Borgarráð - Fundur nr. 5631

Borgarráð

Ár 2021, fimmtudaginn 22. júlí, var haldinn 5631. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Alexandra Briem og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 354/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Eyþór Laxdal Arnalds, Hildur Björnsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir og René Biasone. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Bjarni Þóroddsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 13. júlí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 7. júlí 2021 á tillögu að deiliskipulagi fyrir Brekknaás og Vindás, ásamt fylgiskjölum. R21070117
    Samþykkt. 

    Björn Axelsson, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 13. júlí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 7. júlí 2021 á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi fyrir samgöngutengingar í Gufunesi, ásamt fylgiskjölum. R21050089
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ýmsar spurningar vakna við þessar samgöngutengingar við Strandveg. Nú stendur til að lagfæra gatnamót við Strandveg/Borgaveg þar sem þau eru hættuleg fyrir þá sem þar eiga leið um. Ef bæta á meiri umferð á Strandveg með nýjum gatnamótum þá verður að huga mun betur að öryggi þeirra sem þar fara um. Mikilvægt er að tengingar þeirra sem fara eftir stígum og þurfa að þvera Strandveg verði í gegnum undirgöng eða brýr. Lítið er um almenningssamgöngur á þessu svæði, þrátt fyrir uppbyggingu í Gufunesi og fyrirheit um bíllausan lífsstíl. Þá liggur endanleg úrfærsla Sundabrautar ekki fyrir og mikilvægt að tryggja að ekki verði þrengt að endanlegu vegstæði hennar.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Sporin hræða þegar kemur að skipulagsvinnu varðandi Sundabraut. Meirihlutanum er ekki treystandi. Verið er að kynna bráðabirgðatengingar frá Gufunesi upp í Grafarvog og eiga þær að vera víkjandi gagnvart Sundabraut. Enn á ný er verið að þrengja að komu Sundabrautar. Hvers vegna er rokið í þetta verkefni sem verður mjög kostnaðarsamt korter í ákvarðanir um legu Sundabrautar? Á sama tíma mætast borgarstjóri og samgönguráðherra glaðbeittir og undirrita enn eitt samkomulagið um að fara eigi í Sundabrú sem borgarstjóri vill reyndar hafa í göngum.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Nauðsynlegt er að ákvarða fyrst nákvæma legu Sundabrautar áður en farið er að fjárfesta í dýrum framkvæmdum því að ekki er gott að skipuleggja lóðir og götur ef legan er ekki nákvæmlega þekkt. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til það verði gert í stað þess að fara einhverjar bráðabirgðaleiðir sem gætu átt eftir að kosta mikið en verða ekki varanlegur. Reyna þarf að komast hjá tvíverknaði. Vissulega þarf að finna samgöngutengingar. Hér er ekki hægt að hugsa í líkum, hvað mögulega kann að vera.

    Björn Axelsson, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júlí 2021, varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalbrautarreits vegna Leirulækjar 2, ásamt fylgiskjölum. R21070132
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Færanlegar kennslustofur eru gott verkfæri til að bregðast við fjölgun í hverfi sem er annað hvort tímabundin, eða gerist hraðar en fyrirséð var. Þessi lausn hefur verið notuð til margra áratuga og hefur með árunum orðið betri og þróaðari. Þar sem fjölgunin er tímabundin eru slíkar kennslustofur mun betri nýting fjármagns og geta jafnfram risið hraðar en varanlegar byggingar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúa Flokks fólksins finnst mikilvægt að horfa til lengri tíma þegar verið er að skipuleggja skólalóðir. Ef horft er til lengri tíma dugar ekki til að stilla upp endalausum færanlegum kennslugámum en orðið „kennslugámar“ er notað til að lýsa þessu í gögnum sem dæmi við sambærilegri tillögu við Nauthólsveg 87. Það er óspennandi hugsun að hver skóli í Reykjavík verði sem bútasaumur í stað þess að byggja almennilegar, fallegar skólabyggingar sem falla vel að umhverfi og öðru skipulagi hverfisins. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af framtíð skólamála í Laugardal og Laugarneshverfi. Nú á að stilla upp kennslugámum á lóð Laugalækjaskóla. Margir deila þeim áhyggjum. Fulltrúi Flokks fólksins hefur verið að ræða við íbúa og starfsmenn skólanna í hverfinu vegna framtíð skólamála í ljósi þess að næstu ár verður byggt mikið á svæðinu. Skólarnir eru hins vegar sprungnir og það þarf að gera eitthvað. Fulltrúi Flokks fólksins var að vona að ákveðið yrði að finna varanlega lausn sem færi vel við umhverfið.

    Björn Axelsson, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júlí 2021, varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kennaraháskóla Íslands og Sjómannaskólareits vegna Bólstaðarhlíðar 47, ásamt fylgiskjölum. R21070131
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Færanlegar kennslustofur eru gott verkfæri til að bregðast við fjölgun í hverfi sem er annað hvort tímabundin, eða gerist hraðar en fyrirséð var. Þessi lausn hefur verið notuð til margra áratuga og hefur með árunum orðið betri og þróaðri. Þar sem fjölgunin er tímabundin eru slíkar kennslustofur mun betri nýting fjármagns og geta jafnfram risið hraðar en varanlegar byggingar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Í tilfelli þessa hverfis á einnig að stilla upp kennslugámum sem er afar óaðlaðandi þegar horft er til lengri tíma. Hugtakið „kennslugámur“ er notað í gögnum í sambærilegu máli: Nauthólsvegur 87, skóli Hjallastefnunnar. Skammt er þangað til að hver skóli í Reykjavík verður orðinn eins og bútasaumur með kennslugámum í öllum hornum í stað þess að úthluta lóðum og byggja almennilegar, fallegar skólabyggingar sem falla vel að umhverfi og öðru skipulagi hverfisins. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af framtíð skólamála í þessu hverfi og mörgum öðrum og þeim reddingum sem skipulagsyfirvöld eru að leggja hér til.

    Björn Axelsson, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júlí 2021, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Nauthólsveg 87, ásamt fylgiskjölum. R21070133
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Færanlegar kennslustofur eru gott verkfæri til að bregðast við fjölgun í hverfi sem er annað hvort tímabundin, eða gerist hraðar en fyrirséð var. Þessi lausn hefur verið notuð til margra áratuga og hefur með árunum orðið betri og þróaðri. Þar sem fjölgunin er tímabundin eru slíkar kennslustofur mun betri nýting fjármagns og geta jafnfram risið hraðar en varanlegar byggingar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er verið að sækja um að framlengja leyfi kennslugáma þar til önnur lausn finnst fyrir Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík. Hjallastefnan hefur óskað eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um framtíð Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík og standa þær viðræður yfir eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins kemst næst. Beðið er eftir hvað verður um lóðina nr. 81 við Nauthólsveg en skólinn missir aðstöðu sína þar sem hann er nú starfræktur á Nauthólsvegi 87 að næsta skólaári loknu að óbreyttu. Málefni skólans hafa verið í óvissu lengi og óvissa er aldrei góð. Fulltrúa Flokks fólksins finnst mikilvægt að þessi mál verði ákvörðuð í samráði við forsvarsfólk Hjallastefnuskólanna sem allra fyrst.

    Björn Axelsson, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júlí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við gerð hleðslustæða fyrir rafbíla í borgarlandi og í bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 100 m.kr. R21070137
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er frumforsenda að staðið sé rétt að útboðum hjá opinberum aðilum, en útboð borgarinnar hafa ítrekað verið úrskurðuð ólögmæt. Eins og staðan er núna er ekkert rafmagn á hleðslustöðum borgarinnar og verður kannski ekki út þetta ár.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Enn á ný er farið af stað með útboð áður en búið er að leysa úr fyrri ólöglegum útboðum. Sárlega vantar traust á útboðsmál Reykjavíkur. Hvert ólöglega útboðið á fætur öðru og málin hanga öll í lausu lofti. Nú undanfarin misseri hafa a.m.k. fjögur útboð verið dæmd ólögleg og þar af þrjú sem snúa að Orku náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur sem er að lang stærstum hluta í eigu Reykjavíkur. Fór svo að slökkt var á öllum hleðslustöðvum sem búið var að koma upp og eftir því sem best er vitað er enn slökkt á þeim og málin því í algjöru uppnámi. Í einu útboðanna er sneri að ljósastýringum stefndi borgin því fyrirtæki sem hafði betur fyrir kærunefnd útboðsmála. Ætlar borgin að stefna dóttur-dótturfyrirtæki sínu á sama hátt til að freista þess að fá úrskurðinum hnekkt?

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er um að ræða að setja upp nýjar hleðslustöðvar. Nú er mikilvægt að vel verði að þessu staðið til að forðast kærur og dómsmál. Skemmst er að minnast úrskurðar sem kostuðu borgina 8 milljónir og 1,5 milljón í málskostnað vegna orkukaupa, og hafði þau áhrif að samningar urðu ógildir. Afleiðingar voru að ekki var hægt að nota rafhleðslustöðvar tímabundið.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun: 

    Rétt er að halda því til haga að hér er einungis um að ræða framkvæmdir til undirbúnings því að bjóða út uppsetningu og rekstur hleðslustöðva í bílastæðum síðar. Ekkert í þessum framkvæmdum er útilokandi eða hefur beinlínis áhrif á möguleika markaðsaðila til þátttöku í slíku útboði síðar.

    Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júlí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við endurnýjun gervigrasvalla 2021, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 80 m.kr. R21070135
    Samþykkt.

    Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. júlí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við nýja gervigrasvelli í Laugardal ásamt endurbótum á aðalvelli Knattspyrnufélagsins Þróttar, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 830 m.kr. R21070136
    Samþykkt.

    Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 12. júlí 2021, varðandi úthlutun úr styrktarsjóði fyrir fjöleignarhús til uppsetningar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla, ásamt fylgiskjölum. R21070118
    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að koma á samræmdum og sanngjörnum reglum um styrkveitingar til að setja upp hleðslustöðvar. Orkuskiptin ganga of hægt. Jafnframt er ástæða til að nefna að aðrar aðgerðir þurfa einnig að ganga hraðar. Heilmikil eldsneytisframleiðsla er á Ísland svo sem metan sem gæti verið nýtt miklu meira. Það eru ekki tæknilegar hindranir í þessu, frekar upplýsingaskortur. Hægt er að gera þetta betur og hraðar ef vilji er fyrir hendi. Þetta kostar vissulega en það styttist í að bannað verður að flytja inn bensín og olíubíla. Tryggja þarf að innlend framleiðsla blómstri, á því græða allir.

    Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Þórólfur Jónsson og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. júlí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki tillögu um tilhögun skólastarfs í Fossvogsskóla skólaárið 2021-2022, ásamt fylgiskjölum. R21070138
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Sú tillaga sem hér liggur til grundvallar felur í sér að að nemendur í 1.-3. bekk Fossvogsskóla muni stunda nám í nýjum færanlegum húsum á lóð Fossvogsskóla meðan framkvæmdir standa yfir við aðalbyggingar skólans en eldri árgangarnir stundi nám í Korpuskóla og njóti þar þeirrar fullbúnu aðstöðu til fjölbreytts skólahalds sem þar er til staðar. Þessi tillaga nýtur stuðnings skólaráðs Fossvogsskóla þar sem eiga sæti fulltrúar starfsfólks, nemenda og foreldra, en skólasamfélagið lagði ríka áherslu á að yngstu árgangarnir gætu stundað nám nærri heimilum þeirra. Fullur vilji er til að ráðast hratt og vel í þær framkvæmdir sem nauðsynlegar eru skv. niðurstöðum ítarlegrar úttektar EFLU samhliða því að búa nemendum og starfsfólki eins góð skilyrði og kostur er á næsta skólaári meðan unnið verður að endurbótum í skólahúsnæðinu í Fossvogi.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Núna liggur fyrir lokaskýrsla EFLU vegna Fossvogsskóla. Þau miklu veikindi sem hafa verið bæði hjá börnum og starfsfólki eru alvarleg. Veikindi út af ástandi skólans og misheppnuðum aðgerðum sem farið var í að hálfu Reykjavíkurborgar. Full þörf er á því að skoða allt skólahúsnæði Reykjavíkurborgar fyrst að ástandið er svona í Fossvogsskóla þrátt fyrir það að hafa farið í gegnum allar þessar lagfæringar og haft alla athygli borgaryfirvalda síðustu 3 ár. Ekki hefur verið beðist afsökunar og ekki var um móðursýki að ræða. Börn, starfsfólk og aðstandendur þeirra eru nú aftur í þeirri stöðu að skólahald í Fossvogsskóla verður ekki með eðlilegum hætti næsta skólaár. Foreldrar hafa kallað eftir því að lausn sé fundinn með því að hafa skólahaldið í nærumhverfinu. Það er mikilvægt að unnið verði að þeirri lausn sem foreldrar kalla eftir. Ljóst er að mistök hafa verið gerð í málefnum Fossvogsskóla og miklum fjármunum hefur verið varið í framkvæmdir sem ekki tókust og því þarf að ráðast strax í rannsókn á þeim mistökum sem gerð voru í Fossvogsskóla til þess að tryggja það að svona vinnubrögð verði aldrei aftur viðhöfð þegar grunur kviknar um myglu í húsnæði í eigu borgarinnar.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Enn eru málefni Fossvogsskóla á dagskrá og sér ekki fyrir endann á þeim ósköpum. Sporin hræða og fjölmargir hlutir enn á huldu. Hefði verið tekið á vandanum af festu strax þá væru börn, starfsfólk og foreldrar í allt annarri og betri stöðu. Nú þegar hafa verið settar 500 milljónir í endurbætur sem virðist til einskis. Málefni Fossvogsskóla eru því á byrjunarreit.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir ályktun skólaráðs Fossvogsskóla að sviðsmyndir 1 og 5 sem kynntar voru á fundi skólaráðs í lok síðasta mánaðar með hagmunaaðilum komi ekki til greina sem úrlausn vegna húsnæðismála skólans á komandi skólaári. Skóla- og frístundaráð leggur til sviðsmynd 2 en að sviðsmynd 1 verði til vara. Gallar þeirrar síðari eru óumdeilanlegir vegna þess að hún krefst skólaaksturs allt árið og sækja börnin kennslu langt frá heimili sínu. Sviðsmynd 1 er ekki boðleg börnunum í svo langan tíma. Tekið er undir að sviðsmyndum 2, 3 og 4 verði haldið áfram opnum Það liggur fyrir að 4.-7. bekkur muni hefja skólaárið í Korpuskóla. Koma þarf nemendum í 1. til 3. bekk í tíu færanlegar kennslustofur á bílastæði við skólalóð skólans samkvæmt sviðsmynd 2 fyrir skólabyrjun mánudaginn 23. ágúst. Hér er um neyðarúrræði að ræða vegna ástand Fossvogsskóla. Nú ríður á að hlusta á foreldra og starfsfólk skólans og gera ekkert nema í fullu samráði við þá. Framundan er mikil vinna, s.s. að halda kynningarfundi með starfsfólki skólans annars vegar og foreldrum nemenda í skólanum hins vegar til að ræða mögulegar leiðir í skólastarfi fyrir fjóra elstu árganga skólans.

    Ámundi V. Brynjólfsson og Soffía Vagnsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  11.     Lagt fram trúnaðarmerkt mánaðarlegt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-maí 2021, dags. 22. júlí 2021. R21010261

    Helga Benediktsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

  12. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 29. júní 2021, ásamt fylgiskjölum, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 1. júlí 2021 og færð í trúnaðarbók:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi drög að yfirlýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og borgarstjóra um Sundabraut. Yfirlýsing er trúnaðarmál þar til eftir undirritun þann 6. júlí 2021. R21060300

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:

    Með þessari yfirlýsingu er það staðfest að undirbúningur Sundabrautar sé í traustum og góðum farvegi samkvæmt sameiginlegum skilningi ríkis og borgar. Mikilvægt er að við undirbúning svo mikilvægar framkvæmdir sé byggt á bestu gögnum og notast við náið samráð við íbúa.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:

    Forsendur samgöngusáttmálans er að liðkað verði fyrir Sundabraut eins og kveðið er á um í 5. gr. hans. Nú liggur fyrir niðurstaða um að brú sé verulega hagkvæmari kostur en göng. Mikilvægt er að hönnun Sundabrúar tefjist ekki frekar en orðið er, en fyrirhugað var að Sundabraut færi á framkvæmdastig fyrir tuttugu árum síðan. Það er jákvætt að Sundabraut eigi að ljúka í heild eins og kveðið er á um til að tryggja að umferð verði léttari fyrir sem flesta. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að þessari vinnu ljúki sem allra fyrst, enda löngu tímabær og arðbær samgönguframkvæmd fyrir borgarbúa og landsmenn alla.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:

    Fulltrúi Sósíalista fagnar uppbyggingu svo mikilvægra innviða en leggur höfuðáherslu á að slíkir innviðir séu í ævarandi eigu fólksins en ekki í höndum auðvaldsins.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:

    Sporin hræða þegar kemur að yfirlýsingu sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og borgarstjóri undirrita. Órökstuddar ítarkröfur eru settar fram af hálfu borgarinnar og reynt að þvæla og tefja komu Sundabrautar samkvæmt yfirlýsingunni. Það er engu líkara en borgarstjóri hafi samið þetta skjal einhliða og ráðherra gert að kvitta undir korter í kosningar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:

    Í gögnum segir að Sundabraut verður fjármögnuð með veggjöldum. Fulltrúi Flokks fólksins mótmælir alfarið veggjöldum. Ekki er gert ráð fyrir fjármögnun framkvæmdarinnar úr ríkissjóði. Þetta getur varla talist raunhæft að mati fulltrúa Flokks fólksins. Álagning veggjalda er röng og þess utan kallar slíkt á yfirbyggingu og er því kostnaðarsamt. Óttast er að meirihlutinn nýti sér veggjöld til að hamla notkun fjölskyldubílsins og refsa þeim sem kjósa bíl sem aðalferðamáta. Aðrar leiðir eru til en að setja á veggjöld. Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur rökstutt vel að lestur á kílómetrastöðu bíls við árlega skoðun sé ódýr kostur ef leggja þarf gjald á akstur. Það kerfið er svipað og við rafmagnssölu, áætluð er notkun sem er staðfest við árlega skoðun.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 19. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnað vegna ferða sviðsstjóra og stjórnenda þjónustu- og nýsköpunarsviðs, sbr. 45. lið fundargerðar borgarráðs frá 6. maí 2021. R21050088

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað spurt um ferðakostnað æðstu embættismanna þjónustu og nýsköpunarsviðs en fengið í svörum hina og þessa hlekkina og sagt nánast að finna svörin sjálf. Fulltrúi Flokks fólksins hefur reynt að rýna í fundargerðir og hin og þessi svörin í leit að nákvæmum upplýsingum af t.d. ferðum sviðsstjóra þjónustu- og nýsköpunarsviðs síðustu 4 árin. Að fá nákvæmlega þá tölu í samanburði við aðra sviðsstjóra hefur einfaldlega ekki tekist. Þegar borgarmeirihlutinn vill ekki að upplýsingar verði gagnsæjar þá verða þær ekki gagnsæjar. Í einu svari, sem sent var borgarfulltrúa Flokks fólksins kom hins vegar fram að sviðsstjóra beri ekki skylda til að upplýsa um þessar tölur en vísa til eldri gagna. Samhliða þessum svörum kemur löng runa af ákvæðum í sveitarstjórnarlögum. Í einu yfirliti um ferðir embættismanna t.d. frá 2017 má sjá að þjónustu- og nýsköpunarsvið er með kostnað upp á tæpar 600 milljónir í ferðakostnað og er það langhæsta talan. Lægst er 123 milljónir rúmar hjá skrifstofu borgarlögmanns, innri endurskoðunar og FMS (fjármálageirinn).

    Fylgigögn

  14. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. júní 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um innkaup á skólavörum, sbr. 67. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. maí 2021. R21050228

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði af hverju meirihlutinn í borgarstjórn kaupir ekki skólavörur af Múlalundi, verndaðri vinnustofu SÍBS þrátt fyrir þá staðreynd að um 80% starfsmanna Múlalundar eru með lögheimili í Reykjavík. Það gera önnur sveitarfélög. Í þrjú ár hefur Múlalundur reynt að ná borginni að samningaborðinu án árangurs. Í svari kemur fram að þau innkaup sem um ræðir í ofangreindri fyrirspurn falla undir núgildandi rammasamning sem gildir til 2024. Það hefur komið skýrt fram að hlutverk embættismanna sé að kaupa ódýrustu mögulegu vörur hverju sinni, án tillits til þess hver framleiðir þær eða gæða. Það er því fyrirséð að niðurstaða verði eins og áður sú að flytja þetta inn og kaupa ódýrustu mögulegu vörur. Síðan kemur Reykjavíkurborg og biður Múlalund um að taka fleiri starfsmenn af biðlistum Reykjavíkurborgar í störf við að framleiða vörur sem Reykjavíkurborg vill ekki kaupa. Sveitarfélög í nágrenni Reykjavíkur hafa tekið af skarið og sýnt hverju þau eru megnug að versla vörur Múlalundar í stað innfluttra vara Það að fara óhefðbundna leið eins og þá að nýta slagkraft grunnskólanna í Reykjavík sem stærsta notanda skólamappa á Íslandi, til að skapa mikilvæg störf fyrir fólk með skerta starfsorku, er pólitísk ákvörðun. Hér er borgin ekki góð fyrirmynd.

    Fylgigögn

  15. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 1. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um þjónustu- og nýsköpunarsvið og samninga við verktaka, sbr. 57. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. apríl 2021. R21020055

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins bendir á að þetta svar fjármála- og áhættustýringarsviðs er að því virðist einungis til að taka á ákveðnum skilgreiningaþáttum um starfandi verktaka sem þjónustu- og nýsköpunarsvið (ÞON) hélt fram að fyrirfinnist ekki á sviðinu. Í svarinu kemur fram að samið sé við einmenningsfyrirtæki, lítil fyrirtæki og stór en samningar eru að jafnaði gerðir við fyrirtæki en ekki einstaklinga. Einnig er sagt að mikið af þessum verkum séu verk sem eru viðvarandi. Er þá örugglega ódýrara að ráða fyrirtæki til að sinna verkinu en að hafa fastan starfsmann? Leiða milliliðir – svo sem fyrirtæki- einkahlutafélög - alltaf til þess að verkið verði ódýrara? Nefnt er sem dæmi að ,,ræstiþjónusta, símsvörun eða viðhald viðkvæmra netþjóna sem innihalda upplýsingar sem ekki er metið öruggt að þjóna með fjartengingu m.t.t. upplýsingaöryggis”. Er hér rétt metið? Finnst ekki hæft fólk í borgarkerfinu í slík störf eða hefur því öllu verið sagt upp? Eftir að reynslumiklum starfsmönnum var sagt upp hefur þessi dýra aðkeypta þjónusta margfaldast.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 1. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins varðandi álagningarprósentu húsnæðis í Reykjavík, sbr. 53. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. júní 2021. R21060034

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Af svarinu má ráða að ekki standi til að lækka fasteignaálögur í Reykjavík á árinu 2022. Það má öllum vera ljóst að fjárhagsáætlunarvinnan er langt komin þegar kominn er 22. júlí. Enginn vilji er til að koma til móts við Reykvíkinga og létta af þeim álögum af völdum hækkunar fasteignamats sem nær eingöngu má rekja til lóðaskorts í borginni.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram svar Strætó bs., ódags., við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um um kvartanir sem kunna að hafa borist Strætó bs. frá notendum þjónustunnar, sbr. 50. lið fundargerðar borgarráðs frá 6. júní 2021. R19050011

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um kvartanir sem kunna að hafa borist Strætó bs. frá notendum þjónustunnar. Svar er sláandi en segir að 2018 hafi kvartanir verið 2778. Alvarlegar kvartanir eru 164. Fulltrúi Flokks fólksins skilur ekki af hverju þetta er svona mikið, af hverju Strætó hefur ekki tekist betur upp og náð að virkja þjónustuáætlun sína betur? Taldar eru upp umbótaráætlanir en ekki kemur fram hvenær þær voru virkjaðar. Margt er sannarlega gott í þeim svo sem að marka skýra þjónustustefnu og setja upp myndavélar. Fulltrúa Flokks fólksins finnst stjórnun vera slöpp. Spurning er hvort auka eigi fræðslu til starfsmanna og þjálfun. Rýna þetta betur og finna lausnir sem virka. Í raun hafa þessi mál ekkert skánað. Fulltrúi Flokks fólksins fékk ámóta svar 2019 og þá höfðu borist tæplega 9 þúsund kvartanir á þremur árum. Svona litu síðustu ár út: Hér að má sjá skiptinguna á fjölda kvartana til Strætó eftir árum. Flestar voru þær árið 2016, en minnkuðu um rúmlega þúsund árið eftir. Þeim fjölgar hinsvegar aftur 2018. 2016 – 3654 ábendingar, 2017 – 2536 ábendingar, 2018 – 2778 ábendingar. Ekki kemur fram fjöldi kvartana 2019 og hefur fulltrúi Flokks fólksins óskað eftir þeim upplýsingum en ekki fengið.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 13. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um afslátt af leikskólagjöldum, sbr. 41. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. maí 2021. R19050146

    Fylgigögn

  19. Lagt fram svar Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 12. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um nauðsyn og kostnað snjallvæðingu Orkuveitu Reykjavíkur, sbr. 27. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. október 2019. R19100112

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Áætlaður heildarkostnaður við snjallvæðingu mæla hjá Veitum er 5,7 milljarðar króna. Var farið í þetta fokdýra verkefni vegna þess að „niðurstöður hagkvæmnigreiningar voru jákvæðar“ en það ekkert rökstutt frekar. Samkvæmt heimasíðu Veitna sem finna má á þessum link: https://www.veitur.is/frett/veitur-semja-vid-securitas-um-uppsetningu-a-160-thusund-snjallmaelum var „samið“ við Securitas á uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum og var samningurinn metinn 1,8 milljarður króna. Hér er því himinn og haf á milli upphæða. Það er fáránlegt að það hafi tekið tæp tvö ár að svara þessari einföldu fyrirspurn.

    Fylgigögn

  20. Lagt fram svar Félagsbústaða, dags. 14. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fjölda leigjenda hjá Félagsbústöðum og Reykjavíkurborg sem greiða meira en 25% af ráðstöfunartekjum í leigu, sbr. 61. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. maí 2021. R20100012

    Fylgigögn

  21.     Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 13. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um bruna í Seljaskóla, sbr. 46. lið fundargerðar borgarráðs frá 27. júní 2021. R19050108

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um endurbætur eftir brunann í Seljaskóla. Í svari kemur fram að húsgögn og búnaður var uppfærður í Seljaskóla eftir brunann en annað er að mestu óljóst, s.s. varanleg framtíðarlausn húsnæðis smíðastofu. Þar er aðstaðan enn í bráðabirgðahúsnæði sem er ófullnægjandi eins og fram kemur og enn eru sömu húsgögn í smíðastofunni. Fulltrúi Flokks fólksins undrar sig á hversu hægt þetta gengur. Langt er liðið frá brunanum. Starfshópur hefur skilað skýrslu með tillögum svo ekki stendur á því. Hvað veldur því að ekki hefur verið unnið markvisst og hraðar að málum? Nú líður senn að skóli hefst á nýju og er óviðunandi að bjóða börnum og starfsfólki upp á áframhaldandi ófullnægjandi aðstæður. Hér verður borgarmeirihlutinn að taka sig á. Þessi mál eru sífellt látin sitja á hakanum.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 13. júlí 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um stöðu þeirra barna sem bíða eftir plássi í Brúarskóla, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 6. febrúar 2020. R19050072

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um hvar börnin sem bíða eftir plássi í Brúarskóla eru stödd og hver sé staða þeirra. Börnin sem bíða eru 19. Fram kemur í svari að ekki hefur losnað pláss á unglingastigi en þar bíða nú 10 nemendur eftir plássi. Fulltrúa Flokks fólksins finnst leitt að sjá að ekki er hægt að segja til um hvenær þessir nemendur komast í Brúarskóla en þeir stunda nú nám í heimaskóla sínum þar sem gera má ráð fyrir að ekki sé hægt að mæta öllum þörfum þeirra enda væru þeir annars ekki á biðlista í Brúarskóla. Skortur á sértækum námsúrræðum hefur verið viðvarandi vandi í Reykjavík. Í „skóla án aðgreiningar” eru börn ekki að fá sérþörfum sínum mætt og líður mörgum þeirra illa í almennum bekk þar sem þau stunda ekki nám meðal jafningja. Fleiri sérúrræði þurfa að koma til eða styrkja skóla án aðgreiningar nægjanlega til að hann reynist fullnægjandi úrræði fyrir öll börn í Reykjavík.

    Fylgigögn

  23. Lagt til að Aron Leví Beck Rúnarsson taki sæti sem 3. varaforseti borgarstjórnar í stað Kristínar Soffíu Jónsdóttur. R18060080
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  24. Lagt til að Aron Leví Beck Rúnarsson taki sæti í mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði í stað Skúla Þórs Helgasonar. R18060083
    Samþykkt.

  25. Lagt til að Skúli Þór Helgason taki sæti í umhverfis- og heilbrigðisráði í stað Kristínar Soffíu Jónsdóttur. R18060088
    Samþykkt.

  26. Lagt til að Sabine Leskopf taki sæti í stjórn Faxaflóahafna í stað Kristínar Soffíu Jónsdóttur. Jafnframt er lagt til að Ellen Jacqueline Calmon taki sæti sem varamaður í stjórninni í stað Sabine. Einnig er lagt til að Skúli Þór Helgason verði formaður stjórnar. R18060108
    Samþykkt.

  27. Lagt til að Aron Leví Beck Rúnarsson taki sæti sem varamaður í stjórn Strætó bs. í stað Kristínar Soffíu Jónsdóttur. R18060112
    Samþykkt.

  28. Lagt til að Sabine Leskopf taki sæti í íbúaráði Laugardals í stað Kristínar Soffíu Jónsdóttur. R18060099
    Samþykkt.

  29. Kosningu í innkaupa- og framkvæmdaráð er frestað. R20030171

  30. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 1., 8., og 15. júlí 2021. R21010004

    Fylgigögn

  31. Lögð fram fundargerð menningar, íþrótta- og tómstundaráðs frá 28. júní 2021. R21010006

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 10. lið fundargerðarinnar: 

    Fulltrúa Flokks fólksins finnst dans- og fimleikahús góð hugmynd enda þótt eigi eftir að útfæra hlutverk hússins. Það skýtur nokkuð skökku við að Leiknir skuli ekki koma þarna að en þeir hafa aðsetur í götunni sem húsið á að standa. Ef horft er til Leiknis þá hefur ekki komið nægjanlega vel fram við Leikni, félag sem berst í bökkum í hverfi sem er krefjandi vegna þess að þar er hæsta hlutfall fólks sem býr við fátækt. Illa hefur gengið að virkja börnin til þátttöku í íþróttir og tómstundir m.a. vegna tungumálaerfiðleika og kannski einnig vegna strangra skilyrða reglna frístundakortsins. Leiknir hefur lengi viljað víkka út starfsemi sína. Í raun lifir félagið vegna þrautseigju starfsmanna. Með því að hleypa ekki Leikni að þessu verkefni er verið að senda því köld skilaboð eftir allt það frábæra starf sem þar hefur verið frá 1973. Þarna er búið að byggja upp frábæra menningu og starf í þágu innflytjenda og nýbúa í hverfinu. Leiknir er sérlega vel metið í hverfinu og kallar það á að borgaryfirvöld sýni því viðhlítandi virðingu og stuðning. Félagið vantar aðstöðu til að geta boðið uppá fjölbreyttara íþróttastarf til að höfða til breiðari hóps barna í því blómstrandi fjölmenningarsamfélagi sem það starfar í.

    Fylgigögn

  32. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 28. júní 2021. R21010015

    Fylgigögn

  33. Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 18. júní 2021. R21010012

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4., 5. og 7. lið fundargerðarinnar: 

    Fulltrúi Flokks fólksins vill bóka við þrjá liði í þessari fundargerð. 4. liður. Farið yfir niðurstöður endurskoðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á mönnun forvarna- og aðgerðasviða Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins m.t.t. uppfyllingar laga, reglugerða og leiðbeininga sem um starfsemina gilda í samræmi við ákvæði brunavarnaáætlunar, sbr. 3 grein í reglugerð. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort slökkviliðið (SHS) uppfylli þessar kröfur og nái að skoða þær eignir sem þeir eiga að gera. Ekki getur verið mikill tími til þjálfunar ef mikið er að gera í verktöku á sama tíma. Liður 5. Drög að aðgerðaáætlun heilbrigðisráðuneytisins fyrir bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2025. Fulltrúi Flokks fólksins bendir á verktaka við sjúkraflutninga er algeng. Eru slökkviliðin að láta ríkið borga stóran hluta verkefna sem sveitarfélögin eiga að gera þ.e.a.s. slökkviliðin? Liður 7. Álagsgreiðslur til heilbrigðisstarfsfólks. Heilbrigðisráðherra ákvað í apríl 2020 að verja einum milljarði í sérstakar álagsgreiðslur fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins áréttaði í bréfi í sama mánuði að sjúkraflutningum væri sinnt af heilbrigðisstarfsfólki hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem sinna sjúkraflutningum enda þeir á forræði ríkisins í verktöku hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þá spyr fulltrúi Flokks fólksins, eru slökkviliðsmenn heilbrigðisstarfsfólk þegar þeir vinna við sjúkraflutninga?

    Fylgigögn

  34. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 11. júní 2021. R21010017

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar: 

    Fram kemur í fundargerð í lið 2 í fundargerð Strætó bs. að sviðsstjóri mannauðs- og gæðamála fór yfir tölfræði úr vinnustaðagreiningu þar sem sérstaklega var spurt um einelti, áreitni og ofbeldi. Ekki kemur fram hverjar niðurstöður voru. Fulltrúi Flokks fólksins finnst að vel hefði mátt segja nokkur orð um hverjar niðurstöður vinnustaðagreiningarinnar voru.

    Fylgigögn

  35. Lagðar fram fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 28. maí og 24. júní 2021. R21010013

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar frá 24. júní: 

    Sorpa hefur ákveðið að leggja 500 króna álagsgjald á hvern ógagnsæjan poka sem viðskiptavinir endurvinnslustöðva skila. Fulltrúi Flokks fólksins finnst þetta aðeins vanhugsað því ekki er alveg ljóst hvað sé átt við með ,,gagnsæum“ pokum. Fulltrúa Flokks fólksins finnst sjálfsagt að hindra notkun svartra plastpoka, en fólk kemur með sorp kannski í taupokum eða pappírspokum, sem ekki eru gagnsæir. Á að leggja gjald á þá líka?

    Fylgigögn

  36. Lögð fram fundargerð skipulags- og samgönguráðs frá 7. júlí 2021. R21010008
    B-hluti fundargerðarinnar er samþykktur.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 31. lið fundargerðarinnar: 

    Það vakti undrun að borgin keypti rándýra þjónustu EFLU til að halda utan um talningu nagladekkja. Verkefni af þessu tagi hefðu starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs vel geta annast, nóg fer nú samt af fjármagni borgarinnar til ráðgjafafyrirtækja. Það er ekki hægt að una við að farið sé svo illa með fé borgarbúa. Fjárhæðin sem EFLA fær fyrir verkið er trúnaðarmál. Borgaryfirvöld vilja ekki að borgarbúar viti hvað þetta kostar mikið. Fulltrúa Flokks fólksins finnst ekki boðlegt að upplýsingum sé haldið leyndum fyrir borgarbúum í allri umræðu meirihlutans um gagnsæi. Svörin við fyrirspurn Flokks fólksins um þessi mál bera það með sér að engin ástæða er til að fá verkfræðistofu til að sjá um talningarnar. Starfsmenn borgarinnar geta auðveldlega séð um þetta og enga sérfræðimenntun þarf til að telja dekk eða halda utan um slíkt verkefni. Hér er augljóslega verið að sóa fé borgarbúa með óþarfa milliliði. Bent er á að einingarverð verkfræðistofunnar er tæpar 15 þúsund/klst. Hver hálftími sem er skráður á samskipti- sennilega eitt símtal, kostar sitt, eða rúmar sjö þúsund krónur.

    Fylgigögn

  37. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 6., 13. og 20. júlí 2021. R21010008
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  38. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 16 mál. R21060272

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 7. lið yfirlitsins:

    Vatnsendasvæðið er gróðursælt svæði. Nú á að leggja veg þvert yfir hæðina og skera hana í tvennt og þar með breyta ásýnd hennar og notagildi til frambúðar. Umhverfismat er frá 2003 en þá var talið að vegalagningin myndi hafa óveruleg áhrif á umhverfi, útivist og hljóðvist. Framkvæmdin mun hins vegar hafa veruleg áhrif á þessa þætti núna. Verkfræðistofur koma ávallt með niðurstöður sem samræmast væntingum Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna. Náttúra, umhverfi og útivistarmöguleikar eru ekki sett í fyrsta sæti þegar kemur að framkvæmdum. Samkvæmt nýju hverfisskipulagi sést að Arnarnesvegur mun liggja þétt upp við fyrirhugaðan vetrargarð. Sleðabrautin sem yngstu börnin munu nota mest mun liggja næst fjögurra akreina stofnbrautinni og tvöföldu hringtorgi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur að skoða þurfi hvaða áhrif mengunin af veginum muni hafa á viðkvæm lungu barnanna sem leika sér í návígi við veginn. Ekkert umhverfismat um það liggur fyrir því að ekki var gert ráð fyrir vetrargarðinum í fyrra umhverfismati sem er tveggja áratuga gamalt. Það getur varla samræmst lýðheilsu sjónarmiðum borgarinnar að setja leiksvæði barna á horn tveggja stofnbrauta með samtals 10 akreinar. Vegurinn er ógn við lýðheilsu íbúa. Vegalagningunni hefur verið mótmælt á öllum skipulagsstigum undanfarin 40 ár. Kallað er eftir nýju umhverfismati.

    Fylgigögn

  39. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. R21060255

    Fylgigögn

  40. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. júlí 2021, varðandi fyrirkomulag atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í komandi alþingiskosningum. R20090044

    Fylgigögn

  41. Lögð fram svohljóðandi tillaga staðgengils borgarstjóra, dags. 20. júlí 2021:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að borgarstjóri fari þess á leit við forsætisráðherra að fram fari heildstæð athugun á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins og eftir atvikum annarra vöggustofa á tilteknu árabili. R21070035

    Samþykkt. 
    Greinargerð fylgir tillögunni.

    Fylgigögn

  42. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins: 

    Borgarráð samþykkir að auka skógrækt á Kjalarnesi með það fyrir augum að auka skjól. Umhverfis- og skipulagsviði verði falið að vinna verkáætlun sem liggi fyrir í byrjun september.

    Greinargerð fylgir tillögunni. R21070158
    Frestað.

    Fylgigögn

  43. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins: 

    Óskað er eftir því að skoðað verði hvort að asbest sé að finna í því húsnæði sem Reykjavíkurborg hefur núna auglýst til sölu í Gufunesi. R21070159

  44. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Óskað er eftir upplýsingum um hversu margir Reykvíkingar greiddu meira en 25% af ráðstöfunartekjum sínum í leigu árið 2020? Einnig er óskað eftir skiptingu eftir hlutföllum, t.d. hversu margir greiddu lægra en 30% ráðstöfunartekna sinna í leigu, svo 30-49%, 50-69% og 70% eða hærra af ráðstöfunartekjum sína í leigu. Einnig er óskað eftir því að fá þetta brotið niður á tegund leigusala, þ.e.a.s. hlutfall sem leigja af einstaklingi á almennum markaði, af ættingjum og vinum, af einkareknu leigufélagi, á stúdentagörðum, af sveitarfélagi eða annarsstaðar. Ef ekki er hægt að fá fram nákvæmar upplýsingar er óskað eftir gróflegu mati eða niðurstöðum úr þeim könnunum eða húsnæðisbótakerfinu sem til eru sem geta varpað ljósi á stöðu leigjenda. Ef nýlegri tölur eru til en frá árinu 2020, svo sem, fyrir fyrra hluta árs 2021 er einnig óskað eftir því að fá þær. Hér er leitast við að greiða stöðu leigjenda og hversu margir eru að greiða hátt hlutfall ráðstöfunartekna sinna í leigu. Ef auðveldara er að greina hópinn með því að skipta leigjendum út frá þeim sem leigja á hinum almenna leigumarkaði og svo hjá hinu opinbera væri gagnlegt að fá þær niðurstöður. Einnig ef auðveldara er að birta svör með því að greina niðurstöðurnar út frá ákveðnum tekjuhópum, líkt og fjallað er um í svarbréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar við svari Sósíalistaflokks Íslands um Stöðu leigjenda í Reykjavík – hlutfall leigu af ráðstöfunartekjum, dags. 29. mars 2021, þá væri gagnlegt að fá það. Fulltrúi sósíalista er einnig að leitast við að sjá hvort að lágtekjuhópar séu að greiða hærra hlutfall ráðstöfunartekna sinna í leigu miðað við aðra tekjuhópa? R20100012

  45. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Lagt er til að Félagsbústaðir í samvinnu við Reykjavíkurborg leiti til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að kortleggja hvað leigjendur eru að greiða hátt hlutfall af tekjum sínum í leigu. Leitað verið til Blokkarinnar, félag leigjenda hjá Félagsbústöðum við úrvinnslu tillögunnar. Hér er minnt á að talið er eðlilegt að leiga fari ekki yfir 25% af ráðstöfunartekjum en fjölmargir leigjendur greiða miklu hærra verð en það og nauðsynlegt að Félagsbústaðir séu meðvitaðir um það verð sem leigjendur þeirra eru að greiða af sínum ráðstöfunartekjum þar sem um tekjulágt fólk er að ræða. R21070160

    Frestað.

  46. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort ekki sé tímabært að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hætti verktöku í sjúkraflutningum þar sem það getur haft áhrif á að Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lögbundin verkefni sbr. 3. gr. reglugerðar um slökkvilið sem er allt slökkvistarf innan og utanhúss, viðbrögð við mengunarslysum og fjölmargt fleira sbr. reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit. Samkvæmt 4. gr. reglugerðar um starfsemi slökkviliða er heimilt er að fela slökkviliði önnur verkefni en þau sem kveðið er á um í 3. gr. Verktakavinna má þó ekki draga úr getu slökkviliðs til að sinna lögbundnum verkefnum. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort þetta tvennt sé ekki ósamrýmanlegt? Ítrekað hefur komið fram að skortur er á mannafla í slökkviliðinu og þegar stórbruni eða mörg útköll bera að höndum, vanti fólk til starfa. Það segir sig sjálft að það hljóta að koma tilfelli þar sem slökkviliðsmaður er ekki til taks til að sinna lögbundnu verki vegna verkefna sem hann hefur fengið leyfi til að taka að sér sem verktaki. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort ekki sé kominn tími til að leggja af þessa verktöku og að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinni einvörðungu lögbundnu hlutverki sínu og hafi þá rýmri tíma til æfinga og þjálfunar starfsfólks síns? R21070161

  47. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins sendi inn fyrirspurnir til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 6. maí sl. um frekari upplýsingar úr starfsánægjukönnun slökkviliðsins á á höfuðborgarsvæðinu. Ekki hafa borist svör og vill fulltrúi Flokks fólksins því ítreka fyrirspurnirnar og að svör berist hið fyrsta. Niðurstöður umræddrar starfsánægjukönnunar komu illa út en þær voru fyrst birtar í nóvember 2020. Þess vegna vildi fulltrúi Flokks fólksins fá nánari upplýsingar um niðurstöðurnar og frekari sundurliðanir. R21030227

  48. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til blásið verði meira lífi í Árbæjarsafn og svæðið þar í kring. Enda þótt eitt og annað sé þar á döfinni fer lítið fyrir Árbæjarsafni í hugum margra. Fulltrúi Flokks fólksins telur að viðburðir sem þar eru mættu vera fleiri. Sem dæmi er dagskrá fyrir skipulagða viðburði aðeins á sunnudögum og þriðjudögum enda þótt safnið sé opið alla daga yfir sumarið. Lagt er til að þarna verði vikulegur markaður og meira um að vera en nú enda bíður svæðið í heild sinni upp á mikla möguleika. Vel mætti hugsa sér að hafa þarna kaffihús og krá ef því er að skipta og fjölbreyttar uppákomur sem laða fólk að og veita því ánægju. Árbæjarsafnshúsin og svæðið allt í kring er einstakt og ætti það að vera metnaður borgarmeirihlutans og þeirra sem hafa umsjón með safninu og svæðinu að sem flestir komi þangað til að njóta húsakynna og umhverfis. Fegurð og saga staðarins í bland við markaði, veitingasölu, og styttri viðburði og fleira í þeim dúr er eitthvað sem laðar að og gefur staðnum líf. Fjölga mætti litlum leiktækjum og stilla upp fleiri afþreyingarmöguleikum sem henta þarna. Fulltrúi Flokks fólksins hvetur borgaryfirvöld að gefa þessu gaum enda svæði sem tilheyrir okkur öllum. R21070162

  49. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Í fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 11. júní 2021 er sagt frá því að sviðsstjóri mannauðs- og gæðamála hafi farið yfir tölfræði úr vinnustaðagreiningu þar sem sérstaklega var spurt um einelti, áreitni og ofbeldi. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá að sjá þessar niðurstöður, ekki síst í ljósi mikils fjölda kvartana sem Strætó bs. berst árlega. Eins og allir vita hanga þessi tveir þættir iðulega saman, líðan og metnaður í starfi og gæði þjónustu. R21070163

  50. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins spyr hver er ávinningur Reykjavíkurborgar að reka fasta starfsmenn með mikla reynslu og ráða inn verktaka í sömu störf? Einnig langar borgarfulltrúann að vita hvernig það má vera að starfsmenn sem sviðið þarf að láta aðra verktaka þjálfa upp sé ódýrara og hagkvæmara en að halda föstum kjarna fastra starfsmanna. Óskað er eftir að fá tölulegar upplýsingar þar sem þessi samanburður er gerður. R21020055

  51. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Sorpa hefur ákveðið að leggja 500 króna álagsgjald á hvern ógagnsæjan poka sem viðskiptavinir endurvinnslustöðva skila. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvað sé átt við með ,,gagnsæjum“ pokum. Fulltrúa Flokks fólksins finnst sjálfsagt að hindra notkun svartra plastpoka, en hvað með pappírspoka sem líka eru ógagnsæir? Þarf ekki að hugsa þetta aðeins meira og dýpra? R21070173

  52. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um kostnað við breytingar á 500 strætóstoppistöðvum sem fá ný nöfn, skipta á út skiltum og uppfæra tölvukerfi. Hvað munu þessar breytingar, skiltabreytingar og fleira þessu tengt kosta í heild sinni? Hvað munu þessar uppfærslur í tölvukerfum kosta, hvers eðlis eru þær og mun það fjármagn vera tekið af 10 milljarða króna innspýtingu til þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Eru þessar uppfærslur unnar af launum starfsmönnum eða verktökum? R21070164

  53. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að gerðar verði breytingar á slóðum þannig að hægt verði einnig að fara með þriggja hjóla barnakerrur um þær. Þessir slóðar (brautir) sem verið er að steypa í nýjum hverfum eru hefðbundnir með tveimur steyptum brautum og tröppum á milli og er því útilokað að fara um þær með þriggja hjóla kerru. R21070165

    Frestað.

  54. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Í Úlfarsárdal eru tröppur víða og hafa börn sem koma hjólandi í skólann þurft að bera hjól sín upp og niður tröppur auk þess sem hjólastígar eru víða krappir. Taka þarf hjólastíga á þessu svæði til endurskoðunar og gera þá þannig að þeir séu aflíðandi og ekki með krappar beygjur. Fulltrúi Flokks fólksins vill taka dæmi frá Nönnubrunni og niður að Dalskóla. Hér er um að ræða tiltölulega nýtt hverfi og er afar óheppilegt að hönnun sé ekki betri en þetta þegar horft er til barna sem fara um hjólandi. Þetta þarf að endurskoða. Tröppur eru auk þess erfiðar fyrir marga aðra t.d. þá sem eru með skerta hreyfigetu, þá sem eru með börn í kerrum og hjólreiðafólk. R21070166

  55. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að skoðað verði að koma upp tennisvelli í Úlfarsárdal í nýju íþrótta-byggingunni. Enginn tennisvöllur er á þessu svæði. Núna eru tennisvellir utanhúss,í Laugardal og Fossvogi. Þá liggja fyrir hugmyndir um tennisvelli við Álfheima og tennishús við hlið íþróttahúsa TBR. Úlfarsárdalur og nágrenni er fjölmennt svæði og því sjálfsagt að hafa sérstaka tennisvallaraðstöðu þar. R21070168

    Frestað.

  56. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins telur nauðsynlegt að borgarmeirihlutinn ræði og bregðist við vaxandi slysatíðni á rafhlaupahjólum eða rafskreppum eins og fulltrúi Flokks fólksins finnst þessi hjól ættu frekar að kallast. Fram hefur komið ítrekað að rafhlaupahjól eru stundum notuð af fólki undir áhrifum áfengis- og/eða vímuefna til að koma sér milli staða í miðbænum eða frá miðbænum og heim til sín eftir eftir skemmtun í bænum. Ekki er hægt að horfa fram hjá þessu vandamáli og hafa aðrar borgir brugðist við m.a. með því að takmarka útleigu þeirra eftir ákveðinn tíma að kvöldi. Fulltrúi Flokks fólksins telur að borgarmeirihlutinn geti ekki setið hjá . Skoða þarf frekari fræðslu og sérstaklega fræðslu í grunnskólum. Skerpa þarf á reglum. Ef heldur sem horfir gæti þurft að herða enn frekar á reglum og aðgengi að rafhlaupahjólum. Skerpa þarf jafnframt enn frekar á að bannað er að hjóla á þeim undir áhrifum áfengis og verði þær reglur brotnar þurfa að vera einhver viðurlög. Annað vandamál er að fólk, sumt hvert skilur þessi hjól eftir á víð og dreif. Nú má iðulega sjá rafhlaupahjól liggja við og á gangstéttum og skapa víða hættu. Samkvæmt umferðarlögum mega rafhlaupahjól eingöngu vera á gangstéttum og göngustígum, ekki á götum. R21070169

    Frestað.

  57. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um af hverju Strætó bs. samþykkir að taka að verkefni fyrir gagnaöflunarfyrirtæki sem felst í því að leyfa að drónum að lenda á strætó? Hlutverk Strætó er að flytja fólk og farangur þess á milli staða. Það er umhugsunarvert að mati fulltrúa Flokks fólksins að Strætó ákveði að eyða kröftum og fjármunum í að prófa einhverjar framtíðarhugmyndir með einkafyrirtækjum. Þótt verkefni sé styrkt dugar styrkurinn sjaldan fyrir öllum kostnaði. Almennur ávinningur er án efa af slíkum verkefnum en af hverju á Strætó að gera slíkt? Til eru víða um heim fyrirtæki sem geta gert þetta. Minnt er á að fyrir nokkrum árum tók Strætó að sér að prófa vetnisvagna fyrir þýsk fyrirtæki sem var þó vissulega nærtækara fyrir Strætó en drónaflutningar en það ævintýri kostaði Strætó mikið fé. Í þessu tilfelli er Strætó notað til að leysa vandamálin við drónaflug, annars vegar til að hlaða sig og hins vegar til að komast leiðar sinnar. Fulltrúi Flokks fólksins vill meina að Strætó eigi að líta sér nær og byrja sem dæmi á að leysa þjónustuvandann en tæplega 3000 þúsund kvartanir berast árlega vegna slakrar þjónustu. R21070170

  58. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup sem birtur var í vikunni ferðast stærsti hluti Íslendinga til vinnu eða skóla á einkabíl. Alls nýta um þrír fjórðu landsmanna sér þennan ferðamáta, en aðrir fara fótgangandi, á reiðhjóli eða með almenningssamgöngum. Niðurstöðurnar eru í takti við það sem mældist í sams konar könnun fyrir þrettán árum sem segir að lítil sem engin breyting hefur átt sér stað í 13 ár. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvernig borgaryfirvöld ætla að bregðast við þessu? Einnig kom fram í niðurstöðum að íbúar höfuðborgarsvæðisins eru líklegri til að keyra en landsbyggðarfólkið. Umferðarteppur í Reykjavík eru margar og íþyngjandi og eru nánast allan daginn á sumum stöðum. Hyggst borgarmeirihlutinn gera eitthvað í þessum málum til að bæta ástandið? R21070171

  59. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins telur framtíð skólamála í Laugardal og Laugarneshverfi óljósa. Fulltrúi Flokks fólksins hefur rætt við íbúa og einstaka starfsmenn skólanna í hverfinu um framtíð skólamála í ljósi þess að næstu ár verður byggt mikið á svæðinu. Skólarnir eru hins vegar sprungnir. Til að „redda“ málum á að stilla upp kennslugámum í hvert horn. Ekkert annað er á teikniborðinu eða fast í hendir þegar kemur að uppbyggingu leik- og grunnskóla. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir ítarlegum upplýsingum um hvað til stendur að gera til lengri tíma eða hvort senda eigi börnin þegar fram líða stundir í skóla utan hverfis, eða halda áfram að planta kennslugámum á auða bletti í kringum skólanna? Það er óspennandi hugsun að hver skóli í Reykjavík verði sem bútasaumur í stað þess að byggja almennilegar, fallegar skólabyggingar sem falla vel að umhverfi og öðru skipulagi hverfisins. R21070172

  60. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað spurt um ferðakostnað æðstu embættismanns/manna þjónustu og nýsköpunarsviðs en fengið í svörum hina og þessa hlekkina og sagt nánast að finna svörin sjálf. Fulltrúi Flokks fólksins hefur reynt að rýna í fundargerðir og hin og þessi svörin í leit að nákvæmum upplýsingum af t.d. ferðum sviðsstjóra þjónustu- og nýsköpunarsviðs síðustu 4 árin. Að fá nákvæmlega þá tölu í samanburði við aðra yfirmenn/sviðsstjóra hefur einfaldlega ekki tekist. Í einu svari, sem sent var borgarfulltrúa Flokks fólksins kom hins vegar fram að sviðsstjóra beri ekki skylda til að upplýsa um þessar tölur en vísa til eldri gagna. Það dugar ekki fulltrúa Flokks fólksins. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur því fram enn á ný fyrirspurn varðandi ferðakostnað æðstu embættismanna Reykjavíkurborgar. Hver er ferðakostnaður hvers sviðs- og skrifstofustjóra í yfirstjórn Reykjavíkurborgar undanfarin 4 ár? Bent er á að eingöngu er verið að spyrja um kostnað hvers og eins embættismanns skrifstofu eða sviðsstjóra en ekki heildarkostnað hverrar skrifstofu eða sviðs. R21050088

Fundi slitið klukkan 11:53

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Skúli Helgason

Alexandra Briem Hildur Björnsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_2207.pdf