Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa
Ár 2026, þriðjudaginn 9. júní kl. 09:18, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1065. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sátu: Brynjar Þór Jónasson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Britta Magdalena Ágústsdóttir, Sigríður Maack og Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir. Fundarritari var Helena Stefánsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Kópavogur - Þríhnúkar - Nýtt deiliskipulag - Lýsing - USK26050295
Lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar, dags. 14. maí 2026, þar sem óskað er eftir umsögn um skipulagslýsingu, dags. 16. maí 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni. Meginmarkmið skipulagsvinnunnar er að móta framtíðarsýn um ferðaþjónustu starfsemi við Þríhnúka og aðgengi að svæðinu.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
-
Elliðaárdalur - breyting á deiliskipulagi vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs - USK25110138
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Landslags og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkun Árbæjarlóns er fjarlægð þar sem það er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaár skilgreindir í stað lónsins. Þá er skilgreint nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg göngutenging yfir Elliðaárnar ásamt því að breytingar verða á aðliggjandi stígum og áningarstöðum beggja megin stíflunar. Breytingin tekur einnig til Rafstöðvarvegar þar sem breytingar verða á stígakerfi og útfærslum þar sem vegurinn fer um Rafstöðvarsvæðið. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, skv. uppdrætti Landslags, dags. 27. febrúar 2026 og greinargerð Landslags, dags. 25. febrúar 2026. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís, dags. í september 2025, um áhrifamat vatnshlota vegna breytinga á Árbæjarstíflu og framkvæmda við nýja brú. Athugasemdir bárust.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
-
Skeifan - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Grensásvegur 9 - USK26040133
Lögð fram fyrirspurn Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna, ásamt greinargerð, dags. 13. apríl 2026, um breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar vegna lóðarinnar nr. 9 við Grensásveg, sem felst í uppbyggingu á lóðinni á grundvelli rammaskipulags svæðisins. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Bankastræti 7 - (fsp) Yfirbygging svala - USK26010312
Lögð fram fyrirspurn Farfuglar ses., dags. 21. janúar 2026, um að byggja yfir svalir á 4. hæð hússins á lóð nr. 7 við Bankastræti að hluta til eða að öllu leiti, samkvæmt tillögu, ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Heiðnaberg 1 - (fsp) Tilfærsla á ljósastaur - USK26050303
Lögð fram fyrirspurn Garðars Eggertssonar, dags. 19. maí 2026, um að færa til ljósastaur frá innkeyrslu á bílastæði á lóð nr. 1 við Heiðnaberg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026.
Fylgigögn
-
Hvalfjarðarsveit - Breyting á aðalskipulagi - Galtarlækur L133627 - Athafna- og hafnarsvæði - USK25020007
Lögð fram umsagnarbeiðni Hvalfjarðarsveitar, dags. 15. apríl 2026, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir jörðina Galtarlæk. Breytingin felur í sér að athafnasvæði AF15 á Galtarlæk stækkar og umfang starfseminnar eykst. Nýtt hafnarsvæði verður skilgreint neðan athafnasvæðisins. Svæðið sem um ræðir er skilgreint sem landbúnaðarland í gildandi skipulagi. Hin nýju athafna- og hafnarsvæði verða vestur frá núverandi atvinnusvæði og hafnarmannvirkjum á Grundartanga. Áætlað er að ný höfn muni þjónusta flutningaskip og stór skemmtiferðaskip, með viðlegukanti sem nýtist til fjölbreyttrar hafnsækinnar starfsemi. Athafnasvæðið mun hýsa hreinlega og vistvæna starfsemi, svo sem vörugeymslur, geymslusvæði, léttan iðnað og þjónustustarfsemi tengda hafnarrekstri. Sérstök áhersla verður lögð á umhverfisvænar lausnir varðandi neysluvatn, fráveitu og raftengingar fyrir skip og bifreiðar, samkvæmt tillögu Eflu, dags. 15. janúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Rafstöðvarvegur 33 – breytingaerindi - USK26020160
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. maí 2026 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr mhl 02, einnig er sótt um að innrétta íbúð í kjallararými 0001 og útbúa tröppur að kjallara í norðausturhlið á parhúsi á lóð nr. 33 við Rafstöðvarveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:08
Brynjar Þór Jónasson Hjördís Sóley Sigurðardóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 9. júní 2026