Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa
Ár 2026, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 09:07, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 1087. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12-14, 3. hæð, Gjáin. Fundinn sátu: Brynjar Þór Jónasson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir. Eftirtaldir starfsmenn kynntu mál á fundinum: Britta Magdalena Ágústsdóttir, Hrönn Valdimarsdóttir, Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir og Jarþrúður Iða Másdóttir. Fundarritari var Margrét Þorvaldsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Stelkshólar 8 - (fsp) bílskúr - USK26090306
Lögð fram fyrirspurn Viktoríu Rannveigar Larsen, dags. 18. september 2026, um hvort bílskúr á lóð nr. 8 við Stelkshóla geti tilheyrt lóð nr. 6 við Stelkshóla. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Neikvætt er tekið í erindið. Ekki er heimilt samkvæmt fjöleignahúsalögum að selja bílskúrinn til annarra en þeirra sem búa í húsinu. Að öðru leyti vísast til fyrirvara og nánari upplýsinga í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Fylgigögn
-
Fossvogsblettur 2-2A - Breyting á deiliskipulagi - USK26050052
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Fossvogsbletts 2 og 2A. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjöldi barna á leikskólanum fer úr 150 í 200, byggingarreitur B1 er stækkaður þannig að megi koma fyrir hjóla-, vagna- og útigeymslum innan reitsins en byggingarmagn helst óbreytt. Auk þess er bíla- og hjólastæðum fjölgað, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 22. maí 2026. Einnig er lagt fram Samgöngumat Verkís, ódags. Tillagan var í auglýsingu frá 9. júlí 2026 til og með 20. ágúst 2026. Athugasemdir bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2026 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
-
Snorrabraut 85 - (fsp) Breyting á notkun - USK26090183
Lögð fram fyrirspurn Ölvu Framkvæmda ehf., dags. 11. september 2026, ásamt bréfi Vektors, hönnunar og ráðgjafar, dags. 11. september 2026, um að breyta notkun íbúðar F2012140 í húsinu á lóð nr. 85 við Snorrabraut í atvinnuhúsnæði, sem fellur undir notkunarflokk 4. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við fyrirspurnina þar sem að breyting á notkun húsnæðisins í atvinnuhúsnæði í notkunarflokki 4 samræmist skipulagi. Að öðru leyti vísast til fyrirvara og nánari upplýsinga í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Fylgigögn
-
Þingholtsstræti 14 - (fsp) Stækkun garðskála/vinnustofu - USK26030517
Lögð fram fyrirspurn Finns Arnars Arnarsonar, dags. 31. mars 2026, um stækkun garðskála/vinnustofu á lóð nr. 14 við Þingholtsstræti. Einnig er lögð fram umögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Neikvætt, samræmist ekki deiliskipulagi. Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Að öðru leyti vísast til fyrirvara og nánari upplýsinga í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Fylgigögn
-
Brekkugerði 4 - USK26060115
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. júní 2026 þar sem sótt er um leyfi til að byggja stakstæðan bílskúr, mhl.02, á lóð nr. 4 við Brekkugerði. Erindið var grenndarkynnt frá 17. september 2026 til og með 15. október 2026. Athugasemdir bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. október 2026 og er nú lagt fram að nýju. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026, og heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 10:20
Brynjar Þór Jónasson Hjördís Sóley Sigurðardóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 10. nóvember 2026