Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa
Ár 2026, þriðjudaginn 2. júní kl. 09:10, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1064. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sátu: Brynjar Þór Jónasson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Sigríður Maack, Drífa Árnadóttir, Óskar Örn Arnórsson, Britta Magdalena Ágústsdóttir, Birgitta Rut Skúlad. Hjörvar, Valný Aðalsteinsdóttir. Fundarritari var Helena Stefánsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Ingólfsstræti 3 - (fsp) Breyting á notkun hluta húss - USK26030418
Lögð fram fyrirspurn Málstaðar ehf., dags. 24. mars 2026, um breytingu á notkun 3. og 4. hæðar hússins á lóð nr. 3 við Ingólfsstræti úr skrifstofum í íbúðir og setja svalir á húsið, samkvæmt tillögu GS Teiknistofu, dags. 24. mars 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Knarrarvogur 2 - USK26010125
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. apríl 2026 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. mars 2026 þar sem sótt er um byggingarheimild til að fjarlægja geyma, lagnir og annað sem tilheyrir bensínstöð Atlantsolíu á lóð nr. 2 við Knarrarvog. Einnig var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2026. Erindi er nú lagt fram að nýju ásamt uppfærðri umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Miðtún 18 - (fsp) Rekstur gististaðar í flokki II - USK26030472
Lögð fram fyrirspurn Stefáns Helga Henrýssonar, dags. 27. mars 2026, um áframhaldandi rekstur gististaðar í flokki II í húsinu á lóð nr. 18 við Miðtún með breyttum rekstaraðila. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Fylgigögn
-
Snorrabraut 85 - USK26020022
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2026 þar sem sótt er um leyfi til að skipta einni íbúð í tvær á 1.hæð hússins. Hæðin verður áfram ein eign. Stálsvölum sé komið fyrir á 1.hæð austurhlið á lóð nr. 85 við Snorrabraut. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Byggðarendi 20 - USK26040137
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 28. apríl 2026 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sólskála á neðri hæð austurhliðar og til að koma fyrir svalalokun á efri hæð einbýlishúss á lóð nr. 20 við Byggðarenda. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Álfabakki 2A (Br.erindi) - USK25030304
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. september 2025 var ranglega bókað að sú umsögn sem síðar var hengd við og birt á heimasíðu Reykjavíkurborgar, í stað draga að umsögn, hafi verið sú umsögn sem afgreidd var á fundi 15. maí 2025. Hið rétta er að áður en umsögnin var birt á heimasíðu Reykjavíkurborgar var rökstuðningi bætt við umsögnina eftir samþykki hennar á afgreiðslufundinum og hún gerð fyllri þó niðurstaða hennar hafi áfram verið sú sama. Umsögnin var því tekin að nýju fyrir á afgreiðslufundi 4. nóvember 2025 og afgreidd með fyrrgreindum viðbótum. Leiðréttist þetta hér með.
-
Hrefnugata 9 - USK26010266
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2026 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak, byggja tvo kvisti og svalir , innrétta svefnherbergi og baðherbergi í risi og breyta innra skipulagi á 2. hæð, einnig er gerð grein fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að innra skipulagi hefur verið breytt í kjallara og á 1. hæð, innréttað íbúðarherbergi í hluta bílskúrs og byggð köld geymsla í garði einbýlishúss á lóð nr. 9 við Hrefnugötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Fylgigögn
-
Landspítali við Hringbraut - Randbyggð - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - USK26050018
Lögð fram fyrirspurn Íslenskra fasteigna ehf., dags. 4. maí 2026, um breytingu á deiliskipulagi Landspítala við Hringbraut, Randbyggðar sem felst í breyttri útfærslu á göngustíg og tengingu hans við göngubrú yfir Hringbraut við Randbyggð. Auk tillögu um viðbótarhæð og lækkun salarhæða í byggingum 32-33-34 og bættri útfærslu á bílakjallara með tilliti til aðgengis og staðsetningar á göngubrú. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Álfabakki 8 - USK26050077
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2026 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun, útliti og innra skipulagi og innrétta sem skrifstofu- og verslunarhúsnæði fyrrum kvikmyndahús á lóð nr. 8 við Álfabakka. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2026, samþykkt.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:52
Brynjar Þór Jónasson Hjördís Sóley Sigurðardóttir