Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa - Fundur nr. 1052
Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa
Ár 2026, þriðjudaginn 10. mars kl. 9:12, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1052. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sátu: Brynjar Þór Jónasson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir. Eftirtaldir embættismenn kynntu mál á fundinum: Íris Reynisdóttir, Ágúst Skorri Sigurðsson, Jarþrúður Iða Másdóttir, Hrafnhildur Sverrisdóttir, Ólafur Ingibergsson, Óskar Örn Arnórsson, Valný Aðalsteinsdóttir, Sólveig Sigurðardóttir, Ólavía Rún Grímsdóttir og Birgitta Rut Skúlad. Hjörvar. Fundarritari var Helena Stefánsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Elliðaárdalur - breyting á deiliskipulagi vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs - USK25110138
Lögð fram tillaga Landslags og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkun Árbæjarlóns er fjarlægð þar sem það er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaár skilgreindir í stað lónsins. Þá er skilgreint nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg göngutenging yfir Elliðaárnar ásamt því að breytingar verða á aðliggjandi stígum og áningarstöðum beggja megin stíflunar. Breytingin tekur einnig til Rafstöðvarvegar þar sem breytingar verða á stígakerfi og útfærslum þar sem vegurinn fer um Rafstöðvarsvæðið. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, skv. uppdrætti Landslags, dags. 27. febrúar 2026 og greinargerð Landslags, dags. 25. febrúar 2026. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís, dags. í september 2025, um áhrifamat vatnshlota vegna breytinga á Árbæjarstíflu og framkvæmda við nýja brú.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
-
Hólmsheiði, athafnasvæði - Áfangi 2 - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Lóð D - USK26010130
Lögð fram fyrirspurn Safari hjóla ehf., dags. 7. janúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis á Hólmsheiði, áfanga 2, vegna breytingar á nýtingarhlutfalli lóðar D. Óskað er eftir að nýtingarhlutfall lóðarinnar verði lækkað í 0,3 eins og var fyrir breytingu 2025. Í núgildandi deiliskipulagi er nýtingarhlutfall 0,6. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Hólmsheiði, athafnasvæði - Áfangi 2 - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Lóð C - USK26010219
Lögð fram fyrirspurn Parlogis ehf., dags. 14. janúar 2026, ásamt bréfi, dags. 14. janúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis á Hólmsheiði, áfanga 2, vegna breytingar á nýtingarhlutfalli lóðar C. Óskað er eftir að nýtingarhlutfall lóðarinnar verði lækkað í 0,4 eins og var fyrir breytingu 2025. Í núgildandi deiliskipulagi er nýtingarhlutfall 0,6. Einnig er lögð fram skýringarmynd Grímu arkitekta, dags. 13. janúar 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Hólmsheiði, athafnasvæði - Áfangi 2 - Breyting á deiliskipulagi - Lóð E - USK26020301
Lögð fram umsókn DAP ehf., dags. 19. febrúar 2026, ásamt bréfi, dags. 16. febrúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis á Hólmsheiði, áfanga 2, vegna lóðar E. Í breytingunni sem lögð er til felst breyting á skilmálum um nýtingahlutfall lóðarinnar þannig að nýtingarhlutfall verði 0,4 í stað 0,6, samkvæmt tillögu DAP, dags. 14. febrúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Sólvallagata 26 - (fsp) Breyting á notkun bílskúrs - USK25120016
Lögð fram fyrirspurn Gunnars Andreasar Kristinssonar, dags. 1. desember 2025, um breytingu á notkun bílskúrs á lóð nr. 26 við Sólvallagötu í íbúð, samkvæmt tillögu Skala arkitekta, ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Klapparstígur 1 - (fsp) Breyting á gluggum - USK25110025
Lögð fram fyrirspurn K16 ehf., dags. 3. nóvember 2025, um að breyta horngluggum í húsinu á lóð nr. 1 við Klapparstíg, samkvæmt skissu, ódags. Einnig er lögð fram ljósmynd. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Borgartún 28 - USK25060286
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. febrúar 2026 þar sem sótt er um heimild til að koma fyrir LED auglýsingaskilti á vesturgafl verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 28 við Borgartún. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Fylgigögn
-
Brekkugerði 13 - (fsp) Bílskúr - USK26020120
Lögð fram fyrirspurn Eyþórs Sigurðssonar, dags. 8. febrúar 2026, um að setja bílskúr á lóð nr. 13 við Brekkugerði, samkvæmt afstöðumynd, ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Fylgigögn
-
Bæjarflöt 19 - (fsp) Hækkun á þakglugga - USK26010464
Lögð fram fyrirspurn Landsa ehf., dags. 29. janúar 2026, um að hækka þakglugga á húsinu á lóð nr. 19 við Bæjarflöt tímabundið um 2,5 metra, samkvæmt uppdr. ES Teiknistofunnar, dags. 29. janúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Fylgigögn
-
Jónsgeisli 69 - (fsp) Stækkun bílgeymslu - USK26020125
Lögð fram fyrirspurn Gauta Sigurðssonar, dags. 9. febrúar 2026, um stækkun á byggingarreit bílgeymslu á lóð nr. 69 við Jónsgeisla, samkvæmt uppdr. Larsen, hönnun og ráðgjöf, dags. 3. febrúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Naustabryggja 36-56 - (fsp) Djúpgámar - USK25120350
Lögð fram fyrirspurn Ólafs I. Halldórssonar, dags. 27. desember 2026, um að setja tvo djúpgáma á lóð nr. 36-56 við Naustabryggju. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd þar sem skissuð er staðsetning djúpgáma. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Breiðholt, hluti 6.2 Seljahverfi - (fsp) Breyting á hverfisskipulagi - Stuðlasel 7 - USK26020305
Lögð fram fyrirspurn Atla Helgasonar, dags. 19. febrúar 2026, um breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluta 6,2 Seljahverfis, vegna lóðarinnar nr. 7 við Stuðlasel sem felst í að heimilt verði að stækka og loka svölum sem snúa í suð-vestur með stiga út í garð, samkvæmt tillögu, ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Fylgigögn
-
Reykjavíkurflugvöllur - Nauthólsvegur 62 (fsp) Flugskýli - USK25110074
Lögð fram fyrirspurn Plúsarkitekta ehf., dags. 5. nóvember 2025, ásamt greinargerð Plúsarkitekta, dags. 5. nóvember 2025, um byggingu nýs flugskýlis á lóð nr. 62 við Nauthólsveg með skrifstofu- og kennsluaðstöðu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Fylgigögn
-
Gufuneskirkjugarður - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - USK26020017
Lögð fram fyrirspurn Kirkjugarða Reykjavíkur, dags. 2. febrúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi Gufuneskirkjugarðs sem felst í að heimiluð verði stækkun á byggingarreitur fyrir skemmu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Haukahlíð 2 - (fsp) Sala bílastæða sem sjálfstæðra eigna - USK26020040
Lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf., dags. 3. febrúar 2026, ásamt bréfi, dags. 3. febrúar 2026, um hvort heimilt geti verið að leyfa sölu bílastæða sem sjálfstæðra eigna á lóð nr. 2 við Haukahlíð, sem valkost eða viðbót við leigufyrirkomulag, án þess að ganga gegn markmiðum deiliskipulags og samgöngumats. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Hlíðarendi - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Arnarhlíð 3 - USK26020107
Lögð fram fyrirspurn Varmárbyggðar ehf., dags. 6. febrúar 2026, ásamt bréfi, dags. 5. febrúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 3 við Arnarhlíð, sem felst í að heimilt verði að reka matvöruverslun í hluta hússins sem fellur undir atvinnuhúsnæði. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Sæmundargata 15-19 - (fsp) Tímabundin breyting á notkun bílakjallara - USK26010415
Lögð fram fyrirspurn PK arkitekta, dags. 27. janúar 2026, ásamt bréfi, dags. 27. janúar 2026, um tímabundna breytingu á notkun bílakjallara á lóð nr. 15-19 við Sæmundargötu þannig að hann nýtist allur fyrir aðalnotkun hússins, sem er líftækni og skrifstofur. Einnig eru lagðar fram grunnmyndir; núverandi samþykktur uppdráttur, bráðabirgðaútfærsla og endanleg útfærsla. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Vagnhöfði 9 - (fsp) Færsla á lóðamörkum - USK25050529
Lögð fram fyrirspurn Gastec ehf., dags. 30. maí 2025, um að færa lóðamörk lóðarinnar nr. 9 við Vagnhöfða þannig að þau nái út að götu við Dvergshöfða. Einnig er lögð fram skýringarmynd, ódags. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Vesturgata 62 - USK25070036
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2026 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061373 þannig að þaksvölum og þakformi er breytt og 4. og 5. hæð stækkuð í fjölbýlishúsi V4, mhl.04., á lóð nr. 62 við Vesturgötu.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við uppfærðar teikningar, mótt. 4. mars 2026.
-
Úthlíð 12 - USK25060191
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. september 2025 þar sem sótt er um leyfi til þess að grafa frá sökkulrými og koma fyrir inngang til suðurs og innrétta aukaíbúð í bílskúr, mhl. 03, í eigu íbúðar 0101, koma fyrir svölum ofan á þaki bílskúrs yfir að íbúðarhúsi og meðfram suðurhlið 1. hæðar á íbúðarhúsi, mhl. 01, á lóð nr. 12 við Úthlíð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026, samþykkt.
Fylgigögn
-
Álfabakki 8 - (fsp) Matvöruverslun - USK26020449
Lögð fram fyrirspurn Grímu arkitekta ehf., ásamt greinargerð, dags. 26. febrúar 2026, um að reka matvöruverslun í nýbyggingu á lóð nr. 8 við Álfabakka þar sem smásöluverslunarflötur verður allt að 1.000m2.
Vísað til verkefnastjóra til meðferðar.
Fundi slitið kl. 11:17
Brynjar Þór Jónasson Hjördís Sóley Sigurðardóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 10. mars 2026