Bílastæðanefnd - Fundur nr. 45

Bílastæðanefnd

B Í L A S T Æ Ð A N E F N D

Ár 2015, miðvikudaginn 9. desember, var haldinn 45. fundur bílastæðanefndar Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Vonarstræti 4, 2. hæð og hófst kl. 15.00. Viðstaddir voru: Sóley Tómasdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Þórgnýr Thoroddsen, Karl Sigurðsson, Hildur Sverrisdóttir og Jóna Björg Sætran. Jafnframt sátu fundinn Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri. Fundarritari var Anna Elínborg Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram bréf frá framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs, dags. 8. desember 2015 BSS15120002, tillaga um hækkun á gjaldskrám.

Samþykkt með 4 atkvæðum. Hildur Sverrisdóttir situr hjá.

Vísað til borgarráðs.

Fundi slitið kl. 15.45.

Sóley Tómasdóttir

Kristín Soffía Jónsdóttir Þórgnýr Thoroddsen

Karl Sigurðsson Hildur Sverrisdóttir