Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa - Fundur nr. 1068

Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa

Ár 2026, þriðjudaginn 30. júní kl. 09:10, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1068. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sat: Hjördís Sóley Sigurðardóttir. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Birgitta Rut Skúlad. Hjörvar, Ágúst Skorri Sigurðsson (í gegnum fjarfundarbúnað), Britta Magdalena Ágústsdóttir, Helga Rún Guðmundsdóttir, Hildur Ýr Ottósdóttir, Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir og Drífa Árnadóttir (í gegnum fjarfundarbúnað). Fundarritari var Helena Stefánsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Bæjarflöt 2 - (fsp) Tjaldskemma - USK26040277

    Lögð fram fyrirspurn Arkís Arkitekta ehf. dags. 21. apríl 2026, ásamt bréfi, dags. 20. apríl 2026, um að koma fyrir tjaldskemmu á lóð nr. 2 við Bæjarflöt, vestan við núverandi byggingu, innan byggingarreits. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Fylgigögn

  2. Árbær, hluti 7.2 - (fsp) Breyting á hverfisskipulagi - Hraunbær 117 - USK26050175

    Lögð fram fyrirspurn Kanon arkitekta, ásamt bréfi, dags. 12. maí 2026, um breytingu á hverfisskipulagi Árbæjar, hluta 7.2, vegna lóðarinnar nr. 117 við Hraunbæ, sem felst í að heimilt verði að reisa 5 hæða nýbyggingu verslunar/þjónustu og íbúða, stækka lóð til vesturs og að núverandi bygging víki fyrir nýbyggingu, samkvæmt fyrirspurnaruppdr. Kanon arkitekta, dags. 8. maí 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  3. Ármúli 28-30 - Nýtt deiliskipulag - USK25120362

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Selsins Fasteignafélags ehf., dags. 29. desember 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla. Í tillögunni sem lögð er til felst að gera bygginguna á lóð að varanlegum grunnskóla með allt að 250 nemendum og 45 starfsmönnum og verður notkun byggingar grunnskóli í notkunarflokki 1. Auk þess er gert ráð fyrir auknu byggingarmagni á lóð vegna flóttaleiða og lyftu og aðlöguðum leiksvæðum á pöllum, annars vegar á þaki bakhúss og svo yfir núverandi lóð að hluta, og eykst byggingarmagn vegna þeirra þar sem þau mynda B-rými á lóð, ásamt því að kvöð um gangstétt fellur út, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Noland, dags. 20. mars 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 20. mars 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Umsögn og athugasemdir bárust.

    Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

  4. Reitur 1.182.3, Kárastígsreitur - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Skólavörðustígur 37 - USK26050375

    Lögð fram fyrirspurn Sigurðar Hallgrímssonar, dags. 22. maí 2026, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.182.3, Kárastígsreits, vegna lóðarinnar nr. 37 við Skólavörðustíg, sem felst í niðurrifi hússins og endurbyggingu þess í sömu götumynd. Einnig er lögð fram kynning, ódags., álit Minjastofnunar Íslands, dags. 12. febrúar 2026, og minnisblað VSÓ ráðgjafar, dags. 16. apríl 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  5. Sundin - Breyting á deiliskipulagi - Dyngjuvegur 18, Leikskólinn Sunnuás - USK26040107

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Sunda vegna lóðarinnar nr. 18 við Dyngjuveg, Leikskólinn Sunnuás. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að rífa niður húsið á lóðinni og byggja nýtt stærra hús á lóð, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta, dags. 8. apríl 2026. Einnig er lagt fram ástands- og kostnaðarmat VSÓ ráðgjafar, dags. í júní 2025, og samgöngumat VSÓ ráðgjafar, dags. í nóvember 2025. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust.

    Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

  6. Teigahverfi - Breyting á deiliskipulagi - Reykjavegur, Hofteigur, Kirkjuteigur - USK26040131

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs. Í breytingunni sem lögð er til felst að loka fyrir umferð Kirkjuteigs annars vegar og hins vegar Hofteigs inn á Reykjaveg og að minnka óverulega lóð Laugarnesskóla til að koma fyrir snúningssvæði við enda Hofteigs, samkvæmt uppdr. Landslags, dags. 13. apríl 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust.

    Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

  7. Heiðargerðisreitur - Breyting á deiliskipulagi - Heiðargerði 92 - USK25090291

    Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Arkiteo ehf., dags. 21. september 2025, um breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits vegna lóðarinnar nr. 92 við Heiðargerði. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að stækka byggingarreit lóðarinnar til að koma fyrir nýju anddyri, hækka þak í norðurhluta hússins og setja kvist á eldra þak í norðurhluta hússins, ásamt því að setja nýja þakglugga á húsið, glugga á norðurhlið hússins, nýja glugga í kvisti á austurhlið og nýjar svalir á vesturhlið út frá eldri kvisti, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Arkiteo ehf., dags. 24. apríl 2026. Erindið var grenndarkynnt frá 29. maí 2026 til og með 27. júní 2026. Engar athugasemdir bárust.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

  8. Rauðarárstígur 5-9 - (fsp) Djúpgámar - USK26040407

    Lögð fram fyrirspurn Rauðarárstígs 5-9, húsfélags, dags. 28. apríl 2026, um að setja djúpgáma á lóð nr. 5-9 við Rauðarárstíg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  9. Gufunes 1. áfangi - Breyting á deiliskipulagi - Gufunesvegur og Þengilsbás - Reitir A1.1-A1.4 - USK24120211

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Gunnars Bjarnasonar ehf., dags. 20. desember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness 1. áfanga vegna fjögurra lóða á reit A1. Í breytingunni sem lögð er til felst að sameina lóðirnar A1.1-A1.4, núverandi spennistöð verður færð inn á nýja lóð eða inn í núverandi hús á reit A1.2, byggingarreitur bílakjallara nær undir alla lóðina, heildarbyggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt en byggingarmagn neðanjarðar eykst, íbúðir verða heimilaðar á öllum hæðum, en mögulegt verður að vera með atvinnustarfsemi á jarðhæð, og heimilt verður að gera þaksvalir ásamt því að öll bílastæði verða í bílakjallara og á móti hverju deilibílastæði verði hægt að falla frá 5 bílastæðum einkabíla, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Praxis arkitektúr, dags. 19. desember 2024. Einnig er lagt fram samkomulag lóðarhafa og Reykjavíkurborgar, dags. 18. mars 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Ábending Veitna barst.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

  10. Bergstaðastræti 57 - (fsp) Fjölgun íbúða og bílastæði - USK26030460

    Við birtingu fundargerðar afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. maí 2026 var umsögn skipulagsfulltrúa fyrir ofangreint mál lögð fram og samþykkt. Misfórst að setja inn í inngang umsagnarinnar tilvísun í dagsetningu og efni fyrirspurnarinnar og hefur það nú verið lagfært og dagsetning umsagnar uppfærð í 30. júní 2026. Engar efnislegar breytingar voru gerðar á umsögninni og rétt var vísað í dagsetningu og efni í fundargerð að öðru leiti.

  11. Álfheimar/Heimahverfi - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040279

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Álfheima/Heimahverfis. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  12. Klettasvæði - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040287

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Klettasvæðis. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda

  13. Laugardalur - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040289

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Laugardals. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  14. Laugarnes - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040285

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Laugarness. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  15. Norðurströnd, strandsvæði milli Faxagötu og Laugarness - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040286

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Norðurstrandar, strandsvæði milli Faxagötu og Laugarness. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  16. Sundagarðar 2 - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040282

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Sundagarða 2. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  17. Sundahöfn - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040283

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Sundahafnar. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  18. Sundin - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040281

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir Sundin. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  19. Teigahverfi (syðri hluti) - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040288

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Teigahverfis (syðri hluti). Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  20. Vatnagarðar, Eimskip - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26040284

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Vatnagarða, Eimskips. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

  21. Bragagata 30 - (fsp) Stækka svalir - USK26040211

    Lögð fram fyrirspurn Þorsteins Arnar Þorsteinssonar, dags. 17. apríl 2026, um að stækka svalir á 1. hæð hússins á lóð nr. 30 við Bragagötu. Einnig er lögð fram ljósmynd. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  22. Bústaðavegur við Efstaleiti - Nýtt deiliskipulag - USK26030076

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir hluta Bústaðavegar frá skipulagsmörkum Hverfisskipulags Hlíðarhverfis, Hlíðar 3.2, til vesturs að skipulagsmörkum Kringlubæjar II áfanga til norðurs og að afmörkun deiliskipulags Efstaleitis, RÚV reits, til austurs og til suðurs eru skipulagsmörk svæðisins afmörkuð sunnan við núverandi stígakerfi. Í tillögunni sem lögð er til felst að komið er fyrir nýrri biðstöð strætó sunnan megin við Bústaðaveg við Efstaleiti ásamt því að núverandi biðstöð norðan megin við Bústaðaveg verður hluti af þessu deiliskipulagi. Aðreinar sunnan megin við Bústaðaveg frá Kringlumýrarbraut eru framlengdar inn á Bústaðaveg fram að umferðarljósum við Efstaleiti og gerð er ný gönguþverun yfir Bústaðaveg við núverandi umferðarljós hjá Efstaleiti, samkvæmt uppdr. COWI, dags. 8. apríl 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Engar athugasemdir bárust.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

  23. Kringlubær II. áfangi - Breyting á deiliskipulagi - Breyting á skipulagsmörkum - USK26040036

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu deiliskipulagi II. áfanga Kringlubæjar. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á skipulagsmörkum til samræmis við skipulagsmörk Hverfisskipulags Hlíðahverfis, Hlíðar 3.2, sem staðfest var 11. júlí 2024 og tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Bústaðaveg við Efstaleiti, samkvæmt uppdr. COWI, dags. 8. apríl 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Engar athugasemdir bárust.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

  24. Laugarvegur 37 - (fsp) Rekstur gististaðar - USK26040298

    Lögð fram fyrirspurn Fasteignafélagsins Flekans ehf., dags. 21. apríl 2026, um rekstur gististaðar í húsinu á lóð nr. 37 við Laugaveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  25. Bárugata 20 - (fsp) Kvistur og þakgluggi - USK26040330

    Lögð fram fyrirspurn Alternance slf., dags. 22. apríl 2026, ásamt greinargerð, dags. 21. apríl 2026, um að setja kvist og þakglugga á bakhlið hússins á lóð nr. 20 við Bárugötu, samkvæmt uppdr. Alternance arkitektúr, dags. 23. febrúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  26. Hólmsheiði, athafnasvæði - Breyting á skilmálum deiliskipulags - USK26020368

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á skilmálum deiliskipulags Hólmsheiðar, athafnasvæðis. Í breytingunni sem lögð er til felst minnkun á byggingarmagni þriggja lóða; Lóð C, D og E, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. mars 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Engar athugasemdir bárust.

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

  27. Fálkagata 23 - USK26020141

    Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2026 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. mars 2026 þar sem sótt er um leyfi til að rífa mhl. 02 og byggja viðbyggingu við einbýlishús á lóð nr. 23 við Fálkagötu. Einnig var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2026. Erindi er nú lagt fram ásamt leiðrétti umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  28. Háaleitisbraut 1 - Breyting á deiliskipulagi - USK26030120

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn TÓ arkitekta ehf., dags. 5. mars 2026, um breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta notkun hússins þannig að heimilt verði að reka þar hótel með allt að 90 herbergjum. Breytingin felur einnig í sér heimild til hækkunar hússins um eina inndregna hæð ásamt heimild til að grafa frá húsinu austanverðu til að sækja birtu ofan í kjallara, samkvæmt uppdr. TÓ arkitekta, dags. 14. apríl 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 1. apríl 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Athugasemdir bárust.

    Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

  29. Kambsvegur 18 - USK26050188

    Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 2. júní 2026 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að innra skipulagi verslunarrýmis 0101 hefur verið breytt og innréttað sem tvær íbúðir rými 0101 og 0102, í mhl.02 á lóð nr. 18 við Kambsveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:22

Hjördís Sóley Sigurðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 30. júní 2026