Borgarráð - Borgarráð fimmtudaginn 05. mars 2026 nr. 5816

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 5. mars, var haldinn 5816. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra sem tók sæti á fundinum með rafrænum hætti, Alexandra Briem, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Stefán Pálsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ívar Vincent Smárason, Theodór Kjartansson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Dís Sigurgeirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 3. mars 2026, þar sem trúnaðarmerkt áfangaskýrsla eigendanefndar Orkuveitu Reykjavíkur er send borgarráði til kynningar, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.

    -    Kl. 9:07 tekur Einar Þorsteinsson sæti á fundinum með rafrænum hætti.
    -    Kl. 9:08 tekur Róbert Marshall sæti á fundinum.
    -    Kl. 9:18 tekur Einar Þorsteinsson sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.

    Sævar Freyr Þráinsson, Elín Smáradóttir og Eiríkur Hjálmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26020113

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 3. mars 2026, varðandi breytingar á reglum Reykjavíkurborgar um leikskólaþjónustu, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér eru gerðar breytingar á reglum um leikskólaþjónustu svo hægt sé að innleiða tillögur um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla sem samþykktar voru í borgarstjórn 17. febrúar síðastliðinn. Það er sérlega ánægjulegt að í nýjum reglum er lögð ríkari áhersla á sameiningu systkina í leikskóla en áður hefur verið gert, sem mun auka velferð viðkomandi systkina og fela í sér gríðarlegt hagræði fyrir viðkomandi barnafjölskyldur í Reykjavík. Breytingarnar fela í sér að gengið verður lengra í að koma yngri systkinum í sama leikskóla og eldra systkini er í, en unnt hefur verið að gera samkvæmt eldri reglum. Þessi regla á við í stóru innrituninni á vorin.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa áhyggjum af því að fyrirliggjandi Reykjavíkurleið í leikskólamálum muni velta byrðum á fjölskyldur en skila takmörkuðum áhrifum til að bæta starfsaðstæður í leikskólum. Fulltrúarnir styðja ekki fjölgun lokunardaga leikskólanna og vilja aukinn sveigjanleika hvað skráningardaga varðar. Innleiðingu systkinatillits má þó fagna enda löngu tímabært.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn situr hjá enda styður Framsókn ekki að lokunardögum sé fjölgað en tillagan gerir ráð fyrir þeirri þjónustuskerðingu. Betur hefði farið á því að þessari ákvörðun fylgdi tillaga um að hafa að minnsta kosti einn leikskóla í hverju hverfi opinn fyrir þær fjölskyldur sem eiga erfitt með að bregðast við þessum lokunardegi. Þá gerir Framsókn athugasemd við að systkini sem flytjast til borgarinnar njóti ekki sambærilegs systkinatillits og börn sem þegar búa í borginni.

    Steinn Jóhannsson, Guðrún Sigtryggsdóttir og Ólafur Brynjar Bjarkason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS26020037

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 11. febrúar 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 11. febrúar 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Laufásveg 19 og 21-23 og Þingholtsstræti 34, ásamt fylgiskjölum. 
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120032

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. febrúar 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. febrúar 2026 á samþykkt á tillögu að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluta 6.3 og skilmálaeiningu 6.3.27, vegna lóðar við Austurberg/Hraunberg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. 
    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða í 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25040246

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn fagnar því að dregið sé úr byggingarmagni á reitnum en gerir athugasemdir við að óljóst er af gögnum málsins hvort hverri íbúð fylgi bílastæði. Samkvæmt gögnum sést að þarna er gert ráð fyrir allt að 22 íbúðum en aðeins 16 bílastæðum. Framsókn situr því hjá við afgreiðslu tillögunnar.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki úthlutun lóðar og sölu byggingarréttar vegna lóðar við Norðurgrafarveg 3, ásamt fylgiskjölum. 
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030013

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki kaupsamning vegna sölu á húsnæði Reykjavíkurborgar að Keilufelli 5, ásamt fylgiskjölum. 
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25100155

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 27. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki leigusamning um hluta húsnæðis að Lágmúla 4, ásamt fylgiskjölum. 
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Berglind Magnúsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26020408

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn fagnar þessari ákvörðun. Húsnæðið í Efstaleiti var afar óhentugt fyrir þessa starfsemi því þar eru bílastæði af skornum skammti og dýrmætum tíma hjúkrunarfræðinga var varið í að hringsóla í leit að bílastæðum.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 2. mars 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lögð eru fram til kynningar drög að snjóflóðahættumati fyrir Bláfjöll og Skálafell. Endanleg skýrsla verður send hagaðilum til umsagnar en samstarfsnefnd skíðasvæðanna hefur þegar fengið kynningu á drögunum. Jafnframt er lagt til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að útbúa umsögn um málið.

    Samþykkt.

    Magni Hreinn Jónsson og Atli Steinn Árnason taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26020079

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 2. mars 2026, varðandi fyrirhugaða ferð borgarstjóra til Cannes í Frakklandi dagana 8. til 12. mars nk. á ráðstefnuna „Political leaders' Summit“, ásamt fylgiskjölum. MSS26020114

    Fylgigögn

  10. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. VEL26020039

  11. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 23. febrúar 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 18. febrúar 2026 á tillögu um aukningu stöðugilda hjá Barnavernd Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Rannveig Einarsdóttir og Þyrí Halla Steingrímsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26010154

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn styður fjölgun stöðugilda í Barnavernd Reykjavíkur. Barnavernd þjónustar viðkvæmasta hóp okkar samfélags og má aldrei vera undirmönnuð. Það er þó gerð athugasemd við það að stöðugildin hafi ekki verið aukin í síðustu fjárhagsáætlun sem gerð var í desember. Sérstaklega í ljósi þess að erindi Barnaverndar um þörf á fjölgun stöðugilda barst í nóvember. Það hefði farið betur á því að tryggja fjármagnið í fjárhagsáætlun þessa árs. Fjölgun barna í Reykjavík og aukinn þungi mála kallar á fjölgun stöðugilda í barnavernd.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 3. mars 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð staðfesti samþykkt velferðarráðs frá 18. febrúar sl. um rekstur neyðarheimilis Barnaverndar Reykjavíkur. Áætlaður hámarkskostnaður vegna tillögunnar er 42.532.560 m.kr. á ári en kostnaður rúmast ekki innan fjárheimilda velferðarsviðs. Lagt er til að fjármála- og áhættustýringarsviði verði falið að útfæra viðauka við fjárhagsáætlun vegna þessa í samræmi við kostnaðaráætlun fyrir árið 2026 vegna neyðarheimilis fyrir börn 0-12 ára.

    Samþykkt.

    Rannveig Einarsdóttir og Þyrí Halla Steingrímsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. VEL26010155

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 26. febrúar 2026, sbr. samþykkt stafræns ráðs frá 25. febrúar 2026 á heimildarbeiðni um að hefja vinnu við verkefnið „aðgang mála eftir 10. bekk – SkólaBúi“, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óskar J. Sandholt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON25040036

    Fylgigögn

  14. Lagður fram dómur Landsréttar í máli nr. 104/2025. MSS23120046

  15. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um skýrslu vinnuhóps um sjálfbærni og rekstur Félagsbústaða, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. janúar 2025.
    Tillögunni er vísað frá. 
    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25010214

    Fylgigögn

  16. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. mars 2026, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um afdrif tillögu um afléttingu trúnaðar á skýrslu um Félagsbústaði dags. mars 2024, sbr. 5. lið fundargerðar borgarráðs frá 17. febrúar 2026. MSS23080011

    Fylgigögn

  17. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 23. og 26. febrúar 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  18. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 25. febrúar 2026. MSS26010008

    Fylgigögn

  19. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. mars 2026.
    3. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  20. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 11 mál (MSS26010013, MSS26010028, FAS26020024, MSS26020110, MSS26010029, MSS26020121, MSS26010029, MSS26020116, MSS26020112, MSS26020117, MSS26020115). MSS26030003

    Fylgigögn

  21. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26030006

    -    Kl. 11:51 víkur Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir af fundi.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:52

Alexandra Briem Andrea Helgadóttir

Dóra Björt Guðjónsdóttir Einar Þorsteinsson

Hildur Björnsdóttir Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 5. mars 2026 - Prentvæn útgáfa