Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa - Fundur nr. 1060

Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa

Ár 2026, þriðjudaginn 5. maí kl. 09:00, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1060. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sat: Brynjar Þór Jónasson. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Ólafur Ingibergsson, Britta Magdalena Ágústsdóttir, Hildur Ýr Ottósdóttir og Íris Reynisdóttir. Fundarritari var Brynjar Þór Jónasson.

Þetta gerðist:

  1. Bústaðavegur 18 - Dælustöð í Öskjuhlíð - Framkvæmdaleyfi - USK26030410

    Lögð fram umsókn Veitna ohf., dags. 24. mars 2026, um framkvæmdaleyfi að Bústaðavegi 18 til að leggja foreinangraða hitaveitupípu, sem tengist milli inntaks stöðvarinnar og inn á tvær pípur í stokk sem liggur frá stöðinni. Gengið verður frá stokknum og stokksenda fyrir ofan dælustöðina með frárennslisröri í fráveitukerfi. Framhjáhlaupið tengist í stokk fyrir neðan dælustöð. Saga þarf hitaveitustokka og steypa svo aftur upp stokkenda til að fullgera framhjáhlaupið. Yfirborðsfrágangur verður með sama hætti og áður, engin útlitsbreyting verður á stokknum eða dælustöð. Áætlaður framkvæmdatími er frá 12. maí 2026 til ágústloka 2026, en yfirborðsfrágangur í september 2026. Einnig er lagt fram teikningasett Verkís. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026.

    Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.4 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025.

    Fylgigögn

  2. Fossagata 14 - (fsp) Stækkun lóðar - USK25080158

    Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. ágúst 2025 var lögð fram fyrirspurn Sindra Snæs Ómarssonar, dags. 14. ágúst 2025, um stækkun lóðarinnar nr. 14 við Fossagötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026, samþykkt.

    1.  

    Fylgigögn

  3. Heiðargerðisreitur - Breyting á deiliskipulagi - Heiðargerði 92 - USK25090291

    Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2025 var lögð fram umsókn Arkiteo ehf., dags. 21. september 2025, um breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits vegna lóðarinnar nr. 92 við Heiðargerði. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að stækka byggingarreit lóðarinnar til að koma fyrir nýju anddyri, hækka þak í norðurhluta hússins og setja kvist á eldra þak í norðurhluta hússins, ásamt því að setja nýja þakglugga á húsið, glugga á norðurhlið hússins, nýja glugga í kvisti á austurhlið og nýjar svalir á vesturhlið út frá eldri kvisti, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Arkiteo ehf., dags. 24. apríl 2026. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.

    Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Heiðargerði 74, 76, 90 og 94.

    Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7.6 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025.

  4. Saltvík - Hænsnabú - Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu - Umsagnarbeiðni - USK26030373

    Lögð fram umsagnarbeiðni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, mótt. 23. mars 2026, þar sem óskað er eftir umsögn um matsskyldufyrirspurn VSÓ ráðgjafar, dags. í febrúar 2026, vegna uppbyggingu þauleldis alifugla í Saltvík. Tvö varphús eru þegar risin á jörðinni. Hið fyrra var reist 2023 og hið seinna 2024. Húsin eru um 1.700 m2 og rúma um 24.000 – 26.000 varpstæði. Til stendur að reisa eitt varphús til viðbótar, sem verður um 1.700 m2 með stæði fyrir um 10.000 varphænur og auka aðstöðu fyrir starfsemina. Með viðbótinni verður heildarstærð búsins um 5.100 m2 með stæði fyrir um 59.900 varphænur. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

  5. Sigtúnsreitur - Breyting á deiliskipulagi - Sigtún 42 - USK25100009

    Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helga Indriðasonar, dags. 1. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits vegna lóðarinnar nr. 42 við Sigtún. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmarkaður er byggingarreitur fyrir hjóla- og sorpskýli á lóðinni ásamt því að nýtingarhlutfall eykst í 0,4, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta, dags. 22. janúar 2026. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. mars 2026 til og með 28. apríl 2026. Athugasemdir og ábending bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. maí 2026.

    Samþykkt með vísan umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 4. maí 2026, og til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

    Fylgigögn

  6. Snorrabraut 62 - (fsp) Listaverk í almannarými - USK26020173

    Lögð fram fyrirspurn Listasafns Reykjavíkur, dags. 11. febrúar 2026, um uppsetningu á listaverki í almannarými við norðurenda hússins að Snorrabraut 62, samkvæmt tillögu Kristins E. Hrafnssonar. Einnig er lögð fram umsögn deildar borgarhönnunar, dags. 27. apríl 2026, og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026.

    Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026, samþykkt.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:00

Brynjar Þór Jónasson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 5. maí 2026