Borgarráð - Fundur nr. 5441

Borgarráð

B O R G A R R Á Ð

Ár 2017, fimmtudaginn 2. febrúar, var haldinn 5441. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 9.09. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, S. Björn Blöndal, Halldór Auðar Svansson, Líf Magneudóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Halldór Halldórsson og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Stefán Eiríksson, Hrólfur Jónsson, Kristbjörg Stephensen, Hallur Símonarson, Ólöf Örvarsdóttir, Pétur Ólafsson og Bjarni Þóroddsson.

Fundarritari var Oddrún Helga Oddsdóttir.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð ferlinefndar fatlaðs fólks frá 26. janúar 2017. R17010032

2. Lögð fram fundargerð hverfisráðs Breiðholts frá 20. desember 2016. R16010006

3. Lögð fram fundargerð hverfisráðs Breiðholts frá 17. janúar 2017. R17010006

4. Lögð fram fundargerð hverfisráðs Hlíða frá 19. janúar 2017. R17010010

5. Lögð fram fundargerð hverfisráðs Miðborgar frá 26. janúar 2017. R17010013

6. Lögð fram fundargerð innkauparáðs frá 27. janúar 2017. R17010015

7. Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 20. janúar 2017. R17010027

8. Lögð fram fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 27. janúar 2017. R17010023

9. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 1. febrúar 2017. R17010021

B-hluti fundargerðarinnar samþykktur.

10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, um embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 6 mál. R17010129

11. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 715/2013. R17010041

12. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar þar sem óskað er eftir því að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið leyfi til lengri veitingatíma áfengis fyrir Sportbarinn Ölver, Álfheimum 74, dags. 30. janúar 2017; fyrir Lebowski Bar, Laugavegi 20a; fyrir Bjarna Fel/Hressó, Austurstræti 20, dags. 31. janúar 2017; aðfaranótt mánudagsins 6. febrúar nk. vegna úrslitaleiks amerísku fótboltadeildarinnar. R17010041

Samþykkt.

13. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. janúar 2017, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 18. janúar 2017 á auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi Víðidals, Fáks, ásamt fylgiskjölum. R17010241

Samþykkt.

14. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 30. janúar 2017, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna endurgerðar Hafnarstrætis milli Pósthússtrætis og Tryggvagötu. Kostnaðaráætlun framkvæmdanna er 100 m.kr. R17010319

Samþykkt.

Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

- Kl. 9.18 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum.

15. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 30. janúar 2017, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna leiksvæða, torga og opinna svæða árið 2017. Um er að ræða endurgerð á 5 leiksvæðum, lagfæringar í Grasagarði, á Klambratúni og við Tjörnina, endurgerð á Freyjutorgi og áframhald verkefnisins torg í biðstöðu. Kostnaðaráætlun framkvæmdanna er 100 m.kr. R17010320

Samþykkt.

Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

16. Fram fer kynning á örplasti í fráveituvatni og hugsanlegar aðgerðir til úrbóta. R17010238

Borgarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

Borgarráð þakkar fyrir vel útfærða kynningu. Einhugur ríkir í borgarráði um að styðja við rannsóknir á örplasti og öðru örrusli og ráðast í fjölþættar aðgerðir til að koma í veg fyrir losun þess í lífríkið.

Stefán Gíslason, Eygerður Margrétardóttir, Íris Þórarinsdóttir, Fjóla Jóhannsdóttir og Guðmundur Friðriksson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

- Kl. 9.42 tekur Birgir Björn Sigurjónsson sæti á fundinum.

17. Lögð fram umsögn heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 24. janúar 2017, um erindi Hraunavina og náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands, dags. 3. janúar 2017, um vatnsból höfuðborgarsvæðisins. R17010133

- Kl. 10.36 víkur Ólöf Örvarsdóttir af fundinum.

18. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, 27. janúar 2017, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs á reglum Reykjavíkurborgar um þjónustusamninga við tónlistarskóla frá 25. janúar 2017 ásamt fylgiskjölum. R16110123

Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Lagt er til að hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að skila umsögn vegna fyrirliggjandi draga að reglum um nýja þjónustusamninga við tónlistarskóla, sem og vegna samningsdraga vegna efri og neðri stiga tónlistarnáms, áður en þau verða tekin til endanlegrar afgreiðslu í borgarráði. Rétt er að fulltrúar í borgarráði átti sig á því að hve miklu leyti þær breytingar, sem gerðar hafa verið á drögunum, koma til móts við áður framkomnar athugasemdir einstakra tónlistarskóla sem og stjórn Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík.

Frestað.

Helgi Grímsson og Sigfríður Björnsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

19. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 27. janúar 2017, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 25. janúar 2017 á samningum við tónlistarskólana vegna neðri og efri stiga ásamt fylgiskjölum. R16110123

Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Lagt er til að hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að skila umsögn vegna fyrirliggjandi draga að reglum um nýja þjónustusamninga við tónlistarskóla, sem og vegna samningsdraga vegna efri og neðri stiga tónlistarnáms, áður en þau verða tekin til endanlegrar afgreiðslu í borgarráði. Rétt er að fulltrúar í borgarráði átti sig á því að hve miklu leyti þær breytingar, sem gerðar hafa verið á drögunum, koma til móts við áður framkomnar athugasemdir einstakra tónlistarskóla sem og stjórn Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík.

Frestað.

Helgi Grímsson og Sigfríður Björnsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

20. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 27. janúar 2017, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 25. janúar 2017 á sameiginlegum reglum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um skólaakstur fatlaðra grunnskólabarna. Einnig er lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um málið. R17010306

Samþykkt.

21. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 31. janúar 2017, um starfshóp um örugga miðborg ásamt drögum að erindisbréfi. R17010308

22. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 31. janúar 2017:

Lagt er til að borgarráð samþykki að verja 4 m.kr. til kaupa á öryggismyndavélum fyrir miðborgina og fleiri staði. Jafnframt er lagt fram endurskoðað samstarfssamkomulag. Fjárfestingin rúmast innan gildandi fjárfestingaáætlunar og færist á kostnaðarstað 2101.

Greinargerð fylgir tillögunni. R17010326

Samþykkt.

23. Lagt fram bréf borgarstjóra til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 1. febrúar 2017, um skipun rannsóknarnefndar vegna snjóflóðs í Esjuhlíðum. R17010317

24. Fram fer umræða um tilnefningar í skólanefndir framhaldsskóla 2017. R17010139

Frestað.

- Kl. 11.28 tekur Ómar Einarsson sæti á fundinum.

25. Lagt fram minnisblað fjármálastjóra, ódags., varðandi lífeyrismál. R16100017

26. Lagt fram bréf skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, dags. 30. janúar 2017, þar sem óskað er eftir því að borgarráð samþykki að aðilaskipti verði gerð á lóðinni nr. 10-12 við Gylfaflöt. Einnig er lagt fram samkomulag milli aðilanna. R17010314

Samþykkt.

27. Lagt fram bréf skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, dags. 23. janúar 2017, þar sem óskað er samþykkis borgarráðs fyrir því að verja allt að 15 m.kr. til að kanna fýsileika þess að setja Miklubraut í stokk að hluta. Einnig er lögð fram sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið, dags. 23. janúar 2017. R17010239

Samþykkt.

28. Lagt fram bréf skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, dags. 23. janúar 2017, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi drög að samkomulagi um fyrirhugaða uppbyggingu á lóð við Sléttuveg, ásamt fylgiskjölum. R17010159

Samþykkt.

29. Lagt fram bréf skrifstofu eigna og atvinnuþróunnar, dags. 30. janúar 2017, þar sem óskað er eftir heimild borgarráðs til að ganga frá skuldabréfi vegna greiðslu gatnagerðargjalda á lóðinni Sturlugötu 6. R16120089

Samþykkt.

30. Lagt fram yfirlit yfir styrkúthlutanir íþrótta- og tómstundaráðs 2017, dags. 25. janúar 2017. R17010316

31. Lagt fram minnisblað starfsmannastjóra, dags. 30. janúar 2017, um ráðningu í starf sviðsstjóra velferðarsviðs. R17010332

32. Lagt fram bréf framkvæmdastjóra knattspyrnufélagsins Fram, dags. 26. janúar 2017, þar sem fram koma viðbrögð félagsins við samningsdrögum sem send voru félaginu þann 8. desember 2016. Einnig er lögð fram samantekt borgarlögmanns, dags. 31. janúar 2017, um stöðu samningsmála milli Fram og Reykjavíkurborgar ásamt fylgiskjölum. R13100424

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að Reykjavíkurborg ljúki sem fyrst samningsgerð við íþróttafélagið Fram svo unnt sé að halda áfram löngu tímabærum framkvæmdum við uppbyggingu íþróttamannvirkja í Grafarholti-Úlfarsárdal. Rétt er að slíkar framkvæmdir verði í samræmi við þau fyrirheit um íbúafjölda, sem félaginu voru gefin þegar framkvæmdir hófust við íþróttasvæðið í Grafarholti-Úlfarsárdal árið 2008. Íbúar þessara hverfa hafa sýnt Reykjavíkurborg ríkulegan samstarfsvilja og langlundargeð vegna seinkunar, sem varð á uppbyggingu vegna efnahagsáfalla í þjóðfélaginu á sínum tíma. Ljóst er að metnaðarfull uppbygging í Úlfarsárdal mun leiða til þéttingar byggðar í hverfinu, sem er jákvæð í sjálfu sér. Sú ákvörðun vinstri meirihlutans í borgarstjórn að draga verulega úr íbúabyggð í Úlfarsárdal frá því sem áður var ákveðið, rýrir mjög möguleika rekstraraðila á því að veita öfluga þjónustu í hverfinu og á það ekki síst við um íþrótta- og æskulýðsstarf. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja því enn og aftur til að skipulag í Úlfarsárdal verði endurskoðað og íbúum fjölgað með það að markmiði að þar skapist góð skilyrði til að reka blómlegt íþrótta- og félagsstarf og að hverfin Grafarholt-Úlfarsárdalur verði sjálfbær hvað varðar fjölbreytilega þjónustu.

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

Aðalskipulag Reykjavíkur var samþykkt með atkvæðum allra flokka, þar með talið helmingi fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Einnig er vert að benda á að Fram samþykkti í mars á síðasta ári að framtíðarstærð hverfanna í Úlfarsárdal og Grafarholti réði ekki úrslitum varðandi flutning félagsins í hverfið. Á næstu dögum verður fundað með fulltrúum íbúa og félagsins og gefst þá vonandi færi á að leiðrétta rangfærslur og fara meðal annars yfir það að þær framkvæmdir sem þegar hefur verið ráðist í og gert er ráð fyrir í fyrirliggjandi samningsdrögum kosta samtals 4,7 milljarða - en skv. upphaflegum samningi frá 2008 var skilgreint að 2,7 milljarðar væru þar hámark eða 4 milljarðar að núvirði.

- Kl. 12.36 víkur Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir af fundinum.

33. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Borgarráð Reykjavíkur beinir því til stjórnar Strætó bs. að leitast verði við að koma á beinni strætisvagnatengingu milli Skerjafjarðar og þeirra skóla og íþróttamannvirkja sem þjóna íbúum hverfisins, þ.e. Melaskóla, Hagaskóla og KR-svæðisins. R17020014

Frestað.

34. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Lagt er til að borgarráð samþykki styrkveitingu til Knattspyrnufélagsins Víkings vegna byggingar blaðamannastúku við keppnisvöll félagsins. Styrkurinn nemi 2,1 milljón króna eða sömu upphæð og Reykjavíkurborg innheimtir í gatnagerðargjöld vegna byggingarinnar. Um er að ræða óupphitað mannvirki inni á miðju svæði félagsins og verður borgin ekki fyrir útgjöldum vegna þess. R17020015

Frestað

35. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Lagt er til að ljósastaur við Oddfellowhúsið við Vonarstræti verði færður í því skyni að bæta aðkomu fatlaðra og hreyfihamlaðra að hjólastólabraut við aðalinngang hússins. R17020016

Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs.

36. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um breytingar á gjaldskrám velferðarsviðs frá árinu 2006. Eru umræddar gjaldskrár að fullu samræmdar á milli starfsstaða og borgarhluta, t.d. mötuneyta? R17020017

37. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Frést hefur af því að fólki hefur verið vísað frá þjónustuveri Reykjavíkurborgar með beiðnir og bent á að nauðsynlegt sé að senda tölvupóst, ekki sé hægt að hitta þjónustufulltrúa til að fara yfir viðkomandi mál. Í þessum tilfellum var um eldra fólk að ræða sem ekki notar tölvupóst. Óskað er eftir upplýsingum um hvort að svo geti verið að þetta sé verklag hjá þjónustuveri borgarinnar. R17020018

38. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Óskað er eftir upplýsingum um hver er staða skýrslu um akstur stórra bifreiða í miðborginni. R17020019

- Kl. 12.43 víkja Líf Magneudóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir af fundinum.

Fundi slitið kl. 12.52

Sigurður Björn Blöndal

Dagur B. Eggertsson Halldór Halldórsson

Halldór Auðar Svansson Kjartan Magnússon