Borgarráð - Fundur nr. 5191

Borgarráð

BORGARRÁÐ

Ár 2011, laugardaginn 12. nóvember, var haldinn 5191. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Óttarr Ólafur Proppé, Oddný Sturludóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson og Sóley Tómasdóttir.

Fundarritun annaðist Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

1. Rætt um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2012.

- Klukkan 11.40 tók Gísli Marteinn Baldursson sæti á fundinum.

2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 11. þ.m.:

Lagt er til að álagningarhlutfall fasteignaskatta og lóðarleigu vegna ársins 2012 verði sem hér segir:

1. Hlutfall fasteignaskatts skv. a-lið 3.mgr. 3.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum, verði 0,2#PR.

2. Hlutfall fasteignaskatts skv. b-lið 3.mgr. 3.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 1,32#PR.

3. Hlutfall fasteignaskatts skv. c-lið 3.mgr. 3.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum verði 1,32#PR, að viðbættri hækkun um 25#PR, sbr. heimild í 4. mgr. sömu greinar (1,65#PR).

4. Hlutfall lóðarleigu fyrir íbúðarhúsalóðir verði 0,2#PR af fasteignamatsverði.

5. Hlutfall leigu fyrir verslunarlóðir, iðnaðarlóðir og lóðir fyrir opinberar byggingar verði 1,0#PR af fasteignamatsverði.

Greinargerð fylgir tillögunni. R11060068

Vísað til borgarstjórnar.

3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 11. þ.m.:

Lagt er til að viðmiðunartekjur til lækkunar fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega árið 2012 verði eftirfarandi:

I. Réttur til 100#PR lækkunar

Einstaklingur með tekjur allt að kr. 2.460.000

Hjón með tekjur allt að kr.3.440.000

II. Réttur til 80#PR lækkunar

Einstaklingur með tekjur allt að kr. 2.460.000 til 2.830.000

Hjón með tekjur allt að kr. 3.440.000 til 3.840.000

III. Réttur til 50#PR lækkunar

Einstaklingur með tekjur allt að kr. 2.830.000 til 3.290.000

Hjón með tekjur allt að kr. 3.840.000 til 4.580.000

Lagt er til að skilyrði lækkunar fasteignaskatts séu þau að viðkomandi elli- og örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með síðari breytingum. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Greinargerð fylgir tillögunni. R11060068

Vísað til borgarstjórnar.

4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 11. þ.m.:

Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2012 verði 14,48#PR.

Greinargerð fylgir tillögunni. R11060068

Vísað til borgarstjórnar.

5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 11. þ.m.:

Lagt er til að borgarráð samþykki eftirfarandi gjalddagaskiptingu fasteignagjalda fyrir árið 2012:

Almenna reglan verði sú að greiðendur fasteignagjalda geri skil á fasteignagjöldum ársins 2012 með 9 jöfnum greiðslum á eftirfarandi gjalddögum:

1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og 1. október.

Þrátt fyrir ofangreint er fjármálaskrifstofu heimilt að leyfa gjaldendum, sem áður hafa valið að greiða fasteignagjöldin með eingreiðslu hinn 1. maí ár hvert, að gera það áfram.

Ennfremur er gert ráð fyrir því að nemi fasteignagjöld kr. 25.000 eða minni fjárhæð greiði gjaldendur þau með einni greiðslu hinn 1. maí.

Greinargerð fylgir tillögunni. R11060068

Samþykkt.

6. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 15. þ.m., um breytingar á nánar tilgreindum gjaldskrám Reykjavíkurborgar árið 2011. R11060068

Vísað til borgarstjórnar.

7. Lagt fram frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012 ásamt greinargerð og starfsáætlunum. R11060068

Vísað til borgarstjórnar.

Fundi slitið kl. 15.00

Dagur B. Eggertsson

Elsa Hrafnhildur Yeoman Gísli Marteinn Baldursson

Júlíus Vífill Ingvarsson Oddný Sturludóttir

Óttarr Ólafur Proppé Sóley Tómasdóttir