Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks - Fundur nr. 37

Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks

Ár 2022, fimmtudaginn 20. janúar, var haldinn 37. fundur aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði hófst kl. 13.02. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Þorkell Heiðarsson, Rannveig Ernudóttir, , Hanna Björk Kristinsdóttir, Björgvin Björgvinsson, Ingólfur Már Magnússon, Bergþór G. Böðvarsson, Lilja Sveinsdóttir, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Hallgrímur Eymundsson. Eftirtaldir starfsmenn sátu fundinn með fjarfundarbúnaði: Anna Kristinsdóttir, Þórdís Linda Guðmundsdóttir og Bragi Bergsson.
Guðný Bára Jónsdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer umræða um drög að aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar. MSS22010199

    Dóra Björt tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.  

  2. Fram fer kynning á styðjandi gæðaeftirlit með þjónustu við fatlað fólk.VEL2022010018

    Ágústa Rós Björnsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á stöðu innleiðingar á velferðarstefnunni og skipulagsbreytingum í tengslum við hana. VEL2022010019

    Dís Sigurgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram drög að umsögn aðgengis- og samráðsnefndar dags, 20.janúar 2022 um skýrslu um úttekt á undirgöngum Reykjavíkur dags. 29. nóvember 2021 tilv.R21100397. MSS22010284
    Samþykkt að fela formanni aðgengis- og samráðsnefndar að klára drög að umsögn um skýrslu á undirgöngum Reykjavíkur, í samráði við fulltrúa ráðsins 

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða vegna öryggisbrests á netkerfi Strætó. MSS22010125

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
37._fundargerd_adgengis-_og_samradsnefndar_fra_20._januar_2022.pdf