Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa - Fundur nr. 1062

Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa

Ár 2026, þriðjudaginn 19. maí kl. 09:10, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1062. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sat: Brynjar Þór Jónasson. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Ágúst Skorri Sigurðsson, Helga Rún Guðmundsdóttir, Jarþrúður Iða Másdóttir, Þórhildur B. Guðmundsdóttir, Ólafur Ingibergsson, Hrafnhildur Sverrisdóttir og Valný Aðalsteinsdóttir. Fundarritari var Helena Stefánsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Sundin - Breyting á deiliskipulagi - Dyngjuvegur 18, Leikskólinn Sunnuás - USK26040107

    Breyting hefur verið gerð á lið 2 í fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. apríl 2026. Í upphaflegri útgáfu fundargerðarinnar var ranglega vísað til leikskólans að Dyngjuvegi 18 sem Sunnuborg en rétt heiti er leikskólinn Sunnuás. Aðrar breytingar voru ekki gerðar á fundargerð.

  2. Laugarnes  - Nýjar borholur við Engjateig, Lágmúla og Bolholt - Umsagnarbeiðni - Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu - USK26050017

    Lögð fram umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar, dags. 27. apríl 2026, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um matsskyldufyrirspurn unnin af VSÓ ráðgjöf, dags. í apríl 2026, vegna áforma Veitna um að bora allt að sjö vinnsluholur í Laugarnesi í Reykjavík; allt að fimm við Engjateig, eina í Lágmúla og eina í Bolholti. Fyrir eru borholur við Bolholt og Lágmúla en við Engjateig er í gildi deiliskipulag sem heimilar borun nýrra vinnsluhola. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  3. Laugavegur 28A - (fsp) Hækkun og stækkun húss - USK25110087

    Lögð fram fyrirspurn Aurora ehf., dags. 6. nóvember 2025, um hækkun og stækkun hússins á lóð nr. 28A við Laugaveg, samkvæmt skissum. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Fylgigögn

  4. Stararimi 51 - (fsp) Stækkun húss og fjölgun íbúða - USK26010177

    Lögð fram fyrirspurn Þorsteins Magnússonar, dags. 12. janúar 2026, um stækkun hússins á lóð nr. 51 við Stararima og fjölgun íbúða. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  5. Skildinganes - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Skildingatangi 2 - USK26040076

    Lögð fram fyrirspurn PLAN Studio ehf., dags. 9. apríl 2026, ásamt bréfi, dags. 8. apríl 2026, um breytingu á deiliskipulagi Skildinganess vegna lóðarinnar nr. 2 við Skildingatanga, sem felst í stækkun á byggingarreit vegna viðbyggingar á suðurhlið hússins, samkvæmt tillögu Plan Studio, ódags. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  6. Stýrimannastígur 2 - USK26030088

    Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. apríl 2026 þar sem sótt er um breytingar á innra skipulagi húss, nýju fyrirkomulagi glugga í kjallara, tilfærslu útihurðar bakatil, uppsetningu hjólageymslu og stofnunar bílastæðis við einbýlishús á lóð nr. 2 við Stýrimannastíg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  7. Skarfabakki, Klettasvæði - Breyting á deiliskipulagi - Skarfagarðar 6-8 - USK25110089

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Faxaflóahafna sf., dags. 6. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 6-8 við Skarfagarða. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðamörk Skarfagarða 6 færast 12 m frá hafnarbakka og verða eftir breytingu í 30 m fjarlægð frá honum, byggingarreitur minnkar í samræmi við það. Ný lóð, Skarfagarðar 8, er stofnuð á nýrri landfyllingu fyrir farþegamiðstöð, samkvæmt uppdr. ARKÍS, dags. 4. nóvember 2025, 12. maí 2026. Tillagan var auglýst frá 19. mars 2026 til og með 7. maí 2026. Umsögn barst frá Veitum. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2026 og er nú lagt fram að nýju.

    Afturkölluð er bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2026. Málstexti er uppfærður þar sem breyttur uppdráttur er lagður fram. 

    Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

  8. Háaleitisbraut 11-13 - (fsp) Breyting á skilgreiningu lóðar - USK26030420

    Lögð fram fyrirspurn Arktíka ehf., dags. 24. mars 2026, ásamt bréfi, dags. 23. mars 2026, um að lóð nr. 11-13 við Háaleitisbraut verði skilgreind sem íbúðasvæði að öllu leiti eða að hluta til. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 10:40

Brynjar Þór Jónasson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 19. maí 2026