No translated content text
Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks
Ár 2022, fimmtudaginn 15. september, var haldinn 45. fundur aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.08. Fundinn sátu: Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir, Hanna Björk Kristinsdóttir, Ingólfur Már Magnússon, Björgvin Björgvinsson, Unnur Þöll Benediktsdóttir, Áslaug Inga Kristinsdóttir og Þorkell Sigurlaugsson. Eftirtaldir fulltrúar aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Rúnar Björn Herrera Þorkelsson og Hlynur Þór Agnarsson. Eftirtaldir starfsmenn sátu fundinn: Anna Kristinsdóttir, Guðný Bára Jónsdóttir, Þórdís Linda Guðmundsdóttir, Bryndís Snæbjörnsdóttir, og Valgerður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning Auðkennis á rafrænum skilríkjum. MSS22090069
Haraldur Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu lausna á rafrænum aðgengismálum velferðarsviðs. MSS22090070
Magnús Bergur Magnússon tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram umsögn aðgengis- og samráðsnefndar dags. 1. september 2022 , um tillögu fjármála- og áhættustýringasviðs um að hætta að prenta út og senda greiðsluseðla á pappír. FAS22080009
Samþykkt.Fylgigögn
-
Fram fer kynning á gæðastýringu og algildri hönnun á vef Reykjavíkur. MSS22090071
Ólafur Sólimann Helgason tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á Stafrænu Íslandi. MSS22090078
Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks leggur fram svohljóðandi bókun:
Aðgengis- og samráðsnefnd þakkar fyrir kynningarnar á stafrænni þjónustu. Nefndin telur mikilvægt að unnar verði úrbætur sem gera fötluðu fólki kleift að nálgast sín persónulegu gögn á borð við upplýsingar í Heilsuveru, netbanka, mínum síðum Reykjavíkurborgar og Tryggingastofnunar og fleiri stöðum. Aðgengis- og samráðsnefnd ítrekar að mikilvægt sé að leita lausnar á stafrænum aðgengishindrunum sem fyrst því þær eru brot á fullgildum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Fatlað fólk er jaðarsettur hópur sem verður enn jaðarsettari í sífellt stafrænna samfélagi og sú þróun er með öllu óásættanleg.
Hrefna Lind Ásgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið 11:57
Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir Þorkell Sigurlaugsson
Áslaug Inga Kristinsdóttir Ingólfur Már Magnússon
Unnur Þöll Benediktsdóttir Björgvin Björgvinsson