Borgarráð
Ár 2026, þriðjudaginn 29. september, var haldinn aukafundur borgarráðs nr. 5838. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 08:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Pétur Hafliði Marteinsson og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Einnig tóku eftirfarandi fulltrúar sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson, Helga Lára Haarde og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 25. september 2026, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki fyrirliggjandi verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. um hönnun og byggingu Þjóðarhallar í Laugardal. Jafnframt verði formanni stjórnar Þjóðarhallar ehf. heimilað að undirrita verksamninginn fyrir hönd Reykjavíkurborgar og Þjóðarhallar ehf. Fyrir verkið ber verkkaupa að greiða verktaka kr. 16.825.569.986 að meðtöldum virðisaukaskatti sem nemur um 3,3 milljörðum kr. Verktaki skal skila verkefninu eigi síðar en 25. janúar 2030. Hlutur Reykjavíkurborgar er 45% eða 8,7 milljarðar kr. sem greiðast skal á árunum 2025-2030.
- Kl. 8:55 tekur Björg Magnúsdóttir sæti á fundinum.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er mikið fagnaðarefni að nú sé loks komið að því að gera verksamning um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal. Aðdragandinn hefur verið langur. Viljayfirlýsing ríkis og Reykjavíkurborgar um byggingu hallarinnar var undirrituð í maí 2022 og síðan hafa tekið við frumathugun, stofnun Þjóðarhallar ehf., forval og umfangsmikið samkeppnisútboð sem lauk fyrr á þessu ári. Nú er verkefnið komið á framkvæmdastig. Fyrir liggur verksamningur við Íslenska aðalverktaka um hönnun og byggingu hallarinnar fyrir 16,8 milljarða króna og samkvæmt samningi skal fullbúnu mannvirki skilað eigi síðar en 25. janúar 2030. Hlutur Reykjavíkurborgar í fjármögnun verkefnisins er 45% á móti 55% hlut ríkisins. Þjóðarhöllin verður langþráð og mikilvæg viðbót við Laugardalinn og íslenskt íþróttalíf. Hún verður fjölnota mannvirki fyrir landslið og afreksíþróttir, íþróttafélög, skóla og almenning, auk þess að skapa nýja möguleika fyrir tónleika, ráðstefnur og aðra stóra viðburði. Eftir margra ára undirbúning er stór áfangi að sjá verkefnið færast af teikniborðinu yfir í framkvæmdir. Ný Þjóðarhöll mun gjörbreyta aðstöðu til inniíþrótta á Íslandi, styrkja Laugardalinn enn frekar sem hjarta íþróttastarfs í Reykjavík, tryggja æfingaöryggi fyrir félögin og skapa umgjörð þar sem borgarbúar og landsmenn geta komið saman um íþróttir og stóra viðburði um ókomin ár.
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að stórt skref sé stigið í átt að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal. Um er að ræða mikilvæga innviðauppbyggingu fyrir íþróttir, viðburði og samfélagið allt. Mikilvægt er að með fjárfestingu af þessari stærðargráðu liggi fyrir skýr og raunhæf áætlun um framtíðarrekstur mannvirkisins, þar á meðal tekjur, nýtingu, rekstrarkostnað og fjárhagslega ábyrgð eigenda. Jafnframt þarf að tryggja að nýja höllin nýtist vel nærumhverfinu, ekki síst börnum og ungmennum í hverfinu, skólum og íþróttafélögum í Laugardal. Við leggjum áherslu á að þessir þættir verði hafðir að leiðarljósi við mótun framtíðarfyrirkomulags rekstursins.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins telur gleðilegt að unnið sé að uppbyggingu Þjóðarhallar sem gagnast mun m.a. íþrótta- og menningarlífi landsmanna. Aðkoma Reykjavíkurborgar að verkinu hlýtur þó einkum að miðast við þarfir grunnskóla og hverfisíþróttafélaga. Sú ákvörðun að tengja kostnaðarhlut Reykjavíkur við notkunarhlutfall gerir það því að verkum að ef kostnaður við höllina verður hlutfallslega meiri en gerist og gengur í öðrum íþróttahúsum verða útgjöld Reykjavíkur hærri sem því nemur. Í því samhengi má minna á varnaðarorð fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, s.s. þann 11. janúar 2024, þar sem flokkurinn hefur sett almennan fyrirvara vegna fjárhagsstöðu borgarinnar þegar Þjóðarhöll hefur komið inn á borð borgarráðs.
Ómar Einarsson og Jörgen Már Magnússon taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26090110
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 9.02
Einar Þorsteinsson Ari Edwald
Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 29.9.26 prentvæn útgáfa