Borgarráð - Fundur nr. 5630

Borgarráð

Ár 2021, fimmtudaginn 1. júlí, var haldinn 5630. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Alexandra Briem, Elín Oddný Sigurðardóttir og Eyþór Laxdal Arnalds. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar, auk borgarstjóra, tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 354/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Valgerður Sigurðardóttir, Marta Guðjónsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Daníel Örn Arnarsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Theodór Kjartansson og Ívar Vincent Smárason. Pétur Krogh Ólafsson tók sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 28. júní 2021, varðandi heimildir til notkunar fjarfundarbúnaðar á fundum nefnda og ráða Reykjavíkurborgar. R18060129

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 1. júlí 2021:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 2.000 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,45% í stuttan óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 24 1, en það eru 1.986 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 30. júní 2021. Trúnaðarmerking skjala byggir á 1. mgr. 120. gr., sbr. 4. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 og er trúnaði aflétt með opinberri birtingu upplýsinga um niðurstöðu útboðs í Kauphöll Íslands eftir að þær hafi verið gerðar borgarráði kunnar. Greinargerð fjárstýringarhóps er vinnuskjal sem er ekki birt opinberlega á grundvelli 2. tl. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 140/2012.Trúnaðarmerkt greinargerð fylgir tillögunni.

    Trúnaðarmerkt greinargerð fylgir tillögunni. R20120178
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er borgin að auka skuldir sínar með tiltölulegum stuttum skuldabréfum. Hætt er við að þessar skuldir þurfi að endurfjármagna á næsta kjörtímabili og vextir og vaxtakostnaður verði þá enn hærri. 

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 30. júní 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 30. júní 2021 á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi fyrir Laugaveg 168-174a, Heklureit, ásamt fylgiskjölum. Einnig er lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 30. júní 2021, með yfirliti yfir lagfæringar á uppdráttum. R21060284
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja að auglýsa umfangsmikla uppbyggingu þar sem nú eru bílastæði og byggingar sem tilheyra bílasölunni Heklu. Alls munu rísa þar um 436 íbúðir með verslun og þjónustu á jarðhæð. Uppbyggingin við Heklu er lykilsvæði meðfram þróunarás borgarlínu og því fagnaðarefni að verið sé að auglýsa skipulagið á Heklureit.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er jákvætt að hreyfing sé loks komin á uppbygginu við Heklureit. Í deiliskipulagstillögunni er borgarlína sýnd í miðju vegarins sem er mjög umdeild lega sem myndi takmarka möguleika umferðar, ljóst er að hún verður mun meiri með 463 nýjum íbúðum á svæðinu.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista leggur áherslu á að ekki þurfi aukna hóteluppbyggingu heldur ætti að leggja alla áherslu á uppbyggingu íbúða og fyrst og fremst félagslega uppbyggingu.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. júní 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 23. júní 2021 á deiliskipulagi fyrir lóðirnar við Laugaveg 168-176, ásamt fylgiskjölum. R21060276
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Við hlið Heklureits er einnig verið að samþykkja uppbyggingu nýrra íbúða meðfram þróunarás Borgarlínu. Niðurrif á baklóðum er heimilað og viðbyggingar við núverandi húsnæði sömuleiðis. Í tillögunni er hugað sérstaklega að skjólmyndun og sólarljósi.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista leggur áherslu á að ekki þurfi aukna hóteluppbyggingu heldur ætti að leggja alla áherslu á uppbyggingu íbúða og fyrst og fremst félagslega uppbyggingu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar við Laugaveg 168-176, þar sem gert er ráð fyrir að lóðin Laugavegur 176 verði nýtt undir gististarfsemi og verslun, en aðrar lóðir á skipulagssvæðinu eru skilgreindar sem lóðir án heimilda. Íbúaráð og fleiri eru á móti 8-hæða byggingu og var fallið frá því og fara á niður í 7. Hvað sem því líður, verður útsýnisskerðing og mjög skiljanlegt að íbúar séu svekktir yfir því. Það skiptir vissulega máli hvernig húsin ,,mjókka upp” þegar hugað er að skuggamyndum og áhrifum á vind. Inndregnar efri hæðir minnka t.d. slík áhrif. Útsýni er takmörkuð auðlind og afstöðu þarf að taka til þess hverjir eiga að njóta þess. Kvartanir vegna útsýnisskerðingar eru margar, en eflaust fá einhverjir aðrir betra útsýni. Nokkur vandræðagangur virðist vera í samgöngumálunum og örðugt að búa til stæði fyrir rútur. Fram kemur í niðurstöðum samgöngumats að 63 bílastæði ættu að vera á lóðinni, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða. Hjólastæði skulu vera á bilinu 62-93. Fleiri hjólastæði eru en bílastæði sem er athyglisvert.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 30. júní 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 30. júní 2021 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut 34/Ármúla 31, reitur 1.265, Orkureitur, ásamt fylgiskjölum. R21060285
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Laugavegur og Suðurlandsbraut er einn af lykilþróunarásum borgarlínu og er hér verið að samþykkja að auglýsa deiliskipulag á Orkureit. Gamla Orkuhúsið fær að njóta sín innan um þétta byggð fyrir nýjar íbúðir með borgarlínustöð í grenndinni.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er jákvætt að sjá mögulega uppbyggingu við Orkureit sem hefur mikla möguleika. Rétt er að benda á að atvinnuhúsnæði verður um 5.000 m² minna en nú er og kallar því að atvinnuhúsnæði annars staðar á höfuðborgarsvæðinu á móti. Í kynningum borgarinnar er gjarnan rætt um nýtt atvinnuhúsnæði en oft gleymist að gera ráð fyrir því atvinnuhúsnæði sem víkur á þéttingarreitum. Hætt er við að atvinnuhúsnæði dreifist annað vegna þessa. Þá vekur athygli að ráð er gert fyrir því að borgarlína verði í miðju Suðurlandsbrautar, en sú útfærsla er mjög umdeild. Með þessari útfærslu væru vinstri beygjur ómögulegar og því lengra fyrir akandi að fara. Mikilvægt er að afkastageta Suðurlandsbrautar verði ekki skert, en hér er gert ráð fyrir að 436 íbúðir sem kalla á aukna umferð.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins óttast að mikil þrengsli verði á þessum reit. Þar sem fjöldi verslana og fyrirtækja hefur flutt í Ármúlann undanfarin ár, er umferð nú orðin töluvert mikil um svæðið. Umferð hefur aukist vegna t.d. lokana í miðbænum og þrenginga á Grensásveg. Þarna kemur mikið byggingamagn, byggja á allt að 450 íbúðir og atvinnuhúsnæði rísi t.d. á lóðinni Suðurlandsbraut 34/Ármúli 31. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af því að þarna verði mikil þrengsli, svo mikil að allt eins lítur út að útiloka eigi akandi umferð um svæðið. Ekki liggur nógu skýrt fyrir hvaða áhrif breytingar á lóðinni Suðurlandsbraut 34/Ármúli 31 muni hafa á umferð og rými vegfarenda. Fulltrúa Flokks fólksins hafa einnig borist upplýsingar um að Reykjavíkurborg áformi breytingar á Ármúlanum ofar í götunni, á milli Vegmúla og Selmúla. Ekki fékkst svar að þessu sinni hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á þeim hluta Ármúla af hálfu skipulagsyfirvalda.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 21. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir vegna breytinga og endurbóta á Barónsstíg við Sundhöll Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 30 m.kr. R21060195
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Um er að ræða endurbætur við Sundhöll Reykjavíkur. Gerð sér stæðis fyrir skólarútur við laugina, gerð hjólastæða, stæði fyrir hreyfihamlaða og bílastæða með rafhleðslustöðvum. Þá verða snjóbrædd svæði stækkuð til að bæta aðgengi og umferðaröryggi. Gert er ráð fyrir framkvæmdum verði lokið í október nk.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við lagfæringar á aðgengi strætóbiðstöðva árið 2021, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 40 m.kr. R21060281
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að fara í endurbætur og lagfæringar á tólf strætóbiðstöðvum en framkvæmdirnar taka mið af ástandsúttekt á aðgengi strætóbiðstöðva sem gerð var sumarið 2020. Framkvæmdum er forgangsraðað samkvæmt ástandsúttekt auk fjölda farþega sem fara um hverja biðstöð.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að hverfa frá þeirri stefnu að strætóstoppistöðvar stoppi umferð með því að hafa ekki útskot fyrir strætisvagna.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Frábært er að sjá að bæta eigi aðgengi að strætóbiðstöðvum en staðan er samt sú að aðgengi er ábótavant á allt of mörgum biðstöðvum sem ekki á að bæta strax samkvæmt þessari tillögu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar að laga eigi nú aðgengi að strætóbiðstöðvum. Um er að ræða endurbætur og lagfæringar á 12 strætóbiðstöðvum. Framkvæmdir taka mið af ástandsúttekt á aðgengi strætóbiðstöðva sem gerð var sumarið 2020. Hálfnað er verk þá hafið er. Um 500 stöðvar þarfnast endurbóta og viðgerða bæði hvað varðar aðgengi og yfirborð. Samkvæmt kynningu sem flutt var í skipulags- og samgönguráði er aðgengi viðundandi á 11 stöðvum af 556 stöðvum. Þessi mál hafa verið í miklum ólestri svo lengi sem er munað. Aðgengi og yfirborðsvandi stétta við strætóbiðstöðvar hefur auðvitað komið verst niður á fötluðu fólki. Ástandið er það slæmt að reikna má með löngum tíma sem það tekur að gera ástandið viðunandi, hvað þá fullnægjandi.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir í nýbyggingahverfum árið 2021, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 120 m.kr. R21060279
    Samþykkt. 

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við gerð göngu- og hjólastíga ásamt gerð hljóðmanar við lóðir nr. 72-74 og nr. 76 við Suðurlandsbraut, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 40 m.kr. R21060282
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hjólreiðaáætlun og Samgöngusáttmáli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu við ríkið gerir hvorutveggja ráð fyrir að fjölga hjólastígum gríðarlega. Þessi framkvæmd gerir ráð fyrir göngu- og hjólastígum frá göngubrú yfir Miklubraut á móts við Rauðagerði til tengingar við stíga við Steinahlíð.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við nýjar leikskóla að Kleppsvegi 150-152 vegna verkefnisins Brúum bilið, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 989 m.kr. R20110116
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Húsnæðið við Kleppsveg 150-152 var keypt á 642.300.000. Þá lá fyrir kostnaðaráætlun upp á 367 milljónir, en þó var talið að kostnaðurinn gæti orðið „600 milljónir þegar allt er yfirstaðið“, eins og það var orðað. Heildarkostnaður átti að vera 1.200 milljónir með kaupvirði og þótti það gríðarlega hátt verð. Nú liggur fyrir önnur kostnaðaráætlun þar sem stefnir í að kostnaður við endurbætur verði 989 milljónir. Heildarkostnaður er þá kominn í 1.425 milljónir króna. Milljarð þarf í að laga þetta húsnæði sem var keypt fyrir 600 milljónir króna.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Enn eitt fjármálaklúðrið. Fyrst voru keyptir ónýtir hjallar á 600 milljónir og síðan hefur kostnaðurinn farið algjörlega úr böndunum. Frumkostnaðaráætlun gerði ráð fyrir 600 m.kr. fyrir endurbætur á húsnæðinu og lóð leikskóla eða samtals 1.252 m.kr. með kaupum á öllu húsnæðinu. Kostnaðaráætlun II fyrir endurbætur á húsnæði og lóð er 989 m.kr. og er umframkeyrsla á verkefninu því tæpar 400 milljónir. Nú hefur komið í ljós að kostnaður pr. leikskólabarn er um 3 milljónum dýrara í þessu verkefni en ef farið hefði verið i nýbyggingu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að nýr leikskóli skuli koma í Laugardal og Vogum enda mikil þörf á. Vanda þarf til verka og vissa þarf að ríkja um að þetta húsnæði sé gott og heilt, laust við myglu og raka. Halda á innra skipulagi á efri hæð að Kleppsvegi 152 að mestu óbreyttu, en erfitt er að halda í innveggi sökum nauðsynlegra lagfæringa á gólfum eins og segir í gögnum. Skýrsla frá EFLU 2017 staðfestir eldri rakaskemmdir í húsnæði sem ekki er búið að bregðast við að fullu. Einnig eru viðvarandi lekar frá óþéttu gluggakerfi og saga um leka frá þaki niður í gifsloft og veggi. Sýni staðfesta myglu- og örveruvöxt í húsnæði. Kostnaðarmat hefur hækkað og einnig sá hluti sem snýr að óvissu, auka- og viðbótarverkum sem áætlað er nú 129.000.000. Heildarkostnaður er 989.000.000 en var 600 m.kr. samkvæmt fyrra mati frá umhverfis- og skipulagssviði sem hafði unnið greiningu og frumathuganir varðandi breytingar. Fulltrúi Flokks fólksins vonar að tryggt verði að leikskólinn verði algerlega laus við myglu og raka en spyr jafnframt hvort ekki sé hægt að áætla óvissuþætti vegna auka- og viðbótarverka nákvæmara.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Rétt er að árétta að ekki er um framúrkeyrslu að ræða, heldur er verið að samþykkja verkefnið byggt á ítarlegu kostnaðarmati sem nú liggur fyrir, en fyrri áætlun var frumkostnaðaráætlun og ekki óeðlilegt að einhver hækkun verði. Það ruglar opinbera umræðu um umframkeyrslu að blanda því saman að samþykkt kostnaðaráætlun sé hærri en upphaflega hefði mátt vona, og því þegar verkefni fara fram úr samþykktri kostnaðaráætlun.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar að nýr leikskóli skuli vera í bígerð. Tvennt er þó áhyggjuefni; og það er, að verið er mögulega að byggja að hluta til úr myglu- og rakamenguðu húsnæði. Kostnaður er engu að síður mun meiri en frumáætlun sagði til um eða um 75% hærri sem segir nákvæmlega það, að jafn góður kostur hefði verið að rífa það sem fyrir var og byggja allt frá grunni. 

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við nýjan leikskóla í Safamýri 5 vegna verkefnisins Brúum bilið, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 752 m.kr. R21060302
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er uppfærð kostnaðaráætlun 74% hærri en upphafleg áætlun. Líkt og í máli númer 10 má ætla að borgin hefði ekki farið í verkefnið ef fjárhagsáætlun hefði verið rétt. Óvissuferðir eru dýrar.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er á ferðinni enn eitt fjármálaklúðrið. Frumkostnaðaráætlun var 433 milljónir en kostnaðaráætlun II hljóðar upp 752 milljónir og er því um 75% yfir kostnaðaráætlun. Framúrkeyrslan er 319 milljónir. Á fundinum voru kynntar endurbætur á húsnæði sem hýsa á tvo leikskóla í borginni og er samanlögð framúrkeyrsla beggja verkefna rúmar 700 milljónir. Það sjá allir að kostnaðargreiningar og fjárhagslegt framkvæmdamat er í molum hjá þeim sem stjórna borginni. Engar fjárhagsáætlanir standast. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Nýr leikskóli í Safamýri 5, kostnaðaráætlun. Eins og kemur fram í gögnum var verkefnið á frumstigum innréttingarverkefni, þar sem koma átti fyrir leikskóla í eldra húsnæði með lágmarksbreytingum. Markmið verkefnisins var umfram allt að tryggja heilsusamlegt og gott húsnæði fyrir nýjan leikskóla. Nú er ljóst að ef húsnæði á að þjóna nýju hlutverki sínu á fullnægjandi máta þarf að nálgast verkefnið með öðrum og kostnaðarsamari hætti, en umfang og kostnaður verksins svipar til nýframkvæmdar. Í framhaldi af þessu veltir fulltrúi Flokks fólksins fyrir sér hvort ekki hefði átt að ákveða strax að byggja nýtt hús frá grunni.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki tillögu að úthlutun úr styrktarsjóði fyrir fjöleignarhús til uppsetningar á hleðslustöðvum fyrir rafbíla, ásamt fylgiskjölum. R21060277
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja styrki til húsfélaga um uppsetningu rafhleðslu við fjölbýli. Um er að ræða húsfélögin við Sóltún, Barðastaði og Helluvað. Húsfélög eru hvött til að sækja um úr styrktarsjóði fyrir fjöleignahús um uppsetningu rafhleðslustöðva.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  13. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 29. júní 2021, að rammaúthlutun Reykjavíkurborgar 2022, ásamt fylgiskjölum. Greinargerð fylgir tillögunni. R21010107
    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Nú er gert ráð fyrir hagræðingu sem nemur 1% af launakostnaði og á að vera jafnt yfir öll fag- og kjarnasvið borgarinnar ásamt miðlægri starfsemi. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að halda eigi áfram að hafa 0,5% hagræðingu á sviðum eins og skóla- og frístundasviði og velferðarsviði. Þessi svið berjast í bökkum enda þau svið sem eru í beinustu tengslum og þjónustu við borgarbúa. Þess í stað mætti hækka hagræðingarkröfu á þjónustu- og nýsköpunarsvið um meira en helming, sem ekki er betur séð að hafi bruðlað og nánast sóað fjármagni borgarbúa í alls konar tilraunaverkefni sem engin þörf er á í þessum mæli.

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 22. júní 2021, varðandi forsendur fjárhagsáætlunar 2022 og fimm ára áætlunar 2022-2026. R21010107

    Halldóra Káradóttir og Erik Tryggvi Striz Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  15. Lagt fram trúnaðarmerkt mánaðarlegt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar-apríl 2021, dags. 1. júlí 2021. R21010261

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

  16. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 29. júní 2021, að viðaukum við fjárhagsáætlun 2021. Greinargerðir fylgja tillögunum. R21010107
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki drög að samningi um sölu á hlutafé Reykjavíkurborgar í Neyðarlínunni ohf., ásamt fylgiskjölum. R19010192
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er eðlilegt að Reykjavíkurborg fari úr rekstri Neyðarlínunnar, enda á borgin að einbeita sér að eigin rekstri. Það er nægt verkefni, enda vandinn ærinn. Skemmst er að minnast þess að Neyðarlínan krafði borgarfulltrúa um afsökunarbeiðni eftir uppákomu í fjölmiðlum á síðasta ári. Við þeirri beiðni var ekki orðið. Ljóst er að sambúð sem þessi gengur ekki upp. 

    Borgarráðsfulltrúi Pírata leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Vorið 2020 ályktaði mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð Reykjavíkur um hvatningu til stjórnar Neyðarlínunnar um að framkvæma óháða úttekt á verkferlum og vinnubrögðum í tengslum við móttöku erinda. Það var í kjölfar gagnrýni á störf Neyðarlínunnar sem fram hafði komið í opinberri umræðu. Í svari Neyðarlínunnar kom fram að verkferlar væru í sífelldri endurskoðun, sem hafi farið fram í kjölfar áðurnefndrar umræðu. Ráðið bauð stjórn Neyðarlínunnar í kjölfarið að fylgja svarinu eftir á vettvangi ráðsins og eiga samtal um ýmis atriði málsins sem ekki voru talin fyllilega útskýrð, meðal annars um almenna fræðslu til starfsfólks um stöðu minnihlutahópa. Það boð var ekki þegið. Reykjavíkurborg tekur slíka fræðslu alvarlega meðal síns starfsfólks og hjá þeim fyrirtækjum sem hún er eigandi að. Mikilvægt er að hafið sé yfir allan vafa að verklag Neyðarlínunnar byggi á virðingu fyrir þeim sem leita þurfa á náðir hennar og endurspegli hluttekningu og skilning á aðstæðum þeirra. Vegna þess hve lítinn hlut Reykjavíkurborg á í Neyðarlínunni er takmarkað hve mikil áhrif borgin getur haft á störf fyrirtækisins, en ábyrgð á þeim dreifist með dreifðu eignarhaldi. Í því ljósi er þessi tillaga um einfaldað eignarhald samþykkt í þeirri von að það stuðli að jákvæðri þróun í störfum Neyðarlínunnar.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðauka við leigusamninga vegna COVID-19, ásamt fylgiskjölum. R20030260
    Samþykkt. 

    Halldóra Káradóttir og Óli Jón Hertervig taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 29. júní 2021, þar sem borgarráði er tilkynnt að Bloomberg Philanthropies verður bakhjarl Reykjavíkurborgar í stafrænni vegferð hennar. R20080035

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er um að ræða mikla viðurkenningu á markmiðum og metnaði Reykjavíkurborgar í stafrænni umbreytingu. Reykjavík var valin sem ein af tveimur evrópskum borgum úr hópi borga til þátttöku í verkefninu „Build back better“ ásamt Amsterdam, Bogotá, Mexíkóborg, San Francisco og Washington D.C og fylgdi veglegur fjárhagslegur stuðningur upp á tæpar 300 m.kr. Verkefnið sem leitt er af Bloomberg Philantrophies og Harvard háskóla er ætlað að hraða stafrænni umbreytingu svo bæta megi líf og lífsgæði jarðarbúa í kjölfar heimsfaraldurs. Á kjörtímabilinu hefur margt verið gert sem hefur stutt við þessa viðurkenningu. Nýtt svið þjónustu og nýsköpunar var meðal annars sett á laggirnar með aukinni áherslu á stafræna umbreytingu í öllu kerfinu. Stafrænni umbreytingu og nútímavæðingu þjónustu hefur verið flýtt og sérstöku átaki hrint út vör með því markmiði að nýta tækni og hugvit til að nútímavæða þjónustu á forsendum íbúans til að minnka vesen, minnka sóun og minnka mengun. Nú er búið að setja á laggirnar stafræn teymi með stafrænum leiðtogum á öllum sviðum. Við höldum ótrauð áfram.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun: 

    Það er á mörkum þess að vera löglegt að Reykjavíkurborg hafi heimildir til að taka við gjafafé frá Bloomberg Philanthropies samtökunum upp á 300 milljónir. Með móttöku þessa fjármagns eru erlendir aðilar að skipta sér af og hafa áhrif á innanborgar- og innanríkismál. Slík lagaheimild er ekki til staðar sbr. umræður um slíkt þegar ESB umsóknin var lögð inn og reynt var að koma fjármagni að utan í kynningaráróður fyrir sambandið hér á landi.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Reykvíkingar eru rúmlega 133.000 talsins. Þegar hefur verið kynnt að það sem er kallað „stafræn umbreyting“ komi til með að kosta 10 milljarða á næstu þremur árum. Það gerir 300.000 kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu í borginni. Ekki nóg með það heldur hefur Bloomberg Philanthropies, í eigu Michael R. Bloomberg, „valið“ Reykjavíkurborg til þátttöku í verkefninu „Build Back Better“ sem ætlað er að hraða stafrænni umbreytingu svo bæta megi líf og lífsgæði jarðarbúa í kjölfar heimsfaraldurs. Í hvaða martröð erum við Reykvíkingar komin? Hvaða mikilmennskubrjálæði hefur gripið borgarstjóra? Hvaða erindi á Reykjavíkurborg í þetta kompaní með borgum í Kólumbíu og Mexíkó? Manni fallast alveg hendur yfir gengdarlausum rándýrum gæluverkefnum.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hvað sem allri stafrænni umbreytingu líður í rafrænu kerfi borgarinnar og mikilvægi hennar þá einkennist þetta bréf borgarstjóra af nokkru oflæti. Gengist er upp í stafrænum viðurkenningum sem skýtur skökku við þegar ekki allir borgarbúar hafa fæði, klæði og húsnæði. Hér er það stafræna vegferðin sem virðist skipta öllu máli hjá meirihlutanum. Áður hefur fulltrúi Flokks fólksins bókað í þá veru að borgarstjóri og meirihlutinn er ekki að fá góða ráðgjöf í þessum málum. Markmiðin í stafrænni umbyltingu borgarinnar eru óljós og ávinningur ekki skilgreindur. Fulltrúi flokks fólksins vonar að borgarstjóri nái áttum þegar hann horfir á 10 milljarða innspýtingu í stafræn verkefni hverfa í mörg afar óljós tilraunaverkefni. Á meðan getur borgin varla sinnt lögbundinni þjónustu við börn. Kostnaður við rekstur skóla- og frístundasvið og velferðarsviðs er vanáætlaður og berjast þessi svið í bökkum. Tæplega 1100 börn bíða eftir fagþjónustu skóla. Sjónir hafa tapast á hvað skiptir mestu máli í borginni sem ætti að vera fólkið og þarfir þess fyrst og síðast. Hvað varðar þennan samning um stuðning Bloomberg er eftir því tekið að aðeins tvær borgir í norður Evrópu eru þátttakendur. Meðal þátttakenda er hins vegar að finna Kólumbíu og Mexíkó.

    Fylgigögn

  20. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. júní 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarstjóra verði falið að undirrita samkomulag um endurnýjun á þátttöku Reykjavíkurborgar í sáttmála sveitarstjóra í Evrópu um loftslagsmál og orku, Covenant of Mayors for Climate and energy, Europe. Reykjavíkurborg hefur verið aðili að sáttmálanum og forverum þess síðan 2011. Endurnýjun þýðir að Reykjavíkurborg skuldbindur sig til að aðgerðir borgarinnar endurspegli metnaðarfyllsta markmið Parísarsáttmálans um að hiti á jörðinni hækki ekki umfram 1,5 °C.

    Greinargerð fylgir tillögunni. R21060271
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Um er að ræða staðfestingu á alþjóðlegu loftslagssamstarfi sem borgin hefur tilheyrt árum saman. Tímaáætlun verkefnisins er nú að renna út og því eru heitin endurnýjuð um það að borgin taki þátt í því að ná metnaðarfyllstu markmiðum Parísarsáttmálans.

    Fylgigögn

  21. Lagt fram bréf mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 28. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki drög að nýjum reglum um verklag vegna uppljóstrunar starfsmanna um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum. R21010268
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Vernd uppljóstrara snýst um aukið aðhald með lýðræðislegum og faglegum vinnubrögðum, að tryggja almannahagsmuni og stuðla að auknu trausti á stjórnsýsluna. Reykjavíkurborg er metnaðarfull þegar kemur að vernd uppljóstrara og gengur með sinni innleiðingu enn lengra en lögin um vernd uppljóstrara kveða á um með reglum, verkferlum og nýrri uppljóstrunargátt. Gáttin á að tryggja örugg samskipti við uppljóstrara þar sem hægt verður að senda inn nafnlausar ábendingar. Þetta er hluti af umfangsmikilli vegferð Reykjavíkurborgar sem snýr að því að styrkja eftirlitsumhverfið, auka gagnsæi og réttindavernd borgaranna.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Meirihlutinn leggur til að borgarráð samþykki meðfylgjandi drög að nýjum reglum um verklag vegna uppljóstrunar starfsmanna um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi Reykjavíkurborgar. Þetta eru mikilvægar reglur að mati fulltrúa Flokks fólksins. Því er fagnað jafnframt að þær ná til allra þeirra sem eru í þeirri aðstöðu að geta orðið vitni að meintu lögbroti eða ámælisverðri háttsemi í starfsemi borgarinnar. Þetta þýðir að ef kjörinn fulltrúi verður vitni að eða hefur grunsemdir um mögulega sviksemi í borgarkerfinu eða meint lögbrot/ámælisverða hegðun og upplýsir um það, þá nýtur hann jafnframt verndar samkvæmt ákvæðum laga um vernd uppljóstrara og reglna þessara.

    Elín Blöndal og Sigrún Jóhannesdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 21. júní 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs og velferðarráðs frá 8. júní 2021 á tillögu um tímabundna fjölgun sérfræðinga til að vinna úr áhrifum COVID-19 á börn og unglinga, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. júní 2021. R21060073
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Brugðist er við mikilli eftirspurn eftir þjónustu sálfræðinga og talmeinafræðinga í skólaþjónustu með stórátaki, sem nú er samþykkt 140 m.kr. aukafjárveiting fyrir. Þessi fjárveiting mun þjóna allt að 650 börnum á komandi ári. Sterkar vísbendingar eru um að tilfinningalegur vandi barna hafi aukist á tímum heimsfaraldurs COVID-19 og hefur hlutfall barna, þar sem tilfinningalegir erfiðleikar eru aðalástæða tilvísana til skólaþjónustu aukist um rúm 300% frá 1. janúar 2020 – 1. maí 2021. Þessu ástandi þarf að bregðast hratt við, til að vandinn fá ekki að vaxa og nýta til þess utanaðkomandi sérfræðinga sem geta strax tekið við nýjum verkefnum.

    Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi sósíalista styður efni tillögunnar en vill ganga lengra. Mikilvægt er að börn séu ekki að bíða til lengdar eftir þjónustu. Þann 1. maí sl. biðu 1.033 börn eftir fyrstu þjónustu, 525 börn eftir þjónustu sálfræðings og 430 eftir þjónustu talmeinafræðings. Tillagan um tímabundna fjölgun sérfræðinga til að vinna úr áhrifum COVID-19 á börn og unglinga, gerir ráð fyrir 140 m.kr. fjárheimild. Áætlað er að fjárveitingin dugi til að veita allt að 650 börnum þjónustu á 12 mánaða tímabili. Sérfræðingar sem starfa nú á þjónustumiðstöðvum munu jafnframt vinna við að þjónusta börn á biðlistunum til að hægt sé að vinna á honum. Fulltrúi sósíalista hefur áhyggjur af því að 140 m.kr. dugi ekki.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Nú á að gyrða sig í brók og hefjast handa við að ráðast til atlögu gegn löngum biðlistum barna eftir fagþjónustu. Sálfræðingar eiga þó ekki að hafa aðsetur innan skólanna eins og fulltrúi Flokks fólksins hefði viljað sjá og hefur ítrekað lagt til. Það er auk þess vilji margra skólastjórnenda enda þjónar slíkt fyrirkomulag best börnum og starfsfólki. Hér talar fulltrúi Flokks fólksins af 10 ára reynslu sinni sem skólasálfræðingur. Nú bíða 1.068 börn eftir þjónustu fagfólks skóla. Biðlistinn hefur verið að lengjast jafnt og þétt síðustu árin og enn meira í COVID. Börn sem bíða eftir þjónustu talmeinafræðings eru 434. Fulltrúi Flokks fólksins hefur frá upphafi kjörtímabils barist fyrir því að fagfólki verði fjölgað og að farið verði markvisst í að stytta biðlista barnanna en talað hefur verið fyrir daufum eyrum. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar vissulega að stíga eigi þetta skref. Hins vegar hefur dýrmætur tími glatast. Fyrir tugi barna sem hafa verið á biðlistum er ansi seint í rassinn gripið. Þau hafa beðið mánuðum, jafnvel árum með vandamál sín óleyst í þeirri von að brátt komi nú röðin að þeim og þau fái fullnægjandi þjónustu. Þessi fjárveiting er sögð duga fyrir 650 börn, sem er um helmingur af börnum á biðlistanum

    Helgi Grímsson og Regína Ásvaldsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  23. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 29. júní 2021, varðandi hámarksfjölda reykvískra nemenda í alþjóðadeild Landakotsskóla, ásamt fylgiskjölum. R21060293
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Alþjóðaskóli Landakotsskóla sinnir mikilvægu starfi og er með sjálfstæða starfssemi svo sem sérstaka námsskrá og kennara. Það eru því rök fyrir því að styðja myndarlega við starfssemi Alþjóðaskólans enda í takt við stefnur borgarinnar. Þessi starfssemi eykur samkeppnishæfni borgarinnar og ætti því að vera í meiri forgangi en verið hefur.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  24. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 29. júní 2021, varðandi hámarksfjölda fimm ára barna með lögheimili í Reykjavík í Skóla Ísaks Jónssonar, ásamt fylgiskjölum. R21060289
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það er mikilvægt að sjálfstætt starfandi skólar njóti sannmælis í borginni, enda sinna þeir mikilvægu starfi. Enn hallar á að jafnræði sé meðal skóla og skerðir þessi mismunun möguleika barna til menntunar, enda er fjölbreytt skólastarf líklegra til þess að börn finni hæfileikum sínum og draumum farveg. Þá er styrkur að því að hafa ekki einhæft rekstrarform í skólum bæði fyrir nemendur og kennara. Það ætti að efla sjálfstætt starfandi skóla. 

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  25. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 29. júní 2021, varðandi hámarksfjölda nemenda með lögheimili í Reykjavík í Suðurhlíðarskóla, ásamt fylgiskjölum. R21060290
    Samþykkt. 

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  26. Lagt fram bréf skóla- og frístundaráðs, dags. 23. júní 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2021 á tillögu um hámarksfjölda reykvískra nemenda í skólum utan Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum. R21060229
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  27. Lagt fram bréf skóla- og frístundaráðs, dags. 23. júní 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2021 á tillögu um vitundarvakningu um loftslagsmál, ásamt fylgiskjölum. R21060231

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að stunda ekki pólitískan rétttrúnað eða heilaþvott í grunnskólum Reykjavíkur sem byggir á hræðsluáróðri. Minnt er á að börn í Vinnuskóla Reykjavíkur voru fyrir stuttu æfð í að útbúa mótmælaskilti og send í kröfugöngu og fóru stjórnendur Vinnuskólans þar langt út fyrir hlutverk sitt. Grunnskólar eru skólar. Í 13. gr. laga um grunnskóla segir: „Nemendur eiga rétt á því að njóta bernsku sinnar í öllu starfi á vegum skólans.“ Kvíði og vanlíðan er algeng hjá grunnskólabörnum og ekki er á það bætandi að bæta við „loftslagskvíða“ í skyldunámi.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  28. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 22. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að tilraunaverkefni um íbúaráð verði framlengt til 1. október 2021, ásamt fylgiskjölum. R19100342
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Íbúaráð hafa verið tilraunaverkefni allt kjörtímabilið. Tilraunin hefur verið umdeild, enda lítið lýðræði þegar einfaldur meirihluti ræður för. Engin skýring er gefin fyrir því af hverju þetta sé áfram tilraunaverkefni, enda engin framvinduskýrsla, eða úttekt hlutlauss aðila á verkefninu árum saman. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það er sjálfsagt að framlengja verkefnið um ný íbúaráð vegna COVID. Hitt er, að það er nauðsynlegt að gera breytingar á þeim þannig að þau séu meira fyrir fólkið í borginni. Íbúaráðin eru alltof pólitísk og á minnihlutinn í þeim ekki nógu sterka rödd. Hugsa þarf íbúaráðin sem rödd borgarbúa og þurfa ráðin að hlusta á íbúana og taka mál inn á fundina sem óskað er eftir. Opna á fundina fyrir íbúa sem óska eftir að koma á fund og ræða ákveðin mál. Íbúar hafa margir sagt að þeir hafi átt erfitt með að ná til íbúaráðanna og að ekki hafi verið á þá hlustað. Nærtækast er að taka dæmi um íbúaráð Breiðholts. Þar var ítrekað reynt að koma máli til umfjöllunar ráðsins; fyrirhugaður 3. áfangi Arnarnesvegar. Vinir Vatnsendahvarfs reyndu að fá sett á dagskrá íbúaráðs Breiðholts umræðu um nauðsyn þess að fá nýtt umhverfismat í stað þess að byggja eigi á 18 ára gömlu mati en það gekk erfiðlega. Meirihlutinn í ráðunum er valinn af meirihlutanum í borginni og það má ekki vera þannig að erfitt eða ómögulegt verði að koma málum á dagskrá ef meirihlutanum í borginni hugnast þau ekki.

    -    Kl. 12.57 víkja Elín Oddný Sigurðardóttir og Marta Guðjónsdóttir af fundinum. 

    Fylgigögn

  29. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 29. júní 2021, varðandi viðræður við Seltjarnarnesbæ um fjölnota knatthús KR í Frostaskjóli, ásamt fylgiskjölum. R21050279

    Fylgigögn

  30. Lagt fram svar menningar- og ferðamálasviðs, dags. 28. júní 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um aðkomu Reykjavíkurborgar að nýyrðasamkeppnum, sbr. 54. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. júní 2021. R21060023

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spurði um aðkomu borgarinnar að nýyrðasamkeppnum s.s. kostnað við þessa ákveðnu samkeppni (staycation) og af hverju mismunandi háar greiðslur voru til fjölmiðla og loks hvað hefur borgin greitt mikið til samkeppni af þessu tagi sl. 5 ár. Segir í svari að umrædd markaðsherferð sé mun umfangsmeiri en orðaleikurinn sjálfur og að „með herferðinni er verið að styðja við fyrirtæki, menningarstarfsemi og ferðaþjónustu í borginni í kjölfar heimsfaraldursins í samræmi við ákvörðun borgarráðs frá mars 2020.“ Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta vera loðið svar. Segir einnig að fyrir þessu sé ekki fordæmi. Heildarkostnaður er 2.332.942. Fulltrúa Flokks fólksins finnst margt í þessu ekki ganga upp. Þetta er kannski skemmtilegt verkefni en þegar hugsað er til erfiðrar stöðu hjá mörgum í borginni er erfitt að skilja hvernig hægt er að réttlæta að verja á þriðju milljón í verkefni af þessu tagi sem er á engan hátt nauðsynlegt að sé á forræði sveitarfélags.

    Fylgigögn

  31. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. júní 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um áhrif vaxtahækkunar Seðlabanka Íslands á skuldastöðu og afborganir lána hjá Reykjavíkurborg, sbr. 65. lið fundargerðar borgarráðs frá. 20. maí 2021. R21050226

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Svar við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um áhrif vaxtahækkunar Seðlabankans á skuldastöðu og afborganir lána hjá Reykjavíkurborg er lagt fram. Fulltrúa Flokks fólksins sýnist samkvæmt þessu skjali að borgin hafi að miklu leyti varið sig gegn breytingum á almennum útlánsvöxtum með því að taka lán með föstum vöxtum. Það er í sjálfu sér skynsamlegt þegar vextir eru lágir. Tekið er undir það sem fram kemur í meðfylgjandi skjali, að vaxtahækkanir Seðlabankans á stýrivöxtum hafi ekki mikil áhrif á vaxtagreiðslur borgarinnar eins og staðan er núna. Breytingar á stýrivöxtum hafa mest áhrif á óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum þar sem þá kemur þungi vaxtabreytinganna fram af fullum þunga strax en minni áhrif á verðtryggð lán með breytilegum vöxtum þar sem hluti afborgana og vaxta leggst við höfuðstólinn.

    Fylgigögn

  32. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. júní 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um yfirlit yfir öll framlögð mál Flokks fólksins, sbr. 87. lið fundargerðar borgarráðs frá 15. apríl 2021. R21040150

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins óskaði eftir að fá framlögð mál sín, fyrirspurnir og tillögur á kjörtímabilinu sett inn á heimasvæði Flokks fólksins á vef Reykjavíkurborgar með það að markmiði að auka gegnsæi og aðgengi borgarbúa að málum kjörinna fulltrúa. Síðan þá hefur það gerst að á fundi borgarráðs 24. júní sl. var lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar yfir fyrirspurnir og tillögur lagðar fram í borgarráði á yfirstandandi kjörtímabili. Fyrir það er þakkað og vill fulltrúi Flokks fólksins óska eftir því í framhaldinu að málalistinn verði settur inn á heimasvæði Flokksins á vef borgarinnar en það heimasvæði er nú þegar til staðar. Ekki er verið að biðja um að einhver einstök mál verði sett þar inn heldur öll framlögð mál, fyrirspurnir og tillögur og upplýsingar um hvaða málum er lokið og hvaða er ólokið í borgarkerfinu. Fulltrúi Flokks fólksins sér ekki fyrir sér að Gagnsjá og/eða Hlaðan verði að veruleika á þessu kjörtímabili eða því næsta ef því er að skipta og telur því ekki raunsætt af svaranda að vísa málinu þangað.

    Fylgigögn

  33. Lagt fram svar Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 21. júní 2021, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um greiðslur til starfskjaranefndar Orkuveitu Reykjavíkur, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 11. mars 2021. R21030120

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    4 milljónir hafa farið til starfskjaranefndar Orkuveitu Reykjavíkur í að ákvarða laun forstjórans frá árinu 2013. Stjórn Orkuveitunnar tekur svo ákvörðun um þóknun til starfskjaranefndar að tillögu nefndarmanna í starfskjaranefnd. Hvaða hringavitleysa er þetta eiginlega? Svona fer fyrir fé án hirðis. Algjör sjálftaka.

    Fylgigögn

  34. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. júní 2021, við framhaldsfyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um greiðslur til verktaka og fjölda þeirra hjá sviðum borgarinnar og ráðhúsi árið 2020, sbr. 55. lið fundargerðar borgarráðs frá 29. apríl 2021. R21020055

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hvers vegna í ósköpunum er ekki haldið bókhald yfir verktakafjölda í bókhaldi Reykjavíkurborgar? Er nema von að reksturinn sé í molum ef sú yfirsýn er ekki til staðar, þ.e hverjir eru launþegar og hverjir eru verktakar. Í svarinu segir: „Verktakar eru ekki skilgreindir sérstaklega í bókhaldi borgarinnar en hugtakið verktakagreiðslur nær yfir mengi gjaldalykla vegna þjónustukaupa, sem eru merktir sérstakri skattmerkingu og eru þær greiðslur færðar á launamiða í lok árs og gefnar upp til skatts.“ Borgarfulltrúi Miðflokksins þurfti að leggja fram framhaldsfyrirspurn til að pína þessar upplýsingar fram. Nú er að koma heildarsýn á málið. Verktakar hjá Reykjavíkurborg voru 1.793 á árinu 2020 og greiddir voru rúmir 8 milljarðar til þeirra. Sláandi er að sjá að á þjónustu- og nýsköpunarsviði voru 214 verktakar á árinu. Peningarnir streyma úr borgarsjóði án yfirsýnar og án útboðs. Þessa þróun verður að stöðva.

    Fylgigögn

  35. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 28. júní 2021, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um greiðslu til Guðjóns Friðrikssonar og tengdra félaga, sbr. 38. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. maí 2018. R18050025

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér hefur einn aðili fengið að minnsta kosti þrjátíu milljónir greiddar vegna ritstarfa hjá borgarfélögum á síðustu árum. Fram kemur í svari fjármála- og áhættustýringarsviðs að ekki liggi fyrir upplýsingar um hvort um frekari greiðslur hafi verið að ræða til félaga á vegum Guðjóns þrátt fyrir að um það hafi verið spurt. Um er að ræða verulega fjármuni, tugi milljóna sem greiddir hafa verið út án samkeppni eða auglýsingar.

    Fylgigögn

  36. Lögð fram svör íþrótta- og tómstundasviðs, dags. 23. júní 2021 og 14. janúar 2020, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um hvers vegna Reykjavíkurborg geri ekki ráð fyrir framlögum til þeirra íþróttafélaga sem nú þegar hafa stofnað rafíþróttadeildir, sbr. 68. lið fundargerð borgarráðs frá 9. janúar 2020. R19040029

    Fylgigögn

  37. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 24. júní 2021. R21010004

    Fylgigögn

  38. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 21. júní 2021. R21010026

    Fylgigögn

  39. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Háaleitis og Bústaða frá 24. júní 2021. R21010028

    Fylgigögn

  40. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 21. júní 2021. R21010031

    Fylgigögn

  41. Lögð fram fundargerð ofbeldisvarnarnefndar frá 21. júní 2021. R21010021

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 6. lið fundargerðarinnar: 

    Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir mikilvægi þess að fræða börn um ofbeldi af öllu tagi, hvernig það birtist og viðbrögð við því. Spurningin er ekki hvort eigi að fræða börn um þessi mál heldur hvernig. Fræðsla þarf að beinast bæði að því hvernig börn og ungmenni verja sig fyrir ofbeldi en einnig hvar mörkin liggja í hegðun gagnvart öðrum. Í þessu sambandi er mikilvægt að fræða börn um stríðni og einelti. Ungmennin sjálf hafa kallað eftir aukinni fræðslu um þessi mál. Börn og ungmenni þurfa að þekkja mannréttindi barna og rétt þeirra til verndar gegn ofbeldi. Fyrsta skrefið í forvörnum gegn ofbeldi er að ræða um það með opinskáum og hreinskilnum hætti. Umfram allt þarf fræðslan að beinast að því að styrkja sjálfsmynd barna, að kenna þeim að treysta sinni eigin dómgreind en grunninn að því þurfa foreldrar og fagfólk að leggja með þeim. Fátt í lífi barna gerist án aðkomu og þátttöku foreldra þeirra/forsjáraðila.

    Fylgigögn

  42. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 23. júní 2021. R21010016

    Fylgigögn

  43. Lögð fram fundargerð skipulags- og samgönguráðs frá 30. júní 2021. R21010008
    B-hluti fundargerðarinnar er samþykktur.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar: 

    Arnarnesvegur skipulagslýsing. Skýrsla frá Eflu er gagn með þessum lið. Þar blasir við að skýrslan er ekki hlutlaus heldur réttlæting á gerðum Vegagerðarinnar. Sagt er að gengið verður frá fláum og fyllingum með staðargróðri til þess að lágmarka ásýndaráhrif rasks. En málið er að gróðurfar í Vatnsendahvarfi er í miklu breytingarskeiði og ekki er hægt að tala um staðargróður. Þarna er aðeins verið að réttlæta slæman gjörning. Einnig er sagt að: „verður markvisst reynt að lágmarka áhrif og inngrip sem hlýst af framkvæmdinni. Sérstaklega á ásýnd svæðanna frá á gróinni íbúðarbyggð og vegna skerðingu á útivistarmöguleika á nærsvæðum. Mótvægisaðgerðum verður markvisst beint að hljóðvist og ásýnd.“ Hér er sagt frá því hvernig þessi vegur mun mjög takmarka útivistargildi svæðisins, svo ekki sé talað um áhrif á Vetrargarðinn. Ekki fær séð hvernig bjarga eigi því með því að takmarka hljóðvist og ásýnd. Það má minna á að Skipulagsstofnun getur ákveðið að endurskoða skuli matsskýrslu framkvæmdaraðila ef forsendur hafa breyst verulega frá því að álitið lá fyrir, svo sem vegna breytinga á náttúrufari eða landnotkun á áhrifasvæði framkvæmdarinnar, breytinga á löggjöf um umhverfismál, alþjóðlegum skuldbindingum eða tækniþróunar. Á tæpum 20 árum sem liðin er frá umhverfismatinu hefur mest allt ofangreint gerst.

    Fylgigögn

  44. Lögð fram fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 22. júlí 2021.  R21010007

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það hefur komið skýrt fram hjá foreldrum og börnum að færa beri skólastarf sem allra fyrst í Fossvoginn en alger einhugur er um að stíga ekki fæti inn í núverandi skólabyggingar fyrr en framkvæmdum er að fullu lokið. Málefni Fossvogsskóla er dæmi um samráðsleysi meirihlutans að mati fulltrúa Flokks fólksins. Ergelsi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur einkennt svör við fyrirspurnum fulltrúa Flokks fólksins um málið. Foreldrar hafa þurft að berjast við borgaryfirvöld með kjafti og klóm til að fá áheyrn og úrbætur. Nú hefur skýrsla EFLU um úttekt á húsnæðinu litið dagsins ljós. Fram kemur í skýrslunni að ráðast þarf í umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu til að greiða úr þrálátum raka- og mygluvanda sem ítrekað hefur komið upp í skólanum og haft neikvæð áhrif á heilsu nemenda. Raki greindist enn í húsnæði skólans en að mati EFLU eru eldri viðgerðir ekki fullnægjandi í öllum tilfellum og enn að finna raka á viðgerðum svæðum. Mygla greinist í húsnæðinu og í gluggakistum skólans er að finna asbest. Í úttektinni er farið yfir möguleikann á því að rífa hreinlega skólann, en sú leið er þó talin kostnaðarsamari heldur en að ráðast í umfangsmiklar endurbætur en þörf er á fjölmörgum úrbætum.

    Fylgigögn

  45. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 11 mál. R21060272

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 5. lið yfirlitsins: 

    Nokkrum tillögum sem fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram í borgarstjórn, í borgarráði eða skóla- og frístundaráði var vísað til stýrihóps um málaflokkinn. Ekkert af þessum tillögum náðu fram að ganga en þær eru eftirfarandi: Tillaga 1: Flokkur fólksins vill enn og aftur leggja það til að borgarmeirihlutinn setji málaflokk sérskóla í forgang og veiti í hann meira fé. Tillaga 2: Flokkur fólksins vill leggja til að inntökureglur í svokallaðan þátttökubekk verði rýmkaðar til muna. Til stóð að bekkirnir yrðu 4 í borginni. Fjölgi umsóknum í „þátttökubekk“ er lagt til að þeim verði fjölgað eftir þörfum Tillaga 3: Flokkur fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að skóla- og velferðaryfirvöld leiti eftir formlegu samstarfi við Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS) í þeim tilgangi að vinna saman að málum barna þar sem t.d. aðkoma barnalæknis er nauðsynleg Tillaga 4: Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarstjórn fari þess á leit við innri endurskoðun að hún geri úttekt á sérkennslu leik- og grunnskóla í Reykjavík. Tillaga 5: Flokkur fólksins leggur til að sálfræðingar skólaþjónustu hafi aðsetur í þeim skólum sem þeir sinna. Einnig er lagt til að skólasálfræðingar heyri undir skólastjórnendur sem ákvarði í samráði við nemendaverndarráð verkefnalista sálfræðings án miðlægra afskipta.

    Fylgigögn

  46. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. R21060255

    Fylgigögn

  47. Lögð fram beiðni Kristínar Soffíu Jónsdóttur borgarfulltrúa um lausn frá störfum sínum í borgarstjórn til loka kjörtímabilsins. R21060312
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  48. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 29. júní 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki úthlutun lóðar og sölu byggingarréttar fyrir lóð að Járnsléttu 8. R21060227
    Samþykkt. 

    Hrefna Þórsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  49. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 28. júní 2021, þar sem borgarráði er tilkynnt að ekki verði af samkomulagi samkvæmt drögum sem samþykkt voru í borgarráði þann 15. apríl sl. vegna Brautarholts 26-28. R21040031

    Hrefna Þórsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  50. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 28. júní 2021, þar sem yfirlit yfir starfs- og stýrihópa borgarstjóra og borgarritara 2018-2021 er sent borgarráði til kynningar, ásamt fylgiskjölum. R21060176

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Það dugir greinilega ekkert minna í rúmlega 130 þúsund manna sveitarfélagi. 82 starfs- og stýrishópar. Hér birtist óreiðan í rekstri borgarinnar best. Borgarstjóri og meirihlutinn eru ófær um að stjórna borginni sem er eins og smáfyrirtæki í alþjóðlegu samhengi. Og hverju skilar svo þessi fjöldi starfs- og stýrihópa? Nákvæmlega engu. Reksturinn og viðhaldsleysi bygginga borgarinnar er í molum. Kjaftahópar leysa ekki þá staðreynd.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Starfs- og stýrihópar - yfirlit 2018-2021 er lagt fram. Frá því að kjörtímabilið 2018-2022 hófst í Reykjavík hefur 71 starfs- og stýrihópur verið skipaður af borgarstjóra og borgarritara, sbr. hjálagt yfirlit. Af þeim hópum sem skipaðir hafa verið á yfirstandandi kjörtímabili hafa 33 lokið störfum og 38 eru enn starfandi. Til viðbótar eru 11 hópar enn starfandi frá síðasta kjörtímabili. Alls eru þetta 82 starfs- og stýrihópar. Þetta eru áhugaverðar upplýsingar að mati fulltrúa Flokks fólksins. Athygli vekur að það eru 11 hópar starfandi frá síðasta kjörtímabili. Af 71 hópi hafa aðeins 33 lokið störfum. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að setja þurfi eitthvað þak á hversu lengi hópar geta verið að störfum. Ef starfs- og stýrihópar eiga að virka sem skyldi þurfa þeir að vinna með markvissum og skilvirkum hætti og skila af sér fljótt og vel. Ef afurð hópanna lítur ekki dagsins ljós fyrr en mánuðum eða árum eftir að þeir hófu störf er lítið gagn af þeim og niðurstöður þeirra jafnvel orðnar úreltar þegar þær loksins verða gerðar opinberar.

    -    Kl. 13.08 tekur Jórunn Pála Jónasdóttir sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  51. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Í ársskýrslu Strætó bs. frá árinu 2020 kemur fram að heildar starfsmannavelta hækkaði um 2% á milli ára og stóð árið 2020 í 14%. Er þar með verið að tala um starfsmenn óháð því hvort þau séu ráðin inn í gegnum verktaka, t.a.m. vagnstjórar Kynnisferða og Hagvagna sem sinna akstri fyrir Strætó bs.? Er starfsmannaveltan hærri eða lægri hjá þeim vagnstjórum sem eru ráðnir inn í gegnum verktaka? Óskað er eftir því að sjá hvernig starfsmannaveltan dreifist á ólík fyrirtæki og óskað er eftir því að fá það sundurliðað eftir árum. R21070013

    Vísað til umsagnar Strætó bs.

  52. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Kynnt var á borgarráðsfundi 1. júlí sl. að Bloomberg Philanthropies samtökin leggi áherslu á að skapa varanlegar breytingar á fimm lykilsviðum: Listir, menntun, umhverfi, nýsköpun stjórnvalda og lýðheilsu en Bloomberg Philanthropies veitti 1,6 milljörðum dala til þessa árið 2020. Styrkirnir í ár eru þeir fyrstu sem einbeita sér eingöngu að stafrænni umbreytingu. Bloomberg Philanthropies hefur fjármagnað svokölluð „i-teymi“ frá árinu 2011 til að aðstoða borgarstjóra við að knýja fram nýjar lausnir til að leysa þéttbýlisáskoranir 21. aldarinnar. Með fjárframlagi upp á tæplega 2,2 milljónir bandaríkjadala til næstu þriggja ára verður „i-teymi“ nú sett á laggirnar hjá Reykjavíkurborg, nýsköpunarteymi sem hjálpa mun borginni að nýta frekar gögn og stafræna tækni til að bæta opinbera þjónustu og finna skapandi leiðir til að skapa verðmæti fyrir samfélagið. Nú þegar, hefur þetta verkefni kostað útsvarsgreiðendur í Reykjavík 10 milljarða.
    1.    Hvað hefur borgarstjóri eða borgarsjóður fengið háar upphæðir úr verkefninu miðað við 1. júlí 2021?
    2.    Ef engar greiðslur hafa verið inntar af hendi – hversu háar upphæðir er vonast eftir að borgarstjóri eða borgarsjóður fái í framtíðinni út úr verkefninu?
    3.    Nú þegar, hefur verið kynnt, að til standi að ráða tæplega 60 manns vegna „stafrænnar þjónustu“ hjá borginni og hér er kynnt að ráða þurfi nýja starfsmenn – geta þessir tæplega 60 manns ekki sinnt verkefninu?
    4.    Hvað hefur borgarstjóri og allt hans fylgdarlið farið margar ferðir til útlanda vegna Bloomberg verkefnisins?
    5.    Hver hefur kostnaður borgarinnar verið vegna þeirra ferða að meðtöldum dagpeningum? R20080035

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

Fundi slitið klukkan 13:21

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Sabine Leskopf

Alexandra Briem Dagur B. Eggertsson

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_0107.pdf