framkvæmdir við Tryggvagötu sem hófust í fyrra er enn ólokið og gatan verið lokuð allri umferð síðan. Hvenær má vænta að verklok verði og gatan opnuð á ný? R20120087

    Vísað til meðferðar skipulags- og samgönguráðs.

  29. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Hvenær mun Strætó bjóða upp á þjónustu fyrir íbúa í nýju hverfi í Gufunesi? Hverfið var kynnt sem vistþorp og með því hvatt til þess að íbúar temji sér bíllausan lífstíl. Fyrir fullfæra manneskju í bestu aðstæðum er næsta strætóstoppistöð hinsvegar í 15 til 20 mínútna fjarlægð. Fyrir aðra, til dæmis fólk með barnavagn, yrði göngutíminn enn lengri og allt að því 30 mínútur. Íbúar hafa þegar fengið afhenta lykla. Það er ámælisvert ef borgaryfirvöld ætla sér að skipuleggja hverfi á fölskum forsendum. R21080062

    Vísað til umsagnar Strætó bs.

  30. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands: 

    Fyrirspurn vegna forgangsröðun fjármuna í skólum: Hvernig er fyrirkomulagi varðandi forgangsröðun fjármuna hagað innan grunnskóla Reykjavíkurborgar varðandi framkvæmdir og viðhald grunnskólabygginga? Ef að skólabygging krefst t.d. mikils viðhalds, minnkar þá fjármagn til annarra þátta líkt og til sérkennslu og annarra úrræða sem þarf að hafa í kennslu? Er það á ábyrgð skólastjórnenda að forgangsraða eða fá skólastjórnendur það sem þeir þurfa á að halda? R21080064

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

  31. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins: 

    Óskað er eftir að borgarráð fái kynningu á þeim málum sem koma fram í fundargerð Strætó bs. frá 2. júlí sl. sem er fjárhagsleg staða Strætó, farþegatalningar og staða viðræðna við Lánasjóð sveitarfélaga um lántöku. R21010017

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar.

  32. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins:

    Á hvaða lagagrunni byggir móttaka fjármagns upp á 2,2 milljónir bandaríkjadala eða sem nemur tæpum 300 milljónum íslenskra króna frá Bloomberg Philantropies? R20080035

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  33. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: 

    Neyðarstjórn hefur fundað í sumar fimm sinnum vegna versnandi ástands í smitmálum. Borgarfulltrúar minnihlutans hafa ekki fengið neinar upplýsingar að heitið geti um hvað fram fer á þessum fundum og hvaða upplýsingar þar eru lagðar fram. Samt eru þeir kosnir til ábyrgðar þótt þeir sitji í minnihluta. Í neyðarstjórn sitja borgarstjóri og sviðsstjórar. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta bagalegt og leggur þess vegna til að í neyðarstjórn sitji einnig fulltrúi minnihlutans í borgarstjórn. Almennt má snarbæta upplýsingaflæði frá neyðarstjórn til borgarfulltrúa sem frétta lítt af málum nema einna helst úr fjölmiðlum. R20030148

    Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga sama efnis var flutt og felld á fundi borgarstjórnar 17. nóvember sl. Neyðarstjórn Reykjavíkur hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir og grípa til neyðarráðstafana þegar neyðarástand skapast til að forgangsraða lögbundinni þjónustu, samfélagslega mikilvægri starfsemi, tryggja almannaheill og lágmarka hugsanlegan samfélagslegan skaða. Neyðarástand getur skapast þegar öryggi og innviðum samfélagsins er ógnað, svo sem vegna náttúruvár, þegar umhverfi og heilsu er ógnað og þegar tæknivá eða annars konar hættuástand skapast. Á neyðarstigi er nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum og verja grunnstoðir í þjónustu borgarinnar til að halda uppi nauðsynlegustu starfsemi. Neyðarstjórn hefur heimild til að taka ákvarðanir og stofna til útgjalda umfram það sem segir í fjárhagsáætlun í neyðartilfellum enda sé um slík tilfelli að ræða, að afgreiðsla þeirra þolir enga bið. Borgarráð veitir aðrar nauðsynlegar heimildir vegna sérstakra fjárútláta og er á neyðarstigi í viðbragðsstöðu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins hafnar frávísun tillögu um að einn fulltrúi minnihlutans sitji í neyðarstjórn. Rök meirihlutans eru að þetta hafi verið rætt áður og sé ekki í boði. Það eru engin rök. Hér er verið með grófum hætti að halda minnihlutanum fyrir utan mikilvæg málefni. Fulltrúi Flokks fólksins vill að minnihlutanum, einum fulltrúa hans, verði boðið að sitja fundi neyðarstjórnar.  Málið er ekki flóknara en það. Þessi tillaga er lögð fram af ástæðu sem er það ástand sem myndaðist í sumar þegar fjórða bylgja COVID reið yfir og er nú í algleymingi. Öll héldum við, að minnsta kosti í smá tíma, að þjóðin væri að sigla hratt út úr COVID. Það var náttúrulega ekki þannig og nú liggur fyrir að um langtímaástand er að ræða. Minnihlutinn er kjörinn til ábyrgðar er fær aldrei neina aðkomu að stórum og mikilvægum málum. Borgarstjóri situr í neyðarstjórn sem fulltrúi meirihlutans. Það er biturt að vera kjörinn fulltrúi í borgarstjórn og þurfa að frétta af stóralvarlegum málum úr fjölmiðlum. Fólkið í borginni leitar mikið til minnihluta fulltrúa eins og gengur og það er sárt að þurfa einfaldlega að segja að minnihlutinn eigi ekki sæti við borð neyðarstjórnar.

  34. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: 

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvort allir foreldrar barna, sem eru að byrja í leikskóla, hafi fengið upplýsingar um dagsetningu, sem barn þeirra getur hafið aðlögun. Í reglum segir að foreldrar eigi að fá þessar upplýsingar eigi síðar en fjórum vikum áður en leikskóladvöl hefst, miðað við 1. eða 15. hvers mánaðar. Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið upplýsingar um að ekki allir foreldrar hafi fengið dagsetningu, t.d. foreldrar barna sem eiga að byrja í leikskólanum Dalskóla í Úlfarsársdal og Jörfa í Hæðargarði. Lengst af hefur hluta foreldra verið haldið í óvissu um hvenær upphafsdagur verður og þá sérstaklega þeim foreldrum sem eiga yngstu börnin. Það liggur auðvitað fyrir hvenær elstu börnin byrja í skóla og hvenær boltinn getur farið að rúlla hjá leikskólunum. Foreldrar hafa margir hverjir ekki nein ráð því það er ekki eins og pössun liggi á lausu. Eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins heyrði í sumar að þá höfðu borist afar loðin svör frá einstaka leikskólum, talað um að ekki sé neitt vitað og mönnunarvanda sé um að kenna o.s.frv. Það er mikið álag fyrir foreldra að vera að koma úr sumarfríi og þurfa að byrja að stappa í svona löguðu. R21060245

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

  35. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: 

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að vita hvort það sé fyrirhugað að veita kennurum og starfsfólki grunnskóla í Reykjavík sérstakan stuðning eða umbun í ljósi álags sem verið hefur á þessum stéttum vegna COVID. Nú er fyrirséð að veturinn sem er handan við hornið verður ekki léttari enda COVID enn í algleymingi. Kennarar eru margir uggandi yfir upphafi skólastarfs í ljósi aðstæðna. Margir kennarar eru þreyttir og hafa jafnvel ekki náð að hvílast nægjanlega í sumar. Í þessu sambandi er fulltrúi Flokks fólksins að hugsa sem dæmi um aukinn sveigjanleika varðandi vinnutíma og/eða fjölgun í ráðningum t.d. tímabundið. R21080063

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundarráðs.

Fundi slitið klukkan 10:48

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Heiða Björg Hilmisdóttir

Dóra Björt Guðjónsdóttir Marta Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_1208.pdf