Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks - Fundur nr. 81

Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks

Ár 2024, fimmtudaginn 17. október var 81. fundur aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Tjarnarbúð og hófst kl. 10.02. Fundinn sátu: Ingólfur Már Magnússon, Björgvin Björgvinsson, Sigurbjörg H. Sigurgeirsdóttir, Hallgrímur Eymundsson og Katarzyna Beata Kubis. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir, Unnur Þöll Benediktsdóttir og Hlynur Þór Agnarsson. Einnig sátu fundinn eftirfarandi embættismenn og starfsfólk: Elísabet Pétursdóttir, Bragi Bergsson og Bryndís Snæbjörnsdóttir með rafrænum hætti. 

Valgerður Jónsdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf ÖBÍ, dags. 16. október 2024, um að Anna Kristín Jensdóttir taki sæti sem varafulltrúi Ingólfs Más Magnússonar. 
    -    Kl. 10.06 tekur Þorkell Sigurlaugsson sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning Félagsbústaða á aðgengilegu húsnæði. 
    Sigurður Halldór Örnólfsson og Sigrún Árnadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. 
     

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 8. október 2024, um breytingartillögu aðgengis- og samráðsnefndar dags. 19. september 2024. 

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 30. september 2024.um fund mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs með samráðsnefndum þann 28. nóvember 2024. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl.10.49

Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir Björgvin Björgvinsson

Katarzyna Kubiś Þorkell Sigurlaugsson

Unnur Þöll Benediktsdóttir Hlynur Þór Agnarsson

Sigurbjörg H. Sigurgeirsdóttir Hallgrímur Eymundsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar frá 17. október 2024