Bílastæðanefnd - Fundur nr. 32

Bílastæðanefnd

B Í L A S T Æ Ð A N E F N D

Ár 2015, föstudaginn 9. janúar, var haldinn 32. fundur bílastæðanefndar Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Vonarstræti 4, 2. hæð. Von og hófst kl. 13:36. Viðstaddir voru: Sóley Tómasdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Þórgnýr Thoroddsen, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir. Jafnframt sátu fundinn Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri og Anna Elínborg Gunnarsdóttir rekstrarstjóri. Fundarritari var Vigdís Þóra Sigfúsdóttir. 

Þetta gerðist:

1. Lögð er fram tillaga framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs, dags. 8. janúar 2015, að nýrri gjaldskrá í bílahús Bílastæðasjóðs. BSS14120003.

Frestað.

2. Kynnt eru drög að nýjum íbúakortareglum.

Samþykkt er að vísa drögum til Umhverfis- og samgönguráðs, borgarlögmanns og hverfisráðs Miðborgar og Hlíða til umsagnar.

3. Kynning á mögulegum bílahúsum í Miðborg. 

- Kl.14:23 víkur Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir af fundi.

- Kl.14:27 víkur Kristín Soffía Jónsdóttir af fundi.

Fundi slitið kl. 14:44

Sóley Tómasdóttir

Þórgnýr Thoroddsen Elsa Hrafnhildur Yeoman