Borgarráð - Fundur nr. 5382

Borgarráð

B O R G A R R Á Ð

Ár 2015, laugardaginn 31. október, var haldinn 5382. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 9.05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Halldór Auðar Svansson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Sóley Tómasdóttir, Halldór Halldórsson og Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Helga Björg Ragnarsdóttir, Birgir Björn Sigurjónsson, Halldóra Káradóttir og Hallur Símonarson. 

Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

1. Rætt um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016. Kynntar eru fjárhagsáætlanir Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Faxaflóahafna, mannréttindaskrifstofu, Íþrótta- og sýningarhallarinnar, Malbikunarstöðvarinnar Höfða, Bílastæðasjóðs, stjórnkerfis- og lýðræðisráðs og miðlægrar stjórnsýslu.

- Kl. 9.07 taka Heiða Björg Hilmisdóttir og Júlíus Vífill Ingvarsson sæti á fundinum. 

Jón Viðar Matthíasson, Gísli Gíslason, Kristín Soffía Jónsdóttir, Líf Magneudóttir, Anna Kristinsdóttir, Sigurður Páll Óskarsson, Sverrir Hannesson, Óli Öder Magnússon, Margrét Björnsdóttir, Kolbrún Jónatansdóttir og Óskar Sandholt taka sæti á fundinum undir þessum lið. R15010253

2. Lagt fram frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016 ásamt greinargerð og starfsáætlunum.

Gögn undir þessum lið eru bundin trúnaði þar til borgarstjóri hefur með formlegum hætti gert fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun opinberar við framlagningu þeirra í borgarstjórn þriðjudaginn 3. nóvember 2015 kl. 14.00, sbr. bréf fjármálaskrifstofu, dags. 29. október 2015. R15010253

3. Lagt fram frumvarp að fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar 2016-2020 ásamt greinargerð.

Gögn undir þessum lið eru bundin trúnaði þar til borgarstjóri hefur með formlegum hætti gert fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun opinberar við framlagningu þeirra í borgarstjórn þriðjudaginn 3. nóvember 2015 kl. 14.00, sbr. bréf fjármálaskrifstofu, dags. 29. október 2015. R15010253

4. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. október 2015: 

Lagt er til að meðfylgjandi gjaldskrár verði samþykktar fyrir árið 2016.

Greinargerð fylgir tillögunni. R15010253

Vísað til borgarstjórnar.

Fylgigögn undir þessum lið eru bundin trúnaði þar til borgarstjóri hefur með formlegum hætti gert fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun opinberar við framlagningu þeirra í borgarstjórn þriðjudaginn 3. nóvember 2015 kl. 14.00, sbr. bréf fjármálaskrifstofu, dags. 29. október 2015.

5. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. október 2015: 

Lagt er til að borgarstjórn samþykki lántökur á árinu 2016 að fjárhæð allt að 2.246 m.kr. vegna áformaðra framkvæmda og fjárfestinga á árinu 2016. Gert er ráð fyrir að þessi fjármögnun verði fengin með skuldabréfaútboðum borgarsjóðs á árinu. Jafnframt er samþykkt að veita fjármálastjóra umboð f.h. Reykjavíkurborgar til þess að undirrita nauðsynlega gerninga sem tengjast nauðsynlegri skuldabréfaútgáfu, sem og til þess að taka á móti og undirrita, gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökum þessum, enda verði einstakar lántökur lagðar fyrir borgarráð til afgreiðslu.

Greinargerð fylgir tillögunni. R15010253

Vísað til borgarstjórnar.

6. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. október 2015: 

Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars tekjuárið 2016 verði 14,52%.

Greinargerð fylgir tillögunni. R15100229

Vísað til borgarstjórnar.

7. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. október 2015: 

Lagt er til að álagningarhlutfall fasteignaskatta og lóðarleigu vegna ársins 2016 verði sem hér segir:

1. Hlutfall fasteignaskatts skv. a-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 0,2%.

2. Hlutfall fasteignaskatts skv. b-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 1,32%.

3. Hlutfall fasteignaskatts skv. c-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 1,32%, að viðbættri hækkun um 25%, sbr. heimild í 4. mgr. sömu greinar (1,65%).

4. Hlutfall lóðarleigu fyrir íbúðarhúsalóðir verði 0,2% af fasteignamatsverði.

5. Hlutfall leigu fyrir verslunarlóðir, iðnaðarlóðir og lóðir fyrir opinberar byggingar verði 1,0% af fasteignamatsverði. 

Greinargerð fylgir tillögunni. R15100230

Vísað til borgarstjórnar.

8. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. október 2015: 

Sveitarstjórn ákveður fjölda gjalddaga fasteignaskatts skv. 4. mgr. 4. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofn sveitarfélaga. Þar segir einnig að sveitarstjórn sé heimilt að ákveða að skatturinn greiðist allur með eingreiðslu ef álagning er undir tiltekinni fjárhæð. Skv. 5. mgr. sömu greinar er eindagi fasteignaskatts 30 dögum eftir gjalddaga. Lagt er til að fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði níu jafnir gjalddagar á eftirfarandi gjalddögum: 1. febrúar, 2. mars, 2. apríl, 2. maí, 1. júní, 3. júlí, 2. ágúst, 3. september og 2. október. Jafnframt er lagt til að greiðandi geti hvenær sem er á greiðslutíma fasteignagjalda óskað eftir gjaldfellingu eftirstöðva og lokið greiðslu. Þá er lagt til að nemi álagning fasteignagjalda 25.000 kr. eða lægri fjárhæð á fastanúmer greiði gjaldendur þau með eingreiðslu þann 1. febrúar.

Greinargerð fylgir tillögunni. R15100230

Vísað til borgarstjórnar.

9. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. október 2015: 

Lagt er til að viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega árið 2016 verði eftirfarandi: 

Viðmiðunartekjur

I.  Réttur til 100% lækkunar

Einstaklingur með tekjur allt að 2.850.000 kr.

Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 3.970.000 kr.

II.  Réttur til 80% lækkunar

Einstaklingur með tekjur á bilinu 2.850.000 til 3.260.000 kr.

Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 3.970.000 til 4.420.000 kr.

III.  Réttur til 50% lækkunar

Einstaklingur með tekjur á bilinu 3.260.000 til 3.800.000 kr.

Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 4.420.000 til 5.280.000 kr.

Lagt er til að skilyrði lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds fari eftir reglum Reykjavíkurborgar um afslátt af fasteignagjöldum eins þær eru á hverjum tíma.

Greinargerð fylgir tillögunni. R15100230

Vísað til borgarstjórnar.

10. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 28. október 2015: 

Sveitarstjórn ákveður fjölda gjalddaga fasteignaskatts skv. 4. mgr. 4. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Skv. 5. mgr. sömu greinar er eindagi fasteignaskatts 30 dögum eftir gjalddaga. Lagt er til að gjalddagi á kröfu vegna breytinga á afslætti á fasteignagjöldum 2016 verði 1. nóvember 2016. Sé krafa yfir 25.000 kr. er boðið upp á greiðsludreifingu til allt að 3ja mánaða.

Greinargerð fylgir tillögunni. R15100230

Samþykkt.

Fundi slitið kl. 12.20

Halldór Auðar Svansson

Elsa Hrafnhildur Yeoman Guðfinna J. Guðmundsdóttir

Halldór Halldórsson Heiða Björg Hilmisdóttir

Júlíus Vífill Ingvarsson Sóley Tómasdóttir