VR fær lóðarvilyrði fyrir 36 íbúðum

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Borgarráð hefur samþykkt að veita VR lóðavilyrði fyrir lóð ásamt byggingarrétti fyrir 36 íbúðir við í Úlfarsárdal.

Lóðin er á reit C1 við Skyggnisbraut, Gæfutjörn og Silfratjörn í Úlfarsárdal og gerir VR kleift að byggja 36 íbúðir en verkalýðsfélagið hefur lýst því yfir að það vilji standa að uppbyggingu leiguhúsnæðis fyrir félagsmenn sína. VR verður heimilt að byggja tvö fjölbýlishús á reitnum, samtals 3.225 fermetra.

Lóðarvilyrðið gildir í sex mánuði frá staðfestingu borgarráðs og er bundið því skilyrði að VR stofni leigufélag sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða með það að markmiði að tryggja húsnæðisöryggi og hagkvæma leigu.

VR er heimilt að framselja nýju húsnæðisfélagi lóðarvilyrðið. Nýstofnuðu félagi verður seldur byggingarrétturinn að beiðni VR með ákvörðun borgarráðs. Lóðarhafi skuldbindur sig til þess að selja 5% af heildarfjölda íbúða, ekki færri en tvær íbúðir, til Félagsbústaða og munu aðilar gera með sé samning þar að lútandi. Í samkomulaginu verða ákvarðaðar stærðir, staðsetning, skil íbúða og greiðsluflæði á byggingartíma miðað við framvindu uppbyggingarinnar. Félagsbústaðir munu sækja um stofnframlög vegna þessara íbúða til Íbúðalánasjóðs og Reykjavíkurborgar. Ef endanlegur samningur um kaupin liggur ekki fyrir innan tveggja mánaða frá úthlutun lóðarinnar fellur hún niður án sérstakrar ákvörðunar og tilkynningar borgarráðs þar um. Verð á fermetra er 45.000 krónur auk gatnagerðargjalds og er upphæðin alls 183 milljónir króna.