Borgarráð - Fundur nr. 5289

Borgarráð

B O R G A R R Á Ð

Ár 2013, laugardaginn 26. október, var haldinn 5289. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 9.08. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson, Einar Örn Benediktsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon og Sóley Tómasdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Helga Björg Ragnarsdóttir, Birgir Björn Sigurjónsson, Halldóra Káradóttir, Guðleif Þórðardóttir, Hallur Símonarson og Hrólfur Jónsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

1. Rætt um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014. Kynntar eru fjárhagsáætlanir Bílastæðasjóðs, Malbikunarstöðvarinnar Höfða, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Jörunds og eignasjóðs. Einnig eru framlög Reykjavíkurborgar til B-hluta fyrirtækja kynnt. R13010213

- Kl. 10.38 tekur Júlíus Vífill Ingvarsson sæti á fundinum.

Kolbrún Jónatansdóttir, Karl Sigurðsson, Halldór Torfason, Margrét S. Björnsdóttir, Jón Viðar Matthíasson, Margrét Kristín Blöndal, Halldóra Gunnarsdóttir, Guðlaug Sigurðardóttir og Ásgeir Westergren taka sæti á fundinum undir þessum lið.

Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna óskar eftir yfirliti yfir þróun styrkja og samstarfssamninga MOF og samstarfssamninga ÍTR við íþróttafélögin árlega frá árinu 2007.

2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 21. október sl.:
Lagt er til að álagningarhlutfall fasteignaskatta og lóðarleigu vegna ársins 2014 verði sem hér segir:
1. Hlutfall fasteignaskatts skv. a-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum, verði 0,2#PR.
2. Hlutfall fasteignaskatts skv. b-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 1,32#PR.
3. Hlutfall fasteignaskatts skv. c-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 1,32#PR, að viðbættri hækkun um 25#PR, sbr. heimild í 4. mgr. sömu greinar (1,65#PR).
4. Hlutfall lóðarleigu fyrir íbúðarhúsalóðir verði 0,2#PR af fasteignamatsverði.
5. Hlutfall leigu fyrir verslunarlóðir, iðnaðarlóðir og lóðir fyrir opinberar byggingar verði 1,0#PR af fasteignamatsverði.
Greinargerð fylgir tillögunni. R13100360
Vísað til borgarstjórnar.

3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 21. október:
Lagt er til að viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega árið 2014 verði eftirfarandi:
Viðmiðunartekjur
I. Réttur til 100#PR lækkunar
Einstaklingur með tekjur allt að 2.650.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 3.700.000 kr.
II. Réttur til 80#PR lækkunar
Einstaklingur með tekjur á bilinu 2.650.000 til 3.040.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 3.700.000 til 4.120.000 kr.
III. Réttur til 50#PR lækkunar
Einstaklingur með tekjur á bilinu 3.040.000 til 3.540.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 4.120.000 til 4.920.000 kr.

Lagt er til að skilyrði lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds fari eftir reglum Reykjavíkurborgar um afslátt af fasteignagjöldum eins þær eru á hverjum tíma.
Greinargerð fylgir tillögunni. R13100362
Vísað til borgarstjórnar.

4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 21. október:
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2014 verði 14,48#PR.
Greinargerð fylgir tillögunni. R13100361
Vísað til borgarstjórnar.

5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 21. október:
Lagt er til að gjalddagaskipting fasteignagjalda fyrir árið 2014 verði eftirfarandi: Almenna reglan verði sú að greiðendur fasteignagjalda geri skil á fasteignagjöldum ársins 2014 með 9 jöfnum greiðslum á eftirfarandi gjalddögum: 1. febrúar, 2. mars, 2. apríl, 3. maí, 1. júní, 2. júlí, 2. ágúst, 1. september og 4. október.
Þrátt fyrir ofangreint er fjármálaskrifstofu heimilt að leyfa gjaldendum, sem áður hafa valið að greiða fasteignagjöldin með eingreiðslu hinn 1. maí ár hvert, að gera það áfram. Þá er áfram gert ráð fyrir því að nemi fasteignagjöld 25.000 kr. eða lægri fjárhæð greiði gjaldendur þau með einni greiðslu hinn 3. maí 2014.
Greinargerð fylgir tillögunni. R13100360
Samþykkt.

6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 21. október:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki lántökur á árinu 2014 að fjárhæð allt að 2.179,5 m.kr. vegna áformaðra framkvæmda á árinu 2014. Gert er ráð fyrir að þessi fjármögnun verði fengin með stækkun á skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar, RVK09 1 og RVK19 1. Jafnframt er samþykkt að veita fjármálastjóra umboð f.h. Reykjavíkurborgar til þess að undirrita nauðsynlega gerninga sem tengjast nauðsynlegri skuldabréfaútgáfu, sem og til þess að taka á móti og undirrita, gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökum þessum, enda verði einstakar lántökur lagðar fyrir borgarráð til afgreiðslu.
Greinargerð fylgir tillögunni. R13010213
Vísað til borgarstjórnar.

7. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 23. október sl., um samþykkt á meðfylgjandi gjaldskrám Reykjavíkurborgar árið 2014.
Greinargerð fylgir tillögunni. R13010213
Vísað til borgarstjórnar.

8. Lagt fram frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 ásamt greinargerð og starfsáætlunum. R13010213
Vísað til borgarstjórnar.

9. Lagt fram frumvarp að fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar 2014-2018. R13100359
Vísað til borgarstjórnar.

10. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Í byrjun september sl. skilaði starfshópur Reykjavíkurborgar og Ungmennafélagsins Fjölnis niðurstöðum sínum til borgarstjóra um aðstöðumál íþróttastarfs barna og ungmenna í Grafarvogi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir undrun sinni á því að niðurstöður hópsins hafi ekki enn verið lagðar fram í borgarráði og íþrótta- og tómstundaráði og óska eftir því að það verði gert sem fyrst. R13010249

Fundi slitið kl. 13.20

Dagur B. Eggertsson

Einar Örn Benediktsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Hjálmar Sveinsson Júlíus Vífill Ingvarsson
Kjartan Magnússon Sóley Tómasdóttir